Lögberg - 30.09.1926, Síða 5
LÖGBERG FIMTUDAGINN,
Bls. 5.
30. SEPTEMBER 1926
gTDODDS ^
Dodds nýrnapillur eru besta
nýrnameðalið. Lækna og gigt bak-
verk, ihjartabilun, þvagteppu og
önnur veikindi, sem stafa frá nýr-
unum. — Dodd’s Kidney Pilla
kosta 50c askjan eða sex öskjur
fyrir $2.50, og fást hjá ölluín lyf-
•ölum eða frá The Dodd's Medi-
cine Company, Toronto, Canada.
Or óbygðum.
Ferðasaga sendiherra Dana.
Eins og kunnugt er, hefir sendi-
herra Dana, Fr. le Lage de Fon-
tenay, sýnt meiri áhuga á að
kynnast háttum vorum, sögu og
tungu og náttúru landsins, en títt
er um útlenda menn, sem eiga hér
aðsetur. í fyrra sumar fór hann
og kannaði norðurhlutann af hiinu
mikla, ókannaða landflæmi vest-
ur af Vatnajökli, milli Vonar-
skarðs og Tungnárbotna. Komst
hann þá alla leið austur í Vatna-
jökul að fjallatindum þeim, sem
Kerlingar heita. Nú er sendi-
helrra nýkominn úr öðrum leið-
angri. Fór hann að þessu S|inni
austur að Fiskivötnum. Hélt síð-
an norðaustur um öræfin, alt til
þess, er hann kom á sömu slóðir
og í fyrra.
Segir sendiherrann svo frá ferð
sinni:
Aðal tilgangurinn með ferð
minni nú, var sá, að kanna land-
ið sunnanvert v(ið svæði það,
sem farið var um í fyrra, og
jafnframt að komast að raun
vm, hvort sagnirnar um ^tóra-
sjó væru sannar. En það hefir
verið trú manna, að ef haldið
væri í norðaustur frá Fiskivötn-
um, væri komið að Stórasjó, sem
væri geysimikið vatn og lægi
upp undir Vatnajökli.
1 förinni voru Pálmi Hannes-
son magister, náttúrufræðingur,
Gísli Bjarnason, cand. juris og
Guðjón Jónsson, oddviti í Áai, er
var fylgdarmaður. Við héldum
upp af Landi Fjallabaksveg að
Landmannahelli. Þaðan upp með
fjallinu Loðmundi austur yfir
Tungná á Hjallavaði upp í Fiski-
vötn. t
Fyrsta daginn, sem við vorum
þar athuguðum við vötnin og
skygndumst eftir Ieiðum inn yfir
öræfin. Næsta dag vorum við
veðurteptir, vegna úrhellis rign-
ingar. En daginn þar á eftir
héldum við af stað í þoku og súld
kl. 8 að morgni og stefndum í
norð-austur. Ríðum við fyrst
lengi vel um vikra og miklar gíg-
rústir. En er lengra Iqið tóku við
sandorpnir hraunflákar og voru
þeir sæmilega greiðfærir. Er við
höfðum farið greitt nál. 3 klst.
ferð, komum við að mikilli gA, sem
lá venjulega eldsprungulero frá
S.V. til N.A. og V|irtist hverfa í
mikinn fjallgarð, sem fyrir okkur
varð í norð-austri. Fylgdum við
gjánni upp í fjöllin og var þá þok-
unnni nokkuð létt. Gengum við
Pálmi þá upp á fell eitt og sáum
þaðan, að gjáin lá í gegnuum
þennan mikla fjallgarð, sem ligg-
ur frá austurenda Þóriisvatns alt
austur undir Vatnajökui: Er
fjallgarður þessi æði breiður og
allur úr móbergi. Héldum við enn
Ljós í gegnum myrkur.
Þiegar eg út um græna grund
göngu mér tók um morgunstund,
og leit hið fagra ljóma skraut:
lifandi blóm í hverri laut.
Undi þar lífið engilbjart,
því alt var horfið njólu skart,
en dagsins sunna með dýrðarfrið
daggarperlunum tók þá við.
