Lögberg - 17.10.1929, Blaðsíða 1
42 ARGANGUR í|
WiNNIPEG, MAN., FIMIUJAGINN 17. OKTÓBER 1929
NÚMER 41
^o<===>o<==z>o<===3o<===>o<==i>oc=z>o<=^oczr>o<=rDoc==Do<==z>o<==z>oc==Doc=z>oc==>oc==>o<==^
| Helztu heims-fréttir |
V---w-w-w-><->»<■ ">n< —>n<->n< >f>< >»<.>n< >»< >n< >n< >n< >Q< >Q< .">Q< . jO<1/
Canada
■' ; V-.' i
<■■■■■■ ■■ ' ■ .■ ---------------
Tekjuskattur sá, @em sambands-
stjórin ínnkallar, verður á þessu
fjárhagsári, miklu meiri, heldur
en á undanförnum árum. Helm-
ingur fjárhagsársins er nú liðinn,
og hafa þegar verið greiddar í
ríkis fjárhirzluna sexíu og þrjár
miljónir dollara í tekjuskatt, og ér
húist við, að alls muni hann nema
$67,000,000, eða jafnvel þar yfir.
Árið 1927 nam tekjuskatturinn
$47,000,000 og í fyrra $56,000,ooo.
Á þessum árum hefir tekjuskatt-
urinn verið lækkaður allmikið, en
samt hafa tekjur stjórnarinnar
aukist um meir en tuttugu miljón-
ir á tveimur árum, af þessari
tekjugrein, og bendir það óneit-
anlega á velmegun þjóðarinnar
þessi síðustu ár.
* * * *
Póststjórnin er nú um það leýti
að greiða póstþjónunum í Winni-
peg, $80,000 launauppbót, þeim
sem þátt tóku í verkfallinu 1919,
en sem byrjað hafa að vinna á
póshúsinu síðan. Hafa þeir verið
teknir sem byrjendur og launin
miðuð við það, en vegna fyrri
reynslu og æfingar hafa þeir ver-
ið látnir vinna þau verk á póst-
húsinu, sem meiri laun fylgja
heldur en byrjendur fá. Þennan
geið. Hefir mikið þras orðið út
af þessu máli og staðið yfir í tíu
ár, en er nú loksins útkljáð, og
munu allir hlutaðeigendur sæmi-
Jega ánægðir.
* * *
Frétt frá Ottawa, dagsett hinn
13. þ.m., segir að stjórnin ætli að
hafa miklu strangara eftjrlit með
fiskiveiðum í Winnipegvatni nú í
haust og vetur, heldur en verið
hefir. Er álitið, að fiskiveiða-
reglugerðin sé miður vel haldin..
Segir fréttin, að W. A. Found, að-
stoðar fiskiveiða ráðherra, hafi
gefið J. B. Skaptason, umsjónar-
manni, fiskiveiða í Manitoba, fyr-
irskipanir um að auka eftirlitið
eftir þörfum, og jafnvel bæta við
auka varðskipi, ef þörf er á. Jafn-
framt er haft eftir W. A. Found,
að fiskiveiða reglugerðinni verði
ekki breytt á þessu ári.
* * #
Fylkissjórnin í Briitsh Colum-
bia hefir mikið stríð við Dougho-
bors, ekki síður en stjórnin í Sas-
katchewan. Hundrað og þrettán
af þeim eru nú fangelsi í Oakalla,
B,C., og hafa þeir nú að undan-
förnu hvorki fengist til að vinna
né éta. Síðustu fréttir segja þó,
að þeir séu aftur farnir að éta dá-
lítið, af garðmat og hnetum, eftir
þriggja daga sveltu. Einnig eru
þeir farnir að vinna eitthvað ofur-
lítið, en þrjóskast þó alt sem
þeir geta.
* * *
Mathesan erkibiskup hefir leg-
ið veikur síðastliðnar tvær vikur
vestur í Victoria, ÖB.C., en er nú
sagður að vera á góðum batavegi.
