Lögberg - 16.09.1920, Page 1
SPEIRS-PARNELL BAKING CO.
ábyrgjast yður
fulla vigt, beztu vörur fyr-
ir lœgsta verð sem verið
getur. REYN IÐ Þ AÐ!
TALSÍMI: Garry 2346 - WINNIPEG
Það er til myndasmiður
í borginni
W. W. ROBSON
490 Main St. - Garry 1320
33. ARGANGUR
WFNNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 16. SEPT, 1920
NUMER 31?-
Helztu Viðburðir
Síðustu Viku
Canada.
Sir Robert Borden og Hon. Do-
herty dómsmálaráðgjafi eiga að
mæta fyrir hönd Canada á þingi
alþóðasamibandsins, er háð skal
vera í Geneva í næstkomandi nóv-
embermán. Kostnaður við þjóða-
^amlbandið á yfirstandandi ári
hefir numið $2,500,000 og þar af
greiðir Canada $125,000. '
Kona ein, Mrs. Ryan að nafni,
var nýlega tekin föst í Winnipeg
og sökuð um að hafa fyrirfarið
barni sínu ungu. CLík barnsins
fanst við járnbrautarteina skamt
frá Reditt stöðinni í Ontario; tal-
ið líklegt, að barninu hafi verið
fleygt út um vagnglugga. Konan
á heima í Kenora, Ont, og var
send þangað til yfirheyrslu.
Íbúatala Torontoborgar nemur
512,812,, samkvæmt nýprentaðri
skýrslu frá niðurjöfnunarnefnd
borgarinnar. Er Toronto þá orðin
tólfta stærsta borgin á meginlandi
Norður-Ameríku.
Borgin Montreal, sem er lang-
stærst allra borga Canada og tal-
in að vera sú fimta í röð stórborga
þessa meginlands, telur nú um
r.íu hundruð þúsund íbúa.
Járnbrautamála nefndin í Can-
fda, sem setið hefir á rökstólum
að undanförnu, hefir ákveðið að
flutningsgjald á öllum brautum
skuli hækkað um 35 af hundraði í
Vestur-Ganada, en 30 af hundraði
austan vatnanna miklu. Svo er
jafnframt fyrir mælt, að hækkun-
in í þessu fonrni skuli þó eigi
ptanda lengur en fram í næstkom-
andi júlímánuð. Flutningsgjöld
farþega hækka samkvæmt niður-
stöðu nefndarinnar um 20 af
hundraði. — Fargjalda og flutn-
ings hækkun þessi hefir þegar
mætt ákafri mótspyrnu í Vestur-
landinu, sem og eðlilegt er, þar
sem hún hlýtur að koma mjög
hart niður á almenningi. Verzl-
unar og viðskiftafélög víðsvegar
um landið mótmæla stranglega
þessum aðförum járnbrautar-
nefndarinnar og fara óvægum orð-
um um forseta hennar, Mr. Car-
vell, fyrrum ráðgjafa opinberra
verka í bræðingsstjórn Bordeqs.
Ovíst er enn með öllu, hvort mót-
mæli þessi muni leiða til nokkurs
árangurs, þess þó getið til, að Mr.
Meighen lítist ekki sem bezt á
undirtektirnar svona rétt fyrir
aukakosningarnar austur frá og
væntanlegar sambandskosningar,
sem þá og þegar geta skollið á.
Ö'llum þjónum, er vinna við þjóð-
eignabrautirnar í Canada, Cana-
dian National Railways, efir ver-
ið veitt launaviðbót, er nemur 20
af hundraði. petta telja starfs-
mennirnir ófullnægjandi og fara
fraih á alt að því helmingi meiri
hækkun.
Sagt er, að fjórir menn muni
sækja um foorgarstjóra embættið í
Winnipeg við kosningar þær, er
fram eiga að fara 3. des. næst-
komandi, og búist við aðjieir verði
Edward Parnell, S. J. Farmer og
bæjarfulltrúarnir J. K. Sparling
og J. L. Wiginton. Nýlega hefir
því einnig verið fleygt, að kona
muni og keppa um hnossið. AIls
munu vera um tuttugu og fjórar
þúsundir kvenna á kjörskrá í
borginni.
Hinn 9. þ.m. fanst lík af sex
eða átta mánaða gömlum dreng
vafið innan í pappír á tröðin.ni
ínilli William og Tecumseh stræta
í Winnipeg. Leynlögreglan er að
rannsaka atburð þenna, þó er enn
ókunnugt um hver niðurstaða-n
kann að verða.
