Lögberg - 26.12.1929, Page 1
42 ARGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 26. DESEMBER 1929 NÚMER 52
] Lögl berg ós kar öl lum Islendingum góðs og gifturíks . N ýárs! ^
Nýfundnir hellar í Noregi
í Ranefjorden í NorÖur-Noregi
liggur litiÖ sveitaþorp, sem kallað
er Mór. Það er fæstum kunnugt,
að þar er stærstu hellar i Evrópu.
I Rövarsdalnum liggur einn fegursti
kalksteinshellir í Norður-Evrópu.
Grænuhlíðarhellir. Fáir eru þeir,
sem komið hafa í þennan helli, að-
eins örfáir menn úr nágrenninu og
jarðfræðingar, sem hafa mælt hann
og rannsakað. Hann er 1220 metr-
ar á lengd, og var til skamms tíma
álitið, að hann væri lengsti hellir í
Norður-Evrópu.
En nú er komið í ljós, að and-
spænis. þessum helli í Rövarsdaln-
um, eru tveir gríðarstórir hellar,
Larshellir og Lappahellir, sem tæp-
lega tugur manna hefir enn aug-
um litið. Þeir eru hvorugir rann-
sakaðir að nokkrum mun, en óhætt
er að gera ráð fyrir, að þeir séu að
minsta kosti 3CXX) metra langir hvor.
Larshellir er nefndur eftir Lars
Björneset bónda í Rövarsdálnum,
^em fann hann fyrir nokkru. Út-
-lendur blaöamaður, sem gekk í hell-
inní ásamt aðstoðarmönnum sínum,
eftir tilvísun Lars segir svo frá
ferðalaginu:
Larshellir.
—Þegar við höfðum útbúið okk-
ur með ljóskerum, ljósmyndavél-
um, köðlum, vistum og magnium-
ljósum, lögðum við af stað áleiðis
til Larshellisins. — Það er ekki
hlaupið að því að finna hellismunn-
ann, því að opið er svo lítið, að ó-
trúlegt má þykja, að svo mikill hell-
ir sé falinn á bak við það.
Það er engin furða, að hellarnir
hafa ekki fundist fyr en á okkar
tímum. Þeir eru á afrétt, þar sem
engin umferð er, og Rövarsdalur-
inn er fámenn sveit, enda þótt fög-
ur sé. Hér í dalnum var hin ódauð-
lega saga Hamsuns, “Gróin jörð”
fMarkens Gröde) tekin á kvik-
mynd.
Það væri ekki kostnaSarsamt að
ryðja til í hellismunnanum, þannig
að auðvelt yrði að komast niður
í hellinn. En eins og munninn er
nú frá náttúrunnar hendi, er það
miklum erfiðleikum bundið aS kom-
ast niður í hellinn. Það olli okk-
ur lika mikillar fyrirhafnar að
komast með ljósmyndatækin niður
um hellismunnann, sökum þess hve
þröngur hann er. En hér um bil
100 metrum fyrir innan munnann
víkkar gangurinn og við blasir
undrafögur hvelfing. 300 metrum
fyrir innan munnann er smáfoss,
sem eleki er hægt að stikla yfir,
nema með því aö ganga fast upp að
honum. En við eigum eftir að
undrast enn meira, því að brátt
komum við að andyrinu á háreistri
hvelfingu, sem er svo stórkostleg,
að maður lækþar sjálfrátt róminn.
Hvelfingin er að minsta kosti 15
metra há. — Til vinstri handar
rennur áin og til hægri breiðist hell-
irinn út eins og feiknastór salur,
þar til hann endar á geysistórum
kletti, sem snýr sléttum fleti sínum
fram i salinn. Á klettinum eru
daggardropar úr ánni, og þeir glóa í
öllum regnbogans litum í ljósinu
frá ljóskerum okkar. Út úr hell-
inum liggur Iangur gangur, þar sem
áin fellur í miðju, en beggja vegna
eru rennisléttir stallar eins og gang-
stéttir. Þessi gangur er mörg
hundruð metra á lengd.
Við endann á þessum gangi skift-
ist hellirinn í tvo hluti Liggur ann-
arsvegar gangur til vinstri, og renn-
ur áin fram eftir honum. Hann
heldur áfram um 800 metra, en þá
tekur við botnlaust gap. Við lét-
um karbid-l jós síga niður í 60 metra
löngum kaðli. Ekki kendum við
botns, en það sloknaði að lokum á
ljósinu af vatnsúða.
