Lögberg - 21.05.1925, Side 7
/
LOGBKRG, FBMTLTDAGINN. 21. MAl 1925.
Bla. 7
Til kjósenda í Saskatchewan!
Styðjið með áhrifum yðar og atkvæði Dunningstjórnina, sem veitt hefir málefnum
yðar forystu, með trúmensku og ráðvendni. Dunningstjórnin hefir reynst hagsýn og
framkvæmdarsöm stjórn. Skuldir Saskatchewan fylkis eru lægri á mann, en í nokkru hinna
Vesturfylkjanna. Og skattarnir á mann eru lægri, en þekst hefir nokkru sinni í nokkru
öðru fylki yesturlandsins. Stjórnarstarfrækslan hefir öll verið bygð á heilbrigðum grund-
velli. Stjórnarformaðurinn sjálfur hagsýnn, ungur bóndi, með víðtæka reynslu á sviði
viðskiftalífsins og félagar hans í ráðuneytinu allir saman úrvalsmenn, sem bera ásamt
leiðtoga sínum, hag fylkisins fyrir 'brjósti.
Það er nú viðurkent frá hafi til hafs, að engin fylkisstjórn í Canada sé jafngóð, hvað
þá heldur betri en Saskatc'hewan stjórnin, -ú stjórn, er nú leitar stuðnings yðar á ný. Frá
því að síðustu fylkiskosningar fóru fram, haii? bér lýst trausti á stjórninni með því að velja
fulltrúa úr hennar flokki í níu aukakosningum.
Þótt hart hafi verið í ári og við margvíslega örðugleika að stríða, þá hefir Dunning-
stjórnin þó veitt málefnum yðar ágæta forystu, með ótrúlega litlum tilkostnaði. Hérumbil
tvö þúsund mílur af þeim sjö þúsund mílna þjóðvegum, sem iijnan vébanda fylkisins
liggja, eru komnar í ákjósanlegt horf og í raun og veru má segja, að þjóðvegir allir, að und-
anteknum svo sem níu hurtdruð mílum, séu í besta ásigkomulagi. Fé því, sem jafnað hefir
verið niður á milli hinna einstöku sveitarfélaga, hefir verði skift svo jafnt, að andstæðingar
stjórnarinnar hafa reynt að afla sér fylgis með að benda á, að hlutdrægni sé hyergi að finna
i ráðstöfunum Dunningstjórnarinnar og þessvegna skifti það minstu máli, hvbrt sticrnar-
fylgjandi eða stjórnarandstæðingur nái kosningu.
Hérumbil þriðjungur af öllu því fé, sem stjórnin eyðir, gengur til mentamálanna,.
fjórir fimtu allrar uppæðarinnar er peningaframlag til skólahéraðanna.
Stjónin í Saskatchewan leggur árlega fram meiri peninga til skólahéraða, en viðgengst
f nokkru öðru fylki, innan fylkjasambandsins.—
Landbúnaðarmálin hefir stjórnin styrkt með lánum til hinna ýmsu fyrirtækja, svo
sem Wheat Pool, The Saskatchewan Co-operative Elevator Company, The Saskatchewan Co-
operative Creameries, sem bændur fylkisins stjórna að öllu leyti sjálfir. Saskatchewan-
stjórnin hefir hlynt meira að samvinnuhreifingunni, en nokkur önnur fylkisstjórn innan vé-
banda hins foreska veldis.
Alls hefir foændalánsnefndin — Farm Loan Board, lánað foændum um tíu miljónir dala,
gegn sex og ihálfum af hundraði.
Mörg þúsund foænda, sem átt hafa í stímabraki við lánardrotna sína, hafa komist að
hagkvæmum samningum fyrir tilstilli Debt Adjustment skrifstofunnar.
Með framúrskarandi varfærni á sviði fjármálanna, hefir Dunningistjórninni tekist að
spara $1,267,000, eða tuttugu og einn af hundraði síðastliðin tvö ár. Hefir þetta verið gert
' með því að fækka stjórnþjónum og draga á annan hátt úr hinum viðráðanlegu útgjöldum.
