Lögberg - 13.09.1928, Blaðsíða 4

Lögberg - 13.09.1928, Blaðsíða 4
Bls. 4 LöGBERG, FIMTUDAGINN 13. SEPTEMRER 1928. erg Gefið út hvem Fimtudag af Tfce Col- umbia Press Ltd., Cor. Sargent Ave. & Toronto Str., Winnipeg, Man. Tftlnimiin >-632? o* N-6328 Einar P. Jónsson, Editor Otanáakrift til biaðsins: T»|E tOlUMBIA PRE8S, Ltd., Box 3171, Wlnnlpeg, Maq. Utanáskrift ritstjórans: EDlTOR LOCBERC, Box 3171 Winnipeg, IRan. Verð $3.00 um árið. Borgist fyrirfram • •O.-.-.tgl---»-?■■■■"- '■ 'tL" Tha ■‘Löaber*” ta prlntad and publlahed b» The Oolumblfa. Preaa, LámlteJ. ln the Coiumbta Buildlnc, **B Sargent Ave Wlnnlpeg, Manitoba. Spánversk menning. Sú skoðun virðist enn ærið alment ríkja í hugum enskumælandi manna, að á sextándu og seytjándu öld, hafi spánversk menning verið komi’.n í eina þá ömurlegustu niðurlægingu, er hugsast gat, að þjóðin hefði um þær mundir verið siðspilt, eigingjörn og grimmúðg Ekk- ert getur þó verið fjarri sanni, en það. A þeim öldum, isem nú hafa nefndar verið, var Spánn voldugt menningarríki, með auðugar nýlendur víða um heim. Hvað samfélagsmálin áhrærði, stóð þjóðin flestum þjóðum framar, og átti inn- an vébanda sinna margar fullkomnari mannúð- arstofnanir, en þektust í öðrum löndum. Má í því sambandi benda á geðveikrahæli, stofnan- ir fvrir hlinda og málhalta, ásamt mörgum öðr- um þjóðnvtjastofnunum. Menningu þjóðarinn- ar í þessum efnum, er all grandgæfilega lyst af Dr. Jame.s \\ alsh, í agústheftinu af tímaritinu Catholic World. Kemst Dr. Walsh að þeirri niðurstöðu, að frá 1550 til 1650, hafi menning hinnar spönsku þjóðar staðið í mestum blóma, og tímabil það verið sannnefnd gullöld. — “Heimsmenningin hafði um þær mundir, náð þar hámarki sínu,” segir Dr. Walsh. “J listum skaraði þjóðin fram úr öllum öðrum þjóðum, og hið sama mun að miklu leyti mega segja um vísindin. Biblían var þar meðal annars gefin út á s^x tungumálum, auk ótölulegs f jölda ann- ara bóka. Meðal heimsfrægra manna, er þá voru uppi með þjóðinni, má nefna Velasques, Murillo, Cervantes, Calderon og marga fleiri. Bókmentanámur þjóðarinnar voru þvínær ó- tæmandi, listmálning var komin á afaThátt stig, en þq mun þroskinn hafa verið hvað mestur á sviði samfélags og mannúö&rmálanna. J þessu sambandi, farast Dr. Walsh þannig orð: Hvað mannúðarmálin áhrærir, er full ástæða td, að þess sé að makleikum getið, að um þær mundir er franski geðveikralæknirinn Pinel tok að berjast fvrir umbótum í meðferð geð- veíks folks, voru geðveikrahæli fyrir löngu stofnuð víítevegar á Spáni, þar sem meðferð sjukhnga, var hreinasta fyrirmynd.” vxt fram á nítjándu öld, að því er Dr. Widsh segist frá, var meðferð geðveiks fólks, æði a Englandi og i Bandaríkjunum, regluleg þjoðarmmkunn. A sama tímabili, segir Dr Walsh, að sjukrahús spánversku þjóðarinnar, hafL venð i morgum tilfellum, engu ófullkomn- an, en nu a ser ^nða stað í hinum ýmsu menn- mgarlondum, og meðferð sjúklinganna hafi verið i alla staði nákvæm og mannúðleg. Fræðslustarfsemi á meðal heyrnar- og mál- leysmgja, komst á þessu tímabili á margfall hærra stig með Spanverjum, en nokkurri ann P 1 ar ^að kaþólskur prestur, Pedro once de Leon, er frumkvæði átti að þessu kvænuiT’ °g beitti sér f^rir ■ ha att, um margra ára skeið. Varð