Lögberg - 05.01.1922, Side 1
SPEIRS-PARNELL BAKINGCO.
ábyrgjast yður
fulla vigt, beztu vörur fyr-
ir lœgsta verð sem verið
getur. R E Y N IÐ Þ AÐI
TALSlMI: N6617 - WINNIPEG
ef ð.
Það er til myndasmiður
í borginni
W. W. ROBSON
490 Main St.
Tals A7921
34. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGIN 5. JANÚAR 1922
NUMER 1
Hinir nýskipuðu ráðherrar MacKenzie-King stjórnarinnar
Helztu Viðburðir
Síðustu Viku
Canada.
Fimtudaginn þann 29. f. m.,
klukkan hálf-fjögur eftir hádegi,
var hið nýja, frjálslynda ráða-
neyti, undir forystu Hon. W. L.
MacKenzie-King, svarið inn í em-
bætti af ríkisstjóranum, lávarði
Julian Byng af Vimy. — Ráðu-
neytið er þannig skipað:
Forsætis og utanríkiísmálaráð-
gjafi: Hon. W. L. MacKenzie-
King.
Hermálaráðgja'fi: Hon. George
P. Graham.
Fjármálaráðgjafi: Hon. W. S.
Fielding.
Flota og fiskiveiða ráðgj.: Ern-
est Lapointe.
Póstmála-ráðgjafi: Hon. Char-
les Murphy.
Dómsmála-ráðgjafi: Sir Lomer
Gouin.
Járnbrautarmála-ráðgj.: Hon.
W. C. Kennedy.
Innanríkis og náma ráðgjafi:
Hon. Charles Stewart.
Heilbrigðismála-ráðgjafi: Hon.
Dr. Beland (hefir einnig á hendi
eftirlit með hag heimkominna
hermanna.)
Verzlunarráðgjaifi: Hon. J. A.
Ro’ob.
Landhúnaðarráðgjafi: Hon. W.
R. Motherwell.
Verkamálaráðgjafi:'Hon. James
Murdock.
ESk: iiari; V >. A, r. C .,,..
Solicitor' General: Hon. D. D.
McKenzie.
Tollmála ráðgjafi: Hori. Jac-
ques Bureau.
Ráðgjafi opinberra verka: Hon.
Senator Bostock.
Ráðgjafar, án þesis að veita sér-
stökum stjómardeildum forstöðu,
eru þeir: Hon. J. E. Sinclair,
Senator Dandurand og Hon. T. A.
Low. — I/mflutninga og nýlendu-
mála ráðgjafinn ’hefir enn ekki
verið valinn og veitir Hon. Char-
les Stewrart þeirri stjórnardeild
forstöðu til bráðabirgða.
Samkvæmt yfirlýsingu frá hín-
um nýja fórsætisráðherra, verður
Hon. Rodolphe Lemieux forseti
þjóðkjörna þingsins — House of
Commoms.
Tveir hinna nýju ráðgjafa eru
án þingsætis, þeir Hon. Charles
Stewart innanríkis ráðgjafi, áður
stjórnarformaður í Alberta, og
Hon. James Murdock, verkamála-
ráðgjafi. — Báðum kvað þeim
standa til boða kjördæmi í Qué-
bec, en líklegt talið, að Mr. Stew-
art kjósi heldur að reyna fyrir
sér í Alberta, verði þess nokkur
kostur, en Mr. Murdock í Ontario.
— Að undanteknu Manitoba, eiga
öll fylkin fulltrúa í hinni nýju
stjórn.
Samkvæmt stjórnarvenjum ,hér
í landi, verða allir hinna nýju
^áðgj. að leita endurkosninga, og
munu þær verða fyrirskipaðar
eins fljótt og koma má frekast
við. Er búist við að í flestum til-
fellum muni ráðgjafarnir ná kosn-
ingu gagnsóknarlaust. Saskat-
chewan blöð teljá alveg vist, að
hinn nýi landbúnaðarráðgjafi,
Tlon. W. r. Motherwell hljóti end-
urkosningu í Regina án gagn-
sóknar.
