Lögberg - 01.11.1928, Page 1

Lögberg - 01.11.1928, Page 1
iib 41. ARGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 1. NÓVEMBER 1928 NÚMER 43 Canada. Það sýnist vera öllum ljóst, að nauðsyn beri til að byggja nýjan háskóla fyrir Manitobafylki, því þær byggingar, sem nú eru notað- ar séu alt of ófullkomnar og geti með engu móti dugað mikið leng- ur. Hefir mikið verið um það talað, hvar hinn nýi háskóli ætti að vera, þegar hann yrði bygður og hafa komið fram ýmsar tillög- ur því viðvíkjandi, helzt þær, að byggja hann utanborgar, en þó vit- anlega í grend við Winnipeg. Nú virðist það aftur vera efst á baugi, að byggja skólann þar sem þær byggingar erul, sem nú eru notaðar. Mun þó þurfa að kaupa eitthvað af landi til viðbótar við það, sem skólinn hefir. Enn er þetta þó alt í lausu lofti, og alveg óvíst hvar skólinn lendir, þegar hann verður bygður, nær sem það kann að verða. * * * Mr. H. P. Albert Hermannsson hefir verið skipaður konsúll Svía í Winnipeg. Hann er umboðsmað- ur Swedish-American eimskipa- félagsins. Var fylkisþingmaður í Saskatchewan tvö kjörtímabil. — Hann er og vara-konsúll Finna og verður það framvegis. * * * Dan McLean borgarstjóri í Winnipeg ætlar að sækja um borg- arstjóraembættið í Winnipeg í annað sinn við bæjarstjórnar- kosningarnar sem fram fara hinn 23. þ.m. Verkamanna flokkurinn hefir afráðið, að útnefna ekki borgarsstjói'aefni í þetta sinn og eru því allar líkur til, að McLean verði kosinn gagnsóknarlaust. um peningana, en greip jafnframt skammbyssu sína og ætlaði að skjóta á hann, en hún var í ein- hverju ólagi og skotið gekk ekki úr henni. Ræninginn fór sína leið og hefir hans ekki orðið vart siðan. * * * Það eru nú 46,130 talsímar í Winnipeg og hafa fjölgað um 2,500 á síðasta ári, eða frá 30. ept. 1927 til 30. sept. 1928. í öllu Manitoba fylki eru 76,070 símar. Yfir sep- tembermánuð var tekju afgangur- inn 826,703. Simakerfi Manitoba- fylkis hefir á þessu ári varið einni miljón dala til að auka og umbæta kerfið og er þvi mikla verki hér um bil lokið. við hatrinu milli einstakra manna og milli þjóða. Það kviknaði vanalega af tortrygni og því að mennirnir grunuðu hver annan um undirferli og illar hvatir, en endaði með hörmungum stríðsins. Þykir ræða þessi ein með þeim merkilegustu ræðum, sem Mr. Baldwin hefir nokkurn tíma flutt og hefir hann þar áreiðanlega margt viturlegt sagt. Úr bænum. Mrs. S. Holm frá Framnes $.0., dan., var skorin upp á Almenna iúkrahúsinu hér í borginni á j nánudaginn í vikunni sem leið, af Dr. B. J. Brandson Uppskurðurinn | íepnaðist ágætlega. Mr. Holm j var staddur í borginni um sömu mundir. Fullyrt er nú að Hudsons Bay járnbrautin verði verði fullgerð næsta haust og járnbrautarteinar þá lagðir alla leið til Churchill’. Nokkur hluti hafnarinnar er búist við að verði fullgerður ári seinna, svo skip geti þá flutt vörur þang- að og þaðan. Nálega 3,000 manns eru nú við vinnu þar norður frá. * * * Hon. MacKenzie King, forsætis- ráðherra, kom heim til Canada á laugardaginn, eftir meir en tveggja mánaða dvöl í Evrópu. Blaðamenn, sem hittu hann í Que- bec, segja að hann hafi verið hinn glaðasti og látið hið bezta af ferð- inni. Með gama skipinu kom Hon. C. A. Dunning