Lögberg - 01.02.1923, Síða 2
LÖGBERG FIMTUDAGIfc N
i. FEBRÚAR 1923.
Bjargað frá upp-
skurði.
PETTA AVAXTALYF VEITIR A-
VALT HEILSUBÓT.
3928 Union St., Vancouver, B. C.
“Eg þjáðist af allskonar kven-
ejúkdómum ásamt stöðugri stýflu
og látlausum höfuSverk. Verk-
ir í mjóhryggnum kvöldu mig sí
og æ Læknirinn ráðlagði mér
uppskurð.
“Eg reyndi “Fruit-a-tives” og
það meðal ihefir læknað mig að
fullu.
“Höfuðverkurinn er nú úr sög-
unni og sama er að segja um
stífluna, og það sem bjargaði mér,
var þetta ávaxtalyf, “Fruit-a-
tives.”
Madam M. J. Gorse.
50 c. hylkið, 6 fyrir $2,50f reynslu-
skerfur 25 cent. Hjá öllum lyf-
sölum eða sent póstfrítt frá
Fruit-a-tives Limited, Ottawa.
Kennarar 47 45
i ensku deildinni 139 91
í íslenzku deildinni 331 363
Flestir á einum degi 309 304
Fæst á einum degi 164 104
Aðsókn að jafnaði 269 218
Sóttu hvern sunnudag -' 32 20
Sóttu hvern nema einn 11 11
Fjárhagsreikningur sd. skólans.
Frá 1. des. 1921 ,til 30. nóv. 1922
í sjóði 1. des. 1921
Sanuskot á árinu ....
Sérstakar gjafir ....
$ 13,55
622,14
10,00
Ársfundur Fyrsta lút.
safnaðar.
Ársfundur Fyrsta lút. safnaðar
í Winnipeg, var thaldinn í sunnu-
dagaskólasal kirkjunnar á þriðju-
daginn 23. janúar s. 1. og var
mjög fjöbnennur.
Reikningar og skýrslur safnað-
arins voru Jagðar fram og fylgir
útdráttur úr þeim hér með.
Fjármálaskýrsla sýndi að tekj-
ur safnaðarins á árinu hefðu ver-
ið ................$9,217,26
í sjóði frá fyrra ári .... 119,18
Samtals $9,336,18
Útgjöld á árinu ...... $8,870,65
í >sjóði við áramótin .... 465,89
Skýrsla
um kaup á Tjaldbúðarkirkju.
Borgað Andrews & Andrews, Veð-
skuld á kirkjunni .... $12,726,40
Borgað fyrir víxil frá
Tjaldbúðarsöfnuði á Roy-
al Bank .... ............ 422,35
Óborgaður iskattur ...... 215,04
Andrews & Andrews
* kostnaður við eignarbréf
á kirkjunni .............. 149,00
Borgað fyrir 10 fet af
landi ........ —• .... 500,00
Eidsábyrgð á kirkjunni
«em fallin var í gjald-
daga ................. 91,00
Bankavextir .............. 467,97
Skuld á orgelinu jan. 1.
1921 ........... . .. 3,442,44
Vextir frá jan. 1. til maí
1. 1921 .............. 91,80
Borgað Tjaldbúðar söfn-
uði ............... 2,787,00
Samtals $20,892,00
Arsskýrsla prestsins.
1922.
I. Embættisverk:
$645,69
Útborganir.
Kenslufæri ......... •• $135,82
Picnic og samkomu kosn. 136,25
Gjafir til ýmsra fyrirt. $234,98
1 sjóði 30. nóv. 1922 .... $138,64
$645,69
Skýrsla djáknanna
f sjóði frá fyrra ári .... $ 30,18
Tekjur á árinu ......... 208,65
Útgjöld
f sjóði .
