Lögberg - 22.05.1924, Blaðsíða 4

Lögberg - 22.05.1924, Blaðsíða 4
 Bls. 4 A LC--ÍBERG, FEVITUDAGINN 22. MAÍ. 1924. rmr t lCogbcrg Gefið út Kvern Fimtudag af Thc Col- umbia Pres$, Ltd., tCor. Sargent Ave. & Toronto Str.. Winnipeg, Man. TalHÍninri N-6327 N-6328 JÓN J. BILDFELL, Editor Utanáokríft til blaðsin*: rnt C0lUMR!t\ PftíSS, Ltd., Box3l7í, Winnlpeg, M.ail. U tanAskríft ritstjórano: fDiTOR 10CBERC, Box 3172 Winnipeg, Man. The "Lögberg” ls printed and published by The Columbia Press, Limited. in the Columbia Building, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba. Konungs gersemi. Hún er reglulegt konungs gersemi ritstjórnar- greinin í síSustu Heimskringlu um fjárhagsástandiÖ Manitoba, sem lengi mun lifa í minnum þeirra manna, sem nú eru uppi og hjá eftirkomendum þeirra að þeim látnum—lifa sem hámark blekiönaÖar þeirrar sann- leikselskandi sálar, þess bjarta ljóss, sem Vestur- íslendingum skein viö aðkomu hins nýja og fjölfróöa ritstjóra Heimskringlu. Eins og sann-mentuöum, lítillátum, hógværum og auðmjúkum þjóni sannleikans samir, er hann aö leiöa hina villuráfandi landa sína á eyöimörkum Ameriku í allan sannleikann, að því er fjármál Mani- tobafylkis snertir og Canada-ríkis, og yfir þeirri gæfu fagna náttúrlega allir góÖir menn. En í þeirri gleði hlýtur þaÖ aÖ vekja meira en litla hugarraun aö sjá, aÖ sjón hans hefir ekki farið minstu ‘vitund fram síðan hann /eit grein sína um það sama efni og í það sama virðulega blað 30. apríl síðastl, — hefir meira að segja farið aftur, því nú sér hann ekkert með sín- um eigin augum, heldur í gegn um hornspanga- gleraugu annara, og vill aö allir beygi sig í lotningu fyrir skrifum þeirra, sem hann hefir lagt blessun síns upplýsta anda yfir. . Jæja, látum oss þá stuttlega athuga staðhæfing- ar þessara manna, og endurtekningar ritstjórans bqjdærða að Heimskringlu. Það er þá fyrst, að reikningar Manitobafylkis og Canadaríkisins eru með öllu aöskildir. Manito- bafylki hefir sína fjármálalöggjöf út af fyrir sig, og þegar herra ritstjórinn, eða félagar hans tala um skatta Manitobafylkis, þá er, samkvæmt vorum ó- . lærða hugsunarhætti og hversdagslegu venjum, átt við skatta þá, sem stjórn fylkisins, eða réttara sagt löggjafarþing fylkisins, leggur á fvlkisbúa. Sama er að segjá, jiegar rætt er um skattalöggjöf ríkisins og rikisþingið, og eru þau skattakerfi aðskilin með öllu. í grein sinni um fjárhagsástandið í Manitoba, sem lærði ritstjórinn litilláti og hógværi, reit "1 blað sitt 30. april s.h, er. eingöngu og aö eins að tala uni fjárhagsástandið í því fylki, um fylkisskuldina, un: kornuppskeruna i Manitoba, og að hún hefði hrokk- ið til þess að greiða helminginn af sköttunum, sem hefðu verið $52,225,000. Vér verðum að játa, <.ð vér vorum svo fávíslega einfaldir að halda, að rit- stjórinn ætti hér við fylkisskattana, eða skatta þá, sem fylkisbúar greiddu til fylkisþarfa árið 1923, og oss til afsökunar í því máli er páð, að hvorki hann né heldur nokkur annar lærður eða ólærður, lifandi eða dauður maður, minnist með einu einasta orði a, að um ríkisskatt væri að ræða i þeirri grein. I grein sinni nr. 2 furðar ritstjórinn sig samt mjög á þvi, að vér skulum rangfæra orð sín og hugsanir svo mjög, að nefna þetta fvlkisskatta. og brosir undur ánægjulegu brosi’ yfir þeirri spumingu vorri, að “hvað átt sé við með uppliæð þeirri, er í skatta framtalningu hans felst, umfram fylkisskatt- ana og nemttr $30,968,753.91, og spyr svh með mesta spekingssvip: “Já, hvað dettur herra aðal- ritstjóranum helzt í hug, að hr. TJope meini með “provincial” og “federal taxes”? ITvernig áttum vér að fara að vita, hvað hi4: Hope meinti, þegar ekki var með einu einasta orði minst á, í grein þeirri, sem hér er un? að ræða, hvað hann hefði sagt, eða hvort hann hefði sagt nokkuð ? Og satt að segja sjáum vér ekki enn, hvað hann hefir meint með því, að birta þessa áminstu grein, eftir að vera búnir að sjá hrafl af henni í Hkr nema ef vera skyldi til þess, að reyna að ögra stjórninni í Ottawa, svo hún hætti við áform sitt með niðurfærslu á ríkissköttum, sem þó hvorki blað þetta, sem ritstjóri Hkr. minnist á, né heldur önnur afturhaldsblöð austurlandsins hafa get- að, eins og kunnugt er. Af orðum Hopes sjálfs er það ljóst, að hann hefir ekki gjört sér neina sérlega rellu út af því, þó grundvöllur sá, er hann hygði þessar staðhæfingar sinar á, væri ekki sem allra ábyggilegastur. Til dæm- is segist hann byggja staðhæfingar sínar um korp- uppskeru í Manitoba fyrir árið 1923 á fjármálaræðu Fieldings. En nú hefir hr. Hope hlotið að vita, að þar var um að ræða iiætlun að eins, því Fielding flutti ræðu síua í apríl 1923, áður en uppskera sú. sem hér er um að ræða, var komin í jöröina og g?.t því varla verið ábyggileg sönnunargögn fyrir hr. Hope, né heldur neinn annan þá, og hún er það held- ur ekki enn, og ef hr. Hope, eða hr. Halldórs, hefði verið ant um að það sanna hefði komið fram í þessu sambandi, þá hefðu báðir mennirnir bygt staðhæf- ingar sinar á skýrslum hlutaðeigandi stjórna, því það var þeim báðum innan handar. Þá er að minnast á skattatölur1 jjieirra stallbræðranna, Hope og fHall- dórs. Hope segir, að skattur sá, er Manitobabúar greiddu til Dominion stjórnarinnar árið .1923, hafi numið $25,500,000. Sú staðhæfing er heldur ekki bveð á opinberum skýrsluni, þó þær að sjálfsögðu hafi þá verið fáanlegar, og verðum vér því að biðja ritstjóra Hkr. að skýra, hvaða skattar það séu, sem Manitobabúar hafi borgað til ríkisþarfa það ár og nema þessari feikilegu upphæð. Oss er að vísu ljóst, að þeir borguðu á milli fjögur og fimm miljónir doll- ara í tekjuskatt það ár, en ekki um hina upphæðina— aðal-upphæðina, um tuttugu og eina miljón. Fylkisskattinn telur hr. Hope og Halldórs að vera $7,500,000. En því ekki $10,616,567.32, eins og útgjöld fylkisstjórnarinnar námu það ár? Hvem- ig fór fylkisstjórnin í Manitoba að ná í mismuninn? Sannleikurinn er sá, að þetta er alt saman slumpa- reikningur út í bláinn hjá herrunum báðum, til þess eins færður í letur, að sýna að bændastjórnin í Mani- toba og frjálslynda stjórnin í Canada séu að sökkva landinu í óbotnandi skuldir, og ekki að eins það, heldur að þær séu að gjöra Manitobafylki gjald- þrota og ríkisskuldina óbærilega. Hope segir þetta meira að segja sjálfur, því hann kemst svo að orði: “The situation is impossible for the financially em- barrased taxpayers”. Er það svo sem ekki auðvitað, að efnalegt ástand þess manns, fylkis, eða rikis, sem er í slíkum kröggum og þeir Hope og Halldórs segja að Manitoba fylkishúar séu í, er émögulegt—þegar svo er komið, að tekjur þeirra eru að eins $26.800,- 000, en skattkvaðirnar $52,225,000, auk allra annara útgjalda? En það er einmitt það, sem báðir þessir menn vilja vera láta. Þegar vér bentum á, að ef ritstjóri Hkr. vildi telja fram þessa feikilegu skatta upphæð, þá yrði hann líka að telja