En að kvöldi, þá út eg gekk
ekkert blóm þama litið fékk,
fölnað var alt hið fríða skraut
og fjólan bláa liorfin braut.
Að mér þá hvíslar einhver rödd:
Ertu hér,»blessuð móðir, stödd?
Blómin þín tvö, sem birtust hér,
blíðheimur engla tók að sér.
Hjartans hugur þinn, særður sorg,
sér í anda þá helgu borg,
hvar drottins Jesú dýrðin skín,
dafna þar fögru blómin þín.
• .
Huggast því láttu huga þinn,
herrann Jesús í faðminn sinn
hefir* þín tekið blessuð blóm,
burt frá veraldar skapadóm.
Heyri eg enn í hjarta rót
huggunarorð, sem tók á mót:
Lofi drottinn mitt líf og önd,
legg eg mig svo í föður hönd.
Alt, sem hér fyrir augun ber,
óstöðugt, veikt og hverfult er,
en á himnum er eilíft skjól,
við englanna jöfurs tignarstól.
Magnús Einarsson.
Reynið þessar
ROLLS
Finger
Round
Vienna
Small Square
Large Square
Brown
Small Vienna
Large Vienna
French
Wiener
Raisin Tea
Parkerhouse
Whole Wheat Tea
Biðjið brauðmanninn frá
SPEIRS-PARNELL
BAKING CO. LIMITED
Phones 86 619—86 618
áfram með gjánni, og er við kom-
um á norðurbrún fjallgarðsins,
sáum við, að hún lá enn 1 norð-
austur. Létti þokunni þá að fullu
um, stund og sá eg þá, norður af
fjöllunum, svæði það er eg hafði
farið um í fyrra og þar með, að
áframhald gjápinnar hafði þá orð-
ið á vegi mínum, og gaf eg henni
þá nafnið Heljargjá.
Hestum varð nú ekki komið
lengra, vegna nýlegs hrauns, sem
fyrir okkur varð, og er það suður-
endi Hágönguhrauns.
Bundum við nú hestana og geng-
um yfir hraunið og upp á fell, sem
stendur austanvert í gjánni
Nefndum við það Guðjónsfell,
eftir fylgdarmanninum, Guðjónji i
Ási. Hlóðum við þar og vörðu
eina, og nefndum Guðjónsvörðu.
Er við höfðum skoðað okkur
þarna um um hríð, gerði rigningu
og dimmviðri. Snerum við þá
við, tókum hestana og héldum
suður yfir fjöUpjt. Komum við
þá niður á hraunbreiður austan
af Stórasjó. Héldum við til vest-
urs norðan við vatnið, fram með
nokkrum litlum, fallegum hraun-
vötnum, og komum um miðnætti
að Tjaldvatni, í húðarrigningu.
Þótt ekki gæfist þarna mjkill tími
til rannsókna, er óhætt að slá þvi
föstu, að Stórisjór er rangnefni.
Landið í kring athuguðum við svo,
að við getum nokkurn yeginn á-
kvarðað legu vatnsins og þar með,
að ekki er um stórt vatn að ræða.
Hið rétta nafn á vatninu væri Litli
Sjór, enda heitir það svo á máli
bygðamanna, sem stundum eiga
ferðir á þessar slóðir, til veiða.
Alt er landið þarna sundurbrent
og sundurtætt af jarðejdum.
yeiðivötnin sjálf liggja í mörgum
samantvinnuðum gígröðum. Alt
er þar þakið vikrum og upp úr
Móbergsfell. Þess þarf ekki að
geta, að allir uppdrættir af landi
þessu eru fjarri sanni. Má þó
telja landsvæði þetta eitt hið
Mánudag, Þriðjudag, Miðvikudag
Nœstu viku
WONDERLAND
SERIAL SURPRISE
í I 0 þáttum
Figtiting Marine
með
Gene Tunney
Worlds Champion
ekki kappi í myndum, heldur REGLULEGUR KAPPl
The Fighting Marine
“A rapid fire action serial” verður sýnd á mánudag,
þriðjudag og miðv.dag. Látið börnin koma eftirm.dag.
merkasta á öllu landinu, frá jarð-
sögulegu sjónarm^iði.
