Lögberg - 28.05.1925, Page 5

Lögberg - 28.05.1925, Page 5
LÖGBERG, MMTTJDAGINN, 28. MAÍ 1925. 81». S ?DODDS KIÐNEYáj P'LLS M\ Dodds nýrnapillur eru besta nýrnameðalið. Lækna og gigt toak- verk, ihjartabilun, þvagteppu og önnur veikindi, sem stafa frá nýr- unum. — Dodd’s Kidney Pills kosta 50c askjan eða sex öskjur fyrir $2.50, og fást hjá öllu'm lyf- sölum eða. frá The Dodd^s Medi- cine Company, Toronto, Canada. hans var innvortis menisemd, sem þjáði hann mikið síðasta ár og hálft æfi hans. Steingrímur heitinn var 72 ára er hann var kallaður héðan. Hann var fæddur árið 1853 að Krums- hólum í Borgarhreppi á íslandi. Fyrir rúmum þrjátíu árum flutt- ist hann með konu sinni Snjófríði Hjálmardóttur, og börnum þeirra til Ameríku frá Vopnafirði á ís- landi. Þegar til Canada kom sett- ust þau fyrst að á 'Gmili, en flutt- ust svo til Selkirk og seinna til Argyle ibygðar. Þar misti hann konu sína árið 1911. Vestur til Seattle flutti hann fyrir fimm árum og var hér hjá ibörnum sínum síðan, isem önnuðust hann með ástúð og kærleik alt til hins síðasta. Hann lætur eftir sig sex börn, fjórar dætur: Mrs. B. T. ísberg, Baldur, Man., Mrs. W. Leslie, Ed- monton, Alta, Mrs. I. Mattice, Westwood, Calif., Mrs. D. Van- sickle Seattle Wash. og tvo syni: Einar, til heimilis í San Fransisco og Kristján, er heima á hér í Se- attle. Hann á einnig eftir lifandi eina systur og einn bróður á ís- Iandi, en ókunnugt er mér um nöfn þeirra og verustað. Jarðarför hans fór fram frá einni af útfararstofunum í Ball- ard þ. 1. apríl. Hann var jarð- sunginn af prestaskólanemanda Kolbeini Sæmundssyni. Sá er þetta iskrifar var ekki mikið kunnugur Steingrími heitn- um, kyntist honum ekki fyr en rétt undir það síðasta, en það þurfti ekki langa viðkynningu við hann til að finna að hann var stetktrúaður kristinn maður. Hann unni mjög passíu-sálmum Hallgríms Péturssonar og kunni mikið af þeim utan bókar. Hinn þungfbæri sjúkdómskross ihans leiddi skýrlega í ljós traust hans á föðurnum himneska og kærleiks- ríka. Og þegar kallið kom til hans um að flytja héðan var hann á- reiðanlega viðbúinn að hlýða þvi. Ástvinir hans og aðstandendur þakka hér með innilega öllu þVi fólki ,sem á einn eða annan hátt vottuðu þeim hluttekning sína i sðknuði þeirra við burtför hans, og þeir vona að það fái einnig notið þess stuðnings, er það þarfn ast hans mest. K. S, Œfiminning. Steinunn frá Skálum, fædd 9. mai 1858 dáin 6. apríl 1924. 'Smám saman teljast úr lesta- ferð lífs. Leikbræður vorir og systur. Endurminningarnar skipa þeim sem stendur eftir á gatnamótum lífs og dauða, að líta til Ibaka fram í liðna tímann, og renna huganum yfir farinn veg. Það sit- ur því vel á okkur þeim eldri, sem bráðum erum komnir að enda æfi- skeiðs, að stansa svolítið og skygn- ast eftir því hverjir það eru og hvað þeir voru reisubræður vorir og systur, sem nú hafa verið köll- uð úr hópnum, og rfija það upp í huganum