Lögberg - 11.11.1920, Blaðsíða 5
LÓUBSKG. FIMTUDAGINN 11. NÓVEMBER 1920.
t
ytra ætti því samkvæmt iskoðun minni að hverfa os verða að
engu. — 1 annan stað hefir mér þrásinnis verið borið það á
brýn af andstæðingum, að eg héldi fram þeirri öfga-lútersku,
þröngsýnni og ófrjálslyndri, er naumast ætti sinn líka nein-
staðar í heimi. Það, sem nú var drepið á, í skoðunum mínum
eða tilhneiging minni, að því er snertir klerka og sérstöðu þeirra
í kirkjunni, er víst heldr lítil lúterska.
Og sama er að isegja um margt annað. Minnt gæti eg
líka á það í sambandi við hin margendrteknu brigzl mér til
lianda um klerkava'lds-tilhneiging og ofsafengna lútersku, að
Christoper Bruun í Norvegi er einn þeirra samtíðar-rithöfunda,
sem einna mest áhrif hafa á mig haft, á þeim árum æfi hans
eimkum, er hann í tímariti sínu, sem nefnist For frisindet Christ-
endom, barðist svo látlaust og fræknlega gegn þröngsýni og
andleysi hinnar lútersku ríkiskirkju — klerka, og í annan stað
geg-n guðleysi og kristindómshatri vantrúar-oflátunganna
nosku utan kirkju. Bíðan á árunum í Nýja tsl. hefir The Sundai/
Srhool Times frá Philadelphia verið það tímarit, sem eg hefi
meir lesið en nokkurt annað, og svo mikiis virði er það mér
fyrir langa-löngu orðið, að mér finnst að eg með engu móti geti
án þess verið. En allir, sem nokkuð þekkja, vita, að lúterskt
er tímarit það engan veginn.
Philip Sckaff er sá af vísindalegum guðfræða-ritköfund-
um, sem eg met öllum meir og hefi einna helzt haft fyrir leið-
arljós í kirkjulegri trúa.rjátn ingafræði. En ekki er liann heldr
lúterskr. Saga mín, eins og hún beinlínis eða óbeinlínis
birtist í Sameimngunni öll þau ár, sem eg hefi haft ritstjórn
þess blaðs á hendi, ber þess vott, hvað eg í kennimannlegri fram-
komu minni um fram allt hefi lagt áherzlu á. Og prédikanir
mínar, þær allar, er prentaðar liggja frammi fyrir almenningi,
jafnvel enn þá skýrar.
Enn eru tímamót í sögu íslenzks trúarlífs eða vantrúarlífs.
tJm næstu tímamót á undan þessu var að verða aðskilnaðr
hinna andlegu afla hjá þjóð vorri. Trúin og vantrúin voru
þá hraðfara hvor nm sig að koma út úr þokunni. En við
tímamót þau, sem nú eru yfir oss að líða, er þetta tvent aftr
að renna saman í eitt, falla í faðmlög, vefja sig saman, kyssast,
gleypa hvort annað — með öðrum orðum: hverfa að nýju inn
í þokuna. Að þessu eru stórhöfðimgjarnir í kirkjunni'á fs-
landi nú sem óðast að vinna, með tilstyrk annarra eins andlegra
fóstbræðra og þeirra Einars Hjörleifssonar og Guðmundar
Friðjónssonar, föður “Ólafar í Ási.” Vinr vor Einar Hjör-
leifsson, “Ofureflis” skáldið, sá það forðum, er hann var hér
vestra ineð oss, að þá var að verða aðskiJnaðr á trúarsvæði ís-
lenzks þjóðlífs — að trúmennirnir og van'trúarmennirnir ís-
lenzku voru teknir að búa félagslega um sig hvorir í\sínu lagi
með skýrri og afmarkaðri stefnuskrá. TTonram fannst það vottr
