Lögberg - 09.07.1925, Síða 7
LÖGBERG FIMTUDAGINN,
0. JÚLt. 1925
Bto. T
\
Gjörðabók Kirkjuþingsins.
Framh. frá 2. bls.
PRESTSVIGSLA.
VitS hádegis guösþjónustu, í kirkju Selkirk safn^öar, suunudag-
inn þann 21. júní, var prestvígöur cand. theol. Valdimar J. Eyiands.
Vígsluna framkvæmdi forseti kirkjufélagsins, séra Kristinn K. Ól-
afsson, meö aöstoð hinna prestanna, er þetta þing hafa setiö. Fór
athöfnin fram með þeim hátíöleik, er þar til heyrir. Hinn nývígöi
prestur og nokkur hópur fólks var til altaris. Var guösþjónustan
öll fráböerlega ánægjuleg og aösókn feikna mikil.
ATTUNDI FUNDUR—kl. 7 e. h. sama dag.
Fundurinn hófst meö bænagjörð, er séra Sig. Ólafsson stýröi.
Viö nafnakall voru fjarverandi: Dr. B. B. Jónsson, séra Páll
Sigurðsson, J. J. Bildfell, Kris^án Ólafson,'Árni Eggertsson, Ben.
Stefánsson, Árni Árnason, R. 'S. Benson, Gunnl. Oddsson, G. B.
Björnsson, K. Valdimar Björnsson, Snorri Kernested og Thorst. J.
Gíslason.
Fundurinn var trúmálafundur þingsins. Umræðuefni: Trú-
bdösskylda kristins manns.” Málshefjandi var séra Jónas A. Sig-
urösson. Flutti hann ítarlegt og skörulegt erindi. Var honum, að
erindinu loknu, greitt þakklætis atkvæði meö þvi að allir stóöu á
fætur. — Var máliö síöan rætt -af fjöri og áhuga all-langa stund.
Söngflokkur Selkirk-safnaöar skemti með kórsöng. Fundurinn all-
ur ánægjulegur og uppbyggilegur.
Séra N. S. Thorláksson tilkynti, að skemtistund sú, er þinginu
haföi verið boöiö til á þriðjudag e. h., hefði verið færö til og yrði
kl. 4 e. h. á mánudag. sHefði breyting þessi verið gjörö samkvæmt
ósk sumra þingmanna.
Aö lokum var sunginn trúboössálmurinn: “í fornöld á jörðu var
frækorni sáð” (nr. 180 í sálmab.J. Lýsti síöan forseti hinni f»ost-
ullegu blessan, og var svo fundi frestaö þar til kl. 9. f. h. næsta dag.
'\
NÍUNDI FUNDUR—kl. 9 f. h. þl 22. júní. *
Fundurinn hófst með bænargjörð, er séra G. Guttormsson, stýröi.
Fjarverandi við nafnakall voru: Dr. B. B. Jónsson og sérxa Rún-
ólfur Marteinsson, er báðir höföu embættisönnum aö sinna.
Gjöröabók 5., 6., 7., og 8. fundar lesin og staðfest.
Fyrir hönd kjörbréfanefndar skýrði Jón Hannesson frá, að til
þings væri kominn E. A. Brandson, frá Víkursöfnuði. Var samþykt,
að hann tæki sæti sitt í þinginu, og skrifaði hann um leiö undir játn-
ingu þingsins. . , __
Forseti lagði fram bréf frá séra Valdimar J. Eylands, um inn-
töku í kirkjufélagið:
“Undirritaður leyfir sér hér meö aö mælast til, að þingið viður-
kenni sig sem prest Hins Ev. lút. kirkjufélags íslendinga í Vestur-
heimi, samkvæmt xv. grein grundvallarlaga félagsirts.
Valdimar J. Eylands.”
1 nefnd til að leggjja til um inntökuna, skipaði íbrseti séra N. S.
Thorláksson, séra Sig. 'Ólafsson og Thorst. J. Gíslason.
Þá var tekið fyrir tíunda ihál á dagskrá:
National Lutheran Council.