Við endurtalningu atkv. í West
Calgary fóru leikar svo, að J. T.
iShaw, óháður stuðningsmaður
bændaflokksins, sigraði Hon. R.
B. Bennett, dómsmála ráðgjafa
Meighen stjórnarinnar, með 16
atkvæðum. Mr. Bennett er þá
víst sá tólfti af ráðgjöfum, Arth-
ur Meighents, seun féll í valinn í
kosningunum þann 6. desember
síðastliðinn.
P. R. McGíbbon, sá er kosinn
var á sambandsþing í síðustu
kosningum fyrir Argenteuil kjör-
dæmið í Quebec, er nýláttoin, og
fer því fram aukakosning í því
kjördæmi innan skamms. __ Mælt
er, að afturhaldsmenn hafi auga-
vstað á, kjördæmi þessu og jafnvel
talið líldegt, að Hon. Robert Rog-
ers, muni ekki ófáanlegur til að
freista þar gæfunnar.
D. D. MACKENZIb
HON. W. C. KENNEDY
HON. OiARLES MURPHY
Frjálslyndi flokkurinn í Ont-
ario hefir ákveðið að kveðja til
flokksþings v.ið fyrstu hentug-
leika, til þess'að velja leiðtoga I
stað Hartley Dewart, M.L.A., sem
iátið hefir af þeirri stöðu.
Atkvæði greidd í Ontaio fylki
með Meighen stjórninni við sam-
bandskosningarnar þann 6. f.m.,
námu til samans 420,892, en á
móti 636,499. Frjálslyndi flokk-
urjnn fékk 336,416 atkvæði, en
bændaflokkurinn 300,084.
Blaðið Farmers Sun, sem gef-
ið er út í Toronto, kveðst ein-
dregið þeirrar iskoðunar, að
bændaflokkurinn í sambands-
þinginu muni fá margfalt meira
góðu til vegar komið með því að
standa óháður og veita nýju
stjórninni stuðning í öllum þörf-
um laganjnnælum, en með því að
ganga í bandalag við Mr. King
um stofnun samsteypustjórnar.
Blaðið Calgarý^ Albertan spyr
sjálft sig þeirrar spurningar,
hverjar líkur séu á að hin nýja
sambandsstjórn undir forystu
Hon. V/. L. Mackenzie-King muni
gera nokkrar tilraunir til að
hrinda í framkvæmd gagnskifta-
samningum við Bandaríkin. Blað-
ið svarar sér sjálft og kemst að
þeirri niðurstöðu, að bæði af
stefnuskrá frjálslynda flokksins
og ræðum helztu leiðtoga hans í
síðustu kosningum, megi gera sér
góða von um, að stjórnin taki þetta
nauðsynjamál til meðferðar í ein-
hverri mynd í náinni framtíð.
Samkvæmt yfirlýsingu frá Hon.
T. C. Norris yfirráðgjafa, hefir
verið ákveðið að fvlkisþingið hér í
Manitoba komi saman hinn 12.
þessa mánaðar og er það sam-
jívæiii.. oók þingm»r,iia í f^ira, en
helzt bændanna, er vilja geta klár-
að þingstörfin 'áður en vorannir á
bújörðum þeirra byrja fyrir al-
vöru.
Afturhaldsmenn í Quebec fylki,
sem fremur' munu þó fáliðaðir
vera, eins og raun bar vitni um í
síðustu sambandskosningum, hafa
ákveðið að kveðja til flokksþings
fyrir fylkið og reyna að dyfta ögn
að hinum pólitisku flíkum sínum.
J. M. Bessette, fyrrum forstjóri
Adanac kornsölufélagsins hér í
borginni, hefir verið fluttur hing-
að^alla leið frá Buffalo, til að
svara til saka, er á hann hafa ver-
ið íbornar, sem sé að hafa dregið
undir sig $68,000 frá nefndu fé-
lagi. '
T. L. Matthews hefir verið kjör-
inn borgarstjóri í Port Arthur,
Ontario, í þriðja sinn.
