Lögberg


Lögberg - 08.10.1925, Qupperneq 4

Lögberg - 08.10.1925, Qupperneq 4
Bte. 4 LÖGBERG FIMTUDAGINN, 8. OKTÓBER 1925. 'Cocibcrg Gefið út hvern Fimtudag af The Col- nmhia Pre*», Lld., ,Cor. Sargent Ave. & Toronto Str.. Winnipeg, Man. Talgimart N-6327 oý N»6328 JÓN J. BILDFELL, Editor Otanáskrift til blaðsins: TK« ÍOLUW(BI^ PHES3, Itd., Bnx 317Í, Winnlpeg, Mai). Utanáskrift ritstjórans: íðiTOR LOCBERC, Box 317* Winnlpeg, Man. The "Uögberg ' te prlnted and publlshed by The Columbia Press, Llmited, in the Columbla Building, €95 Sargent Ave, Winnipeg, Manltoba. ■*‘ i - ' '= Tollar og skattar. Síðan að síðasta Heimskringla kom út, hafa nokkrir menn komið til ritstjóra Lögbergs og beðið um skýringu á því, bver munur sé á orðunum “tollur” og “skattur.” Þessu væri hægt að svara í stuttu máli og segja að tollur, eða tollar sé nafn á einum lið, eða hlekk í skattakerfi þjóðarinnar. En sökum þess að slíkt kerfi er veigamikið og nokkuð margbrotið er ef til vill rétt að fara um það nokkrum orðum. Enska orðið “tariff” á íSlensku tollur, er í raun- inni skrá yfir vörutegundir, sem Skattaðar eru til inntekta. Orðið skattar nær yfir öll útgjöld, sem lögð eru á einstaklinga og félög til ríkis og sveita- þarfa, og innibindur í sér öll' hin breytilegu nöfn, sem hinum ýmsu deildum í skattakerfi þjóðanna eru gefin. Um allar deildis skattakerfisins í landi voru nennum vér ekki að fara að rita og látum oss því nægja að minnast á nokkrar málinu til skýr- ingar. Enska orðið “tariff” þýðir ein? og sagt hefir verið, skrá yfir vörutegundir þær, sem þjóðir flytja að sér og frá og leggja á tolla, eða skatta ríkinu til inntekta, og eru það nefndir óbeinir skattar. Tollurinn á slíkum vörum er ákveðinn með lögum og sá sem fiytur vörurnar inn, eða út greiðir hann í ríkissjóð, en hann gjörir meira, hann færir upp verðið á innfluttu vörunni, sem svarar upphæð tollsins og þá verðframfærslu horga allir þeir, sem slíka vöru kaupa og er það nefndur óbeinn skattur. Sama er að segja með skatt, eða toll á útfluttri vöru, þegar um útflutningstoll er að ræða, þá borg- er sá, er flytur vöruna út, hinn tiltekna skatt og leggur svo ýmist á þá sem kaupa eða selja og stund- um á Ibáða. Það er hinn annar óbeinn skattur. Þriðji skathurinn, sem istundum er lagður á vörur, er á ensku máli nefndur “excise duty” — framleiðsluskattur, sem framleiðendur borga og líka verður óbeinn skattur á þá, sem slíka vöru kaupa. Svo koma beinir skattar, svo sem eignaskattur. Skattur á inntektum manna, bifreiðaskattur, gas- olíu skattur o. fl. <En heildar nafnið, sem felur í sér allar þessar deildir er orðið skattur, eða skatt- ar. Hon. Arthur Meighen í Winnipeg Það var allmikill undiribúningur undir komu leiðtoga afturhaldsflokksins, Hon. Arthur Meighen til Winnipeg á miðvikudagskveldið var. Flokks- menn hans hér höfðu leigt skála mikinn, sem held- ur um fimm þúsund manns, handa Mr. Meighen til að tala í. Skreytt hann á ýmsan hátt og ráðið lúðraflokk til þess að skemta fólkinu ef því kynni að leiðast. Skálinn var orðinn alskipaður fólki kl. 8 um kveldið og þingmannaefni afturhaldsmanna til staðar að skemta fólkinu, þar til leiðtoginn kæmi, sem búist var við að yrði og varð kl. 9.40 e h. Þegar Mr. Meighen kom