Fyrir hönd þingnefndar í því máli, lagði séra G- Guttormsson
fram þetta nefndarálit:
Nefndin, sem skipuð var til að íhuga samband kirkjufélagsins
við National Lutheran Council, og þátttöku þess í Lutheran World
Conference, /eyfir sér að leggja fyrir kirkjuþingið eftirfylgjandi til-
lögur til þingsamþ^ta:
1. Þar sem kirkjufélagið hefir nú í sex ár verið meðlimur í
National Lutheran Council, og átt þar kost á samvinnu með öllum
kirkjufélögum lúterskum í Vesturheirui, nema Synodical Conference
og Iowa Synod; og þar sem National Lutheran Council er að vinna á-
ur, sem gefur sig við líknarstörfum undir umsjón lúterskra kirkju-
manna, og starfar auk þess að eining og framför lúterskrar kristni
um allan heim; og þar sem National Lutheran Council er að vinna á-
gætt verk í þarfir kristindóms og mannúðar, einkum á Rússlandi og
í Mið-Evrópu, í neyðinni óskaplegu, andlegri og likamlegri, sem
styrjöldin mikla lét þar víða eftir sig; og enn fremur, þaúsem þátt-
takan í þessu mikla og nauðsynlega starfi hefir tiltölulega léttar
byrðar fjárhagslegar, í för með sér, og útgjöldin, sem í því sambar.di
falla í hlut kirkjufélagsins , verða víst ekki nema rúmir 100 dalir á
komandi ári; og að síðustu, þar sem það er kirkjufélagi voru til lít-
ins vegsauka, að standa í félagsskap þessum að nafni til, en van-
rækja þó að vera með í verki, þá skorar þetta þing á alla kirkjufé-
lagssöfnuði, að láta ekki gleymast á þessu ári að leggja fram fé til
styrktar Nat. Luth. Council og verkinu, sem það hefir með höndum.
2. Þar sem séra N. S. Thorlaksson er nú á förum til Norður-
Ianda, þá felur þingið honum að mæta fyrir hönd kirkjufélagsins á
allsherjar þingi Mótmælenda, sem haldið verður í Stokkhólmi í sum-
ar annan ágúst óg næstu dagana á eftir.
3. Aö öðru leyti felur þingið forseta kirkjufélagsins að fara
með umboð þess í sambandi við National Lutheran Council, mælir
með huginyndinni um Luthcran World Convention, og felur forseta
kirkjufélagsins umboð til að taka þátt með öðrum lúterskum mönn-
um í framkvæmum þess máls, eftir því sem ástæður leyfa.
4. Þingið metur og þakkar þá sæmd, sem félagi voru var auð-
sýnd með heimsókn hins stórmerka leiðtoga lúterskra manna í Vest-
urheimi, dr. J. A. Morehead, og mun oss seint gleymast hið snjalla
og hjartnæma erindi, sem hann flutti þingheimi.
5. Þingið felur skrifara kirkjufélagsins að tilkynna dr. More-
head efni þessarar samþyktar.
Á kirkjuþingi, 20. júní 1925.
Haraldur Sigmar.
S. S- Christopherson.
Jónas A. SigurSsson.
Gutt. Guttormsson.
G. Thorleifsson.
Samþykt var að taka nefndarálitið fyrir lið fyrir lið.
Fyrsti liður samþyktur. 2. og 3., 4. og 5. sömuleiðis. Nefndar-
álitið síðan í heild sinni samþykt.
Samþykt var, að fela skrifara að senda fréttir af kirkjuþinginu
til Dr. J. A. Morehead.
Þá var samþykt, að forseti skipi útpefningarnefnd. 1 nefndina
voru skipaðir: séra Sig. Ólafsson, Ó. Anderson og Finnur Johnspn.
Með því að þá Iá ekki tilbúið verkefni fyrir þingi, var samþykt
fundarhlé frá kl. 10.30 til kl. 11 f.h.
Þegar fundur kom saman aftur, var enn ekki verkefni tilbú^S.
Var því samþykt áframhaldandi fundarhlé. Eftir að sálmur hafði
verið sunginn, var fundi frestað til kl. 2 e.h. sama dag.