$238,83
...... $203,10
.... • $ 35,73
$238,83
Skýrsla fulltrúanna
Guðsþjónustur .... .... 103
Skírnir ..................... 25
Fermingar ................... 34
Hjónavígslur ............. .... 33
Greftranir .................. 28
Altarisgöngur .............. 355
II. Fólkstal:
í söfnuði 1. jan. 1922 .... 951
Fæddir á árinu .... .... . 25
Gengið f söfnuðinn á árinu 152
Samtals 1128
Dáið á árinu ............. 28
í söfnuði 1. jan. 1923 ... 1100
Fermdir ..................• g22
Ófermdir ............... .... 278
Winnipeg, 23. jan. 1923,
Björn B. Jónsson.
Yfirlit yfir tekjur og útgjöld
Kvenfélagsins árið 1922.
í sjóði frá fyrra ári .... $ 88,22
Tekjur .... ............... 1,986,73
Öamtals $2074,95
Útgjöld til safnaðar .... $1,000,00
Til Betel ...... 100,00
Til J. B. Academy .... 100,00
önnur útgjöld ............. 373^6
f sjóði 1. jan. 1923 .... 500,99
Skýrsla sunnudagaskólans
1. des. 1921 til 30. nðv. 1922
Innritaðir alls
1922 1921
Innritaðir alls 470 454
Fermdir 168 172
ófermdir 255 237
VIII P HvI a® M«*t af
U I| L U blæSadi og bðlginni
I I | I |1 srylliniæB? U p p-
I ■ k Li ekurCur ðnauBsyn-
legur. Dr. Chase’s
CMntment vettir Þér mndir eina hjálp.
• # cent hylkiS hjá lyfcfllum eða frá
■dmanson, Bates an4 Co., Llmited.
Toronto. Reynaluakerfur sendur 6-
kerpie. ef nafn l>eesa blaCe er tlltek-
• Of i centa frímerkl sent.
Vér undirritaðir fulltrúar hins
Fyrsta lút. safnaðar á Winnipeg,
sem á síðasta ársfundi vorum
kjörnir til þess, að veita safnað-
ar málum forstöðu á fjárhags-
; árinu sem ondar með þessum
í fundi, leyfum oss að leggja fram
! skýrslur um störf vor á árinu,
| og yfirlit yfir fjárhag safnaðar-
ins eins og hann er nú.
Er oss það vissulega gleðiefni
mikið, að geta lagt fram, ásamt
öðrum starfsmönnum safnaðarins,
skýrslur, sem svo glöggan vott
! bera um framfarir og velmegun
Ber oss öllum, sem söfnuðinum
j ti'lheyra og málefnum kristin
dómsins unna, að færa algóðum
; guði þakkar-fórnir fyrir hans
föðurlegu og gæzkuríku umhyggju
| og alila þá náð, sem ihann hefir
oss auðsýnt í hvívetna.
Skömmu eftir ársfundinn i
fyrra komum vér saman til þess
að gera nauðsynlegar framtíðar
ráðstafanir, og var það vort fyrsta
verk, að skifta með oss verkum,
að svo miklu leyti sem kringum-
stæður þá leyfðu. Var Dr. B. J.
Brandson skipaður forseti, Albert
C. Joihnson gjaldkeri, Sigurður
W. Melsted skrifari, Jónas Jóh-
annesson umsjónarmaður kirkj-
unnar, og Paul Bardal eftirlits-
| maður kirikjusöngs,
Samvinna vor á þessu ári, hef-
ur ávallt verið hin æskilegasta, og
góðvild safnaðarfólks og utan-
safnaðarmanna, þeirra, sem vér
■höfum haft viðskifti við, Ihöfum
vér notið í fullum stíl. Fyrir
þetta erum vér þakklótir, og ósk
vor er sú, að þeir sem kjörnir
verða á þessum fundi, til að taka
við fulltrúastarfinu, auðnist að
njóta jafnmikiilar góðvildar á
fjárhagstímabilinu, sem nú fer í
hönd.