* * *
Flugvél, tilheyrandi Trans-
Canada Airways, brotnaði á sunnu
dagskvöldið í grend við St. Char-
les, rétt vestan við Winnipeg, og
fórst þar flugstjórinn, J. Harald
Temple að nafni, og tveir farþeg-
ar, sem með honum voru, William
Burton og Kenneth R. McDonald
meiddust mikið. Allir áttu menn
þessir heima í Winnipeg.
* * *
Allir nýju ráðherrarnir í Sas-
kachewan, hafa verið endurkosn-
ir gagnsóknarlaust.
* * *
Mikil veðurblíða hefir verið und-
^nfarna daga um öll Sléttufylkin,
sólskin og sumarveður, þó komið
sé fram í miðjan októbermánuð.
•4 þriðjudaginn í þessari viku var
^itinn í Empress, Sask., 85 stig,
Swift Current 84, Moose Jaw 82
í Winnipeg 78 stig. Sama veð-
Urblíðan er í Alberta.
Bandaríkin
Albert B. Fall, fyrrum innan-
ríkisráðgjafi Bandaríkjanna, er
sakaður var um að hafa þegið í
ráðgjafatíð sinni, hundrað þúsund
dala mútur frá E. L. Doherty, í
sambandi við Sinclair olíu-
hneykslið alræma, er sagður að
vera svo farinn að heilsu, um
þessar mundir, að eigi sé unt um
hríð, að halda áfram yfirheyslu í
máli hans. ' ‘
* * *
Nefnd sú í Bandaríkjunum, er
yfirumsjón hefir með bændalán-
um, hefir mælt með því, að félags-
skap baðmullar framleiðenda í
Georgia ríkinu, skuli veitt $750,000
lán.
* * *
Mr. Drew Pearson, nafnkunnur
amerískur blaðamaður, hefir lýst
yfir því frammi fyrir nefnd þeirri
í öldungadeildinni, er um flota-
málin sérstaklega fjallar, að víst
sé, að ýmsir þeirra amerísku sér-
fræðinga í flotamálum, er sátu
þríveldafundinn í GeneVa, árið
1827, hafi verið því hlyntir, að
ekkert yrði úr framkvæmdum, að
því er takmörkun hervarna á sjó
áhrærði.
* * #
Fimm meiriháttar bankar í De-
troit, hafa myndað með sér sam-
steypu, með $709,832,529 höfuð-
stól.
# * *
Hoover forseti hefir tilkynt, að
hann hafi falið Mr. John McNab,
lögmanni í San Francisco, að
semja uppkast að frumvarpi til
laga um endurskipun og breyting-
ar stjórnarkerfis þess, er yfir-
gæzlu skal hafa með vínbannslög-
gjöf þjóðarinnar.
* * »
Stjórn Bandaríkjanna hefir lýst
yfir því, að hún sé reiðubúin til
að taka þátt í hinum fyrirhugaða
fimmvelda fundi, er haldast skal í
Lundúnum í næstkomandi janúar-
mánuði, og taka til íhugunar mál-
ið um takmörkun hervarna á sjó.
* * *
Sex þúsund vöruflutninga bíl-
stjórar í New York, er fyrir
nokkru hófu verkfall, hafa nú aft-
ur tekið upp vinnu síno. Fengu
þeir fimm dala kauphækkun á
viku. Menn þessir starfa alveg
að flutningi ávaxta og jarðepla
milli járnbrautarstöðvanna og
heildsöluhúsanna.
* * *
Strandvarnabátur einn amer-
ískur, náði núna fyrir skemstu í
tvær smyglunarsnekkjur, skamt
undan ströndum New Jersey, er
hvor um sig höfðu drjúgan sopa
af áfengi innan borðs. Hin fyrri,
er náðist í, hafði meðferðis 500
kassa af brennivíni, en sá síðari,
er kom frá Englandi, 1,000 kassa
af skozku whiskey.
