Lögberg - 03.09.1925, Page 7

Lögberg - 03.09.1925, Page 7
LÖGBERG FIMTUDAGINN, 3. SEPTEMBER 1925. Duk Bjargar limum er spill- ing var komin í! pað var aS eins sár í öklanum. En þaS sýnir hve blóSeitrun getur tljótt grafiS um sig. ef ekki er Zam-Buk til verndar. Mrs. Al Harriso*. Blace-de-Armes; Ivingston. Ontarioi, ' skrifar: ‘‘Einu sinni, er eg var aS heilnilisstörfum, ineiddi eg mig í öklanum. Litunarefni úr sokknum þrengdf sér inn 1 sáriS og eiturefnin grófu um sig. Undir eins og eg tók aS nota Zam-Buk, fór mér aS batna, sviSinn hvarf og blóSeitrunin varS aS láta undan. þetta merka meSal nam á brott bólguna og innan mjög skamms tíma var sáriS algróiS.” NotiS Zam.Buk viS kláSa, hrufum, sprungumi, brunasárum; vöptum og öSru slíku. Landbunaðarbanki. Það kemur alt af betr og 'betur í ljós hve þörf landbúnaðinum er iá að hafa sína eigin bankastofn- un Sjávarútvegurinn er rekinn á svo ólíkan hátt að það getur ekki farið saman að þeir hafi báðir sama banka að skifta við. Sjávar- útvegurinn er rekinn með mikilli Miættu og á honum tapast iðulega stórar fjárhæðir. Það er því von að vextir af því fe, sem lagt er í þann átvinnuveg verði að vera há ir, en landiBúnaðurinn hins vega. er rekinn með lítilli áhættu og gefur líka jafnaðarlega lltfhn arð, þó hann 'hins vegar sé svo miklif stöðugri en sjávarútvegurinn, að hann að réttu lagi standist mjög vel samanburð við útgerðina. Þeir •sem stunda Yitgerð verða iðulega fyrir því að verða gjaldþrota, en það er mjög fátítt um ibændur, og þó svo fari að einn og einn bóndi flosni upp, eins og komist er að orði, þá er þar um smáar fjárhæð- ir að ræða. Banki sá er skifti ein- göngu við landbúnað, en blandaði sér ekkert í útgerð, gæti þvi vafa- laust staðist við að taka mikið lægri vexti en verslunar- eða út- gerðarbanki. Því verður ekki neit- að að margir íslendingar eru svo gerðir að það á mjög vel við,þá að spila djarft og eiga mikið á vog- um, en þá kemur æsing í menn ög kapp og er ekki spurt um gætni eða hagsýni. óðara er vel gengur eitt ár, gleyma þeir öllum hinum aflaleysis og örðugleika árunum og spila þá svo djarft á aflaárun- um að þegar mest á liggur er ekk- ert að grípa til heldur eí búið að eyða öllu sem aflaðist og verja því í ný fyriytæki. Hvern- ig er varið gróðanum af síðast- liðnum nægtaárum? Til að kaupa nýja togara, en ekki til að tryggja stöðuga afkomu þeirra, sem fyrir eru. Eftir eitt aflaár eru gleymd undanfarin kreppuár. Þegar svo aflaleysisárin koma að nýju eða þá markaðsvandræði og ékki borg- ar sig að gera út togarana verða ómagarnir því fleiri til tjóns fyrir þjóðina. Það er látið svo heita að útgerðin beri hina háu bankavexti því á aflaárunum munar jafnvel lítið um að borga þá, en svo er það svo alvanalegt að útgerðar- menn verða fjárþrota, að það er varla um það fengist og búist við að aðrir rísi upp til að taka við útgerðartækjunum og greiða aft- ur hina háu vexti. En landbúnað- urinn þolir ekki að blanda sér I þetta. Það er líka í alla staði ó- réttlátt að sá sem ekki er í spilinu og þefir því ekki von um gróða, sé þó látinn borga tapið með hin- um. , Það má vel vera að Búnaðar- lánadeildin sé spor í áttina og komi að dálitlu gagni. Ætti hún að renna inn í landbúnaðarbank- ann og verða vísir til stærri jarð- ræktardeildar er lánaði til nýrækt ar