frá Englandi og fleiri stjórnmálamenn. Stjórn Manitoba-fylkis hefir á- kveðið að setja á stofn rannsókn- arstofu í sambandi við búnaðar- skóla fylkisins, til að rannsaka gæði byggs, sem ræktað er í Manitoba. Hefir mjög mikið ver- ið ræktað af þyggi í fylkinu á síð- ari árum, og er mjög áríðandi, að þekkja út í æsar gæði þess og gildi, og þar sem bygg er nú orðið mikil markaðsvara, sem bændurnT ir í Manitoba hafa mikið af til að selja, þá ríður afar mikið á, að bændurnir viti um gæði þess og gildi. Það er haldið að bygg- sem ræktað er í Manitoba, sé sérlega gott, einkum það sem ræktað er í Rauðárdalnum, og ef gæði þess, eins og þau í raun og veru eru, yrðu kunn út um heim- inn, þá mundi markaður fyrir það stórkostlega aukist. Einnig mun rannsóknarstofa þessi verða fær um að gefa margar mikilsverðar upplýsingar viðvíkjandi ræktun byggs. * * * Af þeim 8,500 námamönnum frá Bretlandi , sem til Canada komu í sumar og haust, til að vinna við uppskeruna, hafa 3,500 nú aftur horfið heim og fóru all-margir þeirra án þess að vinna svo sem nokkuð að uppskerunni. Það er sagt að þeir, sem eftir eru, muni flestir eða allir geta fengið vetr- arvinnu hér í landi og líklega fari ekki heim aftur. Sú vinna, sem þeir geta aðallega fengið, er bændavinna, járnbrautarvinna og skógarhögg. Hafa ýmsir þessara manna farið til Austur^Canada, en aðrir vestur á Kyrrahafsströnd, svo þeir eru ekki lengur allir í Sléttufylkjunum, þó þeir kæmu þangað í fyrstunni. * * * Bankarán var framið í Winni- peg á föstudaginn í vikunni sem leið. Það var ekki stórkostlegt, en dálitið einkennilegt. Skömmu eftir hádegi gekk maður inn í Royal bankans á Portage Ave. og Carlton St., og fékk gjaldkeránum blað, sem rituð var á skipun um að afhenda þegar fimm þúsund dali. Sýndi maður þessi gjald- keranum jafnframt skammbyssu, sem hann hafði meðferðis. Banka- maðurinn, ungur maður, J. J. Resch að nafni, fékk ræningjan- Bandaríkin. Á þriðjudaginn, hinn 6. þ.m., er kosningadagurinn í Bandaríkjun- um, og þá verður útgert um það meðal annars, hvor þeirra Hoover 'eða Smith á að verða forseti hins mikla lýðveldis næstu fjögur ár- in. Þeir sem rétt hafa til að taka þátt í'forsetakosningunum nú, eru miklu fleiri heldur en nokkru sinni fyr, eða hér um bil fjörutíu og þrjár miljónir, nálega fjórtán miljónum fléiri en árið 1914. Und- anfarin reynsla hefir sýnt, að það eru ekki allir, sem nota rétt sinn, og má sjálfsagt gera ráð fyrir, að þeir geri það heldur ekki í þetta sinn. Búist er við að þeir sem at- kvæði greiða við þessar forseta- kosningar, muni verða um þrjátíu og fimm miljónir, en fyrir fjórtán árum urðu atkvæðin alls um 29,091,417. Bretland. Baldwin forsætisráðherra hélt mikla rséðu og merkilega í vikunni sem leið, sem tíu þúsundir manna hlustuðu á með mesta athygli og sem síðar hefir borist út um allan heim. Tilefni ræðunnar var tíu ára afmæli Þjóðbandalagsins og efni ræðunnar var alheims frið- armál. Hann var ekki að eins að tala við sína eigin þjóð, heldur við all- an heiminn, en þó sérstaklega við Bandarikjamenn. Vildi hann eyða þeim grun, sem hann áleit að ætti sér stað þar og víðar, að Bretar vildu efla sinn herflota, svo að hann yrði áreiðanlega langt um sterkari