þesvS, að íslenzk heimska væri að dvína, vitið hjá almenningi
að glæðast. Með þeim skilningi og þar af leiðandi fögnuði
hvarf 'hann heim til hinna fornu átthaga á Islandi. En nú er
,svo komið, að lionum sýnist það vera svart, sem houum áðr
sýndist hvítt, og hvítt það, er hann áðr taldi svart.-----------
Hann hefir þurkað út landamerkin milli kristindóms og heiðin-
dóms og látið hvortveggja renna saman, verða að kássu eða
hrærigraut. Og það er nú sem óðast verið að freista stjarnanna
'hér — vestr-íslenzkra stjarna, kirkjulegra og ókirlijulegra,
kristinna. manna og ekki kristinna, manna með lútersku nafni
og manna í hópi Únítara — til að vera þarna með. Þessi
breyting varð á vini vorum, sem nú má nærri því kalla erkibisk-
up íslands, við það, er liann sökkti sér á kaf niðr í forað anda-
trúarinnar — samfara afskiftum hans af biblíu-‘‘kritíkinni ”
og “nýju” guðfræðinni. Með því ömrlega uppátæki lenda
allir inn í þokuna eins og Iforðum reyndist með Barjesús eða
Elýmas, andatrúannanninn ógíloymanlega, sem Páll postuli
komst í kast við í Kíprey.-----------
Inn í það myrkr fer eg aldrei livort sem þoikulýðurinn lastar
mig eða lofar. Og kirkjufélag vort verðr að hafa liug til að
láta aldrei af neinum þoka sér í þá átt, hvort sem því er klapp
að á öxlina með fleðulátum og fagrgala, eða því er liótað öllu
illu og á það sigað Cerberus sjálfum og öllum sporhundum
myrkraríkisins.
Æska mín og ellin.
Eftir séra Bjarna Sveinsson.
—‘‘Kveðið haustið 1873 eftir að séra Jón sonur minn hafði
skilið við mig og flutt til Vesturheims” —
Lag: Björt mey og hrein.
Mín æskan fríð og ungdóms tíð
Æfinnar vorið bjarta
pú varst svo iblíð iþá var ei stríð
Né þrautir um að kvarta.
pá lýsti sól um heimsins hjól
Og hlúði báðum vöngum
Við hirðisról um breiðaból
par baðaði eg mig löngum.
Um morgunstund þá brá eg blund
Sú braut er en í minnum
Með léttri lund eg gekk um grund
Og gleðibragð á kinnum.
Mín skemtigöng var leið ein löng
Und langri hamra fbungu
Um fjallaþröng, við fuglasöng
Er fjöllin endursungu.
?á vonin góð lífs lýsti slóð
Ljómandi skini sínU
Brann ástarglóð allri heims þjóð
Eldheit í brjósti mínu.
?á var lífsslóð, guð, Eden góð
Með grænu skrauti valla
Angaði lóð.upp hresti 'blóð
Andvarinn svali fjalla.
Eg þekti ei fár né sorgarsár
Síglaður var eg löngum
?ótt vættust brár þau harma tár
?ornuðu strax af vön@im.
Mín æskan ný og heilsan hlý
Mér heilla veitti yndi
?ótt syrti að ský suðrinu í
Samt var mér glatt í lyndi.
Mín fjáði sál alt fals og tál
>6tt finnist oft hjá lýðum
öll dular mál og orðin hál
Al^eng á vorum tíðum.
Senn breyttist tíð, kom hret og hríð
Hvarf þessi sælu glaumur
Alt líf er stríð, mín æskan blíð
Er nú sem horfinn draumur.
—Gróf þetta upp úr gömlum blöðum ásamt fleiru eftir sr.
Bjarna, sem öldungur éinn afhenti mér rétt fyrir andlát sitt.
Erindin bera vott um föðurharm sr. B. út af vesturför foringj-
ans, er nú er hér mjnst. J. A. S.