jhvort við höfum kvatt þá og þakkað þeim fyrir samfylgd- ina. í þetta skifti benda endur- minningarnar mér á liðna tíð og leiðið þitt, hreinhjartaða, góða reisusystir, Steinunn frá Skálum. Ráðvendni þín til orða og verka hlýtur að verða hverjum, sem þektu þig lengi minnisstæð, ljúf- menska þín var svo sönn og hrein. Steinunn var fædd á Skálum á Langanesi í Norður-Þingeyjar- sýslu, foreldrar hennar voru hin valinkunnu hjón Guðmundur Sig- urðsson og Aðalibjörg Jónsdóttir, sem ibjuggu á Skálum alla sína bú- skapartíð meðan þau voru á Ts- landi, þau voru annáluð af öllum, sem kyntust þeim fyrir gestrisni og alla manngæsku, þessa mann- kosti erfði Steinunn heitin í ríku- legum mæli ásamt fleiri systkin- um, frá foreldrum sínum. Þetta voru dýrmætustu fjársjóðir Skála- hjónanna. óbrothættir og ógleym- anlegir þeim, sem verða þeirra aðnjótandi. Til þessa lands flutti Swedish-American Line T ± T T T f f f HALIFAX eða NEW YORK Ss Drottingham 2. og 3. farrými REYKJAVIK ISLANDI Á þriðja farrými $122.50. GRIPSHOLM 1., 2. og 3. farrými. Fáið farbréf yðar hjá næsta umboðsmanni, eða hjá Ss Stockholm 2. og 3. farrými f f f ♦?♦ f f Swedish-American Line 470 Main Street, WINNIFEG, Phone A-4266 ♦♦♦♦♦♦♦-♦♦♦♦♦♦♦.♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦.♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ? ♦!♦ hún með foreldrum sínum árið 1889 og settist að hjá systkinum sínum, sem þá voru búsett nálægt Grafton N. Dak. þessi eru nú lif- andi systkini hennar, sem fluttu til þessa lands. Aðalmundur og Sigurður vel- metnir bændur í íslemsku bygðinnl við Gardar North Dakota og Val- gerður kona ólafs Jóhannessonar bónda í Winnipegosis, Man., hún andaðist á heimili Aðalmundar, þar hafði hún dvalið lengst síðar. hún kom til þessa lands. Steinunn, þú ert nú gengin til hinstu hvíldar enn minningarnar um þig lifa hjá okkur, sem lifum og vorum þér samferða á lífisleið- inni. Þöikk fyrir samfylgdina, þú varst hreinhjörtuð og kærleiksrík kona. Systkini þín harma þig horfna að sýnilegum návistum, en vonin um samfundi síðar græðir sár- in og sefar tárin. Einn af reisubræðrum hinnar látnu. Ritdómur. Jarðabók Árna Magnússon- ar og Páls Vídalíns. Gefin út af hinu íslenska fræða- félagi í Kaupmannahöfn. 3. ‘bindi. 1.—3. hefti. Khöfn. 1923'—24. Með 2.—3. hefti, sem kom út I sumar er leið, er lokið 3. bindi þessa mikla bg merka ritverks, sem þeir próf. Finnur Jónsson og meistari Bogi Th. Melsteð hafa gefið út fyrir Fræðafélagið. Hef- ir próf. Finnur nú hætt við út- gáfuna vegna annríkis við önnur störf, en Melsteð sór um hana framvegis. Um sjálfa útgáfuna er ekkl nema gott að segja. Þó hefði eg kosið að hún hefði öll verið gerð stafrétt eftir frumritinu, úr þvi það er til. Nú eru yfirskriftir (nöfn) jarðanna stafréttar, en ekki annað. Þetta bindi, sem nær yfir Gull- bringusýslu, mun þykja hvað merkilegast fyrir margra hluta sakir. Á þessu svæði hafa