athvH- T "’T ^* að ^ns vakti athygh ut um allan heim. Bar hann í brjósti fromuTlnæ ónnfaTaríf> Skildi nestum vnr x’ 1' i oendanlega ogofugmannlegt það M6mní>.eSS'; Srbai,di’ er er6rW imTJTHít 8á Himh fölkí ‘ ¥adnd kenslubók handa m x ui ®ok Þessi var emskonar táknmái með upphleyptu letri, í svipaðri líkingu o- nú a ser stað á blindrahælum. Gerðist hannbZ brautryðjandi i sögu mannúðarmálanna ^ nvifr' W?Sh heldur Því fram» að hrátt fyrir nú hafT T u á SVÍðÍ mannfólagsmálanna, 'som O? hvori Æ'L " VeílS frem,Ir ftaJdssSm, wriS ofSt hv»VfSa rétfram- Há" kafí Ummælum sínum lýkur Dr WnPt, - r leið • “Vr aiÆ, t'x V,; * VValsh a þessa mu- ni6a, Stjórnmál EgyptaJands. Uau markverðu tíðindi gerðust á Egypta- andi, þann 19. julí síðastliðinn, að þjóðþingið var, samkvæmt konunglegri tilskjpan, íeyst upp til þriggja ára, og getur eigi orðið til funda kvatt, fyr en að þeim tíma liðnum, ef það þá ekki verður lagt niður með öllu. Svo er tiltæki þetta einstakt í sinni söð, að eigi er unt að spá í eyðurnar um það, hve víð- tæk að áhrifin kunna að verða. Ef alræðisvald það, sem um þessar mundir heldur egypzku þjóðinni í heljargreipum, endist út fyrgreint tímabil, verður þjóðin að því loknu, látin skera úr því sjálf, hvort hún treystir sér til sjálf- stjómar samkvæmt lýðstjórnarfyTÍrkomulag- inu eða eigi. Alræðismaður hinnar egypzku þjóðar, Mo- hamed Mahmoud Pasha, lætur svo í veðri vaka, sem hann hlyntur mjög þingræði og þing- bundnu stjórnarfyrirkomulagi. Þó mun eigi laust við, að ýmsir efist um einlægni hans í þeim efnum, og það jafnvel sumir þeir, er um hríð fylgdu honum fastast að málum. Hug- arstefna mannsins virðist gegnsýrð af ímynd- uðum yfirburðum alræðisvaldsins, og auðnist honum ekki í lok þriggja ára tímabilsins, að sannfæra þjóðina um ágæti sitt sem stjórnmála- manns, mun mega ganga út frá því sem gefnu, að lmn fái skjótlega einhverjum öðrum stjórnar- taumana í hendur, sem líklegri eru til að sam- ræmast betur vilja hennar. Afskiftaley-si Egypta af stjórnmálum þjóð- ar sinnar, hefir nndanfarandi verið regluleg þjóðarplága. Það var um langt skeið engu lík- ara, en að þjóðin léti sér öldungis á sama standa um það, hverjir með völdin færu, hvort pheldur það væru lítilsigld nýlenduhugsunar smámenni, eða frjálshugsandi þjóðræðisfor- ingjar. Vera má, að þetta ískyggilega afskifta- leysi, hafi að nokkru leyti átt rót sína að rekja til hafta þeirra, er lögð voru á ritfrelsi og blaðaútgáfu, þótt orsakirnar séu vafalaust langtum fleir;i: En hvað sem er um það, þá er það engan veginn ólíklegft, að íhlutunarleysi þjóðarinnar í meðferð opinberra mála, geti varað fyrst um sinn, nema því að eins, að ein- hver óvænt vakning nái styrku haldi á sál hennar. ^ Með svipuðum hætti og hugsjónir Mazzini . heilluðu ítölsku þjóðina, ásamt hetjumóði Garj- bíildis, má segja að hugrekki Arabis og málsnild ^aghluls, hafi tófrað hugi egypzku þjóðarinn- ar. Hve langlíf að áhrif þessara merku manna kunna að verða í lífi Egypta, er vitanlega ó- hugsandi að spa nokkru um, þótt vel megi vera, að þau verði því auðsærri, sem ár og aldir líða. Síðasthðin tíu ár i lífi egypzku þjóðarinnar, eru ekki ósvipuð því, er átti sér stað meðal Norðurálfuþjóðanna, er sú skoðun var efst á baugi, að