TÍUNDI FUNDUR—kl. 2 e. h. sama dag.
Fjarverandi við nafnakall voru: Dr. B. B. Jónsson og séra
Rúnólfur Marteinsson. ,
Séra Sig. Ólafsson bar fram álit nefndar þeirrar, er átti að
leggja til um inntöku séra V. J. Eylands, svo hljóðandi nefndarálit:
Þar sem nefnd sú, er samkvæmt lagafyrirmælum á að rannsaka
játningarafstöðu presta, er sækja um inngöngu í kirkjufélagið, mæl-
ir eindregið með umsókn séra Valdimars J. Eylands, þá leyfum vér
oss, sem ‘skipaðir vorum, til þess að hafa með höndum umsókn hins
nývígða prests, að mæla með því að hann sé tekinn í kirkjufélagið og
t
þingið lýsi ánægju sinni út af þvi, að eignast með honum nýjan starfs-
mann, og árni honum allrar blessunar Drottins.
N. S. Thorlaksson.
Sig. ólafsson.
T. J. Gíslason.
Var það samþykt i einu hljóði.
Þá var tekið fyrir fjórða mál á dagskrá: Ungmennafélög.
Forseti skýrði frá, að fulltrúi ungmennafélaganna, er væntan-
Iegur var til þings, gæti ekki komið.
Gjörði þá séra J. A. Sigurðsson þá tillögu, og G. Thorleifsson
studdi: Að vísa þessu máli til framkvæmdarnefndar. — Tillagan var
samþykt.
Þá spurði forseti um tilboð um þingstað næsta ár.
Séra Sig. Ólafsson bar fram boð frá Gimli-söfnuði. — Samþykt
var, að boðið sé þegið og þakkað.
Séra N. S. Thorláksson skýrði frá, að Mr. A. F. Gemmel,
skozkur maður, en íslenzku-talandi, búsettur hér í bæ, væri staddur
á fundi og æskti eftir að fá að ávarpa þingið.
Var samþykt, að leyfa Mr. Gemmel að tala, og flutti hann kirkju-
þinginu árnaðarósk frá kirkjufélagi Presbýtera i Canada. — Var
samþykt að þakka fyrir kveðjuna og þar með biðja Mr. Gemmel að
flytja Dr. Scott, forseta kirkjufélags Presbýtera, hjartanlegar þakk-
ir fyrir árnaðaróskina, og að þing þetta árni Dr. Scott og kirkjufé-
lagi hans blessunar Drottins.
Þá var tekið fyrir áttunda mál á dagskrá: Fjármál.
Fyrir hönd þingnefndar lagði J. J. Bildfell fram þetta nefndar-
álit: » ,
Fjármálanefnd þingsins leyfir sér að leggja fram eftirfylgjandi
tillögur í sambandi við fjármál, er henni hafa verið falin af þing-
inu:
1. Benda viljum vér á, að fjárframlög í heiðingjatrúboðssjóð
hafa verið minni á árinu, en þau voru á fjárhagsárinu næsta á und-
an. Hefir sá sjóður því gengið til þurðar svo, að hann er nú $362.98
minni, en hann var í fyrra, og er því nauðsynlegt, að því máli sé*
haldið vel vakandi í söfnuðum kirkjufélagsins á árinu, ekki sízt þar
sem þingið hefr samþykt að borga $1,200 af launum trúboðans ís-
lenzka á þessu komandi fjárhagsári.
Aðrir sjóðir kirkjufélagsins eru í svipuðu ástandi og þeir voru
í í fyrra, samkvæntt skýrslu féhirðis og yfirskoðunarmanna. Einn
þeirra, kirkjufélagssjóðurinn, er i' dálítið betra ástandi en hann var
í fyrra. — Jafnaðarreikningurinn, eins og hann er útbúinn frá hendi
yfirskoðunarmanna, sýnir að fjárhagsleg afturför á fjárhagsárinu
hefír numið $227.69.
