Lögberg - 08.08.1929, Síða 8
Bls. 8.
LÖGBERG FIMTUDAGINN 8. ÁGÚST 1929.
RoblnHood
PI/OUR
Trygt með ábyggilegri
endur-greiðslu tryggingu
og þar að auki 1 0 prc. —
Gsetið að tryggingaskjal-
inu í hverjum poka. - - -
Orb
aenum
Séra Jóhann Bjarnason messar
væntanlega í fundarsal Templara
á Sargent Ave. (neðri salnum)
næsta sunnudag, 11. ágúst, kl. 3
e h. Allir velkomnir. — Fólk
geri svo vel að hafa með sér
sálmabækur, eldri útgáfuna eða
þá nýju, eftir því sem hverjum
einum er hentugast.
Eftirfylgjandi nemendur Mr. 0.
Thorsteinssonar, Gimli, Man., tóku
próf við Toronto Conservatory of
Music:
Intermediate Pianoforte Grade:
Miss Berþóra Goodman, 67 stig,
pass. — Junior Pianoforte Grade:
Miss Snjólaug Joespson, 73 stig,
hon.—Primary Pianoforte Grade:
Miss Josephine Sigrid Olafsson,
74 stig, hon. — Elementary Píano-
forte Grade: Miss Sigrún Jóhann-
son, 67 stig, Miss Kristín Benson,
Benson, 75 stig, Miss Ólöf Jónas-
son, 72 stig, Miss Evangeline Vig-
dís Olafsson 70 stig, allar með
hon. — Introductory Piainoforte
Grade: Miss Ina Jónasson, 76 stig,
Miss Margrét Jónasson, 75 stig,
Miss Freyja Olarfsson, 72 stig, og
Miss Pearl Sigurgeirsson, 70 stig,
allar með hon. — Junior Violin
Miss Marion Lang, 71 s*tig, hon.
Primary Violin Grade: Mr. Jó-
hannes Pálsson, 81 stig, F. C. H.;
Mr. Stefán Guttormsson, 75 stig,
hon.— Introductory Violin Grade:
Miss Björg Guttormson, 73 stig,
hon.; Miss Thorsteina Sveinsson,
70 stig, hon. — Mr. Frank S. Wels-
man frá Toronto, var prófdómari.
ANNAR ÁGÚST 1929.
Mountain, N.. D.
Þeir dönsuðu, drukku og átu,
með dynjandi hlátrasköllum.
Flestallir fullir, sem gátu,
og fylstur var ég þar af (k)öllum.
K. N.
Gefið að Betel I JÚIí.
Mrs. Eiríksson, Lundar .... $5.00
Mrs. St. Jónasson, Langruth 2.00
Mrs. Jón Baldvinsson, Hnausa 5.0J
Kvenfél. Liljan, Hnausa .... 25.00
S. *F. Ólafsson, Wpg......... 5.00
Mrs. G. Elíasson, Árnes P. O.,
8 pund af hreinni ull.
Mrs. Margr. Sigurðsson, Otto 2.00
Mr. og Mrs. J. H. Paulson,
Lampman, Sask........... 10.00
Miss Sera Olafson, Wpeg .... 5.00
Gabriel Gabrielsson, Leslie 5.00
Mrs. Ben. Johnson, Rivert. 2.00
Sama 10 pund ull.
B. Guðmundsson, Langruth í.uu
Mr. og Mrs. O. Egilsson
og sonur þeirra, Langruth 3.00
G. S. Peterson, 111., U.S.A. 5.00
Sigurgeir Pétursson, Siglunes 5.00
Mrs. Marsibil Helgason, Nes
P. O., 8 pund ull.
Innilega þakkað
J. Jóhannesson, féh.
Mr. Thorbergur Thorbergsson,
frá Churchbridge, Sask., hefir;
dvalið í borginni nokkra daga í [
kynnisför til fólks síns, sem hér [
á heima.
KENNARA vantar fyrir Rocky
Hill skóla, No. 1871, fyrir næsta
kenslutímabil, 8 mánuði, frá 26.