Ef til viíl, hefur söfnuður vor
aldrei staðið með meiri blóma en
einmitt nú. Fjárframlög safn-
aðarfólks, hafa verið að mun ríf-
legri en á undanfömum árum,
og er það eftirtektarvert hvergu
miklu vlðtækari þátttaika hinna
yngri sem eldri í velferðamálum
safnaðarins er að verða, enda er
starfssviðið altaf að aukast eins
og skýrslur þær, sem fram verða
lagðar í kveld bera greinilegan
vott um.
Fólkstala safnaðarins hefur
aukist að miklum mun á hinu ný-
liðna ári, 0g munu meðlimir safn-
aðarins nú teljast um ellefu
hundruð, eða rúmlega það, en á
slðasta ársfundi töldust safnað-
armeðlimir alls 951, að m-eðtöld-
um 220 ófermdum.
Sunnudagskólinn heldur áfram
að taka stöðugum framförum.
Nemendum hefur fjölgað svo, að
skólinn mun nú teljast til flokks
þeirra fjölmennustu í Winnipeg
borg.
óbilandi trúmenska, ötulleik
og ósérhlífni forstöðumanna
sunnudagskólans og kennaranna,
sem með honum hafa starfað á
þessu umliðna ári og í liðinni
tíð, eru framfarir sunnudagaskól-
ans að miklu leyti að þakka.
Söfnuðurinn lí heild sinni, foreldr-
ar, aðstandendur og aðrir vinir
barnanna fá ekki fullþakkað iþeim
ágæta vini, sem forstöðu veitir
s un n u dagskólanum og öllum fhin-
um góðu bræðrum og systrum, sem
með (honum hafa unnið í víngarð-
inum, og sem hafa gert það sitt
hlutverk, að kenna þeim ungu
þann veg sem þau eiga að ganga,
»vo þau geti verið trú alt til dauð-
ans, og að síðustu öðlast kórónu
lífsins. Guð veiti öllu iþessu góða
fólki áframhaldandi styrk og trú,
og btessi alt starfið og haldi
veradarhendi sinni yfir öllum
ungmennum vorum í Jesú nafni.
Kirkjusöngurinn er og hlýtur
ávalt að vera eitt af aðal velferð-
j armálum þessa safnaðar. Útlit
er nú fyrir, og erum vér vongóð-
| ir um, að nú séu söngkraftar
1 safnaðarins að sameinast og tengj-
l ast tryggari böndu.m en nokkru
sinni áður.
Söifnuður vor er stórauðugur,
að þvií er ágæta söngkrafta
snertir. Er gleðilegt að hugsa
til þess. pað ætti vissulega að
vera einlægur vilji allra þeirra,
sem sönggáfum eru gæddir, að
beita þeim skapara sínum til
dýrðar og þekn sjálfum til mik-
iliar gleði og huggunar.
Söfnuðurinn hefur eins og á
undanföraum árum, notið aðstoð-
ar þeirra hijónanna, Steingríms
organista og Sigríðar Hail, sem
bæði hafa reynst eins trú og trygg
eins og ávalt áður. peim góðu
hjónuim, íásamt öllum þeim, sem
sæti hafa skipað með söngflokk-
num, vottum vér innilegt þakk
læti fyrir safnaðarins hönd, og
vér vonum að allir, bæði karlar
og konur, finni arðberandi 'hvöt
hjá sér til að leggja fram krafta
sína til þess að styrkja og ef!a
kirkjusönginn.
Eitt af þeim þýðingarmestu
sporum, sem stigin iha.fa verið í
áttina til framtíðar viðhalds góðs
(kirkjusöngs, er það, að stofnað-
ur Ihefir verið nýr söngflokkur,
úr ihóp yngra fólks safnaðarins.
