Lögberg - 17.09.1925, Síða 4
LÖGBERG FIMTUDAGINN,
17. SEPTEMBER 1925.
l^OQbera f
Gefið út hvem Fimtudag af The Col- ombta Prets, Ltd., |Cor. Sargent Ave. & Toronto Str.. Winnipeg, Man. Tfelnimars N»8327 N-6328 t JÓN J. BILDFELL, Editor
Utanáckrift til blaðsin*: TKt eOlUMBIA PRESS, Ltd., Box 317Í, Winnlpeg, M«1> Utanáskrift ritstjóran*: EDiTOR LOCBERC, Box 317! Winnipeg, N|an- «
- ' The “I.ögberg” la printed and publlah«d by > The Columbia Preas, Ulmited, in the Columfcia Building, C95 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba. 1
Hvíld.
Eitt af því, sem mönnunum er nauðsynlegt, er
hvíldin. t 4
Frá upphafi vega hefir það verið ritað með óaf-
máanlegu letri á tilfinningar allra manna, að þeir
þyrftu hvíld frá hinum mörgu og margvíslegu við-
fangsefnum lífsins.
Með vaxandi þekkingu á líkams og sálarþroska
manna, hefir þessi meðfædda tilfinning skýrst, unz
nú, að það er nálega hver einasti maður, sem telur
sér það þröska og lífsskilyrði, að fá hvíld frá dag-
legum störfum árlega og jafnvel oft á ári.
Þetta þýðingarmikla atriði í lífi mannanna —
hvíldin—, er þó naumast komið svo langt út úr þok-
unni, að það sé alment skilið.
Menn skilja, að líkams- og sálarþróttur manna
er, eins og hvert annað afl, sem eyðist, þegar af því
er tekið, og menn skilja, að hinar margvíslegu kröf-
ur lífsins krefjast svo og svp mikils af því afli dag-
lega. Og enn skilja menn, að öfl þau, sem maður-
inn á yfif að ráða, þverra og þrjóta, ef alt af er af
þeim tekið, án þess að þau séu endurnærð. En
fæstir menn hafa skilið enn, hvernig sú endurnær-
ing þarf að vera, til þess að hún geti-orðið að til-
ætluðum notum. Samt finna þeir til þess, að hvíldin
er eitt af aðal atriðunum' í sarívbandi við þá endur-
næringu.
Það er margt, sem er misbrúkað og misskilið á
vorum dögum, og hefir að sjálfsögðu alt af verið,
en fátt eins herfilega og það, sem manninum er
hvað nauðsynlegast—hvíldin.
Vér sjáum m$nn og konur, yngri og eldri, rjúka
að loknu dagsverki á hreyfimyndahús, leikhús, eða
í dánssali, og kalla það hvíld.
Vér sjáum leikfimismennina ganga ^ð kappleikj-
um kveld eftir kveld, og kalla þáð hvíld.
Vér sj^um hópa af fólki þyrpast úr borgunum í
þéttbygða sumarbústaði, og kalla það hvíld.
Vér sjáiim menn og konur safnast saman á heim-
ilum hvers annars, og kalla það hvíld.
Vér sjáum menn keppa eftir völdum og upphefð
dag eftir dag og ár eftir ár með þeim ákafa, að mað-
ur freistast til þe?s að halda, að þeim finnist hnossið
►vera að eins að finna þar.
En hvíldina er ekki *þar að finna, — hana er
hvergi að finna, þar sem athafnir manna eða hugs-
anir auka á lífshraðann.
Menn eða konur, sem alla vikuna beita afli sínu
við líkamlega eða andlega vinnu, endurníera það
ekki á kvöldin eða, um helgar, með því að reyna
meira á sig við leiki^ eða neitt annað, sem krefst á-
framhaldandi krafta þeirra.