í salinn, var Hon. Ro- bert Rogers þingmannsefni í Suður Winnipeg að tala. Er hann orðinn skuggi hjá því sem hann var, og sagði ungur maður, sem var sessunautur vor að “þessi maður ætti f*ekar heima á gamal- mennaheimili, en í þingsal,” en hann þekti ekki Bobb. Ræða Mr. Meighens við þetta tækifæri var eins og flestar ræður hans, er hann hefir flutt upp á síðkastið. Hátollaprédikun og spár um ófarir, eyðilegging og dauða Canada þjóðarinnar, ef hon- um væru ekki fengin völdin í hendur. Röksemdafærsla Mr. Meighens í þetta skifti var nokkuð einkennileg í samhandi við stefnu og framkvæmdir Kin^-stjórnarinnar í tollmálinu. Hann hélt því fram, að þrátt fyrir ákveðinn stuðning bændaflokksins á þingi þá hefði King- stjórnin ekki fylgt fram stefnu sinni og loforðum er fram eru tekin í stefnuskrá frjálslynda flokks- ;ns frá 1919 og ljann sagði að gefin hefðu verið við kosningarnar 1921, með lækkun tollanna. Hann tók fram að tollar hefðu verið lækkaðir lítillega á fáeinum jarðyrkjuverkfærum og tekin af aðeins einni nauðsynjavðru tilbúnum jarðáiburði. ; Þrátt fyrir þessa staðhæfingu gekk mestur hluti ræðu hans út á að sýna fram á hve ægileg áhrif að toll- lækkunin hefði haft á iðnaðarframleiðslu þjóðar- innar og efnahag fólks. Vér vitum ekki hvernig að fólk alment lítur á þessa röksemdafærslu en frá voru sjónarmiði er það næsta furðulegt, að toll- lækkun, sem er svo Ttilmótleg að naumast sé þess vert að minnast á hana; skyldi geta valdið því, að verksmiðjueigendur í Canada, ekki aðeins einn, eða tveir, heldur svo Jiúsundum skifti hafi orðið að loka verksmiðjum sínum, hætta að framleiða, og láta vinnufólk sitt fara. Hvað skyldu það vera margir menn, sem trúa þessu, þótt Mr. Meighen sé húinn að prédika það nú í fleiri ár utan þings og innan? Vér trúum því, að margir iðnaðarmenn og verzl- unarmenn í Canada, hafi átt við raman reip að draga á undanförnum árum vér vitum það og vér vitum líka að margar verslanir og iðnaðarstofn- anir hafa orðið gjaldþrota, en að það alt sé að kenna tollaniðurfærslu King-stjórnarinnM-, nær ekki nokkurri átt. Árið eftir að Meighen fór frá völdum, eða árið' 1922 áður en tollverndarmúr. Meighens og annara hátollapostula var snertur, eða stefna King-stjórn- arinnar gat haft nokkur"áhrif á kringumstæður manna þá, samkvæmt heimildum Meighens sjálfs (skrá Dunns) urðu 3695 verslunar og iðnaðarstofn- anir gjaldþrota í Canada og nam fjártap í því sam- bandi $78.000.000. Árið 1923 urðu 3247 stofnanir í Canada gjaldþrota með $65,000,000 fjártapi og síð- astliðið ár voru það 2,474 stofnanir, sem gjaldþrota urðu með $64,000,000 fjártapi. Það liggur því í augum uppi, að árið eftir að Meighen fór frá völd- um og verndartollarnir skýldu iðnaðarstofnunum óskarðir eins og hann skyldi við þá, þá urðu gjald- þrotin flest og tapið í samibandi við þau mest. Hin tvö árin, þau árin, sem stefnu King-stjórnarinnar í fjármálum þjóðarinnar gat að nokkru, þá fóru þau fækkandi og tapið, sem frá þeim stóð, mink- andi. Þegar Hon. Arthur Meighen talar um þessa hluti, sem hann gjörir nú altaf þegar hann opnar munninn, um stjórnmál á ræðupalli þá talar hann einkum og sér í lagi um verksmiðjuhrunið, sem King-stjórnin sé völd að með tollalækkun sinni. Svó maður