og nýbýla með vægustu afborg- unarkjörum og vöxtum Töluvert af ísparisjóðsfé bankanna kemur frá sveitunum og er sjálfsagt að það renni með tímanum inn í land- búnaðarbankann, svo þarf hann að fá að tiltölu hlutdeild í þeim seðl- um er gefnir verða út fyrir ábyrgð ríkissjóðs eða á annan hátt til við- skifta í landinu, besta tryggingin fyrir gengi peninga er framleiðsl- an og mundi mega auka hlutfalls- lega seðlaútgáfuna eftir því sem ræktun og landlbúnaðarfram- ieiðsla ykist. Með innlánsfé því, er rennur frá landbúnaðarmönn- um, og því fé, er bankanum að réttu mundi bera af öðru starfsfé landsins, ætti hann að geta full- nægt þörf landbúnaðarins fyrir lánsfé. \ Það mun ekki vera búið að ljúka við seðlaútgáfuálið til fullnustu, næst mun þó liggja að Landsbank- inn verði látinn taka að sér seðla- útgáfuna. Eg hygg nú að flestir landsmenn, er nokkuð hugsa um þetta mál, mundu hafa hallast að þeirri skoðun að tryggara hefði verið að fela 'seðlaútgáfuréttinn sérstakri stofnun eða að koma hefði átt á fót seðla banka, er ekki fengist við almenn bankaviðskifti; hefði sá banki átt að vera sérstak- lega trúnaðarbanki þjóðarinnar í peningamálunum, og eftirlitsbanki hinna bankanna; hefðu þá við- skiftabankarnir orðið jirír, ef land búnaðarbankinn væri stofnaður, en horfið frá að stofna Ríkisveð- bankann og Norska bankann. Ein ástæðan fyrir þessari kröfu um sérstakan landbúnaðarbanka er, að bændur geta ekki sætt sig við að vera þær hornrekur bank- anna með láiisfé eins og þeir ó- neitanlega hafa verið, einnig að lánstofnun þeirra verður að vera rekin rqeð gætni, og má ekki gefa sig við þeim fyrirtækjum, er fara m, með mikið fé i súginn, þvi land- búnaðurinn er ekki svo hraðfara í gróðanum, að von sé til að hann vinni, upp nema sín töp; hann þol- ir ekki að fé hans sé sóað í síldar- útgerð eða annan útveg, sem á skömmum tíma getur farið með sém svarar efnum heilla héraða í sjóinn. Afkoma landibúnaðarins bggist á þessum hægfara klyfja- gangi og verður svo að vera með- an samgöngurnar innanlands eru ekki hraðfarari en þær eru ennþá Það hefir verið svo, og mun ekki fara batnandi, að þó menn hafi haft dágott jarðnæði og ástæður til að framfæra dálítinn fénað, þá hafa menn ekki getað fengið lán til að koma sér upp fénaði éða fjölga honum, oft hefir þetta orðið orsök þess að menn hafa lent í skuldum, skuldirnar hafa safnast við verslanir og ýmislega á annan hátt, af því að tekjurnar hefir vantað, fyrir þá sök að ekki fekst lán í tíma til að koma á fót nægum bústofni. Það er skaði fyrir bónd- ann og fyrir þjóðina, að ekki geti hver bóndi, sem heldur jörð, hag- nýtt hana svo sem best borgar sig. Það á sér jafnvel stað, að bændur sem búa á góðum jörðum og eiga uppkomin börn og hafa því yfir að ráða nægum vinnukrafti til að hagnýta jörðina, hafa ekki getað komið sér upp nægum bústofni vegna þess' að þeir hafa ekki átt kost á að fá lán til þess. Á þessu ræðst varla bót meðan lánsstofn- anir og ráðandi menn bera ekki svo mikið traust til fjármuna í lifandi Ibúpeningi að vilja taka hann gildan sem veð fyrir láni. Ekki er nú hægt að skilj^ hVaða grundvallarskoðun ræður í þessu máli, því ekki verður því neitað, að allar tekjur bóndans koma í afrakstri búpeningsins. Ef rétt væri að skoða eígn þá, er liggur í búpeningnum svo valta, að ekki