Lady Burnham, -sú er í för var
með blaðamanna hópnum brezka,
er hingað kom til Winnipeg fyrir
skemstu, flutti nýverið tölu í Tor-
onto, þar sem hún bar Canadafólki
a brýn óhæfilega eyðslusemi og
vanhirðu á efnum sínum. Kvað
hún sér hafa ofboðið, hve miklu
fólk eyddi til óþarfa af vatni, við,
gasi og rafmagni á heimilum, en
einkum þótti henni þó brögð að
eyðsluseminni og skeytingarleys-
inu, að því er matvælum við-
kemur.
I
Norrisstjórnin í Manitoba hef-
ir ákveðið að veita fjárhagslega
aðstoð fólki því, er tjón beið af
völdum skógarelda í fylkinu á yf-
irstandandi sumri. Er landbún-
aðardeildin að láta meta tjónið
undir leiðsögön J. H. Evans að-
stoðar ráðherra akuryrkjumál-
anna.
Bretland
peir sem búa til Whisky á
Bretlandi hafa ekki mátt flytja
það til Bandaríkja fram að þess-
um tíma en fyrir skömmu vár það
banri afnumið, og nú er sagt .að
geysimiklar byrgðir séu komnar
til Amerilcu “til sölu í lyfjabúð-
um”; svo mikið hefir að sögn kveð-
ið að þessum útflutningi, að þessi
metall er sagður torfenginn á
Bretlandi.
Efst á dagskrá þar eru verka-
mannaráð að knýja það fram, að
kolanámur verði opinber eign, og
væntanlegar aðferðir þeirra til
þess, sem er verkfall um alt land.
pað er nú verið að undirbúa sem
kappsamlegast. Stjórnin í ann-
an stað, með þá að baki sér sem
þessu eru mótfallnir, býst til mót-
stöðu. Verkamenn á Bretlandi
hafa að sögn leitað samtaka við
námamenn í Ameriku, að taka
þátt í verkfallinu seint í þessum
mánuði og láta til skarar skríða.
Talið er að ef námamenn hafa sitt
fram, muni þar af stafa bylting
í skipun og stjórn þjóðfélagsiris7
svo ekki verði um fulltrúastjórn
að ræða, heldur gerræðisfulla
grimd og harðstjórn.
------o------
Bandaríkin
Fjórir verkamanna foringjar í
St. Paul voru nýlega settir í varð-
hald fyrir lítilsvirðandi ummæli
um dómstóla þjóðarinnar. Upp-
naflega voru mennirnir dæmdir í
$125 fjársekt hver, en með því
þeir eigi greiddu gjaldið á réttum
tíma, tók lögreglan þá fasta. Menn
þessir eru Dan. W. Stevens, for-
seti verkamanna sambandsins þar
í borg; Leslie Stinson ritari, Lynn
Thomson útbreiðslunefndarmaður
og R. D. Cramer, ritstjóri að
verkamanna bláðinu Labor Re-
view.
Gustaf Nelson, tengdasonur
hins alkunna stjórnmálamanns
Knute Nelsons senators, hefir ver-
ið tekinn fastur og sakaður um
að hafa skotið Joseph Middleton
til foana í síðastliðnum marz-
mánuði.
Mr. McAdoo, fyrverandi fjár-
málaritari Bandarikjanna, hefir á-
kveðið að leggja innan skamms
upp í pólitiskan leiðangur til
stuánin^s Mr. Cox, forsetaefni
demókrata. Hefir McAdoo ný-
lega lýst ýfir því, að hann vilji
enga tilslökun í áfengis löggjöf
þjóðar sinnar og telur bannið ó
nýtt með öllu, ef leyft verði sala
léttra vína og áfengra öltegunda.
Cox forsetaefni lýsti yfir því í
ræðu, fluttri að Butte, Mont., að
svo fremi að hann vinni í næstu
kosningu, muni hann tafarlaust
taka upp sjálfstjórnarmál íra og
fyl&ja því fram af alefli á full-
trúaþingi alþjóða - sambandsins.
K\\að hann heppilega úrlau-sn
sjálfstæðismálsins írska vera
frumskilyrði fyrir því, að innbyrð-
is friður og samúð gæti komist á
meðal hinna enskumælandi þjóða.