orðið meiri ibreytingar í lifnaðarháttum og búnaði en á nokkru öðru svæðl á landinu. Sem dæmi upp á hvað finna má í bókinni, set eg hér tvo kafla, lýsing á höfuðbólinu Bessastöð- um, og kafla úr lýsingunpi á Reykjavík. Lýsingin á jgessastöðum er svona: “Jarðarinnar dýrleiki þykjast menn heyrt ihafa að verið hafi 12 hundruð. Eigandinn er kongleg Majestat. Hér er amtmannsins resídens og fógetans þá svo til hagar. Landskuld er hér engin né hefir verið í nokkur hundruð ár. Leigukúgildi engin né leigna- gjald. Þareru nú 3 kýr, ásauður enginn, kliárhestur einn, sem skal vera af inventarie, 2 reiðhestar, sem iheýra Monsr. Beyer til. Fóðr- ast kunna þar nú 6 kýr og ekkert meir. Túnið segist að vera 8 kýr- fóðurs vellir og er nú sökum á- burðarleysis og annara vanræktar stórum af sér gengið og víða kom- ið í mosa. Heimilismenn eru nú 19, sem eru: Monsr. Beyer með hans Familie 6, ráðsmaður 1, vinnumenn 7, drengir 2, vinnu- konur 3. Sölvafjöru á jörðin lítils- verða inn við Bessastaðanes, hvör þó ei brúkast. Eldiviðartak af mð var til forna nægjanlegt í Bessa- staðanesi, en tekur nú mjög svo að réna. Engjar eru öngvar. Tún- ið brýtur að sunnanverðu Lamb- húsatjörn, er gengur úr Skerja- firði. Haglendið brjóta flæðiskurð- ir, er ganga úr Bessastaðatjörn norðanvert á Bessastaðaland. Vatnsiból er slæmt og erfitt, og þrýtur jafnlega á þerrasumrum og frostavetrum. Heimræði brúk- ast ekki en skipastaða Bessastaða- manna er í Melshöfða.” Líklega mun þó flestum finn- ast mest til lýsingarinnar á kóngs iörðinni Reykjavík tog hjáleigum hennar, og isvo nágrannajörðunum Nesi, Engey, Laugarnesi o. s. frv. M. a. segir þar um kvaðir þær sem liggja á Reýkjavíkurbóndanum: “Kvaðir eru mannslán um ver- tið, betalast in natura. Tveir dag- slættir í Viðey og fæðir bóndi manninn. Að láta bera fálkana af Víkursandi fram í Hólmskaupstað alla upp á sinn kost, því Álftnes- ingar bera fálkana alllskjaldan lengra en til Víkur. Heyhestur einn til fálkafjár síðan þeir sigldu í Hólmi, fyr ekki. Flutningur hve- nær sem Bessastaðamenn kalla, til lands að Skildinganesi, til vatns fram í Hólmskaupstað. Reiðingur og klyfberi hefir einu sinni heimt- ur verið til alþingis og í té látið, en hvorugt aftur til skila komið.” Örnefnið Bygg-garður, sem er lögbýli í óskiftu Ness heimalandi, sýnir greinilega að þar hefir korn- rækt átt sér stað, eins og áreiðan- lega víðar á þessum slóðum. Það er mjög merkilegt að sjá hvað kvaðirnar til Bessastaðamanna hafa verið miklar og þær hljóta að hafa komið sér oft og einatt mjög illa. Fyrir héraðalsöguna og sérstak- lega f.yrir sögu 'islensks land- búnaðar og menningarsögu er þessi bók eitt af dýrmætustu heim- ildarritum. Er vonandi að Fræða- félagið geti haldið útgáfunni ó- sleitilega áfram. Sigfús Blöndal. Lögrétta 8. apríl. Bifreiðar og mótorhjól 1924. Um síðastliðin áramót telst svo til, að verið hafi bér á landi í notkun 311 bifreiðar og 25 