Lögberg - 16.02.1922, Síða 6

Lögberg - 16.02.1922, Síða 6
Bls. « LÖGBERG, FIMTUDAGiNN 16. FEBRÚAR 1922. Stolna leyndarmálið. Hvíla! Hvemig gat hún notið hvíldar, þegar svo margar órólegar hjigsanir sveimuðu um, heila 'hennar? Hún gat ekki gert neitt annað en hugsa — og reyndi að átta sig á því, að fyrir fáum stundum síðan var hún í Brake- speare kasta'la, og að nú var hún í þessu húsi í London, vinalaus og einmana. V 12. Kapítuli. Rawson Fenton hallaði sér aftur á bak í skrautlega vagninum sínum. Hann nam að síðustu staðar fyrir framan eitt af stóru húsunum í Lancaster götunni. Þjónarnir stigu niður af vagninum. Fram- dymar opnuðust og fyrir innan þær stóð kjall- aravörður og tveir aðrir þjónar. Hinn voldugi maður gekk hröðum fetum inn í dyraganginn ásamt skrifaranum, sem ver- ið hafði með honum. Auk þjónanna sátu þrettán eða fjórtán menn í ganginum. Þeir nálguðust Fenton, þegac hann kom inn í því skyni að fá að tala við hann. En hann hneigði sig til hægri og vinstri og sagði: ‘ ‘ Góðan daginn! Afsakið mig eitt augnablik!” og sivo gekk hann fram hjá þeim upp stigann. Sumir settust aftur, en tveir þeirra gengu með hægð til dvranna. ‘‘Það gagnar víst iítið að bíða,” sagði annar. ‘‘Nei,” svaraði hinn. Hann teit út fyrir að eiga annríkt. En það er ekki gott að vita. ’ ’ Hann yfti öxlum og bætti við: ‘ ‘ Það get- ur verið að hann komi ofan aftur, eða geri boð eftir okkur. Það er lakast við þessa ríku rnenn, að maður veit aldrei hvað þeim þóknast að gera.” ‘‘Það er satt,” sagði sá fyrri. “Og eg ætlaði að tala við þann um mikilsvert málefni,” sagði sá, sem fvrst talaði. % Hinn brosti og svaraði: “Það vílja ef- laust allir.” ‘‘Hafið þér þekt Fenton lengi?” spurði sá fyrsti. “Ekki mjög lengi. Til þess yrði eg að hafa sérstök einkaréttindi. ” “Ó, þér eigið við að—” ‘ ‘ Að enginn — að enginn að minsta kosti á Englandi — hefir þekt hann mjög lengi. Fólk í útlöndum — í Ástralíu og annarstaðar — hef- ir máske hlotið þann heiður. Að öðru leyti virðist cnginn vita neitt til muna um liðna æfi hans. ’ ’ Allir vita samt, að hann helfir verið órvana- lega Iheppinn, — að hann á einn eða annan hátt befir náð í afatmikinn auð.” “Það ér maður, án þess að þörf sé að segja það,” sagði sá síðari. “En það eru fáir sem vita hvernig hann hefir náð í þenna auð og völd.” “Það er sa£t að hann muni eiga að minsta kosti tvær eða þrjár miljónir,” sagði sá fyrri.” “Mjög sennúlegt. Máske enn þá meíra.” “Skal' það vera satt að hann fyrir stuttu síðan hafi verið efnalaus maður á eyðimörkum Astralíu. ’ ’ “Eg hefi heyrt það sagt.” “Og að ‘hann hafi verið svo heppinrr að finna litla gullnámu á svæðinu þar?” “Já, eða eitt'hvað því um líkt. En það hefir að eins verið einu sinni, sem hann öðlað- ist slíka hepni. Hið undraverðasta í þessu efni, er hinn hluti æfiferils hans. Það eru margir sem verða ríkir af tilviljun, en svo láta þeir það duga, taka lífinu með ró og lifa af vöxtunum. ’ ’ “En Fenton hefir ekki látið sér það nægja, tann vildi fá meira?” “Nei, það