Bretland
Samkvæmt fregnum frá Lund-
únum, er það nú talið nokkurn
veginn víst, að Stanley Baldwin
muni láta af forystu íhaldsflokks-
ins í náinni framtíð. Er því
spáð, að Winston Chuhchill muni
verða eftirmaður hans.
* * *
Rt. Hon. Ramsay MacDonald,
stjórnarformaður Breta, varð sex-
tíu og þriggja ára gamall síðast-
liðinn laugardag. Var hann þá
staddur í New York. Bárust hon-
um við það tækifæri hamingju-
óskaskeyti 1 þúsunda tali, frá
stjórnmálamönnum, fylgismönnum
sínum og þjóðhöfðingjum, víðs-
vegar um heim. Meðal annars
barst honum eitt slíkt skeyti frá
hinum canadiska stjórnarfor-
manni, Rt. Hon. W .L. Mackenzie
King.
* * *
Jafnaðarmanna blaðið “For-
ward”, sem gefið er út í Glasgow,
skorar á jafnaðarmenn að vaka á
verði, því engan veginn sé óhugs-
andi, að alvarlegar tilraunir verði
til þess gerðar í náinni framtíð,
að bregða íæti fyrir núverandií
verkamannastjórn og steypa henni'
af stóli. Þykist téð blað lesa
eyktamörkin þannig, að reynt
verði að leggja stjórninni það til
ámælis, að hún sé í þann veginn
að stofna til viðskifta og sendi-
herra sambands við Soviet stjórn-
ina rússnesku.
Hvaðanæfa
Símað er frá Jerúsalem, að fimm
hundruð og tuttugu Arabar og
Gyðingar í Palestínu, hafi fundn-
ir verið sekir um glæpsamlega
þátttöku í óeirðum þeim. er átt
hafa sér stað þar í landi, og verið
dæmdir til fangelsisvistar um
lengri eða skemmri tíma.
* * *
Nationalista flokkurinn á Þýzka-
landi, hefir nýlega látið miðstjórn
flokksins afhenda innanríkisráð-
gjafanum frumvarp til laga, er þá
kröfu inniheldur, að látin verði
fara fram almenn atkvæðagreiðsla
um það, hvort þjóðin sé sek eða
saklaus í sambandi við upptök
heimsstyrjaldarinnar < miklu, og
eins um hitt, hvort tiltækilegt sé,
að ganga að , skaðabótaskilmálum
þeim, sem kendir eru við Young,
eða ekki.
* * •
Baron Giichi Tanaca, fyrruip
stjórnarforrpaður í Japan, er lát-
inn fyrir skömmu, að heimili sínu
í Tokyo, sextíu og sex ára að
aldri. Þótti hann um eitt skeið,
einn af allra áhrifamestu stjórn-
málamönnum þjóðar sinnar.
* • *
Stjón Japana hefir skipað Tem-
asa Tokugova, sem fyrsta sendi-
herra þjóðar sinnar í Canada. Er
hann maður af gömlum aðalsætt-
um, og hámentaður að sögn.
Gegndi hann um nokkurra ára
skeið, alræðismanns embætti fyr-
ir hönd þjóðar sinnar í Ástralíu.
• * *
Piano leikarinn heimsfrægi,
Yladimir de Pachmann, liggur
hættulega veikur í Rómaborg um
þessar mundir. Frægð sína hefir
de Pachmann einkum og sérílagi
hlotið, fyrir frábæra túlkun á tón-
smíðum Chopins. Er þessi lítt
viðjafnanlegi snillingur nú frek-
lega áttatíu og eins árs að aldri.
Kveðjusamsæti
Blaine, Wash., 20. sept 1929.
Síðastliðið laugardagskvöld (þ.
14.) hélt íslenzki lúterski söfnuð-
urinn og þeir, sem honum eru
hlyntir, samsæti í Moose Hall hér
í bænum, til að kveðja prestaskóla
stúdentinn, Erling K. ólafson, er
hefir þjónað nefndum söfnuði s.
