Lögberg - 23.08.1928, Síða 1
PHONE: 86 311 Seven Lines 1
Ltn1 For Service and Satisfaction
e?6.
PHONE: 86 311
Seven Lines
. ta U”'!tc
For
Better
Dry Cleaning
and Laundry
41. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 23. AGÚST 1928
NÚMER 34
Canada.
Hon. Charles íStewart, innanrík-
isráðherra, hefir verið staddur í
Winnipeg undanfarna daga. Hafa
þeir Bracken stjórnarformaður og
hann átt fundi með sér. er haldið,
að nú muni hafa verið komist að
einhveri niðurstöðu í Sjö-systra-
fossamálinu margumtalaða. En
hver sú niðurstaða kann að hafa
verið, er enn ókunnugt, þegar
þetta er skrifað; en væntanlega
fréttist eittlhvað um það innan
skamms.
Stjórnarskifti urðu í British
Columbia á mánudaginn var, sem
sjálfsagðar afleiðingar af fylkis-
kosningunum siðustu. Dr. Mac-
Lean stjórnarformaður s agði af
sér fyrir sig og sitt ráðuleyti, en
við stjórninni tók Dr. S. F. Tol-
mie, leiðtogi íhaldsmanna.. Ekki er
kunnugt, þegar þetta er skrifað,
hverja hann hefir valið í ráðu-
neyti sitt. Frjálslyndi flokkurinn
hefir setið að völdum í British
Columbia í síðastliðin 12 ár.
• * «
Einn af sonum Bretakonungs,
George prins, var staddur í Win-
nipeg á mánudaginn í þessari viku
á leið til Vancouver.
* * *
Þess hefir áður verið getið hér
i Haðinu, að einir tíu þúsund
verkamenn frá Bretlandi væru að
koma til VesturCanada, til að
vinna hér við uppskeruna í haust.
Himr fyrstu þeirra, um tvö hundr-
nð og fimtíu, komu til Winnipeg á
sunnudaginn. Ekki eru þeir nærri
-allir námamenn, eins og fréttirn-
ar sögðu fyrst, og ekíki nema svo
sem fjórði partur af þessum fyrsta
hóp. Blaðamenn, sem hittu þá
hér að máli, segja að þeir hafi ver--
ið hinir glöðustu og að þeir hafi'
tjáð sig viljuga að vinna hvaða
vmnu sem þeir gætu fengið fyrst
um sinn, og þá sérstaklega upp-
skeruvinnu. Margir þeirra höfðu
sagt, að það væri ætlun sín að
setjast hér að og þá að hverfa aft-
ur að sinni fyrri handiðn, þegar
tækifæri væri til.
* * *
Á mánudagsmorguninn andað-
ist í sumarheimili sínu við Sandy
Hook, Dr. fP. C. McArtlhur, Winni-
peg, 51 árs að aldri. Merkur lækn-
ir og vej þektur í þessum hluta
landsins.
* * *
Hagl gerði skaða mikinn á
nokkrum stöðum í Manitoba á
laugardagskveldið, sérstaklega í
Rosser héraðinu og Tyndall, og á
fleiri stöðum, þar á meðal nokkuð
í grend við Virden.
* * *
Skæð inflúenza hefir að undan-
förnu gengið meðal Indiánanna í
norðanverðu Albertafylki. Frétt-
ir þar að norðan segja, að einir
275 Indíánar við Mackenzieána
hafi dáið úr veikinni á tveimur
vikum. Sagt er að þeir geri lítið
eða ekkert til að verjast veikinni
og vilji ekki nota meðul, sem þeim
eru gefin, af því þau lækni ekki
strax, og kasti þeim því frá sér,
en bíði rólegir eftir dauðanum,
eða þá bata, eftir því sem verkast
viD. Veikin hefir að eins orðið
einum hvítum manni að bana.
