Lögberg - 21.10.1926, Qupperneq 7
LnORKRG FIMTUDAGINN,
2i. OKTOBER 1926.
Bls. 7
Frá Ítalíu.
11.
Mussolini.
Þegar eg í vetur ætlaði suður til
Róm, voru margir, sem öfunduðu
mig. “Ó, hvað þú átt gott. Eg
vildi eg mætti vera með þér. Þú
heilsar auðvitað upp á Mussolini.”
Svona sögðu kunningjarnir. Og
m'ér fanst von, að þeir vildu vera
með. En hvorki ætlaði eg mér þá
að heils'a upp á Musslini, né held-
ur hlakkaði eg til að sjá hann.
Því að eg var þeirrar trúar, að
ekkert væri við þann mann; öllu
fremur hafði eg andstygð á hon-
um og ímyndaði mér hann sem ó-
svífinn æfintýramann og leikara,
er léki á fáfróða alþýðu og hefði
hana að ginningarfífli. Þessi
mynd hafði skapast í huga mér
af ýmsu misjöfnu, sem eg hafði
um hann lesið og fyrir myndir,
sem eg hafði séð af honum. Það
vai; því fjarri mér að sækjast eft-
ir að sjá þenna mann. Eg hugs-
^ði mér, að þó hann bæri mér fyr-
ir augu, þá mundi eg ekki gefa
honum meiri gaum en ýmsum kon-
ungum eða skartklæddum höfð-
ingjum, er eg hefi séð, og senni-
lega rnundi eg fá á honum meiri
óþokka en áður, þessum harð-
stjóra og *fanti, sem sagt var að
hefði ofsótt og fjötrað saklausa
menn, látið húðstrýkja ýmSn rit-
stjóra og máske hengja suma, sér-
staklega ef þeir voru samvinnu-
menn. Eg hafði fengið andstygð
(á þessum peia. Bégrstaklega þó
eftir morðið á Mrtteotte (því mér
fanst sá hálfnafni minn eins og
náskyldur mér). Vist langaði mlg
ekkert til þess að sjá Mussolini,
slíkan erkifant, og mér fanst í
rauninni sanngjarnast, að hann
fengi að sæta sömu forlögum og
Jón biskup Gerreksson hjá Spóa-
stöðum forðum.
Eg fór til ítalíu og hingað er
eg aftur kominn. Og eg sá Musso-
lini. Eg komst ekki hjá því að
sjá hann og heyra. Og enn meira
heyrði eg um hann talað og að
honum dáðst, áá hve margir hafa
mætur á honum, og hve miklu
góðu hann hefir komið til leiðar á
ítalíu á fáum árum.
Nú þegar allir spyrja mig frétta
úr suðurferðinni, þá eju það svo
afarmargir, sem spyrja fyrst og
fremst: “Sástu Mussolini? Og
hvernig leizt þér á hann?” Eg
svara þessu í stuttu máli þannig:
Eg sá marga merkilega hluti á ít-
alíu og marga góða menn, en af
engu varð eg eins hrifinn eins 0g
af Mussolini. Af hverju? Af því
4 hann er höfði hærri en fólkið og
af því fólkið finnur það og sýnir
honum. í vaxandi mæli hlýðni og
.hollustu, magnar hann til dáða.
Og mér er alveg sama þó eg
héyri einhverjar misjafnar sögur
af honum. Það er vitanlegt, að
fjöldí ýmsra flokksblaða víðsveg-
ar um heim rægja hann á allar
lundir og tínir upp allar lygasög-
ui^ sem um hann myndast. Það
er logið milli búrs og eldhúss,
hvað þá alla leið frá ítalíu til Is-
lands. Og aðgætandi er, að þó
Mussolini sé um eitthvað kent,
þái er það oftar að kenna ýmsum
óhlutvöndum mönnum í flokki
hans. Þar er misjafn sauður í
mörgu fé, og fara sumir lengra en
góðu hófi gegnir. Kann þá stund-
um að fylgja “beinbrot eða bani.”