Fyrir ofan bæinn að Þingmúla, þar ,sem eg átti heima níu
árin áðr en eg fór í skóla, er einkennilegt fjall all-hátt, sem
bærinn er kenndr við. Fjalli því að framánverðu, þeim megin
er út í dalinn vei't, má vel líkja við líkneski það híð risavaxna
frá fjarlægri fornöld, sem rís upp úr sandsléttu í Egyptalandi
norðanverðu og nefnist Sfinx. I líkneski því birtist ógurlega
stórt höfuð af 1 jóni, sem liggr fram á hramminn; en það d<ys-
höfuð minnir einnig á ferlegt manns-andlit. Svona er sú
s'tandmynd af Sfinx, sem forn-egypzku konungarnir létu blaða
upp í nánd við Níl ,sér til ævarandi frægðar. Og eins, eða
nauðalí’kr því forn-egypzka Hkneski, er Þingmúlinn að framan
— í mínum augum að minnsta kosti bæði fyrr og síðar. Að eins
einu sinni var eg sá maðr meðan eg var unglingr að komast
upp á Múlann, og mundi eg ávalt síðan eftir útsýni því hinu
mikla og fagra, sem eg hafði þaðan yfir mest alt Fljótsdalshérað
og allt út á Héraðsflóa. Seihast er eg fyrir tíu árum heimsókti
Island og ferðaðifet um Skriðdal, tók eg mig til ásamt Friðrik
fóstrsyni mínum og klifraði upp á Múlann, en konan mín beið
á meðan með hinum, sem í föruneyti okkar vorn, í túninu hjá
bænum hið neðra.
■v
i Lítt var eg þá frár á fæti í samanburði við hinn unga mann,
er með mér var á þessari uppstigning. Næsta mjög mæddist
þegar undir eins, meðan stóð á göngunni upp eftir hinum
bratta melhrygg, sem myndar nofið á andlitinu fraiman í fjall-
inu. En er komið var upp í kleyfina eða vikið á milli augna-
brúnanna, varð gangan miklu torsóttari; og áðr en við höfðum
k,lifrað eins hátt upp og í ennið mitt—því þar er snarbratti, ná-
lega þverhnýpi—lá mér við að gefast upp og hníga niðr. Þó
unnust mér kraftar til að yfirstíga alla örðugleika fjallfarar
þessarrar, og komast alla leið upp á Múla-koll. Þá íétti mér
um hjarta. Og fagnandi og sigri hrósandi nam eg um hríð
staðar við vörðuná á f jallsbrúninni — þar er nón frá bænum fyr-
ir neðan — og naut hins víðtæka útsýnis yfir héraðið og ti
fjallanna misháu og margbreytilegu allt í kring. — Viðlíka
fjallför hefir öll æfi mín verið, frá því fyrst er eg í æsku lagði
á stað út í heiminn frá bænum þarna undir Múlanum. Oft hef-
ir mér legið við að gefast upp, því torgeng hefir leiðin verið
jafnaðarlega — mátturinn lítill, margt, sem þreytu hefir vald-
ið, einna helzt nú í seinni tíð, er sumir brugðust á svo hörmuleg-
an hátt, sem lengi höfðu svo vel og rösklega verið með. En
Jivað um það — samfára þeirri reynslu kom vaxandi hvöt ti
að treysta guði meir en áðr. Upp á Múlann tel eg mig nú
kominn, og hér stend eg kyr fyrir náð drottins. A þessari
fjallstöð vona eg að mér auðnist að berast fyrir það sem eftir
,er æfinnar, þakklátr ifyrir útsýnið þaðan og stuðninginn meir
en mannlega á hinni erviðu för þangað upp. Og eg vil segja
eins og Njáll, er hann allra seinast hafði búið um sig í hvílu
sinni að Bergþórshvoli undir uxahúðinni: “Ek ætla héðan
hvergi at hrærast, hvort sem mér angrar reykr eða bruni.” —
Eg fór að sjá lífs ferli á
Og fékk að reyna þetta:
Að farsæld há óblönduð má
Engin á jörðu spretta.