Mr. Hardi^g, forsetaefni repú-
blíkana, er nú lagður af stað í
kosninga leiðangur sinn og held-
ur margar ræður á dag. Vill hann
ekki að Bandaríkin blandi sér
pema sem allra minst inn í mál-
efni Norðurálfunnar og fer hörð-
um orðum um pjóðasambandið,
League of Nations. Ber hann
einnig demókrötum á brýn afskap-
lega eyðslusemi á almennings fé
og hgitir betri ráðsmensku á þjóð-
arbúinu, ef flokkur sinn komist
til valda.
Síðustu fimm ófriðarárin hefir
tala miljónamæringa í Bandaríkj-
unum þrefaldast. Árið 1914
yor\j þeir 2348, en 6664 voru þeir
árið 1917. Miljónamæringar eru
þeir taldir, sem hafa 100 þúsund
dali í árstekjur. Ef miðað væri
við 5 per cent af einni miljón
(50 þús.), þá væru þeir miklu
fleiri. He.lmingúr þessara mil-
jónamæringa, eða 3333, voru ým-
iskonar gróðabrallsmenn. 920
verksmiðjueigendur (einkum her-
gágnaverksm.), 300 bankamenn,
fl20 bændur og myllnueigendur.—
'716 starfsmenn hinna og þessara
fyrirtækja voru einnig taldir mil-
jónamæringar.
Af þessum miljónamæringum
greiddu fjórir skatt af meiri tekj-
um en 5 miljónum dala árið 1917.
Hæstur þeirra var Rockefeller,
með 34936604 dala tekjur.
Meðal þessara fjögra miljóna-
mæringa var ein kona, frú Harri-
man ekkja járnbrautarkonungsins.
þó námu tekjur hennar ekki nema
3794559 dölum það ár.— 226
aðrar kbnur í Bandaríkjunum eru
taldar miljónamæringar.
Hvaðanœfa.
Feykilegir landskjálftar hafa
gengið á Norður ítaliu og valdið
stórkostlegu eigna og manntjóni.
Fjöldi foæja og borga liggur í rúst-
um og hafa kippirnir orsakað
meiri og minni spell á 7,920 ferm.
svæði, einkum í þeim hluta lands-
ins, er Emilia nefnist og liggur
á milli Apennines og Pó árinnar.
Alls er sagt að um átta hundruð
manns hafi týnt lífi á landskjálfta-
svæðinu en tugir þúsundfa sætt
meiðslum. Ógrynni fólks standa
þar uppi húsnæðislaust og án mat-
ar og fata.
Járnbrautarverkfall hefir stað-
ið yfir í Mexico að undanförnu
sökum þess að stjórn járnbrautar-
málanna vildi eigi veita brautar-
þjónum launahækkun þá er þeir
fóru fram á. Svo fóru þó leik-
ar að þjónarnir báru hærra hlut
og fengu kaup sitt hækkað um 75
af hundraði. Lauk þar með verk-
fallinu.
En er ástandið í Mesopotamiu
alt annað en friðvænlegt. Alvar-
legar skærur eiga sér stað á degi
hverjum og hafa Bretar mist tals-
vert af liði sínu. Uppreistarmenn
halda ■ sig í smáhópum víðsvegar
um landið, svo lítt kleyft er að
átta sig á hvaðan helzt sé veðra
von.
D’Annunzino skáldið og æfin-
týramaðurinn sem tókst á hendur
að mynda stjórn í Fiume í fyrra,
þvert á móti vilja ítölsku stjórn-
arinnar, hefir gefið út yfirlýs-
ingu þess efnis að héðan í frá
skuli Fiume ásamt landi því öllu,
er borginni fylgir, vera sjálf-
stætt ríki.
Nýlega varð þýzka stjórnin að
greiða Frökkum 100,000 franka í
skaðabætur fyrir árás, er þýzkir
gerðu á skrifstofufranska kon-
^úlsins í Breslau.
Einn af mótstöðumönnum þeirr-
ar hreyfingar, að kvennfólk fengi
atkvæðisrétt, var hinn frægi kar-
dináli Gibbons, hann hefir lýst því
cpinberlega að úr því kvenmenn
hafi fengið atkvæðisrétt, þá sé
það hátíðleg skylda þeirra að nota
hann sem foezt og greiða atkvæði
hvarvetna sem atkvæðum megi
við koma, skoða það ekki að eins
vera rétt, heldur skyldu.
