Lögberg - 23.10.1924, Page 5
LötrJÖERG, FIMTUUAGINN 23. OKTÓBER, 1924.
t
urðu að fara, icl. 6 síðdegiis. Það
.þótti viðiburður, að sjá eina af
flugvélum amerísku skipanna
koma svífandi yfir 'hálsinn. Aldrei
hefir fyrri flugvé'l sést i Svínadal.
Ein vika í slíkri útilegu líður
fljótt. Hver dagur var eins <og há-
tíð. Ekkert kom jþað fyrir, er
skygði á skemtun vora, því gleðln
og fjörið var jafnt í skini og skúr-
um. Enginn varð lasinn, og ekkeirt
varð að meinum, nema hvað menn
urðu útiteknir og einstaka fengu
nokkrar mýflugnastungur; en slíkt
var ekki talið til meina.
Vart er unt að hugsa sér fegurn
etað né yndislegri í íslenskri nátt-
útru en þenna. Þar er stór iskógur
í vaxtarblóma og í framför með
ári hVerju. Niðri í dalbotninum
eru 3 stöðuvötn, og synda á þeim
syngjandi slvanir. En gegnt skóg-
inum hinum megin vatna blasa við
há og tiílkomumikil fjöll, þar á
meðal iSkarðsheiði. Gjörir hún og
hin ifjöllin kring um Svínadalinn
útsýnið isvipmikið bg tignarlegt,
en bjart og blíðlegt gjöra það
vötnin og vellirnir grænir og grös^
ugir, skógurinn með blágresis-
breiður milli bjarkanna og blóm-
leg ibýli, er blaisa fyrir sjónum.
Vegna mislingabanns í sveit-
inni gátum vér því miður ekki
kynst unga fólkinu þar í sóikninni,
þvi enginn mátti koma til kirkju
eða heimsækja oss, nema þeir, sem
mislinga höfðu fengið. Samt fund-
um vér anda hlýtt að oss frá fólk-
inu þar efi-a, og mikilli velvild
mættum vér hjá prófastinum og
frú hans og þótti oss það gott ná-
grenni. Það var heldur ekki laust
við að vér öfunduðum þá, sem voru
í skóginum í fyrra og fengu ágætis
kvöldstund í boði að Geitabergi.
En nú bönnuðu mislingarnir slík-
ar samgöngur. Síðasta kvöldið er
hvor flokkurinn var uppfrá, héld-
um vér dálítið skilnaðargildi og
höfðum þá gleði að hafa prófasts-
hjónin sem gesti vora í fyrra skift-
ið og prófastinn aftur í seinna
skiftið og jók það hátíðahaldið.
Sílkar útilegur í sumarbúðum
eru ákaflega hollar og hressandi
fyrir líkama og sál.; hygg eg að
menn komi heim úr þeim auðugari
að ýmsu en þeir ifóru, og gefa þær
efni í góðar minningar. Vonum
vér að fleiri geti nötið þeirra að
sumri en þeir, sem nú áttu kost á
því. Lýkur isvo þessari sögu.
Mbrgunblaðið 12. sept.
Vitnisburður vor.
Vér höfum þegar talað um nauð-
syn þess, að vitna um Guð á heim-
ilinu. Börnin vor veita oss nákvæma
eftirtekt. Það er auðvelt fyrir
móöur, að kenna dóttur sinni tízku-
prjál og óhollan matartilbúning.
Það er auðvelt fyrir föður, að
kenna syni sírium ágirnd og grimd.
Á sumum heimilum heyra börnin
og sjá ekki annað dag eftir dag, en
þolinmæði, skammir, vargalæti,
bindindisleysi, ljótt orðbragð og
gjálífi.
Það er auðvelt fyrir sum heim-
ili, að vera tilbúin fyrir guðsþjón-
ustu helgidagsins, fimtán mín-
mínútum eftir .sólarlag. Víða er
morgunguðsþjónustan ekki iðkuð,
éins og áður var, og kvöldguðs-
þjónusta alveg gleymd, og það
þrátt fyrir allar áminningar. Það
ætti ,að vera ákveðinn tími fyrir
guðsþjónustu kvöld og morgun. Á
mörgum heimilum sjá börnin, að
hirðuleysi og andvaraleysi föðurs-
ins byrjar við dyr herbergis hans.
En vér verðum að vitna á öðr-
um stöðum fyrir Jesús. Vér verð-
um að ná lengra út í umhverfið.