Stjórn, sem svo vel hefir verið að verki, verðskuldar sannarlega traust almennings og á
því að vera endurkosin.
Það er margsannað, að fram úr fjárhagsörðugleikunum verður sjaldnast ráðið með því
einu að skifta um stjórn. Stjórnarskifti hafa oft leitt til þess, að styrkur til sveitarfélaga
hefir lækkað, en skattar aftur á móti hækkað til muna.
Við lok síðasta fjárhagsárs, nam tekjuafgangur Saskatchewan fylkis, $36,361,00. 1 einu
tilfelli þar, sem skift var um stjórn, nam tekjuhallinn $167,228.00, en í öðru 620,800.
Greiðið atkvæði með stjórn, sem sýnt hefir fyrirhyggju, sparsemi og framkvæmdir á öll-
um sviðurti, stjórn, sem æ og æfinlega ber hag yðar allra jafnt fyrir brjósti!
Hún var neydd til að
leggjast í rúmið.
Þá fór Mrs. J. Derocher að nola
Dodd’s Kidney Piils.
Quebec-kona þjáðist af nýrna-
sjúkdómi, og læknaðist algcr-
lega við að nota Dodd’s Kidney
r iiis.
South Stukely, Que. 18. maí
(einkafregn).
Það að fólki foatni nýrnaveiki
með því að nota Dodd’s Kidney
Pills ,er enn einu sinni sannað,
með vitnisburði Mrs. J. Derocher,
velmetinnar konu hér á staðnum.
Hún skrifar:
“Eg fékk snögglega veiki, sem
eg hugði í fyrstunni, að ekki
myndi vera alvarleg. En í síðast-
liðnum marzmánuði ágerðist hún
svo mjög, að eg gat ekkert unnið.
Leitaði eg þá læknis og sagði
hann mér, að nýrun væri í ólagi.
“Eg varð að fara í rúmið. Eg
hafði Dodd’s Almanak í húsinu og
las í því nokkra vitnisfourði, fékk
eg mér svo þrjár öskjur af Dodd’s
Kidney Pills og eina öskju af Dia-
mond Dinner Pills.
“Eg get fullvissað yður um, að
meðul þessi veittu mér á skömm-
um tíma, fulla heilsulbót.”
Sigurður Kr. Eyford
fæddur 10. ág. 1851 — dáinn
4. maí 1925.
Látinn er á Eyford, N. Dak.
sómamaðprinn og merkisfoóndinn
Sigurður Kristjánsson. Yfir 20 ár
hafði hann þjáðst af brjóstþyngsl-
um (Asthma). Lá hann oft rúm-
fastur árum saman, og tók mikið
út, en komst á fætur og hafði við-
þol annan slaginn. Feikin öll var
það, sem hann var foúinn að líða,
og var honum því orðið hvíldar-
innar þörf, þá er hún loksins kom
4. þ. m. Var hann þá 73 ára að
aldri.
Hann var Eyfirzkur að ætt, son-
ur Kristjáns — móðurbróður séra
Valdimars Briem — Þorsteinsson-
ar Gíslasonar frá Stokkahlöðum,
og er fæddur í skagafirði 10. ág.
1851. Systkini hans voru 10 —
hann það 11. —, sem nú eru öll
dáin, nema Kristján Kristjánsson
foóndi í Eyford-foygð, sómamaður
mesti, og Kristín systir hans: Mrs.
Skarrow.
Sigúrður sál. var í foreldrahús-
um til 17 ára aldurs. Eftir það er
hann í vinnumensku í 10 ár. Til
Ameríku flytur hann 1882 og er
þá foúinn að lifa hér rösk 40 árin,
sem hann hefir ölluin eytt í Eyford-
bygðinni í N. Dak.
Hann var tvíkvæntur. Fjjrri
kona íians var Halldóra Guðna-
dóttir. Giftist hann henni nokkrum
árum áður en hann flutti vestur
um haf, og átti með henni tvo
sonu; þá Benedikt og Kristján.
Benedikt er fæddur á íslandi og
kemur með foreldrum sínum hing-
afi foarn að aldri. Hann er dáinn
hér fyrir nokkrum árum, og hefir
látið eftir sig konu og foörn.