Svo má heita að ítalía sé um
þessar mundir í einu ófriðarbáli.
Gerbyltingamenn hafa náð haldi á
200 verksmiðjum og útlitið sýnist
benda á að um reglulega stjórn-
arbylting sé að ræða.
Mótspyrna gegn Bolsheviki
stjórninni erxstöðugt að aukast á
Rússlandi. Hefir slegið í brýriu
í Pétursborg og nokkrir af höfð-
ingjum Bolshevika látið þar lífið.
Meighen stjórnin hefir neitað
að fresta ákvörðun járnbrautar-
nefndarinnar um hækkun flutn-
ings og fargjalda í Canada. Mót*
mæli streyma að stjórninni úr
ölTum áttum, einkum þó úr vestur-
landinu, sem vitanlega verður
harðast úti. Ekki ólíklegt talið
að hækkunin verði stjórninni að
fótakefli.
Einn af ráðgjöfum í stjórn New
Brunswick fylkis hefir sagt af sér
embætti, sá er stjórnaði námum
og stjórnarlöndum í því fylki,
Hon. Dr. F. A. Smith. Tilefnið er
sagt ósamþykki í r^ðaneytinu út
af því, hvar hafa skyldi friðað
pvæði fyrir veiðidýr. Sagt er
jafnframt, að útlit sé fyrir al-
mennar kosningar í því fylk
seinna í haust.
Úr bœnom.
Verzlunarráð Winnipegborgar
hefir mótmælt ákvörðun járn-
brautanefndar, er veitir járn-
brautum ívilnuri þá, sem annars-
staðar getur. Bæjarráðið hefir
stutt þau mótmæli og ákveðið að
senda þau til Dominion stjórnar-
Jnnar. Sumir bæjarfu'lltrúar létu
sér ekki títt um samþykt þá, sögðu
hækkun þessa af römmum toga
spunna, en aðrir réðu, sem vildu
ekki ]x)Ia álögurnar með öllu um-
talslaust.
Séra Rúnólfur Marteinsson og
frú hans fóru snögga ferð suður
til Dakota fyrir síðustu helgi að
heimsækja gamla vini þar syðra.
Pétur Hermann frá Mountain,
N. D., kom til bæjarihs fyrir
helgina og lagði siamdægurs á
stað vestur til Elfros, Sask. Bjóst
við að verða fjóra fimm daga í
ferðinni. Mun Pétur vera að líta
sér eftir landi til kaups.
Mrs. Jóhanna Ellis kom vestan
frá Leslie, Sask., á mánudaginn,
eftir þriggja vikna dvöl þar.
Aðstandendur þeirra íslenzku
manna er í herþjónustu gengu,
eru vinsamlegast beðnir að senda
sem allra fyrst myndir og æfiá-
grip hermannanna til Mrs. J. B.
Skaftafeon 378 Maryland Street.
petta er mjög áríðandi fyrir út-
gáfunefnd Minningaritsins.
Sá orðrómur hefir oss borist úr
St. George kjöræminu, að Norris-
stjórnin hafi ókveðið að taka
höndum saman við afturhaldsmenn
þá, er kosnir voru til þings í Mani-'
toba og gjöra þá John Haig og
Mr. Tupper að ráðherrum. —
Naumast þarf að taka það fram,
að þetta er tilhæfulaust slúður,
hefir ekkert við að styðjast —
ekki einu sinni svo mikið sem
flugufót.
Séra Friðrik Hallgrímsson frá
Balur, sem valið hefir hér í Win-
nipeg síðastliðnar tvær vikur og
gegnt prestsverkum í Fyrstu lút.
kirkju, hélt heimleiðis eftir helg-
ina síðustu — gat því miður ekki
verið lengur í burtu frá söfnuðum
sínum í Argyle, þó Fyrsti lút. söfn-
uður hefði feginn vilja fá að njóta
þjónustu hans lengur.
Fyrsta þ.m. lézt að heimili sínu
við River Hights hér vestan við
bæinn etftir langa legu, Magnús
Guðlaugsson, Hann var 68 ára
gamall og hafði dvalið hér í Win-
nipeg frá því að hann fluttist
vestur um haf. Magnús heit, var
jarðsunginn frá Fyrstu lút. kirkju
af , séra Friðrik Hallgrímssyni 3.
september.
Frá Islandi.