fram allar tekjur manna, til þess að mæta þeim, þá fórnar hann upp höndunum og segir: ,‘Sussu, sussu, nei,” eg tala ekki um neitt nema korn, og ekkert annað kemur málinu við. Ekki vit- um vér, hvort þetta er af partísku eða einhverjum öðrum hvötum, en eitt er vist, að það er alveg ný fínansfræði, þegar um' útgjaldalið er að ræða, að þá skuli ekki mega benda á tekjulindirnar jafn- framt. Ritstjóri Hkr. hefir tekið sér fyrir hendur að sverta land þetta, er nú fæðir hann, sem mest hann má, og til þess að geta gert það á sem áhrifamestan hátt, þá hefir hann tekið upp það ráð, að mikla erf- iðleika þess sem mest, en stela undan því, sem því er til málsbóta, setja svo upp spekingssvip og segjí: “Svona á það að vera, af því að eg segi það.” Hvers vegna að maðurinn gjörir þetta, er oss ekki ljóst, en eitt er þð víst, að hann gjörir það ekki þessu landi til lofs, eða þeim, sem það byggja, til gagns. Þá minnist ritstjóri Heimskringlu á skttld Manitobafylkis, og gefur í skyn, að vér höfum farið með fals, þar sem vér í síðasta svari voru til hans tókum fram að hún, samkv. fylkisreikningunum síð- ustu, væri $67,914,094.56, og að sá hluti' hennar, sem væri óarðberandi næmi $27,622,898.02. Og til þess að sýna, að sú lúalega aðdróttun ritsjórans sé stað- leysa ein, prentum vér upp part þann úr fylkisreikn- ' ingunum, sem um þetta atriði fjallar, og hljóðar svo: 2? ci & <v V u tí *C "ö ’rt 3 O Q ® "2 > D 8« S ó'S? 00 K. CN 00 U ‘8’ co q 01 co th m 00 K. OI rn VC .C/5 w >—t H-H S < HH h4 h4 < t—i Dh < V ci j-i C o £ b.0 c ’u d v & oi O Q fO vq vq rn 00 00 o Tj- ro 70 C o CQ cn- c V r- c c l— <L> > o On 01 2 >, £ -o V <2> <U P H - u O to ^ Ph & S S c -.H tn 2 c ^ r\ ^ oi O i Ot 01 vq ot 01 rO N ro % rn Vér látum svo lesendurna skera úr því, hvort meira muni að marka dylgjur Heimskringlu ritstjór- ans eða staðfestan reikning fjármálaráðherra fylkis- ins. Þeir. herrar, O’Leary og Halldórs, tala um ríkis- skuld Canada í þessari einkennilegu áminstu grein sinni í Hkr., og segja, að hún nemi $2,400,000,000, sem er, eins og flest annað í þeirri makalausu grein, ósatt. Því 31. des. 1923 nam hún $2,940,099,008.35. En til þess að mæta henní hafði stjórnin þá í vörzlum sínum það sem hér segir: í viðlagasjóðum..................$ 34,924,859.55 í arðberandi innstæðum .. .. 625,704,296.88 Útistandandi hjá fylkisstjórnum 2,296,327.09 Peninga í bönkum o. fl.......... 462,744,175.91 Samtals.............$1,125,669,660.24 S4m gerir ríkisskuldina, umfram tryggingarfé það, serri stjórnin á yfir að ráða, $1,814,429,348.11, eða sem næst $201.60 á hvern einstakling í landinu. Og segj- um, að sá partur fylkisskuldarinnar í Manitoba, sem er óarðberandi, nemi um $45.00 á nef hvert, þá end- urtökum vér það, að vér sjáum enga verulega hættu á 'ferðum i landi, þar sem eins mikið er af náttúru- auðlegð og verzlunarmagni og á sér stað í Canada, og því engin ástæða fyrir ritstjóra Heimskringlu, né held- ur neinn annan, að vera að úthrópa það fyrir örbirgð og erfiðleika, og því ófyrirgefanlegra að vera að villa mönnum sjónar með staðlausu slúðri til þess að geta náð þvi lúalega takmarki. Um þekkingu ritstjóra Lögbergs á afkomu og hugsunarhætti vestur-íslenzkra bænda, vill hann ekki rita langt mál eða dæma, en hann þekkir þá nógu mikið til þess að segja, að lýsing ritstjpra Heimskringlu á bændalýð Manitoba, þegar hann segir, að þeir hangi á horriminni og séu að flýja land til þess að verða