Lögberg - 23.08.1928, Side 6

Lögberg - 23.08.1928, Side 6
BU. *. lAGtítiRG, FIMTUDAGINN 23. ÁGÚST 1928. RAUÐKOLLUR EFTIR GENE STRA TTO.N-PORTER. “Nei, hér er enginn af mínúm vinum,” sagði Wessner. “Það veit enginn, að eg fór hingað, nema Svarti Jack. Eg er hér einsamall. Ef þú vilt reyna að vera dálítið skynsamur, þá getur liann talað við þig seinna, þó þess þurfi nú reyndar ekki. Við getum sjálfir lagt á öll rábin. Þetta er da>analaust auðvelt og þægi- legt.1 9 “Það hlýtur að vera það, ef þú hefir hugsað það upp og átt að framkvæmá það?” En Rauð- koll þótti mjög vænt um að heyra, að Wessner var einsamall. Wessi>er fór varlega og, sagði: “Já, auð- vitað er það ofur auðvelt. Hugsaðu bara um það, að þú verður að þræla á hverjum einasta degi og færð ekki nema skitna þrjátíu dali á mánuði fyrir það„ en hér er tækifæri til að ná í fimm hundruð dali á einum degi. Það getur ekki verið, að þú sért það flón að sleppa því.’ “En hvernig á eg að ná í þessa peninga?” spurði Rauðkollur. “Heldurðu að eg finni þá á brautinni þar sem eg geng?” “Það er liér um bil sama sem' það,” sagði Þjóðverjinn. “Þú átt bara að finna þessa pen- inga. Þú þarft ekkert að gera og þú þarft ekk- ert að vita. Alt, sem þú þarft að gera, er að ganga. fram hjá girðingunni að vestan verðu við skóginn, þangað til hún beygist til austurs, þá að snúa við oig fara sömu leið til baka, og láta mig vita hvaða morgun þú ætlar að gera það og þú færð peningana viðstöðulaust. Það er naumast hægt að hugsa sér nokkuð hægra en/ þetta, eða finst þér það?” “Það kemur alt undir því, hver í hlut á,” svaraði RauðkoHur, og rómurinn var eins þýð- ur, eins og rómur lævirkjans, sem sat á grein þar rétt hjá honum. “Sumum væri þetta mesti hægðarleikur, en aðrir gerðu það ekki, þótt þeir ættu lífið að leysa. Bg geng ekki blindandi út í neitt svona lagað, og mér skilst að þetta sé að bregðast því trausti, sem til mín er borið; en eg hefi revnt að vera eins trúr, eins og eg hefi haft vit á. Þú verður að gera mér ljósara, hvað þú átt við, svo eg geti skilið þig.” “Þetta er svo dæmalaust auðvelt,” endur- tók Wessner. “Það er minna varið í það vegna þess að það er svo auðvelt. Það eru fáein tré hérna í skóginum, sem hvert um sig er reglu- leg gullnáma, þrjú'sérstaklega. Tvö eru nokk- uð inni í skóginum, en ei-tt er rétt við girðing- una, og þessi skozki asni negldi vírinn í það, og vissi ekkert hvað hann var að gera, því hann þekti ekki tréð, eða tók ekki eftir því. Ef þú nú heldur þig þarna megin við skóginn, bara einn dag, þá getum við felt trén og dregið þan burtu næstu nótt. Þú sérð þetta svo næsta morgun og segir frá hvernig komið sé, og svo gengur þú allra manna bezt fram í því, að leita að okkur. Við höfum ráð til að kloma þessu svo fyrir, að það verði aldrei uppvíst. Svo hefir McLean veðjað við tvo af piltunum, að það verði aldrei tré tekin úr skóginum meðan þú gætir hans. Það eru nóg vitni til að sverja, að þetta er rétt og eg veit af þremur að minsta kosti. Veðféð er þúsund dalir, og hvert tréð er að minsta kosti þéss virði. Svo þú sérð, að þetta er regluleg gullnáma, og þú færð sjálfur fimm hundmð dali fyrir ekkert. Þetta er ekki nokkur miista hætta fyrir þig, því McLean trúir þér alyeg eins og nýju neti og honum gæti áldrei komið til hugar, að vantreysta þér í ifokkru. En hvernig lízt þér á þetta?” “Er þetta alt, isem þú hefir að