Lögberg - 24.05.1928, Side 7

Lögberg - 24.05.1928, Side 7
LÖGBEBG, FIMTUDAGDm 24. MAI 1928. Gyllinœd Lœknast fljótlega “Eg tók mikið út árum saman af þessum slæma sjúkdómi” segir Mrs. W. Hughes, Hoche- laga St., Montreal. “Kvalir, svefnleysi, og alls- konar ill ]<ðan, var það sem eg átti við að stríða þar til eft reyndi Zam-Buk. Nú veit eg, að það er ekkert til, sem jafn- ast á við þetta ágæta meðaL Síðan það læknaði mig, lang- ar mig innilega til að láta þá, er líða af slíkum sjúkdómi, vita um það. 50c. askjan. Stöðvar kvalir undra fljótL Græðandi meðal úr plönturíkinu. Frá Jerúsalem til Jeríkó. Langt er nú síðan Samverjinn gerði miskunnarverkið á mann- inum, sem féll í hendur ræningja á veginn milli Jerúsalem og Jerí- kó, en ræningjarnir eru þarenn og halda áfram sðmu iðju. Fyrir skömmu var þar á ferð maður frá Winnipeg, E. J, Tarr KjC., og ræn- ingjarnir rændu þar af honum peningum hans og öðru verðmæti, sem hann hafði meðferðis. En ekki getur sagan um að þeir hafi misþyrmt honum og skilið hann eftir dauðvona. Hann gat því komist hjálparlaust til manna- bygða, en ef til vill er Samverjinn þar á ferð enn í dag, engu síður en ræningjarnir. INGJALDUR STERKI á Kálfaströnd. ÖHdr. Hjálmar J. Stefánssonar) Fyrir miðja 18. öld (1734) bjó á Kálfastrðnd við Mývatn Ingjald- ur Jónsson. Um hann eru þau ummæli, að hann hafi verið kraftamaður og glíminn vel. — Kaupmaður á Húsavík, sem ekki var hér nema á sumrum, en var útlendur og heima hjá sér & vetr- um, setti fyrir sína hönd mann til að sjá um verzlunina, eins og þá var títt; voru þeir umsjónar- menn nefndir “eftirliggjarar”. — Ókunnugt er nafn þeirra, kaup- manns og hans. Einn vetur kyntist kaupmaður manni, sem ferðaðist um og reyndi þolrifin í mönnum i áflogum, sem þá var kölluð glíma, og bar hann af öllum og barst mikið á. Kom þar niður tali kaupmanns og hans að kaupmaður kvaðst mundu geta komið með mann, sem legði hann að velli í glímu og það ekki af- burða stóran mann, en hann væri úti á íslandi. Endirinn varð sá, að þeir veðjuðu allhárri upphæð og aflraunamaðurinn kom svo um vorið með kaupmanni á Húsavík. Kaupmaður sendir þá til Ingjalds og biður hann að finna sig, tjáir honum frá veðmálinu og biður hann að sýna þessum útlenda ribbalda, að til sé sönn karl- mensku-íþrótt á íslandi og fella hann á hólmi. Lýsa ummælin þannig þessum útlenda afburða- garpi, að hann hafi verið “jaka- rudda-jötunmenni”„ Ingjaldur lét tilleiðast og glímdi við jðtuninn og leið skamt áður hann félli við dynk mikinn og þar af leiðandi fagnarlæti manna er á horfðu. En Ingjaldur fékk veðféð. Árið 1703 er i fólksregistri get- ið um Ingjald Jónsson hreppstjóra á Skútustöðum, konu hans Arn- fríði og sonu hans tvo, Jón ,og Halldór, og er hann þá 38 ára, svo að ef glíman hefir farið fram á hans yngri árum, þá hefir það sennilega verið fyrir 1700. Koma þessi nöfn heim við ættartölur. En ef þetta er sami maðurinn og Ingjaldur á Kálfaströnd, þá telja ummælin tvo aðra sonu hans, Vig- fús, fyrri mann Elínar Illugadótt- ur á Geiteyjarstrðnd, og Einar ; sterka, sem tók upp “reksteininn” j í Haganesi við