mætti meta hana veðhæfa á borð við hús í kaupstöðum, lægi næst að álíta að aldrei mætti treysta því að bændur gætu borgað lán, en reynslan hefir sýnt, að lán, sem veitt eru bændum, eru hin trygg- ustu lán, þó þeir hafi tekjur sín- ar einungis af þessum fallvalta búpeningi. Þegar landbúnaðar- bankinn er tekinn til starfa og þau skilyrði fyrir hendi er stjórn bank- ans tekur gild og reglugerð bank- ans fyrirskipar, ætlast eg til að menn geti fengið lán til að reisa bú og koma upp áhöfn á jörð og til reksturskostnáðar fyrsta árið, eftir þörfum lántakanda. Til tryggingar skuld inni ætti ‘bank- inn að hafa bæði fóðurbirgðir og búpening að veði og yfirleitt öll mannvirði er hann veitti lán til, eftir reglum er þar um yrðu sett- ar, bygðar á reynslu og tilhögun. Þá er fyrirtækið á heilbrigðum grundvelli reist, ef búið gefur af sér úr því tekjur til að standast greiðslu vaxta og dálitla afborgun, er miðaðist við hvað sanngjarnt væri að bóndinn gæti eignast bú- ið á mörgum árum og til að stand- asl önnur ingjöld búsir.s, en vext- irnir mega vitanlega ekki vera hærri en að þetta sé mögulegt, en eins og nú er farið vaxtakjörunum hefir orðið að greiða í skatt til banka af einu kýrverði 40 krcnur og er það vitanlega óhæft okur. Enginn ber mikið traust til land- búnaðarins sem ekki þorir að treysta ^ví að óhætt væri að veita bænda efnum svona mikið láns- traust, náttúrlega með því skilyrði að lántakandi sé áþyggilegur og ráðdeildarsamur maður og geti eitthvað dálítið lagt fram sjálfur, og menn mundu varla braskast á- fram við búskap með þeim óhag- stæðu kjöruin, er bændur eiga við að búa, ef svo væri ekki, og það er afar fátítt, svo næstum er an- nálað, ef bændur fara á hausinn, ef þeim tekst að komast yfir við- undani bústofn í byrjun búskapar síns. í öllum öðrum atvinnugreir.um liggur opið fyrir byrjandanum að fá lánsfé í bönkunum, hvað oft, sem þau lán tapast, bændurnir eru einir hafðir þarna útundan- Af því að ekki er von um að geta rekið búskapinn eins og fjárhættu spilamensku, þá er hann dæmdur óhafandi en á hinni rólegu yfir- vegun og umhyggju bóndans bygg- ist afkoma hans, og það er ekki annað en ótrú, sem á engum rök- um er reist að búskapurinn ekki beri sig í heild,, hann fæðir og klæðir hálfa þjóðina og gjörir það svo sómasamlega, að þegar tekið er meðaltal af þeim, er þá atvinnu stunda og aðra atvinnu, þá eru efni og líðan síst lakari hjá land- búnaðarfólki, og þó allir í þeirri atvinnugreininni, undantekningar- laust, verði að leggja á sig likam- legt erfiði, þá er það ekki nema J hollur skóli og jöfnuður, sem ekki þarf að óttast óeirðir og byltingu er tröppúgangur annara atvinnu- vega oft hefir í för með sér. Indriði \ Guðmundsson. Lögrétta 28. júli. ársskýrslu 1924. k Rit þetta er hið fróðlegasta um állan rektsur félagsins að undan- förnu, útdráttur úr reikningum þess og fjöldi línustryka, mjög glöggvandi lesaranum. — Það yrði of langt mál að birta hér útdrátt úr öllum þessum skýrslum, svo að exki er hægt að nefna nema fátt, enda má gera ráð fyrir, að léttur aðgangur sé að ritinu, því að allir hluthafar félagsins geta fengið það ókeypis. Eftirfarandi tafla sýnir hinar raunverulegu tekjur og gjöld fé- lagsins. Mismunur á vátrygging- arupphæð gamla “GOÐFOSS” og bókuðu eignarverði skipsins, kr. 349,866, sem talinn var með tekj- unum í reikningi félagsins árið 1916, er ekki talinn hér, þar sem sú fjárhæð fór öll til kaupanna á “LAGARFOSSI” árið eftir. Ár Tektfur Gjöld A.rCur 1915'... 