Hvernig vitnar líf þitt um Guð í
hvíldardagsskólanum ? Hvaða á-
hrif hefir þú á þinn eigin söfnuð?
Kostar þú kapps um að komast á-
valt til guðsþjónusturinar á réttum
tím? Þeir, sem ávalt eru of seinir
til guðsþjónustunnar, munu ein-
hvern tíma vera þúsund árum of
seinir til að komast inn í hina nýju
Jerúsalem. Gerir þú þitt bezta til
að gera hvíldardagsskólann að
sterkum lið í frelsunarverki Guðs?
Getur verið, að vér gerum oss ekki
ljósa grein fyrir iþví, hve miklu
góðu góður hvildardagsskóli getur
til vegar komið. Hve margir ungir
menn frá hvíldardagsskóla þínum
hafa orðið verkamenn fyrir Guð?
Hve margir eru erindrekar kon-
ungsins í framandi löndum? Hve
margir, er farið hafa frá skóla þín-
um, þjóna nú heiminum? Hve
margir hafa endað með því, að
verða sem Kain, Haman, Demas,
Júdas eða Piltus, sem hefðu getað
orðið líkir Jósef, Daníel, Páli, Liv-
ingstone, eða Moffat?
Það vann einu sinni ungur mað-
ur, á skósmiða verkstæði í Boston.
Hann gekk reglubundið í biblíu-
skóla. Kennarinn hans varð mjög
hrifinn af honum, svo dag nokk-
urn fann hann sig knúðan til að
heimsækja unga manninn á verk-
stæðinu og tala við hann um sálu-
hjálp hans. Hinn góði, guðhræddi
kennari valdi hentugan tíma seinni
part dags, þá fáir komu á verk-
stæðið. Umsvifalaust snýr hann
sér að unga manninum og spyr
hann, hvort honum finnist ekki
kominn tími til að gefa Guði hjarta
sitt. Ungi maðurinn hugsaði sig
um stundarkorn og gaf síðan sam-
þykki sitt. Þeir krupu því næst
báðir niður í hliðarherbergi verk-
stæðisins og sögðu Guði frá á-
kvörðun unga mannsins. Seinna
lagði þessi sami ungi maður aðra
hönd sína á Ameríkuð en hina á
England, og leiddi bæði þessi lönd
áfram að krossi Krists. Maðurinn
var D. L. Moody. Er hvíldardags-
skóli þinn sálnaveiðari ?
Hve mikið gerir þú fyrir söfnuð
þinn ? Þar sem þú ert á leiðinni til
guðsþjónustunnar, þar sem þú sit-
ur í sæti þínu, þar sem þú syngur
með söngflokknum, um hvern vitn-
ar þú þá? Um hvern vitnar þú,
er þú situr heima og ferð ekki á
bænasamkoniuna? Einn af prestum
vorum var að ferðast á jarnbraut-
arlest, er ung kona, sem þækti hann
og sat nærri honum spurði hann,
hvenær hann hefði guðsþjónustu á
tiltéknum stað, er hún nefndi. Alt
í einu sneri presturinn sér að henm
og spyr: “Hve langt er siðan þú
yfirgafst sannleikann ?” Undrandi
leit konan upp á prestinn og seg-
ir: “Hvað er þetta? Eg hefi ekki
yfirgefið sann(!eikann.’J Prestin-
um hálf gramdist, því hann álykt-
aði svona vegna háhæluðu stigvél-
anna hennar og fjaðranna í hatt-
inum, hún var nefnilega öllu öðru
lík, en lærisveini Jesú Krists.
“En,” sagði nafnkristin kona
nokkur, sem elskaði tízkuprjálið,
“get eg ekki borið gullhringi, háls-
festar, blóm og fjaðrir og klætt mig
samkvæmt nýjustu siðum og verið
hógvær kristin kona? Hennar guð-
hræddi prestur svaraði: “Kæra
kona, þegar eg sé tóuskott standa
út úr holu, þykist eg viss um, að
tóan sjálf sé ekki langt i burtu” —
Svarið var samþykt.........
Það var hepni fyrir týnda son-
inn, að faðir hans enn þá var lif-
andi, er hann ákvað að snúa heim-
leiðis frá sult og seyru og svínalíf-
inu, þvi eldri bróðir hans mundi
ekki hafa haft mikla meðaunikun
með honum. Það eru of margir
“eldri bræður” líkir honum í söfn-
uðinurn á vorurn dögum. Eg las
fyrir skömmu æfisögu hins guð-
hrædda manns, Charles G. Finny.