gerði hann ekki. Þegar hann hafði verið svo heppinn að ná í auð, tók hann sér stöðu meðal fjármálafræðinganna í Ástra- lím og komst brátt að þeirri niðurstöðu að gamli málshátturinn, að enginn náma í heim- inum er svo auðug af gulli — eins og verð- mikill heili hyggins manns — er sannur. “Það hefir ekki verið eitt einasta lánsamt fyrirtæki í þessu landi, sem Fenton hefir ekki tekið*þátt í. Eg hefi heyrt sagt — og eg veit að það er satt — að þegar nafn hans er í broddi fylkingar við eitthvert fyrirtæki, hve ábyrgðar- mikð sem það er, hiki enginn við að vera með, í því. Og hér í Englandi er sama tilfellið. Og hið einkennilega er, að menn alment fá enga ástæðu til að iðrast þess.” “Hann hlýtur að vera mjög heppinn mað- „ ur,” sagði sá fyrri. “Eg veit það ekki,” svaraði hinn síðari, eftir stutta þögn, “stundum efast eg um það. Hafið þér veitt því e'ftirtekt, að svipur hans er crólegur og óánægður. Hann lítur út fyrir að þrá eitthvað, sem veitir honum meiri ánægju og ró.” “Máske að hann sé að hugsa um að ná í fleiri peninga,” sagði hinn fyrri hlægjandi. “Nei, það held eg ekki. Eg get ekki vit- að það með vissu, en það er hugsanlegt að þa^ sé af því að hann er einmana.” “Já, auðvitað. Hann er ókvæntur?” “ Ja, hann á hvorki konu eða böm, og enga ættingja. ” “Það er einkennilegt að hann skuli elcld giftast einhverri hefðarmey. Flestir menn í hans stöðu mundu gera það. Hann er heldur ekki ófríður maður.” “Nei, hann er fremur laglegur. ” Máske að hann hafi eitthvert1 leyndarmál — ástaræfintýri frá yngri dögum?” “Getur verið; en eg trúi því naumast. Eg held að.hann ráði yfir tilfinningum sínum, og bafi enga ástarsorg. En nú held eg að það sé 'bezt að eg fari. Góðan morgun, herra!” “Eg held að eg geri það sama. Það gagnar líklega ekki fyrir okkur að bíða eftir þessum mikla manni. Gangið þér ekki eftir borgarveginum? Það er ágætt, þá verðum við samferða.” -Svo fóru þessir tveir menn. Meðan þetta samtal átti sér stað, sat Fen- ton í snotru herbergi uppi á lofti og las bréfin sm. Sum las hann fljótíega og fleygði þeim svo til skrifarans, önnur leit hann að eins á og lét þau í pappírskörfuna, hin þriðju las hann hægt, og lét þau til hliðar á borðið handa sjálf- um sér að, svara. Ljósibirtuna lagði beint í andlit þessa mikla manns, sem nú var talsvert breytt frá þ\ú við sáum það seinast í litla húsinu hans Grahams læknis. Ef til vill dálítið hörkulegra, og litlar hrukkur sóust á enninu og í kringum augun. En hið gamla varúðar og athugandi augnatillit var þar enn þá. Auðurinn hafði ekki gert svip hans bb'ðari; þvert á móti bar hann vott um meðvitund valds síns, og löngun til þess að nota það við tækifæri. Hann var enn þá Rawson Fenton, æfin- týramaðurinn, en með almenning við fætur sínar. Þjónn kom inn og sagði að nafnkunnur maður væri kominn, sem vildi tala við haon. Fenton leit upp og sagði: “Segðu bar- i'minum að hann vsrði að afsaka, að eg geti ekki talað við hann í dag, en á morgun skal hann fá að tala við mig.” Litlu