mótor- hjól. Af bifreiðunum voru 154 mannflutningabifreiðar, en 157 vöruflutningabifreiðar. Af ibifreiðunum voru 220 í Reykjavík, eu 62 í Gullbringu og Kjósarsýslu og Hafnarfirði, 8 á Akureyri, 7 í Árnessýslu, 6 í Vest- mannaeyjum, 5 í Mýra- og Borgar- fjarðarsýslu, 2 á ísafirði og 1 á Húsavík. Af bifreiðunum í Reykjaik voru 107 vöruflutningabifreiðar, en 113 mannflutningabifreiðar, þar af 3 manna 1, 4 2 og kassabifreiðar (omnibusar) 8. Fyrir rúmum 2 árum í okt. 1922 voru í Reykjavík 163 bifreiðar, þar af 63 vöruflutn- ingabifreiðar, en 100 amnnflut ingabifreiðar. (Hagtíðindi) Vísir 18. apríl. Sveinn Magnússon. Fimtudaginn 9. apríl. síðastlið- inn andaðist að heimili sínu á Gimli, Man., Sveinn Magnússon, eftir 6 sólarlhringa þjáningar. Hann hafði orðið veikur 2. apríl að kveldi af heiftugri lungnabólgu sem ágerðist unz hann dó að morgni þess 9. apríl. íSveinn var ættaður úr ísafjarðarsýslu í föð- urætt, en móðir hans hét Ragn- heiður Sveinsdóttir, ættuð úr Gufudal í Barðastrandarsýslu. Ólst hann upp í Fremri-Gufudal, í sömu sýslu, hjá frændfólki sínu þar. — Þann 20 sept 1874 kvænt- ist hann Halldóru Guðmundsdótt- ur, ættaðri af hinni vel kunnu Eyrar-ætt í móðurætt, en í föður- ætt skyld Bergi Thorberg lands- höfðingja. Er Halldóra fædd á Brekku í Gufudalssveit. Vori foreldrar hennar Guðmundur Bjarnason og Helga Finnsdóttir Þau Sveinn og Halldóra giftust á afmælisdegi hennar, 20. sept. 1874. var hann þá 29 ára, en hún 24 ára að aldri. Voru þau gefin sam- an af séra Magnúsi Hákonarsyni í Stað í Steingrímsfirði. Síðast- Staliðið haust voru því liðin fim- tíu ár, frá giftingardegi þeirra. A þeim degi söfnuðust ástmenn þeirra og samferðamenn saman á heimili iMr. og Mrs. Björns Jóns- sonar hér á Gimli, til að sam- fagna yfir langri og farsælli æfi- leið þeirra. Var það hinum öldr- uðu hjónum eftirminnilegur dag- ur. — Þau hjón reistu bú á Kálfa- nesi við Steingrímsfjörð og bjuggu þar í fjögur ár. Þá fluttu þau að Kambi í Reykhólasveit,, áttu þau einn fjórða hluta í þeirrr jörð. Þar bjuggu þau í fjögur ár. Varð sú jörð fyrir áföllum af sand- foki. Þaðan fluttu þau að óspaks- eyri við Bitrufjörð og bjuggu þar í þrjú ár, en síðast dvöldu þau a Víði völlum í Staðarsveit eitt ár °g þaðan fóru þau til Ameríku með ihinum svonefnda Borðeyrar- hóp árið 1887 Þau hjón Sveinn og Halldóra eignuðust ellefu börn. Þau mistu átta af þeim í æsku, en þrjú lifa. Eru þau: Mrs. Þuriður Hólm, ekkja eftir Magnús Hólm, búsett með börnum sínum hér á Gimli. önnur dóttir þeirra er Odd- fríður, kona Jóns Jóhannssonar á Bólstað sunnanvert við Gimli. Son- ur þeirra, og yngstur barna þeirra er Jón Helgi, hefir hann lengst af dvalið hjá foreldrum sínum. Fóst- urson hafa þau alið upp, sem væri hann þeirra eigið barn, Þórarinn að nafni, hefir hann tekið sér nafn fósturforeldra sinna. Barna- börn þeirra hjóna eru tiu á lífi, öll mannvænleg. Sveinn heitinn kom til Winnipeg 