Lögberg - 20.12.1928, Side 1
iilct
41. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 20. DESEMBER 1928
NUMER 51
Þar sem allir verða eitt
Eftir Séra Björn B. Jónsson, D-D.
FæSing Krists boðaði öllum
heimi frið. Hann var fæddur til
þess að vera konungur í ríki friS-
arins. Yfir vöggu hans í jötunni
hvíldi heilagur friður. Uppi yfir
fjárhúsinu sungu himneskar radd-
ir um frið á jörðu.
Mennirnir, sem komu til barns-
ins í Betlehem, tilbáðu það og veittu
því lotningu, komu í friði og fóru
í friði, eins fyrir því, þótt þeir væru
hver öðrum næsta ólkir og gerðu
sér sennilega næsta ólíkar hugar-
myndir af barninu helga.
Annars vegar voru næsta fáfróð-
ir almúgamenn, sem gættu sauð-
hjarða á völlunum umhverfis þorp-
ið; hins vegar voru hálærðir speik-
ingar, sem komu úr fjarlægum
löndum að leita að konungi mann-
anna.
Aðstaða þessara tveggja mann-
flokka hefir verið næsta ólík. Fjár-
hirðarnir heyrðu raddir af himnum,
sem bergmáluðu í sálum þeirra, og
eftir vísbending trúarsöngsins í
hjartanu leituðu þeir á Jesú fund
og féllu fram og tilbáðu hann.
Hinir mennirnir létu þekkinguna
lýsa sér leið. Þeir lásu það út úr
stjörnuvísindum sínum, að nú voru
eyktamörk og ný öld runnin upp í
heimi. Þeir komu á leiðinni við á
bókasafninu í Jerúsalem, og létu
lesa sér það úr helgum fræðum.
hvar frelsari mannkynsins ætti að
fæðast.
Frá sjónarsviði vor deilugjarnra
nútíðarmanna hefði vel getað far-
ið svo, að hér hefði þegar orðið
fldkkadráttur milli hirðanna og
spekinganna út af Jesú-barninu,
sem hvorirtveggju leituðu að og
fundu.
Margur í sporum vitringanna
hefði fyrirlitiö vitnisburð hirðanna
og hneykslast á “hindurvitnum
þeirra og hjátrú.” Vel hefði get-
að farið svo að vitringarnir hefðu
sagt við hirðana eitthvað á þessa
leið: “Ykkur skortir til þess alla
þekkingu að rannsaka heimildir og
gera skynsamlega grein fyrir við-
burði þessum og honum, sem riú er
fæddur og við færum gull, reykelsi
og myrru fræða vorra og þekking-
ar. Við erum ekki þau börn að
trúa sögum ykkar um undrin og
kraftaverkin, sem þið leggið trún-
að á.”
Á hinn bóginn hefði vel getað
farið svo, að hirðarnir hefðu fylst
ofstæki og fengið mestu óibeit á
þekikingu vitringanna, talið hana
ekkert annað en syndsamlega van-
trú og sagt sem ,svo: “Fyrst þið
ekki hafið séð þær sýnir, sem augu
okkar sáu, og ekki hafið heyrt þær
raddir, sem við heyrðum, nóttina
helgu, viljum við engin mök hafa
við yktkur og skoðum ykkur sem
háskalega villutrúarmenn.”
En svona var það ekki á jólun-
um í Betlehem. Hvorir um sig
fundu frelsara sinn þá’ leið, sem
þeim var hentust. Svo ólik sem
aðstaðan var og svo ólik, sem trú-
arskoðunin var á mannlegan mæli-
kvarða var reynslan söm. Hvor-
tveggju fundu Krist og gáfu hon-
um alt, sem þeir áttu. Og þegar
menn aðeins finna Krist og gefa
líf sitt á vald hans, þá fara þeir
ekki að deila um hann, eða neitt
annað. Þeir fá allir frið, sem koma
til Krists, hverja leið sem þeir
koma.