Frá Fiskivötnum fórum við
suður yfir Tungná. Hefir hún
verið talin ófær, en okkur gekk
ágætlega yir hana. Þaðan héldum
við Fjallabaksveg nyrðri, niður í
Skatártungu. En þaðan fórum
við Mælifellssand fram með merk-
urjökli m|illi jökulsins og Markár-
fljóts og ofan á Þórsmörk.
AIls vorum við 12 daga í ferð-
innij—Vörður.
Um skáldsögur.
Eftir Halldór Kiljan Laxness.
Auðvitað eru til ýms höfuð lög-
mál í skáldsögu engu síður en í
hverri fræðigrein annari. En það
tjáir ekki mikið fyrir höfund að
vita ^þau lögmál, hafi hann ekki
uppgötvað persónuleik sinn eða
rannsakað eðli hæfileika sinna.
Þótt bókmentafræðingar geti sagt
margan fróðleik um lögmál sagn-
Iistar, þá er skáldsagnahöfundur-
inn jafnilla kominn þótt hann viti
öll, hafi hann engan persónuleik
til að bera, enga djúpa reynslu,
sem hann þrái að miðla af, enga
opinberun, sem hann þarf að gera
heyrum kunna, engar dýpri sýnir
inn í víðerni tilverunnar. Spakur
maður hefir sagt: Gefðu vel gaum
að því, í fari þinu, sem stingur í
stúf við aðra menn; göfgaðu það!
því það ert þú sjálfur. Þessi orð
eru hið dýrmætasta heilræði
hverjum byrjanda í listum. Marg
ir leggja út á listabrautina án þess
að hafa nokkurt sérkenni til að
þroska og göfga; slíkurn mönnum
er vorkunn þótt þeir finni aldrei
sjálfan sig. Þó kemur verstur
skáldskapur frá fólki, sem ekkert
hefir til að bera í áttina við sjálf-
stæðan persónuleik, en brýtur þar
að auki allar reglur fyrir van-
þekkingarsakir, sem hægt er að
brjóta. Hygg eg, að ísland sé eina
bókmentalandið í heimi, þar sem
skáldrit eftir slíkt fólk hafa skil-
yrði til að komast á markað, enda
er búið að gera eftirminnilega út
af við íslenzkan bókmentasmekk
með þessum fjanda, og ætla eg
að hafa það fyrir mælikvarða á
menningarmála tímaritið Vöku,
hvernig það bregst við glæpsam-
legri sagnagerð, Og með því að
hér hefir staðið vagga sagnlistar,
í þessu landi, þá ber þess að kref j-
ast að hér sé fáni nútímasagnlist-
ar látinn bera hærra við en ann-
ars staðar í löndum. Því ef menn
vildu hætta að hýma einsog draug-
ar og forynjur yfir leiðum gull-
aldarbókmentanna, þá er hægur
nærri að semja jafngóðar sögur
nú á dögum eins og á 13. öld.
Þótt almenn lögmál skáldsög-
unnar séu að vísu torlærð (af því
að þau eru of skyld lífinu sjálfu
til að verða nokkru sinni fram-
sett á fræðilega vísu), þá eru þau
í rauninni ekki annað en einskon-
stafróf.
utm
ar kínverskt stafróf, og hafa ekki
gildi öðru visi en sem
Samt er enginn höundur fser
að skapa neitt nýtt, fyr en han^n
hefir lært lögmál þau, sem alment
gilda og kanna að beita öllum að-
ferðum, sem áður eru tíðkaðar og
viðurkendar í listgrein hans.
Haniv er ekki hæfur til að finna
r.ýjar leiðir, fyr en hann þekkir
allar gamlar leiðir. Fyrst þegar
hann hefir lært alt, þá eru skil-
jrði til að hann vaxi upp úr því
sem hann hefir lært. Sá, sem ekki
hefir lært neitt,' hefir ekki upp úr
neinu að vaxa. Maður, sem ekki
hefir lært margföldunartöfluna,
mmmmwwsitmt
Kristján Ólafsson
(Lífsábyrgðar umboðsmaður í Winnipeg)
Á sjötugasta afmælisdegi hans, 30. sept. 1926.