síðar kom þjónninn alftur og1 lagði pappírsmiða á borðið hjá Fenton. Hann tók miðann og leit á hann og glaðn- aði sjáinlega yfir honum. “Bíddu!” sagði hann við þjóninn og leit á úrið sitt. ‘ ‘ Það er bezta ð þér farið og fáið yður há- degisverð,” sagði hann við skrifarann, sem undir eins stóð upp og fór út. “Láttu hann koma,” sagði Fenton við þjóninn. Litlu síðar opnaði hann dyrnar fyrir gaml- an mann, með gult og hrukkótt andlit og ósegj- anlega glöggsýn augu. Hann var í hversdagslegum fatnaði og líkt- ist allmikið áreiðanlegum bankaskrifara. Fenton Iaut niður að skjölunum sínum, þangað til dyrnar lokuðust á eftir þjóninum. þá leit hann upp fljótlega og allákafur. “Læsið ]>ér dyrunum,” -sagði hann. Gamli maðurinn gekk Hröðum fetum að dyrunum og læsti þeim. “Nú,” sagði Fenton. “Hafið þér nofckuð að segja mér?” “ Já,” svaraði maðurinn. “Eg hefi loks- ins gert uppgötvun. Yður finst líklega að það hafi tekið iangan tíma, en leynispæjarar yerða að hafa leiðbeinandi þráð, eins og eg hefi sagt.” “Það veit eg vel,” svaraði Fenton. “Hvað hafið þér þá uppgötvað? Hafið þér fundið hana?” “Já, hr. en—” “Hvað meinið þér?” sagði Fenton ákafur. “Segið það undir eins; eg hefi annríkt.” “Já, eg skil hr. Með fáum orðum ætla eg nú að segja yður, að eg hefi fundið ung- frú —” “Fenton leit til dyranna. “Unga stúlkan, sem eg hefi leitað að,” bætti spæjarinn við. “Hún hafði sest að í Brakespeare kastalanum. Hér er áritunin.” Fenton tók við henni með hægð og kæru- leysisléga að útliti, en það glapti ekki spæjar- anum sýn. “Brakespeare kastala,” tautaði hann. “Hún er þá 'hjá markgreifanum í Brakespe- are — kennari hins litla lávarðar Lanoebrook. ” Hann lagði miðann á borðið og skygði fyr- ir augun með hendinni, svo hinn glöggsýöni spæjari, sem aðgætti hann mjög nákvæmlega, skyldi ekki sjá þau. “Er þetta alt?” spurði hann. “Nei,” svaraði spæjarinn; “því ver er það ekki. Eg hefði átt að segja, að þetta var árit- un ungu stúlkunnar.” “Var? Við hvað eigið þér?” “Já, eg skal segja yður, hr., að hún er farin þaðan aftur.” “Farin þaðan?” “Já, hr. hún fór frá Brakespeare í morg- un, skyndilega og óvænt.” Fenton stóð upp og snéri baki að Ijósinu. “En hvar er Ihún þá núna?” sagði hann. ‘ ‘ Það veit eg því ver ekki. Elg fékk sím- xit frá einum þjónanna í kastalanum,"sem vinn- ur fyrir mig. Það sagði að unga stúlkan væri farin sfcyndilega, og að enginn vissi hvort hún hefði farið.” Fenton beit á vörina. “Err þér eigið að uppgötva hana!” sagði hann undrandi og beiskjulega. “Þér eruð spæjari, og þér komið 'hingað og segið mér —” Spæjarinn leit á hann og sagði: “Eg fekk símritið núna. Skipun yðar var, að eg skyldi segja vður frá öllu, sem eg kæmist að. Það hefi eg líka gjört.” Fenton átti bágt með að ráða við sig. “Það er gott,” sagði hann. “Farið þér nú og finnið hana fyrir mig. Eyðið engum tíma og sparið engin útgjöld. Fenguð þér að vita, hvort húp var frísk og ánægð?” “Já, hr., (henni leið mjög vel, sagði þjónn- inn í símritinu.” “Gott! — Þér