Margar aldir eru liðnar síðan
vitringarnir komu til þCrists langar
leiðir að austan og fjárhirðarnir
komu til Krists utan af völlunum
að vestan, og hvorirtveggju fundu
sálum sínum frið og hvíld í frelsr
ara sínum.
Á öldunum liðnu hafa margir
leitað Krists, en viljað hrinda hver
öðrum frá jötunni, af því þeim
hefir orðið sundurorða um það,
hvernig eigi að lýsa útliti barnsins.
Er ekki kominn tími til þess, að
hvar i heimi sem er, krjúpi vitring-
ar og hirðar samsíða við vöggu
Krists og öllum skiljist, að ekkert
varði annað en það, að gefa Jesú
rúm í sálu sinni og meðtaka hjálp-
■ræði hans ?
Hvert annað ættu syndugir menn
að leita? Hvergi er friður á jörðu
nema í samfélagi sálarinnar við
Jesúm Krist.
Við skulum allir hittast um jól-
in og taka höndum saman við jöt-
una í Betlehem—hvort sem vér telj-
um dkkur. trúarlega, í tölu vitring-
anna eða hirðanna. Þar verða all-
ir eitt.
Gunnar Erwin Bardal
“Höfði hærri en aðrir menn,” er
stundum sagt um þá, sem eru ó-
vanalega háir, en það á ekki við
þennan mann, því hann er miklu
meira en hðfði bærri en aðrir
menn, eða 8 fet og 2 þuml. og vigt-
ar 324 pund, og er hann þó alls
ekki feitur, sýnist meira að segja
heildur grannur eftir hæðinni.
Hendur hefir hann afar stórar og
eins ffætur, og má marka það
nokkuð á því, að meðal manns
skór etu stærðirnar 7—8, en hans
stærð er 26. Allan fatnað, sem
hann notar, verður hann að láta
búa til við sitt hæfi, þar á meðal
vetlinga, því engin föt, sem í búð-
um eru seld, eru nógu stór handa
honum. Þó er sú undantekning,
að hann getur keypt hatta, svo að
segja hvar sem er, því þó hann sé
höfuðstór, þá er hann þó ekki öll-
um mönnum höfuðstærri, og hann
er laglegur maður í andliti,
greindarlegur og góðlátlegur.
Eins og nafnið bendir til, er mað-
lur þessi íslendingur. iFæddur er
hann og uppalinn í grend við Sin-
clair, Man, og þar búa foreldrar
hans, Jóhannes Bardal og kona
hans Guðlaug Friðrika. Er hún
dóttir Gunnars Einarssonar, sem
lengi átti heima í Winnipeg.
Gunnar er 22 ára gamall. Fyrir
fimm árum fór hann að heiman og
hefir hann altaf síðan verið á
ferðalagi víðsvegar um Bandarík-
in og Canada, -með ýmsum sýn-
ingafélögum, til að sýna sína ó-
vanalegu hæð. Nú gerir hann ráð
fyrir, að hætta ferðalögum og
vinna fyrir sér á annan hátt.
Gunnar kom til Winnipeg á
sunnudaginn og á þriðjudaginn fór
hann heimleiðis til Sinclair, Man.
Hann leit inn til vor á mánudag-
inn og tafði hjá oss litla stund.
Gerði hann ráð fyrir að dvelja
heima hjá foreldrum sínum í
vetur.
Þess er vert að geta, að nafn
þessa manns er hér sett, eins og
hann sagði oss það sjálfur, en
hann mun víða vera þektur með
nafninu Johnson, en sjálfur held-
ur hann við Bardals nafnið.
Þrátt fyrir það, að hann hefir
fimm síðustu árin verið burtu frá
íslendingum, eða síðan hann var
seytján ára, talar hann enn ís-
lenzku óhikað og viðstöðulaust.
