Lögberg - 30.04.1925, Qupperneq 7
LÖGBERG. FIMTUDAGINN. 30. APRÍL. 1925.
Bls. 7
Biblíu endurlausn.
Eðli og nauðsyn iðrunarinnar.
Jafnvel þó guSleg hrygð sé að-
al-einkenni sannrar iðrunar, getur
þó maðurinn haft isannfærandi
'ótta-meðvitund, og samt ekki ver-
ið sann-iðrandi.
Felix hlýddi titrandi á prédikun
Páls, en hann hélt samt áfram i
syndunum. Júdas hafði angistar
samvizkubit, eftir að hann seldi
Krist fyrir fáa silfurpeninga, en
'hann var ekki sann-iðrandi, því
hann fór út og hengdi sig. iMað-
urinn getur haft hjartans hrygð,
og samt ekki verið sann-iðrandi.
Akab var felmtraður (i. Kon.
21, 27), en það var ekki sönn iðr-
un. Heródes hafði margar góðar
tilfinningar, vegna prédikana Jó-
hannesar, en hann var ekki sann-
iðrandi. 1— Snöggleg áhrif gagn-
vart guði, er ekki iðrun. Einnig
getur maðurinn sett sér margt
gott, en samt ekki verið sann-
iðrandi. Margir sýnast iðrast á
sínum sjúkdómsbeði, en gleyma
svo áheitum sínum á heilbrigðu
dögunum. ASrir ' sýnast iðrast,
þegar sjúkdómar sækja börn þeirrá
heim, en gleyma því öllu, þegar
allir eru heilbrigSir.
Að hætta við eitthvað af synd-
unum, er ekki iðrun. Nokkrir
hætta við eina synd, en hanga þó
við einhverja aðra synd. Vér iðr-
umst ekki eftir ritningunum, fyr
en vér iSrumst allra vorra synda.
Að fasta og þjá líkamann og
biðja, já jafnvel sannfæring er
ekki sönn iðrun. Vér höfum þekt
marga undir djúpri sannfæringu
vegna syndanna, sem vildu þó
ekki beygja sig undir þá sann-
færing.
Sönn iðrun felur í sér þekkingu
syndarinnar, játningu og sann-
hrygS; en aðal einkennið er að
snúa frá syjndunum, frá cttlum
syndum, og snúa sér til guðs. Sá,
sem sannlega iðrast, snýr frá
synd|unum með viðlbjóSí. Fleyg-
ir frá sér elskuðum hégóma, fé-
lagsskap ófrelsaðra kunningja,
vondum vana, staupi, pípu, óheiS-
arlegum viðskiftum, blóti, kæru-
lausu glensi fgamnij, vanhelgun
hvildardagsins, óvandlátum orð-
ræSum og móð þessa heims.
Öllu þessu (og mörgu ótöldu)
er burt kastaS. Já, við guðspjalls-
iðru hættir maðurinn viS synd.
“HættiÖ ilt að gjöra,1” er ritað á
hans vöknuSu sál, og hann hlýð-
ir skipaninni.
Sönn iörun felur i sér játningar.
í staðinn fyrir að hylja synd, seg-
ir sá iðrandi með Sakkeusi: “Eg
horga ferfalt aftur.” Hrein og
Ibein umvending breytir öllu líf-
inu. Slík sál er á góðum vegi til
frelsunar, því “sú hrygð, sem er
eftir guöi„ aflar sáluhjálplegrar
betrunar, sem enginn iðrast eftir,
en veraldleg hrygð veldur dauða.”
Iörun er nauðsynleg í sambandi
við sáluhjálplega trú. Áður en
syndari getur komist í rétt sálar-
ástand til aS treysta friSþægjandi
blóði Krists, verður honum að
vera meiri eða minni alvara meö
sína sálarlausn. 1 jHvað hirðir sá
um trú á Jesúm, sem ekki getur
séö sjálfan sig sem hjálparlausan,
sekan, týndan syndara? Alls ekk-
ert. Engir nema þeir, “sem fyrir
aöstoð guðs anda eru sannfærðir
um synd, alvarlega iðrandi og
snúandi frá syndunum, vér segj-
um, að eins sliku sálarástandi er
alvara með aS gjöra frið við guð.