* * *
Hon. W. L. Mackenzie King, for-
sætisráðherra, fór á laugardags-
morguninn frá New York, áleiðis
til París til að undirskrifa friðar-
sáttmála Kellogg’s fyrir hönd
Canada. Verður það gjört á mánu-
daginn kemur, hinn 27. þ.m. Hann
sigldi með skipi, sem heitfr Ile
de France; og með því sigldi líka
Kellogg utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, með sínu föruneyti.
Ætla þeir félagar að fara til Eng-
lands og írlands í sömu ferðinni,
en Mr. King fer til Geneva.
* * *
Hon. Phllippe Roy verður fyrsti
sendiherra Canada í París. Hefir
sambandsstjórnin útnefnt hann til
að gegna þessu embætti, en til þess
þarf konungssamþykki, sem vafa-
laust kemur á sínum tíma. Mr.
Roy hefir í 18 ár verið umboðs-
maður Canada á Frakklandi, og því
að líkindum öðrum kunnugri og
færari að gegna þessu nýja embætti.
* * *
Snemma í sumar hvarf maður, An-
drew Taylor að nafni, sem var að
leita að málmum í óbygðunum í
norðanverðu Manitoba-fylki. Vissi
enginn hvað _um hann var orðið og
var hans mikið leitað og þegar hann
fanst ekki töldu flestir vist að hann
hefði farist og þýðingarlaust v.hri
að leita ha»s lengur. En vinur hans
og félagi Fred Coleman hélt áfram
leitinni og loks fann hann Taylor,
fjörutíu og sex dögum eftir að hann
hvarf. Var hann þá mjög aðfram-
(kominn og nær dauða en lífi og
hafði hann liðið hörmungar miklar
þar í óbygðum, sem hann hafði
verið að villast um allan þennan
tíma og amaði þar margt að, eins
og nærri má geta, en þó sérstaklega
matarskortur, því hann hafði litinn
mat með sér þegar hann viltist og
engin áhöld ti! að afla sér matar, og
leið hann því hungur mikið. Þessi
maður hefir nú" verið fluttur á
sjúkrahús í Wfinnipeg og gera lækn-
ar sér vonir um að hann verði jafn-
góður áður en langt líður.
Bretland.
Aukakosning-ar fóru fram í North
Aberdeen á Skotlandi á fimtudag-
inn í vikunni sem leið. Fóru þær
þannig, að þingmannsefni verka-
manna, Wedgewood Penn, vann
mikinn sigur, og fékk nálega sex
þúsund atkvæði fram yfir þann,
sem næstur komst, en það var
þingmannsefni conservatíva. Líka
voru líberal og kommúnisti í kjöri,
en fengu hvor um sig heldur fá
atkvæði. Þannig stóð á þessari
kosningu, að þingmaður kjördæm-
isinsí Frank Rose að nafni, dó fyr-
ir skömmu. Hann var einn af ráð-
herrunum, meðan verkamanna-
stjórnin sat að völdum.
Frá Islandi.
Siglufirði_23. júlí.
Ágæt veðrátta undanfarna daga.
Síldarafli góður. Alls er búið að
setja á land í bræðslu um 30,000
mál síldar. Síldin veiðist mest á
Skagafirði og Húnaflóa.
Mótorb. Rap úr Vestmannaeyj-
um strandaði á Skallarifi. Mann-
björg. Skipið er fult af sjó og
litlar líkur til þess að hægt verði
að ná því út. — Mb. Mars frá
Vestm.eyjum strandaði á, Siglu-
nesrifi. Es. Óðinn kom þar til
hjálpar og náði skipinu lítið
skemdu.
Borgarnesi, 23. júlí.