Úr Vestmannaeyjum er skrifað':
Síðastl. fimtudag komu hingað
þeir landlæknir G. Björnsson og
loftskeytastjóri Friðbjörn Aðal-
steinsson, eftir ferðavolk austur í
Landeyjar, þaðan til Eyrarbakka
og siðan á mótorbát til Vestmanna
eyja. Landlæknirinn var í eftir-
litsferð. Stjórn sjúkrahússins
hélt landlækni veglega veizlu í
matsal sjúkrahússins, og gat því,
vegna húsnæðis ekki boðið nema
fáum þeirra, sem gjarnan hefðu
óskað að sitja veizluna, enda var
fyrirvarinn harla naumur. Salur-
inn var prýðilega skreyttur ísl.
flöggum og blómum, en yfir höfði
landlæknis voru nafnstafir hans,
G. B. úr lyngfléttum, lýstir raf-
ljósum.
Sigurður lyfsali flutti heiðurs-
gestinum ræðu og þakkaði honum
fyrir hin mörgu og ýmislegu störf
í þarfir þjóðarinnar; ræðumaður
gat þess, að mikið væri starf-
að í eyjum úti, og væri því ekki ó-
eðlilegt, að eyjarskeggjum væri
kærkomið tækifæri að heiðra gest
sinn, því það væri einmitt sívak-
andi og óbilandi starfsþol, sem
einkendi heiðursgestinn og allan
hans æfiferil. óskaði honum að
síðustu allra heilla og að hann
mætti starfa áfram sem bezt og
mest, án þess að líta til hægri eða
vinstri, eða hirða um augnabliks-
vinsældir fólksins, og fara því
einu fram, sem hans eigin góðu
gáfur segðu honum. Landlækn-
ir mælti .síðan fyrir minni Vest-
mannaeyja. Var það skörulegt
og alvarlegt erindi og sýndi, að
heiðursgesturinum er enn í fylsta
fjöri, andrikur og víðsýnn og
geymir enn æskunnar trú á fram-
tíðina, framfarir og vaxandi heið-
ur ættjarðarinnar og Eyjanna. pá
töluðu einnig> hr. ibæjarfógeti
Karl Einarsson og séra Oddgeir
Guðmundsson fyrir minni land-
læknis. Samsætinu lauk um mið-
nætti og héldu gestirnir heim
þressari í huga og ríkari af ræð-
um við hinn gáfaða og hámentaða
heiðursgest. —
pá gleðjast eyjarskeggjar yfir
komu loftskeytasjórans; var hann
að sjá stað hinni væntanlegu loft-
skeytástöð, og er það vitanlega
öllum hér hið mesta gleðiefni að
fá hingað loftskeytastöð, bæði
vegna sambandsins við megin-
landið og björgunarskipið; ekki
síst fyrir þá sök, að tækin eru af
allra nýjustu gerð og svo full-
kominn sem völ er á. Vestm.ey-
ingar eru því að maklegleikum
mjög þakklátir hr. landsímastjóra
Forberg, sem hefir verið aðal-
hvatamaður þessa fyrirtækis.
Sagnfræðingafundur fyrir Norð-
urlönd átti, eins og áður hefir ver-
ið sagt frá, að vera í kring um
miðjan þennan mánuð. Af ís-
lendingum sátu hann dr. Jón por-
kelsson og Bogi Th. Melsteð. Af
fyrirlestrum þeim, sem ráðgerðir
voru á fundinum má nefna, einn
um undirbúningsmentun aðstoð-
arbókavarða, um orsakir endur-
reisnarstefnunnar, um sænskt
þingræði á 18. öld, um stefnubreyt-
ingar á danskri sagnfræði um
1880 o. fl. — Meðal fyrirlesar-
anna voru Korén, sænskur, Koth,
norskur og Aage Friis, danskur.
Magnús Jónsson prófessor, sem
fengið hefir lögfræðiskennaraem-
bættið við háskólann hér,, sem L.
H. Bjarnason hæstaréttardómari
hefir áður gengt, er nú, eins og
áíur, ritari dönsku lögjafnaðar-
nefndarmanna og hefir dvalið hér
ásamt þeim. Með honum er frú
hans sem er dönsk, og tveir synir,
Úlfur og Vagn. pau fara til
Khafnar nú aftur með nefndar-
mönnum, en mun koma hingað
aftur í febrúar næstkomandi og
hr. M. J. þá taka við prófessors em-
bætti sínu hér, en til þess tíma
þjónar L. H. Bjarnas^n því.