ágúst til 20. desember 1929, og frá
1. marz til 30. júní 1930. Tilboð-
um, sem tilgreini mentstig, æf-
ingu og kaup, sem óskað er eftir,
verður veitt móttaka af undirrit-
uðum til 17. ágúst 1929.—G. John-
son, Stony Hill, Man.
Mr. Siggeir Thordarson, frá
Cypress River, hefir verið stadd-
ur í borginni nokkra undanfarna
daga. $
Frú Aurora Johnson, ekkja Hon.
Thos. H. Johnson, fyrrum dóms-
málaráðgjafa í Manitoba, er ný-
lega komin til borgarinnar, eftir
all-langa dvöl hjá dóttur sinni í
De Haven, Conn., og upp á síð-
kastið hjá bróður sínum, hr. Kára
Frederickson, sem búsettur er í
Toronto, Ont.
Messuboð.
11. ágúst: Lundar, kl. 2.30 e.m.
18. ágúst: Otto, kl. 2.30 e. m. og
Lundar kl. 7.30 s.m.
25. ágúst: Hayland Hall og Dar-
win skóla. Tími dags þegar
ákveðninn. H. J. Leó.
William H. Olson og Catherine
Marguerite Van, Allen voru gefin
saman í hjónaband í Fyrstu lút-
ersku kirkju, laugardaginn 3.
ágúst, kl. 11 f. h. Vígsluna fram-
kvæmdi dr. Björn B. Jónsson. Lög-
berg óskar til lukku.
Mr. og Mrs. T. W. Thordarson,
Fargo, N. D., komu snöggva ferð
til borgarinnar í vikunni sem!
leið.
Mr. ívar Jónasson, Langruth,
Man., var staddur í borginni um
helgina.
Dr. Tweed verður í Árborg mið-
vikudag og fimtudag, 14. og 15.
þessa mánaðar.
Séra Haraldur 'Sigmar, Moun-
tain, N.D., messar í Argyle presta-
kalli næstkomandi sunnudag, 11.
ágúst. Messurnar þar verða á
þessum tíma: Baldur kl. 11 f.h.,
Grund kl. 2.30 e. h., Glenboro kl.
7 e. h. . Allir boðnir og vel-
komnir. ' » fYf
Til vina okkar í Árborg.
Nú, þegar við erum flutt al-
farin frá Árborg, langar okkur til
að þakka öllum þeim, sem tóku
þátt í að kveðja okkur, sunnudags-
kvekiið 28. júlí, í húsi Mr. og Mrs.
Sigurjón Sigurðsson. Þar voru
okkur færð innileg og hlýleg
skilnaðar kveðjuorð og inndæl
gjöf (Club BagX og peningasjóð-
ur. Síðar bættust við nokkrir
trygðavinir, sem höfðu mist af að
vera með, því burtför okkar var
ráðstafað í hasti. Þessum vina-
hóp og öðrum, sem hafa kastað
geislum og hlýleik á veru okkar í
Árborg, biðjum við þann, sem er
höfundur allra gæða, að blessa í
framtíðinni. Við munum lengi
minnast með þakklæti vinanna í
Árborg.
W. Selkirk, Man., 5. ág. 1929.
Einar Thorwaldson,
Guðrún Thorwaldson.
Sigríður H. Sigurdson.
Sú villa hefir slæðst inn í blað
vort í síðastliðinni viku, þar sem
getið er um andlát og jarðarför
Helgu sál. Bárðarson, sem andað-
ist í Argylebygð fyrir , skömmu
síðan, að tengdasonur hennar er
nefndur Dr. R. McLeod, en átti
að vera D. R. McLeod. Þetta eru
viðkomandi vinir og venzlafólk
beðið að afsaka.
Á föstudaginn, hinn 16. þ. m.,
verður hinn mikli samkomusalur
í River Park, sem nefrtdur verður
Edgewater Gardens, opnaður fyr-
ir almenning. Eykur það vafa-
laust mikið aðsóknina til River
Park., sem þegar er mikil, því þar
er margt til skemtunar, og þar
hafa nú nýlega verið gerðar ýms-
ar umbætur. Opinn á hverju
kveldi, að sunnudagskveldi und-
anteknu. Hljóðfærasláttur verð-
ur þar afbragðs góður.
MARTIN & CO.
