Lögberg - 20.12.1928, Blaðsíða 3

Lögberg - 20.12.1928, Blaðsíða 3
LÖGBERG FIMTUDAGINN 20. DESEMBER, 1928. Bl.s li. Hvítár verður sem gruggugt skólp. Er því líkast sem Hvítá fyrirverði sig fyrir hinn sauruga lit, því úr þvi lætur hún ekkert á sér bera fyrst um sinn. Þegar Geitá er komin i förina, styngur hún sér niSur í gljúfraþröng, þar sem heunar gætir lítiö. Beggja megin árinnar er landiÖ vaxiÖ þéttum birkiskógi, sem breiÖir sig yfir ár- gljúfrin. VerÖur árinnar því ekki vart fyr en komiÖ er fast aÖ henni og ekki er hún breiðari en það, að litið vantar til að léttir menn gætu stokkið yfir hana. Heita þessir gljúfraskorningar Stokkar. Þann- ig aðskilur Hvítá hin fögru skóg- arlönd Húsafells og Kalmanstungu. Norðlingafljót hefir upptök sín í noröurenda Langajökuls, en sam- einast Hvitá við vestur enda Tung- unnar. Er það þá búið að streyma meÖ norðurjaðri Hallmundarhrauns um 85—90 rasta veg. Norðlinga- fljót er vel reitt á vöðum þegar ekki eru vatnavextir, og ekki er mér vitanlegt um nein slys eða mann- tjón í sambandi við það. Saman- stendur það af jökulvatni, 'berg- vatni og nokkrum lækjum úr veiði- vötnum á Arnarvatnsheiði. Vegna þess hve ibergvatnsins gætir lítið liggur það á ísurn alla vetra, þegar um nokkur frost er að ræða. Þeg- ar Norðlingafljót hefir kastað sér í fang Hvítár, fer hún að hafa hærra og láta meira yfir sér. Beygir hún þá til útsuðurs fyrir vestur- endann á Húsafellsskógi, en að uorðan tekur við vestasti kafli Hall- mundarhrauns, sem er í Gilsbakka- landi. Tvö vöð voru talin fær úr Húsafellsskógi til Gilsbakka, Hundavað við Tungusporð, og Oddavaö litlu neðar. Eru bæði þau vöð aðeins fær séu engir vatna- vextir, tsép eru þau og vond í botn. Ekki er mér kunnugt um það, að þar hafi orðið manntjón á síðustu öld, en mjótt var á milli, er Björn á Húsafelli síðar bóndi í Bæ bjarg- aði iMagnúsi Símonarsyni frá Reykjavöllum þar úr ánni. Magnús var afi Magnúsar Arinbjarnarson- ar lögfræðings i Reykjavík. Hest- ur Magnúsar féll í miðri ánni, sem var á miðjar síður og straumhörð aö því skapi. Stökk Björn af hesti sínum og greip Magnús og bar til lands. Þótti það, sem hið mesta þrekvirki, enda var Björn skjótur til úrræða og karlmenni að burð- um. Fyrir neðan Oddavað fær Hvítá fjórar ár í lið við sig: Kaldá, Stuttá, Kiðá og Oddauppsprettur. Alt eru þetta silfurtærar bergvatns- ár, sem koma undan Húsafells- skógi. Fleyta allar þessar ár næst- um eins miklu vatni eins og Hvítá hafði áður yfir að ráða. Vex nú oflæti hennar og afl svo að engri skepnu er hún fær á nálega 8 rasta vegalengd. Brýst hún nú óðfluga fram á fossum og flúðum og hevr- ist hinn þungi niður hennar um langa vegi. Eru það Halafoss og Barnafoss, sem láta mest til sín heyra. Fr það hið harða og háa Hallmundarhraun, sem varnar henni landgöngu. Þar á hrauninu stóð þjóðskáldið Steingr. Thor- steinsson er hann kvað þetta erindi í Gilsbakkaljóðum: “Þei, þei, eg heyrði harðann gný, sem hrynji skriða um grundir. AÖ hraunsnös yztu hratt eg sný, þar hyldjúpt flug er undir. Sjá Hvxtá fram i fossi brýst, úr fjallagljúfrum þröngum. Og hvitfreydd, blágræn hart fram gnýst i heljar klettagöngum.” Smátt og smátt lægir áin