Iðrunarlaust hugarfar fæst ekkert
um friðþæging Krists. Slíkt hug-
arfar sér enga nauðsyn krossins
Krists, og slíkir sýnast ánægðir án
hans. “ISrun gagnvart guði, og
trú á drottin Jesúm” er einföld
staðhæfing, nauðsynleg sem skil-
yrði fyrir sannri sálarlausn frá
synd. MeS áherzslu mætti taka
það fram, aS í allri ritningunni,
þar sem talað er um trú til endur-
lausnar, þar er iðrun tekin fram
líka. “Að sönnu hefir guð séS í
gegn um fingur við vanvizkunn-
ar tíðir, en nú lætur hann- öllum
mönnum alstaðar bjóSa, aS þeir
taki sinnaskifti.” Iðrun er einnig
nauðsynleg til fyrirgefningar. —
Þetta er sannreynt hugsunarfræð-
islega, ritningarlega og siöferðis-
lega.
Það er hugsunarfræðislega satt
vegna þess aö slíka trú er ómögu-
legt að öðlast án iðrunar, þess
vegna getur sá, sem ekki iðrast,
ekki heldur öSlast fyrirgefning.
Það er einnig ritningarlega satt.
Oftar en einu sinni áminti Pétur
fólkiS (á hvítasunnudag) um að
iðrast, svo það mætti öðlast fyr-
irgefning. “Takið sinnaskifti, og
hver yöar láti skíra sig til nafns
Jesú Krists, til fyrirgefningar
syndanna” éPost. 2, 38). “Ef vér
viöutkennum syndir vorar, þá er
hann trúfastur og rétt"ís, svo að
hann fyrirgefur oss syndimar”
(,. Jóh. 1, 1). Hið sama kennir
gamla testamentið. ‘ Sá, sem hvl-
ur syndir sínar, skal ckki blessast;
en sá, sem kannast við og lætur af
jrtim, skal miskpnn óðlast.” —
“Hinn óguðlegi láti af sinni breytni
og illvirkinn af sinni hugsun, og
snúi sér til drottins, þá mun hann
miskunna honum, og líta til vors
guSs, því hann er fús á að fyrir-
gefa.”
Þegar Kristur byrjaði aS kenna,
sagöi 'hann: “Iðrist, því guðs
ríki er nálægt.” Jóhannes skírari
prédikaði einnig hinn sama sann-
leika. Kristur kendi lærisveinum
sínum, að iðrun og synda fyrir-
gefning skyldi Ikend verða öllum
þjóðum í sínu nafni.
I þriöja lagi er það siðferðislega
satt, aS iðrun er nauðsynleg til að
öðlast fyrirgefning.
Það er vel skiljanlegt, að sú
kenning að segja mönnum að eins
að trúa, fær góöar undirtektir, án
þess að kenna þeim að láta af
syndunum. Það er einmitt það,
sem syndaeölið kýs: Trúarbrögð
með synd, og ef mögulegt væri
mundi margur klifra til himins
meö Krist í annari hendi, en heim-
inn í hinni. Sá sem syndina elsk-
ar, vill ekki heyra prédikað um
iðrun, og er illa við aö sú kenning
skuli eiga sér stað í guðs orði.
Óskar heldur eftir trúarbrögðum,
sem leyfa honum að ganga á sín-
um eigin vegum, að tala og
þvaðra heimskulega, taka þátt í
skemtunum þessa heims, og skreyta
sjálfan sig meS gulli, perlum og
fjöðrum m. m., aö vera bundinn
viS og eiðsvarinn inn í leynifélög,
og í stuttu máli: “aka seglum eft-
ir veðrinu.”
En hversu beis'kur, sem sann-
leikurinn sýnist vera, þá er það
með ÖIlu ómögulegt, að ávinna
guðlega náð án iðrunar, því
hvernig getum vér búist við að
heilagur guö geti fyrirgefiö þeim,
sem ekki vilja skilja við synd? Ef
svo væri, væri guS þá ekki sjálfur
að taka á sig yfirbragð syndar-
innar og reynast þannig óverðug-
ur að kallast óumræðilega heilag-
ur guð? Fyrir utan það mundi
maðurinn þá ekki vera neitt betri
en hver annar, ef honum væri leyft
Hggja í synd.
Lesari. Hefir þú fundið til
beiskju iðrunarinnar? Ef ekki,
þá máttu vera viss um, aS þú ert
ekki á leiðinni til himins. “Nema
þér iSrist og bætið ráð yðar, mun-
uð þér allir eins fyrirfarast.”