Þér munuð komast að
raun um
að fullkomnasta gerð og sanngjarnast verð
og
hægustu borgunar skilmálar
eru að finna hjá
MARTIN & CO.
EASY PAYMENTS LTD.
á fatnaði karla og kvenna og furfatnaði.
Það er þægilegt að borga smátt og smátt.
Á öðru gólfi Winnipeg Piano Bldg
Portage og Hargrave
Leiðréttingar.
Nokkrar fremur meinlegar pren-t
villur hafa slæðst inn í fyrirlest-
urinn eftir mig, sem birtist í júlí-
blaði “Sameiningarinnar”. Eg
leiðrétti þær hér með:
Bls. 307—“Raunveruleiki”, ekki
“Raumveruleiki”.
Bls. 207—r“góðu vinir”, ekki
“góður vinir.”
Bls. 207—“Andi manns”, ekki
“andi mannsins”.
Bls. 208—“genera”, ekki ”gen-
eral”.
Bls. 208—“klifra”, ekki “klifa”.
BIs. 209—“þekkingarinnar”, ekki
‘bekkingarinnar”.
Bls. 211—“Hann hefir staðið
upp úr í mannlífs hafinu”, ekki
“Hann hefir staðið á mannlífs-
hafinu”.
Bls. 213—“Kristnu trúarjátn-
ingarnar”, ekki “Kristur trúar-
játninganna”.
BIs. 214—“Skiftst”, ekki “skifst”.
Bls. 215—“Karma”, ekki “Kanna.”
Bls. 216—“Byggjast á raunveru-
leika”, ekki “leggjast á raunveru-
lieka”.
Bls. 216—“eigingirnin”, ekki
“eigingirni”.
Bls. 221—“Allri”, ekki “Allir”.
Má eg biðja alla lesendur að
gjöra þessar leiðréttingar í blöð-
um sínum?
Með vinsemd,
Carl J. Olson.
ROSE
THEATRE
SARGENT AT ARLINGTON
The West End’s Finest Theatre.
THUR. - FRI. - SAT. (This Week)
WILLIAM HAINES in
The Duke Steps Out
A Talking Picturc urlth
JOAN CRAWFORD
and KARL DANE
TIGERS SHADOW No. 4
FEATURETTE FABLES
KIDDIES! ! KIDDIES! !
WHOOPEE ! ! ! !
In addition to the above program
there will be að special “TOM
MIX” Feature shown next Satur-
day Afternoon Only. Come early
and don’t miss it.
MON., TCES. & WEÍ>. (Next Week)
‘The Little Wildcat,
A Part Talking Picture vnth
AUDREY FERRIS,
ROBERT EDESON,
GEORGE FAWCETT
Comedy - Featurette - News
Fréttapistlar frá Betel.
Það er nú orðið býsna oft, sem
við á Betel finnum okkur knúð til
að senda þakklætisorð til vina
vorra. Við verðum svo hrifin af
öllum þeim gæðum, sem við verð-
um aðnjótandi úr öllum áttum, að
við getum ekki annað en látið
aðra vita, að við finnum og skilj-
um hvað meint er.
Tuttugasta og níunda júní komu
hingað heiðurshjónin, séra Rún-
ólfur og frú Marteinsson. Hafa
þau, hin þrjú síðustu árin, komið
á þessum degi og verið hér gift-
ingardag sinn, þmítugasta júní.
Nú, sem áður, var glatt á hjalla,
fögur guðsþjónusta að morgni
dags og sérstök ánægja ag gleði
ríkti hjá öllum, sem búa hér á
þessu stóra heimili. Við þökkum
þessum góðu hjónum fyrir þessar
ánægjustundir.
Tíunda júlí verður einn eftir-
minnilegur dagur dagur á þessu
sumri. Kvenfélag Fyrsta lút.
safnaðar í Winnipeg kom þá til
Betel með sínar vanalegu gjafir
og gestrisni. Við Við ætlum ekki
að lýsa þeim blessunarríka degi,
því ein, sem þar var viðstödd.
hefir sent grein til Lögbergs, og
á sú grein að birtast áður en
þessi litli pistill kemur í ljós.