Og heimsins prjál það sökkur sál
í sorga öfugstreymi.
Flest von er hál og full með tál
Sem fæst í þessum heimi.
pví lukkan þver ei léði mér
Lán eða nægtir gæða.
Og lífið hér það eintómt er
Erfiði, kif og mæða.
Mörg hitastund og mæðu mund
Á miðjum æfidögum
Hugrauna sund og opin und
Amaði mínum högum.
Við erfitt staut fram æfin flaut
Mér elli haustið sýnir
peir eru á ibraut frá allri þraut
Æskuvinir mínir.
En hinir fá sem enn eg á
Á burt þeir hverfa í skindi
pá lífsins stjá mér flytur frá
Sem fugla eftir vindi.
Nú hnignar móð myrkvast lífs slóð
Missirinn þreyi eg lengi
pví dvínar blóð, en daprast hljóð
Dottið er lífsins gengi.
Æfin er löng og leiðin ströng
Á Íífsins kólgu bárum
Við heilsu þröng og sorgar söng
Eg sit — á, gamals árum. —
Ef lífsins bið enn bætist við
Og bugar fleiri mæða.
Sendu mér grið, línkind og lið
Líknsami faðir hæða.
Nær æfin á sinn enda að fá
Eg ei ihér lengur þreyja
Láttu mig þá hér fara frá
Og friðsamlega deyja.
Ávísanir á
Evrópu.
Vér getum verið yður hálp-
legir með að senda pen.
inga með pósti eða síma til
eftirfylgandi staða:
Bretlandseyja
Frakklands
Italíu
Belgíu
Serbíu
Grikklands
Danmerkur
Svíaríkis
Noregs
Roumania
eða Svisslands.
TKE RDYAL BANK
Of CANADA
Borgaður höfuðstóll og
Viðlagasjóður 535,000,000
Allar eignir eru yfir
Haturs glóð í huga brann,
heiftar slóð þá ganga vann,
þegar ljóðin þessi spann,
þrœla blóð í æðum rann.
Ekki sakar hermenn hót,
haturs kvak ’ans, brigslin ljót,
en sýnir nakinn svika þrjót,
sorg er bakar hal og snót.
J. Björnson.
Fyrír nokkru síðan lét Banda-
| rikjastjórn byggja 17,593 feta lang-
an flóðgarð með fram strönd einni
á Galveston eynni; nú er verið að
bæta 10,300 fetum við garð þann
og talað um að gjöra hann lengri
síðar; þegar hann er fullgjör verð-
ur hann um 5 mílur á lengd, 17 fet
á hæð, 17 feta þykkur að neðan, en
5 fet að ofan og kostar um þrjár
miljónir dollara.
Úr bréfi frá Alberta.
Innisfail, 30. okt. 1920.
Herra J. J. Bildfell,
Ritstjóri Lögbergs.
Ritdómur þinn um kvæðakver
Stephans G. Stephanssonar. “Vig-
slóði”, er birtist í Lögbergi 21. okt.
s.l., er að mínu áliti hárréttur, og
“vinpr er sá, er til vamms segir”;
og þótt hann sé persónulegur vin-
ur minn, vildi eg láta hann opin-
berlega vita, að eg hefi alt aðra
skoðun á þessu máli en hann.
Með eftirfarandi stefjgm, sem
vinarkveðju frá vin:
“Stephan óðinn “syngur sinn,
særir þjóðar heiðurinn,
færir blóð í föla kinn
flaggið: “bróður marðinginn.”
The Canadtan Red Cross
skorar á fyrir hönd
THE BRITISH EMPIRE WAR RELIEF FUND
að yfirbuga veikindi og þrautir í Evrópu-löndum
November 1920
IN •THE-GREAT ■TLRRITORY-ENCLOSID
BtTWttN Tht LINtS • A-B, C-D. THtKt 15 LACK Of,-
FOOD. MEDICALSUPPLIE5.