Skólaráð Manitoba háskólans,
hefir lýst yfir því að í náinni fram-
ftíð megi háskólinn til með að fá
nýjar byggingar; þær byggingar,
er skólinn nú hefir til afnota, eru
taldar með öllu ófullnægjandi. pó
segir formaður skólaráðsins, Isaac
Pitblado, að eigi verði farið fram
‘ á fjárveitingu til slíks fyrirtækis
fyr en fjárhagsásts^ður fylkisins
réttlæti slíka kröfu.
Samkvæmt skýrslu verkamála-
ráðuneytisins í Ottawa hefir at-
vinnuleysi aukist mjög víðsvegar
um land síðustu vikurnar.
Bandaiúkja blöð ýms hafa látið
þess getið að undanförnu, að ekki
færri en 200,000 Mennonita hefðu
þegar flutt sig búferlum úr Can-
ada og tekið sér bólfestu bæði í
Bandaríkjunum og Mexico. —
Innflutninga iskrifstofa Canada-
stjórnar telur þetta kvikisögur ein-
ar, og fullyrðir, að burt úr land-
inu muni eigi hafa fluzt af þjóð-
, flokki þessum, meira en 500 menn.
Hon. W. L. MacKenzie King
er næst yngsti maður, sem tek-
ist hefir á hendur stjórnarfor-
ystu í Canada; hann er að eins
47 ára að aldri. Sir John Mac-
donald var 52 ára að aldri, Al-
exander Mackenzie 51, Sir John
Abbott 70, Sir John Thompson
48, Sir Mackenzie Bowell 71,
Sir Oharles Tupper 74, Sir Wil-
frid Laurier 54, Sir Robert Bor-
den 55 og Arthur Meighen 44.
Talið er nú víat, að Hon. Arth-
ur Meighen muni halda áfram
forystu afturhaldsflokksins og
Gamla árið 1921
Nú endar
með atvik
Á strengi
hið stríða
svo fellur
og andinn
við lífsins
er hafsins
þetta ár í dag
fyrri tíða.
hjartans stillir lag,
sem hið blíða;
alt í unaðshljóm
fórnar tárum
herra helgidóm,
stýrir bárum. —
Um höf og löndin húmar nótt,
og hinstu tónar falla;
sem barn að móður brjósti rótt
^ér hoðar kvöldsins halla;
en stjömur lieiðum himni frá
á hjartað geislum Ijóma,
og ótal raddir endurslá
við aftansöngsins hljóma.
Ó, far vel, góða, gamla ár,
með glaum og þögla harma,
og gef oss þrótt við þraut og sár
með þínum aftan'bjarma.
Þín erfðaskrá, —eitt blað í bók—,
er bundin föstum lögum,
og geymd hjá þeim, er gaf og tók,
með gjald af öllum dögum.
•
M. Markússon.
J
Baa
anuar.
Svo þú ert þá hérna, mð hrokkið hár,
hnokkinn minn litli! ó, gleðilegt ár!
En stattu’ ei við lengi mcð strýið svart,
því stáss er það ekkert, svo klökugt og hart.
Og svo getur farið, að sólin blíð
sjái þig, karl minn, og þá er þín tíð
búin að vera; hún hræðir og mer
þurtu úr þér kjarkinn og strýið þitt sker.
Svo, kveddu’ okkur þegar, svo kargur og fár,
já, kveddu’ okkur, drenghnokki: gleðilegt ár!
Alb. C. John-són.
r/'.My.VitÆviyáNiyáNiv.MMR-rláliyái-
sækja um kosningu til sambands
þings í Grenville kjördæminu í
Ontario. Aukakosning í því
kjördæmi hefir verið fyrirskipuð
og fer fram hinn 26. þ.im. í kjör-
dæmi þessu hlaut kosningu þann
6. f. m. Mr. A. C. Casselman, af
hálfu afturhaldsmanna, en má,
eftir alt saman, eigi hafa þing-
mensku á hendi sökum þerss, að
hann hefir fengið veitingu fyrir
,embætti, sem launað er af al-
manna fé. Hvort nokkur muni
bjóða sig fram á móti Mr. Meig-
hen, er enn eigi kunnugt, en frem-
ur þykir þó líklegt, að bænda-
flokkurinn muni ógjarna vilja
láta hann einan um hituna.
