Lögberg - 25.03.1926, Blaðsíða 3
LoGiiElvO fJLáiri' ULAGINN,
£>iO. *>.
0
25. MARZ 1920
þMMKjg«ixi5a«KreBaæ><b6.>mdggsisft<Ba><iK^^
SOLSKIN
Fyrir börn og unglinga
Jörundur.
Saga eftir Jóhönnu Spyri.
(Æskan.)
Morguninn eftir fór Jörundur litli snemma á
fætur, eins og hann var vanur að gera heima í
fjallakotinu. Hann stóð ferðbúinn úti á hlaði og
beið eftir því, að hann sæi húsmóðurina, til þess að
hann gæti þakkað henni fyrir næturgreiðgann og
fengið aftur gígjuna sina hjá henni.
En það var malarinn, sem kom fyrstur út.
Honum féll vel i geð að Jörundur var svona snemma
á fótum og svaraði fremur hlýlega morgunkveðju
hans. ,
“Gaktu inn,” sagði hann við Jörund, “og þá
gefur konan mín þér eitthvað að borða.”
Jörundur lét ekki segja sér það tvisvar. Hurð-
in var opin og konan heyrði fótatak Jörundar.
“Komdu, barn, inn til min,” sagði hún. "Seztu
hérna við hliðina á mér við borðið, því að þú átt að
vera áfram hérna hjá okkur. Við höfum nóg handa
þér að gera og eg ber það traust til þín, að þú gerir
það alt, sem við getum heimtað af þér með sann-
girni.”
IV. KAPTULI—
Það voru næsta undarlegar tilfinningar, sem
hreyfðu sér hjá Jörundi, þegar konan sagði honum
þetta. Það var meira en honum hefði getað dottið í
hug, að hann mundi fá að eiga heima í mylnu, fá
daglega tækifæri til að kynna sér alla byggingu
hennar. Og þar við bættist svo það, að hann fengi
að vera hjá blessaðri konunni, sem var svo góð við
hann; það var þó, þegar til kom, mesta lánið hans.
Jörundur var svo gagntekinn af þessari óvæntu ham-
ingju, að hann gat engu orði upp komið. En gleðin
skein úr augum hans, svo að konan sagði við hann:
“Eg sé, að nú liggur vel á þér; það líkar mér.
Mér þykir líka vænt, að svo er og verður.”
Þegar heimafólkið' kom inn, til að borða morg-
unverð, þá sagði kona malarans, að Jörundur ætti að
verða þar heimamaður og teljast til fjölskyldunnar.
Að loknum morgunverði tók hún í höndina á Jörundi
' og mælti;
“Komdu nú með mér.”
Hann varð henni samferða út í garðinn. Þar lá
stóri Soldán og foakaði sig í sólskininu fyrir utan
hundakofann. Hann spratt óðar upp og urraði.
“Komdu hingað, Soldán!” sagði konan. Svo
benti hún á Jörund og mælti: “Líttu á þennan
dreng; hann á nú heima hjá okkur. Komdu nú og
sleiktu á honum höndina.” Um leið og hún sagði
þetta, klappaði hún blíðlega á höndina á Jörundi.
íSoldán nam staðar stundarkorn og horfði á þau á
víxl. Loks var svo að sjá, sem hann skildi orð kon-
unnar, því eftir dálitla umhugsun gekk hann að Jör-
undi og sleikti á honum höndina.
“Já, nú ertu væristi rakki,” sagði Jörundur og
klappaði honum á kollinn. “Nú verðum við víst góð-
ir vinir héðan af. Er ekki svo?”
Soldán dillaði rófunni og sleikti höndina á Jör-
undi.
“Hann hefir skilið okkur,” sagði konan. “Nú
geturðu verið viss um, að hann urrar hvorki né
geltir að þér.” Svo klappaði hún seppa og þau Jör-
undur héldu áfram göngunni. Hann varð að kynn-
ast öllum híbýlaháttum, enda tók hann vel eftir öllu,
sem hún sagði honum, og henni féll alt af betur og
betur við hann. Og ekki leið á löngu, áður en hann
var orðinn hennar hægri hönd, og hún var óþreytandi
á því, að hrósa honum við mann sinn. Hann svaraði
því fáu, en sagði bara stöku sinnum í hálfum hljóð-
um:“Það er nú ekki liðin vika enn þá.”
