Lögberg - 29.05.1924, Blaðsíða 8
BIs. 8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 29. MAÍ. 1924.
Or Bænum.
‘ +•+-V4*-****-* *
Unglings piltur getur fengið
vist á góðu heimili í Argyle !bygð
gott kaup, og fargjald borgað.
Upplýsingar að 631 Victor. St.
Winnipeg, Man.
GuSsþjónusta með fermingu og
altarisgöngu er ákveöin 'á Big Point
á Hvítasunnudaginn, 8. júní á
vanalegum tíma dags. Allir vel-
komnir. S.S.C.
Björn Metúsalemsson kaupmað-
ur frá Ashern, var á ferð í bænum
í vikunni.
Mr. og Mrs. Gísli Gíslason frá
Gilsbakka í Fljótsbygð í Nýja ís-
landi komu til bæjarins fyrir nokkru
síðan. Var Mrs. Gíslason að leita
sér lækninga og var hún skorin upp
á almenna sjúkrahúsi bæjarins í
síðustu viku af Dr. B.. J. Brands-
syni, og er eins hress og vænta má,
‘því skurðurinn var mikill.
Mrs. Lára Salverson, skáldkon-
an íslenzka, kom til bæjarins um síð-
ustu helgi austan úr fylkjum. Sat
hún þing, er rithöfundar Canada
héldu í Borginni Montreal nýlega,
og fór einnig til Quebec og Toronto
í þeirri ferð. Heimleiðis hélt hún
eftir miðja vikuna. Mrs. Salver-
son sagði oss, að upplag bókar
hennar, Viking Heart, væri alveg
uppselt og félagið, sem gaf hana
út, væri byrjað að prenta aðra út-
gáfu af bókinni, og létu þeir þess
getið, að engin bók, sem út hefði
verið gefin á siðasta ári, hefði selst
neitt nálægt því eins vel og saga
hennar, Viking Heart. Enn frem-
ur gat hún þess við oss, að útgáfu-
félag í Danmörku hefði sótt um
leyfi til þess að þýða bókina á
dönsku. Mrs. Salverson er nýbú-
in að ljúka við aðra sögu, sem
væntanlega kemur fyrir almennings
sjónir áður en langt líður.
Landi vor Emil Walters hefir á
ný vakið eftirtekt á sér fyrir list-
fengi sitt í sambandi víð alþjóða
myndasýningu, sem stendur yfir í
Carnegie Institute of Fine Arts í
Pittsburg, Pa. Eru þar sýndar
myndir eftir frægustu málara frá
sjö stórþjóðum, og hefir mynd sú
eftir Mr. Walters, sem hann nefn-
ir “Blossom Time, Canada”, hlot-
ið sérstakt lof og vakið afarmikla
eftirtekt, og hafa stórblöðin New
York Times og Pittsburg Post sér-
staklega minst hennar ásamt fleiri
mehkra blaða, og er gott til þess að
vita, að þessi efnilegi ungi landi
vor skuli geta sér slíkan orðstir á
sviði listarinnar, bæði vegna hans
sjálfs og vegna sæmdarauka þess,
sem þjóðinni litlu er að slíkri
framkomu. Annar Canadamaður
á mynd á þessari sýningu, Horati-
us Wlalker frá Quebec.
Nokkrar missagnir hafa komist
inn í frétt þá er höfð var eftir hr.
Þorsteini Johnson í Lögbergi, sem
út kom 15. maí s.l. Þar stendur
meðal annars, að það hafi engan
veginn verið rakaloftinu í Seattle
að kenna, að hann fór þaðan. Rangt
kvað Mr. Johnson það vera, líka að
hann hefði sagt, að íslendingar
! þeir, sem hann hefði hitt nýkomna
1 austan að, ’hefðu haft á orði við
| hann að flytja austur aftur. Hann
j kvað fremur hið gagnstæða hafa átt
sér stað.
Leikfélag Sambandssafnaðar
Leikur Sjónleikinn
“ T engdamamma”
eftir Kristínu Sigfúsdóttur
í Samkomuhúsi lút. safnaðarins í
SELKIRK
MÁNUDAGINN 2. JÚNÍ, kl. 8.15 sí8d. Inngangur 50c.