Drengurinn, saga Gunnars
Gunnarssonar, sem birst hefir
áður hér í blaðinu í íslí þýðingu,
er nú komin út i sérstakri foók og
kostar kr. 3,8».
Símfregn frá Seyðisfirði segir
þá sögu eftir Færeyingum, sem
komið höfðu af fiskiveiðum, að
þeir hefðu séð einhverskonar hylki
á floti í sjónum fyrir norðaustur-
landi suður af Langanesi og orðið
varir við 10 alls. Hugðu þeir
þetta vera sprengidufl og styrktist
grunur þeirra við það, að þeir sáu
á reki í sjónum lifrarföt og skips-
bómu, sem þeir héldu vera leifar
af skútu, sem farist riefði. — Enn
fylgir það sögunni, að einhverjir
hafi gerst svo djarfir að draga á
land við Langanes eitt af duflum
þessum, og anipað hafi komið á
land í Bjarnarey fyrir sunnan
Vopnafjörð. pá hefir einnig
rekið á Seyðisfirði, fyrir utan
Vestdalseyri einhverskonar hylki,
sem mönnum þykir grunsamlegt,
en hvað þó vera miklu minna en
menn hyggja venjuleg sprengi-
dufl vera.
“Kári Sölmundarson” heitir nýr
íslenzkur botnvörpungur, smíðað-
ur í Englandi og nýkominn\hing-
að, eign hlutafél. Kári. Skipstjóri
Aðalsteinn Pálsson.
V. Peters, enski miðillinn, sem
áður hefir verið sagt frá að vænt-
anlegur væri hingað í sumar, er
r.ú sagður koma hingað innan
skams.
Lárus Jóhannesson cand juris,
sonur Jóh. Jóh. bæjarfógeta, fór
utan með “Gullfossi” síðast. Hann
ætlar að dvelja fyrst í Danmörku
og víðar við Norðurlanda háskóla
og kynna sér frekar, bóklega og
verklega, dómstdraf og mála-
færslu og fer síðan líklega til
pýzkaland6 og Englands og legg-
ur aðallega stund á sjórétt og fé-
lagarétt. Hann 'hefir, eins og
kunnugt er, hæsta lögpróf, sem
tekið hefir verið við háskólann
hér. Með sömu ferð fór einnig utan
systir haris, frk. Anna Jóhannies-
dóttir.
Vikið frá embætti. Sýslumanni
Dalamanna, hr Bjarna p. Johnsen,
hefir vetið vikið frá embætti um
stundarsakir, en hr. porsteinn
porsteinnsson lögfræðingur frá
Arnbjargarlæk hefir verið settur
sýslumaður í Dalasýslu.
Björn G. Björnsson, sonur G. B.
landlæknis er hér nú í kynnisför
ásamt ameriskum námsfélaga
sínum. B. G. Bj hefir verið við
verkfræðanám við ameriskan há-
skóla síðan 'hann varð student hér,
og fer aftur vestur um haf innan
skams til að Ijúka þar prófum.
Kristinn Björnsson læknir frá
Khöfn, sonur Björns sál. Guð-
mundssonar múrara, dvelur hér
nú um tíma ásamt frú sinni.
Nýja Bió er nú komið í ný húsa-
kynni, sem forstöðumaður þess, hr.
Bjarni Jónsson, hefir látið reisa,
og er þetta nú vandaðasta og fall-
legasta samkomuhúsið hér í bæ.
Að undanförnu hefir m. a. verið
sýnd þar saga Björnssons Sigrún
frá Sunnuhvoli, ágæt mynd. pað
var þörf hér fyrir 'hús af þessari
gerð, og það er eitt af því, sem af
mestum myndarskap hefir verið
leyst af hendi hér á síðustu tím-
um.
Nú að undanförnu hefir Sigur-
jón Pétursson kaupm. haft opna
iðnsýningu í Bárubúð. par hafa
verið sýndar vörur frá þremur
verksmiðjum, sem hann rekur:
neta og veiðarfæraverksmiðjunni
hér í bænum, ullarverksmiðjunni
á Álafossi, og sápuverksmiðjunni
sem er hér inni við Laugalækinn.
