Lögberg - 16.09.1920, Blaðsíða 4

Lögberg - 16.09.1920, Blaðsíða 4
fiW. 4 LOGBKRG, nMTUDAGINN ie. SEPTEMBER 1920 ecg ■ Gefið út hvem Fimtudag af The Col- jj umbia Press, Ltd.,jCor. William Ave. & § Sherbrook Str., Winnipeg, Man. TAIiSIMI: GAKRY 41« og 417 Jón J. Bíldfell. Editor Lltanáakrift til blaðsins: TtfE C0LUMBIA PRESS, Ltd., Box 3172. Winnipeg, N|an. Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LOCBERC, Box 3172 Winnipeg, Njan. VERÐ BLAÐSINS: $2.00 um Arið. •»27 imininniiinuHiHimniiniiii^l Fargjalda og flutningshækkunin. I ritgerðum sínum um umsókn járnbraút- arfélaganna á hækkun fargjalda og flutninga með brautunum, spáði Free Press að leikslok- in mundu verða þau, að almenningur yrði harð- ast úti, með því að það væri alt af að verða deginum ljósara, að opinberum umboðsnefnd- um commissions sýndist ganga greiðara að gæta hags stóreignafélaganna, en réttar fjöldans Tvö hávirðuleg blöð fordæmdu ummæli þessi og töldu þau innblásin af uppreistaranda eða Bolsheviki játningum. Hvað sem því líður þá er hitt þó víst, að atburðir þeir sem síðan hafa gerst, meir en réttlæta 'svartsýnið, sem í Free Press kann að hafa komið fram, með því að úr- skurður járbrautarnefndarinnar dregur svo á- takanlega taum hinna umræddu stóreignafé- laga, að tillögur almennings, sem þó vitanlega á að borga brúsann, komast hvergi að. — .Járnbrautarnefndin er engin helgistofnun, hún er ekkert heilagt dómþing, er túlkú skuli iög þjóðarinnar og ráða vaka yfir að þeim sé framfylgt. Nefndin er stofnuð af þjóðþingi C'anada í þeim tilgangi að framkvæma ákveðn- ar skyldur í þarfir fjöldans og þess vegna hlýtur hún í eðli sínu að vera háð almennings- álitinu. Og færi svo að fólkið á sínum tíma kæmist að þeirri niðurstöðu að nefndin hefði brugðist vonum þess, sýndist ekkert því til fyrirstöðu að það krefðist þess að hún annað- hvort bætti ráð sitt eða hætti að vera til! Að slíkar kröfur geti komið fram þá og Jiegar, er ekki néma það sem búast má við og teljast verður eðlilegt í alla staði undir kring- umstæðunum. Hin ströngu mótmæli frá Manitoba og Saskatchewan fylkjunum, ásamt hinum ýmsu iðnstofnunum í Vestur Canada, sem fram hafa komið gegn hækkuninni, voru og eru í eðli sínu bygð á heilbrigðum ástæðum. Þeir, sem mót- mæltu, héldu og halda því enn fram, að eftir þörfum Canadian Pacific Railway félagsins skyldi farið, ef um fargjalda og flutnings- hækkun væri að ræða. Þeir héldu því enn fremur fram, að svo fremi að slík hækkun ætti að fást, yrði félag það að færa góð og gild rök fyrir því að hennar væri þörf. Þeir sem bezt hafa fylgst með í þessu hækkunarmáli, athugað framburð C. P. R. vitn- anna og svör þeirra við hinum ýmsu spuniing-' um og kynt sér einnig z-ök þau, er umboðsmenn iðnmálanna og stjórnanna í Vesturfylkjunum bygðu mótmæli sín á, geta með góðum rétti full- \rt, að félagið hafi fáar og veigalitlar ástæður fram fært, er réttlætt gæti hækkun á flutningi og fargjöldum, er næmi 40% af hundraði. Það hefir meira að segja beinlínis verið sannað, að þrátt fyrir aukinn reksturskostnað hefir C. P. R. alt af vrerið að stórgræða, og þess vegna hlaut krafan um hækkun að vera í eðli sínu bæði óþörf og ótímabær. Það hefir einnig verið sannað, að C. P. R. félagið á feyki mikinn varasjóð, sem það hefir alt zzf verið að safna