Lögberg - 17.03.1921, Qupperneq 4
Blfl. 4
LÖOBEBG, PJLMTUDAÖINN, 17. marz 1921
3Cog bcio
Gefið út hvem Fimtudag af Tlie Col-
umbia Preu, Ltd.^Cor. William Ave. &
Sherbrook Str., Winnipeg, Man.
Talsimari N-6327 ofi N-6328
Jón J. Bfldfell, Editor
(Jtanáskríft til blaðsinc
THE C0tUK(BIA PRESS, Itd., Box 3172, Winnipeg, M»1-
Utanáskrift ritstjórans:
EOITOR LOCBERC, Box 3172 Winnipog, M»n.
The “Lögberg” is printed and published by The
Columbla Press, Limited, in the Columbia Block,
Í 853 to 857 Sherbrooke Street, Winnipeg, Manitoba.
i' '■■■ ■------ " ■ ■ ■■........!------
Flokkaskiftingin á Manitoba
þinginu.
Pyrir kosningarnar sí?5ustu hér í Manito-
ba mhitumst vér á hér í blaðinu, hættu þá og
erfiðleika, er stafað gæti og stafa hlyti af því,
að f jölga 'Svo flokkum á þingi, að enginn þeirra
hefði ákveðið atkvæðamagn um fram alla hina
til samans á þinginu. Þetta þótti þá sumum
vor á meðal beint flokksfylgi, eða eins og þá
var komist að orði, blint flokksfylgi. Ekki skal
þvrí neitað, að vér vildum af heilum hug styðja
að því þá, að Norrisstjómin héldi áfram við
völdin hér í Manitofoa. Ekki samt svo mjög
fyriir það, að það var þessi sérstaka stjqrn,
heildur fyrir þá sök, að hún hefir verið fram-
kvæmdarsamasta stjórn, sem Manitoba-fylki
hefir nokkum tíma haft, hvað sem hver segir.
En svo fór þetta nú ekki eftir ósk vorri og
vild, því þó að Norrisflokkurinn sé svo lang-
samlega sá stærsti og sterkaisti í þinginu, þá hef-
ir hann ekki meiri hluta atkvæða. Ástandið,
sem vér vorum hræddir við fyrir kosningarnar,
efir því orðið að raunveraleika, og þeir sem
fastast gengu fram í stéttapólitíkinni, geta nú
séð ávexti verka sinna, ef þeir annars geta séð
nokkurn skapaðan hlut.
Þing þetta er búið að sitja í liðugan mán-
uð ö>g eim eru ekki þingmenn húnir að ljúka sér
af að tala um hástæisræðuna.
Hver ræðan rekur þar aðra, sem er “einsk-
is vert þref og gjálfur” og fylkisbúar borga
brúsann og þar ofan í kaupið fá ekki fram-
gengt þeim málum og málefnum, sem þá varð-
ar mestu sem heild. Mláske fara menn nú að
skiilja hve óhæfilegt og ómöguleg ástand það er,
þegar enginn flokkurinn hefir næga yfirburði
eða atkvæðamagn tií þess að fylgja fram nauð-
svnlegustu þarfa og áhugamálum, heldur verður
að eiga alt undir náð móstöðuflokkannna, sem
meira hugsa um að mikla sjálfa >sig, en að
hrinda velferðarmálum fylkisins í framkæmd.
Bœnda lánfélagið á Manitoba-
þinginu.
Ein a‘f breytingum þeim, sem Norrisstjórn-
ir fer fram á, á þessu yfirstandandi þingi, er að
leyft sé að færa vexti af lánum, sem bændaláns-
félagið í Manitoba veitir, úr 6 og upp í 7%, og á-
stæðan, sem gefin er, er sú, sem allir menn, sem
skyn bera á fjármál skilja, nefnilega sú, að pen-
iugar hafa hækkað í verði, svo fylkið á ekki kost
á að afla lánfélaginu starfsfjár eins ódýrt og
áður. Starfskostnaður í sambandi við félagið
hefir hækkað gífurlega, það er húsaleiga og
kaup verkamanna, svo apnað hvort er nú fyrir
lánfélagið að skaðast á útláninu, eða að færa upp
vextina, til þess að mæta þessum aukna kostn-
aði og láta fyrirtækið bera sig sjáíft.