Slíkt getur Mussolini ekki ætíð
hindrað. Það má ekki kenna vél-
stjóranum, þó einhver meiði sig á
vélinni, eða þó einhver vísvitandi
álpist undir vagnhjólin.
Eg trúi því, sem eg sá á ítalíu | að mæta fyrir hönd konungs til
og heyrði góða heimildarmenn | að bjóða okkur læknana vel-
segja mér, að ef Mussolini væri! komna
Á við svefnleysj, taugaveilun
og ofþreytu.
Loks er nýtjt meðal fundið, sem
hjáípar fólki þúsundum sam-
an og gefur því aftur góða
heilsu; oft á fáum dögum.
V
Ef þú átt bágt með svefn og ef
þú finnur til taugaóstyrks og
þreytu á morgnana, þá farðu beint
til lyfsalans og íáðu þetta nýja
meðal, Nuga-Tone. Þig mun stór-
lega furða hve fljótt og vel það
verkar. Það veitir endurnærandi
^terkar; gefur góða matarlyst og
svefn; gerir taugarnar stæltar og
kemur meltingarfærunum í gott
að. Þetta nýja meðal, Nuga-Tone
lag; vekur áhuga manns og dugn-
reynist ágætlega við alskonar
magaveiki og höfuðverk og öðru
slíka kvilla að stríða, þá ættir þú
þvílíku. Ef þú átt við einhverja
sjálfs þfn vegna að reyna þetta
um annara og gerir það á hverjum
meðal sem hefir hjlálpað þúsund-
mánuði. Það kostar þig kekert ef
þú ert ekki ánægður með það.
Það er bragðgott og þér fer strax
að líða betur, Reyndu það í nokkra
daga og ef þér líður ekki betur og
ef þú lítur ekki betur út, þá farðu
•með afganginn til lyfsalans og
hann skilar þér peningunum.
Þeir sem búa til Nuga-Tone þekkja
leggja það fyrir alla lyfsala að
svo vel verkanir þess, að þeir
ábjirgjast það og skila aftur pen-
ingunum ef þú ert ekki (ánægður.
Meðmæli og ábyrgð og fæst hjá
ðllum lyfsölum.
ekki, mundu stöðug mannsmorð
eiga sér stað í landinu og alls-
konar óregla ríkja. Alt var að
fara í ólag, þegar hann tók við
stjórnartaumunum, innanlands ó-
eirðir, atvinnuleysi og hungur
stóð fyrir dyrum. Þar gat ekkert
þingræði né þjóðræði hjálpað.
Bolsjevismus var í aðsigi engu
betri en á Rússlandi. Það var
komin endalaus spilling í embætt-
ismannaliðið á ítalíu. 1— Musso-
lini afsetti ýmsa ónýta og óþarfa
starfsmenn. Með járnhendi setti
hann eftirlit með öllum opinber-
um störfum og lét leita uppi fanta
og fúlmenni. Það er orðið óhult
öllum að ffrðast um ítalíu nú, þar
sem víða var ófarandi vegna
stigamanna og illvirkja.
Ilann hefir stöðugt gert sér far
um að efla atvinnuvegina og út-
rýma atvinnuleysi í landinu og
yfirleitt skapa reglu og réttlæti,
þar sem áður var órégla og órétt-
læti. Og hans hugsjón er að gera
ítalíu enn að stórveldi með góðum
nýlendum í Afríku, þar sem at-
vinnuleysingjar geti sest að í stað
þess að svelta í þrengslunum
heima. Eg trúi því, að Mussolini
hafi frelsað þjóð sína úr vand-
ræðum, a. m. k. í bili, betur en
nokkur þingræðisstjórn gat gert
með sínum alt of mörgu þing-
mönnum og iþeirra bakdyramakki
og hrossakaupum og núlli með
nefndum og nefndarálitum og fá-
nýtu kjaftæði (líkt og á Frakk-
landi)og einlægum bræðingum og
grút. I
Eg trúi því, að Mussolini sé eins
og aðrar þjóðhetjur, kallaður til
þess á neyðartíma, að taka í taum-
ana og stjórna landi sínu tiieð ein-
ræði eftir beztu getu. Væri eg á
ítalíu, mundi eg vera Fascisti og
eins og þeir hrópa: Eja — eja —
la — la! Mussoiini!
