Lögberg - 11.04.1929, Blaðsíða 4

Lögberg - 11.04.1929, Blaðsíða 4
Bl3. 4. LÖGBERG l'IMTUDAGINN 11. APRÍL 1929. r"c ^ögticrg Gefið út hvern fimludag af The Col- umbia Press, Ltd., Cor. Sargent Ave. og Toronto St., Winnipeg, Man. Talsímar: 86 327 og 86 328 Einar P. Jónsson, Editor Utanáskrift blaðsins: The Golumbia Press, Ltd., Box 3172 Winnipeg, Man. Utanáskrift ritstjórans: Editor Lögberg, Box 3172, Winnipeg, Man. Verð $3.00 um árið. Borgist fyrirfram. The “Lögberg” ia printed and published by The Columbia Press, Limited, in the Columbia Building, 693 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba. ,30C=3»C ~n*w--------------------in<-----,n<----->n<---->nf oc5 imtswmBmuBntiiiHniHiiaiiiiBiaHiiHi'aniHiiiaiiuBiiitHiMKiiH Stjórnmálahorfur á Bretlandi Fátt mun það vera í stjórnmálasögu brezku þjóðarinnar, frá því er heimsstyrjöldinni miklu lauk, er vakið hefir jafn-almenna athygli þar í landi, sem loforð Mr. Lloyd George, um að ráða fullkomna bót á þjóðarvandræðum þeim hin- um miklu, er af atvinnuleysinu hafa stafað. Lýsti hann vfir því í ræðu, að svo fremi að stjórnmálaflo-kkur sá, er hann styðst við, það er að segja frjálslyndi flokkurinn, kæmist til valda, að afstöðnum næstu kosningum, skyldi hver vinnufær maður, fá ákveðið verk til að ganga að. Hét hann því, meðal annars, að láta leggja nvja vegi um landið þvert og endilangt, ásamt endurbótum á hinum eldri vegum. Kva5st hann, með þeim hætti út af fvrir sig, geta skapað atvinnu handa hálfri miljón manna. Auk þess hét hann því, að stofna til hinna og þessara nvjunga á sviði ræktunarmál- anna, er liafa myndu í för með sér atvinnu fyr- ir fólk, svo tugum þúsunda skifti. Við síðustu kosningar á Bretlandi, stóðu verðbréf frjálslvnda flokksins ekki sériega hátt, og var því þá ærið alment spáð, að þess myndi langt að bíða, að hann kæmi aftur til sögunnar, svo nokkuð kvæði að, ef hann þá á annað borð, ætti sér nokkum tíma uppreisnar- von. En nú virðist vera að koma nokkuð ann- að hljóð í strokkinn. Eftir síðustu fregnunj ‘frá Bretlandi að dæma, er víst orðið um það, að blaðafylgi Mr. Lloyd George við kosningar þær, er nú fara í hönd, hefir aukist til verulegra muna. Því til sönnunar, nægir að benda á, að Rothmere blöð- in, sem venjulegast hafa fylgt íhaldsflokknum að málum, hafa nú ákveðið, að skipa sér undir merki frjálslynda flokksins. Eru sum þeirra næsta áhrifamikil. Málsvarar íhaldsins og verkamannaflokks- ins, skopast að stóryrðum Mr. Lloyd George í sambandi við hina fvrirhuguðu úrlausn á vandræðum þeim, sem frá atvinnuleysinu stafa, en geta þó ekki annað en viðurkent, að minsta kosti annað veifið, hve djarfhugsandi hann sé og sannfærður um sigurmagn stefnuskrár sinnar. Frá pólitisku sjónarmiði séð, verður ekki annað sagt, en að tillögur Mr. Lloyd George í sambandi við umbætur á sviði atvinnumál- anna, séu næsta merkar. Hann hefir ákveðnar úrlausnartilraunir fram að bera, hvort sem þær eru framkvæmanlegar að öllu leyti, eða ekki. Sennilega líta ýmsir svo á, að þær séu nokkuð draumkendar, og þess vegna muni nokkur vafi leika á, hve hagkvæmilegar þær reynist. En þrátt fyrir það, er þó betra að hafa einhverjar umbótatilraunir fram að bjóða, en allsendis engar. Það