heldur en herfloti Banda- ríkjamanna eða nokkurrar annar- ar þjóðar, og hann vildi umfram alt eyða þeim grun, að Bretar byggju yfir nokkrum þeim laun- ráðum, sem á nokkurn hátt mættu draga til ófriðar. “Vér höfum alls ekki þann á- setning,” sagði han, “að hlaupa í kapp við Bandaríkjamenn um að byggja herskip. Vér höfðum fast- ráðið að fara mjög varlega í þeim efnum, löngu áður en oss var boð- ið að undirskrifa Kellogg friðar- sáttmálann. Vér höfum algerlega snúið baki við stríðum, þessu böli, sem átt hefir sér stað, síðan sögur hófust.” Hann minti á, hvernig hugir manna hefðu ákaflega afvega- leiðst, þegar stríðið mikla stóð yfir. Hann varaði mjög sterklega Dómarakosningarnar í Norður Dakota. 1 kesningum þeim, sema fara fram í Norður Dakota næsta þriðjudag, verða ikosnir þrír hér- aðsdómarar (district court judg- jes) í því kjördæmi, sem flestir ís- ! lendingar eru búsettir í (Second !Judicial District). Þeir, sem nú |skipa þau embætti, eru W. J. Knee- shaw, C. W. Buttz og G. Grímson. íslenzikir kjósendur ættu ekki að láta það breigðast, að veita þess- um þremur mönnum fylgi sitt og atkvæði. Reynslan er búin að sýna það og sanna, að þeir eru stöðunni vaxnir, og þeir eiga það allir skilið, að verða endurkosnir. iKneeshaw dómara kannast allir jíslendingar í kjördæminu Við sem mikilhæfan og réttsýnan dómara, og sem einn allra einlægasta vin af annara þjóða mönnum, sem ís- lendingar eiga. Um samlanda vorn, Grímsdn dómara, þarf ekki að fjölyrða. Hann hefir verið sjálfum sér og íslendingum til stórsóma þennan stutta tíma, sem hann hefir skipað dómarastöðuna, o,g íslenzkum kjósendum ætti því að vera það ánægjuefni, að geta stutt hann í þessum kosningum. Buttz dómari hefir einnig reynst vel og verðskuldar endurkosningu. Hæstarétt ríkisins skipa fimm dómarar. Þrír þeirra verða ikosn- ir nú. Þeir, sem nú skipa þau em- bætti, sækja allir um endurkosn- ingu. Þeir eru: W. L. Nuessle, L. E. Birdsell og A. G. Burr. Eg get eirtdregið mælt með þeim öll- um. Þeir hafa allir reynst'þann- ig í sinni stöðu, að þeír verðskulda fylgi allra þeirra, sem ant láta sér um, að vel ‘unnið starf sé viður- kent og að hæfustu mennirnir séu valdir í dómarastöður. Sér- staklega vil eg skora á íslenzka jósendur, að veita Nuessle dómara fylgi sitt. Hann var héraðsréttar- dómari í mörg ár áður en hann varð hæstaréttardómari og hefir reynst svo vel i báðum stöðunum, að óhætt er að fullyrða, að ekki verði breytt til batnaðar. Hann stóð svo tæpt í kosningunum í júní, að vel getur svo farið, að ís- lenzk atkvæði ráði úrslitunum í kosningunum 6. nóvember. Það væri órétt gagnvart honum sjálf- um og rikinu tap, ef hann næði ekki endurkosningu. Það sama má einnig segja um félaga hans, þá Birdséll og Burr dómara. Hjálmar A. Bergman. Fimtíu ára afmæli. Fimtíu ára afmælishátíö Fyrsta lút. safnaðar hefst me8 hátíða- guðsþjónustu í kirkjunni á sunnu- daginn kemur kl. 11 f.h. Fer hún fram á ensku og prédikar forseti kirkjufélagsins, séra K. K. Olafs- son. Kveðjur og hamingjuóskir verða fram bornar frá öðrum söfn- uðum og kirkjufélögum. Nokkr- um mönnum hefir verið sérstak- lega boðið að vera viðstöddum, svo sem forsætisráðherra Manito- bafylkis og borgarstjóranum í