Kristján bróðir hans er fæddur
hér, og er nú bóndi í Sask. Fáum
árum eftir að hingað er komið
missir Sigurður sál. konuna, og
giftis^ þá aftur fljótlega. Varð
seinni kona hans Oddný Gísladótt-
ir, sem lifir mann sinn. Er hún
vönduð ágætiskona, myndarleg.
ráðsett og greind. Hefir hún stað-
ið fráfoærlega vel í stöðu sinni, og
stundað heimilið sitt og dauðvona
manninn sinn með stakri snild.
Börn þeirra eru fjögur og óll á
lífi: Magnea og Sigurður, sem
heima eru, og Guðrún: Mrs. Guð-
mundson á Gardar, N. Dak. og
Gíslína: Mrs. Gilbertson í Minne-
sota.
Hjónum þessum búnaðist vel og
bjuggu þau myndarbúi. Það sem
sérstaklega hlýtur að hafa vakið
eftirtekt þeirra, sem að garði bar
og kyntust þeim, var prúðmcuíkan,
og snyrtimenskan, sem á o'.Iu var
utan húss og innan, og gestiúsn-
in. Fór þar saman rausn og risna.
Mátti þar sjá eitt af prýðisheim-
ilum þeirrar bygðar.
Sigurður sál. var sannur Islend-
ingur og alíslenskur í lund. P.ösk
40 árin hér vestan hafs sýnaust
hafa haft lítil áhrif á það. Andi
hans lifði fremur á íslandi en í
Ameríku. Þar var hann með hug-
ann öllum stundum; þar fylgdist
hann með af áhuga, öllu því er
hann gat; sílesandi var hann ís-
lenskar foókmentir; og um hag og
horfur íslands vildi hann hty^sa
og tala. Eg hygg hann verið hafa
einn af þeim, sem öðrum fremur
finnur til þess að hafa, með
Af hverju Ford
er utbreiddasti billinn
FRA MLEIDSLA
Pað er framleitt margfalt meira af
Fordbílum en nokkrum öðrum bíl-
um
Hin aukna framleiðsla gerir kleift
að lœkka verðið, án þess að draga
úr gæðum.
Aðferðin við framleiðslu Ford-bíla,
leyfir engar tilslakanir, hvað gæðum
viðkemur.
Meir en 10 miljón mannseiga Ford-
bíla, og sannar reynsla þeirra þessi
ummæli.
Finnið næsta Ford umboðsmann
Bílar
Flutniogsbílar
Dráttarvélar
straumum lífsins, borist fðður-1
leifðum sínum fjær.
Hann var ljúfmenni mesta, j
sómamaður og hetja. Kom ljúf-j
menska hans fram í alúð þeirri og |
einlægni, er hann ávalt sýndi þeim j
sem honum kyntust, og í trygg- j
lyndi hans og vinfestu til allra i
sinna vina. Hann sómdi sér sér-1
lega vel sem foóndi og nágranni!
sevitunga sinna. 1 engu vildi hann
vamm sitt vita, og hvað sem hann !
tók sér fyrir hendur, hvort heldur
fyrir sjálfan sig, aðra, eða sveit- j
arfélagið, sýndi hann í hvívetna
staka trúmensku, og var að hon-
um styrkur og stoð í ýmsum grein-
um. En sem hetja sýndi hann sig
einkum í hinum langvarandi og
viðþolslausu kvölum, sem hann
bar með svo frábæru þolgæði og
sálarprýði, þar sem aldrei heyrð-
ist æðruorð, að engu er likara en
“hetjuhug er til himins stefnir.”
Að honum látnum má um hann
með tsanni segja:
“Við sæld og þraut, við sorg og
eftirlseti,
með sæmd og æru fyltir þú þitt
sæti.”
Jarðarförin fór fram á Moun-
tain N. Dak. 7. þ. m. ,að afarmiklu
fjölmenni viðstöddu, og var hann
jarðsunginn af þei.n sem línur ,
þessar ritar.
Páll Sigurðsson.