Það sýnst svo, sem það þyrftu ekki mörg
orð né mikla rökfærslu til þess að sanna rétt-
mæti iþessarar Iwejdingar, það sýnist að það
þyrftu ekki langar ræður eða miklar fortölur til
þess að sannfæra löggjafa fylkisins um, að það.
væri heilbrigðara fyrir lánfélagið og alla þá,
sem við það eru riðnir, að léta tekjur og útgjöld
niætast, heldur en að sökkva í skuldir.
Það virðist, að ekki þyrfti að eyða mörg-
um orðum til þess að sannfæra löggjafa Mani-
tobafylkis um það, að auðveldara er að fá pen-
inga til starfrækslu fyrir fyrirtæki sem ber sig,
en fyrir það, sem er að tapa, og þar sem þetta
er fylkisstolfnun, þá heifði það að sjálfsögðu
mjög alvarlegar afleiðingar fyrir afstöðu þess
og álit á alheims peningamarkaðinum.
En því er ekki að heilsa. Nálegia allir and-
stæðingar Norrisstjórnarinnar grípa þetta báð-
um höndum, sem eitthver happ er þeim hafi
'horist upp í höndurnar, tii þess að fella Norris-
sl jóraina. Öllum verzlunarreglum, það er heil-
brigðum verzlunarreglum þeytt út í veður og
vind, og framtíðar lánstraust og áliti Manitoba-
fylkis að vettugi virt til þess áð reyna að steypa
stjórninni og talsmanni hennar, féhirir fylkis-
ins, i>annað að skýra málið svo menn geti séð
villu síns vegar.
Þarna geta íslenzkir kjósendur séð dálag-
ilegit dæmi af nytsemi stéttapólitíkurinnar, eins
og hún er í almætti sínu á Manitobaþinginu.
Móses hins blakka kynstofns.
Með jafn miklum rétti og Englendingar
helga sér England, Frakkar Frakkland, Banda-
ríkjamenn Bandiaríkin, kretfjast Blökkumenn
Afríku fyrir sitt heimkynni og heimaland,”
segir Marcus Garvey, sem tekið hefir sér fyrir
hendur að leiða þjóð sína heim til feðralands-
ins og sameina hana þar í Bandafjdkjum Afr-
íku, með sjálfum sér sem forseta.
Það var skömmu eftir að Bandaríkin fóru
í stríðið að maður, kolsvartur á hörundslit, kom
með skipi nokkru tid New York frá Jamaica.
Hann var lágur vexti og feitur og kubbslegur.
ítann var þrjátíu ára gamall og hafði fengið
allgóða mentun, hafði víða farið og kunni góða
grein á högum og menningu margra þjóða.
Hann hafði lítið meðferðis, dfurlítinn bögg-
ul fata, er hann bar á öxl sér. En hann var
fróður um margt, eins og sagt hefir verið, en
ekki sízt um uppruna og sögu þjóðflokks síns,
er hann kunni utan að sem ifaðir-vor.
Hann fór að tala máli sínu við Blökkumemi
í New York, en þeir tóku honum iila, kváðust
fekki vilja skifta kjörum sínum, er þeir ættu nú
við að búa, fyrir einhverja óvissu suður í Afr-
íku, sem að Qíklegast yrði bara tómt galbb þeg-
ar til kæmi.
Og í sama strenginn tóku sumir af þektum
ltiðtogum Blökkumanna í Bandaríkjunum, þar
á meðal þeir Robert Moton og W. E. B. Du
Bois.