lýðstjórnarfyrirkomulagið myndi svo að segja lækna öll mannkynsins mein. All-stór hluti Egypta tníi því í einlægni, að viðtekin grundvallarlög séu allra meina bót og hafi í för með sér látlausan þjóðarþroska. A hinn bóginn verður því eigi á móti mælt, að lýðstjórnarfyr- irkomulagið hefir, fram að þessu, eigi virzt koma að tilætluðum notum meðal fólks þess, er Nílárdalinn hyggir. _ Akveðnu lýðræðis fyrirkomulagi, fylgir því miður ekki ávalt þroskaður lýðræð.is-hugsunar- þáttnr. _Að öllu athuguðu, virðist ekki geta hjá því farið, að stjórnartíð Mohameds Mahmoud Pasha, hljoti að hafa viðtækar afleiðingar á stjórnarfar hinnar egypzku þjóðar. Revnist stjórn hans illa, mun það vafalaust til þess leiða, að þjóðin krefjist á ný þingbundinnar lýð- ræðisstjomar. Takist a hinn boginn sæmilega til stjórnarfarslega starfsemj hans, er engu uní um það að spa, hve víðtækar afleiðingar að slíkt muni hafa. Gæti þess þá auðveldlega orðið lengra að bíða en jnargan grnnar, að þjoðþmg Egypta yrði kvatt til funda af nýju. Að því er stjórnmál austrænu þjóðanna á- hrærir, má svo að orði kveða, að þar ’hafi verið, og sé enn, allra veðra von. Hefir Norðurálfu- þ,loðunum, sem og vafalaust Ameríkumönnum lika, reynst það jafnan torráðin gáta, hvað verða myndi ofan á þar eystra í þann og þann svipmn á stjómmálasviðinu, og er Egyptaland þar engin undantekning. Er slíkt í raun og vera sízt að undra, þar sem um jafn blandaða pjoo er að ræða, sem háð er sýknt og heilagt austrænu og vestrænu reiptogi. . ^f baráttu síðustu tíu ára, mætti ætla að hm egypzka þjóð, væri nokkum veginn einhuga um kröfur sínar til fullrar sjálfstjómar, en svo er Þó ekki. Flokkarnir em margir og með mis- munandi stefnuskrár. Sá flokkurinn, sem lang- f jölmennastur er og þýðingarmestur fyrir efna- lega afkomu þjóðarinnar, er alþvðu- eða verka- lyðs-flokkurmn. En þar er sá gaíli á gjöf Njarð- ar, að hann er hvergi nærri eins upplýstur og æskilegt væri, og lætur sig stjórnmála ástand- ið, varða litlu. Þá má nefna flokk hinna lærðu manna, eða stúdentaflokkinn, eins o» hann stundnm er kallaður. Flestir þeir, er þann flokk fylla, leggja alt hugsanlegt kapp á það, ■hð komast í stjórnaremhætti, sem þó hvergi nærri hrökkva til að fullnægja eftirspurninni. Margm hinna Iærðu manna, vinna því ekki nema halft dagsverk, því fæstum þeirra hefir þótt við það komandi, að leita fyrir sér á sviði iðn- aðarljfsins. Samt er þó, eins og nú sé, hin síð- ustu arm, farin að opnast augu hinna vngri mentamanna fyrir þeirri staðreynd, að víðar se lífvænt en í stjórnarembættum, og að það sé siður en svo lítillækkandi, að gefa sig við iðn- aðar og framleiðslumálum. Eitt af því, sem Mohamed Mahmoud Pasha meðal annars kveðst hafa á stefnuskrá sinni, er það, að glæða áhuga ungra mentamanna fvrir íðnmálum þjóðarinnar. Yæri vel farið ef eitt- hvað gæti úr því orðið, því sá flokkurinn virðist hafa venð, fram að þessu, langt um betur fall- mn til málskrafs, en iðju og athafnalífs. Hver sem þau örlög kunna að verða, er egypzku þjóðarinnar bíða, þá er hitt víst, að þangað mæna mörg augu til þess að sjá, hvað við tekur, að liðnu því þriggja ára tímabili, sem getið hefir verið um hér að framan. — —Inntak greinar þessarar, er að nokkm leyti úr blaðinu