Winnipeg. Mr. Paul Bardal syng- ur sóló og söngur verður yfirleitt sérstaklega mikjll og hátíðlegur. Kveldguðsþjónustan, kl. 7 e. h., er fram á íslenzku og prédikar þá varaforseti kirkjufélagsins, séra Rúnólfur Marteinsson. Verða þá einnig kveðjur og hamingjuóskir fram bornar, meðal annars frá hinni íslenzku kirkju. Þá verður einnig afhjúpuð eirmynd, sem gerð hefir verið^-af stofnanda safnaðarins, Dr. Jóni Bjarnasyþjj sem þá verður búið að koma fyrir í kirkjunní, þar sem hún á að vera. Á mánudagskveldið verður sam- sæti haldið í samkomusal kirkj- unnar. Er sérstaklega til þess ætlast, að það sæki eldra fólkið, sem söfnuðinum tilheyrir. Aðal- jræðumaðurinn við það tækifæri i verður Mr. W. H. Paulson, fylkis- iþingmaður frá Saskatchewan. Hann talar á íslenzku, og alt ann- að, sem fram fer, fer fram á ís-1 jenzku. Á þriðjudagskveldið verður aft- ui samsæti haldið á sama stað. Þar fer alt fram á ensku. Aðal ræðumaður það kveldið verður Mr. H. A. Bergman, K.C. Á miðvikudagskveldið verður börnunum, innan fermingaraldurs, haldið samsæti og þar talar Miss | Jennie Johnson kenslukona. Öll þesi samsæti byrja kl. 7 að ikveldinu. Við guðsþjónusturnar eru vitanlega allir velkomnir og þótt samsætin séu að sjálfsögðu aðallega fyrir safnaðarfólkið, þá eru þó þeir, sem kirkjuna sækja og telja þar sitt andlega heimjli, hjartanlega velkomnir, þó nöfn þeirra standi ekki á safn- aðarskránni. Á fimtudagskveldið, kl. 8.15, verður samsöngur haldinn í kirkj- unní, sem alveg sérstaklega vel hefir verið til vandað. Verður hans nánar getið í næsta blaði, þvi það verður komið út fyi ir þann tíma. Mótínælafundurinn. Fundur sá, er sjálfboðanefndin kvaddi til, og haldinn var í St. Paul kirkjunni síðastliðið þriðju- dagskveld, var með allra fjöl- mennustu fundum, sem nokkru sinni hafa haldnir verið, meðal íslendinga í Winnipeg. Dr. B. J. Brandson stýrði fundinum, en Einar P. Jónsson gegndi skrifara- starfi. Lýsti forseti því yfir *í byrjun, að eins og auglýsingin bæri með sér, hefðu þeir einir ver- ið boðaðir á fundinn, sem and- stæðir væru stjórnarstyrksbeiðni heimfararnefndar Þjóðræknisfé- lagsins, í sambandi við Alþingis- hátíðina á íslandi 1930. Lét for- seti þess jafnframt getið, að mál þetta væri nú orðið íslendingum svo kunnugt, og hefði þegar ver ið svo margrætt, að óþarft væri að fara um það mörgum orðum, og benti jafnframt á, að af ofan- greindum ástæðum gætu kapp- ræður undir engum kringumstæð- um komið til greina. Tók hann það einnig fram, að margt hefði verið rætt og ritað í sambandi við málið, sem því kæmi ekki við, og væri ilt til þess að vita, að íslend- ingum hefði ekki lærst það enn þá, að geta deilt um mál, án þess að blanda óviðkomandi málefnum inn í. Deilumálið hefði risið út af stjórnarstyrknum og engu öðru, og þess vegna yrði ekki um annað rætt á fundinum. Var ræðu for- seta fagnað mjög af áheyrendum Næst tók til máls Gunnlaugur kaupmaður Jóhannsson. Fór hann afar bitrum orðum um betlistefnu heimfararnefndarinnar og krydd- aði erindi sitt með viðeigandi dæmisögum. Bar hann síðan fram svo hljóðandi tillögu: “Fundurinn lýsir því yfir, að hann sé gersamlega mótfallinn allri' stjórnarstyrks þágu í sam- bandi við heimförina 