Menn ségja, að mismunandi viðfangsefni séu
tilbreyting og að leikir styrki líkamann. Engin á-
framhaldandi Sreynsla gjörir það til lengdar. Stælt-
ir vöðvar gjöra manninum að eins mögulégt að
halda lengur áfram, og það geta leikirnir og líkams-
æfingarnar gjört; en hvorki leikirnir né líkamsæf-
ingarnar eru endurnæring hins eydda afls.
Hverig geta menn þá réttilega notið hvíldarinn-
ar margþráðu?
í kyrð og einveru, þar sem hvorki starfslífið, á-
hrif ríiannanna, éða æsandi öfl náttúrunnar ná til
þeirra, 'geta menn notið hins endumærandi afls
hvíldarinnarí.
Úti í náttúrunni.iþar sem hið stormvakta líf mann-
anna getur kyrst við /riðsælt og fagurt útsýni og
í herberginu, þar sem maður getur látið hugann
dvelja við myndir, sem stilla hraðann og hvíla
hugann.
Einveran, þegar hún er í samræmi við aðrar at-
hafnir manna og um hönd höfð til þess að hressa og
endurnæra, er sannarlegur lífs elixír.
í einverunni eru menn fyrst og fremst einlægir
við sjálfa sig. Þar blasa við mönnum brestirnir.
Þar sér maður sjálfan sig, eins og maður í raun og
veru er. Þar eru öfl þau, sem æsa hugann, fjarlæg-
ust. Þar er yfirvegun mannsins rólegust, geðs-
munirnit stiltastir, og þar er maðurinn næst guði.
Það er ekki af tilviljun einni, að trúarbrögðin
hafa ávalt, þegar um andlegan óstyrk hefir verið að
ræða, ráðlagt mönnum einveruna, heldur af því, að
reynsla mannanna héfir sýnt og sannað, að þar er
þeim andlega þreyttu batavon. Og ef svo er, þá
hefir maður líka sðnnun fyrir þvC að einveran er
og holl þeim, sem líkamlega eru þreyttir, því skyld-
leikinn er svo mikjll á milli sálar og líkama, eða á-
hrif þeirra hvort á annað, að það sem öðru er holt,
getur hinu naumast verið óholt,
Einhver hefir sagt: '‘Ef við 'kynnum að meta og
skifta rétt niður í lífi voru vinnu og hvíld, þá værum
við miklu hæfari til framkvæmda, en við erum”, og
bætir svo við:( “og þess vegna er það lífsins mes'ta
kunnátta, áð kunna. að hvílast.”
Vér höfum vakið eftirtekt á þessu, sökum þess,
að oss ofbýður hvað hraðinn er að verða mikill á
fólki — hve fólk sóar lífsafli sínu gálauslega í fá-
nýtt og einskis vert tildur, og er svo orðið aflvana á
unga aldri.
Á meðal vor sjáum vér menn og konur, sem orð-
íð er útslitið og úttaugað áður en æfisól þess er
komin í hádegisstað, — fólk, sem aldrei hefir stanz-
að, aldrei litið kringum sig, aldrei notið hinna
hressandi og endurlífgandi. áhrifa einverunnar —
aldrei varðveitt Iíf sitt frá ofurþunga og eiturmagni
hinnar ráðandi tázku.
When Sparrows fall.
Hin nýja skáldsaga Mrs. Láru Salverson er nú
komin út og á bókamarkaöinn. Ritstjóri Lögbergs
hefir séð eitt eintak af bókinni, sem er allstór, 292
blaðsíður, en hefir ekki enn átt kost á að lesa hana
og getur því ekki að þessu sinni gefið lesendum
blaðsins neina hugmynd um hvað hún hefir að geyma.