segja?” sagði Rauðkollur. “Nei, það er það ekki,” svaraði Wessner. “Ef dálítill kjarkur og mannræna er í þér, þá getur þú fengið fimm sinnum fimm hundruð á einni viku. Félagi minn veit af mörgum fleiri trjám, sem eru mikils virði og sem við getum felt og komist burtu með, og alt sem þú þarft að gera, er að halda þig annars staðar, en við erum. Svo þegar þú ert búinn að fá peningana, þá getur þú bara farið burtu einhverja nóttina og bvrjað svo nýtt líf einhvers staðar og lifað eins og herramaður. Heldurðu ekki, að það væri nokkuð gott?” “Það væru býsna myndarlegar aðfarir,” sagði Rauðkollur, “að stela frá húsbóndanum, einmitt því, sem mér er trúað fyrir að passa, og sem eg hefi fengið kaup fyrir í allan vetur. En þú ætlar að borga mér dæmalaust vel. Fimm hundruð fyrir annað eins smáræði eins og þetta! Þér ferst ákaflega höfðinglega við mig. Þetta er miklu meira, en eg á skilið. Seytján cents Mferi meir en nóg borgun fyrir þetta smá- ræði. Eg verð samt að hugsa mig ofurlítið um þetta. Bíddu hérna fáeinar mínútur, meðan eg vík mér frá. Svo skal eg koma, og fylgja þér ofurlítið á leið og láta þig vita hvað eg geri.” Rauðkollur fór þangað, sem skápurinn var og lét inn í hann það sem hann hafði meðferðis og þar ó meðal beltið sitt og skammbyssuna, og lokaði lionum svo og stakk lyklinum í vasa sinn, og fór svo aftur þangað sem Wessner sat og beið hans. “Nú er eg tilbúinn að svara,” sagði Rauð kollur. “Stattu upp!” Rö^din var kuldaleg og skipandi, eins og það væri hershöfðingi, sem var að tala. “Viltu fara úr nokkru, sem þú ert í?” * . “Nei, því ætti eg að gera það, Rauðkollur minn!” svaraði We.ssner. “Þú ættir að kalla mig Mr. McLean, en ekki Rauðkoll, þvi það er bara gælunafn, sem vinir mínir nota. Nú getur þú staðið undir sólar- ljósinu, ef þú vilt, eða annars búist til varnar eins og bezt þú kant.” ‘ ‘ Hvað á þetta eiginlega að þýða, hvað geng- ur að þér?” spurði Wessner. “Það, sem eg ætla að gera, ” sagði Rauðkoll- ur, “er að berja þig eins og fisk, svo þú fáir makleg málagjöl dfyrir þá óhæfu, sem þú vilt hafa í frammi og vilt láta mig taka þátt í.” Þá um m'orgunirm hafði Wessner gengið úr vistinni, og hann hafði hagað sér svo grunsam- lega, að Duncan hvíslaði að McLean: “Munið þér eftir drengnum?” McLean fór að hugsa um þetta, og áður en langt leið lagði hann á Nellie sína og reið á eft- ir Wessner, en þegar hann kom þangað, sem bann átti heima, frétti hann að Wessner hefði farið þaðan og lialdið í áttina til Limberlost skóganna. McLean beið þá ekki boðanna, en reið alt hvað af tók í sömu óttina. Þegar hann kom til Mrs. Mrs. Dunean, sagði hún honum, að hún hefði séð mann á ferðinni, sem líktist Wess- ner. Þar skildi hann eftir byssuna sína og gekk það sem eftir var. Þegar hann kom svo nærri, að hann heyrði mannamál, faldi hann sig og hlustaði eftir hvað þeir voru að segja, og hann heyrði Wessner segja með hárri röddu: ‘ ‘ Eg vil ekki iberjast við þig, Rauðkollur. Eg hefi eklkert gert þér. Svo er eg miklu stærri og sterkari en þú, og þú ert þar að auki ein- hentur.” MeLean fór úr treyjunni og setti sig í stell- ingar eins og tígrisdýr, sem ætlar að stökkva á bráð sína, en var ]>ó kyr til að hlusta á hvað Rauðkollur hefði að segja óg sjá hvað hann gerði. “Vertu ekki að hugsa um það, hvað margar hendur eg hefi,” sagði Rauðkollur. “Minn góði málstaður gerir meira en vega upp á móti