ham- farirnar og nokkru fyrir austan Stór-Ás i Hálsasveit fer hún að slá sér út á forotum. Þessi vöð voru á Hvita meðfram Hvítársiðu: Ásvað, nokkuð fyrir austan Stór-Ás, Bjarnastaðavað, neðan við Bjarnastaðatún, Snaga- vaö, móts við Sámstaðafjárhús Bja’rnavað. autan til við Háfell og Fróðastaðavað, undan Fróðastoö- um. Var það eitt vígt og voru sum- ir óhultari um lif sitt á því vaði fyrir þá helgi, sem á þvi hvoldi, vígslunnar vegna. Þess utan var þar dýpið jafnast og footninn best- ur. Þar hefir ekki orðið manntjón, mér vitanlega, á síðustu pld, en nærri lá er Vigdísi í Deildartungu varð bjargað þar úr ánni með litlu lifsmarki. Var það um eða lxtlu eftir 1S60. Vigdís varö siðar nafnkend kona og margra barna móðir, þar á rneðal stórbóndans Jóns Hannessonar i Deildartungu. Þegar kemur niður fyrir Klaffoss er Sandholtsvað hið eina, sem telj- andi er fært. FTafa þessi tvö síð- asttöldu vöð haldist lítið breytt fra ómunatíð. Rétt fyrir neöan Tvatig- holtsvað rennur Þverá i Hvítá. Kemur hún austan af Kjarrardal og rennur meðfram Þverárhlíð og um Stafholtstungur. Litlu neðar kemur Norðurá í Hvitá. Renn ur hún um Norðurárdal og Staf- ár, sem hqr eru taldar Mýrasýslu þess, af slysin verða fyrir vöntun megin. Það verða um þrjátiu ár, brúa og vöntun sundkunnáttu. 1880, sem sem hafa fallið í Hvítá skamt áður en hún leggur leið sína undir hina nýju Hvítárbrú, og þess utan eru Það var litlu eftir Þorsteinn Magnússon bóndi a Húsafelli hreifði því máli fyrstur otahn oll gil stor og sma. Verður , manna> að nau8syn bæri ti, ag brúa það heljar afl aldrex mælt ne metxð, | Hkrítá á Barnafossi. Nokkrir sem oll þessi vatnsfoll hafa yfir að j bændur studdu strax þessa . raða meðan þau eru að kasta ser stungu Þorsteins> svo sem Þor. fram af flughaum bergstollum og flýta sér öll til hins mikla hafs; eins og þau eigi lifið að leysa. Og þótt af þeim sé mesti asinn er þau falla hér fram undir hinni miklu brú, þá er það víst, að við þeim stenst ekkert hrákasmíði. Það yrði of langt mál að rekja hér allar þær slysasögur, standa í sambandi við allar ár þess- a héraðs. Vil eg þó geta um nokkra atburði. ÁriÖ 1841 reið Árni Einarsson bóndi í Kalmanns- tungu frá Rauðsgilsrétt og ætlaði yfir Hvítá á Bjarnavaði. Mágur hans Jón hreppstjóri Kristjánsson á Kjalvararstöðum reið með honum að vaðinu. Áin var í vexti og stóðst ekki hesturinn straumþung- ann og hraktist af vaðinu í iðu- kastið. Þar druknaði Árni. Var hann einn af stórmannlegustu bændum þessa héraðs.—Hann dó frá konu og 8 ungum börnum, að eins 32 ára að aldri. Meðal foræðra hans voru þeir Halldór sýslumaður i Höfn og Magnús á Hrafnabjörg- um. Sonur Árna var Þorsteinn smiður á Flofstöðum i Hálsasveit, faðir Áma smiðs á Brennistöðum í Flókadal. Fjöldi fólks er frá Áma komið, bæði hér á landi og i Ameríku. Þennan dag, sem Árni fórst i ánni reið á því sama vaði kvenmaður, sem Kristín hét, Páls- dóttir. Hefir hennar víða verið getið sakir áræðis og afls. Það fór á sömuleið fyrir henni að hestin- um kastaði fram í strenginn, en fax | svo sem| steinn Árnason á Hofsstöðum og Jón íStóra-Ási, bróðir Þorsteins á Húsafelli. Með því að fá þar brú, fríuðust menn við að tefla lífi