2. Við athugun skýrslu stjórnarhefndar “Betel” verður ljóst,
að mjög t/lfinnanleg þurð hefir orðið á tllögum fólks til starfs-
rækslu þelrrar stofnunar. Við síðastliðin fjárhags áramót, átti
stofnun sú í starfrækslusjóði $1,796.92; nú að eins $539.79. Um
leið og vér bendum þingmönnum og prestum kirkjufélagsins og öðru
fólki á þetta, þykjumst vér vita, að stofnun sú muni eiga svo rót-
tækt ítak í huga og björtum manna, að úr þessari afturför verði
bráðlega bætt.
3. Nefndin leggur til að styrkur til séra S- S- Christophersonar
skuli stjórnast af launum þeim er hann fái hjá söfnuðum og missí-
■ónarsvæðum er þjónustu hans njóta á árinu, og að upphæð sliks til-
lags meg nema alt að $200 fyrir fjárhagsárið.
4. Nefndn leggur til, að fyrir prestsþjónustu á Betel sé goldið
úr Betel-sjóð, eins og á undanförnum árum.
5. Að féhirði séu greiddir $100 úr kirkjufélagssjóði sem þókn-
um fyrir hið mikla starf hans.
• '
6. Að skrifara kirkjufélagsins sé greiddir $50 úr kirkjufélags-
sjóði sem þóknun fyrir starf hans.
7. Að áætlaðar tekjur kirkjufélagsins fyrir næsta ár séu $500.
Chr. ólafsson.
Haraldur Sigmar.
Kl. Jónasson.
Jón J. Bildfell.
G. B. Björnsson.
Samþykt var að taka nefndarálitið fyrir lið fyrir lið.
Fyrsti og annar liður þóttu sjálfsagðir án formlegrar sam-
þyktar.
Um þriðja lið urðu nokkrar umræður. Árni Eggertsson gerði
þá breytingartillögu, að séra S. S. Christophersop sé greiddir skil-
yrðislaust $200 til heimatrúboðsstarfs á komandi ári. Tillöguna
studdi Jón Halldórsson.
4. liður, 5., 6. og 7. liður allir samþyktir. — Nefndarálitið síðan
í heild sinni samþykt.
Séra Guttormur Guttormsson bar fram svohljóðandi tillögu til
samþyktar:
“Kirkjuþingið vottar Selkirk-söfnuði hjartanlegt þákklæti fyrir
ágætar viðtökur, kristilega alúð og gestrisni, sem kirkjuþingsmenn og
aðrir gestir þingsins hafa enn einu sinni notið á þessum stöðvum.
Þingið árnar söfnuðinum blessunar Drottins á komandi tíð, og biður
góðan Guð að veita presthjónum safnaðarins, Mr. og Mrs. N. S.
Thorlaksson, farsæld og gleði á hinu fyrirhugaða ferðalagi þeirra til
Norðurlanda.”
Tillagan var samþykt með því að allir stóðu á fætur,
Þá lá fyrir kosning embættismanna:
Forseti var endurkosjnn í einu hljóði: séra Kristinn K. Ólafsson.
Vara-forseti var endurkosinn í e. hlj.; séra R. Marteinsson.
Skrifari var kosinn í e. hlj.: séra Jóhann Bjarnason, samkvæmt
tillögu séra Sig. Ólafssonar.
Vara-skrifari var endurkosinn í e. hlj.: séra Sig. Ólafsson.
Féhirðir var endurkosinn í e. hlj.: hr. Finnur J^hnson.
Vara-féhirðir var endurkosinn í e. hlj.: hr. Jón J. Bildfell.
í framkvæmdarnefnd voru kosnir, auk forseta, skrffara og fé-
hirðis, þeir: séra N. S. Thorlaksson, Dr. B. J. Brandson, séra J. A.
Sigurðsson og Dr. B. B. Jónsson.
I skólaráð Jóns Bjarnasonar skóla voru kosnir: Jón J. Bildfell,
Dr. Björn B. Jónsson og O. Anderson.
1 stjórnarnefnd gamalmennaheimilisins Éetel var kosinn til 3
ára: Kristján Ólafsson.
Fulltrúi kirkjubyggingarsjóðs var kosinn: Finnur Johnson.