1. 3% mánuð, en var þá á förum til
Chicago, þar sem hann heldur á-
fram námi sínu næsta vetur.
Samsætinu stýrði forseti safn-
aðarins, hr. Andrew Daníelsson
þingmaður, með miklum skörungs-
skap. Til skemtana var söngur og
ræðuhöld, einnig flutti frú Krist-
ín D. Johnson kvæði það, er hér
fylgir með. Þá var og af kaffi
með mörgum brauðtegundum, og
fóru allir glaðir, ánægðir og vel
á sig komnir heim að samsætinu
loknu.
Hr. ólafson var af samsætis-
fólki gefin vönduð ferðataska,
en sunnudagsskóla bekkur hans
gaf honum blýant (iParker Pencil)
með greyptu letri.
Samsætið sátu um 130 manns..
Næsta sunnudag á eftir hélt hr.
Ólafson kveðju-guðsþjónustu í
kirkju safnaðarins, kl. 11 f. h.,
fyrir fullu húsi og hélt svo tafar-
laust til Seattle, þar sem hann
bjóst við að messa um kvöldið.
Herra Erlingur K. ólafson hef-
ir eignast marga góða kunningja í
Blaine, þennan stutta tíma, sem
hann hefir dvalið hér, því hann
er aðlaðandi maður með afbrigð-
um, og má ganga að því vísu, að
hann á mikla og göfuga framtíð
fyrir höndum, bæði sem prestur
og maður.
Erlingur er sonur séra K. K.
Ólafsonar, forseta kirkjufélagsins,
og fyrri konu hans, og hefir því
ekki langt að sækja þó hann verði
nýtur maður í starfi sínu.
K. Goodman.
• * *
Kveðja safnaðarins til Erlings
Ólafsonar.
Sem árgeisli vermir á vori
og viðreisir gróandans blóm,
þannig kom Erlingur aust^n
með ylhlýjan lífsorða hljóm.
. Gott var í kirkjuna að koma,
um kyrláta helgidags stund,
er flutti hann fræðin þau góðu
með fábreyttri æskumanns lund,
Með hreinleik í hjarta og munni,
og hegðan er sæma má bezt ,
því Meistarans málefni hæfa
þau menningar skilyrði flest.
En góðvild og einingar andi
efst er nú mentunar grein.
sem læra þarf lífsins í skóla
að lækna þess sundrungar mein.
Með kærleika fólkið þig kveður.—
á kristindóms framsóknar braut,
prúðmennið göfga1 og góða,
gæfan þér falli í skaut. .
Kristín D. Johnson.
Men’s Club
Fyrir skömmu var stofnað nýtt
félag innan Fyrsta lúterska safn-
aðar í Winnipeg, sem nefnt er
Men’s Club (Karlaklúbbur)w Var
þess stuttlega getið hér í blaðinu
á sínum tíma. Mun tilgangur
klúbbsins aðallega vera sá,- að
auka, og glæða vináttu og sam-
vinnu karlmanna innan safnaðar-
ins, yngri og eldri. Félag þetta
hafði sína fyrstu samkomu, í sam-
komusal kirkjunna.r, á miðvjku-
dagskveldið í vikunni sem leið.
Voru þar saman komnir yfir sex-
tíu, ungir menn, miðaldra menn
og jafnvel gamlir menn, og má ó-
hætt segja, að þeir skemtu sér á-
gætlega hver með öðrum. Að-
göngumiðar höfðu verið seldir
±yrirfram eins og vanalega ger-
ist. Rétt eftir kl. 6.30 var sezt að
borðum, en fyrst var sungið “O,
Canada!” og Dr. Björn B. Jónsson
flutti borðbæn. Máltíðin var á-
gæt, en hana lagði til í þetta sinn
trúboðsfélag Fyrsta lút. safnaðar.
