Lögberg - 30.08.1923, Síða 2

Lögberg - 30.08.1923, Síða 2
Bls. 2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 30. ÁGÚST 1923. Sjö ára þjáningar Höfuðverlsur og meltingarleysi lœknað með “Fruit-a-tives” Heimsfrægt ávaxtalyf. Firs O'- þúsundír annara ’oanna gera, reyndi Mr. Albert Varner frá Buckingihaxn, P. Q. fjölda meðala, en ekkert þeirra sýndii t að koma að nokkru veru- legu kaldi. Loks ráðlagði vinur minn einn “Frit-a-tives’ or nú ei eg orðinn heill hcilst. “í sjö ár þjáðist eg af hófuð- verk og meltingarleysi. Maginn þandist út af gasólgu og iðug- lega fék keg velgjuköst. Loks reyndi eg “Fruit-a-tives” og það merka ávaxtalyf kom mér til heilsu.” 50c. hylkið, 6 fyrir $2,50, reynsluskerfur 25c. Fæst hjá öll- um lyfsölum eða beint frá “Fruit- a-tives Limited, Ottawa, Ont. Menningin í afturför. eftir Wittiam Dudlev Faulke. Námsmönnu’xn er -ieyft að velja um námsgreinar og taka að eins þær sem haganlegastar þykja fyr- ir lífsstöður og hefir það oft leitt til afturfarar í 'xnentun á fyrri árum Nemendur velja þær námsgreinar sem auðveldastar eru og smeygja sér í gegnum nám- ið á sem fyrirhafnarminstan hátt og þá líka arðminstan fyrir þá sjálfa. pað fyrirkomulag hefir leitt til breytinga eða breytinga- tiirauna eins og hinr.ar sýnilegu •mentunar, sem mern /á með því að horfa á myndir. Mentun sem er fljóttekin og fyrirhafnarlaust. I’essi aðferð hefir að vísu staðið i hinum vanalegu námsgreinum sem kendar eru, en sú aðferð hef- ir það í för með sér, að.hún úti- lokar úr mentuninni sum frum- skilyrði, vald nemandans yfir gáf- u'.n sínum og það er mest á ríður — yfir viljaafli sínu. Náms- greinunum fjölgar, en vit þeirra, sem þær eiga að nema minkar- Nútíðar mentun stefnir í áttina til þess að gera skilning nemend- anna losaralegan og kraft þeirra reikandi. Náskylt losi heimilis’iífsins, og óreglu á mentamálum er trúarleg afturför. Herbert Spencer, se'.n sjálfur var vantrúaður í hinum vanalega skilningi þess orðs, hefir sýnt fram á hve ómissandi að trúar- brögðin eru, til þess að binda þjóð- irnar saman bæði mannfélags og stjórnafarslega. Trú á óbrigðul- leik kristindómsins hefir eins mikil áhrif eins og ótti manna við Iögin. Sá, sem trúir því að guð sjái, launi, eða hegni fyrir hvert atvik hans í lífinu hefir ósegjanlega miklu meiri festu í lífinu fyrir :þá trú, heldur en skynse.nistrúar- maðurinn, sem ekki sér neitt ann- að en vott vissra atriða, til þess að auka ánægju, eða ógæfu inn- an takmarkaðsstarfsviðs, þar sem önnur tilfelli sýnast hvorki verð- skulda umbun né straff. Hinir fornu Rómverjar óttuð- uát guði sína, og sá sameiginlegi ótti, sem þeim stóð af hinum sam- eiginlegu guðum knýtti kyn mannflokkanna saman og gaf þeim þrótt í hinum þjóðlegu fyrir- tækjum þeirra síðar á tímabil- inu sem leiddi til hinnar þverr- andi menningar þeirra, komu upp hjá þeim heimspekilegar stefnur á meðal hinna gáfuðustu manna þjóðarinnar, sem gagnstæðar voru goðatrú þeirra. Hið sama á sér stað í dag- Á dögum Puri- tananna var guðsótti almennur. Kirkjusókn og dagleg guðsþjón- usta á heimilunum var ófrávíkj- anlegur siður nálega um land alt. Nú eru guðsþjónustuhús þjóð- arinnar illa sótt og guðrækilegar BSAH V ut IHB SKFN’ efta hörundafegurtS, er þrá kvenna og fK*st mett því aö nota Dr. Chaae'fl Olntmena. Allnkon&r húhajúkdómar, bverfa vIB notkun heaea meSala OK hörundlð vertíur mjúkt og fagurt. F««t hjá. ÖUum lyfeölum eða fr4 Edmaneon, Batea & Co., Limited. Toronto. ókeypls sýnlahorn sent, ef