í, sjálfsagt í þeim tilgangi að vernda eignir þess á vandræða tímum ef í harðbakkazra kynni að slá. Það hefir enn fremur sannast, að síðasta hækkunin á flutn- ings og fargjöldum á undan þeirri, sem nú var veitt, og upptök sín átti í Bandaríkjunum, hef- ir gefið C. P. R. tólf miljón dala tekjuauka á ári. Af þessum ástæðum er þegar Ijóst, að tf fram á hækkun var farið, mátti hún ekki vera nema sem allra minst að hugsanlegt var. Það hefir verið sýnt og sannað, að hækkun þessi keznur langharðast niður á íbúum Vestur- Jandsins. Jöfnuður á flutningsgjöldum í Aust- ur og- Vestur Canada (gjöldin vestra látin ó- breytt), hefði gefið félaginu meir en nægan tekjuauka til þess að standast hækkaðan rekst- urskostnað, hækkun vinnulauna o. s. frv. — 1 því falli að reksturkostnaðurinn hefði hækkað tilfinnanlega á næstu sex mánuðum, gat vel komið til mála að hækka eitthvað flutnings og farþegjagjöld, — það var alt af nægur tími til stefnu. — Mótmæli gegn hækkuninni voru ekki borin fram af neinum kala til járnbrautarfé- laganna, eins og tekið var skýrt fram af um- boðsmönnum þeim, er Vesturlandið sendi fyrir sina hönd á fund jámbrautarnefndarinnar. Hefði það sannast að hækkunarinnar væri þörf, mundi almenningur möglunarlaust hafa tekist byrðina á herðar til þess að halda járnbrautum þjóðarinuar í viðunanlegu horfi. En slíku var ekki að heilsa undir kringumstæðunum. — Skýring sú sem J. B. Ooyne, K. C. bar fram nýlega í blaði í sambandi við niðurstöðu jám- brautarnefndarinnar, er líklegast sú eina rétta. Akvörðun nefndarinnar hefir ekki verið gerð til þoss að fullnægja lögmætum þörfum C. P. R. félagsins, heldur til þess að reyna að bjarga frá fjárhagslegri druknun Canadian National járbrautarfélögunum, sem alt af virðast vera að sökkva dýpra og dýpra í skuldahafið með hverju árinu sem líður. Hækkunin, jafnvel 40 af hundraði, gerir Canadian National brautirnar aldrei sjálf- bjarga, þær halda samt áfram að tapa og fé- hirzla ríkisins verður að bera ábyrgðina, um leið og hækkunin veitir C. P. R. miklu meiri tekjubót en félag það hefir nokkra þörf fyrir, heldur að eins áfram að bæta enn við þenna helga varasjóð, sem aldrei má hrófla við. Það er engum vafa undirorpið, að járn- brautarnefndín hefir farið langt út valdsvið sitt í máli þessu. C. P. R. er verulegt járnbrautr- félag, og enginn mundi hafa hið minsta á móti því þótt járnbrautarnefndin hlutaðist til um að menn fengju sanngjarna vexti af fénu, er þeir hafa í það lagt. En það er öldungis utan við verksvið járnbrautarnefndarinnar, að skifta sér af því hið allra minsta á hvem hátt skuli lappað upp á Canadian National félögin, járbrautarfélög, sem öll era gliðnuð af geirneglingunum, eða hvernig gera megi úr þeim viðunandi, sjálf- bjarga brautir. Fram úr slíku á þjóðþing Can- ada að ráða. Það er þingið eitt, sem vald hef- ir til þess að kveða á um með hverjum hætti tekjuhallanum skuli mætt, sem er í raun og veru ekkert annað en mismunurinn á milli þess, sem fólkið þarf að borga til þess að láta góða járn- braut bera sig og kostnaðarins við Canadian National brautimar, í því ástandi, sem nú eru þær. Þessi aðferð járnbrautarnefndarinnar, á- stæðulaus flutnings og fargjalda hækkun, er í framkvæmdinni verður að eins til verulegra hagsmuna því jámbrautarfélaginu, sem eink- is