Marcusi Garvey varð því erfitt um vik og
gafst upp við áform sitt og hélt aftur til Jama-
ica. En það leið ekki á löngu, áður en hann lét
sjá isig aftur í New York, því hann vissi að þar
var meiri auður saman kominn á meðal Negra,
iheldur en í nokkurri annari horg í heimi, og
þar vær eina vonin til þess að fá þann fjárhags-
lega þrótt, er nauðsynegur var til þess að hrinda
þessu áleiðis. Hann hafði hugmynd um, að
fasteignir Blökkumanna í þeim parti borgar-
innar, sem Harlem nefnist, næmi meira en
$100,000,000, að meðal þeirra eru minsta kosti
fjórir miljónamæringar og fjöldi, sem ætti eign-
ir upp á fra $100,000 og upp í hálfa miljón.
Hann vissi Iíka, að Blö'kkumennirnir á þeim
stöðum ættu yfir $30,000,000 í sparisjóðum, að
þeir ættu tvo banka, þrjátíu kirkjur, og fimtíu
trúboðsstöðvar. Einnig vissi hann, að það
voru miljón bændur af hans þjóðflokki í Banda-
ríkjunum, sem ættu meira en tuttugu miljónir
ekra af akuryrkjulandi. Hann vissi og, að þeir
áttu meir en sjö hundruð og fimtíu þúsund
'Tieimili í Bandaríkjunum, að þeir hefðu keypt
$225,000,000 virði af “Liberty Bonds” af Uncle
Sam. Bandaríkin voru því sannariega fyrir-
heitna landið næst Afríku.
Marcus Garvey tók nú til óspiltra málanna
að tala máli sínu, en það gekk iQla, en að síðustu
tókst honum að vinna þrettán málsmetandi
menn, sem ekki tilheyrðu þeim parti 'Blökku-
manna, sem 'hölluðust að skoðun Monton og Du
Bois, og með áhuga sínum tókst hönum að bæta
smátt og siriátt við hópinn með miklum erfiðis-
niunuim, unz Universal Negro Improvement
Association var mynduð, sem varð til þess að á
iþennan félagsskap og leiðtoga hans var ráðist
mjög grimmiilega. Garvey var ibrugðið um upp-
reisn og um alt ilt af leiðtogum hinna ýmsu
Blökkumannafélaga í Bandaríkjunum, dg þess
krafist, að hann væri tafarlaust sendur til
Jamaica aftur.
En það hreif ekki, því á sama tíma og
Marcus Garvey reyndi til þess að útbreiða fé-
lagsskap sinn á meðal hinna upplýstari Blökku-
manna Bandaríkjanna, þá 'byrjaði hann að gefa
út blað, sem hann nefndi “Negro World”, sem
f.jallaði eingöngu um mál þeirra og lofaðist til
að útvegá þeim frtelsi og sjálfstjórn, og það ekki
t-inu sinni Blökkumönnum Bandaríkjanna,
heldur öQlpm þeim kynþætti.
Undir eins í fyrsta Maði leggur hann til or-
ustu við mótstíiðumenn sína, og er ekkert dul-
ur í máli. Fr.jálsraði eins og hvítu og gulu kyn-
tt'lokkarnir hafi, segir hann að orðtak þeirra
skuli vera, og að ef höfðatala Iiafi í því sam-
bandi nokkra þýðingu, þá geti Blökkumenn, sem
fléu 400,000,000, hæglega verið herrar heimsins.
Garvey segir um mótstöðumenn sína, að
þeir séu “vanabundnar undirlægjur og sleikjur
hvíta kynlflokksins. ”
Frá kirkjunnar hálfu hefir mótspyraan á
móti Marcusi Garvey verið hvað einbeittust og
eru prestarnir hans svöraustu óvinir, þrétt fyrir
það, þó hinir leiðandi álmúgamenn snúist í fylgd
við hann. Hann telur trúarbrögð 'hvítra manna
lítt hæf eða viðeigandi fyrir Blökkumenn sök-
um þess, að þau krefjist þess að þeir trúi á
hvítan guð og hvítan Krist, hvíta eilífð og hvíta
engla. Hann krefst sérstakra trúarbragða
fyrir Blökkumenn, sem kenni virkilegan guð.
ekki ímyndaðan, eða að svo miklu leyti sem
hann sé ímyndaður eða ó>sýnilegur, þá verði
hann að vera ímynd fólksins sjálfs—svartur.