THE LINGERIE SIIOP
Slrs. S. Gunnlaugsson.
Gerir Hemstiching fljðtt og vel og
með lægsta verði. pegar kvenfðlkið
þarfnast skrautfatnaðar, er bezt að
leita til Utlu búðarinnar á Victor og
Sargent. par eru allar slíkar gátur
ráðnar tafarlaust. par fást fagrir og
nytsamir munir fyrir hvert heimill.
Munið Ijingcrio-búðina að 687 Sar
gent Ave., áður en þér leitið lengra.
! Mr. Jón Einarsson frá Lundar,
kom til bæjarins í vikunni sem leið,
I á leið vestur til Glenovan, Sask,
þar sem dóttir hans Halldóra og
: tengdasonur hans, Einvarður
Breckman, eiga heima. Mr. Ein-
arsson dvelur þar vestar fyrst um
sinn.
Á laugardagsnóttina siðustu lézf
snögglega að heimili sinu í Tantal-
lon bóndinn Jóhannes Magnússon,
maður allmjög við aldur, vel látinn
og virtur. Banamein hans var
hjartabilun. Hann var ættaður úr
HelgafellssveÍt i Snæfellsnessýslu
á íslandi. Jarðarför Jóhannesar
heitins fór fram á mánudaginn var.
Kristján bóndi Stefánsson frá
Westfoíd, Man., var á ferð hér i
bænum i vikunni sem leið.
Hinn 19. þ. m. lagði Mr. Hjörtur
Björn Lindal, aonur Mr. og Mrs.
B. S. Lindal að 541 Lipton stræti
hér í iborginni af stað suður til
Minneapolis, Minn á mótorhjóli.
Fyrsta daginn ferðaðist Mr. Lindal
! hundrað og sextíu mílur og má
! rdíkt kallast vel af isér vikið. Hann
fór í kynnisför til systuir sinnar,
Mrs Russell O’Hart, er heimili á
í þeirri borg. Hygst hann að dvelja
þar um tíma.
---------o---------
Hr. Jón Runólfsson skáld kom
til borgarinnar fyrir part vi'kunn.
ar norðan frá Riverton, þar sem
hann dvaldi síðastliðinn vetur.
Hefir hann nú lokið þýðingunni af
Enoc Arden eftir Tennyson og
þarf eigi að efa að iþar sé um
meistaralega þýðingu að ræða.
Jón Finnsson, bóndi frá Lonely
Lake, Man., hefir dvalið hér í bæn-
um nokkra daga; kom hann til bæj-
arins með öldruðum manni þaðan
að utan, Bjarna Sigurðssyni, sem
var að leita sér Iækninga við sjón-
depru.
Mr. og Mrs. D. FI. Bachman frá
Clarkleigh, Man., komu til bæjar-
ins um síðustu helgi. Voru þau að
vitja sonar sins Þórðar, sem ligg-
ur þungt haldinn á almenna sjúkra-
húsinu hér í bænum.
Yfir 25,000 ekrur lands
er njóta góÖ8 af Kinni nýju járnbraut norðan við Tyndall
og Beausejour.
Sambandsatjórnin hefir ný afgreitt öll þau nauðsynlegustu lög er leyfa að
járnbraut verði lögð norðaustur af Selkirk til Pine Falls. Vér höfum lönd til
sölu í Township 14-6, 14-7, 14-8 og 15-8, sem fljótt stíga í verði sökum þessar-
ar járnbrautar og veita skjótan arð hverjum er þau kaupir. Jarðvegurinn er
laus við grjót en friómagnið mikið. Allstaðar vel ræsað fram, neyzluvatn á 25
til 30 feta dýpi. Skamt til Winnipeg markaðar fyrir afurðir blandaðs búnaðar,
og lægstu flutningsgjöld korns til Fort William. Mirgir Þjóðverjar. Svíar, Ruth-
eníumenn og Pólverjar hafa þegar tekið sér þar bólfestu. Hentugt fyrir margt
fólk sem setjast vill að í sama umhverfi. Auðveldir skilmálar til handa æski-
legum kaupendum. Eignarbréf ábyrgst. Leitið upplýsinga hjá
The Standard Trusts Co.