tekjuauka þarfnast, en veldur tilfinnanlegri verðhækkun á lífnauðsynjum almennings, er sú lang fráleitasta leið, sem nefndin gat valið Út úr ógöngunum, ef um ógöngur var að ræða. Járnbrautarmálaráðgjafinn, Dr. Reid, hélt því fram á síðasta þingi, að þingið eitt hefði zirskurðarvald í slíkum málum sem þessum. — Sama reglan hlýtur auðvitað að gilda enn. Þörfin á afskiftum þingsins í þessu tilfelli, hefir sannarlega fremur aukist en minkað eftir því sem málunum nú er skipað. Lauslega þýtt úr Free Press. Góðar bækur. Uppeldis spursmálið, er ekki að eins eitt af vandasömustu spursmálum mannanna, held- ur það vandasamasta. Það er ekki einasta að á því hvíli ánægja löreldra og aðstandenda, velferð bamanna á æfibraut þeirra, heldur og velferð og heill, mannfélagsins í heild sinni. y Þegar um barnauppeldi er að ræða, eða að móta hzzg og hjarta unglinganna, sem er samá °S leggja veg þann sem hinn ungi á að ganga í gegnzim lífið, eða eins og það stendur í ritn- ingunni, og vér námum í barnalærdóms bók vorri: ‘ ‘ kenn þeim unga að ganga þann veg sem hann á að ganga, og þegar hann eldist mun- ltann ekki af honum beygja.” Margar eru að- ferðirnar til þess að móta, leiða og laða sálir þeirza ungu—og beina þeim á rétta leið. Ort og atlot þeirra sem þau umgangast í æsku, hafa íivalt djúp og varanleg áhrif á þau. En að voru áliti er ekkert sem eins miklu ræður, zzm heill og heilbrigði þeirra, eins og bækurnar sem nnglingarnir lesa, er þeir komast til vits og ara. Öllum mönnum kemur saman um, að lífs- spursmálið sé fvrir líkamlegan þroska og heil- brigði unglingsins, að fæðan sem hann leggur sér til munns sé hrein og óspilt. En svo mjög sem á því ríður, þá er hitt þó ef lil vill enn þá meira virði, að hin andlega fæða þeirra sé hrein, holl og uppbyggjandi. Ein af hinum mörgu yfirsjónum vorum Vestur-lslendinga í sambandi við þessi upp- eldismál, er hve óvandlát vér eram að bókum þeim er vér fáum böfnum vorum í hendur til lesturs. — Hve það eru margir vor á meðal, sem ekki hafa það stöðugt hugfast að hin and- lega fæða — hugsanirnar og orðin, sem ungling- arnir drekka inn í sig úr bókum og blöðum, er alveg eins þýðingarmikil fyrir líf og þroska þeirra, eins og maturinn sem nærir og þroskar likami þeirra. Allir foreldrar, og aðstandendur unglinga viðurkenna þá skyldu sem sjálfsagða, að sjá Þeim sem þeim er trúað fyrir, fyrir fötum og fæði, svo þeir þurfi ekki að ganga naktir eða í tötrum, né heldur hungraðir. Jafn sjálfsagt ætti það að vera fyrir alla aðstandendur unglinga, að sjá þeim fyrir góð- um og nytsömum bókum, er þroska og styrkja hið andlega líf þeirra, og víkka sjóndeildarhring þeirra fyiár því sem er heilbrigt, gott og fag- urt í lífinu. “Þvz blindur er bóklaus maður.” Og vér þykjumst vita að fólk skorti ekki vilja til þess, að velja börnum sínum hið góða hlutskifti að því er til bókanna kemur. Held- ur sé það hitt að fólk sé ekki klókt í því hvaða bækur það séu, sem helzt bæri að velja handa börnum og unglingum að lesa, og að margt af því reiði 'SÍg of mjög á skólana í þeim efnum og er það nokkur vorkun. En benda vildum vér á, og það alvarlqga, að á unglingsáranum eru það ekki skólabækurn- ar sem mest hafa áhrifin á sálarlíf baraanna, lestur þeirra er skylduverk —það eru bækum- ar sem unglingurínn les