Yfirskoðunarmenn voru kosnir: T. E- Thorsteinsson og F. Thord-
arson.
Gjörðabók 9. og 10. fundar lesin og staðfest.
Mælti forseti þá nokkrum kveðj,uorðum til þingsins, las síðan
Matt. 5, 13-16 og Matt. 7, 24-29 og bað bæn. Var svo sunginn sálm-
urinn: “Lát þitt ríki, ljóssins herra” (xit. 182). Lýsti siðan forseti
hinni drottinlegu blessan, og sagði svo þingi slitið kl. rúmlega 4 e. h.
\
Séra Friðrik Hallgríms-
son kominn heím.
ViðtaL
í sama mund og kirkjuklukkurn-
ar hér í Ibæ tilkyntu helgi hvíta-
sunnuhátíðarinnar á laugardags-
kvöldið, og ómar þeirra bárust út
um bæinn, steig sá maður fæti á
land hér, eftir langa fjarveru, sem
tekinn er nú við 2. prestsembætti
við Dómkirkjuna — séra Friðxik
Hallgrímsson. — Hefir Morgunbl.
fyrir nokkru síðan sagt frá því, að
hann væri á leiðinni hingað hoim.
Hann kom með Botníu á laugar-
dagskvöldið ásamt með fjölskyldu
sinni.
Múgur og margmenni var statt
niðri á hafnarbakka, er Botnía
kom. Og það leyndi sér ekki, að
mikill hluti þess fjölda var þar
kominn til þess að “heilsa séra
Friðrik.”
í fyrradag var hann settur inn í
embætti sitt, og hélt hann þá
fyrstu ræðu sína hér í þetta sinn.
Það þarf ekki að taka það fram,
að óvenjulega margt fólk sótti
kirkjuna.
Morgunbl. hefir hitt séra Frið-
rik að máli, og spurt hann um,
hvernig honum likaði að koma
heim aftur og taka við embætti
hér. Talið barst fyrst að Vestur-
Islendingum.
— Islendingar vestan hafs
munu hafa kvatt yður og fjöl-
skyldu yðar af héilum hugí
— Já, það gerðu þeir áreiðan-
lega. Mér voru haldin þrjú sam-
sæti, tvö hjá söfnuðum þcim, er
eg þjónaði, og eitt hjá Islendingum
í Winnipeg. Eg þóttist nokkuð
geta séð hug landa minna við mig
í þessum samsætum og á þeim
gjöfum, sem okkur hjónum voru
gefnar. Söfnuðir mínir gáfu mér
stórlega fallegt mahogani-skrín,
er var fult af siUurborðbúnaði og
fylgdi allstór peningagjöf. í sam-
sætinu, sem okkur hjónum var
haldið í Winnipeg, af stjórn Ev.
lút. kirkjufél., var mér gefin þessi
Sjöf.
Séra Friðrik leggur forláta úr
fram á foorðið, hina mestu gersemi
og er sá. er þetta ritar, ekki fær
um að segja hvers virði það muni
vera. Á lok þess er grafið: “Frið-
rik Hallgrímsson. Frá Hinu Ev.
lút. kirkjufél. ísl. i Vest’irheimi,
20. april 1925.”
•— Hvernig segir yður hugur
um, að setjast hér að?
— Vitanlega vel. Eg hefi altaf
verið bjartsýnn maður Og eg
hlakkaði til að koma hinagð heim.
En það verð eg að segja, að eg
bjóst ekki við að rnæta jafn mikl-
um hlýleik og annari eins alúð
cins og mér hefir verið sýnd þenn-
an stutta tímá. Mér hefir rnætt
í jdlJi fólks, sem eg hefi i raun og
vfciu ekkert kannast við, en sem
hefir sýnt mér framúrskarandi
vinsemd. Mér finst þetta mikils
virði, þegar eg íiugsa til starfs
míns hér, því eg álít það grund-
vallarskilyrði fyrir góðu og ávaxta
ríku starfi hvers prests, að hann
njóti samúðar og trausts, og vel-
vildar safn<íða sinna. f þessu
sambandi vil eg geta þess að eg
hefi notið þessa alls, þau 21% ár,
sem eg hefi þjónað isl. söfnuðun-
um vestan hafs. Þessvegna hefir
dvölin orðið mér svo ánægjuleg
þar, sem hún hefir orðið.