er ekki við lambið að leika sér, þegar um er að ræða úrlausn atvinnuleysisins á Bret- landi. Mun það sanni næst, að enn gangi þar hálf-önnur miljón manna auðum höndum. Það er því engan veginp sennilegt, að nokkur einn maður, hversu fær, sem hann annars er, fái ráðið fram ixr slíkum feiknavandræðum í skjótri svipan. Þó verður því eigi neitað, að eins og sakir standa, virðist Lloyd George eini stjórnmálamaður Breta, er eitthvað ákveðið hefir fram að færa, — hinir virðast standa ráð- þrota, treystandi því, að einhver ófyrirsjáan- leg atvik muni greiða fram úr vandræðunum, ef þeir fái völdin í sínar hendur. íhaldsflokkurinn, undir forystu Mr. Stan- ley Baldwins, hefir nú setið að völdum á Bret- landi í fjögur ár, og notið eins hins mesta þing- fylgis, sem þekst hefir í stjómmálasögu hinn- ar brezku þjóðar. Hvað hefir honum áunnist, allan þann tímaf Frá því er íhaldsstjórain tók við völdum, hefir tala atvinnulausra manna á Bretlandi, Ifremur farið -hækkandi, en það gagngstæða, þrátt fyrir hátíðleg loforð og sjálfshól frá ári til árs. Það þarf því enginn að furða sig á, þó þjóðin sé orðin þreytt á því, að láta alt hjakka í sama fari, og þrái einhverja breytingu, sem munar um. Verkamanna flokkurinn á ágætan foringja, þar sem Ramsay MaeDonald er. En flokkur sá virðist, sem stendur, hvergi nærri jafn sam- stæður, sem hann hefir áður verið, og þess vegna mun tæpast þurfa að gera ráð fyrir, að, hann nái völdum, né heldur að hann geti beitt sér eins röggsamlega, og hann annars mvndi hafa gert. Ýmsir hafa fundið Mr. Lloyd George það til foráttu, að hanh væri síngjam augnabliks- maður, er ekkert léti sér fyrir brjósti brenna, ef um völd eða metorð væri að ræða, og hafa t þeir vafalaust þó nokkuð til síns máls. Hinu verður samt eigi á móti mælt, að hann er at- hafnamaður með afbrigðum, og hefir mörgu góðu og þarflegu til vegar komið. Lloyd George er hataður af móstöðumönnum sínum, líklega flestum fremur, en fylgjendur hans og vinir, líta upp til hans, sem nokkurs konar dýrðlings. Hann er bardagahetja, er í pólitiskum skilningi, hræðist hvorki eld né reyk. Fregnir frá Bretlandi, þessa síðustu daga, benda allar í þá átt, að núverandi stjómar- flokkur, undir forystu Mr. Baldwins, muni tapa fjölda þingsæta, og það jafnvel svo mörg- um, að hann verði í minni hluta, að afstöðnum kosningum. Þó munu flestir nokkurn veginn á eitt sáttir um það, að hann muni verða liðsterk- astur á þingi. Litlar líkur eru til, að verkamanna flokknum aukist fylgi, sem nokkra veralegu nemur. Gróðinn hlýtur því að falla frjáls- lynda flokknum í skaut, og eíu nú margir farn- ir að spá því, að Mr. Lloyd George, verði næsti stjómarformaður Bretlands hins mikla. Fjárlögin í Manitobaþinginu Fimtudaginn þann 4. þ. m., lagði Hon. John Bracken, stjórnarformaður Manitoba-fylkis, er jafnframt hefir á hendi fjármálaráðgjafa em- bætti, fram fjárhagsáætlunina fyrir næsta fjár- hagsár. Nema áætluð útgjöldi $13,748,671.76, og bera fjárlög þessi með sér $694,311.44 tekju- halla, er svarar því, sem fylkinu ber að greiða í ellistyrk, samkvæmt lögum frá síðasta þingi. Stærsti útgjaldaliður fjárhagsáætlunarinn- ar, er sá, er að vegabótum lýtur, og nemur hann $3,600,000. Fylkisskuldin