Ohristian Science Monitor. Vínbannið og Finnlendingar. Eins og almenningi er kunnugt, öðluðust Finnlendingar sjálfstæði sitt, að aflokinni heimsstyrjöldinni miklu. Hefir hagur þjóðar- innar tekið því nær ótrúlegum stakkaskiftum, frá því er hún öðlaðist fullveldis viðurkenning- una. Finnlendingar urðu til þess fyrstir allra Norðurálfuþjóðanna, að veita konum pólitiskt jafnrétti við karlmenn. Þeir gengu á undan þeim öðrum þjóðum, er í styrjöldinni tóku þátt, að því er það merti, að koma fjárhag þjóðar- innar í það horf, að tekjur og útgjöld að minsta kosti stæðust á. Iðnaðarmálum sínum komu þeir vafalaust í betra horf, á skemmri tíma, en nokkur önur þjóð, að loknum ófriði, og nú eru þeir að gera tilraunir með algert vínbann, þótt nokkuð hafi að vísu skrykkjótt gengið, sem svo víða arinars staðar. Noregur og Rússland höfðu komið á lög- skipuðu vínbanni meðan á styrjöldinni stóð, þót nú hafi þar að lútandi lagafyrirmæli verið úr gildi numin. Finnland, sem fram yfir ófrið- inn, var í reyndinni ekki nema hluti af Rúss- landi, öðlaðist vínhannið ásamt öðrum pörtum hins rússneska veldis, árið 1914. Eftir að fiska þjóðin varð fullvalda, ákvað hún þegar í stað, að láta vínbaimslöggjöfina haldast í gildi. Virtust forystumenn þjóðarinnar nokkurn veg- inn einhuga um það, að algert vínhann myndi reynast heillavænleg lyftistöng, bæði frá efna- legu og siðferðislegu sjónarmiði.. Það er eins með Finnlendinga. og Banda- ríkjamenn, að þeir hafa í mörg horn að líta, hvað eftirliti með vínbannslögunum viðvíkur. Skoðanirnar em þó nokkuð skiftar um málið sjálft, og lega landsins slík, að tiltölulega auð- velt er að koma við smyglun. Eins og nú standa sakir, er vínsmyglunin orðin það víðtæk, að alvarleg hætta stafar af, verði eigi því fyr teknar alvarlegri ráðstafanir, en við hefir gengist undanfarandi. Er mælt, að það sé einkum fiskimannastéttin, er geri sig stórseka um smyglunar ófagnaðinn. Kvenþjóðin finska, má heita undantekning- arlaust fylgjandi vínbanninu, og hún má sín að sjálfsögðu mikils, er til atkvæðagreiðslu kemur, um hvaða mál sem er. En karlmenn á hinn hóginn virðast helzti mikið hneigðir til vín- nautnar, og greiða allmikið fé fyrir innflutt á- fengi frá Póllandi og Czechoslóvakiu. En þótt því sé nú þannig farið, eins og áður var vikið að, að örðugt sé fyrir Finnlendinga að vernda bannlög sín, staðhátta vegna, þá getur það þó engan veginn skoðast ógerningur. Nágranna- þjóðirnar þrjár, Esthoníumenn, Latvíar og Sví- ar, eru vinveittar vínbanni Finnlendinga, og tjást fúsar til að veita finsku stjóminni allan þann siðfej’ðislegan stuðning, er þær eigi vfir að ráða í baráttunni gegn smyglunar ófagnað- inum. Auðnist hinni finsku þjóð, að afla sér samvinnu Póllendinga, Czechoslóvaka og Þjóð- verja, ætti málinu að vera fyllilega borgið og framtíð bannlaganna trygð. Að því er stjómmál Finnlendinga áhrærir, skiftist þjóðin í sex flokka. Af þeim hafa fjór- ir algert vínbann á stefnuskrá sinni, einn er á krossgötum, en svensk-sinnaði flokkurinn hall- ast að takmarkaðri vínsölu undir stjóraareftir- liti. Árið 1925, Cori^ 18,598 menn teknir fastir í Helsingfors fyrir ölæði, en næsta árið á undan yínbanninu 4,446. Telja andbanningar þetta oræka sönnun þess, hve bannlögin