Mývan, og er steinn ; sá þar enn til sýnis. Einar sá er i talinn maður söng-Ásu, sem allir dáðust að fyrir “hreinu í hljóðum, skærleik og liðugheit”, segja munnmælin. En þessa sögu segja þau lika af fjórum sonum Ingjalds á Kálfaströnd: Það var í þann tíma, að hestar voru mjög lítið brúkaðir til flutn- inga hér um slóðir, en því meira báru menn á sínu eigin baki, þó langt væri. Þessir fjórir synir Ingjalds fóru að sækja skreið út á Sjávarsand, þar sem Laxá fell- ur í Skjálfanda, og mun vera nær 60 kílómetrum, en það var að vetr- arlagi. Segir ekki af ferð þeirra fyr en á heimleið. Lá leið þeirra yfir Stakhólstjörn árla á sunnudag, og átti að messa á Skútustöðum, en tjörn sú er þar við túnjaðarinn. Þá var ekki siður að ganga fram hjá þar sem messað var, svo þeir skilja bagga sína eftir í Stakhól og voru við messu á Skútustöðum um daginn. Þegar úti var, fóru menn til fyrir forvitnissakir og vigtuðu skreiðarbagga “drengj- anna”. Kom þá í ljós, að þungi þeirra var að fjórðungatölu hnit- miðaður við aldursáratölu þess, er þann bagga bar„ Einn var 18, annar 20, þriðji 22 og fjórði 24 ára gamall.—íþr.bl. Stjórnarskrá Sambands Islcnzkra Leikfélaga í Vesturheimi. 1. grein. Tilgangur Sambands þessa sé að vekja áhuga fyrir leiklist meðal ís- lendinga. Þessum tilgangi skal ná (a) með því að hvetja menn í isl. bygðum að stofna til leiksýninga þar sem því verður við komið. (c) Með verðlaunum fyrir frumsamda sjónleiki á islenzku eða ensku. (d) Með árlegri sjónleika samkepni (á. íslenzku eða ensku máli) á milli þeirra leikfélaga, sem tilheyra Sambandinu. 2. grein. Meðlimir Sambandlsins geta öll þau leikfélög orðið, sem sýna að minsta kosti einn leik á ári og sækja um inngöngu í Sambandið, og kjósa tvo fulltrúa í fulltrúa- nefnd þess. Þó getur ekkert leikfélag, %em ekki tekur þátt í hinni árlegu sam- keppni tvö ár samfleytt, talist á- fram meðlimur Sambandsins. 3- fTein. Fulltrúanefnd Sambandsins skal skipuð af tveim fulltrúum frá hverju leikfélagi innan Sambands- ins, og situr árlangt. Fulltrúa- nefndin tekur við starfi sinu á að- TIRES ogannað tilheyrandi bílum Bílar útbúnir fyrir sumar keyrzluna Með sanngjörnu EATONS verði l^Vel gerðar og endingar góðar ytri og innr\ Tires. Hinar góðkunnu Eatonia, Trojan og Bulldog gerðir. Einnig alt annað sem þeir þurfa daglega á aö halda sem bíla keyra, svo sem pumpur, spark plugs og wrenches. STURDY TIRES AND TUBES Hver. Eatonia standard tires, ZOt&Vz .... $7.85 Eatonia standard tubes, 30x3%... $1.85 Trojan standard tires, 30x3% .... $5.75 Hver. Trojan standard tubes, 30x3% .... $1.19 Bulldog oversize, 30x3% ..........$9.50 Bulldog oversize tubes.......... $2.10 BALLOON TIRES AND TUBES 29 by 4.40 IBulldog tire ... Tube to fit............. Hver. $10.60 $2.75 Hver. 29 by 4.40 Eatonia tire ........$8.95 Tube to fit.................$2.55 ACCESSORIES Hver. Tire pumps, high pressure ....... $1.75 Spark plugs, % þml....... Tire pumps, balloons ............ $1.85 A. C. Spark plugs, % þml. Jacks .............. $1.00, $2.10, $3.95 Rim wrenches, % þml...... Luggage carriers ................$1.35 % og 11-16 þml............ Auto Accessories deildin, Main Floor, Hargrave. Hver. .... 69c . .. 79c ... 49c . .. 50c ^T. EATON WINNIPEG CANADA alfundi, sem haldinn skal viö lok hinna árlegu samkepnismóta, og sýni fulltrúar þar umboð sitt. Skyldi hin árlega samkepni falla niður. skal nefnd sú, er síðast var skipuð halda embætti til næstu sam- kepnismóta, eða þar til Sambandið leysist upp. Oddvita kýs fulltrúa- nefndin, er kallar nefndina saman til fundár er þörf krefur, stjórnar þeim, og hefir að öðru leyti leið- sögn í starfi Sambandsins; ritara er haldi gjörðabók yfir starf nefnd- arinnar og annist bréfaviðskifti fyrir Sambandið, skal kjósa á að- alfundi; féhirðir skal veita viðtöku tekjum Sambandsins, greiða út- gjöld þess samkvæmt ráðstöfun fulltrúanefndar, og varðveita sjóð þess. 4- grein. Framkvœmdarnefnd skulu odd- viti, ritari og féhirðir skipa, og skal sú nefnd annast um fram- kvæmdir fulltrúanefndarinnar milli funda. 5- grein. Samþykki fúlltrúanefnd 'Sam- bandsins að leysa uj>p félagið, eða falli sjónleika samkepnin niður 3 ár samfleytt, skal sjóður og eignir Sambandsins renna í byggingar- sjóð þjóðleikhússins á Islandi, eða til þeirra stofnunar, verði hún kom- in upp. 6. grein. Breytingar á reglugjörð þessari má gera á aðalfundi, en þó því að- eins að þrír fjórðu nefndarmanna samþykki breytinguna. REGLUGERÐ fyrir leiksýninga samkcpni. 1. grein. Framkvœmdornefndin skal ráða hvaða flokkar og hve margir taki þátt í samkepninni ár hvert. 2. grein. Heimilt er hverju íslenzku leikfé- lagi í Ameriku að senda umsókn um þátttöku í hinni árlegu leiksýninga samkepni. Framkvæmdarnefndin ákveður hvaða umsóknir skulu teknar til greina, verði þær svo margar að eigi sé hægt að sinna þeim öllum. Þó skal framkvæmd- arnefndinni aldrei heimilt að hafna umsókn neins leikfélags tvö ár samfleytt, og aldrei fyrstu umsókn. 3- grein. Samkepni skal eigi haldin ef færri en Iþrjú leikfélög hafa sótt um þátttöku. 4. grein. Hvert leikfélag sem tekur þátt í samkepninni greiði allan kostnað af sinni eigin leiksýningu, að undan- skildri húsaleigu og auglýsinga- kostnaði í sambandi við samkepn- ina, sem greiðist úr sjóði Sam- bandsins, en þó skal helmingnum af ágóða af leiksýningu skift jafnt milli allra leikfélaga, sem þátt taka í samkepninni. 5- grein. Tekjur af leiksýningum Sam- bandsins (árlegu samkepni) renna í sjóð þess. 6. grein. Dómendur skulu vera 3 og kosn- ir af framkvæmdarnefndinni. Skulu þeir dæma eftir þeim reglum sem oddviti Sambandsins fær þeim í hendur. Þó skulu þær reglur fyrst hafa verið bornar undir full- trúanefndina, og samþyktar. Skylt skal dómendum að gera grein fyrir dómi sínum um leið og þeir af- henda verðlaunin. 7. grein. Samkepnin fer fram á þeim stað og tíma, sem framkvæmdanefndin ákveður, og skal auglýst að minsta kosti mánuöi áður en hún á að fara fram. 8. grein. Skylt skal ritara að senda fyrir- spum til hvers leikfélags innan Sambandsins fyrir byrjun október mánaðar, um væntanlega þátttöku þess í samkepninni. 9. grein. Skylt skal hverju þvi leikfélagi, er taka vill þátt í samkepninni að tilkynna ritara væntanlega þátttöku sína eigi síðar en fyrir nóvember mánaðarlok. 