Lifi Mussolini!
Hvers vegna eg fékk mætur
á Mussolini.
Eins og áður er sagt, hafði eg
ógeð og ótrú á Mussolini, þegar
eg kom til ítalíu. Eg hafði, af
myndunum, sem eg hafði * séð af
honum, hugsað mér hann sem
narðvítugan og hjartakaldan her-
mann og þjösnalegan í framkomu.
En þegar eg nú sá alt það dálæti
sem á honum var og alt það fylgi,
sem hann hafði meðal æskunnar
og mentamanna ítalskra, þá skildi
eg, að hann hlaut að hafa ein-
hverja mikla kosti til að bera.
Mér varð í fyrstu starsýnt á alla
hermennina, sem alstaðar voru á
vakki líkt og á Þýzkalandi fyrr-
um. Og hermennirnir ítölsku eru
glæsilega klæddir og áberandi í
f jöldanum. Ekki síst Karabinier-
arnir með hatta og búninga líkt
og Napoleon, og Bersaglierarnir
með barðastóru hattana og hana-
fjaðrir svartar, slútandi fram af
hattbarðinu öðru megin.
Á hverri járnbrautarstöð sáust
ætíð hermenn á verði fríðir, státn
ir litlir Napoleónar, tmeð sverð
' -ð hlið í hvítu riddarabandi og
me ðskammbyssu hlaðna við belt-
ið„ Og stundum fóru riddara-
sveitir ríðandi um göturnar. En
þar að auki voru lögregluþjónar
á hverju strái. Það var auðséð,
að landi var stjórnað með harðri
hendi. Og svo Fascistarnir, ung-
ir, vaskir menn, sem fóru í hópum
um götur og torg þegar eitthvað
stóð til, fundahöld eða annað.
Allir í svörtum skyrtum með
svartar húfur á höfði. •— Hvar-
vetna sáust stórletraðar auglýs-
ingar á götuhornum um stjórnar-
nýjungar og fundahöld og blöðin
voru full af fréttúm og hrósi um
il duce — oringjann,-—- en það er
tignarnafnið, sem Mussolini hef-
ir fengið. Og hvar sem Musso-
lini fer, þar þyrpast menn saman
til að hylla hann og hlusta á hvert
orð, sem hrýtur af hans vörum.
Mér var sagt, að stöðugt ykist
honum fylgi og allir ungir menn
kepst um að ganga í Fascistta-
flokkinn.
Eg var nú eigi að síður vantrú-
aður framan af og vildi ekki trúa,
að Mússolini ætti þetta fylgi skil-
ið. Það var fyrst, þegar eg heyrði
hann tala og þegar eg á eftir var
kyntur honum og horfðist í augu
við hann, að eg fékk verulegar
mætur á honum. Og ekki spilti
til, þegar hann þar á eftir var
skotinn í andlitið af írskú kerl-
ingunni, þá varð eg líka skotinn,
þ. e. skotinn í Mussolini.
Banatilræðið við Mussolini.
Það var miðvikudaginn 7. apríl
að læknafundurinn skyldi settur
með mikilli viðhöfn.