Eitt af málum þeim, sem Garvey barðist
fyrir, var að koma á stofn eimskipafélagi, sem
Blökkumenn einir ættu, en það gekk fremur illa/
og svo virtist sverfa að honum um eitt skeið,
að það leit út sem hann yrði að gefast upp við
alt saman, þegar atvik eitt kemur fyrir.
Marcus Garvey sat einn inni í skrifstofu
sinni, þegar Blökkumaður mjög æstur í skapi
kom inn og -skaut fjórum skotum á Garvey. Ekk-
ert skotið hitti svTo það yrði honum að bana,
en hann særðist bættulega, og skot sem hann
fékk í fótinn, gerði það að verkum, að hann hef-
ir staurfót alla sína æfi.
Skömmu eftir að þetta kom fyrir, var
fundur haldinn í eimskipafélaginu, af þeim
sem mestan þátt höfðu t-“kið í stofnan þess, og
voru þeir komnir að því að gugna með þetta
alt saman, þegar að dyrnar að herbergi því sem
þeir höfðu fundinn í, opnuðust og Marcus Gar-
vey stóð þar á hækjum særður nær til ólífis. Það
hafði svo mikil áhrif á fundarmenn að sjá for-
ingja sinn þannig leikinn. að upp frá því var
eimskpafélaginu engin hætta toúin. Nú á það
þrjú skip í förum, og nægilegt fé til að kaupa
önnur þrjú þegar á þarf að halda.
“Vér berum ekki neinn kala til hvítra
manna,” segir Garvey. “Það sem vér förum
fram á, er að fá ofurlítið ítak í sólinni. Þjóð-
f ioifcknr, sem telur 400,000,000 inanna, er of fjöl-
mennur til þess að hafa það ekki.. Og ef 60,-
000,000 Engil-Saxa, 80,000,000 Þjóðverja og sjö
miiljónir Belgíumanna eiga rétt á að vera þar,
þá sé eg ekki hví við megum ekki eiga þar sæmi -
legt pláss líka.”
1 ágúst s. 1. var þing mikið haldið af þessu
félagi Blökkumanna og þar staðhæft, að hátt á
fjórðu miljón félaga, sem heima ættu nálega í
fhverri einustu horg í Bandaríkjunum, borguðu
árlegt gjald til aðalfélagsins. Að loknu þvi
þingi, sem haldið var í New York, var skrúð-
ganga mikil og sem v'akti geypi mikla eftirtekt,
og margur spurði: “Skyldi þessi vísir áreiðan-
lega verða að stóru beri?”
Á meðal annara, er horfði á þossa skrúð-
göngu, var öldruð írsk kona; stóð hún með tár-
in í augunum og sagði í vonleysistón við þann,
sem næstur henni stóð: “Að hugsa sér það, að
Negrar skyldu verða á undan Irum, með að fá
sjálfræði sitt.”
Ummæli
’ Dr. Frank Crane um Vínbannið
1 síðastliðnum janúarmánuði lauk fyrsta
vínbannsárinu í Bandaríkjunum, og verður eigi
anna$ með sanni sagt, en að tilraunin hafi
reynst ifult eins völ og fólk yfirieitt bjóst við.
Vínsöluskálarnir eru úr sögunni. Það er
stærsti og mesti ávinnngurinn. Skálar þeir voru
undantekningarlaust samfélagsbölvun — eitur-
v uppspretta margskonar ófagnaðar.
Auðvitað fá menn sér í staupinu enn, og
halda áfram að gera það um tíma. Sumir gera
það jafnvel meðfram vegna þess, hve forboðnu
eplin eru jafnan lok'kandi sæt á bragðið. En
yfirleitt má svo að orði kveða, að sterkir drykk-
ir séu úr sögunni. Við opinber veizlu'höld skip-
ar ölbollan ekki iframar öndvegið, og þó er
mannfagnaðurinn fult eins fjörugur. Áfengi til
drykkjar er nú ekki lengur bruggað í landinu.