Frá Islandi.
Frost um land alt. í Reykjavík
5 st., Vestmannaeyjuml. ísafirði
0, Akureyri 6, Seyðisfirði 5,
Grindavík 4, Stykkishólmi 1,
Grímsstöðum 10, Raufarhöfn 8
Hólum í Hornafirðj 1, Þórshöfn í
Færeyjum hiti 6, Angmagsalik j
frost 16 (í gær), Kaupmannahöfn !
hiti 4, Utsire w6, Tynemouth 7,
Wick 7, Jan Mayen frost 5 st.
Mest frost í gær 7stig.—Loftvægis-
lægð fyrir norðan land. Veðurspá:
Norðvestlæg átt á Austurlandi,
vestlæg átt annrasstaðar. Hægur
á Suðuylandi.
Bláskógar heitir Ijóðabók, sem
verið er að prenta eftir Jón Magn-
ússoi; skáld, sem kunnuv er orð-
inn af ljóðum sín'.m og minst hef-
ir verið á hér í blaðinu áður.
Bókin kostar 5 kr„ ef menn gerast
áskrifeijdur. *
FRÁ HVAMMSTANGA.
Tíðarfar hefir verið dágott að
öðru leyti en því, að það hefir
verið mjög stormasamt eins og
viíða annars staðar. Hagar hafa
verið fyrir fé, og hross aldrei
tekin inn, nema þau, sem hafa
verið í notkun. Verslun er hér í
dágóðu lagi. Er hér kaupfélag og
fimm kaupmenn. Kaupfélagið stóð
sig illa á árunum 192p—23 en er
nú að rétta við aftur. Stærstu
verslunina hér hefir Sigurður
kaupmaður Pálmason. — Hér á
Hvamstanga var haldi búnaðar-
námskeið í vetur og voru þessir
kennarar: Sig. Sigurðsson ráðu-
nautur, Árni G. Eylands ráðunaut-
ur og Metúsalem Stefánsscn.
Námsskeiðið var vel sótt.
Jóhannes Nordal íshússtjóri, er
75 ára í dag ,unglegur enn og létt-
ur í spori.
Sakamálarannsókn hefir dóms-
málaráðuneytið skipað að höfða
gegn Alþýðulblaðinu fyrir guð-
last, sem foirst hafði þar í að-
sendri grein nýlega.
Þrjú línuskip komu hingað í
gær, samflota frá Englandi. Þau
heita svo: Þuríður sundafyllir.
Fróði og Hafþór. — Eipendur eru:
Sigurður Þorvarðarson í Hnífsdal
o. fl„ Jóhann J. Eyfirðingur & Co.
“Líður vel, og stunda störf mín”
Mrs. JValter Grieves, Coe Hill, Ont., skrifar—
“Eg var orðin svo heilsuveil, að eg gat ekki lengur sint innan-
hús-verkum mínum. Gat ekki sofið á nóttunni og læknirinn hafði
engin ráð 'meðc að hjálpa
mér. Loksins reyndi eg
Dr. Chase’s Nerve Food og
nú er eg heil heilsu.
“Litla stúlkan mín hafði
eczema og engin meðöl
komu að haldi, fyr en eg
fékk öskju af Dr. Chase’s
Ointment og . það meðal
hreif.”
DR. CHASE’S NERVE FOOD
60e. askja af 60 pilliun, Kdmanson, Bates & Co„ Ijt<l„ Toronto.
«
Magnús Thorberg o. fl.
Akureyri, 9. apríl, 1925.
Verslun Snorra Jónssonar hefir
höfðað mál gegn Krossanesverk-
smiðjunni út af síldarmælingu
síðastliðið sumar. Sáttafundur
reyndist árangurslaus. Er þetta
fyrsta málhöfðunin út af síldar-
mælingunni, en foúist við að fleiri
muni eftir fara.
Sýslunefndir Eyjafjarðarsýslu
og Suður-Þingeyjarsýsly leggja
fram kr. 5000 hvor í heilsuhælis-
sjóðinn. Sýslunefnd Skagafjarð-
arsýslu synjaði. Búist við góðum
undirtektum af. sýslunefnd Norð-
ur-Þingeyjarsýslú. Bæjartsjórn
Akureyrar, Kaupfélagið á Kópa-
skeri gefa kr. 2000 hvort. Fjár-
söfnun gengur yfirleitt vel.