Túnsláttur mun allvíða langt
kominn. Heyþurkun gengur all-
vel. — Vegurinn á Norðurárdal er
kominn hér um bil að Sanddalsá
milli Hvamms og Sveinatungu. —
Viðgerð fram á veginum á Holta-
vörðuheiði. Bifreiðar fara nú
iðulega til Blönduóss. — Bráð-
lega verður hægt að fara úr Borg-
arnesi til Stykkisihólms í, bifreið-
um. Er nú verið að ryðja veginn
frá Hjarðarfelli í Miklaholtshr.
og vestur yfir fjallið, svo hægt
verði að komast yfir það. Ak-
brautin er komin vestur undir
HjarðarfelJ.—Morgbl.
og símtöl (viðtals-
Rt. Hon. Ramsay MacDonald.
fyrrum stjórnarformaður Bretlands hins mikla.
Hvaðanœfa.
Ráðgert er, að þýzka Zeppelin
loftskipið, LZ-127, fari tvær ferð-
ir til Bandaríkjanna í haust, hina
fyrri snemma í september. Um
fjörutíu manns verða í fyrri ferð.
inni, að skipverjum meðtöldum
S6m V€rða Þnatíu. Ein af farþeg!
unum væntanlegu er Lady Drum
mond Hay frá London.
Or bœnum.
Söngflokkur Fyrstu lút. kirkju
hefir æfingu í kirkjunni kl. 8 á
föstudagskveldið kemur, þann
24. þ.m.
Mr. og Mrs. Páll Halldórsson
frá EJfros, Sask., foreldrar Dr. J.
Bálssonar þar í bænum, fóru heim
til sín síðastliðinn þriðjudag, eft-
ir að hafa ferðast um Nýja ísland
og dvalið nokkurn tíma hér í borg-
inni.
Hingað komu til borgarinnar síð-
astliðið sunnudagskveld, góðir
gestir, þau hjónin hr. Ivar Wen-
nerström og frú hans, Lóa Guð-
mundsdóttir frá Nesi á Seltjarn-
arnesi. Er hr. Wennerström nafn-
frægur, sænskur blaðamaður og
hefir lengi átt sæti á þjóðþingi
Svía. Mr. Wennerström kyntumst
vér í fyrra, er þann var á ferð um
Canada, en frúna könnumst vér
vel við frá fornu fari. Heimili
þeirra hjóna er í Stockholm.
Mrs. Ingibjörg Olafsson, River-
ton, var skorin upp á Almenna
sjúkraihúsinu hér í borginni á
þriðjudaginn í vikunni sem leið,
af Dr. B. J. Brandson. Uppskurð-
urinn hepnaðist vel, og er Mrs.
Olafsson nú á góðum batavegi.
Tvær villur hafa slæðst í grein
Miss Thorstínu Jackson, er í síð-
asta blaði birtist. Er þar sagt, að
káetufargjöld aðra leið kosti eitt
hundrað sextíu og fimm dali, en
átti að vera hundrað fimtíu og
fimm. Enn fremur hefir orðalag
vikist svo við, að talað er um
Nprth Ameritían Co^ifdrence, í
staðinn fyrir North Atlantic.
Mrs. G. F. Gíslason, er nýkomin
heim til borgarinnar, eftir tveggja
mánaða dvöl vestur í Saskatche-
wan. Með henni komu einnig
tvær dætur þeirra hjóna.
Mr. og Mrs. W. H. Paulson frá
Leslie, Sask., sem dvalið hafa í
borginni undanfarandi, lögðu af
stað heimleiðis síðastliðinn mið-
vikudagsmorgun.
Miss Verda Viola Treble, frá
Crystal City og Mr. Wilhelm Krist-
jánsson frá Otto P.O., Man., voru
gefin saman í hjónaband á laugar-
daginn 18. ág. af Prof. Argue frá
Wesley College. Víxlan fór fram
á heimili foreldra brúðijrinnar í
Crystal City að viðstöddum mörg-
um ættingjum og vinum brúðhjón-
anna. Þar á meðal var hópur af
háskólasystkinum þeirra úr ýms-
um pörtum fylkisins. Ungu hjón-
in fóru brúðkaupsferð til Minaki,
Ont. Framtíðarheimili þeirra
verður í Lynwood Court, Winni-
peg; hefir Mr. Kristjánsson ver-
ið ráðinn kennari við St. James
Collegiate.