346 MAIN STREKT
WINNIPEG
Dr. Cecil D. McLeod
TANNLÆKNIR
Union Bank Bld. Sargent & Sherbrook
Tals. B 6 94
Winnipeg
íslenzka Bakaríið
Selur beztu vörur fyrir lægst
verð. Pantanir afgreiddul bæði
fljótt og vel. Fjölbreytt úrval.
..Hrein og lipur viðskifti...
Bjarnason Baking Co.
631 Sargent Avrt Simi A-5638
THE PALMER WET WASH
LAUNDRY—Sími: A-9610
Vér ábyrgjumst gott verk og
verkið gert innan 24 kl.stunda.
Vanir verkamenn, bezta sápa
6c fyrir pundið.
1182 Garfield St., Winnipeg
SIGMAR BROS.
—Room 3—
Home Investment Bldg.
468 Main Street, Wpg.
Selja hús, lóðir 0g bújarðir.
Útvega lán og eldsábyrgð.
Byggja fyrir þá, sem þess óska.
Phone: A-4963
Langruth Garage til sölu
Lóð 50x120 byggingin 25x68, viðargólf, 38x25, notað sem
samkomusalur og geymslurúm. Shed 12x25 ógólflagður. Over-
land flutningsbíll. McLaughlin flutningsibfll model 35. Fair-
banks Morse ljósaútbúnaður, olíugeymir og pumpa. Gasgeymír
er heldur 10 harrels og puvnpa. Sögunarálhöld, 6 hestöfl,
magneto dharging helix. Ford Block og pistons cranke case
og fyrirliggjandi vörur.
Hús (Cottage) 20x26', 4 herbergi, lóðin 100x1120, garður, r
alt umgirt.
R. L. Stephenson
lt/* .. 1 • timbur, fja!
Nyiar vorubirgmr tegu*dum,
timbur, fjalviður af öllum
geirettur og al*-
konar aðrir strikaðir tiglar, hurðir og gluggar.
Korrið og sjáið vörur vorar, Vér erumætíð glaðit
að sýna þó ekkert sé keypt.
The Empire Sash & Door Oo.
Limitarf
HENRY AVE. EAST
WINNIPEG
EM!L JDHNSOH 03 A. THOMAS
Service Electric
Rafmagns Contracting —
kyns rafmagnsáhöld seld og við
þau gert — Seljum Moffat og
McGlary Eldavélar og höfum
þær til sýnis á verkstæði voru.
524 Sargent Ave. (gamla John-
sons byggingin við Young St.
Verkst. B-1507. Heim. A-7286
AUGLYSIÐ I LOGBERGI
VICTOR ANDERSON
Skósmiður
Cor. Arlington og Sargent
Komið með skóna yðair til við-
gerða snemma í vikunni.
Opið á kvöldin. Verk ábyrgst
Lokað á laugardögum þar til
eftir sólsetur.
LANGRUTH
MAN.
Hjónavígslur framikviæmdar af
séra Rúnólfi Marteinssyni að
Iheimili hans, 493 Lipton St. miO-
vikudaginn, 21. maí jþau Jáhannej
August Johnson, frá Winnipeg og
Bergþóra Sigurðson frá Oak View,
Man., föstudaginn 23. maí þau
Sigurður Jónatan Sigurðson og
Pauline Gróa Björnson (bæði frá
Mountain, N. Dak. og á heimili
Mr. og Mrs. M. A. Hermannsaon,
655 Beverly St. þau Böðvar Júl-
íuis Halldórsson og Annie tsfeld,
bæði frá Sandy Hook, Man., laug-
ardaginn 24. maí.
Til leigu eitt eða tvö íherbergi
í góðu húsi nálægt strætisbraut.
Símið B4429.
Fyrirlestur
flytur
SIGURÐUR ViLHJÁLMSSON
um þjóðræknisskyldur
neðri sal
I Goodtemplarahúsinu á McGee Og Sargent
Laugardagskveldið 31. Maí
Frjálsar umræður. Inngangur ókeypis
Gleymst hefir að geta þess að
þ. 22. apr. síðastl. gaf séra N. Stgr.