Eitthvað mig dreymdi um Eldborg í nótt,
á íslandi, norður í sænum.
Sá eg þá glögt, þó svæfi eg rótf,
sólskin í Litlahrauns bænum.
Eg leit á hraunið, óslétt og svart,
er umkringdi borgina þessa,
og sá þar við útjaðar myndarlegt margt,
sem máttug guðsi hönd var að blessa.
í draumórum vegfarar vitruðust mér,
og viðburða ríkustu sporin:
Á Hrauni einn seinasta september
sonur var hjónunum borinn.
Borinn, í lauginni brosandi lá,
—i í bað var hann fljótlega klemdur—;
krakkinn strax fólkinu kjark sýndi þá—
Kristján var drengurinn nefndur.
Hann foreldra stoð varð í fögnuði’ og raun
— og föðurs um langan tíma.
Ægilegt var þetta Eldborgar hraun,
og örðugt við margt þar að glíma.
Um hraunið það feðgarnir vörðuðu veg,
svo vel gætu ferðamenn ratað;
leið sú var afleit og ömurleg,
oft var þar stefnunni glatað.
Svó hafa liðið sjötíu ár.
Á sama stað hentaði’ ei töfin,—
pilturinn bjartsýni, fleygur og frár,
flutti sig vestur um höfin.
•
í Winnipeg borg svo vaknaði eg,
og virðist nú alveg rétt-dreyminn:
Kristján er enn þá að varða þar veg,.
og vill að fólk rati um heiminn.
Um alt finnast vandrötuð “eldborgahraun”
og illfærir horngrýtis-snagar,
Að benda til farsælda fólki í raun.
fjölgi enn ár hans og dagar.
Guðjón H. Hjaltalín.
getur átt á hættu að eyða æfi sinni
í það að finna upp margföldun-
artöfluna. Það er ekki til sú regla
-m listamaður má leyfa
sér að brjóta af vanþekkingu.
Hitt er fagur sannleikur og djarf-
urspegla í skálduðum persónum
einkenni heils mannflokks, eða
gera þær að fulltrúa einhverra
einkenna, sem eru sameiginlegir
öllu mannkyni, og er það ekki að
ósekju, þegar Miguel de Unamuno
legur, að “það er engin regla til,. leyfir sér að nefna flökkuriddar-
BT
i
i.
BAKIÐ YÐAR EIGIN
BRAUD
með
sem ekki megi brjóta vegna þess
sem fegurra er.” Gott er að minn-
ast þess að maðurinn er þetta
sagði, kunni alt (L. van Beet-
hoven). Fyrst þegar listamaður-
inn er fullnuma, er hann fær um
að skapá sér sjálfstæða veröld,
þar sem enginn nema hann sjálf-
ur hefir vald til að setja lög og
reglur. Það er í listinni sem ann-
arsstaðar, að þegar maðurinn er
fullveðja, þá er enginn annar en
hann sjálfur, sem getur sagt hon-
um framar hvað hann má leyfa sér
og hvað hann má ekki leyfa sér.
Hver mikilsháttar snillingur er
eins og þjóðland, sem snertir ekki
önnur lönd nefcna á ákveðnum
landamærum.
Nám höfundarins er, sem sagt
framar öllu öðru fólgið í þolin-
móðri sjálfprófun. Vegurinn ligg-
ur út í sjaldgæfið, þangað sem
persónuleikurinn fær að þroskast
án þess að vera háður sinni vél-
rænu félagshugsun, þar sem allir
straumar fara í hring eins og í
eilífðarvél. Auðvitað er það í
eðli sínu afbrot gagnvart þjóðfé-
laginu, að finna sjálfan sig, því
sérhverjum einstakling ber að
haga sér eins og hluta bundnum
heildinni, honum ber félagsleg
skylda til að hugsa og tala um
viðurkend efni á viðtekinn hátt;
uppeldi það, sem þjóðfélagið veit-
ir honum er í því fólgið, að kenna
honum að hugsa löglega. Því get-
ur slíkt valdið stórtíðindum, ef
ekki eru við reistar skorður, að
fram komi hugsun sem fer í bága
við hugmyndafræðf hópsálarinnar,
sem alt gangverk þjóðfélagsins
hlýtur að byggjast á, enda litið ó-
hýru auga til manna, sem yfir-
gefa hjörðina til þess að leita að
sjálfum sér. Og þótt jafnan fari
svo að lokum, að máttugastur
reyndist maðurinn, sem “yfirgaf
bygð sína og stöðuvatnið niðri í
bygðinni og hélt til fjalla”, eins
og segir í upphafi Zarathustra, þá
kostar það æfinlega mikið arga-
þras að fá nýja hugsun lögleidda
í heiminum, eða höfund viður-
kendan, sem hefir fundið sjálfan
sig.