Síðastliðinn sunnudag andaðist
hér í borginni, að heimili dóttur
sinnar og tengdasonar, Mr. og Mrs.
P. N. Johnson, 716 Victor stræti,
merkiskonan Margrét Stephensen,
kona Jónasar Stephensen, fyrrum
póstmeistara á Seyðisfirði í Norð-
ur-Múlasýslu. Var hún sjötíu og
sjö ára að aldri. Jarðarförin fór
fram á þriðjudaginn. Flutti séra
Bjðrn !B. Jónsson, D.D., húskveðju
á heimilinu, en séra Rögnváldur
Pétursson, D.D., Jíkræðu í Sam-
bandskirkjunni og jós hina fram-
liðnu moldu. Margrét heitin lætur
eftir sig háaldraðan eiginmann,
ásamt þremur 'börnum, önnu og
Sigurði hér í borginni og Elínu í
Reykjavik á íslandi. — Hinnar
framliðnu verður nánar minst
síðar.
Mr. Hermann Johnson, sonur
Mr. og Mrs. Arni Johnson, Agnes
Street hér í borginni, vann Isbist-
er verðlaun, $50.00 í peningum, og
ókeypis eins árs kenslu við Mani-
toba háskólann. Sömu verðlaun
hlaut einnig Miss Helga Arnason,
frá Oak Point, dóttir séra Guð-
mundar Árnasonar og frúar hans.
Stödd eru hér í borginni um
þessar mundir, í kynnisför til
frænda og vina, Mr. og Mrs. J. J.
Sveinbjörnson frá Elfros, Sask
Er Mr. Sveinbjörnson fastur
starfsmaður hveitisamlagsins í
Saskatchewan og hefir tröllatrú á
því fyrirtæki. Uppskeruhorfur
vestra kvað hann vera með allra
bezta móti, og væri fólk þar yfir-
leitt bjartsýnt á framtíðina.
Mr. og Mrs. W. G. .Hillman, frá
Bantry. N. Dak., komu til borgar-
innar á mánudagskveldið. Er
Mrs. Hillman að Jeita sérlækninga
hjá Dr. Brandson. Mr. Hillman
segir, að hveitisláttur standi nu
yfir í sinni bygð (Mouse River)
og að uppskeruhorfur séu góðar.
Nú er loks verið að byggja hið
marg-umtalaða Cenotaph á Mem
orial Boulevard, skamt fyrir sunn
an Hudsons Bay búðina í Winni-
peg. Á minnismerkið að verða
komið upp um næstu mánaðamót,
og er vonandi að það verði þann-
ig úr garði gert, að alir megi vel
við una, og gleymist þá væntan-
lega öll sú rekistefna og óánægja,
sem út af því hefir orðið.
Mr. Árni G. Eggertsson lögmað-
ur frá Wynyard, og frú hans, komp
til borgarinnar á laugardaginn
Sagði Ihann uppskernuhorfur !
Vatnabygðinni ágætar, mjög litl-
ar eða engar skemdir af hagli þar
um slóðir. Hveitisláttur rétt að
byrja.
Sunnudaginn 26. ágúst prédikar
séra N. S. Thorlaksson að Moun-
ton kl. 11 og í Péturskirkju kl.
e. h. Sama sunnudag ihefir séra
H. Sigmar guðsþjónustu í Gardar-
kirkju kl. 11 f.h., að Brown, Man.
kl. 3 e. h., og kveldinu, kl. 8, nska
ferming og altarisgöngu í Vída-
línskirkju.
Gefin saman í hjónaband 13. þ
m., John Viktor Anderson og
Esther Teresia Holmpuist. Voru
þau gefin saman af Dr. B. B. Jóns
syni, að 774 Victor St.