— Hvað er annars að frétta af
Vestur-fslendingum?
— Eg held að eg megi fullyrða,
að frá þeim sé alt gott að frétta.
Sumir höfðu vitanlega átt við f jár-
hagslega örðugleika að stríða,
eins og aðrir, að styrjöldinni lok-
inni. En mér virðist, *að mjög sé
nú farið að birta yfir öllum við--
skiftum, og að löhdum okkar sé
nú farið að liða betur.
— fslendingar eru vel liðnir
vestan hafs?
■ — Mér finst ástæða til fyrir
aðalþjóðina að miklast af þeim, og
fagna yfir því, að þeir hafa al-
staðar gott álit á sér. ‘fslendingar
eru bestu innflytjendur hér,’ kveð-
ur æfinlega við. Og svo maður
taki bændurna sérstaklega, þá þori
eg' að fullyrða, að þeir standa fylli-
lega jafnfætis öðrum bændum þar
vestra. Og eg vil taka það fram, að
á flestum sviðum eiga íslendingar
vestra ágæta menn, eg vil segja
afburðamenn, eVo sem meðal lög-
fræðinga, lækna, presta og lista-
manna.
—ÍTvaða Vcstur-fslenskur lista-
maður er nafnkunnastur í Ame-
ríku ?
— Emile Walter. Hann er vel
kunnur bæði á Englandi og i Ame.
ríku, hefir fengið myndir sýrdar
í London, og eftir hann eru til
myndir á helstu listasöfnum í
Ameríku.
Hurðinni er lokið upp að stof-
unni og inn koma tvær fulltíða
blómarósir og telpa innan við
fermingu.
— Þetta eru dætur mínar, segir
séra Friðrik. Og þær tala vitan-
lega allar íslensku. Ein þeixra,
Þóra, er útlærð hjúkrunarkcna.
Talið berst aftur að Vestux'- fs-
lendingum.
— Hvernig er hugarfar landa
vestra til þjóðar og lands hér
heima.
__ Eg þori að fullyrða, að það
er ákaflega hlýtt. Alt islenskt er
þeim hjartfólgið, og þegar minst
er á mál íslands eða sagðar frétt-
ir þaðan, er eins og komið sé við
hjartarætur þeirra.
__ Haldið þér, að nokkuð væri
hægt að gera til þess að halda við
nánara sambandi milli þjóðarþrot-
anna?
— Eg gæti nefnt eitt, sern nxér
hefir oft dottið í hug að ætli að
gera. Og það er það ,að blöðin hér
heima og vestra kærxu því skipu-
lagi á sín á milli. að senda héðan
og að vestan helstu fréttir símleji'ð-
is. Við skulum taka t. d., að hér
heima andist þjóðkunnur maður..
öllum Vestur-íslendingunx mundi
þykja mikils um vert að fá fregn-
um það sem fyrst. Og margt fleira
mætti nefna. Eins er það, að bær.
ist Vestur-íslendingum eitthvert
hnoss upp í hendur á einhverju
sviði eða með einhverjum hætti,
þá ættu blöðin vestra að láta vita
um það hélr heima með því að síma
str: x til blaðanna héc Mér finst
vanta milli þjóðarbrotanna greið-
ari andlegár samgöngur, meira
sámneyti, meiri þekkingu.
Þetta vorn með síðustu orðum,
sem séra Friðrik sagði við Morg-
uniblaðið, og það sýnir hvern hug
hann hefir á því, að halda lifandi
sambandinu milli íslendinga hér
heima og hinna vestur frá.
Séra Friðrik Hallgrimsson býr
þersa viku hjá mági sinum Axel
Tulinius, en flytur svo i Þir.gholts
“íiæti 28.
Morgunblaðið.
“Landið” og eyðibýlin.
i.