Vísir 8. apríl. '925.
FRÁ SEATTLE.
Framh frá bls. 2
Sask. Canada, kom hann, hingað
til að vera viðstaddur útför Torfa
sonarsíns, sem dó á svo sviplegan
og sorglegan hátt þ. 15. þ. m. af
bifreiðarslysi á ferð nokkuð fyrir
norðan Seattle; dauða Torfa heit-
ins bar að næstum augnafolikslega.
Hann var aðeins 34 ára gamall, og
því rétt í blóma lífsins, og hinn
mannvænlegasti maður. Foreldrar
og allir aðstandendur hins látna
hafa um sárt að binda út af þeim
sorgar atburði. Útförin fór fram
þ. 22. þ. m. undir umsjón bræðra-
félagsins “Elks” er hinn látni
heyrði til, og var æðsti embættis-
maður Ballard stúkunnar, upp til
1. þ. m.; “Exalted ruler.” Útförin
var einhver sú viðhafnarmesta,
sem hér hefir sést. Nokkrir fleiri
íslendingar hafa dáið hér nú i
síðustu tíð og skal eg tilnefna þá
er eg*man og veit um, sem fylgir:
Ungfrú Sigríður Sumarliðason, 50
ára, 7 mán. og 25 daga gömul, lést
þann 21. febr. s. 1. — Þann 28
marz s. 1. dó Steingrímur Krist-
jánsson 72 ára og þann 16. þ. m.
andaðist ekkjan Kristín Thórson j
á annan dag páska 73 ára gömul;
— og af því eg hefi hvergi séð í
íel. folöðunum getið um lát Sigur-
jóns Jónssonár er dó 14. janúar i
vetur 1 Marietta Wash. að heim-
ili sínu þar. Sigurjón heitinn var
ekkjumaður, kominn yfir sjötugt,
var einbúi í mörg undanfarin ár,
átti víst fáa eða enga ættingja á
lífi hér í landi, fluttist fyrir 25 tíl
30 árum síðan frá Minneota í
Minnesota til Marietta, Wash.
keypti þar fáar ekrur af landi og
fojó þar alt af til dauðadaga; nokk-
uð mörg ár framan af var dóttir
hins látna hjá honum, þar til hún
dó frá honum, lifði Sigurjón mjög
einmanalegu lífi eftir það, og dó
úr blóðrás.frá höfði “Hemorrage”
hinn fyrnefnda dag, í einveru, án
nokkurs manns nærvprandi. Eg
var staddur á næstu grösum við
S. þegar hann dó og var einn af
þeim, sem báru hann til grafar. Eg
þekti hann í Minnesota og kom oft
til hans í Marietta. Hann var einn
af þeim glaðlyndustu og geðspök-
ustu mönnum, sem eg hefi kynst.
ráðvandur og saklaus alla æfi.
Hann var jarðsunginn af norsk-
um presti frá Bellingham; 4 ís-
lendingar og 2 Norðmenn bám
hann til grafar. Útförin fór fram
á heiðarlegan hátt.
Fjórir menn héðan úr foorginni
lentu í sjóhrakningi seint í febr.
s. 1., voru þeir úti á reginhafi
norður af Vancouver Island við
sprökuveiðar þegar ofsa veður
skall á, vél skipsins foilaði og akk-
erið gat ekki haldið skipinu föstu
og alt dreif til hafs, tóku þeir þá
litla fleytu er á dekkinu stóð og
fóru allir í hana og eftir langan og
harðan þrakning komust þeir und-
ir land i British Columbia, en
fkvtunni hvolfdi þegar þeir voru
l meira en hurtdrað faðma frá
I landi, samt fórst enginn, fleytu og
i mönnum -kolaði til lands með
brimiildununí sem ráku hver aðra
með ofsa afli og hraða Einn ís-
lendingur var i þessari för, Ey-
björn Erlingsson ‘o? 3 Norðmenn.