sinu í hættu á hálfófæmm vöðum, eins og raun gaf vitni, að áður hafði oft verið gjört. Á brúnni gátu menn líka rekið fénað sinn bæði til sem afréttar á vorum og heim á haust- um, sem að öðrum kosti varð að reka yfir 4 ár, Kaldá, Geitá, Hvítá og Norðlingafljót. Öll þessi vatns- föll gátu orðið ófær í haustrign- ingum. Margir voru andstæðir þessari forúarhugmynd í fyrstu, meðfram vegna þess, að fólk hafði heyrt þjóðsöguna um Hraunsár- foömin, sem áttu að hafa fallið í Hvitá út af steinboganum, sem var yfir ána á fossinum. Sagan sagði að móðir barnanna hefði þá látið höggva bogann niður og Iagt það á að þar skyldi enginn maður komast lifs yfir, um aldur og æfi. Það gaf álagatrúnni nýtt líf, atvik, sem skeði við fossinn í lok 18. aldar. Það var þá í miklum vetrarharð- indum, að ísspöng kom á gljúfrið við fossinn, er það þó næsta fá- títt, og aldrei tollir ís á Hvítá degi lengur alla leið frá Húsafelli og niður fyrir Hvitársíðu. Veldur þvi kaldavermslan. Vinnumaður frá Gilsbakka átti leið yfir ána. Datt honum þá í hug, að sýna að álög Hraunsárkonunnar væru að engu orðin, með því að fara yfir ána á ísspöng þessari, en óðara en holtstungur. Er hún meiri að vexti en Þverá og auðugri að frjoefnum. en ekki eins veiðisæl, eru þar þo allmargir veiðihyljir. Sunanmegin koma Reykjadalsa um Reykholtsdal, Geirsá og Flóka- dalsá um Flókadal og Grimsá um Lundareykjadal. Ekki eru þær ár líkt því eins veiðisælar, sem þær jafnsnemma gat hún gripið i hestsins foæði með höndum munni og svam hún þannig til lands nær dauða en lífi. Á þessum árum druknaði karlmaður og kven- maður á Ásvaði. Féll stúlkan í ána, en maðurinn, sem var'hraust- ur með afbrigðum, stökk af hesti sinum, gat gripið í stúlkuna og ætl- aði að bera hana til lands. Var það lengi sem ekki mátti milli sjá, hvort betur mætti, orka mannsins eða hinn stríði straumur, en að lokum kastaði straumurinn þeim fram og fórust þau bæði. Fleira fólk var í förinni, sem varð þessi atburður ógleymanlegur. 1850 fórst Samson foóndi á Rauðsgili á Bjarna- vaði og'Þórðúr Einarsson á Auðs- stöðum um líkt leiti. Þorsteinn Þiðriksson á Hurðarbaki fórst i Hvítá 1859. Auk þessara voru aðrir hætt komnir, svo sem Árni bóndi í Hvammi, sem flaut lengi ofan á, á reiðhesti sínum daúðum. Drukknaði hesturinn á sundi. Rak þá upp á eyri í ánni og komst Árni lífs af. Hann var föðurbróðir Hjartar Þórðarsonar hins fræga rafurmagnsfræðings í Chicago. Eg hefi hripað upp, eftir minni, tölu þeirra manna, sem fárist hafa í Hvitá á síðasta mannsaldri, og aðrar ár héraðsins, er í Hvitá renna. í Norðúra hafa faxist / menn, í Þverá 6 menn, i Gilsbakka- gil 2 menn. Mýrasýslu megin alls 13 menn. í Kiðá hja Husafelli x maður, í Ásgil 1 maður, í Reykja- dalsá 4 menn í Geirá 1 maður, 5 Flókadalsá 4 menn, i Grímsá 3 menn. Borgarfjarðarsýslu megin 14 menn. Stórtækust er þó Hvíta sjálf. í henni hafa farist 10 menn af hestum, 1 maður um ís, 6 menn af ferjum, 6 menn i sambandi við veiðiskap og að siðustu 4 eða 5 menn, sem að líkindum hafa drekt sér af yfirlögðu ráði. Koma þá eða 28 í hlut Hvítár einnar. Þetta hefir alt skeð á siðastliðnum go—go árum. Hvað myndi þá, væru allir taldir, sem áin hefii grandað frá landnámstíð. Nú eru liðin 38 ár síðan fyrsta brúin var bygð hér í Borgarfirði; var það brúin á Barnafossi. 