ann sæla, hvorki meira né
en “Drottinn vorn Don
otte.” — Lesb. Mbl.
mmna
Qich-
Saga hefir alt af verið metin
fremur á grundvelli snildarinnar
en sanngildisins, með því að lif-
andi hugsun þykir yfirleitt miklu
ágætari en söguleg staðreynd.
Aldrei hefir þetta mat verið öllu
tíðara en nú á dögum, þegar sann-
leikur og diktur eru yfirleitt lagð-
ir að jöfnu og viðburðalífið þyk-
ir sízt sannari veruleikur en hug-
leiðing skáldsins, né draumurinn
óæðri tegund veruleiks en vakan.
Menningin lifir fyrst og fremst á
snild. Sú saga, sem framast höfð-
ar til kraftanna í vitund vorri, hún
er verðmætust og það gildir einu
hvort hún er sönn eða login. Sé
sagan um dáðjr Abrahams Lin-
colns ver samin en sagan um dáð-
Don Qichottes, þá eru dáðir
ír
flökkuriddarans merkilegri en
dáðir forsetans, jafnvel þó hinn
síðarnefndi hafi aldrei verið til.
Það hefir ekkert gildi út af fyrir
sig, að saga hafi gerst á ein-
hverjum landfræðilegum stað, á
einhverju tilteknu tímabili, sem
hægt er að fletta upp í almanak-
inu, eða fjalli um persónur, sem
eru finnanlegar í einhverjum til-
teknum manntalsskýrslum eða
kirkjubókum.
“Höfundur leitast við það í
skáldritum sínum, að dtaga upp
með listrænum dráttum lyndisein-
kunnir, sem koma sjaldan fyrir
í veruleikanum, en engu að síður
má kalla verulegri en veruleikann
sjálfan”, segir Dostojewski á ein-
um stað í “Fíflinu”, og er því við
þetta að bæta, að skáldsögur eru
oft miklu sannari en þessar svo-
nendu sönnu sögur, því hug-
heimur snillinganna er skírari og
fullkomnari en hringiða lífsins.
Það er alkunna, að persónur úr
skáldritum hafa oft náð jafn-
mikilli frægð og þær hetjur ver-
aldarsögunnar, seqi hæst ber und-
ir. Sumar sögulegar persónur
eiga ódauðleik sinn að launa
skáldunum, sem látið hafa sól
náðargjafa sinna skína á þær.
Fór þá oft svo, að enginn spurði
framar um sanngildi persónunn-
ar, heldur lét eftirtíminn sig að
eins varða hið legenderiska gildi
hennar. Er fátt betur fallið til að
flytja einhverja stórfengilega hug-
sjón inn í mannheima, né birta
mönnum nýjan og víðtækari skiln-
ig á viðhorfum mannlegs lífs, en
hin skáldaða persóna, eins og hún
skapast í heila snillingsins. Vest-
ur-evrópisk menning á fáum stafn-
búum á að skipa víðfrægari en
Hamlet,
Föðurlands ást talia hættoleg.
(Frapih. frá 1. bls.)
T
búist við að verða misskildir,
þegar þjóðprnar eru svona tauga-
veiklaðar.
Þegar svona er ástatt, er naum-
ast hægt að gera sér háar vonir
um varanlegan frið i heiminum.