495,243 393,525 101,718 1916.. . 1,064(,192 732,709 331,483 1917.. . 1,963,646 1,205,295 758,351 1918.. . 2,759,324 1,655,219 1,104,105 1919.. . 3,362,639 2,151,300 1,'211,339 1920.. . 2,733,937 2,200,131 533,806 1921.. . 2,991,917 2,506,639 485,278 1922.. . 2,1604,128 2,400,237 '203,891 19 2,3.. . 2,535,169 2,491,227 43,942 1924.. . 2..742.511 2,450,539 291,972 Samt. 23,252,706 18,186,821 5,065,885 Af þessari töflu má sjá, hve Eimskipafélag Islands. Tlu ára starfsemi. Árið sem leið var tíunda istarfs- ár Eimskipafélagsins. — Fyrsta Skip félagsins, “GULLFOSS,” kom 1 höfn fyrsta skifti hér við land 15. apríl 1915, og má því telja % hluta þess árs fyrsta starfsárið. Stjórn félagsins hefir aamið og birt allítarlegt yfirlit um starf- semi þetta tímabil. Er það 32 síðu rít í allstóru broti, að meðtalinni Hin Ivina Hydro , St e a m H e at ed BIFREIOA HREINSIIN • • í WINNIPEG Þar sem þér getið fengið bíiinn yðar þveginn, það er að segja hreinsaðann og olíuborinn á ör- stuttum tíma, meðan þér standið við, 'ef svo býður við að horfa, eða vér sendum áreiöanleg- an bílstjóra eftir bíl yðar óg sendum yður hann til baka, á þeim tíma er þér œskið Alt verk leyst af hendi af þaulvönum sérfrœöíngum. Þessi bifreiða þvottastöð vor er á hentugum stað í miðbœnum, á móti King og Rupert St., á bak við McLaren hótelið. V Á Prairie City Oil Company IJmited Laundry Plione N 8666 Head Ofíice Plione A 6341 tekjurnar hafa stöðugt aukist ár frá ári fram til ársins 1919. Skip félagsins, sem fram að þessu voru þó einungis tvö, voru á þessum ár- um að meira eða minna leyti í sigl-' ingum til Ameríku, og þrátt fyrir ýmsa örðugleika og annmarka sem voru á þeim siglingum, og að til þeirra var stofnað út af vandkvæð- um þeim, sem þá voru á því að sigla til Danmerkur og Englands vegna ófriðarins mikla, hafa þær gefið félaginu mestar tekjur, enda fóru og öll farmgjöld í heiminum síhækkandi þéssi ár. Félagið varð að hækka farmgjöldin til þess að lenda ekki í fjárhagsóvissu eða þröng; en aldrei voru þau hækkuð nálægt því sem farmgjöld hækk- uðu á flestum siglingaleiðum annarsstaðar. Árið 1920 lækka tekjurnar aftur á móti að miklum mun. Stafar það bæði af því, að' farmgjöld voru þá lækkuð mikið, og að “LAGARFOSS” tafðist frá siglingum í 5 mánuði vegna við- gerðar þeirrar og breytingar, sem fram fóru á skipinu. Næsta ár haldast tekjurnar nokkuð isvipað- ar, en ^ó að nýi ‘^GOÐAFOSS’’ bættist við á árinu 1921 ,aukast þær ekki verulega við það, og stafar það af mikilli lækkun á farmgjöldunum það ár, svo og af minni flutningi með skipunum eftir að viðskiftakreppan, sem gerði vart við sig þegar árið 1920, magnaðist. Gjöldin hafa aftur á móti farið síækkandi fr.am til ársins 1921, og haldist svipuð isíðustu árin. Enda þótt ýms útgjöld skipanna, svo sem vátryggingar (stríðsvátrygg- ing), kol o. fl. hafi lækfcað nokkuð er það lítið móts við þá hækkun, sem orðið hefir á öðrum liðum, sérstaklega vöxtum og gengistapi við greiðslur á afborgunum til hollenska bankans. Arðurinn af rekstri félagsins, sem framan af vex með ári hverju, nær hámarki sínu 1919, og er þá rúm 1200 þúsund kr. Af