Þegar djöfullinn getur ekki að
öllu leyti komið í veg fyrir, að
maðurinn leiti guðs, reynir hann
að tæla syndina í einhverja ranga
átt, eSa koma mönnum til aö játa
einhver þau trúarbrögð, sem ekki
hafa í sér lifandi sálar frelsi. Á
þessum þægilega alþjóðarvegi, er
engin hjartasorg út af syndunum,
enginn sálarþungi, engin tár, eng-
in bæn, eða aðskilnaöur frá synd-
inni, né sameining við guð. Alt,
sem nauðsynlegt er álitið, er að
eins að krjúpa niður, og sumstaö-
ar er ekki einu sinni svo mikiö á-
litið nauðsynlegt, aö eins að rétta
upp höndina og láta biðja fyrir
sér. Svo er fólki rðlagt, að inn-
ritast í kirkjuna, og játa trúar-
brögðin.
Ef þú klæðir þig eins og heim-
urinn áður, talar og breytir eins,
þá máttu gjöra þaö eins nú. Á
þennan hátt er þitt holdlega sinn-
afyi hugaffar alls ómakslaust.
Þessi vanans vegur lætur alt eftir
holdi og blóði, og 'kallar: friður,
Ifriður, og kæfir meövitundina á
meðan að í sannleika að sálin er
vafin böndum daúSans.
handa öllum af hinu rétta tagi.
Þú vilt ekki fara i gegn allslaus.
Það hanga á þér of margar synd-
ir og goö, og þetta gjörir þér ó-
mögulegt aö komast í gegn. Þín
leynifélög, aldarháttur, þessa heims
fjaðrir, tóbak, og þínir óguðlegu
vinir geta aldrei komist inn um
þetta þrönga hlið. Drottinn, sem
veit hversu erfitt er að slíta sig
lausan, segir: “Kappkostið, aö
komast gegn um hið þröngva
hlið.” .
Vér vitum af eigin reynslu, að
það þurfti kappkostun, áður en
vér viljuglega snerum baki viS
veraldlegum vinum, og fengum
vort eigiS dramb og aðrar syndir
undir hælana. Það, sem þú kem-
ur inn um þetta þröngva hlið, get-
urðu t^kið með þér á þrönga veg-
inum. O, hallelúja! Þá hefirðu
rudda braut, öll byrði er horfin!
— En einhver segir: “Þú lætur
trúarbrögðin líta út sem þunga
byrði. Alls ekki. Vér erum ekki
að sýna fram á, hvaS trúarbrögð
eru, heldur aS eins það, sem má
til að gjöra, til þess að eignast
þau. MuniS eftir, að þetta hlið
er ekki hliðið inn í himnaríki,
heldur hliðið inn í kristið líf. Sál
frá Tarsus bað; sannfæring hans
var svo virkileg, að í þrjá daga
át hann ekki né drakk. Drottinn
sendi Ananías til hans, því “sjá,
hann biSst fyrir.” Þetta lítur út
fyrir, að vera svar við bæn. Jes-
ús segir: “Biðjið, og mun yður
gefast.” Sannarlega eru syndar-
ar og þeir, sem horfið hafa frá
guði, innifaldir í þessu hans oröi.
Ó, dýrmæta sál! Ráðfærðu þig
ekki lengur við hold og blóð. Gakk
inn um hiö þrönga hlið, og það
nú þegar.
ÞaS er lifsins sigur. Láttu ekki
draga þig með fjöldanum, sem
segist vera kristinn, án þess að
hafa komist inn um þetta hlið, því
Jesús segir: Hversu þröngt er
þaö hlið og mjór sá vegur, er til
lífsins leiðir, og fáir þeir er hann
finna.
Þýtt úr nesku,
Thora B. Thorsteinsson.
Skarphéðinn J. Snydal.
Fæddur 10. okt. 1867.
Dáinn 29. mars 1925.
Drottinn vor staðhæfir að það,
að eins aö leita sanna vegarins, er
hin mesta villa. Hinn ungi auð-
maöur leitaði slaklega, og fann
ekki. Svo er um þúsundir sálna
á vorum dögum. Vér vildum
óska, að sem fæstir strönduðu á
slíku skeri, sér til eilífrar eyði-
leggingar. En Kristur segir: “Eg
segi yður, að margir munu leitast
við að komast inn, en munu ekki
geta það.” Biblíu iðrun er líkt
við “jDröngva hliðið”, sem meinar,
aö þaö er lágt og þröngt. Þar af
leiðandi erfitt að komast inn.