Nú síðustu árin fara ihagrir til
Heklu. Af tindum hennar er víð-
sýni fagurt og varla betra af öðr-
um stöðum á landi hér, ef loft er
bjart og skygni gottl
Næstu sveitir við hana eru
Rangárvellir og “Landsveit.” Til-
breyting er mikil þar á landi og
gróðri. Víðáttumest eru þar þó
hraun (Hekluhraun) og sandar.
Grasblettir eru þar hér og hvar og
bæjir á stangli. Fjöll eru þar og
fossóttar ár. Skógar eru þar enn
eftir og iblómskrúð þar mikið.
Jöklar eru þar í austri og norðrií
sem bakveíðir, vikurhryggja og
gamalla gíga.
Þar er orustuxnöllur lífs og
dauða; ógnandi öfl elds og jökla
berjast þar um völdin.
Kaldir öræfavindar af norðri
há þar harðan' heljardans við sól
og sunnanvind. Norn eyðilegging-
arinnar berst þar móti guðdóm-
legum lífskrafti framþróunarinn-
ar, og læknandi hönd almættis-
kraftar.
Gamlar bæjarrústir og blásnir
grafreitir eru merki ósigra þeirra
manna, sem þar hafa búið og bar-
ist fyrir brauði handa sér og börn-
um sínum.
II.
Árna Magnússonar jarðatal
1702, eða þegar jarðatalið fór
fram telur þessi býli í ábúð, sem
nú eru í auðn:
1. Merkihvoll .......... hdr. 5
2. Ósgröf ................... — 12
3. Irjur ....................— 20
4. öskjuholt ................ — 14
5. Mörk .................... — 10
6. Suðurhjál. (Leirub.) .... — 5
7. Réttarnes ................ — 5
8. Biorg (hjáleiga frá ....
Stóra-Kl..................— 8
9. Litliklofi ............... — 8
10. Kollakot ............... — 4
11. Garðar (hjáleiga frá ....
Skárði) .................— 10
12. Erill ................. - - 5
13. Áribær (hjáleiga frá.,..
Hvammi) .................. 10
14. Hrólfsstaðir.............— 10
15. Tjörfastaðir.............— 20
16. Kýraugastaðasel ..... — —
16 býli hdr. 146
Auk þess eru eftirfarandi býli,
sem komin eru í auðn og ekkert
mat á, um 1700.
1. Skógarkot (frá Skarði).
2. Hvammshjáleiga frá Hvammi.
3. Gata (hjáleiga frá Helium).
4. Vindáis (hjáleiga frá Fells-
múla).
5. Járnlaugsstaðir.
6. Hólakot (hjáleiga frá Stóru-
völlum.)
7. Minnivallahjáleiga (frá Minni
Völlum.)
8. Kýraugastaðir (var 30 hundr.
uð áður.)
9. Kýraugastaðahjáleiga.
10. Stóruvallahjáleiga.
11. Litla-Skarð (lagðist í eyði um
1850.)
12. Gloppa (hjá Galtalæk? )
13 Stampur (frá Galtalæk)
Auk þessara 29 býla, sem nú eru
öll í eyði — en áður hafa verið í
foýgð, 6um sjálfstæðar jarðir, en
nokkur ljjáleigur þeirra jarða, scm
enn eru foygðar, hafa bæir verið
fluttir á eftirfarandi býlum:
„ 1. Stóruvellir.
2. Minnivellir.
4. Fellsmúli. '
5. Skarð.
6. iHátún (nú Króktún).
7. ISkarðssel.
8. Klofi.
9. Skarfanets.
10. Húsagarður.
11. Hellir.
12. Bjalli.
Vel má vera, að bæirnir séu
fleiri í Landmannahreppi, sem
fluttir hafa verið áður, það hefi
eg ekki rannsakað vel. Skaðinn
er mikill, sem þessi sveit hefir
hlotið af sandfoki og uppfolæstri.
Enn er ekki séð fyrir endann á
eyðingu býlanna; t. d. eru Jírjur
nú að leggjast í eyði. Kofar hafa
staðið þar að þessu, og fólk oftast
búið þar. Unöir mestu hættunni af
sandfoki er Skarfanes, og óvíst.
hvort þeirri jörð verður bjargað.