35 ár liðin síðan Hvítá var forúuð á Klaf- fossi; 16 ár síðan Norðurá var búuð á Haugahyl og litlu síðar var Þverá brúuð hjá Lundum, er það steinbogabrú. Þá er hengxbru a Örnólfsdalsá hjá Norðtungu. Þess er vert að geta, að engin slys hafa borið að hönduxn í þessum ám sxð- an brýrnar kom, og engin slys urðu við byggingu þessara brúa önnur en það, að einn maður , fórst í NorSurá, er var þar við brúarsmíði og annar féll þar í ána, sem góður sundmaður gat bjargað. Það er vöntun brúa og vöntun sundkunnáttu, sem átt hefir mest- an þátt í þessum mörgu stysum Þar sem Norðurarbruin stendur var það sem Stykkishólmspóstur- inn Árni Jónsson á Flóðatanga druknaði um ís á vorleysingum, og þar sem Þverárbrúin stendur var það sem merkisbóndinn Ásgexr Finnbogason drukknaði um ís. Þar sem hin nýja Hvitarbru nu stendxxr var það sem Kristjan bondi 1 Valla- koti drukknaði af ferju ásamt Tóni syni sínurn, voru þeir á leið norður yfij- ána. Var Kristján afi Sigurð- ar Féldsted bónda x Ferjukoti. Þetta litla yfirlit er gott dæmi hann steig á spöngina féll hún nið- ur og maðurinn með. Varð það °f> i hans bani. Þóttist fólk þá sjá, að ekki væri það neitt hégómamál meö áhrif álaganna. Þegar brúarmálið kom á dagsskrá voru það ýmsir eldri menn, sem þótti þetta mesta gjörræði og spáðu því, að slíkt gengi aldrei slysalaust að brúa ána. Sámt héldu forgöngumennimir málinu vakandi og eftir að séra Guðmundur . Helgason kom að Reykholti varð hann einn bezti stuðningsmaður þessa máls. Komst það í framkvæmd, að áin var brú- uð fyrir fjárframlag frá mönnurn úr Hálsasveit og Reykholtsdal, sem J>á voru ný-búnir að kaupa afrétt á Arnarvatnsheiði. Þá voru menn ekki að senda alþingi bænarbréf um fjárstyrk. Einar Guðmunds-, son, foóndi á Hraunum i Fljótum kom forúnni á með aðstoð Árna Þorsteinssonar, sem nú er bóndi á hið mesta þing og alveg ómissandi. verkið fljótt og slysalaust. Var þetta fyrsta brú, sem bygð var á Suðurlandi. Ölfusárbrúin kom ári síðar. Vegna þess a Barnafossbrú- in var bygð fyrir fjárframlag fárra manna, sem voru hér brautryðj- endur í brúagerð, þá er vel þess Vert að geta þess hér. Þegar brúin var komin á Bama- foss, viðurkendi það hver maður, er hennar hafði' not, að hún væri hið mesta þing oð alveg ómissandi. Vöknuðu menn þá alment til með- vitundar um það, hve brýn nauð- syn væri að fá brýr og vegi. Nú eru brýrnar sannnefnd óskaböm allra Islendinga, sem í sveitum foúa, og nýtt gleðiefni er það í hvert sinn, sem ný forú bætist í tölu hinna eldri. Nú er það Ijóst hverjum manni, að fyrir brýr og vegi er margt framkvæmanlegt, sem að öðrum kosti er ókleift. Og hve mörgum slysum brýrnar bægja frá mönnum og málleysingjum, það verður aldrei með tölum talið. Þrátt fyrir alla hina miklu kosti Hvitár, sem eg hefi áður talið, þá hefir hún líka alt frá landnámstið, verið meinvættur þessa héraðs. Hún hefir verið háð þeim örlög- um að vinna ótal hermdarverk. Nú getur hún farið að syngja þeim mönnum lof um aldur og æfi, sem hafa leyst hana frá þeim þungu ör- lögum. Það eru brúarsmiðir og sundkennarar, sem