Til þess var valinn merkasti
staðurinn í Rómaveldi1, hið forna
Kapitolium. í s'al einum miklum,
sem kendur er við Horazius skáld
söfnuðumst vér saman allir lækn-
arnir, um 5—600, og þar að auki
mesta margmenni annað. Og úti
fyrir hópaðist saman enn fleira af
fólki, því allir vissu að il duce átti
Nú gengum við læknar upp í
hátíðasalinn, upp eftir mörgum
breiðum stigum, sem breiddir voru
skrautofnum dúkum. En alla leið
frá salardyrunum stóðu í röðum
til beggja handa skrautklæddir
hermenn með alvæpni og skygða
hjálma. — Úti fyrir hljómaði
lúðraspil og trumbusláttur og
þegar allir voru sestir, gekk inn
Mussolini um hliðardyr og settist
í öndvegi. Við hlið honum sett-
ust þeir; borgarstjóri Rómabórgar
og formaður læknafundar. Voru
þeir allir í^breyttum jakkafötum
dökkum (smoking.)
Fyrstur talaði borgarstjóri og
baúð okkur lækna velkomna til
Róm í stuttri ræðu. Næstur hon-
um talaði Mussolini. Okkur hafði
verið gefin ræða hans prentuð á
þremur tungumálum, ítölsku,
ensku og frönsku.
Eg sat í fremstu röð, sem einn
af hinum 32 þjóðfulltrúum lækna,
er mættir voru, og gat því ■ fylgt
vel því er fram fór. — Þegar
Mussolini gekk til sætis stóðu
allir upp og heilsuðu honum að
fornrómverskum sið með því að
rétta upp og fram á við hægri
handlegg með flötum lófa.
Mussolini er í meðallagi hár,
liðlegur og vel vaxinn, hvarthærð-
ur og hárið siikimjúkt, vel strök-
ið. Hann er nokkuð breiðleitur,
nefið allstórt, beinvaxið og vel
farið andlitinu. Augun eru dökk,
snör og vel hreyfileg. Svipurinn
er venjufega alvarlegur og verð-
ur harður, ef því er að skifta, og
þungbrýnn, en bregður fljótt til
bross og blíðu, er hann talar um
hugnæmt efni. Manna er hann
málsnjallastur, skýrt orðfallið og
rómurinn svo mikil yfir málinu,
að þó hann þyki ekki hátt mæla,
þá skilja allir þó fjarri séu* (er
þetta því líkt, sem sagt var um
Sverri konung). Hann fylgir
ræðunni eftir með hugnæmum
svipbreytigum og 1 armhreyfing-
um.
Aðalinntak ræðu hans var það,
að hanri bauð oss velkomna i
nafni ítölsku stjórnarinar og
gladdist af að sjá svo marga hand
lækna saman komna á ítalskri
jörð. Hann mintist þess hnytti-
lega, hve handlæknislistin hefir
frá fornu fari þróast vel í ítölsk-
um skólum og þaðan breiðst út til
annara þjóða. Færði hann þess-
um orðum stað með mörgum góð-
um dæmum er allir könriuðust
við.
Loks bætti hann við nokkrum
pe'rsónulegum þakkarorðum til
"handlæknastéttarinnar fyrir hve
vel hún gekk fram í styrjöldinni
miklu, þar sem hann var ekki ein-
asta sjónarvottur að því hve
mörgum mannslífum var af henn-
ar völdum bjargað, heldur einnig
hvernig hann sjálfur fékk að
sanna hve mjúkar.eru og mikils-
verðar læknishendurnar fyrir
sjúka og særða. Því slíkt hafði
hann oft fengið að reyna með sín-
um eigin særða líkama, sem ó-
breyttur liðsmaður framarlega í
bardaganum.
Ræða Mussolinis snart hjörtu
toguðu af alefli í grátt hárstrý
hennar. Eftir nokkrar hrinding-
ar fram og aftur tókst hermönn-
unum einnig að ryðja svo til að
gömlu konunnni var kómið inn
fyrir járngrindur þar hjá og var
svo grindunum læst á eftir og þar
beðið með kerlingarhróið þar til
allra og var honum launað með , ... . ...