hafi reynst illa. Aftur á móti halda bannmenn því fram, og mun það sönnu nær, að fjölgun þeirra manna, er settir hafa verið í varðhald fyrir ölæði, stafi frá því, hve lögreglu-eftirlitið sé nú margfalt strangara en áður var, og að nú líðist ekki leng- ur drykkjurahb á götum úti. Þykjast þeir þess fullvísir, að innan þriggja til fjögra ára, muni bannlögunum hafa vaxið svo fiskur um hrygg, að smyglun verði svo að segja úr sögunni, og drvkkjuslark með öllu útilokað. , Kosningarnar í Maine. Síðastliðinn þriðjudag, fóra fram kosningar í Maine ríkinu í Bandaríkjunum, er eftir þeim fregnum að dæma, sem nú eru við hendina, gengu Republicana flokknnm mjög í vil. Eins og afstaða frambjóðenda var, er síðast fréttist, hafði Senator Frederick Hale 22,727 atkvæði til móts við Herbert Holmes, frambjóðanda Demókrata ,er að eins hafði 6,512.’ Til ríkis- stjóra bauð sig fram af hálfu Republicana, William T. Gardiner, og var atkvæðamagn lians 23,455, um leið og keppinautur hans, er fram sótti undir merkjum Demókrata, hafði að eins 6,826 atkvæði. Er búist við, að um það er taln- ingu atkvæða lýkur, muni það koma skýrt og á- kveðið í ljós, að frambjóðendum Repuhlicana, að þessu sinni, hafi verið greidd miklu fleiri atkvæði, en í síðustu kosningum, og var þó at- kvæðamagn flokksins þá einnig afarmikið. Því hefir verið haldið fram, í háa herrans tíð, -sennilega hæ.ði í gamni og alvöru, að kosn- inga-úrslit í Meine bæri að skoða sem fyrir- boða þess, hvernig forsetakosningar gengju. Slík staðhæfing ber á sér helzti mikinn- þjóð- sagnablæ, því í raun réttri skiftir það minstu máli á hvora sveifína þetta litla ríki hallast, þegar til fullnaðarurlita keæur, því kjðrmanna- talan þaðan er hverfandi. Það getur því engan veginn skoðast sígild mælisnúra á úrslit for- setakosninga, hvemig kosningum skipast til í Maine. í heiftarmóð. að Kunningi minn, Hjálmar A. Berg- man, sendir út frá sér grein um heimfararmálið í síðasta Lög- bergi, sem er svo þrungin af ó- sanngirni og aðdróttunum í garð okkar heimfararnefndarmanna, að furðu sætir að hann, jafn skýr og þroskaður maður, skuli ekki fyrirverða sig fyrir að bera ann- að eins á borð fyrir menn. Ritgjörð iþessi er auðsjáanlega samin með eitt fyrir augum, og það er, að eyðileggja tiltrú fólks til manna þeirra, sem heimfarar- nafnd Þjóðræknisfélagsins skipa, og finst mér, að greinin beri með sér, að til þess eigi ekkert spara. Eg býst við, að gera megi það atriði að einum þættinum í þessu minningarmáli íslenzku þjóðar- innar vor á meðal. Það atriði verður aldrei málinu til vegsauka né heldur þeim mönnum eða manni, sem fyrir því berjast eða berst, en engin von er til þess, við, sem heimfararnefnd Þjóð- ræknisfélagsins skipum. getum látið slíkar tilraunir átölulaust fram hjá okkur fara. Textinn fyrir þessari ádeilu grein Mr Bergmanns í síðasta Lög bergi, er uppkast að farsamn ingi, sem eimskipafélag, er skrif- stofu sína hefir hér í Winnipeg, bað nefndina um, til iþess að hægt væri að ganga út frá iþví við samn inga, sem kynnu að verða gerðir á milli þess og nefndarinnar og sem nefndin afhenti fél. þessu og þremur öðrum eimskipafélags um boðsmönnum í borginni. Auð vitað datt nefndinni ekki í hug, að eitt af þeim fjórum útgáfum af