1930.” — Tillöguna studdi Dr. Sig. Júl. Jó- hannesson, og flutti um leið afar- snjalla og rökfasta ræðu, og benti jafnframt á þá fáránlegu fjar- stæðu heimfararnefndarinnar, að styrkur, sem beðið væri um, gæti orðið skoðaður sem heiðurs-við- urkenning. Líkti hann nefndinni við. betlara á íslandi, sem kallað- ur var Eyjólfur tónari. Flæktist hann um sveitir, hafði pilz að hempu, tónaði fyrir presta og á- skildi sér heiðurslaun í staðinn. Og Eyjólfur varð landfrægur maður. Um leið og Dr. Jóhannes- son lauk máli sínu, stóð J. H. Gíslason upp og gerði tillögu um það, að gengið skyldi til atkvæða. Tillöguna studdi Dr. B. H. Olson, og var hún samþykt, og það þar með sannað, að styrkþágumenn voru í ákveðnum minni hluta á fundinum. — Lá þá fyrir, að bera upp aðal tillöguna Stóðu þá upp nokkrir hinna óboðnu, svo em Árni Eggertsson, Sigurður Vil- hjálmsson, Sigfús Halldórs frá Höfnum, Þorgils Þorgeirsson og Hannes Pétursson. Létu þeir óðs- lega mjög, töluðu allir í senn, og ýmsir fleiri, er fastast fylgdu leiðtogum sínum að málum. Leit svo út, sem styrkþágumenn hefðu á fundinn komið með þeim ásetn- ingi, að beita stráksskap. Forset-' fundarins gekk þess eigi dulinn hvað á ferðinni var, og lýsti þv4 yfir fyrir hönd mótmælenda, að þeir gerðu sig ánægða með þá at- kvæðagreiðslu, sem fram hefði farið, því hún leiddi það ótví- rætt í ljós, að fundurinn teldi mótmælin sjálfsögð, án frekari málalenginga. Með því að nú hafði afgreitt verið það eina mál, ér fyrir fundinum lá, var fundi f.litið, samkvæmt þar að lútandi tillögu. Þessi fundur var einstakur í sinni röð, að því leyti, að þótt ekki væru þangað boðaðir aðrir en mót- mælendur styrksins> þá mættu þar styrknefndarmenn og styðj- endur þeirra. Voru slíkir gestir á íslandi kallaðir boðflennur. — Gengu þessir óboðnu gestir svo langt, að þeir jafnvel tóku þátt i atkvæðagreiðslunni. Eftir fundarslit skálmaði einn af þeim óboðnu, (Sigfús Halldórs frá Höfnum, upp að altarinu og lét mikillega. Heyrðist lítið af því er hann sagði, annað en þetta: “Dr. Brandson, bíddu, heyrðu nú Dr. Brandson, vertu maður!” Meðan á þessu stóð, töluðu þeir þindarlaust hver í kapp við ann- an, Árni Eggertsson og Sigurður Vilhjálmsson, hamslausir af bræði. Kendu margirá fundinum í brjósti um þá, einikum þó þann fyrnefnda. Hannes Pétursson stó.ð upp á stól, og var auðsjáanlega mikið niðri fyrir. Svo mikill ys var í kirkj- unni uim þessar mundir, að eigi var unt að heyra mál hans. Prestur St. Pauls safnaðar, var á fúndi i samkomusal kirkjunnar, er hér var komið sögunni. Heyrði hann hávaðann og kom til þess að vita, hvað um væri að vera. Árni Eggertsson krafðist þess fyrir hönd þeirra óboðnu, að þeim yrði heimiluð kirkjan um um nokkra stund. En presturinn tilikynti honum, að þeir yrðu taf- arlaust að hafa sig á brott, slökti því næst ljósin og lokaði kirkj- unni. Nicholas Jón Stefánsson. Opið bréf til Þjóðræknisfélagsins. Eg hefi nýlega fengið bréf frá einum af ættingjum Ingólfs Ing- ólfssonar, sem mér finst, að is- lenzkan almenning varði. Bréfið hljóðar þannig: “Mr. Hjálmar A. Bergman. “Eg fékk bréf frá Ingólfi Ing- ólfssyni núna nýlega, og hann biður mig að finna þig og biðja | þig að ná sér út úr tugthúsinu. | Hann