bl&B hetta er nefnt. iðkanir á heimilunum að ‘mestu lagðar niður og trúleysi ihjá hin- um gáfaðri parti þjóðarinnar víð- tækt. pað er máske hægt að segja að rationalistarnir séu eins góðir borgarar og nokkrir aðrir og er það satt að mestu. Venjur sem trúarbrögðin hafa skapað halda ósjálfrátt áfram um einn eða fleiri mannsaldra eftir að þau hættu að vera verkandi kraftur í lífi manna, en að síðustu verður vöntun þeirra augljós í athöfnum manna og losi því, sem hún hefir á allan mannlegan félagsskap. Afturför þjóðar vorrar. Það er ekki einasta að andagift þjóðarinnar hafi hnignað, með •losi því, sem komið er á heimilis- aga og trúarbrögð þjóðarinnar, heldur hefir maður fy'lstu ástæðu til þess að óttast að andlegt og líkam’egt atgjörfi fólksins sé í afturför sökum eftirlitsleysis og óvarkárni í sambandi við gift- ingar þess- Ríkara fólkið og það sem mest- u'.n hæfileikum er gætt á oft fátt barna, hið fátæka og það sem minni hæfileikum er gætt, fram leiða stærri fjölskyldur. Á fundi sem heilbrigðisfræði- félagið hé'It í New York nýlega kom það í ljós, að menningar fyr- irkomulag þjóðarinnar væri að ala upp ósjálfbjarga kynstofn. Skýrslur sem þar voru lagðar fram sýndu að hlutfall þeirra er veiklaðir voru hefði vaxið stór- kostlega. Árið 1890 var tala hins úrættaða fólks í Banda- ríkjunum 118 á hverjum hundrað þúsundum. Árið 1920 var hún komin upp í 220. Ef ástand það sem skýrslurl þessar sýna er ábyggji'Iegt, þá eru hei'.brigðisreglurnar og hjálpar-l stofnanirnar að hjálpa til þess að snúa framþróunar lögmálinu við, með því að vernda líf þess fólks og vinna að því að það sem óhæf- ast er haldi velli- Ef s'i'íku heldur áfram um ótakmarkaðan tíma, þá hlítur það að hafa eyði- legging þjóðanna í för með sér- Enginn fiokkur í mannfélaginu er eins viss að aukast eins og sá sem er andlega fatlaður. Þau fyrirhuguðu ráð til þess að ráða bót á þessu að deyfa getn- aðarþrá fólks, einangra það eða takmarka fæðingar á meðal þess sýnast bæði vera ónóg og ófram- 'kvæmanleg og ekki heldur hefir sú aðferð að þroska hug.sun þess sjálfs í þessum efnum reyrfst ann- að en draumur. Ekki er hægt að saka hið inn- flutta fólk um þessa afturför, því í vissum pörtum af Nýja Eng- lands ríkjunum, þar sem Engil- Saxnesku kynstofnarnir" eru hreinastir er afturför þessi auð- sæ og eins i fjöllunum í Norður- Carólina, Tennesee og Kentucky, þar sem Engil-Saxneski stofninn hefir verið óblandaður mannsald- ur eftir mannsaldur, þar er held- ur ekki um neina framför að ræða. Önnur tilhneging, sem mikið ber á nú á dögum og sem líkist mjög tilhnegingu í sömu átt hjá Rómverjum rétt áður en sú þjóð tók út datyðadóm sinn, og það er flutningur fólks úr sveitum í bæi og borgir. Fyrri á árum voru það ekki nema fimtán af hundraði af Bandaríkjaþjóðinni, sem heima áttu í bæjum. Við vorum þá eins og Rómverjar aðallega land- búnaðar þjóð. Nú býr mikill meiri hluti þjóðarinnar í bæjum og borgum- Sjálfstæðis þrótt- urinn og framtakssemin, sem sveitalífið veitti er tapað, þjóðin er að líkjast Rómverjum meir og meir með hverjum 'Iíðandi degi — skiftast í tvo flokka, miljónamær- ina og verkalýð. Auður, bylting og afturför. Feikilegur auður í höndum fárra manna var máske --ein af aðalorsökunum fyrir eyðilegging hins rómverska lýðveldis, um það kemst Pleny svo að orði: “Latif- undia Perdidere Italian” það er (hinir stóru landeignamenn hafa eyðilagt ítalíu), og það voru ekki að eins hinar miklu landeignir manna, aðrar eignir þeirra, svo