því, að þú hefir tvær liendur, en eg bara eina, og mér er rétt sama hvað stór þú ert, því þú ert hvort sem er ekki nema ragmenni og þjófur. Eg svaf hjá þér, Wessner, fyrstu nóttina, sem eg var hér, og var eg þá allslaus og illa til reika. Þá tók McLean mig að sér, gaf mér hrein föt og gott fæði og kom mér fyrir á ágætu heimili, og honum á eg það að þakka, að nú á eg tölu- verða peninga á bankanum, sem eg hefi sjálfur unnið fvrir meði ærlegu móti. Hann treystir mér fullkomlega eins og góðum og heiðarlegum Ira, og þú vogar þér að koma hér og reyna að íá mig til að bregðast því trausti og ætlast til að • eg loki augunum og sjái ekki þig og þína líka, þegar þið komið hingað til að stela því, sem mér er trúað fyrir að passa. Og svo ætlast þú til, að eg geri úr sjálfum mér auðvirðilegan lvg- ara og hylji með þér glæpaverk þín. Þú ert við- ‘bjóðslegur óþokld, og nú er bezt fyrir þig að verja sjálfan þig áður en eg tapa valdi á sjálf- um mér og klýf hausinn á þér með kydfunni minni.” Wessner færði sig dálítið aftur á bak og sagði ólundarelga. “Eg kæri mig ekki um að meiða þig, Rauð- kollur. “Þú skalt eikki vera að hugsa um mig,” hrópaði Rauðkollur og var nú orðinn æfa-reið- ur, “því mig langar ekki til neins meira, en að berja á þér. ” Rauðkollur stökk nú á Wessner, svo það var ekki um, annað að gera fyrir hann, en að verja sig. Hann var miklu sterkari, en hann var seinn í snúningum og hitti ekki nærri því alt af. Rauð- kolur var þar á móti miklu liðugri og vorðist betur höggunum, og hann gat greitt þrjú af þeim á móti Wessners einu. Nú kom það sér vel fyrir Rauðkoll, að hann hafði verið undir beru lofti alla daga,'svo að segja árlangt og hafði mikla líkamsæfingu, og var hann því orðinn harður eins og grenivúðarkvistur, en þó mjúkur og liðugur í öllum hreyfingum. Fyrstu fimm mínúturnar veitti honum erfitt mjög, því hér kendi aflsmunar. Wessner þar á móti mæddist fljótt og þar sem hann áflogum óvanur, nrðu flest af hans þungu höggum bara vindhögg. En eftir1 því sem Wessner meiddtst meira, því harðara .sótti Rauðkollur á og barði hann nú í andlitið hvað eftir annað, og það * leið ekki á löngu, þar til Wessner féll, og gleymdi Rauð- kollur nú prúðmenskunni og stökk á hann og barði hann alt hvað hann orkaði með höndum • og fótum. McLean sá ekki vel, hvernig þetta gekk, en hann óskaði þess innilega, að nú léti Rauðkollur kné fylgja kviði og drægi ekki af sér. Eftir litla stund liætti Rauðkollur að berja ó Wesssner, en skoraði nú fastlega á hann að standa upp og, verja sig. “Þú þarft ekki að vera hræddur um, að þú meiðir mig. Eg skal gefa þér alt tækifæri til að verja þig sem bezt þú getur.” Wessner brölti á fætur og var nú ekki sjón að sjá hann. Fötin voru rifin utan af honum og blóðið lagaði úr andliti hans. “Eg býst við, að eg hefi fengið nóg af svo góðu,” sagði hann dræmt og ólundarlega. ‘Er ekki meiri dugur í þér en þetta?” sagði Rauðkollur. “Þú kemur hingað og lýgur upp á húsbóndann og vilt fá mig í lið með þér til að stela frá honum. Því é'kki að standa upp og taka við maklegri refsingu. Þú mátt eins vel reyna að verja þig, því refsinguna færðu alt að einu.” Og um leið og Rauðkollur sagði þetta, gaf hann Wessner rokna högg, svo hann féll í annað sinn og nú stóð hann ekki upp og hreyfði sig ekki, hvernig svo sem Rauðkollur ávarpaði hann og skoraði á hann að verja sig, en ómögu- lega