aftur taki heimildir Mr. Meighens sjálfs ('Dunn skrána), þá sér maður að árið eftir að harin lét af völdum, þá urðu 857 verksmiðjur, stórar og smáar gjaldþrota í Canada með fjártjón, sem nam $39,000,000 og var þá ekki farið að hagga við tollmúrum Meighens eins og sagt hefir verið hér að framan og engin eða sáralítil áhrif náðu til frá King»stjórninni. , iNæst ár á eftir eða árið 1923 urðu 792 slíkar verksmiðjur gjaldþrota, með fjártjóni er nam $31,- 000,000, og síðastliðið ár urðu 625 slíkar stofnanir gjaldrota með fjártjóni er nam $36,000,000, svo það er í augum uppi og ómótmælanlegt, svo framar- !ega að Dunn’s skrárnar séu ábyggilegar og um það efast víst fáir að þrátt fyrir tolllækkun King- stjórnarinnar þá hefir verið stór framför, líka á þessu sviði síðan að Meighen lét af völdum og King-stjónin tók við. Ef að sú kenning Mr. Meighens væri sönn að meinsemdir þær, sem hér hefir verið minst á og aðrar fleiri, sem þjóðfélagi voru ama, yrðu hættar með því að færa upp tollana þá ættu þær sannar- lega ekki að þjá nágranna lýðveldið fyrir sunnan oss — Bandaríkin, því þar eru tollarnir þó nógu háir. En hvað skeður með þeim háu tollum? Yér höfum að vísu ekki við hendina gkrá yfir verzlana og iðnaðarhrun hjá þeirri þjóð á sama tímabili, en vér höfum skýrslu yfir hankahrunið, sem er nokk- urnveginn ljós mælikvarði á það, við hvað aðrar stofnanir hafa átt að stríða. Árið 1922 urðu 277 bankar gjaldþrota í Banda- ríkjunum, sem til samans skulduðu 77,000,000 árjð 1923 voru það 578 bankar, sem urðu gjaldþrota og námu skuldirnar $203,000,000 og síðastliðið ár — árið 1924 urðu 613 bankar í Bandar kjunum gjald- þrota og skuldirnar, sem á þeim hvildu námu $202, 000,000. Hvernig stóð á öllu þessu bankahruni og fjár- tjóni, sem því fylgdi? Hví vernduðu tollarnir ekki þessar stofnanir? Sökum þess að tollarnir voru og eru böl fyrir þá parta þess mikla meginlands, sem flestar þessar bankastofnanir voru í og hafa gengið svo nærri sumum pörtum landsins að þeim liggur við eyðileggingu. Hið sama hljóta hækkaðir tollar að gjöra í vestur tfylkjum Canada, þar sem afurðir lands og lagar er aðal framleiðsFan. Knud Rassmussen á meðal Eskimóa. Að undanförnu hefir Knud Rasmussen verið að ferðast á meðal Eskimóa í Norður-Canada og hefir margt og mikið um það ferðalag sitt að segja þar. Fyrst og fremst hefir hann lagt leið sína um lítt þekt landssvæði og í öðru lagi kynst Eskimóum nákvæmlega og siðum þeirra. Eskimóar á Norðurströnd Canada segir Ras- mussen að séu þrekmiklir menn, sem að líkum lætur, því þeir eiga við marga erfiðleika að stríða og ó- blíða veðráttu að minsta kosti vetur og haust. Fljótlyndir segir hann að þeir séu og óvægir hver í annars garð, og eigi því oft 1 skærum. Ósamlyndi það stafar að sjálfsögðu frá fleiru en einu, en aðallega þó frá skorti á gjafvaxta kven- fólfei. f því sambandi segir Mr. Rasmussen frá því sem kom fyrir Eskimóa einn, er Inorajuk heitir og tilheyrir mannflokki þeim á meðal Eskimóa, er Ilivilermio nefnist. Rasmussen hafði verið á ferð og áði til þess að hvíla sig, þegar að hann heyrði sagt rét.t hjá sér: ‘“Af konum erum við fæddir, þeim eigum við Hfsgleðina að þakka og fyrir þær erum við reiðuhúnir að drepa hver annan.” Þessi maður, Inorajuk