sem þrælar og annað ránsfé úr fylkjum ríkisins. í Bandaríkjunum eru í dag auð- ugri einstaklingar heldur en r.okkrir aðalsmenn eða konungar voru til forna, Einstaklingar sem geta keypt heil konungsríki með auð sínum og háfa keypt löggjafarþingin með þeim, stund- um beinlínis, stundum óbeinlínis, svo sem með fjárframlögum í kosningasjóð, stundum með því að hræða menn með verðfalli á vörum og atvinnuJeysi, með þvf að einn >eða fleiri af þeim slái sét savnan til þess að fá toll hækkað- an, fá einkaréttindi, eða annað gott sem Iöggjafarnir höfðu að selja, og hinir vildu kaupa. Um tíma voru flestallir sena- torarnir í Bandaríkjunum mil- jónamæringar og stór verzlunar- félög hafa risið, sem hafa ráðið verði á lífsnauðsynjum manna pað er að vísu satt, að miðstétta- fólk þjóðarinnar hefir aldrei ver- ið virt að vettugi eins og hjá Ró'.nverjum í tíð Ciceros- pað er og satt að við höfum losnað við hið andstyggilega þrælahald, þó hinn mikli fjöldi verkamanna, sem vinna í stóriðnaðar verk- smiðjum myndi sérstaka stétt sem ekki er hættulaus. Afleiðingarnar af auðnum í höndum fárra og valdi því sem honum er samfara eru byltinga hugsjónir, sem myndast hafa, og þeim er samfara viðleitni til þess að ryðja úr vegi bæði lögum og reg.Ium ásamt eignarétti manna. Co'.nmunista kenningin hefir náð meiri þroska í öðrum löndum en Ameríku. Á Rússlandi hef- ir hún leitt til einveldis, sem lýð- urinn hefir orðið að beygja sig fyrir með harmkvælum. í Ameríku hefir hin svonefnda “direct action” (beinu fram- kvæ’.ndir) til þess að ná sérstökum hlunnindum fyrir sérstaka mann- flokka náð sér nokkuð niðri- Framh. Bragarœða flutt í samsæti ungra skálda og Iistamanna fyrir Guðm. Frið- jónsson frá Sandi, í Reyk- javík 21. júní 1918. Kæru bræður! Eg hefi ekki verið . jafn-lán- samur í lífinu og heiðursgestur- inn sem hérna situr, að eiga ljúfa og spakvitra öm'.nu á lífi, er eg gæti átt innhlaup til, þá er eg var búinn að ganga niður úr sokkum og skóm á eggjagrjóti lífsins- En eg átti fóstru r— óbreytta alþýðu- konu — sem var mér einkar hlý og góð og margfróð á sína vísu. Og hún stytti mér marga stund- ina með sögn og sögu, þulu og Ijóðum. Hún sagði mér söguna af Grá'.nanni, er eg gat hlegið að. Og hún sagði mér söguna af Grís- hildi góðu, en henni gat eg tár- ast yfir. Og hún þuldi mér all- an Vinaspegil, Jóhönnuraunir og margt fleira. — En það var þó sérstaklega ein suðræn saga, sem einhverveginn hafð flækst til hennar, kerlingarhrósins, auðvit- að öll skekt og skæld — því að mörgu er logið á skemri leið en frá Grikklandi og alla Ieið til ís- lands hún festi sig í minni minu og hana langqði mig til að mega segja ykkur. En af því að skáldið frá Sandi hefir nú innleitt þann sið að hafa formála og eftir 'mála með ræðum sínum, þá gefið þér mér kannske leyfi til þess- Þegar eg virði fyrir mér þessa undarlegu, að sumu leyti hel- vísku tilveru, sem við lifum í, þá á eg, þrátt fyrir alt og alt, sem í móti mælir, bágt með að trúa öðru en að baki hennar búi ein- hverskonar alvera, er sé spök og djúpúðug eins og útsærinn. Og eg get trúað því, að- a'lhekns við- leitni þessarar miklu alheimsveru sé í því fólgin að lyfta öllu upp til æðra og fegra lífs. Það er oð trúa mín, að þessi eilífi aflvaki í tilverunni, þessi vitaðsgjafi, þessi undirsjór alls, sem er o? hrærist, fái allar öldur til að rísa á haffJeti tilverunnar, sumar stærri og sumar minni. Nokkrar af^þessum haföldum tilverunnar verða svo miklar og fagrar, að þær verða að