18. sept. 1887, dvöldu þau þar í ellefu ár. Munu margir eiga hlýjar endurminningar um heimili þeirra, bæði í Winnipeg og á Gimli, þar sem þau síðar dvöldu. Meðan Sveinn bjó í Winnipeg gekk hann um hríð að algengri vinnu, en heilsa hans var aldrei hraust Síðar höfðu þau hjón greiðasðlu- hús i Winnipeg um lengri tíma. Þegar til Gimli kom, nam 'Sveinn land, þrjár mílur vestur af bæn- um, var býli það nefnt á Sómastöð um. Fluttu þau hjón síðar að Gimli, ogi bjuggu þar æ is'íðan. Lengi æfi sinnar var Sveinn heilsuveill, lá þungar legur, 1912 lá hann lengi og var þá skorinn upp, vafamál hvort hann náði sér fyllilega síðan. Sveinn heitinn var maður fastur í lund og alvöru- maður. Gáfaður var hann og fróð- leiksgjarn; sérílagi var hann trygglyndur maður. Hans kærasta umfangsefni hin síðari ár, að safna ýmiskonar fróðleik, og lesa og fræðast um íslensk efni. Var hann vakandi yfir því á hvern hátt sem hann gat auðgað anda sinn. Hann mátti víst teljast frjáls lyndur í trúarefnum. Efri ár sln hallaðist hann að kenningum Spiritista, og hneigðist til sam- úðar með þeim. Hann hugsaði oft um andleg efni og var farinn að þrá heimfararleyfi. Á besta skeiði æfi sinnar var Sveinn heitinn tal- inn með hærri mönnum, vel vaxinn og fallegur á velli. Það var bjart yfir honum. ÆJfikvöldið var fagurt, aftan- skinið var þýtt, vestangeislarnir vermandi. Með þakklátum hug horfði hann yfir liðna tíð, hrifinn var hann af því hve margt var að þakka, hve gjafarinn allra hluta er góður. Hann andaðist eins og áður, er sagt að morgni þess 9. apríl, höfðu kærar hendur konu hans og barna hlúð að honum deyjandi. Um- kringdur af þeim andaðist hann. Hann var jarðsunginn þann 16. apríl. Fór kveðjuathöfnin fyrst fram frá heimilinu. í þeirri athöfn tóku þátt séra Eyjólfur J. Melan, og sá er þetta ritar; flutti hinn síðarnefndi kveðjuorðin. Jarðar- förin fór fram frá Sambandskirkj- unni á Gmili, að viðstöddu fjöl- menni. Flutti séra Eyjólfur lík- ræðuna. — Systkini Sveins sál. voru fjögur, bræðurnir: Tómas, Jón og Magnús. Systir þeirra hét Sigríður. Af þeim er Magnús einn lifandi, býr Halldór Halldórsson. Lesið við jarðarför hans að Lundar, Man. 1921. Hjartað stirðnað, hendur kaldar hér sem lengi ruddu braut; þessi bygð í þriðjung aldar þeirra starfs í öllu naut. Eins og barn við alla sáttur — æfidagsins bezta gjöf ■— heillar bygðar hjartasláttur heyrist kring um þína gröf. Sig. Júl. Jóhannesson. hann á Hróbergií Staðarsveit við Steingrímsfjörð. — Með Sveini Magnússyni er traustur og greindur íslendingur egnginn til hinstu hvildar. Kvöld- ið var fagurt, aftanskin ellidag- anna ljúft, en nú hefir birt af hinum þráða eilífðardegi. Dagveldi eilífðarinnar um- kringja hann. Blessuð sé minning hans. Mælst er til þess af ættingjum Sveins heitins að blaðið “Tíminn” i Reykjavík flytji fregnina um lát hans. 29. apríl, 1925. Sigurður ólafsson. SKÝRSLA. frá Aðalfundi Jarðræktarfél. Rvíkur