Er svo til ætlast, að þessi yngri
flokkur skipi kórsæti við morgun-
messur, en að aðal flokkurinn
sameini krafta sína til aðstoðar
við kveld guðsþjónusturaar. Báð-
ir Iþessir flokkar eru undir stjórn
Mr. Paul Bardal, og á söfnuð-
urinn honum að þakka fyrir mynd-
un hins nýja flokks, sem fyrst
iét til sín heyra við morgunmessu
síðastl. sunnud. Voru þá kór-
sætin skipuð 31 ungimenni auk
þeirra organista og söngstjóra.
Vér finnum sérstaka ástæðu
til þess að lýsa því yfir, að til þess
að geta orðið við ákveðinni áskor-
un frá oss, starfsbræðrum hans,
hefur Mr. Bardal leyst sig frá
sönglistastörfuim annarstaðar,
þar sem hann hafði þegar verið
búinn að binda sig, en fyrir til-
hliðrunarsemi hlutaðeigenda gat
fengið Uausn. Oss er það gleði-
efni, að gera söfnuðinum það
kunnugt, að Mr. Bardal er nú
orðinn fastamaður í þjónustu
safnaðarins sem söngstjóri og
sólóisti.
Söfnuðinum er það nú þegar
kunnugt, að sú tilbreyting, hefur
verið gerð, að söngfólkið kemur nú
fram og tekur sæti sín í kórnum
klætt svörtum söng-kápum. Eng-
u.m getur blandast hugur um, að
þessir búningar eru tignarlegri
og að öllu leyti kirkjulegri en
ýmislega litir kjólar og föt þeirra
sem kórsætin skipa. Söfnuð;
um ber að þakka einum fulltrú-
anna, Mr. Albert C. Jónssyni fyr-
ir þessar kápur. Sjálfur lagði
hann til 0g gaf dúkana, kraga og
annað efni, en noldcrar góðar
safnaðarkonur, tóku að sér að
sníða og sauma kápurnar. pessa
tilbreyting álíítum vér mjög við-
eigandi, enda virðist að söngfólk-
ið og allur söfnuðurinn sé mjög
ánægður með hana. Kvennfé-
Iagi safnaðarins ber að votta
þakklæti fyrir framúrskarandi
elju og dugnað. pað ihefur oft
verið sagt, að kvennfélagið hafi
verið öflug máttarstoð safnaðar-
ins, og er víst um það, að það er
sannleikur. Kvennfélagið hef-
ur nú eins og á undanföraum ár-
um, styrkt söfnuðinn með beinuro
fjárframlögum, og hefur á þessu
nýjiðna ári afhent gjaldkera vor-
um $1,000 til safnaðar þarfa.
Fyrir þessi fjárframlög og alt
það góða verk sem kvennfélagið
hefur unnið, vottum vér innilegt
þakklæti með ósk um langvarandi
og blessunarríka framtlð.
Djáknunum leyfum vér oss að
votta þakklæti fyrir óþreytandi
eftirlit með þeim sem við fátækt
og bág kjör hafa átt að ibúa. Starf
þessarar nefndar er oft og einatt
miklum erfiðleikum bundið, svo
að á mikilii þolinmæði og 'þraut-
seigju þarf að halda. Guð end^
urgeldur í ríkum mæli þeim sem
bágstöddum hjéílpa. Guð blessi
starf djánanna og auki krafta
þeirra, sjálfum þeim og öðrum ti'l
unikillar blessunar.
Dorcas félagið 1— kvennfélagið
unga — hefur einnig gert mikið
gott á árinu, og má fyllilega bú-
ast við, að sá félagsskapur blómg-
ist vel, og eignist bjarta og
•blessunarníka framtíð. Söfnuð-
urinn þakkar þessu unga félagi
fyrir þes.s göfuga 0g góða starf
og óskar því blessunar guðs og
góðs gengis. Fyrir $100,00 gjöf
til safnaðar þarfa, þökkum vér
og álúðlega.