í ganginum til hægri er rólegra.
Botninn er hulinn smágerðum
sandi. Sumstaðar er sandurinn í
hrúgum, og gerir það manni erfið-
ara að komast áfram. Hér sjást
líka drög að dropsteinamyndunum.
Ivoks komum við að hárri sand-
hrúgu, og urðum við þá að skilja
Ijósmyndatækin eftir en skríða
sjálfír yfir hrúguna, uppi undir
hvelfingu gangsins. Komum við þá
í aðra hvelfingu, miklu fegursta.
Þar eru dropsteinar, ekki tröll-
auknir, heldur smáir og í fegurstu
litbrigðum. Ýmist hanga þeir í lofti
hvelfingarinnar, eða þeir rísa frá
gólfinu. Sumir standa í vatnspoll-
um eins og kórallar og sumir liggja
eins og íshroði á veggjunum.
Með ónákvæmum mælingum
reik'naðist okkur að hellirinn mundi
vera um 3000—3500 metra langur.
Við vorum klukkutíma og 20 mín-
útur á leiðinni upp á yfirborðið og
flýttum við okkur þó mikið. Hæð-
armælir okkar sýndi, að botn hell-
isins er 350 metrum fyrir neðan
hellismunnann og 50 metr. fyrir
ofan sjávarmál.
Lappahellir.
Daginn eftir gengum við í Lappa-
hellinn. Hann er hið fegursta völ-
undarhús, sem hægt er að hugsa
sér. Aðeins 50 metrum fyrir neS-
an munnann byrjar hellirinn að
greiðast í ýmsar áttir. Gangam-
'r ÚRgja. sumstaðar samsíða, sum-
staðar í kross og víða í greinum.
Þeir eru hver yfir öðrum á ýmsa
vegu. En allsstaðar er hátt undir
loft. Aftur á móti er erfitt að kom-
ast áfram, þvi að víða þarf að
klifra, og urðum við því að neyðast
til að skilja eftir ljósmyndatækin
okkar, og gátum við ekki tekið með
okkur annað en ljósker og hæðar-
mæli.
Veggirnir eru ósléttir og með ótal
nybhum og hyldjúpar sprungur, og
alt fjallið virðist sprungið og tætt
sundur.
Við vorum 180 metrum fyrir
neðan hellismunnann, þegar við fór-
um að hugsa um það, hvort við
mundum geta ratað út aftur, því
að þarna voru göngin orSin svo flók-
in, að erfitt var að finna rétta leið.
Við áæthrÖum, að við hefðum geng-
ið um 3000 metra inn á við. Eg
hirSi ekki að þreyta lesarann með
því hve oft við viltumst af leið, en
nóg er að geta þess, að eitt skiftið
vorum við algerlega viltir og áttuð-
um okkur ekki nema fyrir tilviljun
eina.—Eitt sinn datt geisistórt bjarg
úr loftinu, og munaði minstu að það
kæmi í höfuð eins af förunautum
minum. Okkur létti, þegar viS kom-
um aftur út í dagsbirtuna. Hellir
þessi er eitt hið mesta furðu verk,
sem eg hefi séð, en endurminningin
um hann er ekki skemtileg. Mér
rennur enn kalt vatn milli skinns og
hörunds, þegar eg hugsa til æfin-
týra þeirra, er við lentum í þama
niðri.
Grcenuhlíðarhellir.
Loks ákváðum við að ganga í
Grænuhlíðarhelli til að reyna, ef
hægt væri að taka ljósmyndir. —
Enda þótt við ættum við hina sömu
erfiðleika að striða og í Larshelli,
þá auðnaðist okkur samt að taka
nokkrar góðar myndir. Að vísu
gefa myndirnar litla hugmynd um
hina stórfenglegu fegurð hellanna,
vegna þess, aS aðallega eru það hin-
ir fögm litir, sem setja svip á þá,
en myndin gefur samt hugmynd um
formið. Ferðafélag í Rövarsdaln-
um hefir látið setja grindur og stiga
i hellinn, og á eirium stað er líka
bekkur, sem hægt er að setjast á til
að hvíla sig. Þessi hellir hefir tvo
munna, og er hægt að haga ferðum
sínum svo, að komið sé inn um ann-
an munnan, en farið út um hinn. Á
þennan hátt er mjög auSvelt að rata
og getur þvi gamalt fólk haft jafn-
mikla ánægju af að ganga í hellinn
og hinir yngri.