Thorláiksson saman 'í hjónaiband
theima (hjá sér þau Halldór Guð-
mann Einarsson frá Árnes, Man.
og Clara Freda Goldhardt frá
Hnausa, Man. Er torúðurin af
þýskum ættum og fædd á Þýska-
Iandi; en hefir lært íslensku og
var fermd á íslensku af séra Jóh.
Bjarnasyni. Hefir (það jþó hlotið
að vera æði-mikið erfiðara fyrir
hana en fyrir börn af íslenskum
foreldrum. Eru ungu hjónin bú-
sett á búgarði forúðgumans.
•—-------o----------
Hinn 14. þ.m. lézt að heimili
föður síns, Guðmundar B. Jóns-
sonar, skamt frá Walhalla, N. D.,
Jóhannes Ágúst, 32 ára að aldri.
Hlafði átt við langvarandi van-
heilsu að búa. Hann var jarðsung-
inn þann 20. af séra K. K. Olaf-
syni, forseta kirkjufélagsins. Hinn
framliðni hafði rekiö verkfæra-
verzlun í félagi vi'ð Hannes bróður
sinn, í Pine River, Man., um nokk-
urra ára skeið. Kom Hannes til
borgarinnar frá jarSarförinni ásamt
föSur sínum, síðastliðinn mánudag
íslenzkir bændur í Manitoba og
Saskatchewan, ættu aS veita at-
hygli auglýsingunni frá T. Elliott
Produoe Co., Ltd., sem birtist í
þessu blaSi. Kaupir hann rjóma,
smjör, egg og alifugla, gegn hæzta
markaðsverði'.
Kirkjuþingsmóttökunefnd safn.
j aðanna í Agýle mælist vinsamleg-
ast til þess við .skrifara í söfnuð-
um kirkjufélagsins að tilkynna
undirrituðum eins fljótt og kostur
er á, hvað margir erindrekar koma
: frá Ihverjum söfnuði og nötfn
I þeirra og hvort konur eða menn
erindrekanna verða með þeim í
förinni.
Til fþess að alt gangi sem lið-
legast og Ihægt verði að sjá öllum
þingmönnum fyrir heimili í tæka
tíð og ált geti orðið í góðu lagi er
þingvnenn koma, er áríðandi að
þessar upplýsingar fáist frá öll-
um söfnuðum eins fljótt og hægt
er.
G. J. Oleson . . Glenboro, Man.
Mr. Christian Olafsson, umboðs-
maður New York Life félagsins,
skrapp suður til Minneapolis í
fyrri viku og sat fund þess félags-
skapar, sem haldinn var þar í borg-
inni. Hann kom heim aftur fyrir
helgina.
Islendingar í Selkirkbæ, eru beðn-
ir að veita athygli auglýsingunni
frá leikfélagi Sambandssafnaðar, er
sýnir leikinn “Tengdamamma”,
eftir Kristínu Sigfúsdóttur, mánu-
dagskvöldið 2. júní næstkomandi.
Leikur þessi var sýndur þrjú kvöld
hér í borginni fyrir troðfullu húsi
og þótti mjög tilkomumikill.
ÞESS BER AÐ GETA SEM
GERT ER.
Þegar eg í erfiðum kringum-
stæðum mínum var að missa sjón-
ina fór eg til Winnipeg að leita
hjálpar hjá Dr. Jóni Stefánssyni,
sem gjörði uppskurð á auganu í
mér 0g bætti mér sjón mína að
miklum mun. Hann var og mjög
sanngjarn í kröfum með toorgun
un og gjörði 'mér ált til góðs, sem
hann gat. Einnig heimsóttu mig
margir al-ókunnir menn og sýndu
mér ihluttekning með peninga-
gjöfum og með viðræðum og áf-
faentu mér peningaupplhæð þá, er
/hér skýrir frá: Hjálparnefnd
Samtoandisisafn. $ ÍO'.OO og Djákna-
nefnd Fyrsta lút. safn. afihent af
G. H. H. $5.00, Kvenfél. Fyrst.
lút. safn. $20.00 og líknarfélagið
Harpa $15.00. Hin ógleymanlega
alúð þesaa fólks við mig, því al-
ókunnugan og ógleymanlegu
mannúð, sem eg þakka hér með
af hellum Ihug, er sannur vottur
lifandi vorgróðurs og kærleika.