gat hann sitlt sig um að berja á honum enn, þangað til hann varð svo móður, að hann varð að hætta. Só hann nú, að Wessner var alger- lega vfirunninn og rann honum þá reiðin að mestu, og beygði hann sig niður að honum og reyndi að reisa litinn á fætur, og ofbauð honum þá alvegi hve hörmulega hann leit út. Hann grét af reiði og sársauka og andlitið var alblóð- ugt og það var eins og allur máttur væri úr honum dreginn. Rauðkollur tók nú vasaklút sinn og þurkaði framan úr Wessner og lijálpaði honum til að komast á fætur. “Það er nú kominn tími til fyrir vesalinga eins og þig að fara heim,” sagði Rauðkollur. “Eg hefi ékki tíma til að leika meira við þig í þetta sinn. Þú getur kom- ið aftur á morgun, ef þig langar til að fá meira, en það er ekki til neins að reyna að fá mig til að verða þjófur, eins ogþú ert og þínir líkar.” Wessner fór að reyna að staulast burtu og Rauðkollur fylgdi honum eftir og sendi honum tóninn, því þögnin var honum óþægileg, eins og hverjum öðrum góðum Ira, svo hann lét dæluna ganga og kallaði Wessner Hollending í hverju orði og lét það ótvíræðlega í ljós, að þeir ná- ungar hefðu lítið við það að gera, að fara í hendumar á Iranum. “Því ertu að elta mig?” sagði Wessner. “Hvað ætlarðu eiginlega að gera við mig?” “Eg hélt það ætti við,” svaraði Rauðkollur, “að fylgja slíkri stríðshötju, eins og þú ert, ofurlítið á leið, en aðal ástæðan til þess, að eg tek á mig þetta ómak, er sú, að það getur vel verið, að húsbóndinn komi hér ríðandi á henni Nellie sinni, og ef hryssan sér þig hér einsaml- an, eins og þú ert nú útlits, þá er ekkert lík- legra, en að hún mundi rammfælast og það gæti ■kannske hlotist slys af því. Svo vil eg helzt ekki, að annar eins höfðingi og McLean er, þyrfti að sjá annan eins viðbjóð eins og þú ert.” Wessner lét út úr sér óskaplegt blótsyrði, en Rauðkollur hló og sagði: , “Þetta eru þakkirnar, sem eg fæ fyrir að vanrækja vinnu mína til að taka sem bezt á móti þér og fylgja þér á leið, þegar þú ferð. Það mætti þó naumast minna vera, en að þú þakkaðir fyrir þig kurteislega, því eg hefi haft mikið fyrir því, að gera þér komuna skemtilega og eftirminnilega. En ]>að er víst ekki við öðru að búast af þér og þínum líkum.” Þetta var það seinaista af viðskiftum þeirra í þetta sinn. Rauðkollur stóð þarna eins og hermaður, meðan Wessner var að hverfa úr augsýn. Svo sneri liann aftur, og þá tók hann fyrst eftir því, að hann sveið ákaflega í and- litið og verkjaði í allan líkamann og taugarnar voru svo óstyrkar, að hann skalf eins og hrísla. Hann fór þangað, sem skápurinn hans var, og tók ])uúku út úr honum, vætti hana í köldu vatni og þvoði sér um andlitið, sem var alt blóðstork- ið. Honnm leið afar illa, og honum fanst hann vera að yfirbugast af kvölunum, og fótleggirn- ir skulfu ákaflega. Hann kendi verkjar í hægri handleggnum, svo hann fletti upp skyrtuetm- inni og sá hann þá að hann var 'blóðstorkinji mjög, og* hann sá greinilega að Wessner hafði bitið hann til blóðs, því tannaförin sáust ljóst á handleggnum. Þegar Rauðkollur sá þetta, fyrirgaf hann sjálfum sér þó hann hefði spark- að með fætinum í Wessner efir að hann féll. ‘Rauðkollur! Rauðkollur!” kallaði McLean. Drengurinn bretti' niður erminni og reis á fætur. ‘ ‘ Fyrirgefið, herra minn. Þér sjáið vafalaust að eg hélt að eg væri hér einsamall. ’ ’ McLean lagði hann niður á bekkinn mjög varlega