Canada
Hon Mackenzie King, forsætis-
ráðherra, varð 54 ára á mánudag-
inn hinn 17. þ. m. Bárust honum
þann dag margar heillaóskir víðs-
vegar að. Mr. King hefir nú ver-
ið forsætisráðherra í Canada í sjö
ár, að undanteknum nokkrum mán-
uðum árið 1926. Þar sem hann er
enn maður á bezta aldri er líklegt
að hann eigi eftir að taka rnikinn
og öflugan þátt í stjórnmálum
þessa lands, enn í mörg ár. Flestir
munu nú viðurkenni að Mr. King
hafi reynst ágætlega í sinni vanda-
sömu stöðu, bæði innan lands og út
á við.
* * *
I
Nú er að verða öðruvísi um að
litast í norðurhluta Manitoba-
fylkis heldur en verið hefir alt
til þessa. 1 stað fáeinna veiði-
manna, sem þar hafa verið að
vetrinum, eru þar nú f jöldi manna
við járnbrautavinnu, námavinnu
og byggingar raforkustöðva. Um
þrjú hundruð manna vinna nú við
Flin Flon námurnar og önnur þrjú
hundruð við að byggja raforku-
stöðvar við Island Falls. Senn
verður byrjað að byggja járn-
braut frá Cranberry Portage t^
Sherritt-Gordon námanna við Cold
Lake. Þar að auki er fjöldi manna
að vinnu við Hudson Bay braut-
ina, sem á næsta ári verður full-
gerð alla leið til Fort Churchill.
Það getur ekki hjá því farið, að á
næstu árum verði afarmiklar
framkvæmdir þarna norður frá,
þar sem alt til þessa hefir verið
eyðiland og engar framkvæmdir.
Jólaguðsþjónustur
í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg:
Næstkomandi sunnúdag, þann 23. desember, ensk
jólamessa, klukkan 11 fyrir hádegi.
Á aðfangadagskveld, klukkan 7, þann 24. desember,
verður haldin vegleg jólatréssamkoma fyrir börnin.
Á jóladaginn, klukkan 11 fyrir hádegi, fer fram
íslenzk jólamessa.
Á sunnudaginn milli jóla og nýárs, fer fram venju-
leg morgungðuðaþjónusta á venjulegum tíma, en að
kveldinu heldúr sunudagskólinn árslokahátíð sína.
Geta má þess, að vandað hefir verið frábærlega
vel til söngsins, við hátíðaguðsþjónustur þær, sem nú
hafa nefndar verið.
Þorsti.
Erindi cftir Séra Þorstein Briern.
Fátt er sárara en þorstinn.
Menn fá lifaö alllengi þótt hung-
ur sverfi að þeim. en þorstann fá
menn ekki staðist nema skamma
stund.
Af þessari sáru þörf vorri, lik-
amlega þorstanum, hafa menn svo
dregiÖ nafnið á ýmsri annari þörf
manna og þrá. Menn tala um auð-
þorsta, nautnaþorsta, þekkingar-
þorsta, kærleiksþorsta, sálarþorsta,
o. s. frv.
Menn líta á það ýmsum augum,
hvað til þess þurfi, að fá sál sinni
fullnægt. — Ríki bóndinn í dæmi-
sögunni leit svo á, að sál sín yrði
sæl þegar hlöður hans væru orðn-
ar nógu stórar. Og gamli maðurinn
í erfisveizlunni fékk eigi skilið,
hversvegna ekkjan gæti veriö að
gráta yfir Veizluborðunum, þar sem
svo mikill væri umhverfis hana
maturinn.
Þarna. í þessum tveim dæmum
stefnir sálarþorstinn ekki hátt. Og
þó grípa dæmin greinilega á því
tvennu. sem vér í daglega lífi telj-
um oft mest um vert.
ÞaS er ekki von til að sá, sem eigi
þekkir kærleiksþorstann, fái skilið
hversvegna ekkjan er hrygg, fái
skilið ástarþrá og söknuð hennar.
Og það er ef til vill ekki heldur
hægt, að ætlast til þess af þeim,
sem hvorki verður þekkingarinnar
né kærleiksþorstans var, að hann
telji nokkuð vanta á fullsælu sína,
þegar vel er séð fyrir hlöðunum.