Hvers vegna? Er það vegna þess,
að guð vilji ekki frelsa sálir?
Nei. Er það vegna þess, aö eng-
inn staður er til á himnum fyrir
þær? Nei. Hliðið er nógu vítt
ton, N. Dak., Skarphéöinn J. Sny-
dal, bóndi aS GarSar, N. Dak. VarS
fljótt um hann; því hálfum mánuSi
eftir aS hann legst, og rétt eftir aS
hann er kominn á sjúkrahúsiS, er
hann látinn. Hann lézt úr innvort-
is kvilla — sem hann kendi orðið
einkum í ár — þ. 29. marz, 57 ára
aS aldri.
SkarphéSinn var fæddur í Dala-
sýslu á íslandi 10. okt. 1867. For-
eldrar hans hétu Jón GuSmundsson
og GuSríður Hannesdóttír. Börn
þeirra voru sex; eru þau systkin nú
dáin öll, nema tvö, sem, á íslandi
lifa. Þegar SkarphéSinn er full-
oröinn, tekur hann sig upp og flyt-
ur vestur, um haf. Hann kom út
hingaS 1891, og settist aö á GarSar,
Hin Eina Hydro
S t eam H eated
BIFREIDA HREINSUNARSTOD
í WINNIPEG
Þar sem þér getiö fengiö bílinn yðar þveginn,
það er aö segja hreinsaðann og olíuborinn á ör-
stuttum tíma, meðan þér standið við, ef svo
býður við að horfa, eða vér sendum áreiðanleg-
an bílstjóra eftir bíl yðar og sendum yður hann
til baka, á þeim tíma er þér œskið. Alt verk
leyst af hendi af þaulvönum sérfrœðíngum.
Þessi bifreiða þvottastöð vor er á hentugum
stað í miðbœnum, á móti King og Rupert St.,
á bakvið McLaren hótelið.
\
Praipie City Oil Company
Limited
Laundry Phone N 8666 Head Office Phone A 6341
N. Dak.; hefir hann aliS hér aldur j
sinn til dauðadags. Tveimur árum j
eftir aö hann fluttist hingað vestur, j
deyr Jón faöir hans heima á íslandi; |
kemur þá Guöríður móöir hans.
hingaS til sonar síns, áriS eftir, og j
er hjá honutn þar til hún deyr. En!
þaS bar viS 14. marz. í ár, um sama j
leyti og SkarphéSinn lagðist banaleg- j
una. 1898 giftist hann Kristínu j
Bjarnason, systur Brandar Bjarna-
sonar og Mrs. J. Hjörtsson á Garö-
ar, og þeirra systkina. LifSu þau
saman í mjög farsælum hjúskap í 27
ár, og eignuSust 12 börn. Eru tiu
þeirra á lífi; hin efnilegustu börn
öll, og flest upp komin. Eru börnin
hans öll heima, nema sonur hans
einn, sem giftur er, Mr. SigurSur
Snydal, og dóttir hans i Seattle,
Wash., Miss Signý Snydal. Og kom
hún aö vestan til aö vera viöstödd
jaröarför föður síns.
Skarphéðinn var viökynnilegur
maður í sjón og reynd, og bezti
drengur. Búskapurinn lét honum
vel; hann var heiSursmaSur mesti,
Ifcg forsjáll, sí-vinnandi, og framúr-
skarandi trúverðugur og ábyggileg-
ur til orSa og verka; enda búnaöist
honum ágætlega, og komst hann
prýðilega af ineö stóra barnahópinn
sinn. Allslaus hófst hann handa, ög
er hann lauk störfum sinum, var
hann búinn að koma á fót heimili,
sem er í fremstu röö allra heimila
byg)5arinnar hvaS afkomu snertir og
allan heimilisbrag. Aö honum lán-
aöist alt svo vel, á hann næst GuSi
aö þakka frábærri ósérhlífni og á-
gætri aðstoð konu sinnar, sem og
þvi, hvaö honum hefir haldist vel á
börnunum sinum öllum. Þarna rikti
æfinlega sá andi aS allir liföu og
störfuðu saman eins og einn maSur
ÍGarSarbygöin á hér á bak aö sjá
sómamanni og myndarbónda, seitl
hún mun ávalt telja í fremstu röö
þeirra Íslendinga, sem hér hafa sezt
aö, til þess aS hefja haoa til þess
vegs og og gengis, sem hún nú
nýtur.