Þegar hann var ungur, sótti hann
kirkju að eins vegna þess, að hann
söng vel og naut þess, að vera með
í söngflokknum. Hann var þá að
lesa lög. Dag nokkurn samþyktu
embættismenn kirkjunnar og prest-
urinn, að biðja þennan unga mann
að koma ekki til kirkju sinnar,
PROVINCE
THEATRE
Alla nœstu viku
mest hrífandi mynd árstíðarinnar
“Dantes
Inferno“
Framúrskarandi hrífandi leikur, stórfengileg lýsing á
skilningi Dante’s á undirheimum.
SÝNINGARNAR ÓVENJU TILKOMU MIKLAR
Verðið er við hæfi allra—ríhra sem fátœkra
Frá klukkan 11 f. m. til 1 e, m
T a I s í m i ð
KOL B62 COKE
- V I D U R
Thos. Jackson & S o n s
| TVÖ ÞÚSUND PUND AF ÁNÆGJU.
Dodds nýrnapillur eru besta
nýrnameðalið. Lækna og gigt bak-
verk, ihjartabilun, þvagteppu og
önnur veikindi, sem stafa frá nýr-
unum. — Dodd’s Kidney Pills
kosta 50c askjan eða sex öskjur
fyrir $2.50, og fást hjá ölluvn lyf-
sölum eða frá The Dodd’s Medi-
cine Company, Toronto, Canada.
vegna þess að áhrif hans á hitt unga
fólkið væru ekki góð.
En Finny þurfti aldrei að vita
neitt um þessa ákvörðun, því þá
sömu viku lét hann að náðarrödd
Guðs anda og gaf Guði hjarta sitt.
Aleinn úti í skógi gaf hann sig þar
fullkomlega Guði á vald, að hann
hætti við lögfræðisnám sitt og á-
kvarðaði að verða prédikari. Hann
byrjaði þar sem hann stóð á meðal
æskulýðsins og kom þeirri vakningu
af 'stað, er fór nálega yfir alt Nýja
England. Reynum þá að læra
þetta, að þótt vér getum ekki haft
meðaumkun með syndinni, að fyr-
irlíta ekki syndarann.
En vér verðum að ná lengra út í
umhverfið heldur en til hvíldar-
dagsskólans og safnaðarins. Þér
ber að vera áhrifamikið vitni Guðs
á meðal nágranna þinna. Alstaðar
eru menn og konur, sem mundu
gefa Guði hjarta sitt og lifa sam-
kvæmt sannleikanum, ef að eins þú
vilt sá sæði sannleikans og lifa
sannkristnu Iífi þeim til vitnisburð-
ar. Eg þekki gamla, gráhærða
systir, sem aldrei hefir verið laun-
aður starfsmaður, en öll siðari ár
æfi sinnar hefir leitt marga ná-
granna sina inn í hina kristnu fjöl-
skyldu, hvar sem hún hefir verið.
Sneiddu þig aldrei hjá neinum.
Eg hefi lesið um ungan mann, sem
var þjónn á drykkjuknæpu. Marg-
ir halda, að þvilikar manneskjur
séu ekki guðsrikis verðar. En dag
nokkurn gekk Jesús fram hjá jæss-
um unga manni, náði honum á vald
sitt, og Jressi ungi maður var Ge-
orge Wthitefield, höfðingi prédik-
aranna. Þar var annar ungur mað-
ur, lastmáll svardagamaður. Hann
segir sjálfur, að nágrönnum hans
hafi hrylt við, er hann tók að
sverja og blóta. Enginn vildi hafa
hann til að gera handtak fyrir sig,
ef unt var að fá nokkurn annan.
Seinna skrifaði jressi ungi maður
“För Pílagrímsins.” Þú mundir
ekki hafa búist við slíku af þeim
manni, en Guð geröi jiað. Guð
hans. Sá maður, sem veitt hfir
hjálpi þér til að láta ljós sannleik-
ans skína fyrir nágranna þina.