En svalar þetta í raun og veru
sálarþorsta nokkurs manns?
Því til svars vil eg minna á lýs-
ingu skáldsins Stephans G. Steph-
anssonar á þeim mönnum fvrir
vestan hafið, sem hafa gefið sig
auðs- og nautnaþorstanum alla á
vald. Hann kveðst mæta þeim á
strætum stóríborganna, óg hann
lýsir þeim svo:
“Undan dökkum fataföldum
fram i veginn blika, stara,
Andlit, sem þau stæðu í steini
Storknuð, líkust fílabeini.”
Skáldsaugun sjá oft vel. Betur
en augu vor hinna. Skáldið lýsir
þarna starandi, þyrstum augum,
sem aldrei mettast. Það sér storkn-
uð steinandlit þeirra manna, sem
aldrei hafa horft nema á eitt—og
þetta eina, sem þeir sáu og sóttust
eftir fékk þó ekki veitt þeim full-
nægju.
Enginn skilji orð min svo, sem
eg telji sjálfa fátæktina sáluhjálp-
legri, en efnin. Nautnaþorstinn
getur átt heima hjá fátæktinni eins
og auðnum. Og fátæktin getur,
eins og auðurinn orðið móðir
ýmsra lasta, móSir búksorgar og
öfundar, haturs og hörku og tor-
tryggni eins og fégirndin. En fá-
tæktinni er ekki éins tamt að gera
menn “storknaða” steinmenn, eins
og fégimdinni.
Mun það ekki hafa verið þetta,
þessi storknunarhætta mannssálar-
innar, sem Kristur hefir sérstak-
lega haft fyrir augum, þegar hann
varar við að varpa elsku sinni allri
á það, sem þessa heims er?
öll erum vér að leita að ham-
ingju.
Einn leitar hennar í efnunum,
annar í nautnunum, þriðji í list-
inni, ástinni eða þekkingunni.
Vel er þekkingarþorstanum lýst
í bréfi séra Tómasar Sæmunds-
sonar til föður síns. Tómas hefir
þá nýlokið háskólaprófi sínu í
Kaupmannahöfn og kveðst nú setja
hina einu eign sína, bókasafn sitt
að veði, til þess að geta farið suð-
ur í lönd, í nýja námsför. Og
hann bætir við: “Þessar bækur
hafa ekki sjaldan stolið frá mér
miðdagsmatnum hérna, svo eg tel
mig lukkulegan, að eg við það ekki
hefi skaðað heilsu mína.” Síðar
skrifar.hann úr námsför sinni, að
í Parisarborg hafi hann, vegna
skorts, orðið að leggjast rúmfast-
ur á þriðja mánuS, spýtandi rauðu
á hverjum viknamótum.”
Þarna sjáum vér mann, sem síð-
ar reis upp á banasænginni til að
telja kjark og dug í þjóð sína.
Vafalaust hefðu orð hans ekki
orðið eins máttug, ef hann hefði
ékki áður lagt í sölur fé og heilsu
fvrir þekkingarþorstann.
Þó fær þekkingin ein ekki nægt
manneðlinu til fulls. Hún fékk
ekki fullnægt séra Tómasi fremur
en öðrum. Sá, sem lætur sér nægja
hana eina, getur verið mjög
svo ófullkominn maður, þótt hann
eigi mikinn forða af fróðleik.
Hann getur orðið að steingjörfing
í lærdómi sínum, eins og stendur í
stökunni:
“Gerðu’ ei loks með lærdómsgrein-
um
lífsins brauð að dauðans steinum.”
Þekkingin gerir, eins og skáldjð
segir, lifsins brauð að dauðans
steinum, þegar hún nær ekki að
þroska manneðlið alt. Ef hún
veitir aðeins viti og næmi þroska,
en hvorki vilja né hjartalagi manns-
ins, þá getur þekkingin haft hlið-
stæð áhrif á mannssálina, eins og
auðsöfnun hefir stundum á ein-
sýnan fésýslumann. Lærdóms-
maðurinn getur storknað eins og
hann, ef hann, ^gleymir því, sem
stendur í Salómós orðskviðum, að
“í hjartanu eru uppsprettur lífs-
ins.”