sér til nautnar utan skóla, sem mest áhrifin hafa, og þes)g vegna er svo afar þýðingannikið að vanda til þeirra sem bezt. Mikið úrval af ágætum barna bókum er til hér á bókamarkaðinum, sem hvert einasta barn hefði gott af að lesa. En af engri bók vitum vér, og vér fullyrðum, að hún sé ekki til, sem eins hefir heillað hugi unglinganna í þessu landi eins og “The Book of Ivnowledge,” þar getur barnssálin laugað sig í því fegursta sem hugsað hefir verið af stórskáldum heimsins, lesið þau fegurstu æfintýri sem þekt eru, kynt sér landafræði, sögu, uppfyndingar og leiki, í einu orði alt það sem mannsandin hefir fegurst hugsað, eða lengst komist í bókmentum, og í verklegum framkvæmdum, á svo léttu og aðlað- andi ensku máli, að hvert einasta barn sem komið er í 5. bekk alþýðu skólanna, getur haft full not af, og bækur þessar, er hinir hæfustu mentamenn víðsvegar um þetta land hafa und- irbúið, eru jafn nytsamar og aðlaðandi fyrir fullorðna eins og fyrir börn. --------o-------- Fyrsti sendiherra íslands. Þess var að vænta, eftir að ísland hafði fengið fullveldi sitt viðurkent, að það mundi að sið annara fullvalda rzkja koma á sendiherra eða fulltrúa sambandi við umheiminn. Islenzka stjórnin hefir, sem kunnugt er, haft viðskifta- ráðunauta endur og sinnum í hinum ýmsu lönd- um, til þess að annast þar um hagsmuni þjóð- arinnar, einkum þó meðan á ófriðnum mikla stóð. Islendingar hafa jafnan haft mikil viðskifti við Danmörku, og það stundum meiri en æski- legt hefði mátt teljást frá pólitisku sjónarmiði. Hvað sem því líður, er liitt þó víst, að staðhátta vegna og stjórnarfarslegrar afstöðu munu verzlunarsambönd milli Islendinga og Dana enn haldast um langa hríð og þar af leiðandi nauð- synlegt vera fyrir Islands stjórn að eiga í Dan- mörku hæfan fulltrúa, með þekkingu á högum og verzlunarlífi beggja ríkjaniza. Fregnin um skipun íslenzks sendiherra í Danmörku, sem birtist á öðrum stað í blaðinu, er því ekki ekki nema afleiðing hins viðurkenda fullveldis íslenzku þjóðarinnar og hlýtur að vekja almennan fögnuð í hverju íslendings- hjarta vestan hafs, sem heldur menning og minning móðurþjóðarinnar í heiðri og þau hjörtu eru mörg. fslenzka stjórnin hefir áreiðanlega verið heppin í valinu, er hún útnefndi hr. Svein Björnsson í sendiherraembættið. Sveinn er dugnaðarmaður með afbrigðum, hagsýnn, bjartsýnn, með óbifandi trú á framtíð hinnar íslenzku þjóðar, og auk þess sökum ljúfmann- legrar framgöngu, flestum mönnum betur til foringja fallinn. Vestan hafs er Sveinn Björnsson einkum kunnur af störfum hans í þjónustu Eimskipafé- lags íslands, er honum hafa farist frábærlega vel úr hendi. Munu margir sakna þess, að hann nú verður að láta af þeim starfa, þótt þeir á hinn bóginn fagni yfir vali hans í hið nýja embætti, sem hann nú hefir kvaddur verið til að gegna. ---------o---------— Tollmálanefndin. Eins og getið hefir verið um áður í blaði voru, skipaði Meighen stjórnin þriggja manna nefnd fyrir skömmu til þess að íhuga innflutn- ingstollana og eiga sæti í sæti í nefndinni þrír ráðgjafar stjórnarinnar, þeir Sir Henry Dray- ton, fjármála ráðgjafi, Hon. Gideon Robertson, verkamála ráðgjafi og Hon. James Calder, ný- lendu og tollmála ráðgjafi. — Nefnd þessi er nú sest á rökstólana hér í Winnipegborg og hefir haldið að minsta