Séra S. S. Ohristopherson kom
til borgarinnar á þriðjudaginn frá
Poplar Park, Man. Flutti hann
þar guðsþjónustu á sunnudaginn
og voru þar saman komnir nálega
allir íslendingar, sem heima eiga
í grend við Poplar Park, en þeir
eru um 50 alls. Séra S. S. Christ-
ophersson fór þéðan til Árborg,
þar sem hann á heima, en um mán-
aðamótin . fer hann norður að
Manitobavatni og verður þar fram
í miðjan október fyrir það fyrsta.
Guðpiundur Otto ÍBergman og
Georgina Mildred Thompson voru
gefin saman í hjónaband 18. þ.m
Fór sú athöfn fram í Fyrstu lút.
kirkju. Dr. Björn B. Jónsson
framdi hjónavígsluna. Um kvöld
ið var ánægjulegt samsæti ætt-
ingja og vina brúðhjónanna að
heimili foreldra brúðurinnar, Mr
og Mrs. Hannes Thompson, 664
Beverley St.
í hjónaband gengu 18. þ.m
Charles Bedford Howden og Au
gustina Guðrún Thordarson. Þau
voru gefin saman af dr. Birni B
Jónssyni, og fór athöfnin fram að
heimili brúðurinnar, 866 Winni
peg Ave. Er hún dóttir þeirra
hjóna Guðmundar P. Tihordarson
ar og Jöhönnu konu hans. Brúð-
guminn er kanadiskur efnismaður,
Mr. og Mrs. W. J. Jóhannson og
dóttir þeira, komu heim á sunnu-
daginn úr nálega þriggja vikna
skemtiferð til Detroit Lakes, Min-jþér stöðugt um ófarna braut’
neapolis og f.leiri staða þar syðra. J s. frv.
í síðasta tölublaði, þar sem
prentað er kvæði til hr. Egils H
Fáfnis, eftir hr. Guðjón H. Hjalta
lín, hefir næstsíðasta hending
síðustu vísu misprentast. Svona
átti hendingin að vera: “Aukist
"" og
voru 246,282,
bil) 465,090.
Nýlátnir eru tveir merkisbænd-
ur þingeyskir, Jóhannes Þorkels-
son hreppstjóri á Syðra-Fjalli og
Snorri Jónsson hrepstjóri á Þverá.
Morðtilran sannaðist fyrir fáum
dögum hér í bænum. Maður nokk-
ur ætlaði að fyrirfara J)arni sínu
tæplega ársgömlu, með því að gefa
því inn eitur. Sem betur fór mis-
tókst að fá barnið til að renna
eitrinu niður og varð því ekki
meint af. Ódæðismaðurinn er
naumast talinn með réttu ráði.
Vatnsafl á íslandi nemur, — eft-
ir því sem skýrt er frá í nýút-
komnu hefti Verkfræðinga tíma-
ritsins, — um 4 milj. hestöflum
alls. Þar af eru 234 milj. hestöfl
í stórum vatnsföllum og vel fallin
til stóriðju. Um 1 hestafla er í
litlum vatnsföllum, smám og lækj-
um, sem auðvelt er að virkja til
heimilisnotkunar. — Elzta afl-
stöðin, þar sem vatnsafl er notað
hér á landi, var reist af Jóhann-
esi Reykdal í Hafnarfirði árið
1902. Var sú stöð notuð til að
lýsa kaupstaðinn til 1926. Nú eru
rafstöðvar, með vatnsorku, í 9
kauptúnum og rúml. 50 sveita-
baajum, og vatnsaflið, sem þær
nota, um 3,600 hestöfl. Mikið er
eftir.
Reykjavík, 24. júlí.
Geysir á Reykjanesi hætti að
gjósa á laugardaginn. Hafði hann
gosið áður reglulega, en nú hætti
hann alveg. Þorkell Þorkelsson
veðurfræðingur var þar suður frá
til að skoða hverinn. Lét hann
sápu í hann, en þá brá svo við, að
hann hætti að gjósa. Ólafur
Sveinsson vitavörður á Reykja-
nesi segir nú, að eftir þv, sem
hann hafi tekið eftir, hafi hver-
irnir þarna suður frá hætt að
gjósa jafnan á undan jarðskjálft-
um, og býst hann við að gos og
jarðumbrot muni vera í nánd. í
sumar hafa engir jarðskjálftar
komið á Reykjanesi þangað til í
fyrradag. Þá komu tveir kippir,
snöggir nokkuð. — Mbl.