þessu bráðabirgðar uppkasti mundi vekja annað eins öldurót sálu nokkurs manns, eins og raun er nú á orðin. En svo gjörir það minst til, þó uppkastið komi fyr ir almennings sjónir nú. Það hefði hvort sem er gjört það síðar frá okkar hendi. Aðal atriðið er það, að tilgangur nefndarinnar með Iþví sé ekki svertur svo, að hvítt verði svart, og sannleikur- inn að lýgi. En áður en eg sný mér að útleggingu Hjálmars A Bergmanns á textanum, er ekki úr vegi að minnast á nokkur atriði, sem> á undan eru gengin, því þau bregða máske ljósi yfir það, sem nefndin hefir verið að leitast við að gjöra, og eins líka á þá auknu erfiðieika, sem nefndin hefir orð- ið að stríða við fyrir tiltæki Mr. Bergmanns og þeirra félaga hans, sem sjáifboðar nefnast. Það var seint á vetri 1926, að okkur þremur, Árna Eggertsyni, Jakob Kristjánssyni og mér, var falið af stjórnarnefnd Þjóðrækn- isfélagsins, að athuga þetta heim- fararmál, þar eð forseta Þjóð- ræknisfélagsins hafði borist bréf frá formanni hátíðarnefndar ís- lands, þar sem að hann var beð- inn að hafa framkvæmdir í mál- inu. Við rituðum öllum aðal eim- skipafélögunum í sambandi við þetta mál, á öndverðu sumri 1926, sögðum þeim frá hátíðahaldinu 1930 og væntanlegri heimför Vest- ur-íslendinga, spurðum þau hvort þau vildu sinna þessu máli og með hvaða kjörum. Sumarið leið, svo að ekkert svar kom, en á á- liðnu sumri kom til bæjarins Capt. J. P. Hoist, aðal yfirmaður Sameinaða gufuskipafélagsins, frá Kaupmannahöfn. Áttum við Jak- °b Kristjánsson tal við hann, en Árni Eggertsson var ekki viðstaddur. Kvabsí hann fús til að flytja hópinn heim 1930, far- gjáldið væri $196.00 fram og aft- ur á sjónum og að viðurgjörning- ur skyldi verða hinn bezti. Okk- ur þótti fargjaldið of hátt, en hann kvaðst engu um það ráða, því Norður - Atlantshafs ráðið réði öllu þar um, en hann kvaðst skyldi fara þess á leit við ráðið, að það ákvæði, að hinn svo nefndi Kaup- mannahafnar taxti, skýldi viðtek- inn fyrir þessa sérstöku ferð, að sá farseðill yrði $24.00 lægri á þriðja farrými en sá íslenzki, og fólum við honum framkvæmdir í því máli. 18. febrúar 1927 barst nefndar- mönnum bréf frá Scandinavian- American Line, þar sem tekið er fram, að beiðni hennar úm Kaup- mannahafnar fargjaldstaxtann sé veitt — |það er, að fargjaldið verð $172.00 í stað $196.00, eins og það var og er í öllum öðrum tilifellum, en þessu eina. í þessu bréfi er einnig tekið fram, að Scandinavian American félagið bjóði, að hin venjulegu umboðslaun, sem viðtekin eru sam- kvæmt reglum Eimskipasambands Norð. Ameríku, séu látin ganga til nefndarinnar í stað umboðslauna járbrautarfélagannþ. og línufé- lagsins. En þau voru þá 5% á farbréfum á fyrsta farrými, og $10 fyrir hvert farbréf á öðru og þriðja farrými, og auk þess 25. hvert farbréf í ofanálag. Bréf þetta sýnir og sannar, tvent. Fyrst: að Iþað félag bauð þessa umboðsÞóknun, án þess að á hana væri minst eða um hana beðið. í öðru lagi: að beiðni nefndarinnar um niðursett far. var fengið — $24.00 afsláttur á hverju farbréfi fenginn. En nefndin var ekki ekki ánægð með þessa niðurfærslu á far- gjöldunum. Svo hún fór fram á það vjð eimskipafélögin, að þau færu þess á leit við Norður-At- lantshafs ráðið, að það ákvæði hinn svo