fyrstir manna eiga þann lofsöng með réttu. VTð Borgfirðingar höfum mik- ið að þakka öllum þeim, sem stuðl- að hafa að framkvæmd brúarmáls- ins; er þetta mikla mannvirki bæði gagn og prýði þessa héraðs. Eru það jafnt þeir, sem hafa lagt fram vit, fé eða vinnu, sem þakkirnar eiga. Og síst ætti að gleymast þakklætið til hins algóða og mikla máttar, sem gefið hefir mönnum vit og krafta til þess að fram- kvæma þetta stórvirki og sem hefir verndað þá frá öllum slysum í sam- bandi við það......... Þá sný eg mér aftur að héraðs- fréttum smáum og stórum og flökti þá með hugann úr einum stað í annan í þeirri fréttaleit. Hið stóra mál um virkjun Andakilsár- foss, er nú um stund lagst í þagn- argildi. Hafa héraðsbúar í svo mörg horn að líta, að margar fram- kvæmdir verða að bíða eftir næstu kynslóð og meðal þess verður að ASHDOWN’S fyrir jólagjafir 2 Mikið úrval af þarflegum hlutum til jólagjafa, fvrir alla i fjölskyldunni. Leikföng fyrir börnin Mikið úrval af leikföngum, nýjum og betri tegundum— leikföng, sem endast vel. RAFMAGNS STRAUJÁRN RAFMAGNS TOASTERS RAFMAGNS PERCOLATOR RAEMAGNS ÞVOTTAVÉLAR RAFMAGNS GÓLF POLISHER RAFMAGNS ELDAVÉLAR RAFMAGNS LAMPAR KISTUR og TÖSKUR BOX FYRIR KVENHATTA TÖSKUR FYRIR KJÓLA THERMOS FLÖSKUR í HITAGEYMIR Skautar og það, sem þeim tilheyrir—-Peysur Hockey Sticks—Hneptar Peysur—Byssur—Riflar Skotfæri—Smíðatóla Kistur ög Smíðabekkir Vasahnífar og Rökunar Áhöld—Hnífapör Silfur Varningur og Cut Glass Öryggis rakhnífar og Burstar. The J. H. Ashdown Hardware Company, Limited MAIN STREET WINNIPEG líkindum virkjun fossanna. Nú er samt að vakna áhugi hjá ýmsum bændum hér, aS virkja ár og læki, sem hafa sæmileg skityrði til þess. Tveir foændur í Borgarf jarðarsýslu eru foúnir að koma því í fram- kvæmd. Eru það Bjöm Lárusson bóndi á Ósi i Skilmannahreppi, sonur Lárusar Björnssonar frá Hóli í Lundareykjadal og Kolbeinn Guðmundsson í Stórási, sonur Guðmundar Sigurðssonar á Kols- stöðum. Hefir Björn tekið lækinn sem fossar fram af bakkanum, er bærinn stendur á. Er það vatn helst til litið og nægir heimilinu tæplega til, suðu og ljósa. Kolbeinn hefir veitt heim læk úr Áslaugum og fullnægir rafstöð hans heimil- inu til allra heimilisnota hvað hita, ljós og suðu snertir. Er þar nú ekki einungis uppljómað hvert her- bergi i bæjarhúsum, heldur lika nokkuð af útihúsum. Kostaði upp- sett 6-7 þúsund kr. Á nokkrum fleiri stöðum eru talin góð skilyrði til rafvirkjunar, svo sem Húsa- felli og Kalmannstungu, þar sem kaldavermsluárnar eru jafnþýðar í vetrarhörkum og sumarhitum. Eg gat þess í síðasta bréfi, að Jón Þorbergsson á Bessastöðum hefði keypt bæ í Bæjarsveit og flytti þangað í vor. En þetta breytt- ist. Þegar Jón hafði gert þessi kaup stóð honum til boða Laxa- mýri í Þingeyjarsýslu. Hann er þaðan úr sýslunni upprunninn og kaus hann heldur að ná því höfuð- bóli, sem er svo víðfrægt fyrir hin mörgu hlunnindi, en sem að sögn ekki hefir verið ræktað með eins miklum myndarlforag hin síðustu ár eins og í tið gamla Sigurjóns. Samt eru þar stór og vönduð ifoúð- arhús en hinn mikli bær horfinn, sem Finnbogi Hljálmarsson lýsir i sínum skemtilegu minningum frá þeim slóðum, er Lögberg