í gær fór bifreið í fyrsta skifti
alla leið frá Reykjavík og heim I
hlað á Reykjanesi. Var það “Ess-
ex” bifreið og var Ingólfur Ein-
arsson bifreiðarstjórinn. Voru
oeir fjórir saman í bifreiðinni og
fóru svo létt yfir, að þeir þurftu
aldrei að ganga af henni. En
bifreiðarstjórum, sem kynnu að
fara þangað suður í sumar, er
ráðlagt að hafa keðjur á hjólun-
um, því víða eru sandar þar sem
hjólin geta snúist án þess að
vinna áfram.
Að Grjóteyri í Kjós fór Árni
læknir Pétursson 4 bifreið síðastl.
sunnudag, og er það í fyrsta skift-
ið, sem bifreið hefir þangað kom-
ið. Vegalengdin er um 55 rastir
frá ReykjaVík. Jón bóndi Magn-
ússon tók einkar vel á móti Árna
og hans fríða förneyti.—Mbl.
Akureyri, 17. júlí.
í gærkvöldi höfðu eftirtöld skip
Jagt upp í Krossanesi síldarafla
sinn, sem hér segir, reiknað í mál-
um: — Sjöstjarnan 1391, Rán
1450, Helgi magri 1351, Kristján
1084, Björninn 890, Hjalteyrin
957, Noreg 857, Helga 811, Sandv.
572, Bláhvalur 530, Pjetursey 513,
Grótta 529, Hvítingur 458, Papey
366, Flóra 420, Reginn 314, Percy
321, Ólafur Bjarnason 307, Lív
233, Rifsnes 514, Faxi 368, Val-
ur 204, Gestur 199, Bris 124, Von-
in 135, Stella 113, Hrönn 116, og
Kolbeinn ugi 101.—
Grasspretta batnaði síðustu vik-
una. Sláttur alment byrjaður. —
Brakandi þuritur í dag.—Mbl.
Holt undir Eyjafj. 13. júlí.
Vætutíð. Grasi fer allvel fram,
en ekki gott útlit um grassprettu
enn, nema á beztu túnum. Ein-
stöku maður farinn að bera niður.
í matjurtagörðum stendur vel. —
Bifreiðaferðir á milli Seljalands
og Víkur halda áfram og ganga
vel, þótt allmikið vatn sé í ánum,
á miðjar síður. Eru ferðamönn-
um mikil þægindi að ferðum þess-
um. — Heimilisiðnaðarsýningu á
að halda i ungmennafélagshúsinu
í Vestur-iEyjafjallahreppi á sunnu
daginn. Verða sýndir þar alls-
konar heimagerðir munir. Nokkr-
ar konur í sveitinni gagast fyrir
sýningunni.—Mbl.
Reykjavík, 21. júlí.
Skýrsla um störf Landsímans
Eg kom heim að bæ eitt kvöldið,
í þessari áminstu ferð. Bóndinn
var úti í gripa-kví að mjólka. Við
biðum, þangað til hann hafði lok-
ið verki. Hann sagðist vera bund-
inn Joforði við skólann, og gæti
ekki gjört meira að sinni; en hann
tálaði af lofsverðum áhuga og
einkar næmum skilningi un^ skól-
ann. Honum gramdist það, hvað
skólinn var lítið þektur. Hann
vildi, að eitthvað væri gjört til að
kynna hann unga fólkinu. Hon-
um fanst að straumur mentafólks-
ins ætti að vera þangað. Þegar
eg benti honum á, ihve unga fólk-
inu, sem hefði reynt hann, þætti
í flestum tilfellum vænt um hann,
varð honum að orði: “Já, hann er
að vinna.”