Við sjónum vorum hlasa allir
regnbogans litir í hinum einkenni-
legustu samlböndum, marmarahvítt,
grænt, gult, brúnt, dökkrautt, svart
og blátfe. Hið krystaltæra vatn
neðanjarðarfljótsins myndar hring-
iður og fossa ogý Ijósinu frá ljós-
kerum okkar myndast regnbogar,
sem bera við mannarahvítan kalk-
steininn.---------
—Mbl.
Litaskifti
Allir hafa heyrt sögur um, að
menn yrðu stundum gráhærðir á
einni nóttu, e:f þeir yrðu ákaflega
hræddir, eða mættu einhverjum
slikum hörmungum. En þetta kem-
ur ekki aðeins fyrir menn, held-
ur skepnurnar líka, ef sönn er
smáfrétt frá London, sem blöðin
fluttu fyrir skömmu. Fiskiskip
lenti í miklum sjávarháska í
Norðursjónum nú í vetur, en
komst þá af við illan leik. Þegar
veðrinu slotaði, tók skipstjórinn
eftir því, að svartur köttur, sem
þeir höfðu innan borðs, var orðinn
nærri hvítur. Kendu þeir þvt um,
að hann hefði orðið svona afar-
hræddur í ófviðrinu.
HELZTU HEIMSFRÉTTIR
Skall hurð nœrri hælum
Dagblöðin hafa undanfarna
daga flutt þær fréttir, að miklar
líkur væru til, að stjórnin á Bret-
landi mundi falla við aðra um-
ræðu kolanáma frumvarps stjórn-
arinnar. Köfu fhaldsmenn kom-
ið fram með viðauka-tillögu þeSs
efnis, að ef hún hefði náð sam-
þykki þingsins, þá væri stjórnin
þar með fallin. Hafði Llyod
George lýst yfir því, að hann, og
frjálslyndi flokkurinn yfirleitt,
væri frumvarpi stjórnarinnar al-
gerlega mótfallinn og fann hann
því margt til foráttu. Eins og
kunnugt er, getur stjórnin ekki
haldið völdum, nema með stuðn-
ingi frjálslynda flokksins. Þeg-
ar til atkvæa gom, fóru leikar
þannig, að frumvarp stjórnarinn-
ar var samþykt við aðra umræðu
með 281 atkv. gegn 273, eða að-
eins átta atkvæða mismun. Með
stjórninni greiddu atkv. 275 þing-
menn, fjórir af hinum óháðu þing-
mönnum og tveir frjálslyndir. En
á móti henni 228 íhaldsmenn, 41
frjálslyndir og fjórir óháðir.
Allmargir þingmenn voru fjar-
verandi og var mikill meiri hluti
þeirra tilheýrandi íhaldsflokkn-
um. Þ^tta umrædda frumvarp á
enn langa leið fyrir höndum til
að verða að lögum, og þykir mjög
óvíst, að það varði það nokkurn
tíma. Talið er líklegt, að í raun
og veru hafi mótstöðuflokkar
stjórnarinnar ekkert kapp lagt á
að fella hana að þessu sinni, en
að eins vilja sýna henni í tvo
heimana.
Takmörkun herflotanua
Eins og kunnugt er, hafa fimm
störþjóðir úr þrem heimsálfum,
komið sér saman um, að halda
þing eitt mikið í London í vetur,
þar sem mæta fulltrúar frá öllum
þessum fimm þjóðum, og er til-
gangurinn sá, að þessar þjóðir
reyni að koma sér saman um
takförkun heriflotanna og koma
þar á samræmi hvað snertir stærð
og fjölda herskipa þessara þjóða,
en aðallega er það mergurinn
málsins, að koma í veg fyrir að
hver þjóðin keppist við aðra um
að hafa sem öflugastan og mest-
an herflota. Þetta þing verður,
eins og fyr segir, haldið í Lon-
don, og hefst 12. janúar. George
V. setur þingi og flytur þing-
setningarræðu. * Er þetta í fyrsta
sinni, sem hann kemur þannig
opinberlega fram, síðan hann
veiktist í fyrra haust.
Kuldi
Hér í Vesturlandinu hefir tíðin
verið köld og snjókoma mikil,
síðan snemma í nóvember, harð-
inda tíð að heita má. í vikunni
sem leið, var afar-kalt, 38 stiga
frost (bejlow) á búnaðafskjólan-
um, skamt sunnan við Winnipeg,
ogt40 í Moose Jaw, Sask. Er þetta
óvanalega mikið frost, svona
snemma að vetrinum.