Mr. Erlingsson hefir haft við orð
að senda Winnipeg-blcðunum ná-
kvæma lýsingu af hrakr.;ngsferð
þessari síðar meir, sem varð reglu-
legt æfintýri fyrir þá alla. —
Glímufélag er ný-stofnað hér i
Ballard af tveimur ungum mönn-
um, glímukappanum Karli Magn-
ússyni og Guðmundi B. Guðmunds-
syni, húsp-Iáss hafa þeir leigt hjá
svensika bræðrafélaginu “Vasa”
útbúnaður góður, öllum er boðið
að mæta þar einu sinni í viku, er
þátt vilja taka í glímum og æf\
6ig í þeirri list., “Vestri” á upp-
tökin að þessari stofnun og kaus
nefnd í það mál. Meira ver^ur
þessa íþróttafélags minst síðar.
H. Th.
Mikil huggun þreyttu og
taugaveikluðu fólki.
Ný forskrift.
sosja meðal (H-ttiv stórmerkilegt
<>S' ágíiptt vi?i áðiiT-nefiKÍum
kvillum.
pösundir manita munu sannfærast
um, að meðal þetta veitir bata á fá-
um dögum. pér ættuS aS reyna þaS,
ef þér finniS til taugaveiklunar eSa
þreytu, ef avefn ySar er ekki sem
reglulegastur. MeSaliS heitir Nuga-
Tone. Bf þér finniS til stíflu, eSa
skóf er á tungu ySar á morgnana,
þá skuluS þér fá ySur flösku1 af
Nuga-Tone, og nota meSaliS sam-
kvæfmt forskriftinni. Nuga- Tone
veitir gióSa matarlyst, væran svefn
og reglubundna og skarpa meltingu.
Vér erum þeirrar skoSunar, aS ekk-
ert meSal verki eins fljótt og Nuga-
Tone,1 FVam 1 e iS en du r Nuga-Tone
þekkja læknismátt þess svo vel, aS
þeir hafa faiiS lyfsölum aS ábyrgj-
ast þaB, efia skiila peningum aftur aS
öSrum kosti. MánaSlar skerfur kost-
ar um $1.00. Fæst hjá öllum g68-
um rlyfsölum.
EXCURSJOJVS
Frá 15. Maí til 30. Sept. Gilda til afturkomu 31. Okt.
AUSTUR CANADAj VESTUR AÐ HAFI
Austur-CuUada ferð tnnlfelnr í sér aS vclja má lun hvort heldur ferðast skal með járnbraut alla leið eða með jámbraut og vötnum. ‘ HKiMSÆKII) MINAKT THE IIIGHIíANDS OF ONTARIO NIAGARA FAIiI.S THE 1,000 ISLANDS THE ST. LAWRENCE THE MAIUTIME PROVINCES Fárra doga vlð«lvöl i JASPER NATIONAL PARK Skemtið yður við Golf, IHfrelðttferðlI,, fjallgöng- ur, göngtitúra, á smábátum, við SUnd. Tennls- leikl og dans. JASPER PARK'IiODGE IIÝSIlt GESTI
pRfirVRNINGS FKRÐIN Hvort heldur með járnbraut eSa á sjónum. FariS er á járnbraut frá Mt. Robson Park til Prince Rupert. Aukafcrð til Alaska einnÍR innifalin. ef vill. Suður til Vancouver, 650 mílna vegalengd á beztu hafskipum. Para má og (með jámibraut frá Van- couver, þriðja Jiðinn af þríhyrningnum, norður gegn um Fraser ár dalinn og Thompson dalinn til Jasper National Park.
AS sigla á vötnunum frá ,Port Arthur, Fort William og Duluth, er einn af allra skemitileg- ustu timum. Skipín (rS.S. “Noronio", “Hamonie", "IHuronic”), sem tilheyra Northern Navigation Co„ flytja ySur hvert sem þér • viljiS sameinast járnbraut til Austur Canada.
Allar uppiýslngar fást hjá umboSsmönnum
CANADIAN NATIDNAL RAILWAYS