, . ■ j. , * . ~ í'í vagn kom og logreglumenn til að
dynjandi fagnaðaropum og lofa- , K ^ \ ___
taki. Þar á eftir hélt formaður
læknafundar snjalla ræðu á lat-
ínu og enn töluðu forseti félags-
ins og ritari, en allra augu beind-
ust að Mussolini og hlustuðu
menn síður eftir ræðum hinna.
Að loknum ræðunum veitti
Mussolini okkur þjóðfulltrúum
áheyrn í herbergi inn af salnum
og vorum við allir kyntir fyrir
honum hver um .sig og mælti
hann við suma, ten tíminn var
naumur. Síðan var gengið út og
gekk Mussolini fremstur við hlið
formanns læknafundar, prófesors
Giordano frá Feneyjum. Þar á
eftir gengum við hinir og gengum
sömu leið út og niður tröppurnar
milli hermannaraðanna.
Úti fyrir var þéttur múgurinn
af fólki og jafnskjótt sem Musso-
lini kom niður og ætlaði inn í bif-
reið sína kvað við fagnaðaróp
frá öllum hópnum. En jafrs-
snemma small hvelt byssuskot.
Og um leið snerust fagnaðarópin urinn syngur um: “í Rama heyrð-
í vein og ýskur og hljóð og grát, i9t harmakvein” því ungir sem
hver ruddist gegn öðrum og her- eldri skældu og tárfeldu sem
aka henni brott. Það var hún, sem
hafði hleypt af skotinu, og heyrði
eg það seinna, að hún hefði laum-
ast inn að röð hermannanna, sem
næstir stóðu og með vasaklút vaf-
inn utan um hendina, er hélt á
skammbyssunni, hafði henrii tek-
ist að ná færi á Mussolini, en
próf. Giordano forseti læknafund-
arins, sem gekk við hlið honum,
hafði séð hendina og óðara ýtt við
henni. Þessu var það að þakka að
skosáriið var mðiinlítið. Hefði
kerling fengið að ráða, var kúlan
viss að hitta gegn um miðjan
heila, en fyrir þetta atvik þaut
hún að eins gegn um nefbrodd-
inn.
En það leið löng stund — og
þó reynáar að eins fjórðungur
stundar — sem ópin og óhljóðin
ðg grátur og harmavein fólksins
hélt óslitið áfram. Að sumu leyti
minti hávaðinn á stórkostlegan
jarm í stekk, en réttara er þó að
líkja ástandinu við það sem sálm-
mennirnir gátu vart við ráðið, því
alt ætlaði um koll að keyra. Mus-
solini hafði verið skotinn í and-
litið og eg sá strax að hann var
alblóðugur í framan og hallaðist
aftur á bak í fang læknanna, sem
næstir honum gengu.
Flestir héldu, að hann væri
drepinn, því að eins þeir, sem
næstir voru, gátu séð hvað fram
fór, og við sáum fljótt að sárið
var tæplega banvænt. Klútur var
lagður yfir sárið og nýr og nýr
klútur, því talsvert blæddi. En
Mussolini reisti sig hátt og kall--
aði snjalt, að engin hætta væri á
ferðinni. Sefuðust þá ólætin
nokkuð. Vegna stimpiriéanna í
mannþrögii eohgrfn x Cnkhv nV
mannþrönginni ætlaði að ganga
erfiðlega fyrir hermönnunum, að
ryðja Mussolini' braut inn í hús
þar nærri svo að gert væri við
sárið og bundið uiq. En ópin og
köllin, veinin, hrindingarnar og
pústrar héldust enn lengi, bvi að
fólkið vildi ei friðast né sannfær-
ast um, að banatilræðið • hefði
mishepnast. En" meðan hermenn-
irnir voru að koma Mussolini und-
an sást annars staðar á sjónar-
sviðinu annar flokkur hermanna
vera að leysa, úr annari þvögu,
sem þyrpst hafði saman í hnapp.