Nýtt pósthús í Calgary
Fyrir fáum dögum hefir veýið
tekið út byggingarleyfi fyrir nýju
pósthúsi í Calgary, Alta., sem á að
kosta $1,297,000. Alls nema bygg-
ingaleyfin þar í borginni á þessu
ári, $11,227,636, og er það hér
um bil fimm miljónum nteifa,
heldur en á öllu árinu 1928. Má
af þessu sjá, að afar mikið hefir
verið bygt í Calgary á þessu ári.
Hálf sextugur
Hinn 17. þ. m. var W. L. Mac-
kenzie King, forsætisráðherra
Canada, 55 ára gamall. Fæddur í
Kitchener, Ontario (sem áður hét
Berlin) 17. desember 1874. Nú,
eias og jafnan, barst honum mik-
ill fjöldi samfagnaðarskeyta, á
afmælisdegi hans.
Þingið verður líklega sett 16. Jan.
Það er búist við, að fylkisþing-
ið í Manitoba verði kallað saman
fimtudaginn hinn 16. janúar
næstkomandi. Þó mun það ekki
fyllilega ákveðið enn og getur
skeð, að þingið mæti ekki fyr en
svo sem viku seinna. óvanalega
mikið verkefni liggur fyrir þing-
inu, sérstaklega vegna þess, að
fylkið er nú að taka við yfirráð-
um yfir náttúruauðæfum sínum
frá sambandsstjórninni. Auk þess
mun stjórnin hafa mörg ný uaga-
frumvörp að flytja. Þá er og bú-
ist við, að þingið þurfi langan
tíma til að athuga skattamálin.
Stjórnin hefir þegar lýst yfir því,
að hún hafi ákveðið, að lækka
ýmsa skatta, en hún hefir ekkert
um það sagt, hvernig hún ætlar
að ná upp hallanum, sem af þeirri
skattalækkun flýtur, en þess er
getið til, að hann komi niður á
bjórnum og bensíninu.
Atvinna eða atvinnuleysi
Það heyrist allmikið talað um
atvinnuleysi í Canada um þessar
mundir, sérstaklega í Vestur-
Canada. Er ekkert undarlegt að
svo sé, því uppskera var lítil og
auðunnin og gaf því verkamönn-
um litla atvinnu. Einnig hefir
C. P. R. félagið sagt fleiri mönn-
um upp vetrarvinnu, heldur en
vanalega. Hefir æði mikið verið
um þetta atvinnuleysi talað nri að
undanförnu og farið hefir verið
fram á það við sambandsstjórn-
ina, að hún héldi nokkurs konar
þing með helztu verkveitendum í
þeim tilgangi, að reyna að ráða
bót á atvinnuleysinu. Hlutaðeig-
andi ráðherra, Hon. Peter Heen-
an, segir hins vegar, að almenn
atvinna í Canaída sé nú allmikið
meiri, heldur en hún hafi nokkurn
tíma verið á þessum tíma árs síð-
an 1920. Sýnist því ekki ástæða
til að ætla, að atvinnuskortur
sé mjög tilfinnanlegur í landinu
yfirleitt, þó hann sé sjálfsagt
æði tilfinnanlegur í ýmsum bæj-
um og þar á meðal í Winnipeg.
Tvíheilagt
Borgarstjórinn í Regina, James
McAra, hefir, samkvæmt heimild
frá borgarráðinu, látið það boð
út ganga, að í Regina skuli annar
í jólum (26. des.)) vera helgidag-
ur eða frídagur. Að vísu hefir
borgarstjórinn ekki vald til að
skipa neinum að halda þennan
dag helgan frekar en þeir sjálfir
vilja, en hann skorar á þá að
gera það, og borgarbijar flestir
telja sér vanalega skylt að hlýða
slíkum áskorunum frá borgar-
stjóra, hvar sem er. Það gera
borgararnir í Regina sjálfsagt
líka.
Góður fjárhagur
Mellon fjármálaráðherra Banda-
ríkjanna, lýsir yfir því, að al-
ríkistekjurnar, á fjárhagsárinu
1929, hafi orðið $4,033,000,000, en
útgjöldin $3,848 000,000, og sé því
tekju afgangurinn $186,000,000.