heiðist hjálpar Rasmus- sen til þess að rétta hluta sinn og skýrir honum frá málavöxtum á þessa leið: “í fyrra vetur fór eg í. kynnisför til hygðar landa minna, sem höfðu reist sér veturvistarbýli (hús úr ís) nálægt Qeqertarssuaq (Jenny Lind oyju), en áttu aðallega heima á Victoríu eyjunni, Það var um það leyti árs, er sólin var tekin að verma á ný og selirnir að ala unga sína. Eg fór þangað til þess að versla við Ulugssaq og í för með mér var Seqining og kona hans, kona mín og ung dóttir. Viðskiftum mínum var brátt lokið, en eg varð hríðteptur í heilan dag eftir að eg var ferð- búinn. Þá um daginn var konu minni boðið heim til manns er Niaqoq heitir til þess að borða nýsoðið selakjöt. En skömmu eftir að hún var þangað kom- in kom 'Seqine^ til mín og sagði mér að fólkið í þorpinu hefði ráðið við sig að stela konunni frá mér. í þessu þorpi eða bygð voru fjórtán karlmenn með konur sínar og fór eg undir eins og mér urðju fyrirætlanir fólksins ljósar heim að hyrgi því, er kona mín var lokuð inni í og tókst mér eftir nokkra áreynslu að hrjótast inn í það og ná konu minni út. Þegar við vorum komin út komu allir karlar og kon- ur þeirra út úr húsum sínum og veittust að okkur lenti þá í slagsmál og eftir að vera búinn að berj- ast Iengi og búið var að rífa af mér öll fötin gat eg ekki haldið áfram að íberjast nakinn í > bylnum. Varð eg því frá aS hverfa með dóttur mína. En áður en eg fór, var mér tilkynt að Navfalik ætlaði að taka konu mína sér fyrir konu. “Nú bið eg lögregluna um að hjálpa mér, því mér er ómögulegt að fá aðra konu og það er erfitt fyrir mig og dóttur mína, sem er aðeins sex ára að komast af kvenmannslaust.” Þessi saga segir Rasmussen að sé gott I sýnishorn af því stríði, sem E&kimóamir eigi stöð- ugt í út af kvennaskorti, og ástæðan fyrir fæð kven- fólksins á meðal þeirra, er sú, að meybörn flest, sém á meðal þeirra fæðast eru deydd, eða horin út, undir eins og þau fæðast. Eskimóar líta svo á, segir Rasmussen, að mey- hörnin séu aðeins til hyrði, þar sem sveinbörnin verði hrátt hagnýt til fanga og fjárstyrks. Siðjir þessi er orðinn svo rótgróinn á meðal mæðra Eskimóameyharnanna, .að þær finna ekkert til þess, þó dætur þeirra séu deyddar. Velvildar tilfinningin hjá þeim á því stigi, er dofin og dauð, vaknar ekki fyr en síðar. í samibandi við ræktarsemi Eskimóanna við sonu sína, segir Rasmussen þetta dæmi: “Fyrir meira en ári síðan, réðust fimm menn á þrjá karl- menn konu og barn, því einn af þessum fimm vildi kasta eign sinni á konuna. Leikur sá fór þannig að mennirnir þrír konan og barnið voru drepin og lík þeirra falin sem sigurvegararnir höfðu best vit á. Einn af þessum fimm, sem að vígum þessum stóð var séxtán ára gamall piltur, sem Alekamiaq hét og annar nokkuð eldri, sem Tatamerana hét og vóg Alakamiac^ einn af félögum sínum nokkru síðar til þess að annar maður gæti eignast konu hans. Frá -öllum þessum morðum var gengið svo, að sem minst bæri á þeim, en þó komst lögreglan á snoðir um hvað fram hefði farið og fór að leita óibótamannanna, sem samkvæmt lögum vorum áttu að hera ábyrgð á glæp þessum, en sem í augum Eskimóa er enginn glæpur, þar sem að minsta kosti að sextíu og fimm af hundraði eru manndráparar, frá voru