Bið ef föðurinn algóða a ðlauna því
mér er jþað um megn, toeygi aðeins
höfuð mitt í þögulu þakklæti.
Staddur í Winnipeg 23. maí. ’24
Bjami Sigurðson.
frá Lonly Lake P. O.
Þegar sumarið kemur
Við ár3tíðaskiftin er mjög
áríðandi að vera varfærinn
að því er snertir mjólk joá,
er nota skal. Heitu dag-
arnir valda því að mjög
erfitt er að geyma mjólk,
sem ekki er hreinsuð á vís-
indalegan hátt. Enginn
vill eiga á hættunni nokk-
uð meira en hann frekast
brrf. Tzgnar mæður
kaupa því ávalt Crescent
mjólk, hvern einasta dag
ársins, þær vita að hún er
ávalt jafnhrein, sæt og
heilnæm. Ef bér eruð eigi
rétt vel ánægðir með mjólk
þá, er þér notið, skuluðþér
hringja upp B IC00 og
biðja einn af mjólkur-
sölumönnum vorum að
koma við í húsi yðar.
Fyrirlestur séra Guðm. Árnason
ar um gröf Tut-ank-Amens og
forn-Egypta var sæmílega sóttur og
þótti hinn fróðlegasti í alla staði.
Þriggja herbergja Suite til leigu
á Maryland stræti, frá 1. næsta
mánaðar að telja. Allur húsbún-
aður fylgir herbergjum þessum,
svo og sími. Kallið upþ N-8925.
Afar sanngjöm leíga.
Langferðamenn.
Um síðustu helgi lögðu þeir
feðgar, Ásmundur P. Jóhannsson
og Grettir Jóhannsson upp í Is-
landsferð. Mr. A. P. Jóhannsson
er annar af Vestur-íslendingum
þeim, sem sæti á í stjórn Eimskipa-
félags íslands, og situr á ársfundi
þess félags, sem haldinn verður í
Reykjavík i næsta mánuði. Á leið
sinni áforma þeir að sækja brezku
sýninguna á Englandi. — Einnig
lögðu á stað til íslands seinni part
síðustu viku, þau Hannes Péturs-
son, Ólöf Sigurðsson og Guðný
Johnson. Friðrik Kristjánsson fór
áleiðis til New York, en var óráð-
inn í hvort hann héldi lengra, þeg-
ar að hann fór héðan. Fyrir nokkr-
um dögum fóru og þeir séra Rögn-
valdur Pétursson, séra E. Melan frá
Gimli og Dr. Sveinn Björnsson frá
Árborg til Boston og máske fleiri
stórborga Bandaríkjanna.
Guðfinna Þórðardóttir, 83 ára
gömul, andaðist að heimili Mr. og
Mrs. Jósefs Guttormssonar, Brekku
í Geysisbygð í Nýja íslandi, þ. 13.
maí s.l. Var ættuð úr Eyjafirði
og kom til Vesturheims í “stóra
hópnum” svo nefnda 1876. Hún
var síðari kona Jóhanns sál. Jó-
hannssonar, er lengi' bjó i Stein-
nesi við fslendingafljót. Jóhann
lézt í Fagradal í Geysisbygð vorið
1917. Höfðu þau Guðfinna og
hann þá nýlega brugðið búi og flutt
til vina sinna, Sigurðar Eriðfinns-
sonar og Kristrúnar sál. konu hans,
í Fagradal. Eftir lát manns síns
flutti Guðfinna tíl þeirra Gutt-
ormssönshjóna, þvi kona Jósefs
Guttormssonar, Jóhanna Guðfinna
Tónasdóttir Þorsteinssonar frá
Djúpadal í Geysisbygð, var uppal-
in hjá þeim hjónum og heitir í höf-
uð þeim báðum. Leið Guðfinnu
þar ágætlega til æfiloka. Höfðu
þau Jóhann og hún eignast eitt bam,
er dó í æsku. Einnig höfðu þau upp-
alið pilt, er lézt um tvítugsaldur.