Einhverjir reyna að brugga svolitla lögg heima
hjá sér, en þeim fer stöðugt fækkandi. Það
íhe'fir olf mikla hættu í för með sér og fær litla
náð í almenningsálitinu.
Æstustu mótstöðuVnenn vínibannislaganna,
eru farnir margir hverjir að linast í sóikniuni,
sumir jafnvel teknir að hallast á hina sveifina.
Nareta kynslóð Bandaríkjaþjóðarinnar, mun
tæpast augum líta ölvaðan mann, nema þá
kannske helzt með því, að leita út fyrir Iand-
steinana.
Bami gegn tilbúningi og sölu áfengra
drykkja, á hvorki skylt við takmarkanir á tó-
baksnautn né sunnudagsskemtunum. — Það
hefir fyrir löngu verið viðurkent, að áfengis-
nautnin er stórskaðleg, stofnar almennings-
heilbrigðimii í voða og að til hennar má rekja
mörg hermdarverk og glæpi.
Einn af yfir umsjónarmönnum vínbanns-
laganna í Bandaríkjunum, komst svo að orði á
ársafmæli þeirra:
4 ‘ Ein langmerkasta gerbyltingalöggjöf þjóð-
arinnar liefir nú fengið ársreynslu, og hvað
hefir orðið efst á baugi! Enginn maður hefir
lagt niður vinnu vegna -bannlaganna, enginn
orðið gjaldþrota af þeirri ástæðu, engin sjóð-
þurð orðið í ríkisféhirzlunni, ehkert hrun í fast-
eignasölu, með öðrum orðurii, ekkert af þeim
ófagnaði, er bannféndur 'héldu fram að leiða
mundi af lögunum, hefir gert vart við sig í
þjóðfélagi voru. En á hinn bóginn eru hags-
muna og h'eilla einkennin óteljandi. Á ýmsum
stöðum innan ríkjasambandsins, hafa glæpa-
öldur vitanlega risið hátt á árinu. En hvað má
segja um Norðurálfulöndin, þar sem alt flýtur
í brennivíni ?—Vínbannslög Bandaríkjanna hafa
reynst á þessu umliðna ári, einn allra bezti
sáttasemjarinn á sviði fjármálanna, og sama
má segja um áhrif þieirra á iðnaðarlífið.”
“Því hefir verið haldið fram, að lögin séu
mikið brotin í Austur-ríkjunum og það jafnvel
margfalt mera, en í hinum gömlu bannríkjum.
Þetta er ekki rétt. Fyrstu Vínbannsríkin brutu
lögin álíka mikið, en sá ósiður eltist af þeim og
sama gildir á sínum tíma um alla þjóðina. Heil-
brigt almenningsálit Bandaríkjaþjóðarinnar.
líður ekki slík laga-brot til lengxlar.
“ Víubannslöggjöfin á enn eftir að ná full
komnunrtakmarkinu. Hún nær því samt í til-
tölulega náinni framtíð. Bandaríkjaþjóðin
löghelgar aldrei aftur tilbúning og sölu á-
fengra drykkja. Ahrif bannlaganna sanna það
betur en nokkuð annað.”
Sparið áður en þið eyðið
Látið BankareiknÍHginn vera fyrstan
í huga yðar.
Það meir en borgar sig fyrir seinni
tíma.