Þegar vikan var liðin, og meira en það, þá rakst
malarinn á Jörund snemma morguns, þar sem hann
kom hlaupandi þaðan, sem endurnar og hænsnin áttu
sér bækistöður að húsabaki, og hrópaði hróðugur:
“Ekki nem^ það! í nótt hafa ellefu kjúklingar
komið úr eggjum!”
Það var eitt af því, sem konan hafði falið hon-
um á hendur, að gæta alifuglanna.
“Það lítur út fyrir, að J)ú hafir gaman af þessu
ungviði,” sagði malarinn. “Hefirðu ekki gaman af
að koma með mér út í mylnu og sjá, hvernig þar lít-
ur út?”
Jörundur Ijómaði allur af gleði; það hafði nú
alt af verið takmarkið, sem hann þráði. En sveinar
malarans voru honum ekki sérlega vinveittir og á
meistaranum í hóp þeirra hafði^hann sérstaka óbeit,
svo að hann hafði ekki til þessa þorað nema að læð-
ast að dyrunum og gægjast inn.
“Nú skaltu bara koma með mér,” sagði malar-
inn. Hann vissi, hvað Jörundur hugsaði, þó að hann
segði ekkert.
Jörunduí- var ekki fljótur á sér og sagði dálítið
kvíðandi:
“Á eg að koma undir eins? Er ekki bezt að eg
fari inn fyrst og segi konunni yðar frá þessari nýj-
ung?”
“Hlauptu þá drengur! Það er svo að sjá, að
fóstursystkinin þín séú í fyrirrúminu hjá þér,” sagði
malarinn og brosti um leið svo hlýlega, að Jörundur
var ekki slíku vanur úr þeirri átt. Hann hljóp nú
eins og fætur toguðu til þess að segja fréttirnar, og
að því búnu hljóp hann aftur til malarans eins og
örskot og þeir gengu báðir saman til mylnunnar.
Mlylnusveinarnir voru þá allir komnir og malverkið
alt 1 fullum gangi. Malarinn leiddi Jörund með sér
inn í hvern krók og kyma, þar sem nokkuð var, sem
vert var á að lita, og gaf sér nægan tíma til að svara
öllum þeim mörgu spurningum, sem Jörundur lagði
fyrir hann. Hartn tók vel eftir öllu. Þar sem Kasp-
ar hinn langi stóð, var næsta margbrotin vél í gangi.
Jörundur dáðist að henni og undraðist hana stórum;
riann lagðist á hnén, til þess að geta betur séð frá
öllum hliðum, hvernig vélin færi að sálda hinar ýmsu
mjöltegundir. Malarinn gekk þá burt stundarkorn
og lét Jörund einan um að skoða vélina. Þegar hann
kom aftur, stóð Jörundur þarna alveg sokkinn niður
í að virða fyrir sér gang vélarinnar og mælti við
malarann:
“Ætli að vélin gengi þá ekki hraðara og jafn-
ara, ef þessi reim væri vitund stríðari. Það er rétt
eins og hún ætli að stöðvast annað veifið.”
“Til hvers hefir þú augun, fyrst þú notar þau
ekki?” sagði malarinn við Kaspar langa. “Þú mætt-
ir fyrirverða þig fyrir drengnum hérna. Jafnskjótt
sem hann kemur inn í mylnuna, sér hann hvað að
er, en þú stendur hér og lætur vélina ganga með
sama sleifaralaginu, þó að þú sért búinn að vera hér
að verki í þrjú ár.”
Malarinn kom nú sjálfur réttu lagi á hjólreim-
ina og hélt svo áfram með Jörund litla. En Kaspar
langi leit afar illilega til Jörundar.
Þegar malarinn var búinn að sýna Jörundi myln-
una hátt og lágt, þá fór hann með honum út fyrir og
sýndi honum alla gerð á mylnuhjólunum. Það var
svo að sjá, sem Jörundur legði allan hug.á að skoða
þau; það var einmitt bygging þeirra, sem hann
hafði vérið að velta fyrir sér heima við lækinn.