Eftir að máltíðinni var lokið, voru
af öllum sungnir nokkrir söngvar,
aðallega íslenzkir ættjarðarsöngv-
ar. Söngnum stýrði Mr. Paul Bar-
dal, en Mr. Stef. Sölvason lék á
hljóðfæri. Voru þeir báðir gerð-
ir að heiðursmeðlimum félagsins.
Aðal efn; skemtiskrárinnar
þetta kvöld, var ræða, sem séra K.
K. lOlafson, forseti kirkjufélags-
ins flutti. Er hann nýkominn frá
Evrópu, en hann var, eins og les-
endum Lögbergs er kunnugt, full-
trúi kirkjufélagsins á alheims-
þingi lúterskra manna, sem haldið
var í Kaupmannahöfn í sumar.
Hafði hann ferðast allvíða í sum-
ar og sagði hann mjög greinilega
og skemtilega frá ferðum sínum,
bæði á sjó og landi. Höfðu gest-
irnir mikla ánægju af því og urðu
margs vísari. 1 þetta sinn mintist
hann þó ekkert á komu sina til
íslands, en það gerir hann í ræðu,
sem hann í kveld, fimtudag, flyt-
ur í Fyrstu lút. kirkju, eins og
auglýst er hér í blaðinu.
Séra K. K. Olafson talaði ensku
við þetta tækifæri og það gerðu
allir aðrir, sem eitthvað höfðu
að segja. Mr. Fjeldsted skipaði
forsæti, en H. A. Bergman, K.C.,
þakkaði ræðumanninum, og allir
tóku undir, með því að standa á
fætur. Ef einhverjir kynnu að
finna sér það til, að þetta félag
sé of enskt, hvað málið snertir,
þá ættu þeir að minnast þess, að
þeir íslendingar í þessari borg,
sem ekki hafa full not enskrar
tungu, munu nú miklu færri en
hinir, sem ekki hafa full not ís-
lenzkrar tungu.
Öllum viðstöddum mun koma
saman um, að þessi fyrsta sam-
koma Karlaklúbbsins hafi hepn-
ast ágætlega, og hlakka vafalaust
til hinnar næstu.
Heimatrúboð
Allir söfnuðir Hins ev. lút.
kirkjufélags íslendinga í Vestur-
heimi, eru ámintir um það hér-
með, að þess er þörf að styrkja
þetta málefni eins og venja er til
um þetta leyti árs með fjárfram-
lögum. Víða tíðkast að taka off-
ur til þessa málefnis þann sunnu-
dag, sem næstur er 31. okt., þegar
siðbótarinnar er minst, en um að-
ferðir er hver söfnuður sjálfráð-
ur. 'Embættismenn safnaðanna,
kennimenn og félög, eru beðnir að
taka að sér málið og sjá því borg-
ið. Fjölmargir einstaklingar vjðs-
vegar minnast líka þessa máls ár-
lega með gjöfum, og má vænta að
þeim fjölgi, því hin síðustu ár
hafa undirtektir almennings við
þetta málefni yerjð í framför. —
Framkvæmdarnefndin sendir á-
ætlun til safnaðanna, samkvæmt
ráðstöfun kirkjuþinga, og fljótar
og góðar undirtektir hjálpa mál-
efninu mest. Áætlunin gerir ráð
fyrir $1,200 innsöfnun, sem er
sama upphæð og í fyrra.
Allir hlutaðeigendur eru beðnir
að veita þessu athygli og leysa af
hendi hlutverk sitt í þessu efni.
öll fjárframlög ber að senda til
féhirðis kirkjufélagsins, hr. Finns
Johnson, Box 3115, Winnipeg.
nipeg.
K. K. Olafsoh,
forseti kirkjufél.
Glenboro, Man., 14. okt. 1929.
Islenzk útvarpsstöð
sem heyrist til um alla Evrópu.