hvítfyssandi boðum og brautryðjendum þeirra minni og bera þær alla leið til lands. Pessir boðar og brautryðjendur eru sendiboðar hinnar huldu al- veru og hafa þeir með flestum þjóðum verð nefndir skáld, speki- menn og spámenn kynslóðanna. peir hafa haft spákvistinn í hendi sér, og hann hefir haft þann kyngikraft, að sögn, að hann hefir ekki einungis breytt vatni í vín, heldur hefir hann og breytt hégómanum og glysinu i hina mestu konungsgersemi. Hann hefir meira að segja getað gert hina auðvirðilegustu skröksögu og kerlingabók að dýpstu og dýr- mætustu speki; og hann hefir oft gefið oss þann gullinþráð er leddi oss beint að uppsprettum heilagra og áður hulinna lífs- linda- En þetta skilja að eins þeir, sem eru eins naskir og Guðmundur frá Sandi á að finna fágætið og fémætið í næfrabún- ingnum. Jæja, þá er formálan- um lokið. Og nú kemur sagan: Haukur hét konungsson, sem ættaður var úr Garðaríki, Græcíu eða Miklagarði. Einu sinni sem oftar fór hann í skóg og sá feyskna, himingnæfandi eik, sem var komin að falli. En konungs- son fyltist meðaumkvun með þessum fagra, laufskrúðga meiði, sem yfirskygði alt, líkt og Askur Iggdrasils, og riðaði.þó á rústum, tók hann því að skjóta stoðum undir eikina og rétta hana við, þangað til hún stóð þar jafn keik og í sína ungu daga. Og þaut nú aftur svo þungt, en þó svo unaðslega í laufinu, er hjálm- skúfur eikurinnar gnfæði upp yfir trjátoppana hringinn í kring- “Haukur! Haukur!” heyrðist konungssyni hvíslað í blænum. Og er honum yarð litið við, ætlaði hann ekki að trúa sínum eigin augum. Því við fót eikurninar stóð ung og indæl kona og bar hún af öllu því, er hann hafði nokkru sinni augum litið. Hann hugði þetta vera gyðju af himn- um ofan og ætlaði að falla henni til fóta. En hún varnaði hon- um þess og sagði: “Eg er að eins sál þessa sem þú varst að hressa við og bjarga, —eg er viðardísin! Óska þú þér nú einhvers, sem i minu valdi stendur og það mun veitast þér.” — Og hún stóð þarna alsnakin frampii fyrir honum í allri sinni goðbornu fegurð. En er unglingurinn leit konuna, upp- tendraðist hann af ástarþrá og mælti: “Veit mér ást þína eða að minsta kosti einhverja von um hana, þótt ekki verði það fyr en eg er dauður”! — Dísin roðnaði við og raunasvip brá sem snöggv- ast fyrir á andliti hennar: — “Þetta e ráhætta en það skal veit- ast þér! Kom þú hingað einni stundu fyrir sólsetur-” — Að svo mæltu hvarf dísin sjónuvn hans, en konungjsson hélt aftur heirn til hallar og var hounm sem hann hefði himininn höndum tekið. pá er hann kom í kounngsgarðr komu félagar hans til móts við | hann og stofnuðu til leika. og með | svo mikluvn áhuga tók konungs- : sonur þátt í leikunum, að hann gleymdi stað og stundu, hugðar- i efni sínu og hamingjuvonum. Þá bar hunangsflugu að eyra kon- ungssonar, og hún suðaði fyrit hlustum hans, en hann bandaðj henni frá sér. Og aftur kom flugan, en hann sinti henni að engu. Þá kom hún loks í þriðja sinn og stakk hann, en hann brást j reiður við og særði hana, svo að hún flaug sífrandi til skógar. pá raknaði konungsson skyndi- Iega við sér og þaut á skóginn- En | er þangað kom, fann hann hvergi ; dísina, en heyrði hvíslað í hálf um hljóðum eins og áður, en þó í angurværum álösunarrómi: — “Haukur! Haukur! Hamingju stundin kom, og þú sintir henni ekki. Og nú er hún liðin hjá! Aldrei má eg birtast þér á ný. Eg sendi þér hupangsfluguna og þú sintir henni ekki. Eg lét hana stinga þig eins og samviskubitið, og samt raknaðir þú ekki við