segir, að þú vitir veg til | þess, ef þú viljir gera það, og hann j segist, ef hann losni þaðan, sem j hann er, þá ætli hann til íslands j og koma aldrei hingað aftur. “EJg þekki Ingólf ekkert. Einu sinni séð hann. Samt mæli eg með því, sem einn af frændfólki hans, að beiðni hans verði upp- fylt og lög leyfa. “Eg ætlá að biðja þig að gera svo vel og skrifa mér fljótlega um þettai, hvað þú getir gert, og hvað þú ætlar að gera, því eg þarf að láta hann vita um þetta fljótlega, og helzt ef þú vilt gjöra svo vel og skrifa mér á íslenzku, því eg skil íslenzku betur en ensku. “Virðingarfylst,” Eg hefi svarað bréfi þessu á þá leið, að eg sé að vísa því til Þjóð- ræknisfélagsins, sem Ingólfssjóð- inn hefir með höndum. Það j^eri eg og hér með. Nafn bréfritarans álít eg ekki rétt að birta, en nafn og heimilis- fang hans skal eg að sjálfsogðu láta forseta Þjóðræknisfélagsins í té, ef hann óskar. Hjálmar A. Bergman. í merku blaði, sem heitir “The Musical Observer” í New York, kom nýlega grein um drenginn, sem þið sjáið sitja þarna við hljóð- færið.. Þessi mynd fylgdi grein- inni. Blaðið sagði frá því, að þegar þessi piltur var sex ára, lék hann svo vel á hljóðfæri, að hann var fenginn til þess a'ð leika fyrir víð- varp (Radio) í New York, og gerði það snildarlega vel. Hann var látinn reyna sig áður en athöfnin fór fram, og segir blaðið, að hann hafi leikið lög eft- ir heimsins frægustu höfnda, svo sem: Bach, Handel, Clementi og Mozart; lék hann með svo miklu valdi og nákvæmni, að allir dáð- ust að. Blaðið segir, að það sé þVent sem gert hafi litla “Nicky” svona fullkominn í h.ljómlietinni, eins ungur og hann er; það, að hann sé fæddur með óvenjulega miklum hæfileikum i þá átt; er þaö í báð- um ættum, sérstaklega þó í móð- urættina, því móðir hans er fræg söngkona. í öðru lagi hefir hann vanist svo mikilli og margbreyttri hljómlist á heimilinu og í þriðja lagi kenslu, þótt ungur sé, þar sem kennari hans hefir verið Joseph- ine Hughes í New York. Þegar hann var örlítill hnokki, stóð hann við hljóðfærið hjá móð- ur sinni og fylgdi hljóðfallinu með hinni mestu nákvæmni. Hann lærði snemma rússnesk alþýðulög af móður sinni. Foreldrar piltsins eru þau Jón Stefánsson læknir og kona hans, sem er af fússneskum aðalsættum. Hann er fæddur 23. ágúst 1921 og er þvi rúmra sjö ára. Þegar hann settist við hljóð- færið hjá víðvarpsvélinni, sem flutti orð hans og hljóma út um alla Ameríku, mælti hann skýrt og greinilega eftirfarandi orð: “Eg heiti Nicholas Jón Stef- ánsson. Eg ætla að leika stutt lag eftir Back. Eg er sex ára gam- all. Eg á heima í Winnipeg, Can- ada.” Yonandi á þessi piltur fyrir höndum langa æfi og merkilega. Mér duttu í hug þessi erindi, þeg- ar eg skoðaði myndina af honum í blaðinu: Sem raddir frá hærra heimi er hljómdýrð ins litla manns; ég stari með frónsku stolti á staðfestu svipinn hans. Sjá fingurna litlu leika svo létt yfir tóna heim. þeir líða frá nótu’ á nótu — og nóturnar fagna þeim. Hann sofandi vonir vekur og vermir upp huga manns, því sálin er full af sumri og sólskin í augum hans. Og tónarnir guðsorð túlka á talandi alheimsmál, sem lifandi lind til hjartans það líður frá barnsins sál. Og þó hann sé enn þá ungur, hann