Seinna koma svo hinar fjarlægu
heimsálfur að vitna fyrir. Ef þú
ert dyggur vottur Guðs á heimil-
mu, í hvíldardagsskólanum, söfn-
uðinum og á meðal nágranna
þinna, þarf eg ekki að minna þig
á miljónirnar, sem í myrkrunum
sitja. Þá berð þú umhyggju fyrir
ollum heiminum. Heitasta ósk þín
verður þá, að Guðs ríki eflist og
útbreiðist á jörðunni, svo Kristur
geti komið og stofnsett sitt friðar-
ríki og að engu gert synd, sorg og
dauða. Ef þú ekki hefir alt þetta
til að bera, er þýðingarlaust fyrir
nug að minna þig á heiðingjana, því
þú þarft þá sjálfur að taka sinna-
skiftum.
Sem kirkjufélag gefum vér tölu-
vert af peningum til útlenda trú-
boðsverksins — ekki of mikið, en
saman borið við ýms önnur félög,
töluvert. Stundum er eg hræddur
um, að blessun Guðs hvíli ekki í
eins ríkum mæli yfir þeim gjöfum,
eins og hún ætti að gera, og jrað
af tveimur ástæðum: “Guð elskar
glaðan gjafara.” Eg tel það al-
gilda reglu, að jjegar Guð vinnur
þig, þá hafi hann unnið alt þitt. Ef
þú telur þitt ekki hans, er það aug-
ljóst, að þú sjálfur ert heldur ekki
hans. Sá maður, sem veitt hefir
Kristi inngöngu í hjarta sitt, skoð-
ar með gleöi Guð senr eiganda eigna
sinna og þær allar sem hjálparmeö-
al málefnis hans. Sá maður ekki
einungis gefur, heldur biður líka.
Bænir lians fylgja gjöfunum. Guð
blessar peninga gefna með því geði
—gefna af því vér elskum Guð,
elskum málefni hans, elskum j)ær
sálir, sem Jesús dó fyrir. Það þarf
ekki annað en að skýra jreim mönn-
um frá þörfunum, og þeir koma
með buddur sínar ásamt bænum
jæirra. Eg vildi að ípenn hefðu
jrað hugfast, að hver einasti dollar,
sem eytt er til óþarfa, er dollar ó-
leyfilega notaður úr þeirn sjóði,
sem oss öllum að eins er trúað
fyrir.
y EDWAHDSBURG
CROWN
BRAND
Hið hreina
ipmeíi
síróp, er skarað heíir fram úr i
25 ár — biðjið um það! Skrifið
eftir Edwardsburg Recipe b<Mc.
The Canada Starch Co., Limited.
Montreal.
Ef það er ekki eitthvað Jæss kon-
ar, sem heldur blessun Guðs burtu
frá gjöfunum, þá er það einmitt
þetta, að vér, eins og margir aðrir
kristnir, gefum til málefnis Drott-
ins, j>egar vér höfum fengið allar
vorar þarfir uppfyltar. Vér gef-
um Guði það, sem vér ekki höfum
þörf fyrir. Vér gefum Guði af-
ganginn. Margir, sem gætu gefið
miklu meira, og sem Guð ætlast til
meira af, eru ánægðir er þeir hafa
gefið einhvern tiltekinn skamt.
Kirkjurnar eru að setja mönnum
fyrir vissa skamta að gefa, og það
vegna j>ess, að áhrif Guðs anda eru
ekki nógu öflug. Hvítasunnu vakn-
ingin mundi framleiða hvítasunnu-
fórnfýsi. Það, sem vér mest
j>örfnumst, er sannkristið innræti.
Það er ekki hægt að aftra þeim
manni frá að gefa til Guðs málefn-
is, sem elskar Guð af öllu hjarta.
Þú hefir ef til vill heyrt um
fjölskylduna, sem var að tala sam-
an við borðið, hvað hver og einn
gæti gert fyrir trúboðsstarfið.
Faðirinn sagði: “Eg skal hætta við
kaffið, og gefa þá peninga til trú-
boðsstarfsins. Móðirin sagði: “Eg
skal hætta við teið og gefa þá pen-
inga. “En j>ú, Tom, sagði faðir-
inn, “hvað ætlar þú að gefa?” “O,”
sagði drengurinn eftir dálitla um-
hugsun, “eg skal gefa saltaða mak-
rilinn, mér hefir hvort sem heldur
er alt af þótt hann vondur.”
Hve margir eru eins og Tom?