Fjórtánda júlí, kl. 2 e.h., komu
sex*bifreiðir brunandi inn á hlað,
og inn kom hópur af kærkomnum
gestum. Það var kvenfélagið
“Lilja’’ frá Breiðuvík. Þær fluttu
með sér gleði og blessun fyrir sál
og líkama; veitingarnar voru þær
allra beztu og svo kom söngur og
ræður í lestrarsal heimilisins.
Mrs. Gísli Si'gmunds stýrði söngn-
um og ávarpaði heimilisfólkið með
velvöldum orðum. Bjarni Mar-
teinsson flutti skýrt erindi, er
lengi mun bú a í huga þeirra, er
hlustuðu á.
Hr. Jónas skáld Stefánsson frá
Kaldbak, var staddur hér í borg-
inni á íslendingadaginn og flutti
þar kvæði.
Messur 11. ágúst: Elfros (á ís-
lenzku) kl. 11 árd.; Hólar (á ísl.)
kl. 3 síðd.; Elfros (á ensku kl. 7.30
isíðd.. Fjórir embættismenn úr
Sáluhjálparhernum tala við ensku
messuna. — Allir boðnir og vel-
komnir. Vinsamlegast C-. J. O.
KENNARI óskast fyrir Frey
skóla No. 890, fyrir næsta skólaár.
I Umsækjendur taki fram menta-
stig, æfingu og launa upphæð
Umsóknir sendist til H. B. Skapta
son, Box 206, Glenboro, Man.
Þjóðernisvakning
Um Það efnist birtust nýlega i
blaðinu “ísland”, sem út er gef-
ið í Reykjavík, eftirfarandi hug-
leirtgar og vakningarorð,
I.
Miklar breytingar hafa> orðið á
þjóðarhögum vorum hin síðustu
ár. öldur erlendrar menningar
og ómenningar hafa gengið yfir
landið og skolað mörgu á burt. —
Því mun enginn neita, að vér höf-
um lært margt og mikið af öðrum
þjóðum, sem gagnlegt er fyrir
þjóðlíf vort og menningu. En
hins fá menn ekki dulist, að sumt
af því, sem komist hefir til vor
frá öðrum þjóðum, horfir lítt til
menningarauka fyrir þjóð vora.
En hvað á að gera til varnar
því bezta í fari þjóðarinnar?
Það væri fásinna hin mesta að
reyna til þess að loka landinu
fyrir erlendum áhrifum, þó það
væri gjörlegt, því að slík innilok-
un myndi hafa kyrstöðu og aftur-
för í för með sér.
Ráðið er að eins eitt: íslend-
ingan verða að gerast þjóðræknir.
Þeir þurfa að vera sér þess með-
vitandi, að þeir séu íslendingar
og eigi ávalt að vera sannir og
góðir íslendingar. Ef þeir hafa
þetta hugfast, eru erlend áhrif á
engan hátt hættuleg. Þá verða
þau að ganga í gegn um íslenzk-
an hreinsunareld, hreinsunareld
þjóðrækninnar.
Það, sem orðið getur íslenzku
þjóðinni til hamingju, kemur heilt
og fágað út úr þeim eldi. En hitt,
sem ekki á við á landi hér, er ó-
fagurt og horfir til óhamingju
eða eyðileggingar, brennur þar
til kaldra kola. — Þess vegna eiga
allir góðir íslendingar að róa að
WONDERLAND
Winnipeg’s Cosiest Suburban
Theatre
<<
Thur. - Fri. - Sat. (This Week)
JACK HOLT in
AVALANCHE"
GLEN TROYON in
THE KID’S CLEVER”
DOUBLE BILL COMEDY
“BIG GAME”
Chap. 2, Final Reckoning.
((•
Mon. - Tue. - Wed. (Next Week)
KEN MAYNARD in
THECALIFORNIAMAIL”
rAY MURRAY and GARY COOPER
“THE FIRST KISS”
því öllum árum, að ættjarðarást
og þjóðernistilfinning vaxi og
þróist með þjóðinni.
II.