Bandalagið hefur afhent oss
$25,00' í 'safnaðarsjóð. Fyrir
þessa gjöf, sem ber vott um trygð
og góðvild þessa félags þökkum
vér. Oss dylst ekki að Banda-
Iagið er ekki í eins blómlegu á-
standi að neinu lleyti, eins og það
var á sínum bestu árum, en vér
vonuim að einhverjir ötulir, urtg-
ir menn og göfuglyndar meyjar
geri það að hlutverki sínu að end-
urreisa þetta ungmennafélag, svo
það fái náð fullum þroska og að
starf þess blessist sem best.
Skýrslur þessara áminstu fé-
'laga verða ilagðar fyrir fundinn,
og munu þar ljóslega skýra frá
fjánhag þeirra o*g störfum. Auk
þeirra gjafa til safnaðarþarfa, er
þegar hefur verið á minst, viljum
vér einnig minnast á og þakka
fyrir $75,00 frá sunnudagskólan-
um.
Gjaldkeri safnaðarins leggur
fram nákvæma reikninga yfir
fjármálin. Finst oss ástæða til
að þakka öllum þeim, sem styrkt
ihafa safnaðar istarfið f3árhagsr
lega á árinu. 1 ársibyrjun, eða
þegar vér tókum við safnaðar-
reikningum, vor í sjóði $119,18.
Allar tekjur til safnaðar-
þarfa teljast.......... $9,217,26
•Útgjöld: $8,870,65
Mismunur 1 sjóði $465,89
Forseti safnaðarins leggur tram
sérstaka skýrslu yfir kaupin á
kirkjueign safnaðarins á Victor
’Str. pess má geta hér, að veð-
skuldin sem nú ihvílir á þessari
eign er $20,000, en skuildin á or-
gelinu hefir verið færð niður í
$3,224. Höfum vér á árinu borg-
að vexti af skuldum fyrir síðaat
liðið ár ($275,40) $218,00' upp í
höfuðstól, ennfremur $275,40 fyr-
ir vexti sem fallið höfðu í gjald-
daga, en ekki verið greiddir fyrir
ársfundinn í fyrra.
Gam'la kirkjan á Bannatyne
Ave., hefur nú verið sdld, og er-
um vér fullvissir um, að söfnuð-
urinn muni lýsa ánægju sinni yf-
ir því. Kirkjan hafði verið tek-
in til leigu af Salvation Army til
1. maí f. á., fyrir $60,00 um mán-
uðinn. Eftir að S. A. flutti úr
kirkjunni tókst oss að leigja hana
aftur til eins árs, frá 15. júní
1922 til 15. júní 1923, fyrir $80,00
um mánuðinn. Síðar fengum vér
tilboð í eignina, og sem leiddi til
•þess að hún var seld fýrir $25,000,
00; 500’,00 greiddu kaupendur við
kaupfesting, $4,500,00 greiðast um
j leið og kaupendur taka við eign-
inni 15. júní 1923; $5,000 15.
júní 1924, $2,500 15, júní hvers
árs þar eftir, þangað ti'l höfuð-
stó'll hefur borgast til fulls með
6% vöxtum, sem greíðast fyrst
15. júní 1924 og svo 15.júní hvers
árs, ásamt afborgjn höfuðstól's.
Kaupendur eru The Trustee of
the Parisih of bhe Holy Rosary.
Veðskuldin ®em í gömlu kirkj-
unni hvíldi, var borguð og af-
numin. Til þess tókum vér
hankalán upp á $9,000, en upp i
það gengu fyrstu $500,00 frá hin-
um nýju kaupendum gömlu kirkj-
unnar, svo banka skuldin er nú að-
eins $8,500. Vextir umsamdir á
þessu bankaláni eru 8%, en ti!
þess, að söfnuðurinn ekki þurfi að
borga meir en 7%, hefur Mr. T.
E. Thorsteinsson bankastjóri boð-
ist til að borga mismuninn úr eig-
in vasa. Erum vér honum þakk-
látir fyrir þessa sérstöku góðvild
til safnaðarins.