og tók dálitla öskju úr vasa sínum, sem hánn hafði þar ávalt, alveg eins og úrið sitt og skammbyssuna, en í henni geymdi liann dálítið af umbúðum og meðulum, því það var mjög al- gengt að menn hans fengju á sig smá skrámur við vinninu. Hann bretti upp erminni á hægri handleggn- um, sem höndina vantaði á, og batt um sárin, sem á 'honum voru. Syo skoðaði hann piltinn í krók og kring og sannfærðist um, að hann væri ekki liættulega meiddur, ef rétt væri að farið, þó hann væri mjög illa útleikinn. Þegar hann sat þama hjá piltinum, veitti ha.nn enga eftirtekt fegurðinni alt í kring um þá, en horfði að eins á þetta bólgna og blóðstorkna andlit, og hann dáðist, með sjálfum sér, meira að Rauð- koll, heldur en nokkru sinni fyr, því hann hafði sjálfur heyrt hve kænlega honum hafði farist að fá alt upp úr Wessner, sem hann vildi vita, og hann hafði heyrt hann færa rök fyrir máli sínu, rétt eins og hann væri dómari, og hann hafði séð hann berjast eins og hetju og harní hafði heyrt hann hrósa sigri. Mesta sviðann dró úr sárunum smátt og smátt, en meðan Rauðkollur hvíldist þarna, gaf hann húsbónda sínum nánar gætur, og hann var að hugsa um, hvað lengi hann kynni nú að hafa verið þarna, og hvort hann mundi hafa séð sig og heyrt það sem fram fór, en hann þorði ekki að spyrja um það. Loksins stóð hann á fætur, opnaði s'kápinri og tók út úr honum skamm- byssuna og áhöldin til að gera við vírgirðing- una. Svo lokaði hann skápshurðinni, sneri sér að McLean og sagði: ‘Eru nokkrar fyrirskipanir, sem þér hafið að gefa mér?” “Já,” sagði McLean, “og eg ætlast til að ]>ú fylgir þeim nókvæmlega. Fáðu mér þetta, sem þú befir meðferðis, og farðu svo beint heim. Taktu eins heitt 'bað eins og þú þolir og farðu svo strax í rúmið.” “Mér þykir mjög mikið fyrir að þurfa að segja yður, að eg er enn ekki byrjaður á því, sem eg átti að gera seinni part dagsins. Eg var rétt að fara á stað, og eg hafði nógan tíma, þeg- ar maður kom hér og við lentum saman í dálitl- um þrætum, og kom ebki saman. Annað hvort er nú það ósamkomulag búið, eða }>að er rétt að byrja; en eg er svo seinn, að'eg hefi ekki einu sinni byrjað seinni gönguna Um skóginn í dag. En nú verð eg að flýta mér, því það er víst tré hér einhvers staðar, sem eg þarf endilega að finna í dag. “Þú ert nógu áræðinn, flónið þitt, og mesta hörkutól,” sagði McLean. “Þú getur ekki gengið allan þennan veg, þótt þú ættir lífið ð leysa. Eg efast um, að þú komist einu sinni til Duncans. Veiztu ekki sjálfur, þegar þú ert all- ur úr lagi genginn? Þú ferð bara í rúmið. Eg skal ljúka við þetta verk í dag.” “Nei, það skal aldrei verða,” sagði Rauð- kollur mjög einbeittur. “Mér leið hálf illa áð- an, en nú er eg að koma til aftur. Stígvelin yð- ÞEIR SEM ÞURFA LUMBER KAUHl HANN AF The Empire Sash& Door Co. Limited Offlce: 6th Floor Bank of Hamilton Chambers Yard: HENRY AVE. EAST. *■ - WINNIPEG, MAN. VERÐ og GŒDI ALVEG FYRIRTAK Þeir Islendingar, er í hyggju hafa aö flytja búferlum til Canada, hvort heldur er heiman af íslandi eða frá Bandaríkjun- um, sendi skriflegar fyrirspurnir til ritstjóra Lögbergs. tJiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiNiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimiiiiimiiiimiiiu | Samlagssölu aðferðin. | E Sama reglan gildir um rjóma, sem aðrar búnaðar- = E afurðir, að því meira sem vörumagnið er, þess tiltölulega = = laegri