Næsta ár gerir hann ráð fyrir, að
tekjuafgangurinn verði um 226
miljónir dala.
Lord Byng veikur
Lord ÍByng, fyrverandi land-
stjóri í Canada, hefir verið veik-
ur að undanförnu, og er enn.
Hefir honum verið ráðlagt, að
flytja í hlýrra loftslag um tíma
og ætlaði hann til Suður Afriku,
en hefir enn ekki verið fær um
að leggja af stað í þá ferð sökum
lasleika.
Námaslys
í síðastliðinni viku varð gas-
sprenging mikil í kolanámu einni
í Oklahoma ríkinu, og fórust þar
sextíu menn, sem voru að vinnu
í námunni.
Illviðri og manntjón
Stormar miklir, með afar mik-
illi snjókomu 0g kulda, hafa að
undanförnu gengið yfir miðhluta
BandaríRjanna norðanverðan. Hafa
þessi illviðri orðið 36 manneskj-
um að bana, sem kunnugt er, þar
af seytján í Chicágo. Byljirnir
hafa víða gert flugferðir ómógu-
legar og snjórinn bílerðir. Er
sagt að snjókoman hafi verið al-
veg óvanalega mikil, margir bæ-
ir verið einangraðir um tíma og
jafnvel járnbrautalestir komust
ekki ferða sinna um tíma.
Vel sótt kirkja
Hinn 20. þ. m. voru liðin 50 ár
síðan Pius páfi flutti sína fyrstu
messu. Mintist hann þessa hálfrar
aldar afmælis með því að flytja
messu í St. Péturs kirkjunni miklu
í Róm. Er sagt að við þá messu
h*fi verið viðstaddar 70,000 manna.
Er nú orðin sú breyting á högum
páfans, að hann er ekki lengur
inniluktur í hinum mikla páfagarði
afar miklum fagnaðarlátum bæði á
leið hans til kirkjunnar og heirn
aftur. ,
og á liann það að þakka þeim rétt-
arbótum, sem Mussolini hefir veitt
honurn. Var páfanum tekið með
Hœrri skattar
Það lítur út fyrir að stjórnin á l
Bretlandi verði að auka skattana að
miklum mun, aðallega til ! fram-
færslu hinum mikl sæg atvinnu-
lausra manna þar í landi. Fjárhags-
áætlun upp til 21. þ. m. gerir ráð
fyrir $45,000,000 auka-útgjöldum,
sem aðallega er ætlað til að hjálpa
þeim, sem atvinnulausir eru. Það
lítur ekki út fyrir að þeirri stjórn,
sem nú er við völdin ætli að hepn-
ast að bæta úr atvinnuleysis bölinu,
frekar en þeirri, sem áður var, enda
mun þar ekki vera hægðarleikur við
að gera.
Sundskáli Svarfdæla
Um mörg ár hefir Ungmennafé-
lag Svarfdœla halcSð uppi sund-
kenslu af miklu kappi og áhuga, pg
voru þó skilyrði hvergi nærri góð,
ekki um aðrar sundlaugar að ræða
en kalda polla. Því var það, að
árið 1925 fór félagið að hugsa um^
að koma upp hlýrri sundlaug og
nota til þess þá einu hitauppsprettu,
sem finst í Svarfaðardal. Er það
laug uppi i fjalli. -Fyrst i stað var
ekki hugsað hærra en það, að búa
til þró, er vatnið væri leitt i. En nú
þegar, er þessari hugmynd var
hreyft, bættist félaginu liðstyrkur
Varð Ungmennafélagið “Þorsteinn
Svörfuður” fyrst til þess að bjóða
fram aðstoð sína, og eins lofuðu
sveitar og sýslufélög fjárhagsleg-
um stuðningi. Var þá horfið frá
þvi að byggja sundþró, en ráðist í að
reisa sundhöll. Var byrjað á því
verki vorið 1928, og var sundhöllin,
eða “Sundskóli Svarfdælinga,” opn-
aður til almennra afnota á sumar-
daginn fyrsta 1929.
Skálinn er allur úr járnbentri
steinsteypu. Hann er 15.2 metrar
á lengd, 8,8 metrar á breidd og
vegghæð 2.4 metrar. Sundþróin er
13 metrar á lengd og 6.7 metrar
á breidd. Þvert um skálann við
norðuríjtafn eru svalir, og til hliðar
við vesturvegg, eru klefar og salerni.
í einum klefanum eru steypiböð,
bæði heit og kóld.