En vér höfum séð álit gagnrýnara útgáfufélaga þess
er bókina gefur út, Mr. E. S. Caswell í Toronto, sem
harln hann lætur í ljósi ti-l' höfundarins og hljóðar það
svo:
“Eg hefi lesið bókina þrisvar sinnum og ætti það
að vera nokkurn veginn ábyggilegur prófsteinn á
þvi hvað bókin hefir að færa, og eg mætti bæta því
þvi að eg hafði óblandna nautn af að lesa hana i
þriðja skiftið, að sönnu gat eg farið fljótar í gegn-
um bókina, og hefir það ef til vill nokkuð að segja.
Niðurstaða mín er, eftir að lesa hana þrisvar, að þú
hefir ritað stórmerkilega bók, sem verður lesin og
lesin aftur. Efni bókarinnar hafði meiri áhrif á mig
við að lesa hana í þriðja skifti, en hún 'hafði í fyrsta
og annað.
Það eru persónur í sögunni, sem taka föstum
tökUm á lesandanum þegar í byrjun. Gáfa þín til
þess að lýsa lyndiseinkennum manna er eftirtekta-
verð. Þér er ef til vill forvitni á að vita hver per-
sónan í ^sögunni náði á mér föstustum tökum. Það
er hvorki Ephemia' eða Allison, þó lýsingin á þeim
sé aðdáæileg. Mér finst Stefan Freeman og kona
hans, Clára Bergen, Caroline og Mrs. Swanson bera
af öðrum persóntfm sögunnar. Sérkenna og karakter
myndum þeirra er svo sérstaklega vel og skýrt lýst.
Mrs. Freeman er ef tíl vill .best þeirra allra, hún
gengur í gegnum söguna yfirlætislaus, áhrifamikil, alt
sem hún segir er þrungið af viti og skýrt framsett.
í þeirri persónu hefir þú sett fram mikið af heil-
brigðum Efsskoðunum, og þegar eg 'var að lesa bókina
var eg að hugsa um siðmenningar áhrifin, sem Ijún
mundi hafa á þá ungu er þana lesa.
Lýsingarnar í bókinni eru blátt áfram töfrandi
og víða i henni er að finna sterk tilþrif og hún er
þrufigin af heilbrigðu viti svo hún ætti að verða vel-
kominn gestur þeim, sem með athygli og djúpri
hugsun lesa. ,
Þegar maður talar um söguna i heild, þá álít eg
að hún eigi sæti á meðal tólf bestu skáldsagna i
Canada og máské færri., Eg þekki enga skáldsögu,
sem eg vil heldur lesa i annað sinn en “When sparr-
ows fall.”
Bréf til Lögbergs-
Salmagundi Club,
New York, 8. sept. 1925.
Kæri Mr. Bíldfell! •
Nýlega hefi eg komréf að því, að verið er að
hugsa um að reisa íslenzkum frumbyggjum minnis-
varða á fimtu ára landnámsafmæli þeirra í Mani-
toba. iMér finst það vera í alla staði mjög virðing-
arvert áform, en þykir tíminn, sem til þess hefir
verið ætlaður, að eins liðugur mánuður, helzt til
stuttur. Til þess að gefa hugmyndum manna fast
form, krefst listin nákvæmrar athugunar og um-
% hugsuna^.
Mér er kunnugt um, að Einar Jónsson hefir full-
komnað listaverk, sem, eins og öll hans listaverk,
stendúr á háu stigi frá listarinnar sjónarmiði, og
að það verk er fáanlegt fyrir mjög sanngjarnt verð,
eitthvað undir þúsund dollurum,
Það er óþarft, að fara hér mörgum orðum um á-
gæti verka Einars Jónssonar, þar sem íslendingar
eiga hlut að máli; þeir vita allir, a& listaverk frá
hans hendi mundi sóma sér vel, hvort heldur það
væri á listasafni Canadaríkis í Ottawa, eða annars
átaðar, og að slíkt verk stæðist samanburð við lista-
verk annara þjóða, og á þann hátt verða virðuleg
minning framsóknar frumbggjanna íslenzku, greypt
í stein eða marara í virðulegu formi.