flutti. En þótt hinn forni bær sé horfinn frá Laxamýri, þá er þar enn þá yfir dyrum útskurSurinn frægi, þar sem æðarkollan lúrir við eggin sín. Annars ætti eg ekki að blanda mér inn í það að segja fréttir úr Þingeyjarsýslu, sem eg hefi að eins séð í anda. Sný því hið bráðasta heim í átthaga mína. I hið umsamda kaup Jóns Þor- bergssonar á Bæ, gengu bræður tveir, Guðmundur og Þórður Jóns- synir Helgasonar frá Króki í Norðurárdal. Var sá Jón Helga- son föðurbróðir Jósafats ættfræð- ings. Kom Guðmundur vestan frá Ameríku síðastliðið vor. Um hina væntanlegu Þingvalla- hátíð 1930 er nú bæði hugsað og talað. Á síðustu sýslufundum var það mál til meðferðar og talsvert um það talað. Er þaö í ráði að hver sýsla landsins hafi afmarkað svæði fyrir tjöld sín og innan 'þess svæðis hafi aftur hver hreppur af- markað svæði fyrir sín tjöld. Eigi svo hver sýsla eitt gestatjald á sin- um reit. Þetta fyrirkomulag gæti gjört ykkur Ameríkumönnum hæg- ara fyrir að finna forna vini. Annars er nógur tími til stefnu að skrifa nánar siðar hvað gjörist í þeim efnum, og margt getur breyst til þess mikla dags, sém ýmsir eru farnir að hlakka til og fleiri en þá verða á lifi. En allir óska þess, að sá meiningamunur, sem orðinn er um það mál vestan hafs, verði þá gleymdur og grafinn og Vestmenn geti sem flestir fengið að líta ætt- jörðina með sameinuðum hug og hjörtum. Þegar eg er kominn með hugann vestur yfir hafið sé eg ykk- ur í anda, bæði karla og konur, sem eg þekti fyrir fleiri tugum ára og mér finst þið allir óbreyttir frá því er eg sá ykkur síðast og eg hefi beztu sannanir fyrir því, að ætt- jarðarást ykkar er enn óbreytt. Það sannar bezt allur hlýleikinn, sem frá ykkur andar í ýmsum myndum. Á eg þar sérstaklega við ykkar vin- samlegu bréf. Það er ánægjulegt að sjá það af bréfum ykkar öldr- uðu manna, sem eigið nú sjö og átta áratugi að baki, að það er eins og þið hafið flutt ísland með ykk- ur vestur yfir hafið og haft það fyrir augum alla daga, svo vel kunnið þið skil á öllu hér. í mínu síðasta bréfi minnist eg með nafni aðeins á einn vina minna, sem sendi mér trjásprota í vor. Eg hefi nú sent honum linu og sagt hon- um frá ,því hver vel þeir spruttu í sumar í hinni íslenzku mold. En nú var eg að meðtaka bréf frá þessum góða manni, sem er nýr vottur um ást hans á hinni gömlu móðurmold. Bréfið er tilkynning um það, að hann sendi mér trjá- og blómafræ, og merkilega nákvæma lýsing hvernig með það skuli fara í sáö- reitum. Pakkinn, sem fræið er í, hefir orðið viðskila við bréfið og er enn ókominn, en kemur vonandi bráðum. Þessi sending hefir vak- ið hina mestu von og gleði meðal alls míns fólks, sem er svo hjart- anlega hrifið af ræktun trjáa og blóma. Nú sendum við öll, trjá- og iblómavininum, hina beztu kveðju með þökkum fyrir fræið, sem við teljum vist að komi til skila. Verður alt gert til þess að veita því þá þjónustu, sem er sam- kvæm fyrirsögn gefandans, sem alt mitt fólk er nú að lofa fyrir send- ingu þessa. Nú er nokkur lasleiki að byrja hér um þessa bygð, svo sem slæm kvefsótt, sem sumir nefna innflú- ensu og mislinga hefir Hka orðið hér vart. Er nú margt fólk hér i efri sveitum héraðsins, sem ekki hefir