Sá maður er storknaður, sem
gleymir hjarta sínu. En hjartað
minnir á sig. Það heldur áfram
að slá, þótt vér gleymum því einatt,
Mér kemur í hug einn af fjölfræð-
ingum þjóðar vorrar, maður, sem
virtist jafnvígur á fjölda fræði-
greina og vera sá sjór er alt gæti
gleypt. Hann hafði einnig þegið
skáldagáfuna og gat þessvegna
lýst því betur og glöggvar, en vér
hinir, sem i hjarta hans bjó. Það
er því einkennilegt að athuga hvern-
ig sá maður biður. Eg efast um,
að vér eigum einlægari og fegri
bænir um barnslegt hjarta en bæn
Benedikts Gröndals i kvæðinu
“Hret.” Hann byrjar á því að
Iýsa vetrinum. Þar sem alt hefir
fölnað: Liljan og rósin og sólin
sjálf. Lækurinn er stirðnaður og
bjarkarstofnarnir stynja aflaufg-
aðir í stórhríðinni. Og hann segir:
“Himininn fær ei að fella nein tár,
frosti hann grætur, það hagl er og
snjár.”
Hann heimfærir síðan þessa lýs-
ingu til sín sjálfs:
“Eins eru þornuð af augunum mín
ástsæla táranna lind, sem að skín
annars i heiminum huggunarrík,
himnanna drykk eru sannlega lik.”
“Man eg það áður um æskunnar
tið,
ofan um kinn streymdi báran þín
fríð.
Hún var svo beisk, en svo himnesk
og tær,
huggaði mig, og hún var mér svo
kær.”
Einn minnist þeirra stunda, er
hann átti barnshjartað:
“Út streymdi sorgin og inn streymdi
ró,
eymdin og reiðin í hjartanu dó.”
En nú grætur hann frostinu eins
og veturinn. Fyrir því biSur hann
til Guðs í kvæðislok, þessa bæn:
“Gjörðu mig aftur sem áður eg var
alvaldi Guð, meðan æskan mig bar!
Gefðu mér aftur hin gullegu tár.
Gefðu þau verði ekki hagl eða
snjár.”
Höfundurinn þekti bæði nautna-
þorstann. Og hann hafði, mörgum
fremur, tækifæri til að svala þeim
þorsta sínum. En sú svölun veitti
honum ekki fullnægju. Hann bar
annan æðri þorsta í brjósti sér.
Þorsta, sem hvarf honum ekki, þó
hann muni um alllangt skeiö hafa
litið sint honum. Hann vildi ekki
stirðna eins og lælcu#inn í vetrar-
hörkunum. Hann vildi ekki láta
hjarta sitt “storkna” eins og spek-
lingþrrinn hinum megin við hafið svo:
komst að orði. Og þessvegna leitar
hann að lokum til Guðs og biður
hann svo heitt :og( faguýlega, að
hann fái hætt að gráta frostinu.
heldur öðlist barnshjartað aftur.
Þetta sýnir oss eigi aðeins skálds-
ins hug. Þetta sýnir oss einnig
vorn insta hug. Vér sjáum hér
hvað mannshjartað í raun og veru
þráir heitast.
Þó að ástríðurnar sé*u sterkar,
þó að þorsti þeirra sé sár, þó að
vit 6g þekking fái á marga vegu
aukið oss þroska, þá er insta eðli
voru ekki fullnægt með því einu.
Vér berum í brjósti annan æðri
þorsta. Það er kærleiksþorstinn,
eilífðarþorstinn — guðsþorstinn
Guðsþörfin yfirgefur mann ekki,
þó. að henni sé burtu bægt, hún
kemur til vor aftur, eins og berg-
mál frá æðri veröld.