I7ona að þú leýfir þessari hugmynd minni að koma
fyrir almennings sjónir í Lögbergi.
Virðingarfylst,
Emile Walters.
Opið bréf.
Eg hefi s,eð uppdrætti af fyrirhuguðum minnis-
varða, sem talað hefir verið um að reisa frumbyggj-
unum islensku og þar sem mér kemur það mál, eins
mikið við og hverjum öðrum íslendingi og á því rétt
á að láta skoðun mina og bendingar í ljós, í sambandi
við það.
Eg hefLtvær ástæður til þess að mótmæla minn-
isvarða þessum, eins og hann er fyrirhugaður. |
Fyrst. Uppdrátturinn er í ósamræmi við grund-
valJar reglur dráttlistarinnar og skortir heildarein-’
ingu. Hann er samsafn af ósamstefndum orðum og
dráttum.
Það er tign í einfaldleikanum, og ef hann fær
ekki að njóta sín betur en uppdrátturinn að þessum
fyrir'nugaða minnisvarða ber með sér, þá er eg fylli-
lega viss um að minnisvarðinn verður blettur á lista-
og skáldskapar smekk íslendinga um alla ókomna tíð.
Hin önnur mótbára inín stendur í sambandi við
það, hvort réttlætanlegt sá að reisa nokkurn minnis-
varða i þessu sambandi.
Minnisvarðar<eru vanalega reistir til minningar
um sérstakt hugrekki, eða sérstök afreksverk. Ef
hinir fyrstu íslensku frumbyggjar hefðu verið þeir
fyrstu sem komu á þessar stöðvar, ef þeir hefðu
fyrstir manna rutf hér veginn, ef þeir hefðu vitað um
erfiðleikana Og þrautitnar, sem biðu þeirra og samt
gengið út í þá, þá mundi eg segja að þeir verðskuld-
uðu að þeim væri reistur minnisvarði. En þeir voru
ekki þeir fyrstu, sgm til þessara stöðva komu, og þeim
var ekki fyllilega fjóst um erfiðleikana, sem Hér biðu
þeirra og eftir því sem eg best veit, þá gerðu þeir
ekkert meira, eða eftirtektaverðara en. að berjast
fyrir tflveru jinni gegn óvæntum erfiðleikum eins og
hverjir aðrir menn mundu hafa gjört.
Þegar maður hugsar um þúsundirnar, sem komu til
Canada á fyrri tímum, þegar hver og einn var knúður
til þess að berjast fvrir lífinu, og um þúsundirnar,
sem nú í dag eiga við, sömu erfiðleika að stríða fog
máské meiri) í Peace River héraðinu og víðsvegar
um'AIberta, Saskatchewan og Manitoba fylki, þá get
eg ekki séð að hugprýði og afkoma fyrstu íslensku
frumbyggjanna hafi verið neitt sérstök eða einkenni-
leg og þessvegna getur það verið spursmál hvort á-
stæða sé til þess að reisa nokkurn minnisvarða.
ý Ef menn komast að þeirri niðurstöðu að minnis-
varða beri að reisa á Gimli, þá á það að vera yfir-
lætislaus varði, sem lítið er i borið, aðeins viðurkenn-
ing um hina íslensku frumbyggja frá sonum þeirra
og dætrum — þegjandi'þakklætisvottur, um þá sem
veginn ruddu á þeim stað.
Virðingarfylst,
Charles Thorson.
ÞEIR SEM ÞURFA
LUMBER
KAUPI HANN AF
The Empire Sash & Door Co.
Limíted
Office: 6th Floor Bank of Hamilton Chambers
Yard: HEIMRY AVE. EAST, - - WINNIPEG, MAN.
VERÐ og GŒDI ALVEG FYRIRTAK
Tíbrá.