Eins , og mönnum er kunnugt,
bárust landssímastjóra fimm til-
boð frá erlendum félögum, um
byggingu útvarpsstöðvar hér. Síð-
an tilboðið kom, hefir landssíma-
stjóri ásamt Gunnlaugi BriemI
símaverkfræðingi, haft málið til
rækilegrar meðferðar. Að yfir’-
veguðu máli komust þeir að þeirri
niðurstöðu, að hagkvæmast væri,
að taka tilboði frá Marconi-félag-
inu um byggingu stöðvarinnar.
Fyrri partinn í gær undirskrif-
aði atvinnumálaráðherra samn-
ingnn við félagið um þetta efni.
Skömmu síðar átti Mgbl. tal við
landssímastjóra Gísla J. ólafson,
og fékk hjá honum frekari vitn-
eskju um málið.
— Stöðin, sem við fáum, segir
hann, verður með 16 kw. styrk-
leika í loftefni. Upprunalega var
ekki gert ráð fyrir því, að við
gæutm gert okkur vonir um að fá
sterkari stöð en 5 kw. og sætti út-
varpsnefndin sig við það á sínum
tíma. Stöðin verður því þrefalt
stærri eða aflmeiri, en menn upp-
runalega gerðu ráð fyrir. Með
þessu mói er það algerlega trygt,
að hægt verður að heyra til stöðv-
arinnar með ódýrum tækjum hvar
sem er á landinu.
Landssímastjórnin lei'taði til-
boða í stöð með 7% kw. afli. En
jafnframt voru félögin spurð að
því, hvað það myndi kosta, að
auka afl stöðvarinnar síða meir.
Þá ko mþað í ljós, að helmingi
sterkari stöð gat fengist nú þeg-
ar fyrir að eins 10% hærra verð.
Var þá það ráð tekið, að fá
sterkari stöðina strax.
Marconi-félagið tvegar að-eins
útvarpssenditækin. Fyrir þau á
að greiða 321 þús. krónur. Þá er
eftir stöðvarhúsið, möstrin og
leiðslan frá Reykjavík til stöðv-
arinnar. — Er áætlað, að stöðin
kosti með öllu og öllu um 650 þús.
krónur.
Hve langæræg verður stöðin?
—Ge^t er ráð fyrir, að til
hennar heyrist að minsta kosti á
120 km. svæði með góðum kryst-
alstækjum, er kosta aðeins 20 til
30 krónur. Innan þess svæðis eru
nú 60%, landsmanna búsetir. Um
75% landsmanna heyra til hennar
með 1 lampa tæki, en með tveggja
til þriggja lampa tæki heyrist vel
til stöðvarinnar hvar sem er á
landinu. Þegar send verða loft-
skeyti frá stöðinni, verður orkan
32 kw. í loftneti. Er gert ráð
fyrir, að veðurskeyti verði send
þá leiðina til útlanda, en ekki í
gegn um sæsímann, eins og nú er.
Munu veðursxeytin héðan þá heyr-
ast um alla Evrópu.
Marconi-félagið lánar ríkinu 28
þús. serlingspund til 5 ára. Fæst
lán Iþetta affallalaust með 6%%
vöxtum. Á lánið að afborgast á
fimm árum.
Möstur stöðvarinnar eiga að
vera 150 metra há. Er sú hæð
mun meiri, en, upprunalega var
gért ráð fyrir. Ér búist við því,
að stöðin hafi eiginle ga fimm
. 1 ■ 1
sinnum meiri styrkleika, en í
fyrstu var ráð fyrir gert, sumpart
vegna þess, hve raforkan er meiri,
sum part vegna þess, hve möstrin
verða gerð há.
Marconi-félagið skuldbindur sig
til þess að hafa stöðina til fyrir
Alþingishátíðina að vori, og hefir
gengið að því, að greiða háar
sektir, ef út af því verður brugð-
ið.
Ekki er enn ákveðið hvar stöð-
in á að standa, en svo mikið er
víst, að hún verður 7—10 km. frá
Reykjavík. Nokkrir staðir koma
til greina, og verður valið á
milli þeirra einhcern næstu daga.