“Jæja, nú ertu búinn að sjá alt, og nú ætla eg
að fela þér á hendur verk við mylnuna og sjá, hvern-
ig þér tekst að leysa þa£ af hendi”, mælti malarinn.
Þeir gengu nú aftur inn, og óðara var Jörundur
allur í því, að brjóta heilann um verkið, sem honum
var vísað á.
Nú leið vika. Koná malarans tók brátt eftir því,
hvers vegna Jörundur væri genginn úr þjónustu
hennar, því að í hvert skifti, sem hún spurði eftir
honum, var því svarað, að hann væri hjá •malaranum
og væri að hjálpa honum til við eitt og annað í myln-
unni. Hún saknaði hans allan liðlangan daginn,
hvar sem hún stóð og hvar sem hún fór; en hún
vissi, hvar hann var, og var nú glöð af því, að máð-
ur hennar væri nú búinn að koma auga á hina góðu
kosti Jörundar.
lOg enn leið vika. Maður hennar mintist ekki
einu orði á drenginn við hana, og hún hafði heldur
einskis. spurt, því að hann hafði áður svarað henni
því, að vikan væri ekki liðin enn þá.
Nú Var komið laugardagskvöld. Óðara en hús-
freyjan var sezt við litla borðið hjá manni sínum, þá
veik hún sér að honum og spurði hvatlega:
“Hvað líður með Jörund? Mér virðist að hann
hafi ekki verið svo sjaldan hjá þér vikuna sem leið”.
“Hann er afbragðs piltur, — það get eg sagt um
hann í fullri einlægni,” , svaraði malarinn; hann
hafði einmitt beðið eftir því, að hún spyrði sig að
þessu. “Eg hefi aldrei haft hans líka. Hann hefir
augu eins og haukur; sé eitthvað að, þá uppgötvar
hann það við fyrsta augnatillit, og svo kann hann
alt af ráð við því. Slíks hefi eg aldrei orðið var við
hjá neinum þeirra, sem eg hefi kent þessa iðn. Hann
er eins og skapaður til að vera malari. En því mið-
ur er hann ekki annað en flækingur, sem eg veit eng-
in deili á,” mælti hún og varpaði öndinni. ‘ “Eg
'hefi bara þekt einn, sem var eins glöggskygn og lag-
virkur; alt, sem hann fékst við, gekk eins og af sjálfu
sér; hann lagði gjörva hönd á alt — honum tókst
alt!”
“Já, hvað vildi hann?” tók konan fram í fyrir
manni sínum. Hann var orðinn svo ákafur og hafði
nú talað svo mörg orð í einu, aldrei þessu vanur;
hann hafði aldrei talað nema fá orð í ’senn árum
saman.
“Við skulum nú gleyma liðinni tíð,” sagði konan
enn'fremur, “og gleðjast af því, að veslings drengur
inn kom einmitt tii okkar. Við höfum nóg handa hon-
um að starfa, og bæði langar okkur til að halda hon-
um. Eg sting upp á því, að við skiftum honum á milli
oldcar; haf þú hann í mylnunni annan daginn, og svo
hefi eg hann heima hjá mér hinn daginn. Með því
móti höfum við bæði gleði af honum og þá lærir hann
sína ögnina af hvoru.”
“Hvað áttu nú við?” mælti malarinn, iangtum
fjörlegri en hann var vanur að vera í samræðum.
“Hann þarf nú ekkert meira að læra innan bæjar.
Alt, sem hann gat lært þar, lærði hann á fáum dög-
um, en stúlkurnar okkar þurfa báðar samfleytt átta
ár til þess. 1 hænsnakofanum og andakofanum er
nú miklu hreinlegra en nokkru sinni áður síðan bær-
inn var bygður, og enginn kann betur en hann að rísa
á fætur með sólu; hann er alt af fyrstur ofan á
hverjum morgni. Eg ætla að gera úr honum malara-
svein því að eg hefi aldrei haft hans líka.”
Konan vildi þá ekki malda frekara í móinn um
skiftinguna á Jörundi; hún var líka glöð af því, að
Jörundur hafði sigrað hjarta malarans.