ástæðum þeim, sem greindar eru hér að framan, lækkar hann mikið árið 1920 og verður minni á hverju ári. þangað til hann fer að vaxa aftur nokkuð árið 1924. Taflan sýnir og, að allar tekj- ur félagsins hafa samtals numið rúmlega 23milj. kr. og gjöldin rúmum 18 milj. kr. Allur arður- inn af rekstri félagsins þessi ár hefir því samtals numið rúmum 5 milj. króna. Eftirlaunasjóð stofnaði félag- ið með 10.000 kr. framlagi 1917. Næstu fjögur ár á eftir lagði fé- lagið í sjóðinn 185 þús. kr. og í vöxtu hefir hpnn fengið alls 67, 2ÍÍ8 kr. Svo að nú er hann alls 262,238 kr. Ríkissjóður og félagið. Á und- anförnum 10 árum hefir félagið fengið sámtals 260 þús. kr. styrk úr ríkissjóði (auk strandferða- styrks sum ápin), en hér um bil sömu fjárhæð, eða 253 þús. kr. hefir félagið á sama tíma greitt í ríkissjóð í skipa og vitagjöldum. — Fyrir útgerðarstjórn ríkisskip- anna hefir félagið fengið samtals 285 þús. kr. en á sama tíma greitt 228 þús. kr. í tekjuskatt. Útsvar hefir félagið greitt. Reykjavíkurbæ 350 þús. kr. “Þegar félagið var stofnað, höfðu menn hér á landi litla þí'kking á og enga reynslu um slíkar siglingar. Þessi reynsla og þekking hefir fengist að talsverð- um mun með starfsemi undanfar- inna 10 ára. Floti félagsins er nú mannaður röskum og reyndum mönnum, sem ekki munu standa að baki þeirra, sem í förum eru á kaupföfum annara þjóða. Vér höfum fengið þekkngu á feiglingum við ísland, . r Samlagið og Þér. TIL HVEITIBÆNDA . i VESTUR-CANADA! Yðar canadiska hveitisamlag, hefir í undan. förnum bréfum skýrt fyrir yður starfsemi þessarar stofnunar og ráðstafanir hennar í sambandi við framtíðina. Yður var skýrt frá, að umráð yfir 75% af upp- skeru Vesturlandsins mundi gera samlaginu marg- falt hægra fyrir með að selja hveitið á réttum tíma, nær sem eftirspurnin krefði, meðáuknum hagnaði fyrir framleiðandann. Það er undir yður komið( meðlimum samlagsins, hvernig samlaginu hepnast að ná takmarki sínu nú, Þér getið allir orðið samlaginu að liði, með að útvega því að minsta kosti einn nýjan samnings- hafa. Með öðrum orðum, þér eruð þar með bein- línis að vinna að yðar eigin hagnaði. Hafið hugfast: Með sérhverjum nýjum samn- ingshafa dreifist kostnaðurinn við söluna á fleiri mæla, en það leiðir aftur á móti af sér aukinn á- góða. Samlag yðar mun í ár verzla með allar hrjúf- ar korntegundir, auk hveitisins. Verður það einn' igtilþess, að lækka sölukostnaðinn. Því meiri sem umsetning samlagsins er, þess meiri arður felluríyðar skaut, Samlag yðar er orðið stofnun með alþjóðar- þýðingu og lífsnauðsynlegt fyrir velgengni yðar sem framleiðanda, Með reglubundnum markaðs* skilyrðum, og sölu gegnum samlagið, fáið þér fult verð fyrir korn yðar. Sérhver framleiðandi í Vestur-Canada, œtti að skooa það sína fyrstu skyldu, að ganga í samlagið. Verið ekki á báðum áttum. INNRITIST NÚ ÞEGAR. THrCANADIAN WHEAT POOL. sem hefir þegar orðið oss mikils virði og getur orðið oss enn meira virði í framtíðinni. Margir bjuggust við því, að þessa reynslu yrði að kaupa með f járútlátum; menn. mundu missa það sem þeir legðu í félagið. Ef til vill yrðu töpin enn meiri. Af yfir- litinu má sjá, að ekkert undanfar- inna ára hefir orðið tap á rekstri félagsins. Félagið hefir lent í þeim mesta ólgusjó fjármálanna, sem sögur fara af. Það hefir orðið að kaupa skip og annað á dýrustu tímum; þola gífurlegt verðfall á eignum sínum; stunda siglingar þegar alt lék á reiðiskjálfi og ó- vissan var alstaðar, í hvaða átt sem litið var. Það væri að vísu æskilegt, að hagur félagsins stæði með enn meiri blóma en er. En líklega má fullyrð^, að hagur félagsins standi nú við lok 10 ára tímabilisns mjög sæmilega samanborið við mörg önnur skipafélög í heiminum. Að vísu hefir orðið að taka all- djúpt í árinni, til að tryggja þannig hag félagsins. 