fengið mislinga og gætu þeir því orðið hættulegir, ef þeir ná út- breiðslu. Nokkuð hefir látist hér af nafn- kendu fólki frá því er eg skrifaði síðast, skal þá nokkurra manna minst. Ólafur Davíðsson stórbóndi á Hvítárvöllum lézt i júní mánuði. Var skorinn upp í Reykjavik við innvortis meinsemd, og dó viku siðar. Hann var 70 ára að aldri, og hraustur og unglegur þar til í vor að hann kendi þess sjúkleika sem varð hans bani. Hann átti 9 börn á lífi uppkomin og mannvæn- leg. Bjarni Pétursson hreppstjóri á Grund í Skorradal lést í ágúst mán- uði. Hann var sömuleiðis skorinn upp við meinsemd i maga, en dó strax eftir uppskurðinn. Hann var hinn mesti fyrirmyndar bóndi og héimili hans orðlagt fyrir snyrti- brag og gestrisni. Hann átti 3 uppkomin Ibörn, Kristinu, Pétur og Guðrúnu. Þau eru öll heima. Bjami var 59 ára gamall. Um sama leiti dó Hallbera systir Bjarna. Var hún kona Ólafs Stejxhensen. Hafa þau búið í Reykjavík síðustu ára- tugi. Helga Jakobsdóttir kona Guðmundar Bjamasonar á Hæli í Flókadal lézt eftir barnsburð í Síðastliðnum mánuði. Hún var dóttir Jaköbs á Varmalæk. Var hún ein meðal skörulegustu og myndarlegustu konum þessa hér- aðs. Þar á Hæli var bygt mjög stórt og vandað ibúðarhús í sumar og bar það saman, að hin myndar- lega húsfreyja var látin þegar hús- ið var til reiðu. Var það öllum hrygðarefni, því konan var hverj- um manni kær, seni hafði af henni nokkur kynni. öllu þessu fólki fylgdi hið mesta fjölmenni til grafa, víðsvegar úr nærliggjandi bygðum. Er nú hlut- taka fólks við slík tækifæri inni- legri en áður var. Samúðarmerki koma víðsvegar að, ýmist mefi krönsum eða minnisspjöldum um hinn látna vin, og alt er með meiri snyrtimensku og menningarbrag við jarðarfarir heldur en var hér tíðast fyrir nokkrum árum. Meðal annars er nú aldrei flutt lík um þverbak á hesti, sem aldrei þótti nema hið hörmulegasta úrræði, þrátt fyrir margra alda vana. Þá er líka horfið hér frá því að fylla grafrr í viðurvist vina og vanda- manna. í þess stað snýr söfnuður- inn aftur til kirkju og hlýðir þar á söng samæfðra manna. Þá verður nú þessu brefi lokið. Það skýtur ekki fleiru fram í hug- ann þessa stundina, sem vert sé að j skrifa, er þó fæst sagt sem ýmsa i I fjarlægðinni fýsir að heyra. j Að síðustu bið eg vkkur að fvr- i irgefa þessar línur. Kveð eg ykk- i ur alla með beztu óskum um góða ' framtíð. Ykkar með vinsemd, Kr. Þ. SKRÍTEINI FYRIR SJÁLFSTÆÐI. Samningur við HveitisamlagiS, er skírteini bóndans í Canada fyrir sjálfstæði lians. Fyrir aðgerðir Hveitisamlagsins hefir hann nú í fyrsta sinni full umráð sinna eigm eigna, fær um að mæta hvaða stórgróSafélagi sem er, þó voldugt sé, sem jafninga sín- um, og getur nú loksins selt uppskeru sína á skynsamlegan og hagkvæman hátt. J>aJJ, sem fyrir fimm árwn mátti heita of dirfskufull tilraun. er nú orðiiJ að leru- leika, sem hefir stórkostleg áhrif á sölu korntegunda í heiminum, sérstaklega viðskiftin í Canada; mesta samvinnu-fyrirtœki, sem nokkurs staðar hefir átt sér stað. ÞaS er nokk- uð til að vera stoltur af, ekki aSeins fyrir hændurna í Canada, heldur í öllum löndum, að þessum stórkostlega samvinnufélagsskap hefir verið komiS á fót og