FIMTI KAPITULI.
Bliku dregur upp.
Jörundur sá það glögt, að malarinn varð honum
vinveittari með hverjum líðandi degi og fól honum
alt af meira og meira starf á hendur. Komið hafði
það fyrir oftar en einu sinni, þegar eitthvað fór úr
lagi, sem eldri sveinarnir áttu að sjá um, að malar-
inn kallaði á spurði hann, hvernig bezt yrði ráðin
bót á því. Þetta traust og alúð, sem malarinn sýndi
honum, gladdi hann mjög. Varð hann af því miklu
fúsari til vinnunnar og til að kynna sér alt út í æs-
ar, og vinna það einmitt á þann hátt, sem malarinn
vildi. 'Og afleiðingin varð sú, að Jörundur þekti,
áður en langt um leið, alt út í hörgul, smátt og stórt,
betur en margur útlærður malari.
Malarinn leyndi því ekki, að hann hafði meira
traust á Jörundi en fullorðnu sveinunum. Það
gramdist þeim auðvitað og hötuðu Jörund svo, að
þeir virtu hann ekki viðtals og litu á hann sem óvin
sinn. Jörundur tók sér þetta mjög nærri. Hantj
þerraði oftar en einu sinni tárin af augum sér í kyr-
þey, þegar hann hafði dirfst að yrða vingjarnlega á
einhvern af sveinunum og hann svaraði ekki öðru
en ónotum, eða þeir gáfu honum hornauga eða sneru
við honum bakinu.
( Verstur þeirra allra var Kaspar langi; honum
var sérlega í nöp við Jörund. Færi hann fram hjá,
kallaði Kaspar hæðilega til hans: “Landshorna-
Gissur! Flækingur!” — Jörund tók þetta sárt, því
að í raun og veru átti hann hvergi heima. Og hann
hafði orðið að rölta frá einum bæ til annars að leita
sér atvinnu, og verið gat, að sama ferðalagið lægi
nú fyrir honum aftur, ef ekki þyrfti lengur á honum
að halda við mylnuna. En var hann nokkur lands-
hornamaður eða flækingur fyrir því? Þessi skút-
yrði létu svo hræðilega í eyrum hans og það var eins
og hann væri stunginn í hjartað þegar hann heyrði
þau.?
Yngri eldhússtúlkan fór að senda honum sama
tóninn og Kaspar langi; óðar en hún sá hann, nefndi
hún hann sömu óvirðingarnöfnunum. — Eldri stúlk-
an þagði eins og steinn, en ef þau hittust, þá gaf hún
honum ilt auga; hún gat ekki vitað, að húsbændurnir
hefðu slíkar mætur á honum alókunnum. Hún skelti
eldhúshurðinni hart á hæla honum rétt í þessu.
Hann var nýkominn inn með körfu fulla af indælum,
nýorpnum eggjum. En kona malarans var ekki stödd
í eldhúsinu, eins og hann hafði búist við. Enginn
tók þátt í gleði hans yfir fallegu eggjunum, og eldri
stúlkan hafði allrei fyr verið svona úlfúðarfull við
hann. Hann gekk þá hægt út um forstofudyrnar.
hitti hann yngri stúlkuna, en hún hljóp í veg fyrir
hann og kallaði: “Burt með þig, umrenningurinn
þinn!”
Jörundur gekk fram hjá henni og ætlaði að fara
yfir í mylnuna, en þegar hann kom þangað, hitti
hann Kaspar langa.
“Nú verður þú að fara inn og sýna malaranum,
að þú sért eini maðurinn hérna á heimilinu, sem vit
hefir á hlutunum, flækings-greyið þitt!”