getið farið. En segið mér frá því, sem þér uppgötvið undir eins, hvort sem það er nótt eða dagur.” Maðurinn hneigði sig og fór. Fenton hné aftur á bak á stólnum og byrgði andlitið í hönd- um sér. 13. Kapítuli. / Morguninn næsta stóð Oonstance við glugg- ann og horfði út. Hún ha.'fði sofið lítið þessa nótt, hugsanir hennar snérust um viðburðinn í kastalanum. Hún hafði lagt pyngjuna sína á búningsborðið, og því lengur sem hún- horfði á Ihana, þess minni sýndist henni peningaupp- hæðin. Hún vissi nú að hún varð eitthvað að gera, og það mjög bráðilega, til þess að viðhalda líf- inu. — En hvernig átti hún að fá sér nýtt starf? Án vina eða meðmæla var gagnslaust að biðja um nokkuð — ekki einu sinni vinnukonustöðu. Hún snéri sér frá glugganum og stundi örr vilnandi. Án þess að hafa nobkuð ákveðið áform, fór hún í yfirhöfn sína og gekk út. Hún stóð litla stund kyr í tröppunni og hugsaði um hvort hún ætti að fara. Meðan hún var að þessu, kom maður gangandi til hennar með Ihægð. “Getið þér sagt mér leiðina til Pembridge Cresyent ungfrú?” spurði hann. Þetta var gamall maður með bogið bak og hrukkótt andlit, sem virtist benda á erfiðan lífsferil. Þegar hann flutti þessa spurningu, furð- aði Constance sig ósjálfrátt á því hvort hann eins og hún, væri ókunnur í þessum stóra bæ. “Það get eg því ver ekki,” isvaraði hún. ‘ ‘ Eg er alveg ókunnug hér. ’ ’ Hann tók pappírsmiða upp úr vasanum og leit á 'hann — svo leit hann á hana litlum gagn- rýnandi augum. “Það er sama tilfellið með mig, ungfrú,” sagði hann afsakandi. • “Já, Pembridge Cres- cent er einmitt sá staður, sem mig langar til að vita hvar er. Afsakið ómakið, ungfrú.” Constance sagði að hann hefði ekkert ómak gert sér. Svo lagði hún af stað ofan götuna. Gamli maðurinn gekk með hægð á eftir henni — nam staðar þar, þar sem hún stóð kyr, óviss um hvaða vég hann ætti að fara. Constance heyrði hann spyrja mann nokk- urn sömu spurningarinnar og hana. Á næsta augnabliki snéri 'hún sér til hægri handar og misti sjón af honum. Litlu síðar var hún stödd í fjörugri og mannmargri götu, með óvanalega sfcrautlegum verzþmum. Meðan hún gekk áfram í þungum hugsunum, stóð hún við og við fcyr og leit á búðargluggana. í einum glugganum sá hún auglýst með stórum stöfum: “ Yistarráðsskrif- stofa fyrir heimiliskennara og kensilukonur.” Hún stóð kyr og le^t á auglýsinguna hugs- andi. Það var hugsanlegt, að þarna gæti hún fengið að heyra um stöðu; hún ætti að minsta fcosti að fara þangað inn. Máske hún gæti seinna fengið meðmæli frá lafði Armstead, án þess að hún þyrfti að fá að vita um hina sfcyndi- legu brottför hennar frá Breakspeare kastal- anum. Hún gekk inn. “Getið þér sagt mér, hvort hér er nokkur staða laus fj-rir kenslukonu?” spurði hún ; unga stúlku sem sat þar inni. Hún kom með afar stóra bók, sem hún lagði fyrir framan Constance. “Gerið svo vel að skrifa nafn yðar og heimili hér,” sagði hún kæruleysislega. Constance hifcaði dálítið, en svo skrifaði hún nafn sitt og heimili. Stúlfcan