þér. Haukur! Haukur! Hamingju- stundin er liðin hjá!” Þá er konungsson heyrði þetta, barði hann sér á brjóst og barnt- aði sér og bað dísina um að sjá aumur á sér, þótt ekki væri nema í þetta eina skin. En hún sagði, sem var, að hún væri í álögu/n og ekki gæti hún sjálf létt álög- unum af sér. Hann hefði get- að leyst hana úr þeim, en hefði vanrækt það, og nú væri enkis að vænta framar- Gjálífi hags hefði varnað því, að hann fyndi hamingju sína, og nú væri hún týnd og tröllum gefin. “Haukur! Haukur! Haukur konungtson!” Á þessa leið var sagan, sem fóstra mín gamla sagði mér, og hún hefir verið mér gott veganesti í lífnu. — En nú kexnur eftir- j málinn. Eg átti að tala um skáldskap- inn og skáldinn. En hvað kemur þfessi saga þessu við? — Jú, — hún kennir oss það fyrst og fremst, að skáldin verða að fyl.l- ast samúð með því, sem þau ætla að gera sér að yrkisefni, rétt eins og Haukur fyllist meðaumkvunar með hinni hrörnandi eik, er hann tó'k að hressa hana við. Ein- mitt samúðarþelið opnar manni innsýn í hlutina, svo að maður sér I sál þeirra og insta eðli, eins og Haukur, er hann sá hina undur- fögru viðardís. En þá fer maður líka að fá ást á yrkisefninu, vill ná tökum á því og yfirskgygja það af allri sálu sinni og öl.lu sínu hjarta- En — æskan er gjálíf og léttúðug. Ástin og þá ekki sízt ást á listum og skáldskap, krefst þess aftur ávmóti, að maður reyn- 1 ist hugsjón sinni trúr og tryggur, sé eins og vakinn og sofinn í henni, liggi á henni eins og ormur á gulli, þangað til gullið er orðið þungt og höfugt og hefir tekið á sig mynd og gervi hug- sjónarinnar. Þá fyrst má bera það út í Jjósið og daginn, og þá lýsir það jafnvel í myrkrunum, — það er orðið að lýsigulli! Og því háleitari 0g göfugri sem hugsjón- j in er, því meira snildarsnið sem á smíðisgripnum er, því meiri í Fersemi er hann talinn- Og þvi heldur verður hann að leiðar- ljósi, að lýs.gul'li komandi kyr.- | slóða. Allir berum vér í oss einhvern guðdómsneista, sem oss ber að tendra og glæða. Allir höfum vér hugboð um eitthvað, sem oss virðist öllu fegra og unaðslegra. Og einhverntíma birtist það oss að líkindum, fyr eða síðar, þótt ekki sé nema skyndisýn. pá fáum véh ást á því, fyllumst guðmóði til að ná fu'iluvn tökum á því og geta við því getnað þann, er vér hyggjum göfugastan. En þá er undir því komið að reynast trúr og dyggur, láta þá ekki glepjast og gleyma ekki hinni skapandi hamingjustund- Því að hún kemur ef til vill aldrei aftur. Eða hún kemur of seint, — einni stundu fyrir sólsetur lífsins, og þ áer of seint að iðrast og sjá að sér. Eg mæli þetta ekki til skálds- ins frá Sandi, því að hann hefir þegar sýnt það, að hann kann að flétta gullin reipi, gullinn þráð úr sandi hinna ih|versdagslegustu- sagna. En eg mæli þetta til ykkar, hinna yngri skálda, sem eruð hér saman komnir. Látið ókki hamingjustund hins heilaga getnaðar líða hjá og ligg- ið þó á hugsjónum ykkar eins og ormur á gulli. Reynist þeim trúi rog tryggir, þangað til þær eru fæddar og í heiminn bornar og orðnar að því listaverki, sem aldrei fyrnist, orðnar — að lýsí- gulli kynslóðanna! pér ungu menn, eða ungi mað- ur — eg hugsa helst að hann sé ekki nema einn eða þá sárafáir, því margir eru kallaðir en fáir útvaldir —, þér sem finnið hjá ykkur köl.lun til að verða skáld, spekimenn og spámenn hins nýja tíma — þér sem viljið vera boð- berar guðs á jörðu — fyllst hei- lagri vandvirkni og vandlætingu yfir — sjálfum yður! Flýtið yður ekki að láta prenta