ekki ölmusumenn, á ekki við þá, og mjög erum vér veik- trúaðir á þá staðhæfingu ritstjórans í síðasta blaði sínu, að nokkurn veginn allir íslenzkir bændur, sem hann hafi talað við í nærfelt ár, hafi staðfest þann sleggjudóm hans. Máske að hann vildi vera svo góður, að opinbera nöfn nokkurra þeirra? — Að vísu skal það játað, að hægt muni vera að finna íslenzka bændur, sem óánægðir eru með kjör sín nú, og kannske æfinlega—því það eru sumir menn, sem alt af eru ó- ánægðir, — menn, sem voru mishepnaðir í sínu heima- landi' og eru mishepnaðir hér og halda áfram að vera það, þar til lífið er á enda, eins og Dufferin lávarður sagði—nokkurs konar rekald á sjó mannlífsins. En sem betur fer, gætir þeirra lítið a meðal vestur-ísl. bænda, enn sem komið er. Vér höfum þá lítillega drepið á flest þau atriði i grein starfsbróður vors að Heimskringlu, sem vér teljum nokkru máli skifta. Um hvefsnina í vorn garð, sem mikið ber á í þessari áminstu grein, hirðum vér ekki, því höfundurinn er auðsjáanlega með þeim ó- sköpum fæddur og hefir ánægju af a.ð láta lærdóms- vind sinn blása. En óneitanlega væri það ánægjulegra fyrir hann og alla aðra, ef hann vildi reyna að talaeum málefni þau, sem hann ræðir, með ofurlitlu viti, í stað þess að vera að apast upp á aðra með slíkurn'remb- ingi. . -------o------ Sorbonne háskólinn. Vinur vor, ritstjóri Heimskringlu, finnur ástæðu í síðasta blaði sínu að fetta fingur út í umsögn vora um Sorbonne stofnunina eða Sorbonne háskólann í Par- ísarborg, og gefur i skyn, að réttara sé að nefna hann sjálfan Parísar háskólann, eins og aðrir. Vér erum náttúrlega þakklátir fyri’r allar leið- réttingar, sem af góðum huga eru gerðar. En í þessu tilfelli erum vér, því miður ekki vissir um, að leið- réttingin sé búningsbót á staðhæfing vorri. Sorbonne skólinn er gömul stofnun og ber nafn sitt af manni þeim, sem lét byggja hann árið 1252, Robert de Sorbon, sem var mjög mikilhæfur prest- ur. SkóH þessi fékk brátt orð á sig, því til hans völd- ust helztu úrvals námsmenn, sem höfðu ákvarðað sig til þess að helga líf sitt kristindómsboðskapnum án endurgjalds. Kensla öll í skólanum var ókeypis, því kennararnir, sem voru sjö að tölu, kendu éndurgjalds- laust. Þannig hélt þessi stofnun áfram ár fram af ári og öld fram af öld-. Mjög kemur þessi skóli við sögu Frakka og jafnvel fleiri þjóða, á öllum sviðum, en þó einkanlega hvað trúfræðina snertír, því þar var svo mikið mannval, að kirkju- og þjóðhöfðingjar leituðu þar úrlausnar á vandaspursmálum sínum. Og fram eftir öldum var Sorbonne skólinn einn af allra helstu guðfræðiskólum Norðurálfunnar. Árið 1852, eða rétt eftir miðja nítjándu öld, var hin forna stofnun afhent Parísarborgarbúum gefins. Var þá gamla byggingin rifin, en ný bygging og glæsileg reist aftur á^ama stað, og er það hin al- þekta Sorbonne stofnun, sem er ein af mörgum byggingum, sem mynda Parísar-háskólann. , Aðrar byggingar nafnkunnar, sem tilheyra þeim háskóla, eru College de Pari's, Scotch College, lækna og lög- fræða skólar, mjög glæsilegar byggingar, o. fl. í Sorbonne byggingunni er aðal bókasafn há- skólans og í henni eru kendar þrjár námsgreinir: bókmentir, vísindi og guðfræði. Sorbonne skólinn er bygging út af fyrir sig—ein af mörgum, sem mynda háskóla Parísarborgar. -------o------ 1 kyrð og nœði. Fyri’r nokkrum dögum sátum vér í horni á her- bergi einu í húsi, þar sem fróðir íslendingar voru að tala um landsins gagn og