Ár 1925, þ. 19. apríl var aðal- fundur Jarðræktarfélags Reykja víkur settur og haldinn í húsi Bún- aðarfélags íslands í Lækjargötu. Formaður lagði fram og las upp reikninga félagsins fyrir umliðið ár. og á nú félagið í sjóði kr. 3702, 63 og auk þess nokkuð af nothæf- um verkfærum. Þá var lögð fram og lesin upp skýrsla um jarðabætur félagte- manns eftir síðustu mælingu og höfðu alls verið unnið, sem hér segir: Af túnasléttum 150 m. (1923), 2270 m. (1922), af túnútgræðslu 70980 m. (1923), 230280 m. (1922), af sáðreitum 855 m. (1923), 1575 m. (1922), af framræsluskurðum 0,70 m. 576 m. (1923) 437 m. (1922) af framræsluskurðum 0,70 m. til 1 m. 337 m. (1923), 952 m. (1922). af framræsluskurðum frá 1 m. til 1,5 m. 160 m. (1923), 2748 m. (1922). Hæstir af dagsverkatölu af þeim sem mælt var hjá, voru: Þórður Sveinsson, Kleppi 520 dagsv., Carl Olsen, Austurhlíð 482 dagsv., Sveinn Hjartarson 38l dagsv. Th. Krabbe 227 dagsv. Voru alls unnin 2487 dagsverk hjá 15 mönnum er mælt var hjá, en auk þess, er mjðg mikið af ó- grónu sáðlandi, sem ekki var mælt nú. Til samanburðar má setja að árið (1922) voru alls unnin hjá 29 mönnum er mælt var hjá, 5973 dagsverk. Hæst dagsverkatala var þá hjá þeim Magnúsi Vigfússyni, Kirkju- bóli 613 dagsverk, Helga Magnús- syni, kaupm. 562 dagsv., Sveini Hjartarsyni, bakara 288 dagsv., Ara Antonssyni, Laugabóli 277 dagsv., Leifi Þorleifssyni, bókh. 210 lagsv. og Þórði Sveinssyni, Kleppi 200 dagsv. í aðaldagsverkatölum sem til- greid er hér að framan, árið 1922, eru meðtalin 1844 dagsv. er mæld voru og sett á skýrslu, sem Búnað- arfélag íslands lét vinna í Foiss- vogi fyrir Reykjavíkurbæ. Stöku menn, sem gert hafa mikl- ar jarðabætur þessi ár, hafa ekki séð sér fært að láta mæla enn, enda mikið af jarðabótum síð- ustu ára þúfnabanavinna, ræktað með fræi, og mælast slíkar tún- græðslur þegar þær eru svo grón- ar að samfeldur túngróður sé myndaður. Fundurinn isamþykti eftir til- mælum stjórnarinnar, að greiða herra Pétri Hjaltested, bónda á Sunnuhvoli alt að 100 kr. á ári fyrir að geyma og sjá um útlán og viðgerðir á verkfærum félagsins. Ennfremur að verja alt að 1000 kr. af sjóði félagsins til þess að lána fátækum félagsmönnum til áburðarkaupa, og loks að verja fé til að panta fyrir félagsmenn ýms handverkfæri til jarðyrkju, sem erfitt er að fá hér, og iselja félags- mönnum þau með kaupverði, að viðbættum kostnaði. Til þess að mæta á aðalfundi Búnaðarsambands Kjalarnesþings voru kosnir þeir: Pétur Hjaltested, bóndi á Sunnu hvoli, Þorsteinn Finnbogsaon, bóndi í Fossvogi, Þorlákur V. Bjarnar, bóndi á Rauðará, Guðm. Helgason, bóndi í Eskihlíð, Baldur Sveinsson Blaðamaður. Þá var gengið til stjórnarkosn- ingar og var núverandi stjórn, þeir: GrímlúlfurH. ólafsson, tollv: bóndi í Laugabrekku, Pétur Hjalte stel, bóndi á Sunnuhvoli og Þor- steinn Finnbogason, bóndi í Foss- vogi, — endurkosnir. — Loks var rætt á fundi