óburði yðar i b'Iöðum og tímaritum eða að færa í letur bláreykinn úr yðar eigin sál- úr því verður vísast tóm hveragufa en enginn skáldskap- ur. En bíðið þess að, þungi yð- ar verði svo mikill að þér fáið hann ekki afborið; bíðið þess að þér fy.llist heilagri hrifningu og fæðið listaverkið fuL’burða og fullþroska úr sál yðar. Hræðist ekki þó fæðingarhríðarnar verði langar og strangar; en 'Iátið yður að eins um það' hugað, að það verði fagurt og göfugt, sem þér gefið heiminum. Því að listin á að réttu lagi að lyfta lífinu, fegra það og göfga. Hún á að vera einskonar opin- berun. helgra dóma. Því megum vér ekki fara um hana gjálífum höndum eða glæpsamlegum- Og enn eitt: —- Munið það, að aðeins hin æðsta og bezta heldur velli. Hitt alt steypist fyr eða síðar fyrir ætternisstapann, dett- ur i gleymsku og dá. petta er lögmál lífsins. Því að lífið sjálft og tilveran er síbrennandi hreins- unareldur, sem eyðir öllu hisminu, öllu því, sem ilt er og einkisvirði, bræðið sorann úr si.lfrinu og gullinu, skírir það, göfgar það og fegrar. Og komafidi kyn- slóðir nema það eitt úr arfleifð feðra sinna, er þeim þykir verð- mæt eign og fágæt. Því segi eg: — Gætið þess, þér skáld, spekimenn og spámenn hins nýja tíma, að gefa heiminum að eins það bezta, er þér getið honum í té látið. Það eitt hefir ijokkra von um að 'lifa. Og það mun lifa! En það ber vel að vanda, sem lengi a að standa. Og því skul- uð þér gefa yður góðar stundir til iðna. Yðar skál! A. H. B. Hvað er farsæld? Fyrir nokkru síðan lofaðist eg ti,l þess að reyna með fáum orðum að sýna, að andleg og jafnvel eilíf velferð manns væri undir tímanlegri, efnalegri velferð komin. — Hvað er velferð eða farsæld ? — Gömul íslenzk vísa hljóðar svo: “Auminginn sem ekkert á einatt kinn má væta, sæll er sá, sem sjálfur má sína nauðsyn bæta.” Já, sæll er sá, sem hefir svo mikið af efnum, að hann getur fætt sig og klætt- Alt svo þarf hann þá að vera ríkur. Nei, auður veitir ekki farsæld, þvert á móti. — peir eru virkilega ekki farsælir miljónamæringarnir, ef þeir væru farsælir, væru þeir ró- legir; en nú eru þeir ákaflega ó- ró'legir, mitt í auð og allsnægtum, ófarsælir, óumræðilega ófarsælir, — á hverju sést það? TLl hvers er allur þessi herútbúnaður — alt af er barist, já, einlægt berast einhverjar þjóðir á banaspjótuvn. Alt af er verið að búast til varn- ar, já “til varnar” segja “víga- mennirnir. Hverjir þurfa að verjast og hvað þurfa þeir að verja? Það mun vera ofsagt gavnla máltækið — “Illur á jafn- an ills von.” En þessi órói, þessi hræðsla hjá hinum svo- kölluðu miklu mönnum er bein- línis vottur, órækur vottur um sálarástand, sálarvolæði og sam- vizkubit. Það er voðalegt á- stand að vit.a upp á sig skömm. pað er því ekki farsældarvegur að vera sér þess meðvitandi að hafa dregið undir sig efni einstakl- ingja, heill aþjóða, eða jafnvel heilla kynslóða- “Gef mér hvorki fátækt né auð- æfi, gef snér mitt afskamtaða upp- eldi.” Það er rétti mátinn. Auðurinn, sem safnast í fárra hendur verkar tvöfalda eyðilegg- ing. — Þeir sem auðnum ná gerast miskunarlausir okurkarlar, en hin- ir sem öreigar gjörast vegna ok- ursins já, allur sá aragrúi, verð- ur undirokaður. Ritningin segir: “óttist ekki þá, sem lík- amann deyða, en geta ekki líflát- ið sá’lina”. Bendir það til þes3, að það þjóðfélags skipuJag, sem að vísu viðheldur líkamanmn að parti en þó í þrældómi og áþján, og kúgun, sé og beri mönnum að óttast. Og eitt er alveg vist, að þeir fáu, sem á háhest