Samt verða fleiri eyðifoýli á
Rangárvöllum og skemdir þar ekki
minni.
III.
Með sjálfsafneitun, viljafestu
og sparsemi, hefir fólkið búið
þarna — en undanhaldið er aug-
ljóst. Býlunum fækkar, lancið
eyðist og auðnirnar stækka.
Hvað á að gera? Á að láta þcssa
ágætu sveit eyðast og stofna ná-
grannasveitunum í voða? Eða á
að berjast við rótgróið aðgerða-
leysi og eyðandi náttúruöfl, og
reyna að fojarga því, sem eftir er?
Hér er við “raman reip’” að draga,
og þarf samhug og réttan skiln-
ing allra, sem hlut eiga að máli.
Sé fjrtgt eftirfarandi atriðum get-
um árangurinn orðið góður:
1. er að þekíkja nauðsynina á
starfinu, skilja hættuna, sen^er
framundan.
2. að finna ráð og tæk5 til þess
að verjast hættunum.
3. að fylgja ráðunum fram, þ. e.
að koma þeim í framkvæird.
4. að taka vel eftir árangri af öll-
um fáðstöfunum og tilraunum,
sem gerðar eru.
5. að hafa trú á verkinu, vilja
sigra örðugleikana og vinna til
gagns.
Það er að velja um tvær leiðir;
önnur er sú, að vinn-t með dáð og
drengskap að græðslu landsins og
viðhaldi arðsamra bletta og hér-
aða. — Hin eru tómlæti um land
og heildarhag, en hugsa alt um
eigin hagsmuni og líðandi stund.
Hugsa aðejns um, að ná öllum
þeim arði, sem hægt er að ná af
landinu. Höggva skóga, beita og
slá allan gróður og rífa grasvörð
og rótartæjur. Alt slíkt flýtir fyrir
skemdunum — en afleiðingin verð-
ur eyðing býla og byggilegs lands.
Þá er gengið í lið með eyðandi öfl-
um náttúrunnar. Með því er fylgt
lægstu hvötum aurasjúkra sálna,
og ekki hugsað um annað en
stundarhagnað.
Það er undanhaldið, sem stefn-
ir til landauðnar, flótta frá einu
býlinu til annars. Frá einni sveit
til annarar. Það erbrot móti dreng
skap, sómatilfinningu og ættjarð-
arást.
Er það ekki aúgljóst brot, sem
hefnd keimur fyrir, og kemuf þar
ekki fram sannleikurinn í orðum
skáldsins, að “Feðranna dáðleysi
er barnanna böl” o. s. frv.
Allir gerist landvarnarmenn á
landi hér og vinni skyldu sína í
þarfir þjóðarinnar.
Gunnlaugur Kristmundsson.
Morgunbl. 6. júní.
Iloldgrant Fólk Ætti Að Lesa
Þetta^
Hin nýja afcferS til aS koma hold-
grönnu fólki I hold, er stöSugt aS
rySja sér til rúms. Margir hafa
skrifaS framleiSendum þessa nýja
meSafs og tilkynt þeim, aS þeir hafi
þyngst um 5---10 pund & 30 dögum.
þetta nýja iyf er búiS til samkvsemt
srl'öngustui vtsindiareglum. |>a8 er
ijúffengt mjög, auSgar blðSiS, eykur
matarlystina, skerpir meltinguna og
kemur yfirleitt öllum llffærunum
betra horf. Engum er um megn, aS
afla sér meSals þessa, þvl skerfur,
sem nægir tii múnaSar, kostar aS
eins $1.00. Og þér þurfiS ekkert
annaS aS gena, en fylgja forskrift-
inni. 1 því fal'li, aS þér séúS ekkl ft-
nægSir m«S meSaliS, þá getiS þér
skilaS afganginum og fengiS and-
virSiS til baka. Sýnir þaS betur en
nokkuS annaS; hve mikiS traust
framleiSendur Nuga Tone bera til
meSaleins. FúiS flösku 1 dag. MeS-
aliS heitir Nuga-Tone.
Fæst hjú. öllum úbyggilegum lyf-
sölum.
/
(