um áhrif tilbúins úburðar á jarðveginn, reynslu manna í því efni o. fl. o. fl. Var að lokum samþ. tillaga í þá átt, að fela formanni, að hlutast til um það við Búnaðarfélag ís- DRENGURINN MINN. Helgi Arngeir Þorsteinsson. fæddur 17—6 1914 dáinn 31—5 1924. Eg geng úti og inni á glóð Við ástmenn þínir ástamál , og elti skuggann minn, þér ómklökt syngjum hljóðir. og raula ógert ásta-ljóð Og þína skygnu svipar sál eftir drenginn minn! í sólhjúp ástkær móðir. Helgi minn, Helgi minn! Það fylsta hugsun hugans er og heilög dýrðar sjáin, hjartans vinurinn! að himneskt ljósið lýsi þér! Nú er dapur dagurinn. — þú lifir þó sért dáinn. — dýrleg vona þráin — dáin! Þegar vorsins vona bál verður gróðurleysi, Ljósablik frá lífs þíns stund lífsmál yrkir engin sál legg á særða und. inn í dapurt hreysi. Minning þín sem mildur blær Þá er alt með holum hljóm mér er ljúf og kær. og hjartans insta þráin Þú komst sem vorsins vona mál hún drúpir eins og dáið blóm, sem dauðinn þeytti í sjáinn. með vorsins ljós og yndi. Þú komst með vorsins varma í sál Vona vorljóð og vorsins gróður lyndi. ý vakin söng, Þú varst sem árlífs ásta-glóð verða húmhljóð — sem unaðs mála kliður. haustsins löng, Þú varst sem hljómstilt lífsins ljóð þegar ólifs öldu sog og ljós og gleði og friður. æða um lífsins vog. Þú hugarrór og hljóður sást Napurt nöldur í hópi þinna vina, niðsins drotnar, og lékst við þá með ljúfri ást unaðs öldur og lífsins einlægnina. óðsins þrotnar. Minn fríði sveinn! með fasta lund Burtu blíða. ei fanst þinn nokkur maki. Bleikir hagar. En nú er lokað lífsins sund Lífvana líða og ljóssins andartaki. langir dagar. Og alt varð fegra og betra í bæ Liífsþrár lækka. og brosti ljúft við muna, Lamast þráin. er komstu heim, — svo hljóður æ Fjaðrir fækka. með hjartans stillinguna. Fimm eru dáin Þeim unað gleymi eg ekkert sinn ljós, sem lýstr. — því alt þá fanst mér hlýna — langt á veginn er mjúka litla lófann þinn og hljómana hýstu þú lagðir á vanga mína. hjarta megin. Þú varst sem andblær unaðs lags, Dvínar dugur. —sem ársól lýstur meiðar. dregur að elli. Þinn svipur, pins og sumardags Hálfur hugur er sólskin — fagur, heiðar! hniginn að velli. Svo aldrei verður gleðin gleymd, Hjartans hljómar sem gafstu þrá og vonum. * hita þrotnir, Þín minning er hjá mömmu geymd andans ómar og mér og systkinonum. öldu brotnir! Hjálmur Þorsteinsson. ^gillett COMPANY U Gillett’s Lye, er notað til þess að hreinsa sinks, rennur o. fl. Einnig til þess að búa til yðar eigin þvottasápu og margt annað. Forskrift- ir fylgja hverri könnu. .s' lands, að það léti nákvæma rann- sókn fram fara um þessa hluti. Fleira gerðist svo ekki á fund- inum. í stjórn Jarðræktarfélags Rvíkur. Grímúlfur H. Ólafsson. Visir 30. apríl Veiðarnar við Grænland sumarið 1924. (Danska blaðið “Berlinske Tid- ende” flytur þ. 11. janúar 1925 eftirfarandi frásögn um veiðarn- ar við Grænland): “Síðastl. sumar hafa þessi skip verið á sveimi út af vesturströnd Grænlands: Sj)ik!bræð«lus;kipið “Ragnhild Bryde” með hvalveiðabátunum “Noröna II.” 