kosti tvo fundi, hlýtt á máls- gögn verksmiðjueigenda og umboðsmanna hinna sameinuðu bændafélaga. Verksmiðju- eigendur vilja, eins og vænta mátti, halda dauðahaldi í vemdartollana og telja iðnað þjóðarinnar í háska, ef svo færi, að þeir kynnu að verða lækkaðir; en bændafulltrúarnir sýn- ast vera nokkuð annnrar skoðunar. Mr. Nor- man P. Lambert, ritari bændafélaganna, mætti fyrir nefndinni og lýsti afstöðu sinni til toll- málanna á þessa leið: “ Verndartollarnir hafa þröngvað iðnaði og framleiðslu í Canada inn á bz-autir, sem frá fjárhagslegu sjónarmiði mega lítt færar teljast. Sameinuðu bændafélögin mótmæla sterklega verndartollum fyrir þá sök, hve mikinn kostnað eftirlit þeirra hefir í för nzeð sér og hversu þeir koma hraþarlega rang- látt niður.” Ekki er auðvelt að spá nokkra um það, á þessu stigi málsins, hver árangur af starfi nefndarinnar kann að verða, en svo er að sjá af blöðunum yfirleitt, að þau geri sér ekki von um að hann verði mikiil. — Þess enda tæplega að vænta af nefnd, skipaðri af sjálfum erki- hertoga afturhaldsins og veradartollastefnunn- ar, Mr. Meighen. --------o-------- Hveiti! Hveiti! Islendingar sem hafa hveiti til sölu œttu að lesa eftirfarandi auglýsing —■ Mem'bers Winnipeg Grain Exchange — Members Winnipeg Produce Clearing Association. LICEN-SED AND BONDED By the Board of Grain Commissioners of Canada North-West Commissiomi Co0 Limited Telephone A 3297 216 Grain Exchange, Winnipeg, Man. tslenzkir Bændur S Um leið og vér ávörpum yður, óskum vér fyrst af öllu, að þér hafið haft arðsama uppskeruí ár. En vér vonum einnig að þér hafið lesið og athugað auglýsingar þær og greinar, sem birzt hafa í íslenzku blöðunum iðuglega þau síðastliðin sex ár, er vér höfum stundað kornverzlun, og að þær hafi sann- fært yður um, að það væri yðar eigin hagnaður að láta ís- lenzka kornverzlunarfélagið, The North-West Commission Co., Ltd., selja korn yðar. pað er ekki eins og nýtt og óreynt félag væri að höndla korn yðar, þegar þér sendið það til vor. Eftir sex ára starf sem kornsölumenn fyrir bændur, er það sannfæring vor, að þekking vor geti orðið yður hagur þetta ár. Eins og það er hagur fyrir bændur að yrkja land sitt vel, eins er það hagur vor að selja korn það, sem oss er trúað fyrir, svo vel, að bændur verði ánægðir. En til þess að geta það, þarf maður sá er selur, að hafa reynslu og þekkingu á kornverzlun og hinu breytilega markaðsverði á kornvörunni. í ár, þegar markaðurinn er opinn til hæstbjóðanda, má búast við mjög breytilegum og mismunandi prísum, og þegar svoleiðis er, vill oft tfl, að menn selja þegar sízt skyldi, en geyma þá selja ætti. peir sem vildu geyma korn sitt um lengra eða skemmri tíma, ættu að senda til vor -það sem þeir hafa. Vér skrifum hverjum sem sendir oss korn, þegar vér álítum að selja ætti. Einnig gefum vér daglega prísa og á- lit vort um markaðinn þeim viðskiftavinum, vorum, er þess æskja. Vér borgum ríflega fyrir fram borgún, ef æskt er. Ef vigtar útkoma á vagnhlössum, sem oss eru send, ekki stendur heima við það, isem í þau hefir verið látið, gjörum vér það sérstaklega að skyldu vorri að sjá um, að slíkt sé lag- fært. Einnig gæti það verið peningar í yðar vasa, að vér skoðum sjálfir kornið í hverju vagnhlassi, sem oss er sent, svo að rangindi við tegundaflokkun (grading) getur ekki átt sér stað. petta er nokkuð, sem flest stærri félög ekki gjöra, því þau hafa mörgu að sinna, láta sér nægja úrskurð verkamanna sinna. Einnig eiga flest þeirra sín eigin korn- geymsluhús, svo það er þeirra hagnaður, ef flokkunin er gjörð bóndanum í óhag. pað er ætíð gott að vita, þegar mað- ur sendir korn, að einhver líti eftir, ef óviljandi skyldi vera gjörð röng flokkun, og að einhver sjái um, að slíkt sé strax lagfært. Margir bændur halda því fram, að það borgi sig betur að draga hveiti og aðrar korntegundir í næstu korn- hlöðu, þar sem vinnulaun eru há eins og í ár. En ef þeir vissu hvað þeir tapa af vigt við það, mundu þeir hafa aðra skoð- un. Ef þér hafið fylt járnbrautarvagn og viljið selja inni- hald hans áður en hann fer á stað, þá símið oss númerið á vagninum og munum vér selja kornið strax fyrir hæsta verð. Sendið oss svo “Shipping Bill" af því og munum vér borga út á það ef beiðst er eftir og afganginn, þegar vigtar út- koman fæst. fslen-dingar! Vér mælumst til, að þér sendið oss sem mest af korni yðar í ár. Vér erum þeir einu landar, sem reka þá atvinnu að selja korn fyrir bændur gegn um-boðssölu- launum. Vér höfum ábyrgð og stjórnarleyfi og gjörum oás far um að gjöra viðskiftamenn vora ánægða. Vér þökkum svo þeim, sem að undanförnu hafa skift við oss, og vonum að þeir, sem enn ekki hafa haft viðskifti við oss, gefi oss tækifæri til að selja korn þeirra í ár. Vér á- byrgjumst áreiðanleg viðskifti og gjörum vort ítrasta til að gjöra bændur ánægða. Hannes J. Lindal. Pétur Anderson. ........ ..... Að spara Smáar upphæðir lagðar inn í banka reglulega geta gert stærri upphæð en stór innlög, sem lögð eru inn óreglulega. Sá sem gerir sér að vana að leggja inn peninga, hann fær löngun til að sjá upp- hæðina stækka. Rentur gefnar að upphæð 3% á ári, lagt tvisvar við höfuðstólinn. Bj-rjlð að Iesgja inn í sparisjóð hjá. THE DOMINION BAMK NOTRE DAME BRANCH, W. H. HAMILTON, Manager. SELKIRK BRANCH, • - W. E. GORDON, Manager. Æ 1 Með nýjum ávöxt- um og garðmat koma Innantökur og þær koma með megnum verkjum ALT f EINU og boða komu sína með litluflj eða I engum fyrirvara. Smá- yegis óvarkárni í mataræði, umskifti á vatni á frídegi, — þær minstu orsakir geta vald- ið kvillanum. Ráðið við 'þessu er einfalt. Eitt glas af Chamberlains Colic and Diarrhæa Remedy alt af við hendina, meðím heitt er, svo nota megi, þá þörf er á, því þeg- ar þess þarf með, þá þarf þess fljótt. pá þarf ekki að bíða á meðan verkirnir ólmast innan um mann, óhindraðir. Ein eða tvær inntökur eru vanalega nægilegar og batinn kemur þá fljótt eftir fyrstu inntökuna. Verð1 65c. og 35c glasið Dept. 13 Chamberlain Medicine Co., Ltd. Toronto, Ontario Fæst í öllum lyfjabúðum eða hjá HOME REMEDIES Sales 850 Main St., Winnipeg PENINGA MEÐ PÓSTI EÐA SÍMA Má senda með fullri og áreiðanlegri tryggingu til allra staða í Evrópu fyrir milligöngu þessa banka og íhinna mörgu útibúa hans. Starfsmenn -bankans vdita upplýs- ingar með glöðu geði. THE HOYAL BANK OF CANADA Borgaður höfuðstóll og Viðlagasjóður 535,000,000 Allar eignir eru yfir $584,000,000 FOR SALE — No. 33—34—35, 66x132, Range 2, One Corner Lot. Snap for Cash. Apply 5795 Sher- brook -St., South Vancouver, B.C.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.