CLOThlNG. DOCTORS.
FUEL. NURSES.
HOSPITAL • ACCOMMODATION.
TYPMUS. CONSUMPTION,- SMALL-POX. AND •
OTMEPI DISEASES RACINC IN • UNCMECKfD •
VIOLENCE .
TME CMILDRtN ARE-TMt CREATEST SUFFf RIRS ■
ELEVEN • MILLIONS Of TMEM ARE WAR •
ORPHANS.
KOL
HJÁ
D. D. WOOD & SONS, Ltd.
EF YÐUR VANTARj
f DAG—
PANTIÐ HJÁ
Phones: N 7641 — N 7642 — N 7308
Skrifstofa og Yard á horni Ross og Arlington
Vér höfum að eins beztu tegundir
SCRANTON HARD COAL —Hin beztu harðkol
....Egg, Stove, Nut og Pea.
SAUNDERS CREEK — Stór og smá beztu
Canadisk Kol.
DRUMHELLER (Atlas)—Stór og smá, beztu
tegundir úr því plássi.
STEAM KOAL — að eins þau beztu, — Ef
þér eruð í efa þá sjáið oss og sannfærist.
Chamberlain ’s
Sanngirni œtti að Njóta fylgis
Síðan 1914'hafa sum efnin í Chamberlain’s Tablets hækkað
fjórum og fimm sinnum í verði frá því sem var fyrir stríð-
ið. J?ó hefir engu verið breytt að því er efnablöndunina
snertir, — sömu efnin eru notuð og í sömu hlutföllum. Vér
höfnum eftirlíkingum sjálfir qg biðjum yður einnig að
hafna eftirlíkingum í staðinn fyrir Chamberlain’s.
Tablets : 25c
Uppáhald Mæðranna
Hóstameðal handa börnum verður að vera skaðlaust. J>að
þarf einnig að vera ljúft aðgöngu. Verður að vinna verk
sitt tafarlaust. Chamberlain’s hóstameðal hefir alla þessa
eiginleika og er uppáhald mæðra,. 35c. og 65c.
Chamberlain’s
Læknar höfuðverk að fullu
Höfuðverkur stafar ’því nær vávalt frá maganum en bezta
meðalið er Chamberlain’s Tablets sem styrkja lifrina, og
mýkja magann og hreinsa yfirleitt innýflin. Engin hætta
á að höfuðverkur ásæki fólk aftur.
Home Remedies Sales
Dept. H. 850 MAIN STREET
WINNIPEG, - MANITOBA
I
ATHUGIÐ VEL pETTA LANDABRJEF
Hinar margföldu þjáningar Evrópu
Á svæði því í Evrópu, sem að ofan er sýnt, eru miljónir bama dæmd til hungurs eða veikl
unar í uppvextinum sökum vistaskorts, nema því að eins að þeim sé hjálpað.
í ræðu, sem Herbert Hoover hélt á fundi Canadiska Red Cross félagsnns, sagði hann:
“Verkefni vort á þessum komanda vetri er að sjá frá 3,500,000—
4,000,000 bömum farborða.
“Og það er skylda hvers manns og hverrar konu á vesturhveli
jarðar, að rétta þeim hjálparhönd, sökum þess að það, sem vér
höfum orðið að líða, er svo óendanlega miklu minna, en þrautir
» þeirra. Auk þess er það siðfreðisleg skylda allra manna, að sjá
um að þau svelti ekki eða verði hungurmorða.” »
Ásamt áskorun frá hinu sameiginlega félagi
Rauða Kross félaganna, sem hefir verið send
um alt hið Brezka veldi, leyfir Canada Rauða
Kross félagið sér að skora á Canada þjóðina
að hjálpa til þess að vernda líf þessara barna
og með bví framtíðarvelferð mannkynsins. Vér
DEILD RAUÐA KROSSINS í MANITOBA. S ASKATCHEWAN og ALBERTA skora á alt
fólk í þeim fylkjum og alla meðlimi innan Rauða Kross félaganna í þeim fylkjum, að bregð-
ast fljótt og drengilega við þessari áskorun. 1
$10.00 bjarga lífi eins bams; $1.00 heldur lííinu í því í mánuð. Hvað sem
okkar eigin erfiðleikum og okkar fórnfærslu Iður, þá era þær hverfandi í
samanburði við eymdar ástandið í Evrópu. Uppskeran í Canada var mikil,
látum oss því leggja eitthvað af mörkum af gnægt þeirra gæða til þessara
líðandi meðbræðra.