verður starfraekslukostnaðurinn. En vörugaeðin 2 = hljóta að ganga fyrir öllu. Þrjú meginatriði þurfa að | = vera til staðar, ef vara vor á að fá það saeti, sem henni = E ber á brezkum markaði, sem sé vörumagn, reglubundnar E = vörusendingar og vörugæði. E Með því að styðja yðar eigin SAMLAGSSTOFNUN eru = E fyrgreind þrjú meginatriði trygð. Manitoba Co-operative Dairies Ltd. = 846 Sierbrooke St. - ; Winaipeg,MaBÍtoba s ÍFiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimimmmmmmiimmimiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiirc Hefir eldsábyrgðin gengið úr gildi? Eldábyrgð kostar aðeins lítið, en hún er trygging gegn miklu tjðni. Látið oss annast eldsábyrgð yðar. Peningar til láns gegn fasteignaveði í borginni eða útjaðra borgum með lœgstu fáanlegum rentum. HOME SECURITIES LIMITED 468 MAIN STREET Phone: 23 377 :: WINNIPEG. LEO. JOHNSON, Secretary. HEITU DAGARNIR eru dagar til að eyða í lystigörðunum Úti í Winriipeg lystigörðum eru margir forsælu- staðir, sem bjóða yður hvíld og hressingu. Notið þessa friðsælu hvíldarstaði. Þeir eru nálægir, jafnnærri og næstu strætisvagnspor. Sporvagninn tekur yður þangað fljótt, ódýrt og hættulaust. Notið Sporvagnana! WINNIPEG ELECTRIC Company “Your Guarantee of Good Service*' ar eru ekki nærri uógu liá, og svo er líka heitt og þetta eru fullar sjö mílur. Nei, það kemur ekki til nokkurra mála.” En þegar haim ætlaði að lilaupa á stað, þá steinleið yfir hann og hann datt endilangur á mosann. McLean stumraði yfir honum um stund, og þegar Rauðkollur raknaði við aftur, hljóp McLean alt hvað liann gat til Duncans og bað Mrs. Dunean að hita vatn í snatri og liafa }>að til, þegar hann kæmi aftur með drenginn, svo þau gætu baðað hann. Konan lét ekki segja sér }>að tvisvar, en fylti stóran ketil og setti hann á eldavélina og kynti undir honum sem mest hún gat. Svo fór liún út, og færði stokk- inn, sem hestunum var vatnað í, upp að húsinu og helti í liann vatninu jafnóðum og það hitn- aði. Og hún hafði baðið tilbúið, þegar McLean kom aftur með Raúðkoll á Nellie sinni; en svo var drengurinn máttfarinn, að hann gat ekki setið á hestbaki hjálparlaust, svo McLean varð *að styðja hann og teyma undir honum. Þau hjálpuðust að því að baða Rauðkoll úr eins heitu vatni eins og hann þoldi, og svo úr kalda vatninu á eftir, lögðu hann síðan á gólfið og nudduðu hann þangað til hann bað um vægð. Þá lögðu þau hann í rúmið og hann lokaði aug- unum og sýndist sofna, en opnaði þau rétt strax aftur og sagði: “Munið þér eftir trénu!” McLean beygði sig ofan að honum og sagði: ‘Hvaða tré, Rauðkollur?” ‘ ‘fEg veit }>að ekki með vissu, en það er ein- hveers staðar að austan verðn og vírinn er negldur í það. Hann var að hælast yfir því, að þér hefðuð gert það sjálfur. Þér þekkið það á því, að börkurinn er sprunginn af því að neðan verðu. Og það voru fimm hundruð dalir, sem hann bauð mér, ef eg vildi selja þetta tré — ‘Sem þér eigið.” Aftur lokaði Rauðkollur augunum og sofn- aði. McLean sat og horfði á hann. Ljósrautt hórið breiddist vfir koddann. Vinstri hand- leggurinn var allur bólginn og marinn og liægri handleggurinn, sem höndina vantaði á, mikið særður. MoLean var að hugsa um kveldið, þeg- ar þessi ókunni drengur hafði komið til hans fyrir nærri ári síðan og hann liafði ráðið hann sem skógarvörð.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.