Fjórir karlmenn héldu þar í fang-
r inu á rægsnislegri gamalli konu,
sem klædd var töturlegri bláleitri
síðhempu. Hún hljóðaði ámát-
lego, en þeir héldu henni heljar-
tökum um herðar, miðju og limi,
en tveir náungar bættust við og
börn og sumir létu sem hálfóðir
menn af æsingi og hryllingi, og
ruddust inn um þröngina til afr
leita frétta hjá öðrum og huggun-
ar, eða fá betra útsýni eða miðla
öðrum af sinni vizku. Þessi
harma grátur og öll sú trylling í
fólkinu verður mér iöngum minn-
isstæð af öllu, sem fyrir mig bar
í þessari ferð. Eg hafði að vísu
oft heyrt um hið heita blóð og
næmu tilfinningar suðurlndabú-
ans, en aldrei trúað því til fulls
fyr en í þetta skifti; og þó eg ekki
í öllum þeim ósköpum tæki eftir
því, að fólk rifi klæði sín — þá
þori eg að fullyrða að slíkt hafi
marga hent, að einhverju meira
eða minna leyti.
Eg get ekki nejtað því, að mér
var mikið niðri fyrir og að mér
hnykti við, þegar eg heyrði skotið
og fólkið tryltist, en eg tók strax
öllu með stillingu og fanst mér
þá mig taka eins sárt til Musso-
lini eins og væri hann bróðir
minn. En þegar e'g sá eflda karl-
menn hágráta og þar á pieðal einn
kollega minn, skurðlækni frá Bol-
ogna, gróta sem barn og verða að
styðjast upp við stoð vegna ekka
og óstyrks í hnjánum, þá ofbauð
mér sú tilfinningasemi. Þessi
kollega hafði tveim dögum áður
sýnt okkur spítala sinn og komið
okkur til að halda, að hann væri
mesti afreksmaður — en þó gat
hann ekki “vatni haldið” við svona
tækifæri. En svona eru Rómverj-
ar enn,, alveg eins og á dögum
Tacitusar, þegar hann var að
segja þeim frá forfeðrum okkar,
Germönum, og hélt þeim fram
Rómverjum til fyrirmyndar:
“feminis lugere honestum, viris
meminisse” — fþað er heiðarlegt
konum, þó þær gráti, en mönnum
ber að muna).
Eitthvað hálfri stundu eftir
skotið, var Mussolini orðinn vel
hress. Læknarnir höfðu búið um
sárið með litlum plásturumbúð-
um, er huldu að eins nefið. Kom
hann þá út á loftsvalir og talaði
nokkur orð til fólksins, til að láta
alla vita, að sárið væri hættulaust
og að hann mundi fara ferða sinna
daginn eftir, eins og hann hafði
ætlað sér. (Förihni var heitið til
Tripolis). Þá sneríst öll sorgin í
fagnaðarlæti. öll borgin var
fánum skreytt, lúðraflokkar gengu
spilandi um göturnar og margar
skrúðgöngur voru hafnar til heim-
ilis Mussolinis til að votta honum
ánægju fólksins út af því, að líf
hans frelsaðist. En einkum létu
Fascistarnir til sín taka. Þeir
fóru í hópum ýmist gangandi eða
í bifreiðum syngjandi og hóandi
um allar götur og voru sumir helst
til uppvöðslusamir.