nauðsynjar, og hlustuð- um á mál manna oss til uppbyggingar og ánægju. f herberginu eða salnum var mannval mikiö. Stórir menn og litlir menn, gáfaðir menn og lærðir menn, ‘og snerist samtalið einkum um íslenzku blöð- in, Lögberg og Heimskringlu, og bar margt á góma. En einkanlega hneigðist það þó að hinni nýju upp- götvun Dr. Oharles Henry, um þessar frumagnir, eða loftagnir, sem Lögberg kallaði, en sem Heims- kringla var að gera gys áð, og nefndi “frumeindir,” eins og hann Dr. Ágúst Bjamason. Og fór sam- ræðan aðallega fram á milli tveggja manna. Var annar þeirra hár, hvatlegur og grannur, hinn stuttur. digur og mjög íbygginn. “Hún er merkileg, þessi uppgötvun hans Dr. Henry í París, um hagnýting loftagnanna til orku- afls,” sagði hái maðurinn granni. “Þú meinar frumeindirnar”, tók litli íbyggni maðurinn fram í. “Er það þá vitleysa, að kalla þetta loftagnir?” spurði sá hái og granni. “Já, vitaskuld,” mælti hinn. “Það er þó ekki vitlaust, að kalla það agnir, ef loftinu er slept,” mælti hi’nn. “Það gera engir lærðir menn,” mælti sá íbyggni, “þeir kalla það bara frumeindir, segi eg, og eg veit hvað eg er að segja.” “En hvernig veiztu, að þetta séu frumeindir, þar sem menn þykjast nú vera búnir að finna lífræn- ar agni'r (”‘Electrons”J, sem eru enn smærri heldur en þessar loftagnir, eg meina þetta, sem þú kallar frumeindir en enskurinn “atoms”? sagði sá grann- vaxni. “Það kemur málinu ekkert við. Þegar eg segi eitthvað, þá er það svo, og það ættuð þið græningj- arir ykkar, að vita, og eg segi, að það hefir aldrei' fyr i manna minnum átt sér stað, að atoms væru kall- aðar loftagpir á íslenzku, og það er nóg.” “Eru þessar agnir þá ekki í loftinu?” spurði sá grannvaxni. “Jú, vitaskuld eru þær þar,” mælti sá digri. “Þær eru líka í borðinu þarna fyrir framan þig, í stólnum, sem þú situr á, og í þér og mér.” “Hvort heldur þú þá, að það séu agnirnar í loft- inu, eða i þér, sem þessi Dr. Henry ætlar að láta þessa vél sína sundra. Hugsið ykkur bara þá ægi- legu ógæfu og það óbætanleea tjón fyrir menn og málefni, 'ef helvitfs vélin skyldi nú sundra þér-*-” mælti sá gránnvaxni. Þegar hér var komið sögunni', leizt oss ekki á blikuna og höfðum oss í burtu og kunnutn ekki að segja þessa samræðu frekar. Ritari þjóðræknisfélags IsL í Vesturheimi. Kæri vin! lEf til vill ihefir Iþú heyrt þess getið, að nokkrir menn, sem díval- ið Ihöfðu vestan hafs, lengri eða skemri tíma, tóku isig til .síðastl. vetur og stofnuðu félag, er nefnt var “Félag Vestur-íslendinga”. Var talið sennilegt að þessir menn Ihefðu eitt og annað sameig- inlegt í fórum .sínum og að bæoi gæti gagn og gaman ihlotist af, að þeir héldu uppi félagsskap með sér. Annað, se’m vakti fyrir mönn- um með stofnun félagsins, var að því mætti auðnast að stuðla ofur lítið að auknum .skilningi og bróð- urþeli með Austur- og Vestur-ís- lendingum. Nefnd var kosin til að athuga hvort ekki væri unt fyrir félagið að gera eitthvað í þessa átt. Er eg einn nefndarmanna og kom okkur saman um að eg skrif. aði þér og leitaði áliits og fullting- is yklkar, er skipið stjórn pjóð- ræknisfélagsins. Einkuín datt okk- ur í ihug að við kynnum að geta greitt eittvað fyrir mannaskift- um með löndum vestra og hér. Hefir verið ritað um það mál 1 ársrit ykkar, eins 0g kunnugt er. þ lb,ráðina langar okkur til að grenslast eftir áliti ykkar um þetta: 1. Eru líikindi til að nokkrir séu vestra, er vildu leita hingað til norrænunáms við iháskólann, eða til einhvers annars, 2. Er ylckur kunnugt um nokkurn eða nokkra slíka menn? 3. Ef isvo væri, gætu þá menn þessir iboðið upp á ókeypis dvalar- stað vest»ra —lengri eða skemr! tíma— gegn þvf að hljóta sjálfir sömu kjör hér heima? Okkur þykir efalaust að hér séu menn, sem vildu sæta slíkum skift- um, ef kostur væri á. Hitt vitum við ekki hvort vestra eru menn, er . vildu sæta þeim. 16 apr. ’24. Ingólfsstræti 22. Þ Reykjavík. 