í þessa átt er nokkuð af fólki
að hugsa.
Atriðin, sem eg segi frá, verða
ekki í neihni rökfastri röð. Þau,
sem eg segi fyrst frá, eru ekki að
sjálfsögðu hin mikilvægustu,
heldur þau, sem ýmissa orsaka
vegna mega ekki bíða.
' Búnaðarsamband Austurlands
hélt aðalfund sinn á Egilsstöðum í mánaðar.
22. og 23. júní Þar var minst 25 ! endur séu
ára afmælis sambandsins. Eru nú
í því 30 búnaðarfélög, og starfa
flest með áhuga og dugnaði. —
Pálmi Hannesson flutti erindi um
laxaklak og var sprenging laxa-
stiga í Lagarfoss og laxaklak í
fljótinu mikið rætt. Var stjórninnl
falið að rannsaka hað mál enn ít-
arlegar og leggja það fyrir næsta
fund, og var þá búist við að byrja
mætti að klekja að vori eða sumri
1929. Páll Zóphoníasson hélt fyr-
irlestur um naugripi og var ákveð-
ið að reyna að koma sem víðast
upp nautgriparæktunarfélögum,
og ákvað fundurinn að styrkja
þau til nautakaupa. Úr stjórninni
gekk Hallgrímur Þórarinsson og
var endurkosinn. Benedikt Blön-
dal var kosinn fulltrúi á Búnað-
arþing til næstu 4 ára.-Slæmt út-
Jit með grassprettu á Austur- og
Norðurlandi. Sífeldir kuldar og
þurkar. óhreysti víða í sauðfé á
Austurlandi síðari hluta vetrar
og í vor.—Tíminn.
Byrjunartími.
Skólinn hefur, ef g. 1., sextánda
starfsár sitt 19. dag september-
Æskilegt er, að nem-
þá komnir. Þeir, sem
verða háskólanemendur, um leið
og þeir eru lærisveinar í skóla vor-
um, gæti þess, að einmitt sá dag-
ur er seinasti dagur til skrásetn-
ingar þar, án þess að borga $2.00
sekt, og að enginn fær inngöngu í
fyrsta belck háskólans (univers-
ity) eftir fyrsta október. Á ýms-
an Ihátt er það til góðs, oð skóll
vor byrjar 19. en ekki 1. septem-
ber. Tíu mánaða skóli er alt of
þreytandi fyrir unglingana. í
öðru lagi, fá nemendur úti i
sveitum, með þessu móti, lengri
tíma til starfa þar. Reynsla vor
sýnir, að styttri tíminn er engu
síður hagkvæmur fyrir námið,
heldur en sá lengri.
Sérstök hlunnindi.
1 hvaða skóla
á eg að senda barnið mitt?
Menn út um landið eru að
biðja og vona, að haustið, sem nú
fer að ganga í garð, verði gott,
svo að uppskeran náist óskemd.
Þrjú síðastliðin haust hafa verið
erfið. Mönnum finst nóg komið
af iþeim. Við skulum vona, að
þetta verði gott.
Haustið leiðir hugann að fleira,
en uppskerunni einni. Margir eiga
unglinga, sem þeir vilja koma í
skóla. í mörgum tilfellum eru
foreldrarnir nú þegar búnir að á-
kveða, hvert börnin þeirra fari í
þessum tilgangi. Vanálegast eru
þeir skólarnir valdir, sem næstir
eru heimilunum. Er það oft hið
eina mögulega, og er í alla staði
eðlileg ráðstöfun. Síðar kemur
samt að því, að annað hvort hætta
börnin skólagöngu, eða að þau
verða að leita burtu. Hvert skal
þá senda?
ÖIlu slíku fólki vil eg segja frá
Jóns Bjarnasonar skóla, og helzt
vildi eg, að allir læsu það, sem eg
hefi að segja um skólann.