Frelsis hugmyndin, eins og hún
kom fram á nítjándu öldinni, er
nú svo að segja gleymd. í suður-
hluta Norðurálfu og á Rússlandi
eiga þjóðcrnar við einræðisvöld
að búa. Tolstoy, Gandhi og Ro-
main Rolland, hafa allir vakið
hugmyndina um alheips frið og
bræðralag meðal allrá þjóða.
Tuttugasta öldin var byrjuð
með tálmyndum og sjónhverfing-
arnar hafa síðan farið vaxandi.
Hinir andlegu leiðtogar þjóðanna
hvar sem er í her.minum, trúa því
einu, sem þeim þykir trúlegast
Herbert Spencer á Englandi og
Dostoievsky og Tolstoy og Kropot-
kin hðfðu allir sínar hugmyndir
um alheims frið og héldu þeim
fram, og ímyndunarafl almenn-
ings tók við þeim og jók vanalega
töluverðu vöð þær. Hin fagraj
hugsjón um frið á jörðu hafði ver-
ið prédikuð um alla Norðurálfu
og Ameríku. Mikill meiri hluti
alls almennings var friðelskandi,
jafnvel 1914, en föðurlandsástin
var nægileg tyl að breyta frið-
sömum mönnum í hættulega bar-
dagamenn. Föðurlandsást og al-
heims friður, eiga ekki samleið.”
ROTAL
Sem staðist hef.
ir reynsluna nú
yfir 5o ár
Hraðanœfa.
Leopold ríkiserfingi í Belgíu og
svenska prinsessan Astrid eru trú-
lofuð og ætla að giftast einhvem-
tima í desember. Bretar vom einu
sinni að gera sér vonir um að þessi
fagra mær yrði þeirra drotningar-
efni, en nú er útséð um það,
• • •
Allir hinir svo kölluðu Locarno
sáttmálar, voru undirskrifaðir af
hlutaðeigandi þjóðum í upphafi
þings þjóðbandalagsins, þess er
enn sfendur yfir í Geneva.
^ * * *
Franska stjórnin hefir með stjórn-
arráSssamþykt ákveöið, að fækka
tölu hermanna um 2,700 liðsfor-
ingja og 7.000 óbreytta liðsmenn.
* * *
Heilbrigðismálaráðunej'tið í Mexi
co, hefir gert útlægan hinn svo-
nefnda Charleston dans úr rikinu.
Eru þær ástæður lagðar til gmnd-
vallar að dans þessi hafi of mikla
áreynslu í för með sér og hafi eink-
um veikjandi áhrif á hjartað.
• * •
Dvergtré all-mörg vom r.ýlega á
sýningu í Tokio, fullþroskuð að öllu
leyti. Voru sum þeirra aðeins fet á
hæð. Alts voru sýndar um þrjú
hundmð tegundir. Sum trén voru
seld fyrir sex þúsundir dala.
Fólki f jölgar nú óðum. á Þýska-
landi, eftir nýjustu skýrslum að
dæma. Er ibúatalan aðeins tveimur
af 'hundraði lægri. en hi'm var um
vorið 1913. Er þvi álitið, að innan
næstu tiu ára, muni fólkstala þjóð-
arinnar hafa aukist það mikið, að
óumflýjanlegt verði fyrir Þjóðverja
að fá aftur sínar fomu nýlendur til
fullra umráða, eða stofna ti! ný-
íbygða annarsstaðar.
WONDEDRLAND.
Gene Tunney, aðal leikarinn í
kvikmyndinni “The Fighting Mar-
ine”, sem sýnd verður á Wonder-
land á mánudag, þriðjudag og mið-
vikudag í næstu viku, segir að það
sé of mikið af slagsmálum í kvik-
myndunum og af leik í slagsmál-
unum. “Eg hélt það væri bara
leikur,” segir Gene, “en það var
nú eitthvað annað. Eg varð að
slást allan daginn og á kveldin
líka, 0g á sunnudögum. Þegar
hnefaleikarinn vill ekki sýna list
sína á leiksviðinu, þarf hann ekki
annað að gera en fara eitthvað
burtu, eða skjóta einhverju við,
sem honum dettur í hug. En það
dugar ekki fyrir þann, sem leikur
hnefaleik frammi fyrir myndavél-
inni. í hvert sinn sem mynd er
tekin, verður maður að slá niður
einhvern af þessum leikurum, og
þeir eru töluvert seigir sumir
þeirra. Eg var hraustur og í
bezta lagi, enda veitti ekki af, því
þeir eru ekki sem lömb að leika
við þessir Hollywood piltar sumir
hverjir.” — Mesti hnefaleikurinn,
sem Tunney hafði í Hollywood var
við Frank Hagney, sem hefir
reynst mörgum skæður hnefaleik-
ari.