þjóð- anna komast og með óumræðileg- um brögðum og yfirgangi sölsa auð landanna undir sig, bera ekki neitt meiri ábyrgð á breytni sinni en allur fjöldinn, sem sef- ur á kodda andvaraleysis, á- hyggju og aðgerðalaust lætur flá sig, 'lætur binda sig og blinda, lætur koma sér til að trúa því að alt þetta sé guðs ráðstöfun, sam- kvæmt hans vilja, hann sendi fátækt, kúgun og stríð til þess að reyna þá, sem hann elski. pessi villukenning hefir komið mörgum kúgara að góðu haldi- En það er langt fjarri því, að þetta sé svona í raun og veru. Guði er ekki þægð í að nokkur láti kúga sig svo að sál og líkami þjáist. Friðurinn er ekki svo kær eða þetta líf svo dýrmætt að vnaður i’áti ‘ieggja á sig járn og hneppa sig í æfilanga áþján, til þess að hafa frið og halda Wfi. Hrein og óflekkuð gusðdýrkun fyrir guði og mönnum er að vitja munaðarlausra og ekkna i þeirra vþrengingum og varðveita sjálfan sig flekklausan frá heim- inum. — Það er alls ekki nóg, að þú sjálf gerir gott og ekki nokkr- um neitt mein eða nokkuð rangt, nei, þú verður líka að hafa vak- andi auga á bróður þínum, að hann ekki gleyvni sér (í ve'lgengn- inni máske) og gerist yfirgangs- samur og um of eigingjarn og g’eymi því, sem þó alls ekki má gleymast, — “að auðna þín er allra heill, og sín og mín.” petta er sönn farsæld — efna- leg, tímanleg, andleg og eilíf far- sæld og þetta er óaðski'ijanlegt frá þessu andstyggilega skrímsli, sem kallast pólitík — það er að segja, menn sem eigin hagsmuna vegna vildu gera stjórn lands- ins að séreign sinni, koma fá- j fróðum almenningi Itil að trúa því að pólitík sé einhver óhrein í svívírðing og sem hreinlátar j kristilega hugsandi manneskjur ættu hreint ekki að eiga neitt við. j Til hvers er kristna fólkið, el I ekki einmitt til þess að hreinsa burtu óþverrann úr-stjórnarfari landanna. — Heldur fólkið að það hvíli engin ábyrgð á því — ætli | guð segi ekki við það einhvern- tívna: “Það sem þér gerðuð einum j af þessum”- pá þegar þér voruð | í Minnesota viíduð þér ekki kynnaj yður ástæður, orsakir og afleið- ingar, vilduð ekk.i grenslast eftir j sannleikanum, hlustuðu alt af á! sömu falskennendurnar, eltuð alt af sömu mýrar'ljósin. Sáuð eymdina aukast, ánauð og kúgun fara dagvaxandi. “Miskunsemi þóknast mér en ekki fórnir,” segir drottinn. “Verið fullkomnir eins og faðir yðar á himnum.” Þetta snertir ekki eina eða einn, nei, þú getur ekki komist langt einn á nokkurri braut, en allra sízt á fullkomnunar brautinni; þú verður að greiða þína leið með því að hjálpa öðrum, og ein- mitt það er að finna vernd, þá, 1 sem guð gaf mönnunum gegn sjálfu'm þeim. Eigingirni ber einstaling oft ofurliði en ekkert má við margnum. Fjöldinn á að hafa vakandi gætur á öllum sínum embættismönnum, þeir eru þjónar en ekki húsbændur, og þannig koina í veg fyrir að era- bættismenn verði eigingjöi-num yfirgangsseggjum að bráð. peg- ar fó'lkið fer að vaka þannig yf- ir velferð sinni og annara — fer að efla sína og annara sáluhjálp, með svoleiðis ótta og andvara — þá og ekki fyr vitum við hvað farsæld er- Minnesota kona. brigðum frá norðlægum í héruðum í Noregi, Svíþjóð og Skotlandi. Vorið hefir verið fremur hlýtt, grösin standa prýðilega, og verður fröðlegt að sjá í haust, þegar upp verður tekið. Nýlega er látin að Fremstafelli Rannveig Jónsdóttir móðir Jón- asar Jónssonar alþingismanns, og þeirra systkina. Maður hennar, Jón Kristjánsson, er látinn fyrir nokkrum árum. Voru þau hjón til heimilis hjá Kristjáni syni sín- um, eftir