Með því að ákveða þegar í upp-
hafi, að hafa stöðina svona sterka,
er trygging fengin fyrir því, að
hún komi að fullum notum. — í
landshlutum, sem fjarlægstir eru
Réykjavík, þurfa menn ekki að
óttast, að erlendar stöðvar trufli
Reykjavíkur-stöðina. Og svo lang-
dræg ætti þessi stöð að verða, að
íslendingar, sem búsettir eru í
nálægum löndum, gætu haft henn-
ar not.
Þeir, sem kynst hafa erlendum
útvarpsstöðvum, geta m. a. klöggv-
að sig á styrkleika hennar, með
því að bera hana saman við Ka-
lundborgstöðina í Danmörku, en
hún er ekki nema hálfdrættingur,
samanborið við hina tilvonandi
Ur bænum
Sannarlega ættu allir íslending-
ar, sem þess eiga nokkurn kost, að
sækja fyrirlestrar samkomu séra
Kristins K. ólafssonar, sem aug-
lýst er í þessu blaði. Það hefir
víst aldrei brugðist, að íslending-
ar hér vestra hafi sótt þessháttar
samkomur. Aukin ástæða, fram
yfir það venjulega, er til að sækja
samkomuna á fimtudaginn, því
þar gefst mönnum kostur á að
heyra hvað merkur Vestur-lslend-
ingur, sem fæddur er í Ameríku
og aldrei hefir áður séð Island,
segir um land feðra sinna. Menn
verða óefað forvitnir að komast
eftir því, hvernig honum kemur
ísland fyrir sjónir.
Gift voru hinn 14. þ.m., Sigurð-
ur Sveinsson og Stefanía Clem-
enz, bæði til heimilis í Winnipeg.
Dr. Björn B. Jónsson gifti og fór
hjónavígslan fram að heimili
hans, 774 Victor str.
Trúboðsfélag Fyrsta lút. safn-
aðar heldur opinn fund á mið-
vikudagskvöldið hinn 23. þ. m. kl.
8.15 í Fyrstu lútersku kirkjuni,
Mrs. K. G. MacKay, trúboði frá
Indlandi, talar á fundinum. Þá
verður þar og músík. Allar kon-
ur velkomnar. Aðgangur ekki
seldur, en samskot tekin.
Ýms bílslys vildu til hér í grend-
inni um helgina. Tvær manneskj-
ur frá Beausejour, Man., dóu af
þeim völdum, en tólf meiddust
meira og minna. Eitt slysið vildi
til á Macdonald brautinni, sunn-
an við Winnipeg, þannig, að tveir
bílar rákust á og munu báðir hafa
verið á hraðri ferð. 1 öðrum bíln-
um var íslenzkt fólk, sem meidd-
ist meira og minna, en þó ekki svo
að líf neins af þeim sé í hættu, að
sem álitið er. Eftir því sem dag-
blöðin hér í borginni skýra frá,
voru nöfn þeirra sem meiddust:
John Lindal, Lundar; Miss S.
Hallson, Miss Anna Hallson, Missj
B. Hallson og Miss S. Hálfdáns-
son(?), allar frá Riverton. Einnig
A. Jónasson, St. James, Man.
Séra Haraldur Sigmar messar á
sunnudaginn, hinn 20. þ.m., í Pét-
urskirkju kl. 11 f. h. og í kirkju
Fjallasafnaðar kl. 3 e. h.
Orðasveimur hefir verið á gangi
um bæinn um það, að skip það,
“Melita”, er Canadian Pacific fé-
lagið mun ætla að senda til ís-
lands næsta vor, væri þannig út-
búið, að í raun og veru væri um
eitt farrými að ræða, og að allir
þeir, sem heim færu með því skipi,
lifðu því í “órjúfanlegu sambýli”.
Nú hefir uppgötvast, að svo er
ekki, því á “Melita”, eru þrjú far-
rými, engu síður en á “Ándania”,
skipi því, er Cunard félagið send-
ir heim, og flokkun farþega sú
sama.