Þrátt fyrir allar þær hörmung-
ar, sem dunið hafa yfir þjóð vora
á liðnum tímum, hefir þjóðerni
vort og tunga haldið velli. Og
einmitt vegna þess skorti þjóðina
ekki þrótt til þess að slíta af sér
fjötra erlendrar ánauðar, þegar
tækifæri gafst til þess. Og af
þessum sömu ástæðum hefir
þjóðin haft mátt í sér til þess að
yfirvinna erfiðleika, slíta af sér
viðjar vanans og sækja fram á
lieð. — Hinar risavöxnu framfar-
ir síðustu fimtíu ára hafa sýnt
greinilega, hvílíkur þróttur hefir
geymst með þjóðinni þrátt fyrir
eldgos, ísbönn, plágur og erlenda
ánauð.
Þeir ágætu kostir, sem vér höf-
um erft frá forfeðrunum, mega
því ekki glatast. Þeir eru undir-
staða framfara þjóðar vorrar á ó-
komnum öldum.
>En þar sem þjóðerni vort hefir
verið aflgjafi þjóðar vorrar á
liðnum tímum, frelsað oss úr
fjötrum erlendrar ánauðar og
gefið oss þrótt til þess að sækja
fram á leið, verðum vér að vaka
yfir því á komandi timum.
Það hefir verið aflgjafi vor f
fortíðinni og það eitt getur orð-
ið aflgjafi vor í framtíðinni.
m.
íslendingar eru fámenn og fá-
tæk þjóð, í samanburði við flest-
ar aðrar þjóðir. Þeir geta því
hvorki treyst á vopn né peninga
til varnar frelsi þjóðarinnar. Þeir
geta ekki treyst neinu nema ætt-
jarðarást og þjóðrækni einstak-
linganna. Þessar dygðir verðum
vér að treysta á til varnar gegn
erlendri ásælni og drotnunar-
girni. — ísland krefst þess, að
sérhver íslendingur geri skyldu
sína.
IV.
íslenzk þjóðrækni getur aldrei
orðið að öfgum. Því að íslend-
ingar geta hvorki hugsað til land-
vinninga né til þess að verða
sjálfum sér nógir að öllu leyti.
Þjóðernisstefna og þjóðernis-
dýrkun getur orðið hættuleg hjá
sumum erlendum þjóðum, en hér
á landi getur hún aldrei orðið
hættuleg, eins og áður er sagt.
Það hljóta menn að skilja, ef þeir
á annað borð nenna að hugsa.
Stórveldissinnar og hernaðarsinn-
ar eru oft á tíðum, nefndir þjóð-
ernissinnar á meðal annara þjóða.
Slíka menn eigum vér ekki til og
höfum ekkert við að gera. Þeir
íslendingar, sem skammast yfir
þjóðernisgorgeir og hernaðar-
hættu í sambandi við hann, eru
fyrirlitlegir heimskingjar, sem
ekki er hægt að telja á meðal ó-
vitlausra manna.
íslenzkir þjóðernissinnar hljóta
vitanlega að gleðjast yfir hverri
tilraun, sem gerð er til þess að
skapa öryggi og vináttu á meðal
þjóðanna. íslendingar hafa alt
að vinna, ef slíkar tilraunir hepn-
ast, en engu að tapa.
EF ÞÉR hafið í hyggjm að byggja, þá tryggiS ySur hjá oss
TIMBUR
The McArthur Lumber & Fuel Co., Ltd.
Cor.y Princcss & Higgins Avc., Winnipeg. 8imi 86 619
Gert í Winnipeg
Allar tegundir af rafáhöldum fyrir heimilið. Einnig
allskonar aðgerðir. Hlutir silfraðir og nickel litaðir.
SIMI: 24 267
GARRY ELECTRIC FIXTURE CO., LIMITED
120 LOMBARD ST. - WINNIPEG
Þess vegna hljóta allir hugs-
andi Islendingar, hvar í flokki
sem þeir standa, að vera góðir
þjóðernissinnar.
V.
En það er ekki nægilegt að tala
og skrifa um þessi mál. Eitt-
hvað verður að gera, sem að
gagni kemur. Og ríkisvaldið á að
hafa forystuna.