Gefa Guði það er þeir ekki þarfn-
ast. Er þeir hafa fengið allar ósk-
ir sínar uppfyltar, þá má gefa Guði
afganginn, ef hann er þá nokkur.
Eg trúi ]>vi, að Guð blessi þær
gjafir, sem eru regluleg fórn, sem
eru teknar nærri sér. Margir með-
limir vorir vita hvað það er. Eg
hefi fengið tár í augun oft er eg
hefi séð vora kæru trúföstu vini
gefa af sínu litla. En margir svo-
kallaðir kristnir fórna aldrei neinu
Guði til handa. Þeir reisa sér dýr
hús, fá sér dýrindis bifreiðar, rík-
mannleg húsgögn, skjfta um föt
eftir tízkunni fjórum sinnum á ári,
hafa nóga peninga fyrir “tyggi-
gúmi”, sælgæti, og myndir, en
kvarta svo og klaga yfir kröfum
trúboðsstarfsins.
Sherman A. Nagel
Pétur SigurSsson þýddi.
---------o-------
Á ferð til Churchill.
2. okt. 1924.
Herra ritstjóri,
Kæri kunningi!
Eg lofaðist til að senda þér fá-
einar línur, þegár eg kæmi vestur
þangað, sem við ætlum að fiska; en
af því að við erum veðurteptir og
ekkert til að starfa, þá tek eg tæki-
færið til að klóra fáeinar línur. —
Nú er eg staddur við vatn, sem
liggur inn í Churchill ána, og á
eftir 40 mílur; á þeirri leið þarf
þrisvar að selflytja báta og allan
flutning, en stutta leið i hverjum
stað.
Við eruni nú komnir um 840
milur frá Gimli; á járnbraut fór-
um við 485 mílur, á gufubát 130,
og hinn hlutann höfum við farið á
canoes. Við erum búnir að vera á
ferðinni samfleytt tvær vikur, frá
sólaruppkomu til sólseturs; við
höfum orðið að bera flutning okk-
ar á landi í 22 stöðum, og lengsti
flútningurinn var ein míla í Tam-
raks mýri eða réttara sagt í mosa-
dyngju og vatni, og sumstaðar
skógi; í 12 stöðum rendum við
bátunum ofan strengi og bullandi
flúðir, innan um stói;grýti og
kletta.
Ferðin hefir gengið slysalaust,
og fremur lítið skemst hjá okkur.
Við erum allir vel friskir og nú
erum við komnir í gegn um allar
verstu torfærurnar, og liggur vel á
öllum. í mínum hópi eru 4 fransk-
ir, 1 Indíáni, Jónatan og eg. Við
höfum um 4,000 pund af matvæl-
um og netjum, og ofan á það bæt-
ast 17 hundar; bátur okkar hefir
að eins staðið 7 þumlunga upp úr
vatni. — Vinur minn Jónasson
hefir þrjá canoes, 4 Indíána, einn
hvitan mann auk sonar síns, og er
hann kominn á undan okkur, j>ví
hann hefir mótor-vél, en við höf-
um orðið að moka okkur áfram
með spöðunum.
Það munu fáir trúa þvi, að menn
færu yfir alt, sem við höfum farið
í gegn um, nema jæir hefðu farið
j>að sjálfir. Þrjú ágætis vötn hefi
eg fundið, sem eru lifandi af hvít-
fiski og silungi, og honum mjög
stórum, sem viktar alt upp í 40 til
50 pund hver. Ár og vötn eru hér
öll spegiltær, og sést í botn á 8 til
10 feta dýpi. Landslag er mjög
hrjóstugt, mest fjalllendi, en alt
vaxið með háum skógi; en með-
fram ám og lækjum er nokkurt lág-
lend'j. vaxið w'illow-buskum, en
sumstaðar þó allgóður bygginga-
viður. Eg held að það eigi langt i
land, að þessi hluti Manitoba-fylk-
is verði bygður; en það er óefað
ágætis dýrariki, enda er stór auður
tekinn hér upp.
Þeir, sem hefðu gaman af að sjá
á kortinu hvar við erum staddir, þá
rita eg nafnið á síðasta vatninu, sem
við förum yfir, og heitir það
Kississing Lake, og áin sem úr því
rennur til Churchill River, heitir
BÖKUNIN
bregst ekki ef
þér notið
MAGIC
BAKING
POWDER
Það inniheldur
ekki alúm og er
ekki beizkt á
bragðið.