sjónarmiði skoðað, og barnamorSingjar. Eskimóar þessir voru dregnir fyrir lög og dóm og kostaði það ríkið $1900,000 að fá þá hengda. Annar manna þeirra, sem hengdir voru átti föður á lifi. Þegar faðirinn frétti að hengja ætti son sinn, þá fanst honum það óbærilegt að konur sinn yrði sendur inn á landið fyrir handan dauðaris haf, án þess að þar yrði eirihver til að mæta honum, svo eina úrræðið var að hann tæki sitt eigið líf, og það gerði hann; reyndi fyrst að skjóta sig, sem mistókst. Tók hann þá hn:f og ætlaði að stinga sig í hjartastað, en það mistókst líka. Að síðustu tók hann sög og' sagaði í sundur á sér barkann og tókst á þann hátt að fullnægja þessari skyldutil- firiningu. / “Dag einn að vetrarlagi stóð eg við gröf þess manns, sem er auðkend með stórum steinum, er settir hafa verið ofan á hana<og tveimur dýraskinn- um, sem fæla eiga villidýr í burtu frá henni. Vind- urinn nístingskaldur lék um mig og íhenti snjónum í flygsum alt í kringum mig. Samt liðu hitaöldur um sál mína við að hugsa um örlögin, sem ibundin voru við þessa gröf. Einhversstaðar í fjarlægð hafði ókunnur mað- ur hengt pilt. En hér á þessum stað hafði um- komulítill og aldurhniginn heiðingi öruggur í trú feðra sinna tekið upp á sig sinn hluta af sekt sonar sín með því að fórna lífi s'nu.” Um skemtanir á meðal Eskimóar er Rasmussen fáorður, þó minnist hann á þrjá leiki á meðal þeirra sem í miklum heiSri séu hafðir. Eitt er dansleikur, sem þeir nefna úlfadans. Þeir, sem taka þátt í honum, klæða sig í úlfahami, eða réttara sagt steypa helgjum af úlfum, sem hausinn er áfastur við, yfir höfuð sér og dansa þannig útbúnir. Dans sá bygg- ist á munnmælasögu, er gengið hefir frá einni kyn- slóð til annarar og er hún á þann hátt, að í fyrnd- inni hafi örn hremt og haft á burt með sér ungling og að örninn hafi kent unglingnum að dansa. Ung- lingur þessi undir sér ekki í ararheimum, fór til baka til fólks síns og kendi því dansleikinn, en fólk hans kom á slíkar danshátíðar í úlfahömum. Trumíbuslagari er á öllum sl'kum dansleikum og slær hann ibumbu, sem úr við er gjörS, með krafti miklum og list hans fólgin í, að trumuhljóðið líkist sem mest hjartaslögum arnarins. Annar leikur þeirra er 1 því fólginn a8 net er fest á háar stengur í loftipu. Svo fer maður Upp í netið og listin i þeim leik er fólgin í þvi að geta staðið í sem tígulegustum stellingum í netinu. Sá þriðji er hnefaleikur, sem karlmenn taka þátt í, eru þeir herir niður að mitti og berjast svo á víxl með hnefunum sína stundina hvor, því vanalegast eru tveir og tveir að þeim leik í senn. Skiftast þeir á um að gefa hvor öðrum kylfu-högg, en á meðan annar er að berja á hinum, stendur sá, sem ekki hefst að með krosslagðar hendur á brjósti brosandi. Eins og menn vita, þá eru Eskimóar veiðimenn miklir, bæSi á landi og sjó og fylgja þeim veiðiskap einkennilegir siðir og hjátrú ekki alllitil t. d. veiða þeir mikið af þorski, sem feiknin öll er af meðfram norðurströnd Canada og þar sem þeir eru að þorsk- veiðum raða þeir þorskum þeim er þeir veiða í hring og standa svo sjálfir innan í hringnum og á meðan að þeir geta þannig staðið, er það hjargföst trú þeirra að þorskurinn í sjónum, haldi sig undir hringnum og fari ekki þaðan fyr en hringurinn er rofinn og veiðimaðurinn farinn út úr hringnum og varlega fara þeir með þorskveiði sína uns þorsfc- arnir eru dauðir, því þeir trúa að sálir þorskanna lifni á ný. Athugasemd við Thorsonsbréfið “Hyaðan kennir þef þennan Th—*— andar nú handan.’ í Lögbergi 1. októher hirtist annað opið hréf frá C. T. iSegir hann í því, að eg hafi álýktað, að listin “væri með öllu óháð lögum.” Þetta hefi eg hvorki ályktað né sagt. Þá skýrir C. T. frá því — (sem var raunar ekk- ert leyndarmál), að til séu tvö félög í Bandaríkj- unum, “The American Federation of Arts” í W'ash- ington, og “The Municipal Art Society’- í New York, sem gefið hafi út bækling með leiðbeining- um fyrir dráttlistarmenn, myndhöggvara og aðra, er fást við minnisvarðagerð. Tilfærir hann svo, — all-rembingslega — ýms fyrirmæli úr bæklingi þessum, um aðal reglur, er fylgja skuli við minn- isvarða-gerð — og er það öldungs vandalaust, að setja á sig spekingssvip og teygja lopann—eftir öðr- um. — (Eg er samþykkur því, sem þar er sagt; en meðan eg var að lesa, fanst mér eg sjá apa, sem talaði mannamál. Viðvíkjandi ummælum hans um steinsteypuna, er það að segja, að sjaldgæft er, að minnismerki séu húin til úr því efni. Þó kemur það fyrir og á vel við stundum. — Hinn frægi Sculptor í Banda- r'kjunum, Lorado Taft, hefir gert standmynd úr steinsteypu, sem er listaverk. Vitaskuld er það sjaldgæft, að það á við, en listin, eins og svo margt annað, er “relative”. ÞEIR SEM ÞURFA LUMBER KAUPl HANN AF The Empire Sash & Door Co. Limited Office: 6th Floor Bank of Hamilton Chambers Yard: HENRY AVE. EAST, - - WINNIPEG, MAN. VERÐ og GŒDI ALVEG FYRIRTAK Kjörkaup á Eldivið Vér hpfum um 300 cords af ágaetum eldiviÖ, ófúnum, þurrum og af meðal staerð til sölu. Tamarack - - $8.50 per cord Pine - - $7.00 “ “ Spruce - - $7.00 « “ Poplar - - $6.50 “ « Slaps - - $8.01) “ “ Slaps í stóarlengd hálft cord $4.09 Millwood $3.00 Talsími að deginum A2191. Kveldin A7224 TH0RKELSS0N, Box Manufacturer KOL! KOL! KOL! ROSEDALE KOPPERS AMERICAN SOURIS DRUMHELLER COKE HARD LUMP Thos. Jackeon S Sons COAL—COKE—WOOD 370 Colony Street Eigið Talsímakerfi: B 62-63-64 POCA STEAM SAUNDERS ALSKONAR LUMP CQAL CREEK VIDUR í þennan umrædda minnisvarða á einmitt vel við að móta stuðla- hergið úr steinsteypu — ekki til að vera “eftirstæling kletts”, eins og C. T. kemst að orði, held- ur til að tákna form stuðlahergs- ins. Þarf ekki að misbjóða list- inni eða smekkvísi með því, sé verkið að öðru leyti vel af hendi leyst. Skraf C. T. um það, hvað megi sýna eða ekki sýna á íslendinga landnámsvarða, hvort víkja megi að Amer.'kufundi Leifs Eiríks- sonar, sem leiddi af sér, að ís- lendingar námu fyrst land í þess- ari álfu; hvort sýna megi virð- ingu landinu, sem landnemarnir eru frá, ætla eg ekki að ræða við C. T. Um þau atriði munu dæma menn, sem eru miklu fæari en C. T. — og þeir, sem ibak við tjöldin standa. í fyrra skrifi sínu leitaðist C. T. við að lítilsvirða landnemana. Nú ræðst hann á íslenzka stuðlabergið! sem hann segir lé- legra en annarsstaðar. iEf það skyldi nokkurn tíma fyrir honum liggja að reka skall- ann (þó þykkur sé) í íslenzkt stuðlaberg — líkamlega — þá myndi honum naumast finnast það hrotgjarnara eða mýkra, en