er að öllu leyti stjórn- að af bændunum sjálfum. Á 'þeim fimm árum, sem Hveitisamlagið hefir verið starfandi, liefir þsð selt fyrir bændurna í Vestur-Canada meir en sjö hundruð og fimtíu miljónir mæla af öllum korn- tegundum, og í gegn um þess hendur hafa farið meir en biljón 0g hundrað miljónir dala. HveitisamlagiS hefir byrjað nýtt tímabil, hvað snertir samninga við bændurna uny að höndla hveiti þeirra, með'meiri yfirráSum yfir uppskerunni, hefir samið um miljomr ekra meir en þegar það byrjaði og hefir yfir fjórtán hundruð kornhlöður í sveitunum víðsvegar og ellefu afar-stórar kornlilöður á endastöðvunum, sem til samans taka meira en áttatíu miljónir mæla* Til þessa og annars slíks hafa Samlagsbændur yarið einum tuttugu miljónum dala. Umsetning Hveitisamslagsins eykst sórkostlega ár frá ari. KornhlöSur þess eru nú allstaðar þar sem þeirra er mest þörf og þess verSur ekkýlangt að bíða, að þaS hafi kornhlöður á svo að segja hverri járriforautarstöð, á öllu því svæði 1 Vestur-Canada, þar sem kornrækt er stunduð. Þar sem Samlagið hefir nú komist í fast horf, þá eru ekki meiri líkur til að bœndurn- ir í Vestur-Canada gefi frá sér yfirráðin yfir uppskeru sinni, heldur en þejr kasti frásér sínum nýtízku-jarðyrkjuverkfœrum og taki upp aftur gömlu og úreltu áhöldin., Því er þó ekki að neita, að nokkur vafi gat leikið á hvermg bændurnir kynnu að líta á málið, ef hveitiv'erSið vrði lágt, þegar að því kom að endurnýja samningana. Þessi reynslu- tími kom í síðastliðnum ágústmánuði, og reynslan hefir ótvíræðlega sannað, að þeir höfðu rétt fyrir sér, sem mesta trú höfðu á sjálfstæði og dómgreind bændanna í Y estur-Canada. Þegar hveitiverðið féll í ágústmánuði, komu samningarnir undirskrifaðir af bændunum hundruðum og þúsundum saman á allar skriftofur Hveitisamlagsins, 0g haiði það sín góðu árhrif á markaSsverðiS. Eitt af því, sem mjög mikið hefir hjálpað bændum til að byggja upp og efla þennan félagsskap, er sá mikli stuðningur, sem þetta miklu samvinnu fvrirtæki hefir notiS hjá verzlunarmönnum og f jármálamönnum vfirleitt, alstaðar i Y estur-Canada. Slíkir menn sjá og v.iSurkenna, að HveitisamlagiS hafi stórlega bætt f járhag bændanna og eflt samtök þeirra og kjark og góðu vonir og þaS ekki sízt, nu í haust, þegar frostiS vann bændunum svo ómetanlegt tjón. Þeir, sem liveiti vort kaupa í öðrum löndum, líta nú á Hveitisamlagið í Canada með meiri vinsemd og gleggra skilningi heldur en áður, Þeir skilja, aS það kemur í veg fyrir vafasamt og óholt gróðabrall og gerir verðiS stöðugra og jafnara og tryggir framleiS- andanum liæfilega borgun fyrir vinnu sína, án þess að verðið sé óhæfilega hátt fvrir þann, sem kaupa þarf. Rveitisamlagið er öllum bœndum í Vestur-Canada til gagns, sem hveiti rækta, en sérstaklega þeim, sem hafa komið því á fót, og $em fyrir það hafa fengið ábyggilegt skír- teini fyrir sjádfstæði sem bændur og sem hér cftir ætla sjálfir að gæta eigin hagsmuna. Manitoba Wheat Pool. Saskatchewan Wheat Pool. Alberta YYTheat Pool, YYJinnipeg, Manitoba. Regina, Saskatchewan. Calgary, Alberta. THE CANADIAN CO-OPERATIVE WHEAT PRODUCERS LIMITED.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.