Kaspar talaði í lágum róm,- því að malarinn var
rétt fyrir innan dyrnar, en hann talaði þó svo hátt,
að Jörundur heyrði hvert orð. Hann sneri þá óðara
við og faldi sig yzt úti í garðinum, þar sem hænsna-
kofinn gekk út að andatjörninni. Lengi hafði hon-
um búið ríkt í huga að fara til malarakonunnar og
segja henni upp alla söguna. Þóttist hann þess full-
vís, að hún mundi taka svari hans. En jafnframt
því duldist honum ekki, að það mundi auka á hatur
það, sem þeir höfðu á honum, og það vildi hann ekki
eiga á hættu. Hann vonaði stöðugt, að þeir mundu
verða sér vinveittari, ef hann kærði þá ekki, og þess
gætti hann vandlega, að svara aldrei i sama tón og
þessir hatursmenn hans, enda þótt hann hefði heyrt
að “sá ætti ekki að vera vandur að svari sem vondar
kveðjur fær.” En því miður voru engar horfur á því,
að bréytast mundi til batnaðar fyrir Jörundi í því
efni. Hann gerði sér í hugarlund, að orsökin til
þess, að þeir hötuðu hann og fyrirlitu, væri það, aJS
þeir ættu allir heimili og ættingja, þeir vissu hvar
þeir ættu heima, en hann — ja, hann! Og tárin
komu fram í augun á hohum; hann varð að þerra
þau. — Hænsnin í kofanum áttu betra; þau vissu,
hvar þau áttu heima; það var ekki einu sinni hægt
að segja um þau, að þau væru umrenningar. Það
var hann einn, sem átti það nafn. Hann var heimil-
islaus!
'Og meðan hann sat þarna, reikaði hugurinn hing-
að og þangað og loks nam hann staðr hjá afa hans.
Allan þann tíma, sem Jörundi leið vel, hafði hann
varla gefið sér tíma til að renna huganum til gamla
mannsins, allra sízt á daginn. En á þessari döpru
stundu sá hann afa sinn ljóslifandi fyrir augum sér,
og óskaði sér nú þess, að hann gæti fleygt sér í faðm
hans.
"Ó, afi! Þú veizt heldur ekki, hvað um þig verð-
ur!” kallaði hann upp grátandi, því að nú varð hon-
um það alt í einu svo augljóst að afi yrði að fara úr
litla kofanum uppi í fjallinu; hann var nú ef til vill
þegar farinn þaðan og tekinn að reika úr einum stað
í annan, eins og Jörundur gerði sjálfur, þegar hat.n
var að leita sér atvinnunnar. En nú var gamli, mað-
urinn orðinn ófær til vinnu! Hvað skyldi nú verða
um hann?
“Afi! afi!” hrópaði Jörupdur. "Eg skal undir
eins koma og hjálpa þér.” Síðan hljóp hann grát-
andi heim að húsinu.
“Hvar er kona malarans?” hrópaði hann til eldri
vinnukonunnar, er kom út rétt í þessum svifum.
“Ætlarðu að sprtengja himnurnar í eyrunum á
mér?” mælti hún með skætingi.
Hann gekk þá inn. Hurðin að dagstofunni var
upp á gátt. Bjart var innKog þar sat kona malarans
og var að skera epli, því að hún ætlaði að búa til
eplaköku. Grár köttur lá við fætur hennar og inal-
aði til merkis um vellíðan sína.
“Jæja, Jörundur. Hvað er það þá? Komdu, þá
skaltu fá epli!” sagði hún og rétti honum stærsta og
bezta eplið, sem hún gat fundið. Jörundur þá það
með þökkum, en ekki fór hann að borða það undir
eins.
“Eg verð endilega að fara til hans afa aftur —
bara í þetta skifti. Enn er nógur tími til þess.”
Hann sagði þetta svo hvatlega og var svo espur
í skapi, að konan lagði hnífinn ósjálfrátt frá sér og
leit á hann alveg forviða.
“Jörundur! Hvað er að brjótast 1 þér. Hvað
er um að vera? Hefirðu frétt nokkuð af afa þín-
um?”
“Nei, ekki það, en eg veit að hann fær ekki að
vera lengur í kotinu. Hann er ef til vill farinn það-
an'nú, og eg veit ekki, hvert hann hefir' farið. Eg
verð að leggja af stað, eg verð að leita hann uppi og
hjálpa honum”, sagði hann með grátstaf 1 hálsinum.