Jaröarförin fór fram 3. apríl frá
heimili hins látna og Garðar-kirkju,
aö fjölmenni viðstöddu.
Gardar, 14'. april, 1925.
Páll Sigurðsson.
—Óskað er eftir, aö þessi dánar- j
fregn birtist á prenti í blöSöm á Is- I
landi.—P. S.
Séra Þorvaldur Jónsson, prœp. hon.
Síra Þorvaldur prófastur Jóns-
son var fæddur ý9. desember 1847 j
að Krossi í Landeyjum, og voru
foreldrar bans séra Jón.Hjartar-
son, og Kristín Þorvaldsdóttir,
prófasts, Böðvarssonar. Hann var
næstelstur toræðra sinna, en þeirl
voru Hjörtur læknir í Stykkis-
hólmi, (f. 1841, d. 1894) Árnl, !
cand. theol,, verslunarstjóri a
fsafirði (f. 1851, d. 1918) og
Grímur, cand. theol. skólastjóri á
ísafirði (f. 1855, d. 1919). Systir
þeirra var frá Þórunn, kona Þor-
valds heitins Jónssonar læknis á
ísafirði. ,
Þeir bræður fluttu með fðður
sínum að Gilslbakka árið 1860 og
voru snemma til menta settir. Þor
valdur lauk Stúdentsprófi 18671
og hlaut 1. einkun Þá var hann
ejnn vetur heimiliskennari hjá
Skúla lækni Thorarensen á Mó-
eiðarhvoli, en tók síðan að stunda
guðfræði og lauk prófi árið 1870
með hárri 1. einkunn. Þá var hann
heimiliskennari einn veltur hjá
Riis kaupmanni á ísafirði, en
prestvígslu tók hann 1871 og gerð
ist aðstoðarprestur séra Benedikts
Eggertssonar í Vatnsfirði, föður
Eggerts í Laugardælum, en ári
síðar varð hann aðstoðarprestur
föðursíns á Gilóbakka. Vorið 187?>
var honum veitt Setbergspresta-
kajl á ISnæféíjlsnesi og jþá um
haustið kvæntist hann þórdísi
dóttur Jens rektors 'Sigurðssonar,
hinni mestu merkiskonu. Sex ár-
um síðar var honum veitt Eyrar-
prestakall, og fluttist þá til ísa-
„Þjáðist mjög í bakinu ernú heilbrigð
Mrs. WiHiam Walkcr, Wellwood, Ont., skrifar:—
“Eg þjáðist mánuðum saman
af magaveiki og fylgdi henn ó-
^þolandi bakverkur. Hélzt eg
ítundum varla við í rúminu um
nætur. Eg þandist upp af gasi
og misti matarlystina aö heita
mátti. Læknirinn gaf mér hin
og þessi meööl, en árangurslaust.
AÖ lokum fór eg aö nota Dr.
Chase’s Kidney-Liver Pills, og
þótt eg hafi ekki notaS nema úr
þrem öskjum, er eg orðin al-
heil.”
DR. CHASE’S
KIDNEY-LIVER FILLS
60 oents hylkið, hjá lyföslum eða Kdmanson. Bates & Co., Ltd. Toronto
Ingibjörg Einarsdóttir
frá Koti (Innrafirði) i Mjóafirði í Suður-Múlasýslu
á íslandi, dáin aðfaranótt 18. apríl 1925.
Nú kotbæinn íslenska finnur þú fyrst
við fjallshlíðar hrjóstrugu rætur;
Iþar hafðir þú ástvini elskað og mist
og andvaka grátið um nætur.
Þú barðist til sigurs um æfinnar ár,
iþó örlögin vektu þér sorgir og tár.
IHve sefandi var ei þín móður-mund
— eg minnist þess ætíð á vorin,
og þó að hún hvílist nú stirðnuð um stund
og stirni í tárvotu sporin;
Þú barðist sem hetja í öll þessi ár,
þó örlögin vektu þér sorgir og tár.
A. E. tsfeld.
18. apríl. 1925.
fjarðar og þjónaði því prestakall!
34 ár, en var veitt lausn frá
prestsskap vorið 1915, en gegnd!
þó embættinu til hausts, í fjar-
veru eítirmans síns. Prófastur
var hann í 24 ár og gegndi ýmis-
legum öðrum trúnaðarstörfum alt
til þess er hann lét af embætti.