WALKER.
■fflllllllllllllill^^
Leiknum, “So This is Canada”,
t-, ^ ^ ^ . hefir verið afbragðs vel tekið á
Faust og Don Quichotte, j \Y-aiker leókhúsinu, og verður hann
og eru þeir gott dæmi þess, hvern-l sýn(jur þar a]la þeasa viku
ig snillingum hefir tekist að end-| Vegna þess hve fólkinu hefir
fallið þessi leikur vel og sótt hann
ágætlega, hafa sérstaakar ráðstaf-
anir verið gerðar til að sýna hann
hér í heila viku lengur, en fyrst
var gert ráð fyrir. Það er ekki
oft, að nokkrum leik er eins vel
tek/ð í Winnipeg, eins og raun
hefir orðið á um þennan, enda er
leikurinn svo skemtilegur, að
fólkið hefir óblandna ánægju af
að sjá hann.
Fyrsti þátturinn sýnir “Reggie
Poples” og tvo félaga hans frá
stríðsárunum, sem eru að byrja á
aldinarækt í hinum fagra og frjó-
sama Okanogan dal. “Reggie” vek-
ur mikla gleði hjá áhorfendunum,
strax þegar tjaldið er dregið upp
og hún helzt þangað til tjaldið
fellur, “Reggie” ferst alt eitthvað
svo skrítilega, en þó góðlátlega,
þegar hann er að hjálpa félögum
sínum út úr margskonar óþægind-
um, sem þeir komast í. Það sem
þessum mönnum dettur í hug að
gera og hvernig þeim ferst það,
er'margt þannig lagað, að áhorf-
endur svo að segja veltast um af
hlátri, þegar þeir horfa á það.
“So This is Canada” er svo góður
gamanleikur, að fólk ætti ekki að
sitja sig úr færi að sjá hann. —
Verður leikinn á hverju kveldi
þessa viku og einnig síðari hluta
dags á miðvikudag og laugardag.
Stjórn Walker le,ikhússin3 byrj-
ar starfsemi sína fyrir haustið og
veturinn um miðjan október. Um
það leyti kemur hinn mikli leik-
ari George Arliss, sem er frægur
fyrir þann þátt, sem hann hefir
tekið í ýmsum mejri háttar leikj-
um og þykir sérstaklega mikið til
hans koma bæði á Englandi og í
Ameríku. Snemma í Október
verður þessi velþekti leikari á
Walker leikhúsinu og leikur þar í
leiknum ‘Old Engljsh” með New
York leikfélagi sínu.
Eftir Mr. Arliss kemur Mathe-
son Lang, sem náð hefir meiri
frægð á Englandi heldur en flest-
ir aðrir. Hann er Canadamaður.
í mörg ár hefir hann verið einn
með helztu lejkurum í London.
Samkvæmt beiðni Mr. Frank O’-
Neill, sem er ráðsmaður fjrrir Sir
John Martin Harvey, kemur hann
til Canada með leikflokk þann, sem
hann hefir leikið með í London og
leikur hann hér sömu hlutverkin
eins og hann hef|ir leikið þar og
fengið mikið hrós fjæir. Frá
þessu verður frekar sagt hér í
blaðinu síðar og ættu þeir, sem
leiklist unna, að kynna sér það
sem bezt.
Alveg óviðjafnanlegur
drykkur
Sökum tess hve efni og útbúnaður ei[C
fuilkominn.
Xievel Brewing Co. Limited
St. Bonifac.e
Pliones: N1178
N1179