Ljóðabók eftir Pétur Sigurðsson, gefin út af
höfundinum, prentuð hjá Colum'bia Press Ltd., í
Winnipeg, allur ytri frágangur góður, sterkur
pappír og skýrt letur og allar blaðsíður, sem eru
tals 260, vel fyltar af lesmáli, kostar $2.00 í kápu.
Frá þessu er ærið létt verk að skýra og tekur
hvorki stóran mann né sterkan. Það eru umbúð-
irnar, rriætti segja líkaminn að ytra áliti og vallar-
sýn. En að lýsa sálinni og hjartalaginu, s^m inni-
fyrir býr er meiri vandi og miklu meiri vandi en eg
er fær um að leysa af hendi, og síst af öllu vildi
eg byrja á að minnast á þessa ljóðabók, ef það gæti
orðið til þess að rýra álit hennar. Efnið er svo
margháttað og grípur á svo mörgu að mér dylst
ekki, að til þess að fella ítarlegan og réttlátan dóm
um bókina þarf skáld og afburðamann. Mann, sem
er þungur á metum, mann, sem hefir mikla vigt í
almennings álitinu. Og bó'kin er sannarlega þess
virði að vera rækilega tekin til íhugunar og aug-
lýst fyrir alþýðu, því hún á marga kosti og sann-
heilbrigðar skoðanir og er í fylsta máta frumleg í
gegnum alt, og er slíkt í mínum augum mest’ um
vert bæði í bundnu og óíiundnu máli. Og vil eg því
segja að aðal tilgangur minn með línum þessum er
sá, að hvetja þá menn, sem færir eru til og unna
öllu því andlega atgerfi hér á meðal vor, sem gæti
skoðast fengur og frægð fyrir vorar fáskrúðugu
bókmentir hér véstra, til þess að minnast á bók
þessa.
Máské það sé af vesaldóm mínum og vitsmuna
skorti. En mér finst örðugra að færa ítarleg rök
um þessa ljóðabók en nokkura aðra, sem gefin hefir
verið út af íslensku skáldunum og hagyrðingunum
hér. Höfundurinn er sannur og einlægur trúmað-
ur, næstunl því barnslega blíður, og hjartalagið og
ástin til konu og barna og heimilis syo fagurt og
hreint að várla er hægt að komast lengra. Svo
verður hann á öðrum sviðum, í ádeilukvæðunum,
stálharður víkingur sem engu hlífir, og er þar full-
komin raun að þola högg hans og skeyti.. Þarna
líggur vancíinn í fyrir mig, að sigla þennan and-
lega sjó, ann^ið slagið stilt og fagurt og glampar alt
með geislabrotum, nákvæmlega sem mynd og við-
kynning öll ýið höfundinn, sem er mesta prúðmenni
og indælis maðuiv Svo alt í einu er kpmíð æst haf-
rót um og yfir allan vorn svarta og syndum spilta
heim, og verður þá síst vanþörf að kunna einhverja
góða bæn og svíkjast ekki um að lesá hana heldur.
En í gegnum alt er heilbrigð Hfsskoðun bygð á
bjargfastri trúarsannfæring.
Hér ætti eg eflaust að nema staðar og fást
ekki frekar við það ofurefli mitt, sem hér um ræð-
in, en þar sem tilgangur minn er aðallega sá, að
vekja athygli alþýðu á þessari nýju bók, og sér-
staklega að hvetja aðra færari og frægari menn til
að minnast hennar, þá skal eg aðeins bæta þessu
við: '
Ljóðin eru skýrt skilgreind í flokka. Fyrst eru
sálmar og andleg ljóð og nær yfir 72 blaðsiður. Þar
finnast mörg fögur og sterk trúarsannindi til and-
legrar styrktar trúuðum sálum, eru sumir sálm-
arnir mjög Jjúfir og fagrir, eins og til dæmis þessi:
“Sólskin gleði sálu fyllir,
sætleik angan blóma lund.
Daggarúða grundu gyllir
geislaflóð um morgun stund.