1 Jakob Kristinsson. Vorprófin. Scholarships— Science—Third Year; Samson, Edw. Walter, $100. Engineering—Fi'rst Year: Ingimundsson, Carl, $100. Agriculture—Fourth Year : Anderson, H. S„ $50. Medicine— 1 Fifth Year: Thorlakson, Harold F„ iB. Second Pre-Medical: Stephenson, Earl, iB. Thorleifsson, W. E„ 'II. First Pre-Med.: Peterson, Frank, iB. Sigurdson, Ólöf, iB. Arts— Fourth Year: Kristjánsson, Wilhelm, II. Third Year: Bildfell, Hrefna, II. Bildfell, Jón, iB. Peturson, Thordvaldur, iA. Sigurdson, Stefania. Sigurdson, Valgerður, Stephenson, Harald Jón, iA. Second Year: Bildfell John A, iB. Carson, Ohristian, iB. Einarson, Einar, iB. Johnson, Bergthora, II. Melsted, Gordon, iB. First Year: Björnsson, Heiðmar, iB. Jóhannsson, Thelma, II. Jóhannson, Josephine, II. Peturson, Margret, iB. Sigurdson, Sigurjón, II. Thorleifsson, Jóhann, II. Science— Third Year: Samson, E. W„ iA. Second Year: Johnson, Helgi, iB. First Year Science and Medjc., Comb. Course: Lindal, Jön, II. Marteinsson. B.T.H., II. Lazv— Second Year: Thorvaldson, G. S. ,iB. First Year: Johnson, J. R„ iB. Engineering— Fourth Year (’Civilj : Long, G. F„ iB. Sigurjónsson, Jón, iB. Fourth Year (Electrical) : Samson, J. J„ iB. Third Year fElec.J : Eggertsson, G„ iB. First year ?Elect.J : Ingimundsson, C„ iA. Samson, S„ II. Pre-Engineering— Borgford, Thorstein, iB. Mebfed. Thor„ II. Peturson, F„ iB. Pharmacy— Second Year: Hendrickson, V. J. II Agriculture— Fifth Year: Olson, Björn, iA. Fourth Year: Anderson, H. S„ 1B. Second Year: Bergsteinsson, Eeifur, iB. Thorvaldson, Thorv.. SPARAÐ FÉ SAFNAR FÉ Ef þér ltafið ekki þegar Sparisjóðsreikntng, þá getið þér ekki breytt hyggllegar, en að lcggja peninga yðar inn á eittlivert af vor- um næstu fjtibúum. par bíða þeir yðar, þegar rétti tíminn kemur til að nota þá yður til sem mests liagnaðar. Union Bank of Canada hefir starfað í 58 ár og hefir á þeim tima Jtomiíf upp 345 útibúum frá strönd til strandar. Vér bjóðum yður Hpra og ábyggilega afgreiðslu, hvort sem þér gerið mikil eða lítil viðskifti. Vér bjóðum yður að heimsækja vort næsta í’tibú, ráðsmaðurinn og starfsmenn lians, munu finna sér ljúft og skylt að leiðbeina yður. CTIIÍÚ VOR EKU A Sargent Ave. og Slierbrooke Osborne og Corydon Ave. Portage Ave. og Arlington Logan Ave og Sherbrooke 401 Portago Ave. og 9 önnur útibú í IVinnipeg Aí) ALSKRIFSTOFA: UNION BANK OF CANADA MAIN and WILLIAM — — WINNIPEG SUMAR XCURSIONS Mai 15. til Sept. 30. Golt <il aflnrkomu til 31. Okl: AUOTOR GANAOA VESTUR AD KYRRAHAFI Páa daga í Jasper National Park—Canadian Rockies Vér seljum farbréf til allra staða í heimi. Alla Leið Með Brautum og Vötnum Ef þér lrafiÖ vini í Evrópu, sem þér vilduð hjálpa til að komast hingaÖ, þá komiÖ að sjá okkur. TOURIST and TRAVEL BUREAU N.W. Cor. Maln and Portage 667 Maln Street PhoneA 5891 Phone A 6861 Margar Brautir Or að Velja Velja Með Canadian National og Öðrum Brautum Bccði á Sjó og Landi. "

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.