Nýlátinn er í Toronto George
Tait Blackstock, K. C., einn af
nafnkendustu lögfræðingum í
Canada. Hann var maður mjög
hniginn^ð aldri.
Fregnir frá Prince Rupert, B.
C., láta þess getið, að meðalafli
afli af heilagfiski þar um mán-
uðinn á árinu 1921, hafi verið
500,006 pund.
Nathaniel Vermylea, hrepps-
nefndar oddviti í Thurlow sveit-
inni í Ontario, var kosinn gagn-
sóiknarlaust til að gegna em-
bætti þessu í fertugasta og fjórða
skiftið. pykir slíkt lýsa eins-
dæma trausti og vinsældum.
íbúatalan í Port Arthur, Ont.,
er 15,629 og er samsett af 34
pjóðflokkum. Alls teljast íbúar
borgarinnar til 18 trúarbragða-
deilda, eru rómversk-katólskir
fjölmennastir, 3,811 og Presbý-
terarnir næstir, 3,578.
Maður einn, Eugene Langlois,
’ er heima á að Windsor, Ont., var
fyrir skömmu dæmdur i 30 daga
fangavist og þar að auk til $1,0001
fjárútláta fyrir að hafa undfr
höndum öl, með 9 af hundraði
styrkleika.
Kosningar í flestum kjördæm-J
um nýju ráðherranna í Ottawa, \
hafa verið fyrirskipaðar 2. febr.
næstkomandi. títnefningar fara
fram þann 19. þ.m. 1 flestum
tilfellum er talið víst, að ráðherr-
arnir nái kosningu gagnsóknar-
laust.
Hvaðanœfa.
Breytingar allmiklar hafa ný-
lega orðið á samsetning ráðuneyt-
isins í Ástralíu, er stjórnarfor-
maður þó hinn sami. pessir eiga
sæti í hinu endurskipaða ráðu-
neyti: Fors.ráðgj: W. H. Hughes;
innanríkisráðgj.: George Foster
Pearce; ráðgjafi með málefnum
heimkominna hermanna: A. D.
Millen; dómsmálaráðgj.: L. E.
Groom; flota og hermála: Massey
Greene; verzlunar.: A. S. Rogers;
póstmála: Alex. Boynton; fjárm.:
S. M. Bruce; jácnbr. og opinberra
verka: R. W. Foster; leyndarráðs
forseti: J. Earle.
Fregnir frá Róm geta þess, að
Benedict páfi hafi isent hamingjn-
óska skeyti til Georgs feretakon-
ungs og Eammon De Valera út af
hluttöku þeirra í samningunum
milli Breta og íra.
Carlos Herrera, lýðveldisforseti
í Guatemala og stjórn hans, hefir
verið steypt af stóli. José Maria
Lima, er sagður að hafa tekið við ,
völdunum til bráðabyrgða.
pjóðverjar hafa reynat þess ó-
megnugir, að greiða bandaþjóðun-
um 190,000,000 marka gulls, er
þeim samkvæmt samningi bar að
inna af hendi fyrir miðjan desem-
ber síðastliðinn. Hvort bandamenn
vilja takavörur upp í skuld þessa,
er enn óséð.
Hinn nýi þjóðbanki Bolsheviki
stjórnarinnar á Rúsislandi greið-
ir um þessar mundir 450',000 rúlb-
lur fyrir sterlingspundið, 110,000
rúblur fyrir dollarinn, en 500
rúblur fyrir þýzka markið.
pingið í Cuba skorar í einu
hljóði á stjórn Bandaríkjanna, að
kveðja heim tafarlausf alt amer-
ískt heriið, er nú sé istatt þar í
landi. \
Síðustu fregnir geta þess, að
alt útlit sé á, að til ófriðar dragi
milli Bolsheviki stjórnarínnar á
Rússlandi og Finnlendinga. Er
sagt að hvorirtveggju aðiljar hafi
herbúnað allmikinn á landamær-
unum.