ann- arsstaðar. Stuðlabergið íslenzka hefir stað- ið um ótölulegar alda raðir, mót- ,að af nát.túruöflunum — ljóð í steini — prýðilegt og sérkenni- legt. Vér getum, held eg, öll tekið undir með Grími Thmsen og heimfært upp á landnemana— “Þéttir á velli og þéttir í lund, þrautgóðir á raunastund”, og svo: “Norðurstranda stuðlaberg stendur enn á gömlum merg.” Fred. Swanson. ———o-------1— Heimilisiðnaður í Harð- angrl o.fl. aldir þar. Má nefnn skáldin Jens Tvedt, Hans Kinck og I.ars Jastac!, málarann Lars Osa og myndhöggv- arana Lars Utne og Ingebrigt Vik. Eg hefi séð sum verk þessara lista- manna og lesiÖ flestar ibækur þeirra rithöfunda, sem eg nefndi — og þykir mér mikið koma til.. En meira I finst mér um heimilismenningu al- þýöunnar x Harðangri. Kvað og ívar Ásen Haröangursbúa vera einhverja hina göfugustu fulltrúa I norskr'ar hændamenningar. ■ Kvenfólkið í Harðangri mun alt i af hafa verið kvenna listfengast. Um það ber meðal annars Harð- angurssaumurinn vott. — Jafnvel í brauðgerð sköruðu Haröangurs- konurnar svð fram úr, að sú brauð- tegund sem þar er mest notuð, hef- | ir rutt sér til rúms í sveit og við sæ I um endilangan Noreg. En handiðn karla var ekki síður merkileg. Harðangur átti áérkennilegan stíl í tréskurði og húsbúnaði — og bát- arnir, sem þar eru smíðaðir, eru frægir um land alt, frá Finnmörk að Líðandisnesi .... En nýir siðir ruddu sér meira og meira til rúms í Harðangri — og menningin gamla var í hættu. — Menn tóku að líta á það gamla sem úrelt og fátæklegt —og þá var ekki annað fyrir hendi en kasta því frá sér, eða svo fanst fólkinu. En svo kom vakningin með lýðháskólunum og baráttu fyrir norsku máli og siðum. Maður er nefndur Lars. Hann var frá Kinsorvik í Harðangri. Hann var þegar hagur í æsku og aflaði sér þekkingar á gömlum tré- skurði og nýjum, lærði mikið og var óþreytandi starfsmaður. Þá er hann hafði náð þekkingu á almenn- um listreglum, stíl og stílformum, settist hann að í sveit sinni og setti sér fyrir að .reisa af nýju tréskurð- arlistina gömlu, skapa nýja á öðrum grundvelli. Til marks um að hann skorti hvorki þekkingu né gagnrýni, má nefna það, að hann hefir ásamt prófessor Halvdan Koht skrifað hið rnerka ritverk um norska skart- list (norsk prydekunstj. Eg ihefi nefnt það í greinum mínum, að “máí”-hreyfingunni, norsku fylgi framfarir og menning) á ýmsum sviðum þjóðlífsins. Bestui og traustustu “mál”-héruðin standa t. d. fremst í heimilisiðnaði, nýtni, hagsýni og smekkvísi. Harðangur er ekki aðeins eitt- hvert hið fegursta hérað Noregs, heldur og það. sem geymt hefir einna best gamlan arf í má!i og mentun. Vítt um Noreg eru kunnir listafnenn og - rithöfundar, sem fæddir eru í HarÖangii, eða upp- Lars Kinsorvik tók lærisveina úr sveitunum, listhæfa, laghenta ung- linga. Og ekki leið á löngu unz i Harðangri var fjöldi ágætra tré- skera; í fyrstu smíðuðu þeir aðeins gripi til Skarts og skemtúnar. En brátt tóku þeir að smíða húsgögn í norskum stíl. Nú er-svo komið, að bændaheimilin í Haröangri bera af fléstum öðrum að smekklegum hús- gögnum og þjóðlegum skrautgrip- i.xn — og húsgagna sxníðin er mörg- um heimilum geysimikil tekjulind, auk þess sem fjöldi húsfeðra hefir /

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.