Ríkisskólarnir eru margir og
til þeirra fer mikið fé á ári
hverju. Þessar stofnanir þarf að
nota sem bezt, i þessu ákveðna
augnamiði. Sérstaka áherzlu
verður að leggja á þjóðleg fræði,
tungu vora og sögu, í skólum
þessum, brýna fyrir nemendun-
um, hvaða skylda hvílir á þeim
við land og þjóð, gera það að sjálf-
stæðum, hugsandi verum, sem
drukkið hafa í sig andann úr
beztu bókmentum vorum, fornum
og nýjum. Að því veganesti
mundu þeir búa lengi.
Þessa hefir verið of litið gætt
á liðnum tímum. íslenzk fræði
hafa ekki skipað þann sess, sem
skyldi í skólum landsins. Það á
sér meira að segja stað í barna-
skólunum, að þar sé kákað við
kenslu erlendra tungumála, áður
en börnin geta talist læs á sitt
eigið mál. Slíkt endemis háttalag
má ekki eiga sér stað. Kensla í
erlendum málum á ekki að líðast
í barnaskólunum.
Þjóðernið er fjöregg þjóðar
vorrar, og ræktarsemi við það er
sá aflgjafi, sem vér verðum að
treysta á í hretviðrum framtíðar-
innar. — ísland.
VARDVEITIÐ MAT-
INN og VARÐVEITIÐ
HEILSUNA
Kæliskápurinn heldur
matnum ferskum og
kemur í veg fyrir sum-
arveikina. ís og kæli-
skápur eru beztu kaup-
in, þegar um sparnað
og góða heilsu er að
ræða. Fáið að vita um
verðlag vort og hæga
borgunarskilmála.
ARCTIC..
ICEsFUELCaim.
439 PORTACE ML
OOposrt* bk/thon'*
PHONE
42321
Frá Islandi
Frú Sigríður Jacobsen andað-
ist í gær á heimili sínu, Ásvalla-
götu 5 hér í bænum. — Visir.
Siglufirði, 3. júlí.
Þrjú herpinótaskip lögðu út frá
Akureyri í gær á síldveiðar. Tel-
ur verkalýssambandið þau hafa
lagt út í banni sínu, meðan ekki
hafi samist um kaupkjör skip-
verja, og hafa látið Verkamanna-
félag Siglufjarðar í dag auglýsa
verkbann á þær síldarbræðslu-
eða söltunarstöðvar, er kynnu að
vilja taka á móti síld af þeim.
Þrjú herpinótaskip komu inn á
laugardag með 50—400 tunnur.
Norsk línuskip segja hafís 20
sjómílur undan iStraumnesi við
PRINCESS FLOIVER SHOP
Laus blóm—Blóm I pottum
Btömskraut fyrir öll tækifærl
Sérstaklega fyrir jartSarfarir.
COR. SARGENT and VICTOR
Phone 36 102
SAFETY TAXICAB C0. LTD.
Beztu bílar í veröldinni
Til taks dag og nótt. Sann-
gjamt verð. Sími, 23 309.
Afgreiðsla: Leland Hotel.
N. CHARACK, forstjóri.
ísafjörð.
Tíð er afar köld. Snjóað í fjöll
nærfelt hverja nótt. Reknetjasíld
engin og beitutregða. Þorskveiði
í dag 3—700 pund á bát.
Afli samtals hér í júnímánuði
5,832 skippund, miðað við verkað-
an fisk.
Hugsið um húshaldskostnað yðar
Raforkan er minsta atriðið. Hún er eina framleiðslan, sem
lækkað hefir í verði, þar sem nálegá alt annað hefir hækk-
að í verði. '
Orsökin er sú, að það kostar nú minna að framleiða hana
og að eftirspumin er miklu meiri.
Hver dollar, sem borgaður er fyrir rafljós og raforku á
heimilunum, veitir meiri þægindi heldur en þeir peningar,
sem varið er til nokkurs annars, húshaldinu viðvíkjandi.
WINHIPEG ELECTRIC
COMPANY ^-
“Your Guarantee of Good Service.”
Lítið inn í eina af vorum þrem búðum: Appliance Depart-
ment, Power Bldg., 1841 Portage Ave., St. James, og cor.
Marion og Tache, St. Boniface.
TIMBUR 0G JARNVORUR TIL BYGGINGA
&Glass cs
imited
SÍMI
27 391
BEZTU TEGUNDIR AÐEINS
179 Notre Dame
Ave. E.