“Rétt er það af þér, Jörundur minn, að hugsa
um afa þinn og hjálpa honum; en þú getur það ekki
á þann hátt, sem þú hefir hugsað þér það„’ mælti
konan hispurslaust. “Vertu nú rólegur hérna hjá
okkur, og þá skal eg komast eftir því, hvert afi þinn
fer. Við getum svo við og við sent honum eitthvað,
og að því búnu getur þú heimsótt hann. Þú hefir
ekki verið hérna nema sex vikur. Og það er ekki
rétt af þér, að fara héðan svona umsvifalaust.”
----------*—
VORKOMA.
Vaknar til valda Svanhvítir syngja
vor á ný. sigurljóð
Sveima frá sýnum fossarnir fornri
sortaský. frægðar þióð.
Svífur að sunnan Fjallkrýnda mardís,
sumarblær. móðir góð!
Glóey á grundu Fóstraðu frjálsa
glitblæ slær. fjalla þjóð.
Farlúnir fuglar Blessist og blómgist
flúga hátt bygðin þín
hingað um hafið allan um aldur,
himimblátt. eyjan mín!
Synga þeir sumri Syngdu mót sumri
sumarljóð, — sólarljóð,
fagnaðar friðmál auðug af óðfrægð
frjálsri þjóð. Islands þjóð!
v Jón Magnússon.
—Ætekan, í júlí 1919.
DR. B. J. BRANDSON
21(1-220 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Phone: A-1834
Offtcs tlmar: 2_3
Helmili: 776 Victor St.
Phone: A-7122
Winnlpeg, Manitoba.
Vér leggjum sérstaka áherzlu a a6
selja mefiul eftir forskriftum lækna.
Hin beztu iyf, sem hægt er að fá, eru
notuð eingöngu. pegar þér komiS
me6 forskriftina til vor, megi8 þér
vera viss um, a8 fá rétt þa8 sem
læknlrinn tekur til.
COLCLEUGH & CO.
Notre Dame and Sherbrooke
Phones: N-7668—7650
Vér seljum Giftingaleyfisbréf
DR 0. DJORNSON
210-220 Medlcnl Arts Bldg
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Phone: A-1834
Office tlmar: 2—-3.
Heimili: 764 Victor St.
Phone: A-7586
Winnipeg, Manitoba.
DR. B. H. OLSON
216-220 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Phone: A-1834
Office Hours: 3—5
Heimili: 921 Sherburne St.
Winnipeg, Manifoba.
DR. J. STEFANSSON
210-220 Medical Arts Bldg
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Phone: A-1834
Stundar augna, eyrna nef og
kverka sjúkdóma.—Er a8 hitta
kl. 10-12 f.h. og 2-5 e. h.
Heimili: 373 River Ave.
Tals.: F-2691
DR. A. BLONDAL
818 Somerset Bldg.
Stundar sérstaklega Kvenna og
Barna sjúkdéma.
Er aS hitta frá kl. 10-12 f. h.
og 3—5 e. h.
Office Phone: N-6410
Heimill: 80'6 Victor St.
Síml: A-8180
DR. Kr. J. AUSTMANN
724 <4 Sargent Ave.
ViStalstími: 4.30—6 e.h.
Tals. B-6006
Helmili: 1338 Wolsley Ave.
Slmi: B-7288.
DR. J. OLSON
Tannlæknir
216-220 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Phone: A-3521
Heimili: Tals. Sh. 3217
DR. G. J. SNÆDAL
Tannkrknir
614 Somerset Block
Cor. Portage Ave og Donalrf* St.
Talslml: A-8889
DR. K. J. BACKMAN.
Skin Specialist.
404 Avenue Blk.,
265 Portage Ave.
Office phone A-1091.
Hours: 2—6
Munið símanúmerið A 6483
og pantiB me8öl yðar hjá oso.—
SendiS pantanir samstundis. Vér
afgreiSum forskriftir með sam-
vizkusemi og vörugæ8i eru ðyggj-
andi, enda höfum vér margra ára
lærdömsrika reynslu a8 bakl. —
Allar tegundir lyfja, vindlan, Is-
rjómi, sætindi, ritföng, töbak o.fl.
Mc Burney’s Drug Store
Cor. Arlington og Notre Dame
Giftinga- og JarSarfara-
Blóm
með litiuin fyrirvara
BIRCH Blómsali
616 Portage Ave. Tals.: B-720
St. John: 2, Ring 3
A. S. BARDAL
848 Sherhrooke St.
Selur llkkistur og annast um út-
farir. Aiiur útbúnáöur sá bezbl.