Á einum stað i ritningunni standa
þessi orð: “Jafnvel eilífðina hef-
ir hann lagt í brjóst þeirra.” (Tréd.
3.n).Vér fáum því skilið hvers-
vegna jafnvel hinir svonefndu van-
trúarmenn eru ekki einu sinni sjálf-
ir sneyddir trúartilfinningu og trú-
arlöngun. í prestsstarfi mínu hef-
ir mér jafnvel ekkert þótt eftir-
tektaverðara, en það, hve margir
afneitunarmenn eru þó í raun og
veru trúhneigðir menn, ef vér að-
eins fáum komist inn úr skurn-
inni og fundið það, sem þeir geyma
inst og dýpst í hjarta sér. Minnist
eg i því sambandi oft orða Þor-
steins Erlingssonar: “Maður efar
lengst það, sem maður þráir heit-
ast.” Þetta mun eiga heima um
alla “óstorknaða” “vantrúarmenn.”
Guö hefir m. ö. o. lagt eilífðina í
brjóst þeirra.
Eálífðarþorstinn, guðsþorstinn,
verður aldrei deyddur til fulls
Guð hefir lagt hann inn í brjóst
vor.
í griskum fræðum fornum er
undurfögur saga um bergmálið —
hvernig það sé til orðið i fvrstu
Bergmálið nefnist, svo sem kunn-
ugt er, á erfendum málum ekkó.
Ekkó-nafnið var upprunalega heiti
á dis einni guða-ættar með Grikkj-
um. Hún festi ást á sveini einum
fögrum, er siðar brást henni og
sveik hana í trygðum. Og dísin
unga tók sér trygðarofið svo nærri,
að hún veslaðist upp og dó, nema
röddin. Rödd hennar lifir enn i
dag og svarar þegar á hana er kall-
að.
Eins er um guðsþrána í brjósti
þér. Það er dis, sem er guðlegrar
ættar. Hún festi ást i hjarta þínu
i æsku og þú hézt henni trygð á
hinni hátiðlegustu heitstund. Má
véra að þú hafir brugðist þeirri
góðu dís. Má vera að þú hafir
jafnvel svikið guðlegu disina í
trygðum. Hún getur þessvegna
verið að velsast upp, eða jafnvel
að deyja í brjósti þér.
En eitt máttu vera viss um:
Rödd hennar devr ekki. Rödd
hennar lifir og mun svara þegar á
hana er kallað.
Fær þá ekkert kallað á þessa
helgu rödd í brjósti þér? Kallar
hvorki gleði né sorg, kallar hvorki
ást né von á guðsþörf þína? Græt-
ur þú frosti þegar lífsins beisku
vonbrigði ber að höndum. Eða
getur þú íþá grátið gulllegum tár-
um barnsins, þar sem jafnvel skín
bros gegn um tár? Ef þú getur
það ekki, ert iþú þá ekki þyrstur?
Ert þú þá ekki þyrstur í brunn,
sem þú fáir teygað af svölun, og
þú fáir drukkið af alt, sem hjartað
þarf og þráir heitast,—stýrk í
starfi, von i baráttu og vissu i sjálf-
um dauða?
því að hann hafi fundið brunninn,
brunn nýrra krafta á baráttu og
sorgum.
Að sömu þróttlind kom Matthías.
Hann mun að vísu ekki hafa komið
þangað nákvæmlega á sama hátt,
eða að öllu eftir sömu leiðum sem
Hallgrímur, fullum tveim öldum á
undan. En hann kom að sömu
lindinni samt.
Á efri árum sinum mælti hann
Sit eg út við sæinn
um sólarlagsstund,
senn fer eg að sofna
minn síðasta blund.
Hræðist þó ei hafið
né húmsala tjald;
eg á hjá þér heima
þú himneska vald!—
Og eg er aftur ungur
með ódauðlegt þor,
í eðli míns anda
býr eilifðar-vor.
Mœtur Islendingur
Við þennan brunninn þyrstur dvel
eg
þar mun eg nýja krafta fá,
i þessi inn eg fylgsnin fel eg
fargar engin sorg mér þá.