að þau brugðu búi,- Rannveig var góð kona og gáfuð. Jón Kristjánsson ilæknir á Sauðárkróki fór til Ameríku s. 1. ár- Þar kyntist hann sumum fræg- ustu sjúkrahúsu'm og fremstu snillingum í læknavísindum, Jón- as er einn af fremstu skurðlækn- um landsins cg hefir ábatast mjög í þessari ferð . Einkum hefir hon- um glöggvast sýn yfir megin- grundvöll amerískra læknavís- inda, en það er að byrgja brunn- inn, áður en barnið dettur ofan í, eða að vernda heilsuna, fremur en lækna sjú'kdóma. Nýlega hélt hann fyrirlestra á Sauðár- króki og á Hóluvn ■' Hjaltadal, sem hann nefndi: “Lifnaðarhættir og heilsufar.” Var það mjög skörp ádeila á mataræði íslendinga, sem hann telur orsaka hnignandi heilsufar. Má þar tíl telja ó- hóflegt sykurát og kaffi, tóbaks og vínneyslu. Einkum eru fyrir- lestrar Jónasar og kenningar fróðlegar og lærdómsríkar um “sólarefnin” eða bætiefnín, sem um hefir verið kent í nýjustu og furðulegustu vísindagreinum. Eins og getið hefir verið um áður, brunnu s- 1. vetur tóvélar þær, sem lengi hafa verið start- ræktar á HalldórsstöðuVn í Laxár- dal í Þingeyjarsýslu. Vélar þess- ar voru orðnar yfir 40 ára gaml- ar og var þó þess von, að þær gætu enst enn um skeið. pær voru smáar mjög og hentugar fyr- ir heimilisiðnaðinn. Nú hafa Þing- eyingar mikinn hug á að koma aft- ur á fót tóvélum í sýslunni, en ágreiningur hefir orðið um þrent: Hversu stórt verkstæði skuli reist Og -hvort það skuli vera rek- ið í samvinnu eða hlutafélags- grundvelli. í utanför sinni hef- ir Hallgrímur Þorbergsson bóndi á Halldórsstöðuin útvegað ti.lboð um kaup á notuðum eða góðum vélum fyrir lágt verð og var í gær á fundi á Breiðumyri ákveðið að taka tilboðinu, þó með skilyrðum, svo óvíst er að saman gangi. Magnús kaupmaður Sigurðsson á Grund var 76 ára gamall 2. þ.m. (júlíj. Gaf hann þann dag 20,000 kr. í sjóð, er verja skal til styrktar sjúklingum á Heilsuhæli Norður- lands, eftir að það er uppkomið, á meðan liggja peningarnir á vöxt- um í banka. Til þess að semja skipulagsskrá sjóðsins valdi gef- andinn þá séra Geir Sæmundsson, Ragnar Ólafsson konsúl og Stein- grím Jónsson bæjarfógeta. Ber sjóðurinn nafnið Minningarsjóður Magnúsar Sigurðssonar. Rausn og myndarskapur Magnúsar á Grund er fyrir löngu orðinn þjóðkunmir og hér sýnir höfðingslund hans sig í göfugmensku, sem verðskuldar almeht þakklæti.—íslendingur. Frá Islandi. 1 gróðrarstöðinni er nú verið að gera tilraunir með 14 afbrigði af gulrófum og 20 afbrigði af kart- öflum. Hafa verið fengnar út- s.æðiskartöflur af harðgerðustu af- Gat ekki soíið. En nú er öll ógleðin horfin líkamskerfið komið í beta lag: Sá sem þetta skrifar fær aldrei nógsamlega þakkað meðalinu er veitti honum heilsuna- Mr. John WoodWard, P. T. O., Lucan, Ont. skrifar: “pað veldur mér ánæsju að mæla með Dr. Chase’s meðul- unum, einkum þó Nerve Food- Eg þjáðist af neuritis árum saman og ekkert sýndist gera mér gott. Loks var tauga- kerfið svo komið, að mér kom tæpast blundur á brá, nótt eft- ir nótt; verkirnir ásóttu lík- maa minn, frá toppi til táar. Eg hafði svo að segja gefið upp alla von, er eg komst í kynni fór að nota það meðal. Eftir að hafa notað tuttugu öskjur, var eg orðinn heill heilsu. Eg hefi einnig ávalt við hendina Dr. Chase’s Kidney-Liver Pills, 0g síðastliðið ár, hefi eg aldrei kent mér nokkurs meins ” Dr. Chase’s Nerve Food, 50 cent askjan, hjá öllum lyfsöl-- um, eða Edmanson Bates og Co., Limited, Toronto.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.