Séra Þorvaldur misti konu sína
15. október 1910. Höfðu þau eign-
ast fjögur börft, tvo sonu og tvær
dætur, en ekldi eru á lífi nema dótt
ir þeirra, frú Krrstín, kona Sig-
urjóns Jónssonar alþingismanns.
Hin börnin tvö dóu í æsku, bræð-
urnir Jón og Björn, en Ólöf dóttir
þeirra andaðist 19 ára gömul ár-
ið 1900. I
Árið 1916 fluttist séra Þorvald-
ur til Reykjavíkur með tengda-
syni sínum og dóttur og dvaldist
hér fram til ársins 1920, en flutt-
ist þá með þeim til ísafjarðar og
var hjá þeim til dauðadags
9. féhrúar síðastliðinn.
öllum, sem kynni höfðu af séra
Þorvaldi og þeim bræðrum hans,
mun hafa fundist mikið til um
gáfur þeirra, fróðleik og vitsmun!.
Þó mun séra Þorvaldur hafa verið
þeirra mestur námsmaður. Hann
var einkanlega sðgufróður og lat-
ínumaður ágætur. Nokkrum
mönnum kendi hann undir skóla,
og var hann frábærlega góður
kennari. Embættisverk sín ræktl
hann af svo mikilli skyl^uræknl,
að mjög var orð á því gert, og
hefir hann ugglaust misboðið
heilsu sinni hin síðari prestsskap-
arár sín á emlbættisferðum til
Bolungarvíkur, sem eru bæði
mjög erfiðar og hættulegar, neraa
yfir hásumarið. Hann var góður
kennimaður og sýndu sóknarbörn
hans honum opinberar sæmdir
begar hann lét af prestsskap og
eins þegar hann fluttist til
Reykjavíkur.
Síra Þorvaldur var mikill mað-
fyrirmannlegur, Ijúfur í viðræð-
um og skemtinn einkanlega í fá-
menni, eða undir fjögur augu.
Mjög var hann gestrisinn og góCur
heim að sækja, trygglyndur og
innilegur vinum sínum jafnt í orð-
um sem bréfaskiftum.
Hann var jarðsunginn siðast-
liðinn mánudag, á fssfi-ði, vlð
mikið fjölmenni, og töluðu þeir
yfir moldum hans séra Páll pró-
fastur ólafsson í Vatnsfirði og
séra Sigurgeir Sigurðs«on.
Vísir 5. marz. 1925.
“@JadiaNC5jb"
QVhisky
I
F.XCURSIONS
Frá 15. Maí til 30. Sept. Gilda til afturkomu 31. Okt.
AUSTURCANADA VESTUR AÐ HAFl
Austiii'-Oana/la fcrð innlfelur í sér að velja má nm tovort lieldur ferða«t skal með jámbraut alla ldð eða með júmtoraut og vötnmn. IIEIMSÆKTÐ MIXAKT THE IIIGHLANDS OF ONTATUO NIAGARA FALLS THE 1,000 ISLANDS THE ST. IjAWREN CE THE MARJOTME PROVINCES Fárra daira viðdvöl í * JASPER NATIONAL PARK Skemtið yður við Golf, I4ifr*'iðaf<‘rðir. fjallgöng- ur, KÖngntúra, á smáliátiun, við siiml, Ti'nnis- leiki og dans. JASPKR PARK LODGE HÝSIR GESOT pRtHYKNINGS FKIUHN Hvort heldur með járnbraut eða á sjónum. Farið er á járnbraut frá Mt. Robson I>ark til Prinee Rupert. Aukaferð til Ala.ska etnnig; innifalin, ef vill. Suður til Vancouver, 550 mllna vegalengd á beztu hafskipum. Fara má og með járnlbraut frá Van- oouver, þriðja liðinn af þríhyrningaum, norður gegn um Fraser ár da'linn og Thompson dalinn til Jasper National Park.
A8 sigla á vötnunum frá Port Arthur, Fort William og Duluth, er einn af allra skerrutileg- ustu itlmum. Skipin (S.S. “Noronic”, ‘‘Hamonic", ‘IHuronic”), sem tilheyra Northern Navigation Co., fiytja yður hvert aem þér viljið sameinast járnbraut til Austur Canada.
Allar upplýsingar fást lijá umtooðsniöunum
CANADIAN NATIONAL RAILWAYS