prtta cr í fyrsta, siðasta on eina. skifti, sem þessi áskorun verður gefin út. pað kemur nú til þinna kasta, að
bregðast fljótt og drengilega við og láta þörfina og hluttekningarscmi hreinvar sanwtsku ráða velgerðum
þínum í þcssu efni.
THE CANADIAN RED CROSS SOCIETY
vonumst eftir, að Canada svari þessari áskor-
un, þessu neyðar kalli méð því að leggja fram
háífa miljón dollara, og ef Vesturfylkin vilja
taka sanngjarnan þátt í þessu velferðar- og
nauðsynja verki, þurfa þau að leggja fram
$120,000.
SKRIFSTOFA MANITOBA DEILDAR -
SKRIFSTOFA SASKATCHEWAN DEILD.
SKRIFSTOFA ALBERTA DEILDAR -
317 Portage Ave.
Red Cross LODGE
O’Sullivan Block
WINNIPEG
- REGINA
CALGARY ....
DYGÐIR N0RRŒNU KAPPANNA
Gott félagslíf, samhugur, samvinna, einkenna
grundyallarhugsjónir j
Hinna sameinuðu bænda í Manitoba
þeir eru sameinaðir í þeim tilgangi að bæta kjör
almennings, venja fólk á að hugsa fyrir sig
sjálft, útiloka það að samvizkulausir stjómmála-
menn og okurfélög geti haldið áfram að raka
saman fé með verndartollum. peir trúa því, að
innbyrðis samvinna hljóti að verða þjóðlífinu
til blessunar og sæmdar
I Sveitarfélaginu
hyggjast hinir Sameinuðu bændur að ná tilgangi
stefnuskrár sinnar með fundahöldum, ræðum og
ritum. Takmarkið það, að sérhver borgari lesi,
hugsi og starfi áóháðum grundvelli.
A viðskiftasviðinu
hyggjast hinir Sameinuðu bændur að ná tilgangi
sínum með samvinnu-félagsskap í kaupum og
sölum. peir starfa í sameiningu við The United
Grain Growers, Ltd., og The Manitoba Co-opera-
tive Dairies, Ltd.
1 stjórnmáhim
er skoðun Sameinuðu bændanna, að vemdartoll-
arnir í Canada í því fonni, sem nú eru þeir, séu
þjóðinni til vandræða og ættu að vera lækkaðir
til muna eins fljótt og því verður við komið, og
aðrir tekjustofnar fundnir í staðinn. Eintök af
stefnuskrá, hinna Sameinuðu bænda, fást hjá
Aðalskrifslofunni.
Sérstök útbreiðslustarfscmi alIanNóvember
til að fá nýja félaga og nýja l^aupendur að “Grain
Growers’ Guide”, málgagni hinnar nýju fram-
farastefnu, svo og til að safna í sambands-kosn-
ingasjóð í hverju kjördæmi. (
Þér eruð beðnir
að rita yður inn í félag^skap vorn og vinna með
oss að þvi mikla og göfuga starfi, að hrinda þeim
háu hugsjónum í framkvæmd, að Canada megi
með ári hverju verða hagsælla land börnum sín-
um öllum. —
4 /
Frekari upplýsingar viðvíkjandi starfsemi þessari
fást hjá ritara að 306 Bank of Hamilton Bldg..
Winnipeg, Man.
|L