Eg veit, að sumir koma með þá
mótbáru, að slíkt sé með öllu ó-
þarft, því allir viti alt um skól-
ann. Því fer samt f jarri. Það mun
sanni nær, að fjöldi manna viti
heldur lítið um Ihann. Sem dæmi
upp á það, má segja frá því, að í
ferð minni um Vatnabygðir, nú
nýskeð, sagðist einn gáfaðasti
maðurinn, sem eg hitti þar, hafa
góða heimild fyrir því, að íslenzka
væri ekki skyldunámsgrein i skól-
anum. Þess vegna bið eg engrar
afsökunar á því, þó eg segi frá
ýmsu, sem menn ættu að vita.
Annað sannfærðist eg um, í
1. Skólaráðiðl hefir samþykt, að
veita öllum nemendum 9. bekkjar,
sem til vor korria úr Winnipeg-
borg eða annars staðar að, svo
framarlega að rúm leyfi, fría
kenslu þetta næsta skólaár.
2. Tækifæri gefst, enn fremur,
einum nemanda, í hverjum þrem-
ur hinna bekkjanna, að fá fría
kenslu i skólanum næsta vetur.
Það verður veitt þeim nemanda í
10. bekk, sem, meðal umsækjend-
anna, hefir hlotið hæsta stig í
prófi 9. bekkjar á þessu sumri,
og er hér átt við próf mentamála-
deildarinnar. Sömu reglu verður
fylgt í hinum bekkjunum. Þeir,
sem vilja sinna þessu, verða að
senda umsóknir sínar, ásamt próf-
skýrteini, tafarlaust til skóla-
stjóra. Þetta tilboð stendur til
15. september.
3. Verðlauna-bikar, sem nefn-
ist Arinbjarnarbikar, á skólinn.
Á hann hafa verið grafin nöfn
allra þeirra, frá byrjun skólans,
sem hlotið hafa hæsta einkunn í
hverjum bekk ár hvert. Allmikið
kapp hefir átt sér stað milli nem-
enda, að fá nafn sitt á bikarinn.
Þetta stendur eins lengi, og rúm
er á bikarnum.,
Frá mörgu öðru, sem menn mun
fýsa að heyra viðvíkjandi skólan-
um, ætla eg að segja í næsta
blaði.
iSendið umsóknir til skólastjóra,
á skrifstofu hans, 652 Home St.,
Winnipeg, Man.
Rúnólfur Marteinsson.
árið 1927, er nýkomin út. Á ár- *>essari ferð: fólk vin fá fræðslu
inu voru lagðar 10 landsímalínur,
344Jý km. á lengd. s Lengst þeirra
er Barðastrandarlínan—frá Króks
fjarðarnesi til Patreksfjarðar —
rúml. 140 km. Sumstaðar voru
staurar fyrir en að eins lögð ný
leiðsla. — Tekjur símans voru kr.
kr. 1,506,022.25, en gjöldin kr.
um þessa mentastofnun. Bezta
sönnun þess eru sumir mennirnir,
sem eg hitti úti á ökrum og engj-
um. Þeir hættu við vinnu sína,
sumir hverjir, til að spyrja mig
um ýmislegt í sambandi við skól-
ann.
Áðeins liðug vika
Fjöldi af tilgátumiðum, í sam-
bandi við samkepnina um lista-
verk Mr. Wálters, er ókominn í
atkvæðakassann, í Royal bankan-
um. Hætta er á því, að heill skari
af miðum komi í ótíma. Einhver
hreppir dásamlegt $1200 listaverk,
en sá maður verður í hópi þeirra,
sem senda miðana sina í tíma.
Enginn þarf að láta sér detta í
hug, að nokkur frestur verði gef-
inn. Við alt það, sem auglýst
hefir verið, verður staðið nákvæm-
lega. Engir miðar komast að eft-
ir 1. september.
Notið tækifærið, meðan það
gefst.
Rúnólfur Marteinsson.