Allir voru glaðir nema auðvit-
að þeir, sem lengi hafa hatað
Mussolini og vilja hann feigan.—
En þeir létu lítið á sér bera nema
einstöku, sem vildu ekki taka of-
an, þegar Fascistarnir fóru fram
hjá og hvöt.tu alla til að lyfta hatt-
inum eða heilsa að rómverskum
sið. Þá kunni einhver skapbráð-
ur Fascisti að taka til bareflis
síns — þeir hafa allir stutt hvít
prik t— stökkva ofan úr vagninum
og steypa sér yfir þverhausinn,
eins og valur yfir rjúpu, til að
dusta hann til ef hann vildi ekki
láta undan. Eg sá einn meinlaus-
an gentleman, er ók í bíl, verða
fyrir slfkum búsifjum af þremur
strákum. Hann var lúbarinn og í
rauninni held eg að hann hafi alls
ekki áttað sig 4 hvers vegna. Eg
vorkendi veslings manninum, en
hann sá sér þann kost vænstan að
flýta' sér burt, án nokkurrar leið-
réttingar sinna mála, því lögregl-
an var hvergi nærri. Það má líka
\fera, að han n hafi átt höggin
fyllilega skilið. Eða ætli það sé
ekki í samræmi við alt þjóðræði,
að minni hlutinn verði að beygja
sig? Og þenna dag höfðu Fascist-
ar áreiðanlega tögl og hagldir.
Hafið þér heyrt
um Peps? Pepstöfl-
urnar eru búnar til sa'm-
kvæmt strangvísindalegum
reglum og skulu riotaðar við
hósta, kvefi, hálssárindum og
brjóstþyngslum.
Peps innihalda viss lækning-
arefni, sem leysast upp á tung-
unni og verða að gufu, er þrýst-
ir sér út í lungnapípurnar.
Gufa þeási mýkir og græðir hina
sjúku parta svo að segja á svip-
stundu.
Þegar engin önnur efni eiga
aðgang að lungnapípunum, þá
þrýstir gufa þessi sér viðstöðu-
laust út í hvern einasta af-
kima og læknar tafarlaust. —-
Ókeypis reynsla. Klippið
þessa auglýsingu úr blaðinu
sendið hana með pósti, ásamt
1 c. frímerki, til Peps Co., Tor-
onto. Munum vér þá senda yð-
ur ókeypis reynsluskerf. Fæst
hjá öllum lyfsölum og í búðum
50 cent askjan.
Tilræðið við Mussolini snerist
honum og flokki hans til sigurs
og aukins gengis. Vér læknarnir
vorum vissulega allir glaðir yfir
að þessi hátíðisdagur okkar varð
heilladagur Mussolinis.
Eg skal aldrei gleyma Musso-
lini. Hann töfraði iri,ig með aug-
um sínum, og alJri sinni vasklegu
framkomu, eins og hann hefir
töfrað ótal marga, sem nærri hon-
um koma. Það skín í augum hans
ljós, sem leiptrar af gáfum og
göfugmensku. Þar sá ég mann,
sem mér líkaði — óraéan til að
fórna lífi sínu — “fremstur í
flokki þar’s firar börðust.”—“Sá
hafði hilmir hart móðakarn.”
“Vous etes un homme”! sagði
Göethe við Napgleon. Líkt mætti
segja við iMussolini.
Eg vijdi óska, að sérhver þjóð
eignaðist sinn Mussolini — hver
við sitt hæfi. — Lesb. Mbl.
Það sem hveitisamlagið gerir!
ÞaÖ Kefir gert bændunum í Manitoba, SaskatcKewan og Alberta mögu-
legt að selja Kveiti sitt í samlögum.
Hveitisamlagið leggur ekkert á hveitiB annað en óKjákvœmilegan kostn-
að. Framleiðandi nýtur því alls Kagnaðaxins.
Þar sem Kveitisamlagið Köndlar svo mikið af Kveiti, getur það náð
beinum tamböndum, og þannig sparað mikinn kostnað, sem á það legst
við að Köndla það Kvað eftir annað.
Hið mikla hveitimagn sem samlagið ræður yfir, gerir því einnig mögu-
legt að njóta þess Kagnaðar, sem því er samfara, að geta selt mikið í
einu með stuttum fyrirvara,
*
Hveitisamlagið losar bændurnar við allar áKyggjur af því Kvenær þeir
eigi að selja Kveiti sitt, en tryggir þeim fult meðalveið fyrir ársuppsker-
una, ef Kveitisamlagið selur Kana.
Meðlimir Kveitisamlágsins njóta hluta af hagnaði kornKlaðanna við enda-
stöðvar járnbrautanna.