Þau hjón voru ágætlega kynt. —
Jarðarför Guðfinnu sál. fór fram
þ. 19. maí. Séra Jóhann Bjarna-
son jarðsöng.
Til meðlima barnastúkunnar
Æskan.
iSökum þess að ákveðið hefir
verið að leggja niður fundi yfir
sumartímann, verður seinasti
fundur haldinn n. k. föstudag 30.
þ. m. — Byrjar kl. 7. e. 'h.
Börnin eru öll beðin að koma á-
samt foréldrum þeirra eða að-
standendum.
Aflhent verða verðlaun þau, sem
heitin voru Iþeim .er kæ'mu með
flesta nýja meðlimi á vetrinum
Einnig dregð um dúk, sem gefinn
var af G. U. T. Mrs. Josepson.—
Ýmislegt til skemtunar og fróð-
leiks, svo sem ræða til barnanna,
séra H. J. Leo.
Á eftir veitingar.
Jóhann p. Beck. (G. U. T.)
Eimskipa Farseðlar
HARRY CREAMER
Hagkvæmileg aðger® á úrum,
klukkum og gullstássi. Sendið oss
I pósti þatS, sem þér þurfið aC láta
gera við af þessum te?undum.
Vandað verk. Fljót afgrreiðsla. Og
meðmæli, sé þeirra óskaS. VerS
mjög samngjamt.
499 Notre Dame Ave.
Slmi: N-7873
Winnipeg
CANADIAN PACIFIC STEAMSHIPS
Vér getum flutt fjölskyldu yðar og vini frá
Evrópu til Canada á stuttum tíma og fyrir
lágt verð.
Hin 15 stórskip vor sigla með fárra daga
millibili frá Liverpool og Glacgow til Can-
ada.
Umboðsmenn vorir mæta íslenzkum far-
þegjum í Leith ogfylgja þeim til Glasgów,
þar sem fullnaðar ráðstafanir eru gerðar.
Leitið upplýsinga hjá næsta umboðsm.
Skrifið H.S.Bardal, 894 Sherbrooke St. eða
W. C. CASEY, Gen. Agent
Caiadian Pacific Steanuhips,
364 Main Streef, Winnfiei, Manitoba
Ár og Aldir
í gegn
JU.
getið þér treyst á DINGWALL úrin. Þau eigaengan
sinn líka að áreiðanlegleika, fegurð og gæðum. Sér-
staklega tilbúin fyrir hið breytilega veðráttufar hér.
Sérhverju DINGWALL úri fylgir DINGWALL
trygging. Verð mjög sanngjarnt og úr miklu að velja.
D. R. Dingwall, Limited
PARIS BUILDING,
WINNIPEG
Gasoline N7477 Oils & Greases
ÓKEYPIS ÞJÓNUSTA
Red’s Service Station
A. BERGMAN, Eigandi.
Horni Maryland og Sargent Ave.
Battery
Service
Accessories
Auto Repairs
Tire
Service
Wevel Gafe
Ef það er MÁLTÍÐ sem þú þarft
sem seður hungraðan maga, þá komdu
inn á Wevel Café. Þar fást máltíðir á
öllum tímum dags —bæði nógar og góð-
ar. Kaffibolla og pönnukökur og als-
konar sætindi og vindla. MRS .F. JACOBS
Ghristian Jolmson
Nú er rétti tíminn til að lát*
endurfeera og hressa u»p á
irömlu húsíröflmin osr láta pau
nta ut eins og þ«u væru gersam-
lega ný. Eg er eini íslendingur-
inn í borginni, sem annast um
fóðrun og stoppun stóla og legu-
bekkja og ábyrgist vandaða
vinnu og fljóta afgreiðslu. Mun"
ið staðinn og símanúmerið: —
311 Stradbrook Ave., Winnipe*
Tls. FJR.7487
STÓRMERKUR ÁRANGUR
aí að nota
Indiana Meðalið Fræga
MUS—KEE—KEE
Fyrirtak við lungna, háis
og magasjúkdómum, einn-
ig gyUiniæð. $1.00 flask-
an lijá öllum lyfsölum.
Skrifið f dag eftir hók til
The Macdonald Medicine Co.
of Canada, Ltd.