Lessissing River; þetta eru ind-
versk nöfn, en á íslenzku heitir
vatnið Kaldavatn, og áin Kaldaá, og
er það sannleikur, vatnið í jieim er
jökulkalt.
Við erum rétt komnir norður úr
ánni og sterkur vindur er á móti
okkur. Við fengum moskusdýra-
kjöt hjá Indiánum, svo við höfum
kjötkatlana alt af yfir eldinum.
Það versta við ferðina var, að
bera farangurinn fram hjá fossum
og öðrum tálmunum í ánum. Sumt
af mönnum Tryggva Jónassonar
báru alt að 400 pundum eina mílu
vegar; flestir báru }>etta 200 til 250
pund; eg þóttist gjöra vel á mínum
60 ára aldri að halda á 150 pd.
Það er æfingin, sem gerir Indián-
ana svona duglega við burðinn, og
hafa þeir alist uj>p við jietta burð-
ar-lif.
Nú fer að styttast leiðin þang-
að til við getum farið að bragða á
styrjunni. Eg hefi hugsað mér að
reykja fáeinar þeirra, og ef eg
tóri næsta vetur og kemst til baka,
þá hefði eg gaman af að geta gefið
einstaka kunningja mínum einn eða
svo munnbita.
Ekki hafa Frakkarnir, sem við
erum með, staðið sig betur en við
landamir. VSð íhöfum alstaðar
haldið okkur í broddi fylkingar og
munum halda þvi áfram.
Nú angar súpulyktin fyrir vitum
um mér, eg er orðinn svangur við
þetta klór. Bið eg alla, sem lesa
þetta að fyrirgefa, hvað lélegt j>að
er og líklega leiðinlegt.
Meira seinna. Með vinsemd og
kærri kveðju.
Capt. B. Anderson.
—o-
1 gær andaðiist hér í bænum
Svava Halldórsdóttir, 16 ára göm-
ul, eftir langvinnan sjúkleik. Móð-
ir hennar, ekkjufrú Ólöf Jónsdótt-
ir, er systir Sigurðar skólastjóra
Jónsssonar.
Vísir, 16. sept.
VERIÐ UM JÖLIN OG NÝÁRIÐ í
GAMLA LANDINU
SJERSTAKAR LESTIR
WINNiPEG TIL SKIPSHLIDAR, HALIFAX
FVRSTA I/EST fer frá Winnlpeg kl. 10 fli., 4.
Desember, til að ná sainbandi við S.S. Regina 7.
Desember til Glasgow, Relfast og Jjivertxtol.
ÖNNIIR IjEST fer frá Winnipcs kl. 10 f.li. 5.
Dcs., til að ná sambandi við S.S. Aiulanin 8. Des., til
Plymoutli, Cherbourg, og London, og S.S. Satumia
8. Des. til Glasgow.
pRIDJA I/EST fer frá Winnipeg kl. 10 f.lt. 8.
Des. til að ná sambandi við S.S. Pittsburg og S.S.
Orduna 11. Des. til Cherbourg, Southampton, og
Hamburg.
EJÓRDA LEST fer frá Winnlpeg kl. 10 f.it. 11.
Des. lil að ná sambaudi vlð S.S. Cammnia 14. Des
til Queenstown og Livcrpool, og S.S. Canada 14.
Des. til Glasgow, Belfast. og Liverpool.
SERSTARIR SVEFNVAGNAR I’RA VANCOUVER, EDMONTON, CALGARV, SASKATOON og
REGINA TENGJAST í WINNIPEG VID OI AXM ENDAR LESTIR
Sérstakir nútíma ferðamanna svefnvagnar verða í lestinni a'la leið frá Vancouver,
Edmonton, Calgary, Saskatoon, Reghta. og Winnipeg, til að ná sambandi við skipin
S.S. Athenla, 21. Nðv. frá. Montreal til Glasgow. || S.S. Doric 22. Nóv. frá Montreal til Liverpool.
S.S. United States 4. Des. frá. Halifax til Christlan- II S.S. Stockholm, 4. Des. frá Halifax til Gauta-
sand, Kristjaníu og Kaupmannahafnar. II borgar I Sviþjóð. ______________________
Sérhver umboðsmaður Cauadian National brautamui mun með áiuegju velta yður allar upplýsingar og
aðstoð \ ið að sernja ferðaáætlun, útvega svefnklefa og önnur þtegindi.