Messur í Vatnabygðum, d. 20.
okt.: að Elfros kl. 11 árd., Hólar
kl. 3 síðd. og í Elfros kl. 7.30 síðd.
(á ensku)|. Allir boðnir og vel-
komnir. Virisamlegast, C.J.Ö.
í giftingafregn frá séra Carli J.
Olson, er birtist í síðasta blaði,
er komist svo að orði: Faðir brúð-
gumans (Sigurjóns Austman í
Elfros), hét Ásmundur B. Aust-
mann. Þarna er ekki rétt að orði
komist, því Ásmundur er enn á lífi
og við góða heilsu.
Miss Aldís Thorlakson, sem er
að læra læknisfræði við lækna-
skólann í innieg, tók fyrir skömmu
þátt í íþróttaa samkepni í Saska-
toon, Sask.-, og. skaraði þar
fram úr keppinautum sínum öllum
spjótkasti og kringlukasti. Kringl-
unum (discus) kastaði hún 91 fet
og 3 þumlunga, en spjótinu 98 fet
og 7 þumlunga, of er það fimm
þumlungum betur en áður hefir
gert verið.
Mr. Hinrik Johnson frá Ebor,
Man., og Carl sonur hans, voru
þtaddir í borginni á mánudaginn
og þriðjudaginn í þessari viku.
Á mánudagskveldið í ;þessari
viku, var æði gestkvæmt á heimili
þeirra Mr. og Mrs. D. R. McLeod,
að 536 Evelyn Str., Selkirk, Heim-
sóttu þau þá tuttugu og fimm vin-
ir þeirra frá Winnipeg og færðu
þeim fallegan lampa að gjöf, sem
Mrs. B. S. Benson afhenti þeim
fyrir hönd gestanna, sem vináttu-
vott og bar jafnframt fram þakk-
læti þeirra og hamingjuóskir.
Mættu gestirnir hinum ástsamleg-
ustu viðtökum hjá húsbændunum
og nutu ágætrar skemtunar lengi
fram eftir kveldinu.
Dr. B. J. Brandson, skurðlækn-
irinn víðfrægi, lagði af stað suð-
ur til Chicago, 111., síðastliðinn
sunnudag, til þess að sitja lækna-
þing eitt mikið, sem haldast átti
þar í borginni. Gerði doktorinn ráð
fyrir því, að verða að heiman ná-
lægt hálfsmánaðar tíma.
Icelandic Choral Society heldur
skemtifund í samkomusal Fyrstu
lútersku kirkju þriðjudagskvöldið
þann 22. þessa mánaðar. Allir
gamlir meðlimir flokksins og til-
vonandi meðlimir, boðnir og vel-
komnir.
Mr. Pétur Bjarnason, frá Hecla
p. O., man., var staddur í borg-
inni fyrri part vikunnar.
Mrs. O. B. Olafsson frá Bran-
don, Man., var stödd í borginni
undanfarna daga í kynnisför til
sonar síns og tengdadóttur, Mr. og
Mrs. O. Olafsson.
Mr. Paul Bjarnason, fasteigna-
sali frá Wynyard, Sask., var stadd-
ur í borginni um síðustu helgi.
ROSE THEATRE.
Thursday, Friday, Saturday this
week, Monte Blue in Conquest, a
story about two aviators’ daring
dash to the South Pole! The crash
of their plane! A struggle through
icy barriers to the Base Ship! The
battle against cowardice, hunger
and death! Victory in the thrill-
ing attempt for conquest.
Mon., Tue., Wed. next week. an
All Talking, Singing, Dancing
Picture, George Tessel in Lucky
Boy. A picture that is different,
in a Drama of a Boy’s Ambition
that knew encouragement from
only his adoring mother. Hear her
sing the song My Mother’s Eyes.
Don’t miss this picture. A real
evening’s entertainment assured.
"V
\