78% af öll- um arðinum þessi 10 ár hefir verið varið til þess að færa niður bóka- verð á eignum félagsins. Með þessu hefir, jafnframt því að tryggja félagið sjálft og starfsemi þess, verið trygður hagUr þeirra, sem hluti eiga í félaginu. 13% af tekjunum hefir verið varið til greiðslu til hluthafanna, og hafa þeir með því fengið vexti af fé því, er þeir hafa lagt í félagið, sem nema að jafnaði 4,8% árlega, eða nokkuð hærri vexti en ef féð hefði staðið í sparisjóði. Talsverðu af þeim 9%, sem eftir vérða af rekstarafganginum, 195.000 kr, hefir verið varið til að tryggja Siíarfsmönnum félagsins eftirlaun og 45.000 hefir félagið gefið “til guðsþakka.” Eftir því, sem Önnur hlutafélög hafa gengið hér á landi, síðan hlutafélög fóru að tíðkast hér. þykir óhætt að fullyrða, að eftir öllum atvikum ættu þeir sem lagt hafa í félagið, að mega vel við una.” Vísir. — Þóra Þorvarðardóttir Austmann. Minning. (Undir nafni ekkjumannsins.) Leiðist mér að lifa langar vökunætur. Hjarta mitt í hljóði, helund slegið, grætur. Syrtir fyrir sjónum, Sé eg ei að ganga. Ljóe míns lífs er sloknað, lauga tárin vanga. Samt er muna minum meinabót að kanna námu auðs og yndis endurminninganna. ■Ljúft er þar að leita lýsigullsins bjarta, finna yl þess örva æðaslög míns hjarta. 'Man eg ást og eining alt að degi hinsta, ósíngirni og alúð í því stærsta og minsta, og er hlé í hríðum hvergi virtist nærri, óx þér afl í þrautum öllum stærri’ og smærri. Man eg ástareiða er við sórum bæði, unz að síðstu sigur sól míns lífs í flæði. Svæfðu hrein og hugrökk hrannir sálar minnar Breiðablik þíns hjarta blærinn ástar þinnar. Sá eg aldrei svanna sjónum fyrir minum y \meiri vörn og verju ver og börnum sínum; þau var ljúft að leiða ljúft að venja’ og íefa, þroski þeirra’ og menning þín var æðsta gæfa. Farðu vel, mín vina! vel er starf þitt unnið. Hjarta mitt af harmi, hefir sárum brunnið. Bót sú ein er eftir, árin fáu líða; skamt mun, ást mín, okkar endurfunda’ að bíða. H. J. Leó. Vissasti Veguri Upp Þreyl Þúsundir Fá Heilsubót á Aðeins Fáum Dögum. Hafi læknir vðar ekki ráðlagt yð- nr tneðal þetta, skuluð þér fara til lyfsaians og fá yður flösku. Með- a!ið heitir Xuga-Tone. Nuga-Tone evkur starfsþróttinn, styrkir taugar og vöðva. Það auðgar einnig blóð ið, veitir góða matarlvst, skarpa nielt- ingu og væran svefn. Líði vður ekki sem bezt, ættuð þér að reyna nieða' þetta. Það er ljúft aðgöngu og kost- ar ekkert, ef yður batnar ekki. Rf>y.i- ið það í nokkra daga, og ef árangur kemur ekki í ljós, getið þér skilað pakkanum aftur og fengið peningana til bakíi. Framleiðenduf Nuga-Tone þekkja meðal þetta svo vel. að þeir hafa falið ölltim lyfsölum að ábyrgj- ast það og skila peningum aftur, ef fólk er ekki ánægt. Fæst hjá öllum ábvggilegum lyfsölum.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.