nefnda British Ports taxta fyrir þessa ferð. Þau tóku því vel og beiðni var send til aðal- skrifstofu ráðsins í Brussels, um að veita brezka fargjaldstaxtann fyrir þessa sérstöku ferð, en hann er aftur $22.00 lægri en sá, sem fenginn var. 11. ágúst 1928 barst nefndinni svohljóðandi bréf frá umboðsmanni Svenska-Ameriska eimskipafélaginu: “Mr. J. J. Bildfell, Paris Building, Winnipeg, Man. Viðvíkjandi heimför íslendinga 1930, þá höfum vér nú heimild til ao bjóða eftirfylgjandi verð á far- bréfum yfir hafið. Fyrir hring- ferð: fyrsta farrými, $270, á þriðja farrými $150. • Nenfdinni fanst, að hún hefði allmiklu áorkað, þegar þetta til- boð var fengið. En viti menn! Sum af stórfélögunum höfðu ekki verið við, eða athugað samþykt- ina, þegar hún var gjörð, og eitt af þeim kannast sjálfboðáliðið að líkindum við; risu þau upp á móti samþyktinni og mótmæltu henni svo kröftuglega, að eimskipafé- lagið, sem boðið gerði, varð að neyðast til að afturkalla það, eða að öðrum kosti að verða fyrir barðinu á stórfélögunum, sem ekki gátu unt íslendin£um ívilnunar æirrar, sem búið var að veita jeim og öll félögin, sem nefndin tlaði við, viðurkendu að væri sanngjörn. Engum vafa er það bundið, að afturköllunin á þessari niður- færslu á fargjöldum, var aðallega wí að kenna, að búið var að af- henda einu félaginu skilmálaaust flutningsrétt á ákveðnum fjölda af Vestur-íslendingum, og sá það félag sér skiljanlega enga ástæðu til, eða hag í, að flytja landann fyrir $22 minna og )þar yfir, en að jiað þurfti, því í því máli var því sjálfdæmi sett af sjálfboðanefnd- inni. öðru máli er hér að skifta með sjálfboðanefndina, sem hefði átt að líta eftir hag landans, frekar en félagsins, og sem er því beint völd að því, að hver einasti mað- ur, sem heim fer 1930, verður að borga $22.00 og þar yfir meira fyrir farbréf sitt, en hann hefði þurft, ef nefndin Ihefði ekki með opin augu og af ásettu ráði skor- ist í málið, til þess að leitast við að koma þjóðræknisnefndinni fyr- ir kattarnef, svo hún gæti ekki haft neinn veg af málinu, þó með því yrði málið sjálft fótumtroðið og eyðilagt. Eg hefi nú lítillega minst á nokkur atriði þessa máls, sem fólki var nauðsynlegt að vita um, áður en eg tek lexíuna 'sjálfa, bráðabirgðar uppkastið og um- mæli Mr. Bergmanns um það, til íhugunar. Eg hygg, að óþarft sé hér að ræða liði uppkastsins hvern út af fyrir sig. Sjötti liðurinn hefir gengið í augu Mr. Bergmanns ððr- um fremur, enda er hann efnis- ríkastur. En Mr. Bergman hefir auðsjáanlega ekki fundist hann nógu ríkur samt, því þegar að hann skilur við hann, er hann bú- inn að gjöra hann $82,200 virði, og gefur svo ótvíræðilega í skyn, að heimfararnefnd Þjóðræknisfélags- ins ætli að stinga þeirri fúlgu í sína eigin vasa. Ekki vantar nú góðgirnina. Mér þykir vænt um að sjá, hve mikla trú kunningi minn, Mr. Bergman, hefir á því, að Vestur- íslendingar muni fjöimenna á há- tíðina. Honum telst svo til, að 3,000 manns muni fara með eða á vegum heimfararnefndarinnar, og á þeirri tölu byggir hann fúlgu þá, sem hann gefur í skyn að við, heimfararnefndarmenn, ætlum að draga undir okkur. Það mundi Hjálmar Bergman aldrei gera, nema hann væri sannfærður um

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.