'og “Columbus”, öll frá Sandefjord, og spikbræðslu- skipið “Grwell” með hvalveiðaL bátunum “Kuggen”, ‘Hussen” og “Viking”, öll frá Tönsberg, hval- veið^þátarnir “Borgna” og “Sval- bard” frá Aalesund hreyfiskipin “Faustina” frá Alesund. “Anæta” frá Tbrondhjem og “Stormfuglen" frá Throndhjem, norska hafrann- sóknarskipið “Mikael Sars” kana- diska lðgregluskipið “Artic” ame- riskt hreyfiskip “Bowdin” og enn fremur hvalskurðarskip dönsku stjórnarinnar, “Sværdfisken” með hvalveiðabátnum “Sonja” svo og strandvarnarskipið “Islands Falk.” Hvalveiðararnir. Þessi erlendu hvalveiðaskip hittu á hvalina á noruðrleið, á miðunum út af Góð- von og Holsteinlberg í byrjun júlí- mánaðar. Að lokum voru hvalirn- ir nærfelt allir gengnir norður I Bjarneyjarflóa, og þar héldu því allir hvalveiðararnir til þangað til í ágúst, að hvalirnir tóku að ganga suður aftur. Hvalveiðararnir hafa ekki í sumar fengið meira en meðal afla vegna hinnar sífeldu þoku í sumar Um miðjan september voru öll hin erlendu bvalveiðaskip farin frá Grænlandi. Fiskiskipin og bátfiskið. Fiski- skipin komu til Grænlands í maí- lok, en fiskið (þorskur, flyðra) byrjaði ekki fyrir alvöru fyr en kringum 1. júlí og >stóð yfir alt sumarið úti á hinum miklu grunn- um út af vesturströndinni. Skipin fyltu sig á svipstundu, er fiskið byrjaði. ■— Síðasta fiskiskipið yfirgaf Grænland í ágúst. Veiði Grænlendinga á einæring- um er aðallega innan skerja og á fjörðunum, en hreyfibtáar einok- unarinnar með dönskum fiski- meisturum og grænlenskri skips- höfn sækja lengra út á haf. Fiskið í sumar (einæringafisk- ið) hefir gefið þennan afla (um miðjan september): Jacobshöfn 825 tdr. heilagfiski. Egðaminni 3000 kg. af stórþorski við Inginiarfik. Holsteinborg ca. 35.000 kg. flyðra. Kongamuit ca. 73.000 kg. flyðra og 12.000 kg. stórþorsk. Nýlendan Sykurtoppur ca. 140.000 kg. stórþorsk og ca. 25 tdr. flyðra. Atorgmik ra. 52.000 kg. stórþorsk. Góðvon 170.000 kg. stcrþorsk og ca.30 tdr. flyðra. Við Agto í Egðaminnishéraði hefir verslunin keypt flyðru (hve mikið, er ekki gefið upp um miðj- an september). Þorskveiðin við Kekertalik, Sa- fangusk og Tarkardlik í Holstein- borgarhéraði hefir verið góð, en hve mikill aflinn var í septémiber er ekki kunnugt. Við Sykurtoppinn keypti versl- unin stöðugt fisk í september. — Aflinn við Fiskines hefir brugðist (fiskurinn gekk ekki inn á fjörð- inn) og hið sama er að segja um Friðriksvon. Af hinu ofangreynda má sjá, að það er geysimikil auðlegð af fiskl í hafinu fyrir utan vesturströnd Grænlands og í fjörðunum, og það er ekki ósennilegt, að næsta sumar komi mörg norsk skip til Græn- lands ,og einnig má ganga að því sem vísu, að mörg ensk línuveiða- skip sigli til Grænlands í ár.” Lögréttar 1. apríl.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.