310 Notre Notre Dame Ave., VVpg.
BÓKBAND.
peir, aem óska að fá bundið
Tímaritið, 4 árg., í eina bó’k, geta
fengið það gert hjá Columbia
Press, Cor. Toronto og Sargent,
fyrir $1,50 í léreftsbandi.
gylt í kjöl, en fyrir $2,25 fyrir
leður á kjöl og horn og bestu
tegund gylilingar. — Komið hing-
að með bækur yðar, sem þér þurf-
iö aS iáta binda.
Th. Johnson & Son
Úr og Gullsmiðir
264 Main St.
Selja Gullstáss, giftingaleyf-
isbréf, Gleraugu o. fl.
Tals.: A-4637
Brauðsöluhús
Beztu kökur, tvíbökur og
rúgbrauð, sem fæst í allri
borginni. Einníg allskonar
ávextir, svaladrykkir, ísrjómi
The Home Bakery
653-655 Sargent Ave. Cor. Agnee
Sími: A4153 1*1. Myndaatofa
WALTER’S PHOTO STUDIO
Kristín Bjarnason elgandl
Næ»t við Lycaum húaið
290 Portage Ave. Winnipeg.
Eina litunarhúsið
ísienzka í horginni
Heimsækið ávalt
Dnbois L.imited
Lita og hreinsa allar tegundir fata, svo
þau líta út sem ný. Vér erum þeir einu
í borginni er lita hattfjaðrir.— Lipur af
greiðsla. vönduð vinna.
Eigendur:
Árni Goodman, Ragnar Swanson
276 Hargrave St. Sími A3763
Winn peg
Mobile, Polarine Olía Gasolin.
Red’sService Station
milli Furby og Langside á Sargent
A. BKBQMAN. Prop.
FBKB HKRVICK ON BDNWAf
.CCP AN OIFFEKKNTIAI. OBCA8B
The New York Tailoring Co.
Er þekt um alla Winnipeg fyrir
lipurð og sanngirni i viðskiftum.
Vér snítium og saumum karlmanna
föt og kvenmanna föt af nýjustu
tizku fyrir eins lágt verð og hugs-
ast getur. Einnig föt pressuð og
hreinsuð og gert við alls lags loðföt
639 Sargent Ave., rétt við Good-
templarahúsið.
Office: Cor. King og Alexander
King George
TAXI
Phone; A 5 7 8 O
Bifreiðar við hendina dag og nótt.
G. Goodman.
Manager
Th. Bjarnason
President
‘aaKBF'
tS/
gjörir við klukkur yðar og úr
ef aflaga fer Einnig býr þann
til og gerir við allskonar gull
og silfurstáss. — Sendið að-
gerðir yðar og pantanir beint
á verkstofu mína og skal það
afgreitt eins fljótt og unt er,
og vel frá öllu gengið. — Verk-
stofa mín er að:
676 Sargent Ave.,
Phone B’805
A. C. JOHNSON
907 Confederation Life BkL
WINNIPEG.
Annast um fasteignir masatk
Tekur að sér að ávaxta spartH
fólks. Selur eldábyrgðir eg
reiða ábyrgðir. Skrifleguna fyrlr
spurnum svarað samstundia.
Skrifstofuflími A4268
Hússimi
Arni Eggertson
1101 McArthur Bldg., Winnipeg
Telephone A3637
Telegraph Address:
“EGGERTSON WINNIPEG”
Verzla með hús, lönd og lóð-
ir. Utvega peningalán, elds-
ábyrgð og fleira.
King George Hotel
(Cor. King & Alexander)
Vér höfum tekið þetta ágseta
Hotel á leigu og veitum viö-
skiítavinum öll nýtízku þiæg-
indi. Skemtileg herbergi til
leigu fyrir lengri eða skemri
tíma, fyrir mjög sanngjarnt
verð. petta er eina hótelið i
borginni, sem fslendingar
stjórna.
Th. Bjamason.
Mrs. Swainson,
að 627 Sarjent Avenue, W.peg
hefir ival fyrirliggjandi úrvalahirgði
af nýtízku kvenhöttum, Hón er eim
fsl. konan eem slíka verzlun rekur
Winnipg. Islendingar, látið Mrs. Swain
son njóta viðskifta yðar.