10. grein. Tilkynningu um þátttöku skal fylgja nafn leikrits þess, sem sýnt verði, tími er leikurinn tekur, leikendafjöldi, og aðrar upplýsing- ar er að sýningunni lúta. 11. grein. Verðlaun fyrir bezta leiksýning er Sigurmerkið, gefið af Ó. Á. Eggertssyni, er leikfélagið heldur svo árlangt. son og T. Böðvarsson, fyrir Leik- félag Geysis-bygðar; Mrs. H. F. Danielsson og B. A. Bjarnason, fyrir Leikf élág Árborgar; Ámi Sigurðsson og Halli Axdal fyrir Wynward leikflokk. Auk þess Að- albjörg Johnson og Dr. Á. Blöndal fyrir nýmyndað leikfélag í Winni- peg, sem bað um inngöngu í Sam- bandið á aðalfundi og var veitt hún. Embættismenn fyrir Sambandið vora kosnir, sem fylgir: Oddviti, Dr. Ágúst Blöndal; ritari, Aðal- björg Johnson; féhirðir Fred. Swanson. Samkvæmt 4. grein reglugerðar- innar fyrir leiksýninga samkepni, var féhirði falið að greiða f jórðung af helmingi hreins ágóða til hvers flokks; en hinn helmingur ágóðans lagður í sjóö sambandsins.. Þess má geta, að fulltrúar ræddu ítarlega á hvern hátt væri með sanngjöm- ustu móti hægt að skifta helmingi ágóðans milli flokkanna, til þess að hjálpa þeim til að mæta kostnaði við þátttöku í leiksýningunni, og að greinin var saniþykt í einu hljóði. Til skýringar má einnig geta þess að 6. grein gekk ekki i gildi fyr en að afstaðinni leiksamkepninni, og því dómendur þetta ár ráðnir með sömu skilyrðum og í fyrra, en þá var þess ekki krafist að þeir gerðu grein fyrir dómi sínum, né legðu fram skýrrslur til leikfélaganna. Enn hefir engin reglugerð verið samin fyrir veitingu verðlauna fyr- ir leikritasmíði eða þýðingar. En það hefir nefndin í hyggju að gera í nálægri framtíð. Eins og bent hefir veriö á er bæði meiri kostnaður og aðrir örðugleik- ari i sambandi við leiksýninguna fyrir þann flokk, sem marga leik- endur hefir, en þann, sem færri telur. Þetta eru þeir beðnir að hafa í huga, sem kynnu til þess að hugsa, annaðhvo„rt að þýða eða semja leikrit, sem Sambandið gæti notað. Flest leikrit, sem nú er hægt að fá á íslenzku telja marga leikendur. Einn leikflokkur, að minsta kosti, sem hefði viljað taka þátt í samkepninni í ár var neyddur til að hverfa frá, sökum einmitt þessa örðugleika. Nefndin finnur sig knúða til þess að þakka íslendingum hve vel þeir sóttu samkepnina, og hve vel þeir mæla í garð fyrirtækisins, þó á- greiningur verði um einstök atriði því viðvíkjandi. Vonandi verður vægt tekið á skyssunum, og tillit tekið til þess að fyrirtækið er skamt á veg komið. Nefndin fagnar öll- um vinsamlegum bendingum á vin- samlegan hátt. Fyrir hönd framkvæmdarnefnd- arinnar, Aðalbjörg Johnson. ritari. Elzta Eimskipa-samband til Canada 1840—19*8 Cunard eimskipafélagið býður fyrirtaks fólks- flutninga sambönd við Noreg, Danmörk, Finnland og ísland, bæði til og frá. canadísk- um höfnum, (Quebec I sumar). Cunard eimskipafélaglð hefir stofnsett nÝ- lendu. og innflutningsmála skrifstofu I Win- nipeg, og getur nú útvegað bændum skandi- navlskt vinnufólk, bæði konur og karla. Skrifið á yðar eigin tsngumáli til undir- ritaðs félags, er veita