Enn fremur seiur hann allskonar
minnisvaröa og legsteina.
Skrlfst. Talsími:
llcimilis Talsíini:
N-6607
J-8302
THOMAS H. JOHNSON
<>g
H. A. BERGMAN
ísl. lögfræðingar.
Skrifstofa: Room 811 McATthur
Building, Portage Ave.
P. O. Box 1656
Phones: A-6849 og A-6840
W. J. Lindal. J. H. Lindal
B. Stefansson.
fslenzkir lögfræðingar.
708-709 Great-West Perm. Bldg.
356 Main St. Tals.: A-4963
þeir hafa elnnig skrifstofur a8
Lundar, Riverton, Gimli og Piney
og eru þar a8 hltta á eftlrfylgj-
and tlmum:
Lundar: annan hvern mi8vlkudag
Riverton: Fyrsta fimtudag.
Gimli: Fyrsta miBvikudag.
Pjney: þrlöja föstudag
1 hverjum mánuSi.
I
A. G. EGGERTSSON
fsl. lögfræðingur
Hefir rétt til a8 flytja mál bæöi
1 Manitoba og Saskatchewan.
Skrifstofa: Wynyard, Sa.sk.
Seinasta mánudag I hverjum mán-
uöi staddur I Churchbridge
DR. ELSIE THAYER »
Foot Specialist
Allar tegundir af fótasjúkdómum,
svo sem líkþornum, laeknaðar fljótt
og vel. Margra ára æfing.
Mslenzka töluð á lækningastofunni.
Room 27 Steel Block
Cor. Carlton & Portage Tals. A%88
* A. C. JOHNSON
007 Confe<ieratton Llfe Bldg.
WINNIPEG
Annast um fasteigmr m*nn».
Tekur að sér að ávaxta sparifé
fólks. Selur eldsábyrgð og bif-
reiða ábyrgðir. Skriflegum fyr-
irspurnum svarað samstundis.
Srifstoftisíml: A-4263
Hússfmi: B-SSM
J. J. SWANSON & CO.
Selur bújarðir. Látið það félag
selja fyrir yður.
611 Paris Building, Winnipeg.
Phones: A-6349—A-6310
STEFAN SOLVASON
TEACHER
of
PIANO
Ste. 17 Emlly Apts. Emily St.
Emil Johnson
SERVIOE ELEOTRIC
Rafmagns Contracting — AHs-
kyns rafmagsndhöld. scld og viS
þau gert — Ég sel Moffat og
McCldry Eldavélar og hefi þcer
til sýnis á verkstœOi minu.
524 SARGENT AVE.
(gamla, Johnson’s byggingin vi8
Toung Street, Wínnipeg)
Verskst. B-1507. Heim. A-7286
Verkst. Tals.:
A-838S
Ilclnia TaJs.:
A-9384
G. L. STEPHENSON
PLITMBER
AUskonnr rafmagnsáhöld. svo sem
straujám, víra, allar tegundir af
glösum og aflvaka (batteries)
VERKSTOFA: 676 HOME ST.
Sími: A-4I53. fsl. Myndastofa.
Walter’s Photo Studio
Kristín Rjamason, eigandl.
290 PORTAGE Ave., Winnlpeg.
Næst bið Lyceum leikhúsíB.
Islenzka bakaríið
Selur l«'zt u vörur fyrir lægsla
verð. Pantanlr afgrdddar hæM
fljött og veL Fjðibreytt úrval.
Hrein og lipur viðskifti.
Bjamason Baking Co.
676 SARGENT Ave/ Wlnnlpcg.
Plione: B-429S
MRS. v^WAINSON
að 627 SARGENT Ave., Wiimipeg.
liefir ávalt fyrirllvjgjandi úrvals-
hirgðir af nýtízku kvenhöttunh.
Ilún cr eina Isl. konan, sem sltka
verzfim rekur í Wlnnipeg. tslend-
ingar, látið Mrs. Swainson njóta
viðskifta yðar.