einstæðan sigur vann sem fulltrúi þriggja þjóða, og þúsundir hlusta’ á hann. (Jg margt hugsar pabbi’ og mamma, þau minnast síns æskulands; þau dreymir um drenginn litla — já, dreymir um framtíð hans, Sig. Júl. Jóhannesson. Fyrsti auglýsingabækling Cun- ardlínunnnar, bæði á ensku og ís- lenzku, er nú rétt nýkominn úr höndum prentaranna, og gefur hann stutt ágrip yfir hina iyrir- huguðu ferð; skreyta hann ýmsar íslenzkar myndir. Seinna mun annar stærri bæklingur verða gefinn út, sem gefur upplýsingar um tilhögun ferðaVinnar yfir hafið, einnig ferðalög á íslandi og 1 í öðrum löndum, og mun þar verða nákvæmlega skýrt frá kostnaði við þessar ferðir o. s. frv. . \ Nokkrar ferðaáoetlanir. Enn er of snemt að segja nokk- uð með vissu um þátttöku íslend- inga og annara í ferð þeirri, sem (^unard Línan er að undirbúa 1930. Þrennskonar auglýsinga- aðferð er nú þegar farið að nota; almennar eimskipafélags augiýs- ingar, svo sem smá bæklingar og bækur, -greinar í blöðum og tíma- ritum, og í þriðja lagi fyrirlestr- ir, bæði á ræðupallinum og yfir /íðboðið. svo sem háskólum og undir um- sjón almennra fræðifélaga. Nú þegar hafa ýmsir velþektir mentamenn og konur trygt sér far með Cunard línunni til íslands 1930. Þar á meðal má nefna Vil- hjálm Stefánsson, Leif Magnús- son, Director International Bur- eau of Labor, í Washington, D.C., Dr. Henry G. Leach, ritstjóra For- um, Professor W. C. Craigie, fyrr- j um við Oxford, nú við Chicago há- skólann, og frú hans, Professor J Chester N. Gould, einnig við Chi- Allur undirbúningur gengur ; cago háskólann, og frú hans; Pro- mikið greiðar, ef þeir, sem ætla | fessor Adolph S. Benson, við Yale sér að fara, gefa Cunard línunni ! háskólann, sem mikið hefir skrifr eða sjálfboðanefndinni nöfn sín,: að um íslenzk efni; Professor og geta þess hvert og hvernig j Reynolds við Colgate háskólann í þeir vilja ferðast. Undirrituð er j New York ríki, og margir fleiri; fús til að gefa allar mögulegar ! og ber það vott um, að menta- upplýsingar, bréflega eða á ann- J menn bera miklnn áhuga fyrir há- an hátt. Greinar um ísland og Alþingis- hátíðina hafa þegar komið út í blöðum og tímaritum, og munu margar fleiri ibirtast bráðlega. Af merkum blöðum og tímaritum, sem nýlega hafa flutt greinar um tíðinni, einkum þegar tekið er til- lit til þess, að enn senl komið er hefir Cunard línan mjög lítið aug- lýst. Eins og kunnugt er, starfar Cun- ardlínan í sambandi við ríkisjárn- brautina, Canadian I^ational, og íslenzk efni, má nefna Forum, |mun bráðlega birta grein um ferð New York Times, Norwegin Hist-1 þá, sem félag það hefir umsjón orical Review, Amer'can-Scandi- \ um frá Winnipeg til Montreal. navian Review, La Presse, Mont- j Nýlega átti undirrituð tal við real, o. fl. I Consul Böggild, ræðismann Dana Nýlega hefir verið talað f jór-1 og íslendinga í Montreal, og ber um sinnum yfir víðboðið í New ! hann afar mikið traust til islenzku York um Alþingishátiðina. Und þjóðarinnar, að hún undirbúi há- irrituð er nú á fyrirlestra ferð um tíðina svo að hún verði íslandi til íslenzku bygðirnar og flytur er stórsóma. indi í fjölda af mentastofnunum Thórstína Jackson.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.