hefir á, síðasta ári aukist úm $3,000,000, og virðist slíkt ískyggilega stór upphæð. Nemur sknld sú, er fvlkið stendur í, um þessar mundir, $77,050,659.90. í ræðu sinni um fjárlagaframvarpið, lét Mr. Bracken í ljós þá ósk sína og von, að þing- menn legðust á eitt með það, að framfylgja öllum hugsanlegum spamaði, öldungis án til- lits til flokkslegrar afstöðu, því fjárhagur fylk- isins varðaði, að sjálfsögðu, alla jafnt. Virt- ist Mr. Bracken vongóður um það, að takast mætti að finna í náinni framtíð, nýjar leiðir, f járhag fylkisins til eflingar. Sambandsþingið og friðarmálin (Niðurlag af ræðu Mr. Lhorson’s.) Á hvaða hátt helzt, getur canadiska þjóðin orðið friðarmálum mannkynsins að liði ?. Eigi hún að geta beitt áhrifum sínum að fullu í frið- aráttina meðal þjóðanna, verður hún fyrst og fremst að vera ein í þeirra tölu, og í því tilliti, er henni stöðugt að vaxa fiskur um hrygg. Hin canadiska þjóð, gerðist upp á eigin á- byrgð, meðlimur Þjóðbandalagsins, og nú hef- ir henni fallið sá heiður í skaut, að vera kosin í framkvæmdarstjóm þeirrar þýðingarmiklu stofnunar. Hún hefir einnig neytt réttar síns í því, að komast að viðskiftasamningum upp á eigin ábyrgð, við hinar ýmsu þjóðir, auk þess sem hún nú hefir sína eigin sendiherra í höfuð- borgum Bandaríkjanna, Frakklands og Japan. Hafa sumar þessar þjóðir, þegar stofnað til gagnkvæmra fulltrúa-sambanda við Ottawa, og munu fleiri fara að fordæmi þeirra í náinni framtíð. Canada er nú ómótmælanlega . orðin að þjóð, með sérstökum þjóðareinkennum, er öðlast hefir alþjóðaviðurkenningu. Fullkomn- ustu sönnunina fyrir þessu, er þó vafalaust að finna í viðurkenningu þeirra þjóða, er stofnað hafa til fulltrúasambands við Canada. Myndi nokkur í alvöru dirfast að neita því, að embættisstarfsemi Mr. Massev rs í Washing- ton, og Mr. Phillips í Ottawa, hafi á veralegan hátt, stuðlað að gagnkvæmum skilningi og góð- vild milli canadisku þjóðarinnar, og lýðveld- isins sunnan landamæranna? Og eg held, að mér sé óhætt að fullyrða, að hið sama megi segja um afstöðu þjóðar vorrar til Frakklands og Japan. En hvemig svo helzt, sem á mál þetta er lit- ið, þá verður því eigi á móti mælt, að nýmæli þessi voru gerð í fullu samræmi við stefnu Canada í utanríkismálunum, þá stefnu, er fyrst og síðast hefir fyrir augum alþjóðafrið. Eg efast ekki um, að til fieiri fulltrúasambanda verði stofnað við erlendar þjóðir á næstunni, af hálfu hinnar canadisku þjóðar, eftir þvj, sem þörf krefur, stefnu hennar í friðarmálum mannkynsins til fullkomnunar. Stofnun sendiherra sambanda, sú, er gerð hefir verið hér að framan að umtalsefni, hefir sætt snarpri andspyrnu af hálfu hins virðulega leiðtoga íhaldsflokksins, Mr. Bennetts. Lagð- ist hann á síðas'ta þingi, einkum fast á móti stofnun sendiherra embættis í Japan, og full- yrti, að slíkt væri ekki annað en blekking, um ímvndað, stjómarfarslegt sjálfstæði. Ekki get , eg neitað því, að mér hefir reynst það töluvert örðugt viðfangsefni, að gera mér grein fvrir grandvelli ']>eim, sem aðfinslur hins háttvirta íhaldsleiðtoga, eiga að vera bygðar á. Eg fékk aldrei skilið það til hlítar, hvort hann átti við, að ekki væri alt með feldu um hin opinberu sendiherra sambönd vor, eða þjóðerai vort sjálft. En út í það, skal þó ekki lengra farið að sinni. 1 septembermánuði síðastliðnum, eða mán- uði eftir að friðarsáttmálinn hafði verið und- irskrifaður, flutti Mr. Rennett ræðu í félagi íhaldsmanna í Winnipeg, og fóru blöðin eftir- fylgjandi orðum um tölu hans: “Hann lýsti yfir því, að í ríki, þar sem bæði væri brezkir og canadiskir sendiherrar, myndi sú skjóta úrlausn mála, sem Mr. Spender telur sjálft meginatriðið í utanríkismálastefnu hverr- ar þjóðar, bíða hnekki, eða óuppbætanlega töf. Vitnaði hann einnig í það. að Napóleon hefhi haldið því fram, að sendiherrar kæmu að engu haldi, nema því aðeins, að þeir hefðu nægilegan bakhjarl. ” Það væri sennilega ekki úr vegi, að íhuga stuttlega breytingar þær, er átt hafa sér stað, hvaða Canada áhrærir á sviði utanríkismál- anna, því með þeim hætti yrði vafalaust auð- veldara að skilgreina aðfinslur íhaldsleiðtog- ans, og svara þeim. Eg þarf ekki að fara lengra til baka, en til ársins 1911, er forsætisráðgjafi Breta, tilkynti það fulltrúufn brezku samveldanna, og heimin- um í heild, að ábyrgðin á samningum við aðrar íþjóðir, meðferð utanríkismála, vemdun friðar og yfirlýsing stríðs, hvíldi öll á stjóm Breta, og væri því samveldunum, eða nýlendunum, gersamlega óviðkomandi. Slík var kenningin þá um miðstjórn hins brezka þjóðasambands. Sú kenning var í beinni mótsetningu við vax- andi sjálfstæðisþrá hlutaðeigandi undirþjóða, og þess vegna hefir henni nú verið varpað fyr- ir borð, að fullu og öllu. » Mr. Adshead, þingmaður fyrir Austur-Cal- gary: “Var það Asquith stjórnarfonnaður, er hér um ræðir ? ’ ’ Mr. Thorson: “Eg man það ekki fyrir víst. ” Árið 1917, var réttur sambandsþjóðanna í afskiftum af utanríkismálum, viðurkendur á (þann hátt, að gamla miðstjórnarfyrirkomulag- inu var rutt úr vegi, fyrir öðru nýrra og full- fcomnara , þar sem ákveðið var, að sambands- þjóðimar skyldu hafa tilsvarandi íhlutunar- rétt í meðferð utanríkismála, við yfirríkið sjálft. Á samveldisstefnunni 1926, var tekin til yf- irvegunar að nýju, spumingin um þátttöku sambandsþjóðanna í meðferð utanríkismál- anna. Var því þar haldið fram, að sambands- þjóðir Breta, væra sjálfstæðar þjóðir, engu síð- ur en Bretland sjálft, og að engu leyti réttlægri, hvað innanlands, eða utanríkismál áhrærði. Af þessu leiðir það, að stjóm Bretlands getur nú ekki undir neinum kringumstæðum, skipað fyrir um, hver skuli vera stefna hinnar canadisku þjóðar, á sviði utanríkismálanna. Hér eftir veitist stjórn Bretlands, að sjálf- sögðu, langtum örðugra fyrir með að fara í stríð, en á meðan að sjálfsagt þótti, að sam- bandsþjóðirnar fylgdu þar að málum, skilyrð- islauist. Breyting sú, er hér um ræðir, miðar eigi aðeins til blessunar fyrir Bretland og Canada, heldur og allar þjóðir í heild. Hugtakið um “að vera viðbúinn vopna- burði”, hefir nú, sem betur fer, tapað miklu af sínu fyrra gildi. 1 þess stað, er rólegur um- hugsunarfrestur, skoðaður ein allra fullkomn- asta tryggingin fyrir varanlegum friði. Fyrir slíku er gert ráð í sáttmála Þjóðbandalagsins, og má hið sama segja um hinn nýja skilning, eða hina nýju afstöðu sambandsþjóðanna brezku, einnar til annarar. Hinar ýmsu þjóðir heims hafa, sem kunn- ugt er, beðið margt átakanlegt skipbrotið, sök- um skjótráðins vopnaýiðbúnaðar. Myndi lieimsfriðinum, oft og einatt, hafa verið betur borgið, ef frestur hefði komið í stað flausturs. Mr. Bennett: “Eg geng, út frá því sem gefnu, að háttvirtur þingmaður (Mr. Thorson), hafi látið sér skiljast, að íhuganir Mr. Spend- ers lutu að því, að ef Bretland hefði þegar í stað heitið Frakklandi öllu sínu fulltingi, myndi styrjöldin mikla hafa orðið umflúin. ” Mr. Thorson: Mér þykir vænt um að fá yf- irlýsingu, sem þessa, frá hinum virðulega leið- toga íhaldsflokksins, þótt eg á hinn bóginn verði að telja hana, fylgi henni engin frekari skýr- ing, öldungis ósamboðna, leiðtoga voldugs stjórnmálaflokfcs. Hin canadiska þjóð, hefir lýst yfir ein- dregnu fylgi sínu við friðarstefnu mannkvns- ins. Og með því að beita sjálfsákvörðunar- rétti sínum, með tilliti til stríðs og friðar, fékk hún, að öllum málavöxtum rannsökuðum, borg- ið Norðurálfufriðnum 1922. Á eg hér við Cha- nak tilfellið. Þar var það fresturinn, er að haldi kom. í meira en heila öld, hafa Bandaríkin og Canada, skapað fagurt fordæmi, að því er það áhrærir, að ráða ágreiningsefnum til lykta á friðsamlegan hátt. Játað skal það, að eigi varð úrlausnin ávalt á þanu veg, ér canadiska þjóðin frekast hefði kosið. En hver myndi halda því í alvöru fram, aðl viðunanleg úrslit ágreiningsefna á friðsamlegan hátt, væri eigi æskilegri en þau úrslit, sem styrjöldum og stríði eru samfara? i Canadiska þjóðin elur engan ótta í brjósti, sökum hugsanlegs, utanaðkomandi yfirgangs. Og hún getur af eigin reynslu, metið réttilega sanngildi friðarins. ' Staðhættir landsins eru slíkir, og samsetning þjóðarinnar slík, að engin þjóð stendur betur að vígi með það, að stuðla að vingjamlegri sambúð þjóða á meðal, og knýja almenningsálitið til óskifts fylgis við þær stofnanir, stefnur og strauma, er í þjónustu friðarmálanna starfa, með það tákmark eitt fyrir augum, að sökkva hemaðarstefnu mann- kynsins á fertugu dýpi. Fundargerð Þjóðrœknis- félagsins 1929 Var þá skýrsla lesin yfir kenslustarf í íslenzku frá umferSakennurum dieildar,- innar Frón. Haföi kenslan staðiS yfir frá 15. nóvember 1938 til febfúarloka 1929. 87 börn nutu kenslunnar. Kennarar voru Ragnar Stefánsson og Mrs. E. Sigurðsson. Einnig var lesin skýrsla frá fjármálarit- ara Fróns, GuSm. K. Jónatanssyni. Sam- 'kvæmt henni hefir félagatala deildarinnar aukist um 85 á árinu; eru þvi nú alls 262 félagar í Frón. Deildin hefir fundi reglu- lega, sem jafnaðarlegast eru vel sóttir og góð skemtun er aS. Skýrsla var og lesin frá deildinni Hörpu í Winnipegosis viðvíkjandi starfi hennar á árinu. Hafði deildin ráðið Jón Frið- finsson tónskáld til söngkenslu í nokkra mánuði, með ágætum árangri. Lagöi Sigfús Halldórs frá Höfnum til og Sigfús B. Benediktsson studdi, að þing- iö greiddi Jóni FriÖfinnssyni þakklætis- atkvæði fyrir störf hans í þarfir söng- fræðslu á meða,l íslenzks æskulýðs. Var það samiþykt með því að þingheimur stóð á fætur. Bóka9afnsmálið var næst á dagskrá. Lagði Sigfús Halldórs frá Höfnum til og Páll S. Pálsson studdi, að skipuð sé 3. manna nefnd í málið. Samþykt. Þessir voru kvaddir í nefndina: Halldór S. Bardal, Jóhannes H. Húnfjörð, Þorsteinn Guðmundsson. , Þá var íþróttamálið til ihugunar. Fyrir hönd mijiþinganefndar í því máli, gaf Sig- fús Halldórs frá Höfnumi þá skýringu, að íþróttir væru nú mjög lítið stundaðar, og þótti hafa skort fylgisöflum frá félags- stjórninni, því enginn áhugi hefði nokk- (Urntíma náðst né næðist með bréfaskrift- um, en vonaðí að á því yrði ráðin einhver ’bót. Var málinu vísað til væntanlegrar félagsstjórnar. Lá Iþá fyrir stjórnarskrárbreytingar- málið. Las forseti fyrir hönd félags- stjórnar upp ibreytingar á stjórnarskrá fé- lagsins er svo ihljóðuðu:: 13. gr. ('Frh. við það sem fyrir erj: Nú vi,ll einhver embœttismaður félags- ins hætta við embætti sitt. Skal hann þá tilkynna forseta það—eða varaforseta, sé um forseta sjálfan að ræða — að hann íhæitti störfum. Leggil hæðíi aðálmaður og varamaður einhvers embættis niður starf milli þinga, skal forseti skipa ein- hvern annan errtbættismann til þess að gegn því starfi til næsta þings. 20. gr. Skuldlausir félagar, 18 ára eða eldri hafa heimild’ til að greiða atkvæði á þing- um, hafi þeir eigi afsalað sér þeim rétt- indum samkvæmt 21. gr. 21 gr. Nú æskir deild félagsins að einstakir félagar, er eigi geta sótt þing, fái neytt atkvæðisréttar síns. Skal þá félagsmönn- um þessum heimilt að veita einhverjum deildarfélaga skriflegt umboð til þess að fara með atkvæði sín, enda hafi forseti og skrifari deildarinnar staðfest umboðið með undirskriftum sínum. Þó skal eng- um fulltrúa leyfilegt að fara með fleiri en 10 atkvæði samdeildarmanna. Atkvæði þessi gilda aðeins fyrir deildir utan Win- nipegborgar. 27. gr. Félagið skal hafa félagsinnsigli, sem á- valt skal vera í vörzlu skrifara. öll skjöl er staðfest eru af félaginu, skulu staðfest á þann hátt að þau séu merkt með innsigli félagsins ásamt undir- skriftum forseta og skrifara. 28. gr. 27. gr. verður 28. gr. Við hana bætist: ... ...og öðlast því aðeins gildi að náð hafi þamþykt Ríkisritara Canada. Þorsiteinn Guðmundlsson og Ásgeir I. Blöndahl, voru ekki með ölju samþykkir þessum stjórnarskrárbreytingum. Séra Jónas Á. Sigurðsson gat um tillögu, er samþykt hafði verið í deildinni Brúin í , Selkirk og svo hefði hljóðað : “Á fundi, sem haldinn var 5. febr. í deildinni Brúin í Selkirk, var samþykt þannig orðuð tillaga: Deildin Brúin vill helzt að 21. gr. laga félagsins um réttindi deilda, sé eins og hún er, en sé henni breytt, þá sé lágmark erindreka miðað við 25. Önnur samþykt var að bjóða Þóðrækn- isfélaginu að halda ársþing í Selkink 1930. Jón Húnfjörð lagði til og Sigfús B. Benediiktsson studdi, að 5 manna nefnd sé skipuð í málið. Séra Jónas A. Sig- urðsson, gerði ibreyitingartillögu og Þórð- ur Bjarnason situddi,, að 7 manna nefnd sé skipuð. Var breytingartillagan sam- þykt og íþessir skipaðir í nefndina: Séra Jónas A. Sigurðsson, Ásm. P. Jóhannsson, Þorsteinn Guðmundsson, Halldór S. Bar- dal, Ásgeir I. Blöndlahl, Þorsteinn J. Gíslason, Bergþór E. Johnson. Löggildingarmálinu lagði Barni Magn- ússon til og Stefán Einarsson studdi, að væri vísað til stórnarskrárbreytinga-nefnd- ar. Samþykt. Undir nýjum málum bar forseti upp til- lögu frá félagsstjórninni um breytingu á tilhögun í störfum embœttismanna o. fl. Lagði Ásm. P. Jóhansson til og Árni Eggertsson studdi, að skipuð sé 3 manna nefnd í það mál. Samþykt. I nefndina voru þessir skipaðir: Árni Eggertsson, Páll S. Pálsson, Hjálmar Gislason. Fundi frestað til kl. 8 að kveldi. Þing kom aftur sarnan kl. 8 að kveldinu. En með því að ákveðið hafði verið að tvær ræður yrðu fluttar um kveldið voru fundarstörf látin bíða. Atíra ræðuna flutti séra Jónas A. Signrðsson. Að efni til var hún öflug þjóðræknishvöt, en vék um leið a ðdeilumálum þeim, er um hríð hafa staðið yfir milli Þ jóðræknisfélagsins og viSsra manna. Kvað ræðumaður ekki auðvelt að sneiða með öl,lu hjá þeim mál- um því við hintl myndi búist, að á þessum stað óg tírna væri einhver grein fyrir þeim gerð. Var í því efni málstaður Þjóð- ræknisfélagsinjs röggsaimjega varinn1 og mun vígfimi sú, er ræðumaður sýndi við1 það tækifæri, seint fyrnast þeim, er á hlýddu. Að áheyrendum hafi þótt mjög til um mælskúhæfni ræðumanns, ‘ má af því ráða, að lófaiklapp kvað við upp aft- ur og aftur um salinn undir r&ðunni. Hina ræðuna flutti séra Jóhann P. Sól- mundsson, fyrir hönd milliþinganefndar fræðslumálanna. Var mál hans með af- brigðum vel hugsað og ítarleg greinar- gerð fyrir þjóðræknisafstöðu vorri, auk þess er það var snjalt og skemtilega skrif- að. Var honum þökkuð ræðan með því, að þingheimur stóð á fætur. Lýkijr hér með frásögninni af fyrsta starfsdegi ársþingsins. Var ákveðið að þingið kæmi aftur saman næsta dag kl. , 10 að morgni. Annar þingdagur Þjóðræknisfélagsins hófst 28. febr. kl. 10 að morgni. Fundargerð síðasta fundar lesin og samþykt. Þiingnefnd húsbyggingarmálsins lagði fram svohljóðandi álit: Nefndin sem skipuð var af þinginu til þess að athuga húslbyggingarmálið, vill láta í ljósi þá skoðun sina, að sjálfsagt sé fyrir félagið að taka til vandlegrar yfir- vegunar bendingu þá, sem kom fram í ræðu forseta um samvinnu við aðrar nor- rænar þjóðir í Vestur-Kanada um sam- eiginlegt iheimili. Telur nefndin það hina heppilegustu lausn á húsbyggingarmálinu, ef sliik samvinna gæti tekist. Að sjálfsögðu þyrfti slíkt mál langan og mikinn undihbúning. En þar sem þær raddir hafa heyrst, frá málsmetandi mönn- um hinna þóðanna hér i bænum, að þær myndu vera fúsar til að íhuga slíka sam- vinnu, þá vill nefndin leggja áherzlu á, að slikir sarftvinnu möguleikar verði rann- sakaðir -sem bezt hið bráðasta. Rannsókn slíks máls telur nefndin bezt ráðstafað með því að fela málið væntanlegri stjórn- arnefnd til meðferðar. Leggjum vér því til, að málinu sé vísað til hennar, og hún beðin að halda vakandi áhuga almennings á málinu á árinu með ritgerðum, og ræð- um á mannfundum, ef útlit sýnist verða fyrir því, að málið sé með nokkuru móti framkvæmanlegt á næstu árum. Undirritaðir: P. S. Pálsson, Arni Eggertsson, P. K. Bjcurnason, bórður Bjarnason, borgeir Jónsson. Þorsteinn Guðmundsson lagði til og Jón Stefánsson studdi, að nefndarálitið væri sanrþykt. Var það einróma gert. Þiá var lesið álit Tímaritsnefndar er var á þessa leið: “Til forseta og þings Þjóðræknisfélags- ins:—Netnd sú, er skipuð hefir veríð til þess að íhuga útgáfu Tímarits Þjóðrækn- isfélagsins hefir komið sér saman um að leggja til að útgáfu ritsins verði haldið áfram með líku sniði og að undanförnu. Hvað snertir þá skoðun, sem komið hefir í ljós, að æskilegt sé, að nokkrum hluta af rúmi ritsins verði varið til les- máls handa börnum, þá er nefndin því ein- dregið mótfallin, af því að hún telur, að það myndi eigi ná tilgangi. Hinsvegar lítur hún svo á, að full ástæða sé til að halda úti riti fyrir allan þorra þeirra manna, sem enn eru unnandi íslenzkum málum og islenzkri tungtt, og verði það með því móti að beztu gagni íslenzku þjóðerni meðal Vestur-lslendinga, að leit- ast ;sé við, að það rit hafi sem mest bók- mentalegt gildi að geyma. Ritið á að sjálfsögðu einnig að vera lífið og sálin í öllum þjóðræknissamtök- um Vestur-íslendinga og hlýtur að skoðast málgagn Þijóðræknisfélagsins; þess vegna telur nefndin einnig hyggilegast, að fylgt verði tekinni reglu, að> síkuldlausir félagar fái ritið ókeypis. Er þetta sama regla og fylgt ihefir verið heima á íslandi í öllum fé,lögum, er oss er kunnugt um, að gefi út ársrit eða bækur. Enda væri sennilegast, að til þess eins dragi, ef breyta ætti á- kvæðum um þetta og fara að krefjast sér- stakrar borgunar fyrir ritið, auk félags- gjalds, að menn segðu sig, a. m. k. víða úti á landinu, úr fél., til að geta haldið ritið áfram, og myndi það því eigi bera annan árangur en veikja félagið og áhuga manna fyrir störfum þess til muna. Aftur á móti þykir nefndinni sanngarnt, að á- kveðið sé að setja utanfélagsmönnum Tímarit Þ jóðræknisfélagsins eigi lægra en $1.50 árganginn. Ennfremur leggur nefnd- in til, að eldri árgangar Tímaritslns (I— VIII sé seldir 25c árgangurinn og þetta sé auglýst. Þó að nefndin álíti það á allan hátt mjög æskilegt, að ritið gæti komist út oftar en einu sinni á ári, þá hyggur hún að eigi verði tök á því að sinni meðan fé- ilaginu vex eigi betur fiskur um hrygg. Hvorttveggja er, að ritið yrði þá að stækka að mun, svo að nokkuð yrði á þeirri til- breytni að græða og myndi það þá auð- vitað hækka útgáfukostnað allan mjög til- finnanlega, og sömuleiðis hyggur nefndin, að reynast myndi bæði örðugra og stór- um fyrirhafnarmeira, að útvega ritinu auglýsingar—en þær eru nú sem stendur aðal tekjuliður ritsins. Þessvegna leggur nefndin til að félags- stjórninni sé lengnar í hendur allar frek- ari framkvæmdir í þessu máli og ráði hún ritstjóra, sem að sjálfsögðu hefir óbundn- ar hendur með efnisval í ritið. Á Þ jóðræknisþingi í Winnipeg, 27. febr. 1929. B. B. Olson, A. I. Blóndalil, Benjamín Kristjánsson, Jónas A. Sigurðsson, Arni Eggertsson Árni Eggertsson lagði til og Þorsteinn J. Gísjason studdi, að álitið væri samþykt.' Urðu allmiklar umræður urn álitið. Sigfús Halldórs frá Höfnum fýsti að heyra ástæðu nefndarinnar fyrir því, að ritið skyldi ekki gert að ársfjórðungs- eða misseris-riti. B. B. Olson kvað útgáfukostnað því aðallega i vegi. Hversu æskilegt sem væri, að ritið væri sem tíðastur gestur ís- lendinga, hefir kostnaðurinn hamlað því í huga nefndarinnar. Annars mætti benda á margt, er auka myndi útbreiðslu ritsins, þar á meðal að það flytti sögur. , Bjarni Magnússon kvað ýmsa annmarka á‘ ritinu, og skemtilegar ritgerðir eins og til dæmis þær, er eftir Pál Bjamason birt- ust í því. (Framh. í næsta blaði)

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.