Sælan mig fyrir trúna tel eg.
hún tekur svo Drottins benjum á.
Þarna hefir skaldið fundið
brunn, sem hann fær teygað af
nýja krafta, er engin sorg né bar-
átta fær bugað. Eða vill nokkur
bera brigður á, að Hallgrímur
Pétursson hafi sjálfur öðlast
reynslu fyrir því, sem hann lýsir
þorstann og lista- og þekkingar- í sálminum? Nei, enginn neitar
Skáldið horfir þarna á það, sem
alt dauðlegt óttast. Hann horfir
út á haf dauðans fram undan, og
hann veit að senn er komið að sól-
arlagiriu, þegar dimmir af nótt.
En hann óttast ekki njólu dauðans,
né húmsali hans, því að hann felur
sig valdinu himneska. Hann minn-
ist þess, að hann er ungur og heim-
fús skólasveinn. Nú hefir hann
öðlast aftur sama traustið, hug-
rekkið og vorhugann, er hann
horfir móti dauða sínum, eins og
þegar hann var imgur að hverfa,
með hlakkandi vorhug, heim til
sín frá námsvist sinni. Þar veit
hann að hin si-þyrsta og si-unga
sál sin fær svölun, heima hjá föð-
ur Jesú.
Hvað er fegurra en að eiga sí-
þyrsta sál? Og hvað gæti verið
unaðslegra, en að fá þorstanum
eilifa fullnægt?
Þorstinn er aðal einkenni mann-
anna. Eitt hið ágætasta skáld ver-
aldarinnar hefir ort höfuðskáldrit
sitt til að vegsama þetta aðals-
mark. Ætti eg að velja barni minu
eða fermingarbarni, eða öðrum vini
minum, eina ósk, þá veit eg ekki
hvers eg ætti að óska fremur, en að
hatjn. fengi jafnan átt sí-þyrsta sál.
En hverja sí-þyrsta Ijós-sál vil
eg minna á orð, sem letruð eru
gullstöfum yfir dyrum hins elsta
og merkasta guðshúss, sem þjóðin
á: “Ef nokkurn þyrstir, þá komi
hann til min og drekki!” fjóh. 7>
37)-
Þau orð minna mig aftur a önn-
ur orð Jesú: “Komið til min.”
Eg undrast orö Jesú Krists. Eg
undrast frásöguna um yfirnáttúr-
lega fæðingu hans og komu í þenn-
an heim. Eg undrast frásöguna
um ummyndun hans, upprisu hans
og himnaför. En eg undrast ekk-
ert af því meira en þessi orð:
“Komið til min, alir þér, sem erf-
iðið og þunga eru hlaðnir, og eg
mun veita yður hvild!” fMatth.
11,28). Að hann skuli geta litið
yfir alla hina margvislegu eymd
mannanna, syndir þeirra, mótlæti
og sorgir, allar þeirra áhyggjur og
erfiðleika, allar þeirra duldu og
dánu vonir og alt það, sem lagt er
á mannshjartað leynt og ljóst og
á sérhverja von og þrá sí-þvrstra
sálna—og skuli svo við öllu, sem
mennina mæðir og öllu, sem þeir
eiga að striða við og þrá, gefa
þeim aðeins þetta eina ráð.
“Komið—komið til mín!”
Aðrir kennendur og trúarhöf-
undar hafa sagt: Farið!—farið
og hlýðið þessu. Farið og brevtið
þannig. Eða farið og leitið Guðs á
þennan veg eður annan. En Krist-
ur segir: (<Komið—komið til min.
__Fg undrast ekki meira þó hann
segist vera Guðs sonur. Eg undr-
ast ekkert, sem hann hefir safþ> eða
um hann hefir sagt verið, meira en
þessi orð hans.
Hvenær, sem mannshjartað
þyrstir, í leit sinni og þra, þá a sal
vor þetta athvarf, að fylgja ráði
Jesú, að koma til sín.