opnaði nú aðra bók og las: I^Kenslukona: frönsku, ít- ölsku, þýzku, hljóðfærasöng, góðrar ensku er krafist. Meðmæli þurfa að vera sýnd. Sex börn. Tuttugu pund um árið í laun. Á þetta vel við yður?” “Nei, því ver,” svaraði hún. “Eg kann 'hvorki ítölsku eða þýzku.” “Ekki? Þá er eg hrædd um að þér fáið ekki stöðu af þessu tagi. Næstum allar kenslu konur verða að kunna þýzku,” sagði unga stúlk- an. “En hér er önnur: Frönsku, ensku og al- menna sfcólakenslu. Laun: Sextán pund um árið.” “Eg held að þetta eigi við mig,” svaraði Constance. “Sko, það er enn þá meira krafist: Verður að hafa góða millirödd og vera vön við að leika á fiðlu.” Við þetta hvarf öll von 'hjá Constance. “Þá gagnar það ekki fyrir mig að sæikja um stöðuna,” sagði hún hnuggin. “Eg kann ekki að leika á annað hljóðfæri en piano.” “Ekki? Þá 'höfum við ekki fleiri stöður að bjóða yður.” sagði unga stúlkan. “En ef við heyrum um einhverja, þá skulum við láta yður vita um hana. Þér eruð líklega ekki mjög vandlátar?” 1 “Nei,” svaraði Constance róleg. “Góðan morgun.” Hún fór út ennþá hnuggnari en áður. Fáum mínútum síðar gekk gainli maðurinn með bogna bakið inn í sömu skrifstöfuna, og spurði 'hvort hann gæti fengið leiðbeiningu um kenslukonu. Ilann las nákvæmlega þenna langa lista og skrifaði hjá sér fáein nöfn, þar á meðal nafn og heimili Constance — borgaði hina áfcveðnu upphæð og fór. Fáum mínútum síðar ók hann í vagni til Kensington Park Gardens, og sté af honum við hemili Fentons. Fenton sat við skrifborðið sitt og átti ann- ríkt. Skrifarinn sat við annað borð og var að iesa mqrg bréf. Þegar Fenton hafði sent skrifarann burt, kinkaði hann fcolli til spæjarans. “Þér hafið ekki evtt tímanum til ónýtis,” sagði hann rólegur. En spæjarinn, sem horfði á hann, sá gleði geisla í augum hans og varirn- ar sikjáDfa dálítið. ‘Nei, hr.”, svaraði hann. “Eg hefi verið mjög heppinn. Eg fann af tilviljun ökumann- inn, sem flutti ungu stúlkuna frá stöðinni. Og fram úr binu var auðvelt að ráða.’-’ Hann lagi pappírsmiða með nafni og árit- un Constance á borðið, og hélt svo áfram skýr- ingu sinni: “Eg áleit að hún mundi fara út !!/• ►. 1 • <Vi* timbur, fialviður af öllum Nyjar vorubirgðir tcgundum, geirettur og als- konar aðrir strikaðir riglar, hurðir og gluggar. IComið og sjáið vörur vorar. Vér erumætíð glaðir að sýna þó ekkert sé keypt. The Empire Sash & Door Co. ---------------Limítad--------------- HENRY 4VE. EAST - WINNIPEG KOL! KOLT vér seljum allar tegundir af KOLUM Hörðum og linum. Beztu tegund af DRUMHELLER KOLUM setn þekkjast á markaðinum. Pantanir afgreiddar fljótt -------------o--- Thos. Jackson & Sons / t Skrifstofa 370 Colony St. - Símar: B 62-63 1795 ) morgun, og því gætti eg 'hússins nákvæmlega, ” sagð hann, og lýsti svo, að hann hefði elt Con- stanoe til vistráða skrifstofunnar. “Eg þekti hana undir eins. Manni getur naumast skjátlað með þessa ungu stúlku,’” bætti bann við. Fenton studdi hönd undir kinn og hugsaði. Litlu síðar leit hann upp og benti