Hveitisainlagið hefir áhrif á Keimsmarkaðnum sem einstaklingurinn
getur ekki Kaft, sem aðeins hefir sitt eigið hveiti.
Hveitisamlagið getur selt Kyeitið Kvenær sem hentast er áárinu og um
leið komið í veg fyrir að markaðurinn sé of fyltur að Kaustinu.
■IKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKKHKHKHKKÍHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHS
Manitoba eða
Wheat Pool
Saskatchewan
Wheat Pool
eða Alberta
Wheat Pool
Winnipeg, Man. Regina, Sask. Calgary, Alta
(SJERSTAKAR LESTIR (
= Austur að Hafi =
1SIGLT TIL CAMLA LANDSINS [
| SÉRSTAKIR SVEFNVAGNAR
frá Vancouver, Edmonton, Cálgary, Saskatoon, Regina
= með lestunum austur, sem koma matulega
E til að ná i jólaferðir gufuskipapna:
= Fyrsta lest fer frá Winnipeg kl. 10 f.m. 23. nóv., til Montreal, =
= Þaðan 25. nóv. irieð S.S. “Athenia ” til Belfy, Liverp, Glasgow =
= Ónnur lest fer frá Winnipeg kl. 10 f.m. 25. nóv. til Quebec og =
= þaðan /'beint norðurleioina) með SjS. “Regina” 27. nóv. til =
= Belfast, Glasgow og Liverpool.
= Þriðja lest fer frá Winnipeg kl. 4.30 e.m. 2. des. til Halifax, og =
= nær í S.S. “Pennland” 6. des. til Plymouth, Cherb. Antwerp. =
= Fjórða lest fer frá Winnipeg kl. 10 f.m. 9. des. til Halifax nær =
= í S.S. “Letitia” 12. des. til Belfast, Liverpool, Glasgow, og
= S. S. “Baltic” 13. des. til Queenstown og Liverpool. =
= Fimta lest fer frá Winnipeg kl. 10 f.m. 10. des. til Halifax, nær =
= í S.S. “Antonia” 13. des til Plymouth, Cherbourg, London.
= SÉRSTAKIR SVEFNVAGNAR alla leið ef þörf kr^fur. frá *=
— Vancouver, Edmonton, Calgary, Saskatoon, Regina, til að ná í =
= S.S. “Stockholm” 5. des. frá Halifax til Oslo og K.hafnar.
S.S. “Estonia’ 9. des. frá Halifax til Kaupmannahafnar. =
= S.S. “Frederik III” 10. des. frá Halifax til Christiansand,
E Oslo og Kaupmannahafnar.
= Hvaða umboðsmaður sem er fyrir Canadian Nat. Ry gefur uppL E*
= Eða skrifið W. J. QUINLAN, Dist. Pass. Agent, Winnipeg
rilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllhr
^MMMMMMIMMMMMmUMMMMMMMMMMMMMMMMMMIMMMMMMMMMMMMMMMMMm'E
TIL
Gamla Landslns I
= MEÐ
FYKIR JOLIN
og NY-ARID
Sjerstakar Jola-ferdir
= I)EC. 7
= “ 11
5 “ 15
= “ 15
S.S. MONTROYAL
S.S. METAGAMA
S.S. MONTCALM
S.S MINNEDOSA
LIVERPOOL
GLASGOW-LIVERPOOL
LIVERPOOL
CHERBOURG.SOUTH-
AMPTON ANTWERP
jmaaw.
affinr
SÉRSTAKIR SVEFNVAGNAR
Verða i brúki alla leið til skipshliðar í Welst St.
John fyrir þessar siglingar.
= SKRIFIÐ YDUR SNEMMA FYRIR FARÞEGARÚMI =
= og látið Canadian Pacific Umboðsmann gefa yður
= allar upplýsingar.
I CANADIAN PACIFIC |
ÉmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmiimmI