Lögberg - 11.04.1929, Blaðsíða 8

Lögberg - 11.04.1929, Blaðsíða 8
Bls. 8. LÖGBERG FIMTUDAGINN 11. APRÍL 1929. Robin Hood hveitimjölið gerir meira og betra brauð heldur en annað hveiti- mjöl. RobinHood FIiOUR t»-------- I Ur bœnum Laugardaginn 7. apríl voru þau Thomas Wylie og Steina Eyjólfs- son, bæði til heimilis í Winnipeg, gefin saman í hjónaband, af séra Rúnólfi Marteinssyni, að 493 Lip- ton St. Tvær af starfsdeildum kvenfé- lags Fyrsta lút. safnaðar ætla að hafa útsölu á heimatilbúnum mat í samkomusal kirkjunnar á föstu- daginn kemur, 12. þ. m. Fer sal- an fram bæði seinni part dagsins og að kveldinu. Sömuleiðis selja konurnar þar kaffi og aðrar veit- ingar, sem því fylgja. Hafa kon- urnar búið sig undir mikla sölu og vonast eftir mörgum gestum. Jóns Sigurðssonar félagið held- ur sinn næsta mánaðarfund á á föstudaginn hinn 12. þ.m., kl. 8 að kveldinu, að heimili Mrs. Borg- fjörð, 832 Broadway. Mrs. W. Nordal, Selkirk, Man., var á sunnudaginn var flutt á Al- menna sjúkrahúsið hér í'borginni. Er búist við að uppskurður verði gerður á henni mjög bráðlega. Dr. B. J. Brandson stundar hana. Hinn 3. þ.m. andaðist að heim- ili sínu hér í borginni, Mrs. Rósa Dalman, ekkja Jónasar heitins Dalmans. Áttu þau hjón lengi heima hér í borginni, én síðar á Gimli. Eftir að maður hennar dó, var *hún hér hjá börnum sín- um. Hún var á sjötugasta árinu, þegar hún lézt. Ættuð var hún úr Mývatnssveit í Þingeyjarsýslu og voru foreldrar hennnar Mar- teinn Guðlaugsson og Sigríður Guðmundsdóttir. Jarðarförin fór fram frá útfararstofu A. S. Bar- dals hinn 5. þ. m. Séra Rögnv. Pétursson jarðsöng. Messuboð, 14. apríl.—Wynyard kl. 2 e.h.; Mozart , kl. 5.30 e. h. Efni: “Er nokkurt annað líf til?’’ Fermingar uppfræðsla: Wynyard 12. apr. kl. 5, Kandahar 13. apr. kl. 2. Vinsaml. C. J. 0. Halldór Daníelsson, fyrrum þing- maður fyrir Mýra og Borgarfjarð- arsýslur, andaðist á Betel á Gimli þann 4. apríl, kl. 1 e. h. Vinnukona óskast. Mrs. L. J. Hallgrímsson, 548 Agnes St. Sími 33 949. Gefið að Betel í marz. Mrs. J. Stefánsson, Elfros $3.00 Hafst. Jónsson, Riverton.... 1000 U.F.W, Minerva, Gimli...... 50.00 Mrs. Stgr. Johnson, Kandahar, 10 pund af hreinni ull. í minningu um Guðmund Hjálms- sn, Blaine, Wash., frá Mrs. Krist- ínu Johnson................ $5.00 Mrs. Gúst. Anderson, Pikes Peak, Sask. (áheit) ...... 5.00 Frá G. S., Winnipeg ........ 5.00 Fyrir þetta er þakkað. J. Jóhannesson, féh. 675 McDermt Ave., Winnipeg. WONDERLAND. Richard Dix og Ruth Elder leika aðal hlutverkin í Ieiknum “Moran of the Marines”, sem Wonderland leikhúsið sýnir síðustu þrjá dag- ana af þessari viku, en það eru líka margir fleiri, sem þátt taka í leiknum og sýna hið mesta á- ræði og hugrekki. Ruth Elder er mikil æfintýrakona. Fyrstu þrjá dagana af næstu viku sýnir leikhúsið myndina “Lilac Time”, fjöruga og skemti- lega mynd, þar sem hin fræga leikkona, Colleen Moore og ýmsir fleiri ágætir leikarar sýna list sína. Forstöðunefnd íþróttafélagsins Sleipnis, sem kosin var í maímán- uði 1928, gerði það sem í hennar valdi stóð til að halda uppi lík- amsæfingum og íþróttum og efla félagið sem bezt hún gat. En á- hugi félagsmanna o& annara ís- lendinga hér í borginni fyrir þessu máli, reyndist ekki meiri en svo, að félagið varð að hætta störfum 1. desember 1929, og hef- ir það ekki verið starfandi síðan. Nú hefir nefndin boðað til fúnd- ar í Good Templara húinu kl. 8 á fötudagkveldið, hinn 12. þ.m. og vonar nefndin að hann verði vel óttur og einhver góð ráð fundin til þess, að þetta félag geti aftur tekið til starfa. Verður þar einnig greinilega skýrt, hvers- vegna nefndin hætti störfum á síðastliðnu ári. Skáldkonan góðkunna, Laura Goodman Salverson, fluti langan og all-fróðlegan fyrirlestur, hinn 3, þ.m. í Fyrstu lútersku kirkju. Nefndi hún erindi sitt ‘‘The In- fluence and Charm of Scandina- v-an Letters.” Lýsti frúin skáld- verkum elnna sex síðari tíma höf- unda norskra og sænskra, aðal- lega með því, að segja aðalefnið úr sinni sögunni eftir hvern þeirra. Fyrirlesturinn var vel sóttur og skáldkonunni vel tekið, eins og vænta mátti og hún á vel skilið. Mrs. S. K. Hall söng nokk- ur lög, áheyrendum til mikillar ánægju, eins og jafnan, og allstór sönglokkur söng tvö lög, undir stjórn Mr. Björgvins Guðmunds- sonar. Rose Leikhúsið. Kvikmyndin “A Woman of Af- fairs’”, sem Rose leikhúsið aug- lýsir i þessu blaði, þykir bæði til- komumikil og skemtleg. Aðal hlut- verkn leika þau John Gilbert og Greta Garbo. Auk þeirra taka þátt í leiknum Lewis Stone, Hob- art Rosworth, Dorothy Sebastian, John Back Brown og Douglas Fairbanks Jr. o. fl. WALKER Bransby Williams leikur enn í eina viku á Walker leikhúsinu og byrjar á mánudaginn, hinn 15. þ. m. Verður þetta í síðasta sinn, sem hann leikur í Winnipeg á þessu ári og væntanlega kemur hann ekki aftur í nokkur ár. — Leikurinn, sem þessi frægi leik- ari leikur í þetta sinn, heitir “A Romanee of the Road”, og er hér alveg nýr og alþxektur. Leikur- inn fer fram á Englandi, á þeim tímum, þegar það var ekki, ótítt, að stigamenn réðust á ferðafólk og rændu það og léku oft grátt að öðru leyti. Er leikur þessi tilkomumikill og skemtilegur æf- intýraleikur og prýðilega vel leik- inn að sögn.í Nýjar Kvöldvökur Útgefandi Þorsteinn M. Jónsson, Akureyri. Mér voru send nokkur eintök af þe^sum “Kvöldvökum” til sölu hér vestra. Er þetta ársfjórð- ungsrit, í stóru postillu formi og tvídálkaðar blaðsíður. Árgang- urinn alls um 200 bls. og frágang- ur mjög sæmilegur. Eg fékk all- an síðasta árgang (1928).innheft- an í eina stóra bók, mað húð- þykkri kápu. Efni ritsins er að- allega skemtilegar sögur, þýddar ar og frumsamdar, og margar þeirra ágætar, en einnig fræði- greinar, lýsingar á löndum og borgum og nokkur ljóð af betri merg. Einnig er ritið prýtt með allmörgum myndum. — Þessar “Kvöldvökur” eru nú reyndar ekki nýjar, því þær hafa komið út í 21 ár og eru þjóðkunnugt og hug- ljúft rit á íslandi, en eg hygg, að þær hafi aldrei fyr verið boðnar fólki hér vestra. Áskriftarverð hér í Ameríku verður $1.75 árgangurinn, póst- gjald meðtalið Gjörið mér að- vart sem fyrst, því eg hefi mjög svo takmarkaðan eintakafjölda. Borgun fylgi pöntun. M. Peterson, 313 Horace St., Norwood, Man. Leikfél. Sambandssafn. sýnir leikinn “Á útleið”, mánu- dagskveldið þann 15. apríl, kl. 8. —Aðgöngumiðar 50c. Seldir í West End Food Market og Sar- gent Grocery. TIL LEIGU—nú þegar, ágætt herbergi með fullum húsgögnum, að 683 Beverley St., hér í borg- inni. Aðeins reglusamar, ein- hleypar manneskjur, koma til greina. Eins og auglýst var, hélt Stú- dentafélagið veizlu á mánudags- kveldið þ. 8. þ.m. í borðsal Hud- sons Bay búðarinnar. — Áður en sezt var að borðum, flutti séra Rúnólfur Marteinsson borðbæn. Þegar máltíðinni var lokið, sagði forseti félagsins, Mr. Sigurdson, nokkur orð. Mæltist hann til þess að þeir, sem nú væru að útskrif- ast, hættu ekki að starfa I félag- inu. Næst sungu stúdentar nokkra íslenzka og enska söngva. Þá voru lesin stutt æfiágrip heiðursgest- anna og var það hin bezta skemt- un. Miss Breckman, Miss Bardal, Mr. Bildfell og Mr. Melsted sungu þá nokkra af hinum gömlu Stú- dentafélagssöngvum, og var þeim tekið með miklum fögnuði. Þar næst mælti Mr. Siggi Sigmundson fyrir minni heiðursgestanna, en Mr. Clifford Hjaltalín svaraði fyr- ir þeirra hönd. Báðum tókst mjög vel. Þá voru sungin nokkur lög, en að því loknu mælti Mr. J. A. EF ÞÉR hafið í hyggja að byggja, þá tryggið yður hjá oss TIMBUR The Mc.Arthur Lumber & Fuel Co., Ltd. Cor., Princcss &. HigKins Ave., Winnipeg. Simi 86 619 WALKER Canada’s Finest Theatre VIKUNA er hefst MÁNUDAG, 15. APRIL Matinees WED. and SAT í síðasta pinn BRANSBY WILLIAMS og félagar hans frá LONDON “A ROMANCE OFTHEROAD” A. Period Play of Love and Adventure in England’s Coaching Days, By A. B. Shirland. Aðgöngumiðar nú til sölu: Kveld: $2, $1.50, $1, 75c., 50c. Miðvd. og Laugd. e. h.: $1, 75c, 50c., 25c. Skattur að auki. Bildfell fyrir minni kvenna, en Miss Aldís Thorlakson svaraði. Ræðum þeirra var vel tekið, enda voru þær mjög skörulega fluttar. Séra Rúnólfur Marteinsson sagði síðan nokkur orð. Hann kvaðst viss um, að Stúdentafélagið myndi halda áfram að starfa að málum íslenzkra stúdenta og sagðist vona, að aldrei andaði kalt úr þeirri átt til íslands eða þess, sem íslenzkt væri. Var þá staðið upp frá borðum oð þjóðsöngurinn “O, Canada” sunginn að endingu. — Um 90 manns sátu veizluna og munu allir hafa skemt sér ágæt- lega. H. Th. Frá Islandi Heimför Vestur-lslendinga Frú Thorstína Walters (áður Jackson), kona Emile Walters listmálara, hefir dvalið hér í bæn- um um skeið, ásamt manni sín- um. Frú Thorstína er hér í er- indagerðum fyrir sjálfboðanefnd- ina í heimferðarmáli Vestur-ls- lendinga, til þess að undirbúa heimför þeirra manna, sem verða á vegum þeirrar nefndar. Frúin flutti fyrirlestur um heimförina í Nýjabíó á sunnudaginn var fyrir fullu húsi. Lagði hún mikla á- herzlu á, að ágreiningur sá, er orðið hefði vestanhafs út af und- irbúningi heimferðarinnar mætti eigi ná til sjálfrar fararinnar eða viðtakna hér heima. Lýsti hún á- takanlega ættjarðarþrá margra íslendinga vestra. Mun fyrirlest- ur frúarinnar auka skilning fólks á gildi heimfararinnar fyrir frændur okkar vestra, sem svo margir hafa tekið sér í munn orð St. G. St. skálds: “Eg á orðið, einhvernveginn, ekkert föður- land.” Heimkoma Vestur-íslend- inga 1930 verður einhver merk- asti þátturinn í hátíðinni. Skift- ir mjög miklu að viðtökurnar heima verði ástúðlegar og nær- gætnislegar. — Tíminn. Reykjavík, 20. marz. Bílar voru hér á landi alls 753 síðastliðið ár, auk 67 vélhjóla. Af bílunum voru 453 vörubílar, en 300 fólksbílar. Flestir bílar eru í Reykjavík, 450, í Hafnar- firði 50, í Gullbringu og Kjósar- sýslu 68, á Akureyri og Eyjafirði 49 í Vestmannaeyjum 25, í Ár- nessýslu 24, í Mýrasýslu 23, í Þingeyjarsýslunum 13, í Húna- vatnssýslu 10. Bílategundirnar eru margar, 32 af fólksbílum og ROSE Thurs. Fri. Sat. (this week) DOUBLE PROGRAM i fii 9 9 ‘RILEY THE COP An All Star Cast Also TIM McCOY in "BEYOND THE SIERRAS” and “TERRIBLE PEOPLE” Mon. Tues. Wed. (next week) JOHN GILBERT GRETA GARBO “II WOMANIIF AFFAIRS’’ loith SOUND A Picture You Cannot Afford to Miss COMEDY - - NEWS 15 af vörubílum og er helmingur þeirra Fordbílar. Af fólksbílum voru flestir Chevrolet, nokkru minna af Buick og þá af Ford. Af Snæfellsnesi er skrifað 3. þ. m.: “....Heilsufar gott og tíðin ágæt, svo að elztu menn muna ekkert líkt því. Frost hefir orð- ið hér hæst 10 stig og það aðeins þrjá daga; hiti komist upp í 10 til 11 st. Snjór hefir aldrei legið á jörð til lengdar og sjaldan fent. Nú er alautt upp á hátinda, allar ár auðar og vötn. Hrossagaukar hafa sézt hér í keldum og við læki í allan vetur. Flutningsbíll fór nýlega yfir Kerlingarskarð, og er slíkt einsdæmi, að svo snjólétt sé á þeim fjallvegi á þessum tíma árs, því þar er oft lítt fært með klyfjaða hesta.” • Af inflúenku v^iktust alls á landinu 3,987 manns í febrúar, flestir í Reykjavík, 2,182, og veik- in að mestu fallin niður hér, seg- ir landlæknir. Sandakalli í Dýrafirði hefir séra Þórður ólafsson sagt lausu og sækja um það prestarnir Sig. Haukdal í Flatey og Sig. Z. Gísla- son í Staðarhólsþingum. —Lögrétta. Tímaritið “Cunarder” 09s hefir rétt nýlega 'borist Apríl heftið af hinu stórmyndarlega tíma- riti “Cunarder,” sem Cunard linan gefur út. Þetta hefti er eingöngu helgað Norðurlöndum og flytur nokkr- ar ágætar greinar, eftir vel þekta höf- unda, sem færa lesendum mikinn fróð- leik um þessi lönd og upplýsingar við- víkjandi ferðalögum um þau. Er ein af þessum greinum um Island, og er hún eftir .Thorstínu Jaekson. Þá flyt- ur og tímaritið fjölda af ágætum myndum og eru tvær þeirra frá ís- landi. Einnig (er í ritinu fróíðleg grein um skáld og listamenn Norður- landa eftir Estelle H. Ries og er þar sagt frá I'bseri, Strindberg, Björn- son Selmu Lagerjöf, Sigrid Undset og Anders Zorn. Ekki þarf að efa, að rit þetta vekur löngun margra til að ferðast um Norðurlönd. Eins og kunnugt er, gefur Cunard línan, þeim sem með henni ferðast til Norðurlanda, tækifæri til að koma við í London og sjá þá miklu heimsborg, án þess það kosti ferðafólkið nokk- urt aukagjald. Þeir, sem sigla með Cunard línu 'skipinu “Loncastria” til Helsingfors 29. maí, geta lent í Holtenau. Þaðan er mjög þægilegt að komast til allra staða á Norðurlöndum, því á hverj- um degi fara fjórar járnibrautarlestir frá Kiel til Kaupmannahafnar og tvær lestir daglega frá Kiel ti,l Málm- eyjar. Auðugtsem smjör, sætt eins og hnetur MÆÐUR KREFJAST handa börnum sínum , \ Brauðs sem er lystugt, nœrandi, gott og ódýrt 1 Það er það sem þœr fá, þegar þœr kaupa Canada Bread Kaupið Butternut Brauðið Hringid upp • 33 064 Portage & Burnell St. Continuous Daily 2-1 1 p.m. Telephone 87 015 Saturday Wonderland starts I p.m. THURSDA Y, FRIDAY, SA TURDA Y—(THIS WEEK) RICHARD DIX in “MORAN ofthe MARINES” With RUTH ELDER A ‘Paramount ‘Picture Comedy and last Chapter of “The Mystery Rider” MONDAY, TUESDAY, WEDNESDA Y-APRIL 15-16-17 COLLEEN MOORE ;in her first great super-special LILAC TIME VITH CARY COOPER J. NICOLSON, Manager BRANSBY WILLIAMS 1 leiknum “A Romance of the Road”, í Walker leikhúsinu vik- una sem byrjar 15. apríl. Electrically Hatched BABY CHICKS “Fyrir afurðir, sem eg hefi selt og það, sem eg á óselt hefi eg feng- ið $125.00 ágóða af þeim $18.00, sem eg í apríl 1 fyrra borgaði yður fyr- ir 100 Barred Roqk unga,” skrifar oss Mrs. C. B> Denny, Milden, Sask. pessi vitnisburður, eins og margir aðrir, sem oss berast án þess við biðjum um þá, er oss sönnun þess. að það borgar sig vel fyrir bændur að fá eitthvað af vorum kynbættu varphænum. Bók, sem er 32 bls. og með litmyndum fáið þér gefins. Hún gefur yður allskonar upplýs- ingar um hænsni og hvernig með þau á að fara. 10% afsláttur á öll- um pöntunum fyrir 1. marz. Hambley \Vinds°r Hatcheries, Ltd. 601 Logan Ave., Winnipeg, Man. Fishermen’s Supplies Limited Umþoðsmenn fyrir— Tanglefin Fiskinet, tilbúin af National Net and Twine Co. Brownie kaðla og tvinna. Vér höfum í Winnipeg birðir af Tanglefin Fiskinetjum, með lðgákveðinni möskvastærð. Maitre kaðla og tvinna. Kork og blý. Togleður fatnað. Komið og sjáið oss, þegar þér komið til Winnipeg, eða skrif- is oss og vér skulum snda yður verðlista og sýnishorn. FISHERMEN’S SUPPLIES, LTD. 401 Confederation Life Bldg. Winnipeg. Sími 28 071 DBEWRYS STANDARD LAGrER ■o P0 FIMTIU ARA STÖÐUG FRAMSÓKN HEFIR GERT ÞENNA DRYKK FULLKOMINN. Biðjíð um hann með nafni. The Drewrys Ltd Winnipeg Phone 57 221 9 | I í h é h /

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.