Þessu ráði ætti sí-þyrst ljóssálin
sízt að ganga fram bjá!
Ekki hafa þessir tveir menn, sem
eg nefndi nú síðast, komiS þangað
til ónýtis. Haldið þer að þeir hefðu
getað öðlast auðlegð sína nokkurs-
staðar annarsstaðar en þar? Nei,
annarsstaðar fa menn ekki fundið
fullnægju sinni instu og dýpstu
þörf.
Það er fast að orði kveðið hjá
Jesú, að i þorsta og þrá mannanna
þurfi ekki annað, en að koma til
Vm. En mannlifið sýnir að þetta
er rétt. Andi vor og askapað eðh
Jón G. Jónsson.
Hann er sonur þeirra góðkunnu
hjóna, Guðmundar Jónssonar frá
Húsey í Norður-Múlasýslu, <jg
frúar hans, er um al'l-Iangt ára-
skeið, hafa búið myndarbúi í
Vogar pósthéraði í grend við Mani-
tobavatn.
Ungur að aldri, fluttist Jón
hingað til lands, ásamt foreldr-
um sínum og systkinum, og lærði
snemma að meta gildi vinnunnar,
því lítt var um efni til að byrja
með.
Nokkru eftir að styrjöldin mikla
brauzt út, innritaðist Jón í 223.
herdeildina, og hélt tafarlaust til
vígstöðvanna. Gat hann sér í her-
þjónustu hinn bezta orðstír, öðl-
aðist undirforingja tign og hlaut
heiðurspening fyrir frækilega
framgöngu.
Frá því að Jón kom heim, að
loknum hildarleik, hefir hann á-
valt stundlað faírandsölu fyrir
ýms meiriháttar verzlunarfélög,
svo sem Tucketts tóbaksverksmiðj-
una, og Swift Canadian sláturfé-
lagið.
Núna, svo að segja nýverið,
hefir hann fengið nýja ábyrgðar-
stöðu, sem einka-fulltrúi fyrir
farandsala samband Vesturlands-
Er það álitleg og vel launuð
ms.
staða. Um stöðuna sóttu í alt
sextíu og fimm menn, 0g varð Jón
þeirra hlutskarpastur. Má af því
ljóslega marka, hvers álits og
trausts hann nýtur.
Jón G. Jónsson er fæddur í Hús-
ey, þann 8. dag septembermánað-
ar, árið 1891, og er því maður í
broddi lífsins. Kvæntur er hann
fyrir nokkrum árum, ágætri og há-
mentaðri konu af amerískum
ættum.
finnur þá fyrst fullnægju, er vér
komum þyrstir til Jesú. Þar fær
eilífðarþorsti mannshjartans loks
fulla svölun.
Hann, sem lagði eilífðina í brjóst
vor, hann, sem lætur bergmál sitt
tala inn í hjörtu vor. Hann, sem
vekur þorsta og þrá mannshjart-
ans, býður þér nú til sín. Hann
segir til mín og þín og sérhvers,
sem or<5 hans heyrir: “Ef nokk-
urn þyrstir, þá komi hann til min
og drekki!”
Ef vér tökum því boði hans, þá
munum vér, með þakklátum og
fagnandi huga geta sungið:
Eg kom til Jesú. örþreytt önd
þar alla svölun fann;
hjá honum drakk eg lífs af lind;
mitt líf er sjálfur hann.
—Presta f élagsr itiS.
Jól.
Með hátíða brag
og háleita þanka í hjarta,
í helgidómsmusterið bjarta,
með hátíðabrag.
Flýtum nú ferð
til ffrelsarans friðkeyptra lýða,
í fögnuðinn englanna blíða,
flýtum nú ferð.
I
Hljómar oss raust,
fögnum vér friðarins kalli
þess forðum lá reifður í stalli,
hlýðum hans raust.
Halelúja,
í heilögum hjúpi oss gefnum
til himnanna konungs vor
stefnum.
Halelú ja!
M. Einarsson.