Af þessu má sjá, að Sigurjón Pét-
ursson er orðinn hér mikill at-
hafnamaður. Vörurnar, sem
framleiddar eru í öllum þessum
verksmiðjum, fá alment. Meðan á
sýningunni hefir staðið, hefir mik-
ið verið keypt þar og pantað. Dúk-
ar líta vel út og munu allmikið ó-
dýrari en útlend fataefni, þegar
litið er til endingarinnar. Prjóna-
vél var þarna og skilaði frá sér
sokknum fullprjónuðum á 5 mín-
útum. pað var sagt, að allir út-
lendingar, sem inn kæmu þarna,
keyptu sér þar meðal annars sokka.
Yfir höfuð höfðu margir útlend-
ingar, sem inn komu, látið vel yf-
ir sýningunni. — Botnvarpa var
sýnd þarna og tók yfir allan sal-
inn, söml. síldarnet, þorskanet, á-
dráttarnet, silungagildra, ála-
gildra o. s. frv. Svo voru vörur
frá sápugerðinni af ýmsum teg-
und’um. Yfir höfuð var sýningin
hin myndarlegasta og ætti að vera
til þess að hvetja menn til stuðn-
ings við ísl. iðnað með viðskiftum
við þá, sem hafa hann á boðstóln-
um.
Úr Strandasýslu er skrifað 12
júlí: “Tíðin var mjög vond í vetur
sem leið, allan tímann frá jólum
til hvítasunnu. Okkur hér norð-
urfrá þykir nú reyndar ekkert til-
tökumál þó sjálfur veturinn sé
nokkuð strangur, en verra er, þeg-
ar vorin eru engu betri en sjálfur
háveturinn. Fyrir páskana komu
nokkrir góðviðrisdagar, og hefði
þá haldist góðviðri nokkuð leng-
ur, þá hefði bráðlega farið að koma
upp jörð. En 2. Páskadag var
komið ösku norðanveður með
miklu frosti og fannkomu, og
hélst það að mestu í hálfan mán-
uð. Um sumarmálin, stilti aftur
til í nokkra daga, en sunnudaginn
fyrsta í sumri rauk aftur upp á
riorðan, og mátti þá heita óslitinn
r.orðangarður með kafaldsgangi til
hvítasunnu. Brá þá til bata, og
hefir síðan verið hæglát og stilt
tíð, en þó fremur kalt alt að þessu.
Margir urðu tæpir með hey, sem
vonlegt var, eftir svo langan inni-
stöðuvetur, en vandræði urðu eng-
in; Sterling kom um sumarmálin
með nokkuð af matvöru, sem kom
sér einkar vel, bæði fyrir menn og
skepnur. Hafíshroði nokkur kom
eftir páskana, en gerði ekkert til-
takanlegt tjón. En voðalegt var
útlitið hér norðanlands eftir pásk-
ana, þegar íshroðann var að reka
inn. Verzlanir alveg matarlaus-
ar, almenningur kominn að þrot-
um með matbjörg og heylbirgðir
manna mjög teknar að þverra.
Hefði þá komið hafís fyrir alvöru,
í hefði best sést hvernig farið
hefði. pað er ófyrirgeflanlegt
fvi irhyggjuleysi að birgja ekki
Norðurlandið nokkurn veginn að
matvöru fyrri part vetrar, og
hlýtur fyr eða síðar að verða til
stórtjóns. Bágar eru samgöng-
urnar. Reyndar læt eg nú strand-
ferðirnar vera, eins og áætlunir
segja, að þær eigi að vera. En það
er aldrei hægt að reiða sig á þær,
ýmist er þeim breytt, ferðir feld-
ar úr, eða skipin látin vera á ferð-
inni töluvert á undan áætlun. Og
virðist í þessu kenna töluvert ó-
stundvísi þeirrar, er oss íslend-
ingum hefir verið borin á brýn.
pað er betra að hafa enga áætlun
fyrir strandferðaskipin, heldur en
að hún sé svo óábyggileg og reikul
að ekki megi reiða sig á hana. Svo
er annað, sem má ekki liggja í
þagnargildi, og það er það, að yf-
irmenn strandferðaskipsins þykja
ekki neitt liprir eða liðlegir við-
skiftis oft og tíðum. Sem lítið
dæmi um stirðlega framkomu
þeirra, má geta þess, að þegar
skipið kom á sumardaginn fyrsta
á Norðurfjörð, ætlaði maður nokk-
ur hér í sveit að fá flutt með skip-
inu 2 eða 3 lítil stykki til hafnar
hér við Húnaflóa, sem skipið átti
að koma á, og var kominn með þau
að skipsfjöl, en enginn kostur var
þess, að fá þessi stykki flutt með
skipinu. Sögðu skipsmenn, að
þeim hefði verið bannað af útgerð-
inni, að taka nokkurn flutning í
þeirri ferð hafna á milli. Er
slíkur stirðleiki, hvort heldur
hann kemur fram hjá útgerð skips-
ins eða skipshöfninni, ekki lag-
•aður til þess að auka vinsældir
almennings fyrjr innlendri skipa-
útgerð, þegar að landsins eigin
synir eru eru n:iklu óhðlegri í
viðskiftum en útlendingar vanal.