Fyrirheiti föðurs standa
friðarboga Ijósum skráð,
dýrðleg vitna verk hans handa,
vafin fegurð, lífsins náð.
Öllum perlum fögrum fegri,
er fágað líf af allri synd,
öllúm stjörnum yndislegri, ~
endurspeglar Jesú mynd.
“Herör” er kraftakvæði, og leikur höfundurinn
ér þar að rímlist pg orðavali. Einnig er kvæðið:
“Steinar sem tala” ákaflega magnað, enda er efnið
voðalegt. Eitt af síðustu stefunum er þannig:
“Það vígi, sem járnrlkið volduga hlóð,
til varnar þess gjörspiltu siðum,
sprengdi hið svívirta saklausa blóð, *
er Cæsara val'dstjórnin fótunum tróð
í dauðans og helvítis hliðum.”
Margt er fleira þess vert að minst væri á í
þessum flokk Ijóðanna, sem heit trúarkvæði.
Þá koma 12 eftirmælakvæði, og til samanburð-
ar öllum þeim ósköpum, sem vér höfum átt að venj-
ast af því tægi, þá standa þau öll framarlega í röð-
inni. Eg vil nefna fyrsta kvæðið; “Litla leiðið.”
Það hdd eg óhætt sé að kalla spildarýerk, og enginn
nema hreinhjarfaður hugsjónamaður og skáld get-
ur gert annað jafn gdtt eða betra. Þar birtist líka
kvæði um Mrs. Karólínu Dalman, sem mér þykir
mjög vænt um. Þessari yndislegu, góðu gömlu konu
er þar svo rétt lýst *
Öllum var hún hjartakær,
vakti yndi létt með lyndi,
lék um hana gleði blær.”
Næst koma “ástarljóð”, ekki færri en 24, öll
til konu hans og barna. Höfundurinn líkist þar
“Háttálykli” Páls lögmanns Yídalíns, er hann kvað
til Þorgerðar Magnúsdóttur, unnustu sinnar, áður
en þau giftust. Báðir eru svo brennheitir af ást,
að úr þeásu verður eilíf langloka og endurtekning-
ar, en óneitanlega eru sum þessara kvæða Ijómandi
falleg, eins og: “Hvað eg á heima”, og fleiri mætti
þar nefna. y
Þá koma mörg tækifæriskvæði um ýmsa menn
og konur, og þar á Dr. B. J. Brandson mjög gott og
réttlátt kvæði, og öll finst mér þau öfgalaus, lag-
lega kveðin, með hlýhug og veya til vegs og sæmdar
þeim, sem hlut eiga að málum.
Næst “áramótakvæði”, um 20. Þessi kafli er
að minni hyggju allur mjög vel og skáldlega kveð-
inn. Eitt af þessum byrjar svona:
Lllc...
cREAm
Hundruð bænda vilja heldur senda oss rjómann,
sökum þess, að vér kaupum hann allan ársins hring.
Markaður vor í Winmpeg, krefst alfs þess rjóma, sem
vér getum fengið, og vér greiðum ávalt hæsta verð
og það tafarlaust.
Sendið næsta dunkmn tn næstu stöðvar.
Andvirðiö sent með bankaávísun, sem ábyrgst er
af hinu canadiska bankakerfi.
“Nú rís hið nýja, unga ár,
í æskulífsins vonarblóma,
og geislaflóð þess björtu brár>
baðar glæstum tignarljóma.
Það siglir ljóssins öldum á,
eftir tímans regindjúpi,
langt að áustan — eilífð frá, —
sem elding, vafið dýrða,^ hjúpi.
Eiginlega get eg engan mun
gert þe^sara kvæða, og eru þau ef
til vill besti kafli bókarinnar. Mér
finst höfundinum líða þar allra
best. Hann er þar í alfrjálsum
hugsanaheimi, # eiginlega á ótal
vegamótum og‘ þræðir allar skýr-
ustu og fegurstu götur.