Sparisjóðsdeild við hvert útibú t
THE ROYAL BAHK
OF CANAOA
Innborgaður höfuðstóll og varasjóður.... $40,000,000
Allar eignir.............................. $572.000,000
Eg er nú í undirbúningi með að ■
] selja allar mínar vörur með óheyrilega ■
] miklum afslœtti. Kaupið því ekki ■
mm
] nema það sem þér nauðsynlega þarfn- ■
| ist, þar til þér fáið stóru auglýsinguna, (
] sem verið er að senda til allra þessa (
| dagana. Elis Thorwaldson,
| Moontain, N. Dakota ■
S»l!BIUBII!!HliaiailllBllllHII!!HIIIIHII!!HlltlHlll!HlltlH!!!lH!niHI!IIBllllHIUIHlHIII!H!!!HllllBltlHlliaiiajl!iÍ9i
Jón Jónsson Collin.
Fœddur 3. okt. 1897. Dáinn 26. nóv. 1920.
Undir nafni móður hans.
Sonur kær, til sumarlandsins bjarta
sorga-ströndum ertu horfimn frá
æ, þín minnist harpii þrungið hjarta,
hugur reikar yfir djúpin blá —
veit þó ei hvar vinar á að leita
víst er eitt, hann býr á sólarströnd
meðal hinna sælu engil-sveita
sem að stýrir guðleg kærleiks hönd. —
Að svo snemma, genginn er til grafar
geysidjúpa vekur sorgarund
gegnum tárin, gleðiljóma stafar
guðleg náð, — er hugsa um endurfund
þar sem ungt og óspilt hjarta lifir
algæskunnar vermt af kæleiks sól,
tár og þyrna tímans komið yfir
trúfestinnar nærri veldissitól. —
Láfið þitt var var geisli guðs, frá hæðum
glampa skærum, vorsins degi líkt
það er horfið; hulið rökkur slæðum
holdið fölnað, gröf og dauða vígt,
vonir dánar, visnuð gleði blómin,
vorsins fegurð breytt í lantgvint húm,
en mér finst eg heyra — þekkja hljóminn
hvíslað “mamma” — bak við tíma og rúm.
En þegar manns ei máttur kunni duga,
meini þínu vinna nokkra bót,
vissan lyffi hærra þínum huga
himins til og ljóssins veröld mót,
þú sást að orka okkar jarðarfræða
öll þar reyndist sjónarvilla og tál
og það var að eins einn, sem kunni græða
og út að slökkva kvala þinna bál.
Þú barst þinn kross, með þögn og þolinmæði
að þeirri stund, er öllum veitir ró
þú sást í anda æðri og fegri gæði
svo unaðsrík; það hugann til sín dró —
er lífsins vonir, voru að hverfa og deyja
og vorsins skraut, hin æðsta tímans gjöf,
var eins og bliknað blóm — er vindar fleygja
og byrgja hinst í kaldri jarðargröf. —
Það er sárt þá visnar vorsins gróður
vel þroskaður undir sumartíð,
og þar nærri, hnugginn standa og hljóður
og horfa yfir langvint dauðastríð
Hver má græða slíkar ólífs-undir
að eins hann, er lífið gaf og tók,
og sem skráði: árin, dag og stundir
okkar fyr, í lífsins mi-klu bók.
x
Ó, hvað lífið er á veikum þræði
og undarlegt í heimi sýnist margt,
fúnir stofnar fá að hjara í næði
en falla trén með vorsins dýra skart
En það skeður víst að drottins vilja
vort að styrkja traust á misku/n hans
þeir sem hér með hrygð og tárum skilja
hittast fá í dýrð hins sama lands. —
Svona á jörðu alt það hefir endir
er aúgu dauðleg mega skynja og sjá
og þó er margt sem hljóðum huga bendir
húmið yfir, ljóssins veröld á.
Þar er ættland allra jarðarbúa,
enda þótt að kjörin verði ei jofn
þeir sem ungir þangað burtu snúa
þeim er víst, að riá í beztu höfn. —
Vertu sæll! minn sonur elskulegi
við sjáumst mæst, á ljóssins björtu strönd
mér finst svo húmt, sem halla taki degi
ó, herraJesu, rétt mér vinarhömd
styrk þú mig, svo stríðið kunni þola
storma lífs og mótgangs öilduföll
og er dauðans unnir burt mér skola
inn mig leið í þína friðar-höll. —
E. S .Wium.