mun allar upplýsingar ökeypls. pað er sérstaklega hentugt fyrir fólk, sem heimsækja vill skandinavlsku KSndin, að ferð- ast með Cunard skipunum. Éitt meðal hinna mörgu hlunninda, er Cun- ard félagið býður, er það að veita gestum tækifæri á að svipast um I London, heimsins , stærstu borg. SkrifiS til: THE CUNARD LINE 270 MAIN STREET, WINNIPEG, MAN. fjárhagsskýrsla Ágóði af samkepni 1927, $114.77 Tekjur af samkepni 1928, 552.75 ■iiiiHiiiai I iiiiiHiiiHiiiHiiHiniHiiHniMtiiiMiinHiiimiMimHHiiBiiiiHiiiiHiiiiHiiiMiiiiHiimiiimmHimv $667.52 Gjöld: Borgaö til 4 leikflokka, $37.00 hver.............$148.00 Annar kostnaður, ......... 256,37 ■ Balsam Wool: $404-37 í sjóði ........... $263.15 L Nuga-Tone Er Bezta Meðalið Fyrir Taugamar og Blóðið, Mr. William Rabb, Charlotte, N C., skrifaði þeim bréf, sem búa til Nuga-Tone, og er það merki- legt fyrir fólkið, sem veikt er. — Hann segir: “Áður en eg fór að nota Nuga-Tone, kom ekki sá dag- ur, að mér liði vel; en nú er eg ems og annar maður. Nuga-Tone er bezta meðalið fyrir taugarnar 0« blóðið, sem eg hefi nokkum tíma þekt.” Nuga-Tone hefir unnið undur- samleg verk bes-su lík 1 40 ár, og hefir veitt meir en miljón mönn- um og konum aftur heilsu og krafta. Aldrei hefir verið til betra meðal við_ lystarleysi, meltingar- I-eysi, gasi í maganum, lifrarveiki eða nyrnaveiki. hðfuðverk, svima, taugaveiklun, megrun, magnleysi, gigtarverkium, svefnleysi og öðru jdiku. Fáðu þér flösku af Nuga- T9„n?* °% rcyndu sjálfur hve afar- mikið gagn það getur gert þér á faum dögum. Þú getur keypt meðalið alstaðar þar sem meðul eru seld. Ef svo vill til að sá, sem þú skiftir við, hefir það ekki við hendina, þá láttu hann nanta það fyrir þig frá heildsðluhúsinu. Fullkomnasta Insulation á markaðinum og ger- samlega hljóðhélt, | | ■ OfanskráÖ reglugerð og stjórn arskrá voru samþykt á aðalfundi Sambands Islenzkra Leikfélaga í Vesturheimi, er haldinn var 9. marz. Fulltrúar þeirra leikfélaga, sem þátt tóku í samkepninni í ár eru: Séra Ragnar E. Kvaran og Fred Swanson, fyrir Leikfélag Sam- bandssafnáðar; Miss K. L. Skúla- Hvar sem tegund þessi hefir notuð verið til bygginga, hefir < ■ hún vakið almenna ánægju. ■ 1 I Með því að hér er um nokkurskonar dúk að ræða, er auðvelt = ■ að slétta úr efninu og koma því fyrir. I 1 ■ Biðjið um sýnishorn og bæklinga, vöru þessari viðkomandi. I i ■ Timburkaupmaður yðar hefir þetta hljóðhelda efnL UMBOÐSMENN FYRIR VESTUR-CANADA. ■ j Turnbullfi McManus Ltd. ■ i lilMUtMIHI Cor. Sutherland and Austin Street WINNIPEG — MAN. H!l»ai;Kil«lirMil!ilBii|i'H ■ ■ ■ ■ ■ HAFIÐ ÞJER VINI í GAMLA LANDINU SEM VILJA K0MA TIL CANADA? FARBRÉF TIL og FRÁ UL ALLRA STAÐA I HEIMI Ef svo er, og bér viljið hjálpa þeim til að koraast til tiessa lands, þá finnið oss. Vér gerum allar nauðsyn- egar ráðstafanir. ALLOWAY &CHAMPION, Rail Agents UMBOÐSMENN FYRIR ALLAR EIMSKIPALINUR 667 Main Street, Winnipeg. Sími 26 861 eða hver annar Canadian National Railway umboðsm. FARÞEGJUM MŒTT VIÐ HAFNARSTAÐINN 0G LEIÐBEINT TIL ÁFANGASTAÐAR CANADIAN NATIONAL RAILWAYS

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.