Eins og sakir nú ®tanda nema
allar skuldir safnaðarins $31,724
p. e. a. s. veðskuldin á
nýju kirkjunni ........... 20,000
Orgels'kuldin .............. 3,224
Bankalánið ................. 8,500
Upp í þessa skuld á
söfnuðurinn sölusamn-
ing með fyrsta veðrétti í
Norðurkirkjunni, eins
og greint hefir verið $24,500
Mismunur því: $7,224,00
Á síðasta fundi var fulltrúum
safnaðarins falið á hendur að
halda samkomu, eins snemma á
árinu eins og þeim sýndist rétt-
ast, til þess, að fagna nýinngengn-
um safnaðar meðlimum, og til þess
að þeim, og hinum, sem fyrir
væru gæfist kostur á, að kynnast
hver öðrum. peseu samkomu-
haldi frestuðum vér til þess, að
ölluim þeim, sem innrituðust í
söfnuðinn á tímabilinu, sem starf
okkar sem fulltrúa náði yfir, gæf-
ist kostur á að fytla hópinn. í
tilefni af því hversu margir höfða
innritast í söfnuðinn á árinu, var
oss sérataklega Ijúft að stofna
til samsætis, þar sem allir fermd-
ir meðlimir safnaðarins gætu set-
ið, nýjir og gamlir, og betur
kynnst hver öðrum.
Vegna þess, að samkomusalur
kirkjunnar var ekki álitinn nógu
stór tiíl þess að allur sá fjöldi,
sem til samsætisins kæmi, gæti
setið í einu, var samkvæmi þessu
skift niður á tvö kveld, þriðju-
dags- og mánudagskv., þann 9 og
10. f. m. Var fullorðnu og eldra
fólki 'boðið að koma fyrra kveldið,
en yngri kynslóðinni, og þeim
sem íslenzkunnar ekki nytu fylli-
lega hið síðara kveldið.
Fyrir aðstoð og dugnað kven-
félagsins, sem tók að sér að sjá
um framreiðslu kveldverðar, og
þeirra, sem ræður fluttu yfir borð-
um og annara, sem skemtu með
söng og hljóðfæraslætti, fóru
þessi samsæti framúrskarandi vel
fram, og er það ósk vor, að allir
þexr, sem sóttu, ihafi notið á-
nægju og uppbyggingar bæði
'kveldin, og að samkvæmin hafi
náð tilætluðum tilgangi.
Undir 800 manns sátu til borðs
þessi tvö kveld. Finst oss við-
eigandi og rétt, að taka það fram,
að prúðmannlegri og efnilegri hóp
ungra meyja og pilta, en þeirra
sem til borðs sátu á miðvikudags-
kveldið, minnumst vér ekki að
hafa séð. Vér þökku.m kvenn-
félaginu fyrir aðstoðina við þessi
samkvæmi og öllum sem studdu
að því, að gera þau eins gleði-
leg og í alla staði eins ánægju-
leg og þau reyndust.
Á ýmsum tímum hefur það
komið til tals, að ungir menn
tækju að sér að leiða fólk tfl
sætis í kirkjunni. Höfum vér
einnig um þetta rætt, og er það
niðurstaðan, sem vér höfum kom-
ist að, að heppilegast muni vera
þessu til framkvæmda, að söfn-
uðurinn kjósi nokkra unga menn
til þess starfs.
Er 'það því tillaga vor, að iþessi
fundur kjósi sex unga menn sem
fyrir safnaðarins 'hönd og undir
umsjón fulltrúanna hafi þann
starfa í hendi, að leiða fólk til
sætis í kirkjunni við safnaðar-
] guðsþjónustur, útbýta sálmabók-
ttm og ilúta sér annt um fólk, sér-
staklega það, sem virðist ókujjn-
ugt. Starfi þessu haldi þessir
ungu menn milli ársfunda.
Snemma á síðastliðnu ári var
oss tilkynt, að húsaleiga safnað-
arprestsins yrði hækkuð úr $50',00
upp í $75,00 mánaðarlega. par
sem ekki ekki virtist annars betri
kostur en að sæta þessum nýju
kjörum, tókum vér að oss fyrir
safnaðarins hönd, að borga mis-
muninn á húsaleigunni. Okkur
fanst að prestur vor mætti ekki
við því að borga þessa hækkun
af sínum eigin launum. Höfum
vér því í þessu sambandi borgað
$225,00. p. e. fyrir 9 mánuði
frá 1. apr. síðastl.
Með því, að oss finst æskilegt
að 'söfnuðurinn sýnj einhvern lit j
á að bæta um hag prestsins, hef-
ur oss komið saman um að mæla
með því, að við laun dr. Björns
B. Jónssonar sé bætt $200,00.
Með Totningarfullúm hjörtum
þakkar söfnuðurinn 'góðum Guði
fyrir árið nýliðna, fyrir bTessun
hans yfir starfi safnaðarins og
kirkjufélags vors; fyrir náð og
krafta, gott heilsufar, sem hann
hefur veitt starfsmönnum safn-
aðarins, sérstaklega presti vorum j
og leiðtoga. Guð gefi honum
náð og styrk, andlega og líkam-
’lega og blessi aTt hans starf meðal
vor.
Winnipeg, 23. jan. 1923.
Dr. B. J. Brandson
S. W. Melsted
Jónas Jóhannesson
A. C. Johnson
Paul Bardal
Fulitrúarnir, sem stóðu fyrir
málum safnaðarins síðastliðið ár,
voru allir endurkosnir, on þeir
eru Dr. B. J. Brandson, S. W. Mel-
sted, A. C. Johnson, Jónas Jó-
hannesson og Paul Bardal.
Djáknar voru kosnir Miss
Theodora Heraiann, Mrs. W. J.
Burnes, Mrs. B. C. Júlíus, Mr. G.
H. Hjaltalín og W. H. Olson.
Yfirskoðunarmenn voru endur-
kosnir þeir sömu og í fyrra: F.
T. Thordarson og Kári Frederick-
son.
Til þess að aðstoða, við að leiða
fólk til sætis í kirkjunni voru
þessir yngismenn kosnir.
Jónas W. Jóhannsson
Lincoln Johnson
Albert Wathne
Edward Prieece
Kári Bardail
Wilfred Swanson
Thorarinn Melsted
Jón Raghar Johnson.
Copenhagen
Vér ábyrgj-
urnst það að
vera algjörlegal
hreint, og það
bezta tóbak í|
heimi.
C?P|NfÍÁGEN-#
“ snuff
Ljúffengt og
endingar gott,
af því það er
búið til úr safa-
miklu en milau
tóbakslaufi.
MUNNTOBAK
Sæmundar og Eliná Eiríksson
Þann 26. marz, 1921, andaöst öldungurinn Sæmundur Eiriks-
son, aö heimili sonar síns. Jóhannesar í nánd við Hensel í Norður
Dakota. Þann 15. júlí, 1922, andaðist á sama heimili, Eliná Jónas-
dóttir, seinni kona Sæmundar. Þessi heiðurshjón bjuggu um langt
skeið í nánd við Mountain í Norður Dakota. Skal þeirra nú að
nokkru minst, er þau bæði eru gengin til hinstu hvíldar.
Sæmundur var fæddur 14. júní, 1833. Var hann sonur Eiríks
Hjálmarssonar prests að Þóroddstað í Köldukinn, og konu hans, Sig-
ríðar Þorbergsdóttur. Tíu ára gamall misti Sæmundur föður sinn.
Eftir það ólst hann upp með móður sinni og seinni manni hennar,
séra Jóni Ingvaldssyni að Húsavik í Þingeyjarsýslu, þar til hann var
17 ára. Fór hann þá til Danmerkur og dvaldi þar í þrjú ár við
jarðyrkjunám.