Síðasti kafli bókarinnar er ann-
ar lengsti flokkurirín og eru það
“ýmisleg kvæði.” Þetta er lang
þyngsti kaflinn fyrir mig að segja
nokkuð um, annað en það, að hér
eru mörg ágæt kvæði að hugsun
og búningi, og líka mörg þung á-
deila, svo, að eg man ekki eftir að
hafa séð annarsstaðar tekin fast-
ari áratog. Eg get bent á gullfal-
leg kvæði eins og: “Áfram”, “Að
hugsa rétt,” “í dag”, “Á sjónar-
hól,” “Augað,” “Vor,” og svona
mætti mörg telja. Þar eru líka
mörg þrungin áð efni og ádeilu.
Til dæmis að nefna kvæðið:
“Hvern flokkinn viltu fylla.” Það
er í þremur köflum. Þar er sagt í
þeim fyrsta:
“Þfeir ala sín hjörtu við óhóf og
svall,
en ekkjur og fátæka sjúga,
hugsndi aðeins um auöæfa brafl,
ágjarnir stela og ljúga.”
Annar kaflinn byrjar svona:
“Svo mætir þér hópur, sem heldur
sinn rétt
himnunum stærri að vera,
þeir Iasta og hata af hjarta þá
stétt,
sem heldur sig skárri þeim vera”.
En svo verður kaldhæðnin æði
nöpur í þriðja og siðasta kaflan-
um, sem byrjar svona:
“Svo kom^ aðrir með sakleysis
brag,
og siðprúðir þykjast þeir vera,
þeir raula sitt glaðlega guðrseknis
lag,
og góðverka kápuna bera,
í kirkjuna þenja sig þrisvar á dag,
og það er hið minsta, sem nægir
til þess ,að vernda um veraldar
hag,
og verða í kristninni frægir.
Um skáldskap kveður höfundur
bókárinnar þannig:
“Sumt er gott en sumt er þunt,
svona fremur vizku grunt” . . .
Og aftur við annað tækifæri:
“Regingsleg sál
■ með rembings gífuryrði,
log ramflókið mál,
er harla lítils virði”.
Enda má Pétur Sigurðsson
frómt úr flokki tala. Hann er alt
ígegn mjög skýr og tilgerðarlaus,
hefir gott vald á málinu og leik-
andi rímlist. Mörgum eru minnis-
stæðar sléttubanda vísurnar hans,
sem birtust í Lögbergi og hér eru
aftast í bókinni. Slíkt leika ekki
áðrir en afbragðs hagorðir menn.
Nú vil eg ekki lengja meira
þessar línur, sem ritaðar eru aðal-
lega vegna þess, að mér þykir það
mesta ómynd og ófyrirgefanlegt
sinnuleysi, af færum og frægum
mönnum hér, að hafa ekki enn sem
komið er, ritað neitt um þessa
bók, sem er sannarjfiga þess virði
að hennar sé getið. Og þar sem
höfundurinn er ungur maður enn
þá má mikils af honum vænta í
framtíð.
Lárus Guðmundsson.
Silfurbrúðkaup.
4. þ. m. áttu þau Mr. og Mrs.
Thordur Anderson í Selkirk silf-
urbrúðkaup, þar,sem þau hjón
hafa dvalið sí'San að þau giftust
áriö 1900 og notið tiltrú og virö-
ingar allra, sem þeir hafa kynst.
Við þessi áramót i lífi þeirra hjóna
söfnuðust félagssystkini þeirra og
meðborgarar saman i samkomusal
lútersku kirkjunnar, sem þau hjón
og börn þeirra hafá stutt með prýöi
til þess að samfagna þeim.