spæjaranum að flytja stólinn sinn nær sér, meðan hann segði honum frá áformum sínum. Spæjarinn hlustaði á 'hann með nákvæmni. Þegar bann 'hafði skrifað hjá sér sum áformin og sagt, “þetta er hyggilegt ráð,” fór hann. Þegar Fenton var orðinn aleinn, gekk hann fram og aftur um herbergið blóðrjóður með gleðigeislandi augu. Hramkoma bans var rdveg ólík hinni köldu, varkáru og sjálfstjórn- andi hegðun, sem hafði áhrif á alla er við hann töluðu, svo bann virtist naumast vera sami maðurinn nú. En 'hann áttaði sig 'brátt og varð rólegur eins og áður, settist við skrifborð- ið og bringdi bjöllunni til að kalla á skrifarann, og hélt svo áfram starfi sínu. Síðari hluta þessa dags sat Constance við borðið með bók fyrir framan sig, sem hún hafði ekki lesið í heila stund. Þegar Constance yfirgaf vistráða skrif- stofuna, gekk hún upp eina götuna og niður eftir annari, án þéss að veitá þeim manneskj- c-ftirtekt, sem voru á ferðinni í kringum hana. Hún hugsaði eins og vant var, um viðburðinn í kastalanum, en hrinti þessum hugsunum frá sér, og fór að hugsa um ihvað 'hún ætti að gera, til þess að geta unnið fyrir sér. Stundum datt benn í hug, hvað mundi hafa ótt sér stað í kastalanum síðan hún fór. Með hvaða lýgi Ruth befði sagt greifanum frá or- sökinni til bur-tfarar hennar svo snemma dags, að hún gat ekki kvatt fjölskylduna. Hún hugsaði líka um, hvort hann mundi trúa þeirra lýgi. Hvort Arol mundi safcna ihennar og hvort burtför hennar 'hrygði greif- ann. Hún endurkallaði alt í huga sinn, og þar ámeðal bónorð greifans í salnum. Henni fanst þetta vera fyrir löngu umliðið og helzt ■líkjast draumi. Constance hrökk við. Frú Marwyn barði að dyrum. Þreytau og föli liturinn á andliti hennar vakti meðaumkun hinnar sorghitnu húsmóður. “Þér eruð líklega enn þá þreyttar eftir ferðina, uugfrú Graham?” sagði hún hlýlega. “Já, egheld eg sé það,” svaraði Constance og reyndi að brosa. “Þér hefðuð ekki átt að fara út í morgun,” sagði hún jafn hlýlega og áður. “Eg gerði það, af því það var nauðsyn- legt,” svaraði Constance. “Eg fór út til að komast eftir hvort eg gæti fengið nokkra stöðu, en,” hætti íhún við og stundi, “það lítur út fyr- ir að vera fremur erfitt. AUir eru svo marg- fróðir nú á dögum, og þeir vilja ekki ráða til sín persónu, sem ekki hefir vnðtækari þekk- ' ingu en eg.” “En þarf að hraða þessu svo mjög?” spurði frú Mervvyn. “Já, þess þarf,” svaraði Constance. “Eg befi uefnilega mjög lítið af peningum, og —” Hún lau'k ekki við setninguna. Frúin sléttaði borðdúkinn með mögru hend- inni sinni. “Takð þér þetta elcki nærri yður,” sagði hún. “Yður er velkomið nð vera hér hjá mér, ef þér kunnið vel við yður, þangað — þang- að til yður hepnast að fá stöðu, eða —” % Hún þagnaði og horfði hrosandi á Con- stance. • “Eg hefi sjálf orðið fyrir mörgum raun um á æfinni, svo eg veit hvaða þýðingu þetta hefir,” bætti hún við bálf hikandi. Constance rétti henni hendi síua með aug- im full af tárum.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.