Um 1856, kvæntist hann Sigríði Jóhannesdóttur frá Laxamýri,
systur Sigurjóns föður Jóhanns skálds. Bjuggu þau á ýmsum stöð-
um, en síðast að Kaldbak á ;Tjörnesi. Þaðan fluttu þau til Ame-
)ríku 1882, og settust að á Gardar í Norður Dakota. Dó Sigríður
kona Sæmundar þar á fyrsta ári. Börn ]>eirra voru: Asta, gift
Benedikt Jóhannessyni að Gardar, dáin; Jóhannes, áður nefndur ai5
Hensel; Eiríkur í Grtmd Forks, áður bóndi að [Hallson; Sæmundur
bóndi í Svoldarbygð; Sigurjón lögregluþjónn í Seattle; Jón í Los
Angeles, og þrjár dætur er dóu ungar.
Seinni kona Sæmundar, var Eliná Jónasdóttir frá Hvammi í
Höfðahverfi. Voru þau allan sinn samvistartima til heimilis í ís-
lendingabygðinni í Norður Dakota. Fyrst lengi við bú nálægt
Mountain, svo um tíma í þorpinu sjálfu, áður en þau fluttu til
Jóhannesar Sæmundssonar, eins og áður er getið. Eignuðust þau
Sæmundur og Eliná einn son, er dó í æsku.
Eliná var fædd fyrsta ágúst, 1839, að Hvammi í Höfðahverfi.
Um ætt hennar er mér ekki kunnugt. Þann 28. september, 1860,
giftist hún Einari Jóhannessyni frá Finnstöðum i Kinn. Eignuðust
þau fjögur börn: Einar, Svanfríði, Jóhannes og Jón. Er Jóhann-
es nú einn á lífi af þeim- Hefir verið bóndi og kaupmaður í Is-
Iendingabygðinni útfrá Churchbrigde í Saskatchewan.
I ágúst 1868, druknaði Einar, maður Elináar á þilskipinu Ingólfi.
Þann 9. október, 1872, giftist Eliná í annað sinn, Jóni Folmer Hans-
syni Með honum eignaðist hún fjögttr börn; Jón, Sigríður, Elini
og Sigurlaugu. Er Sigmundur nú einn á lífi af þeim, og er búsettur
i Blaine, Washington.
Árið 1878 fluttu þau Jón og Eliná til Ameriku, og dó Jón í Winni-
peg fyrsta árið. Seinna fluttist Eliná til Dakota, og giftist þar þriðja
manni sínum, Sæmundi Eiríkssyni, eins og áður er getið.
Sæmundur var hraustmenni, er hélt líkamsburðum og andlegu
fjöri til hárrar elli. Hann var mikill á velli, glaðlegur í viðmóti, og
drengur góður. Hann var búhöldur góður, og mat mikils sjálfstæðiö.
Hann var íslenzkur mjög í anda, en hafði þó tekið ástfóstri við ætt-
jörðina nýju. — Eliná var friðleiks og myndarkona, er hélt fram i
elli gjörvileik sínum. Seinustu árin nokkur förlaðist henni mjög, en
hélt þó aitaf þeim æskubjarma yfir ásjónu sinni, er auðkendi hana
ætíð. Reynslu lífsins hafði hún borið eins og hetja. Það var bjart
>fir æfikvöldi þessara aldurhnignu hjóna, því þau nutu kærleiksrík-a -
umhyggju hjá sínum, og biðu þannig í friði þess, að dagur þessa jarí-
neska lífs tæki enda. Þau voru bæði lögð til hinstu hvílóar í grafreit
Vídalínssafnaðar.
K. K. Ö.
“ROSEDALE” Drumhellerfs Bestu
LUMP -JOG- ELDAVJELA
STÆFD
EGG
STOVE
NUT
SCREENED
Phone B S2
PPERS
TWIN CITY
$18.50
Tonnid
MEIRI HITI—MINIMI KOSTNADUR
THOS. JACKSON & SONS