yoru meðan þeir réðu fyrir sam-
göngunum. Mtargar af þeim
fögru vonum, sem landsmenn
gerðu sér við stofnun Eimskipafé-
lagsins virðast nú — því miður —
óðum að vera að hrynja um koll,
og er leitt til þess að vita. — 1
þessu bygðarlagi eru 2 fastar
verzlanir. Eiga þær mjög erfitt að-
stöðu að því er öll viðskifti og sam-
göngur snertir, og er fyrst þar til
að nefna símaleysið, og þeir, sem
nokkuð eru hér staðháttum kunn-
ugir, geta nokkurn veginn giskað
á, hvílíkum erviðleikum sé bundið
fyrir verzlanir, í hvert skifti, sem
þær þurfa að nota síma, að þurfa
þá að sækja til Hólmavíkur, svo
löng og vond sem sú leið er. Á
vetrum getur það oft verið hreinn
og beinn lífsháski að hætta sér
yfir Trékyllisheiði. Og í annan
stað má nefna samgönguvandræð-
in eða erviðleikana á að fá skipin
til að koma á hafnirnar hér norður
frá, þegar þau fara um Flóann,
enda þótt nægur flutningur sé
fyrir þau. í fyrrahaust áttu verzl-
anir þessar um 80 tonn af salt-
fiski, sem þær náuðsynlega þurftu
að koma frá sér og voru búnár að
fá kaupanda að í Reykjavík, ef
fiskurinn kæmist suður fyrir ára-
mót. Var þá ýtarlega reynt til
þess að fá Sterling til að taka fisk
þennan, er skipið var hér á ferð í
desember, en slíks var enginn
kostur; var þó allur fiskurinn
kominn á einn góðan stað, Reykj-
arfjörð, og kunnugir sögðu, að
nóg rúm hefði verið í skipinu.
Varð þetta til þess, að fiskurinn
komst ekki suður fyrir tilskilinn
tíma. Fiskinn fékst ekkert skip
er um Flóann fór síðan í vetur, til
að taka, og fóru þó víst 4 eða 5
skip hér rétt fyrir framan í vetur,
og það oft í bezta veðri. Fiskur-
inn er óseldur enn, en allir geta
séð, hvílikt tjón slíkt er fyrir
verzlanir og héraðið í heild sinni.
Hvort sem slíkt er að kenna út-
gerðinni eða skipstjórum hvorum
fyrir sig eða í sameiningu, er
nokkuð sama, og bagaiegt er að
búa við slikar samgöngur, og
verða að líða stórtjón fyrir — að
því er manni virðist — stirðleika
einan saman. — peir góðu menn
sem gera skipin út og skipstjór-
arnir, mega þó vita það, að hér
norður á Ströndum búa líka menn
eins og annarstaðar á landinu, og
að þeir eiga, sem aðrir landsmenn,
sanngirnisrétt til að njóta svip-
aðra þæginda í samgöngum sem
aðrir landsmenn, og þeir góðu
menn hafa gott af því að fá að
heyra, að menn hér taka ekki hvað
sem er fyrir góða og gilda vöru,
og þeir finna vel, hvað við þá er
átt, hvort sem þar á hlut að máli
útgerð Eimskipafélagsins eða
þjónar hennar, og menn kunna
hér líka að meta menn eftir fram-
komu þeirra, hverjir sem þeir eru,
alveg eins og aðrir Tandsmenn.
pað er eins og þessir menn haldi,
að okkur útkjálkabörnunum megi
alt bjóða, og að við gerum okkur
alt að góðu orðalaust, en þar
skjátlast þeim. Menn höfðú ekki
búist við því, að hin innlenda út-
gerð yrði verri viðureignar og
stirðari í viðskiftum en útlend-
ingarnir forðum, en sú er nú samt
revndin á.
Sv. G.