Samssetinu stýrði Klemens JónaS-
son með mestu snild. Eftir að
flytja ágæta bæn í byrjun mann-
fagnaðarins, því þar var enginn
prestur viðstaddur, ávarpaði hann
silfurbrúöhjónfn með vel' viðeig-
andi oföum og las upp ávarp frá
gestum til þeirra og afhenti þeim
silfurboröbúnað.. Einnig var Mr.
Anderson afhent snotur gjöf frá
fulltrúum safnaðarins, þvi hann
hefir undanfarin ár verið forseti
lúterska safnaðarins í Selkirk, voru
það uppslagshnappar úr silfri.
Ennfremur var þeim hjonum af-
hent gjöf frá verkafólki Northern
Fish félagsins, sem Mr. Anderson
hefir veitt forstööu í mörg ár. Var
þaö; vönduö stofuklukka í mahoga-
ny umgjörð. Fleiri gjafir voru
þeim hjónum færöar við þetta
tækifæri, svo sem frá eigendum
Northern fiskifélagsins. Ávarp frá
kven- og trúboðs-félagi safnaðar-
ins var Mrs. Anderson fært af
Mrs. J. Hinriksson. Mrs. Anderson
hefir verið fétagi í þeim félögum
báðum og því síðarnefnda frá
byrjun.
Ræöur voru fluttar viö þetta
tækifæri auk ræðu þeirrar er veislu-
stjórinn flutti* af Jóni Sigurðssyni,
S. Ingimundarsyni, A. S. Bardal, S.
Sigurðssyni og Dr. Thorbirni Thor
lákssyni. Með söng og hljóðfæra-
slætti skemtu Mrs. B. S. Benson,
Miss Dora Benson, Mrs. J. Ólafs-
son, Mabel C. Bállerton, Mr. Jón
Eiríksson, Norma Dalrnan og
Stephan Sölvason. Mesti fjöldi sím-
skeyta og bréflegra árnaðaróska
barst silfurbrúðhjónunum frá fólki
úr ýmsum bygðum, bæði í Canadá
og §andaríkjunum, sem ekki gat
verið viðstatt og eftirfylgjandi
kvæði voru þeim og flutt.
Til Mr. o<j Mrs. Th. Anderson, i
Selkif'k á silfu'rbrúðkaupsdegi
þcirra 4. sept. 1925.
Að baki mildur morgun fagur,
nú miður, heitur gæfudagur.
Sælla vona seinni partur,
sólskins ríkur, hlýr og bjartur,
krýnir sigri, frægðar för.
Knúður ástar vörmum vindi,
vakurt fram hjá gullnum tindi,
siglir að lokum kappa knör.
Nú á silfurbjörtum bárum, *
berst frá liðnum sælu árum
glampalogi glæstra vona:
glaða brosiö, dætra, sona, —
lánið mesta — lífsins gjöf.
Seinni daga sæluboði,
sigurbjartur aftanroði
gyllir tímans heiðblá höf.
Siglir fley á unaðsöldum,
undir gullnum skýjatjöldum,
hlaðið minning heilla-daga,
happ — er öll þess ferðasaga.
Hvergi úfinn sjór að sjá,
en við stafni bjarta, blíða,
blasir undra-landiö fríða,
þar logar tindum öllum &.
Drottins hönd að lending Ieiði,
líknarfaöminnl opinn breiði,
ykkur hjónum alla daga,
öllum stýri franr hjá baga,
blessi ykkar bú og ráð.
Gleði, friður, ást og yndi,
ykkur fastar saman bindi,
fyrir Drottins dýrstu náö.
Pétur Sigúrðsson.
—1-------
Avarp til hjónanna Mr. og Mrs.
Th. Anderson, í silfurbrúðkaupi
þeirra 4. sept. 1925.
Gott er að minnast á glaðværar
stundir,
gleðjast við hljóma frá liðinni tíð,
æskan þá samtengdi muna^og mundir,
munarblóm döfnuðu, lífskær og fríð.
Dýrmætar gnóttir af minninga
myndum r
f I