Eins og áður er sagt, et heita
vatnið tekið í laug uppi í f jallshlíð.
Er það leitt í gufuþrýstipípum nið-
ur að skálanum, 550 metra veg, og
er leiðslan höfð ofanjarðar og hlað-
ið utan að henni til þess að forðast
kælingu. Uppi í lauginni er vatnið
29 stiga heitt (á Celsius), en þeg-
ar það kemur niður að lauginni er
það 28 stiga heitt. í þrónni er hit-
inn altaf um 22—23 stig. Sund-
skáli þessi hefir kostað um 21 þús-
und krónur. Er það nú í ráði að
sund verði gert að skyldunámsgrein
þegar á næsta ári við barnaskóla
Svarfdælinga.
Sundíþróttin hefir verið Svarf-
dælingum áhugamál. Meðan kent
var í köldum sundlaugum voru
sundnemendur 20 — 40 á hverju
vori, en þegar sundskálinn var kom-
inn upp, brá svo við, að nemendur
urðu þegar á fyrsta ári 130 talsins.
\
Eiríkur gamli
Vindur stóð af víðu hafi.
Við mér brosti særinn fagur.
íBlámans dökkva fól í fangi
furðubjartur júnídagur.
Aldan lék um ægisanda
upplitsdjörf og bernskuglettin.
lyfti og bylti bleiku þangi,
brotagjörn og löðurslettin.
Sé ég hvar í hvítum sandi
hvolfdi gamall sexæringur,
stóð þar upp við öðru megin
aldurhniginn Vestfirðingur.
Undan höllum húfugarmi
hnyklar sáust yglibrúna.
Nið’rum munn og upp á enni
ófust flækjur lífsins rúna.
Gekk ég að og kvaddi karlinn *
kunnuglega — að staðarsiðum,
tók í hendi hnúabera,
hnýtta mjög og krepta í liðum.
Alt ég sá á augabragði,
úlpu grófa,—á hnjánum bætur,—
sígnar axlir,—sveigðar herðar,—
sokkaræksni—skakka fætur.
—Hver á skipi? skýrt ég spurði,
—skælt og lekt af sól og vindi?
Víst er það, að ef ég ætti,
í eldinn strax það höggva myndi,
yrði þó að notum nokkrum,
notum meiri en þessi siður,
að láta feyskna og fúna báta
flagna í smátt og rotna niður.
Svar hann óðar að mér rétti.
—Engin brigð á svipnum kendi,—
—Bátinn á ég, áður fyrrum
oft ég vað í sjóinn rendi.
Munum báðir tíma tvenna,
tíma nú og fyr á fyr á dögum.
Skipin með sér höfðu í hauga
höfðingjar í fornum sögum!
—Alveg rétt, þeir höfðu í hauga
hesta, skip og dýra málma.
Karlinn svarar.—Á þeim öldum
eldur gnast af höggum skálma.
Þá varð enginn elli-dauður,
allir hraustir féllu í stríði.
Eg hef grun, að enn með óðni
öl og róstur gleðji lýði.
Eg hef grun, að enn sem áður
ellidauðinn þyngstur verði, —
betra að falla fullur orku
fyrir 'Mfsinsí skapasverði.
Betur hæfir hrannasyni
hafsins fang en sængurdýna.
Samt mun fár á sama máli.
Situr hver með skoðun sína.
Rétt á eftir kvaddi’ ég karlinn,
kleif um fjöll í næstu sveitir,
gleymdi alveg atburð’ þessu,
unz að þausti, rétt um leitir,
kom þá gestur göngulúinn,
gisti sömu húsakynni.
Hann að morgni sagði sögu,
sem mér fyrnist vart í minni.
—Eitt sinn var í sumar,
sagð’ ’ann,
—svartaþoka, en logn á sæínn.
Eiríkur frá Yzta-Vogi
ýtti á flot um miðjan daginn.
Gamall maður gömlu skipi
gutla kvaðst þar út með landi. . .
. . . Viku seinna báti brotnum
brimið velti að Illasandi. —
Böðvar frá Hnífsdal.—Eimreiðin.
WINNIPEG ELECTRIC CO.
Margir hafa vafalaust veitt því
eftirtekt, að því auðugri sem
menn eru, því kærulausari eru
þeir um það, hvernig þeir eru til
fara. Auðmaðurinn getur sem
allra bezt verið illa til fara, án
þess nokkur taki til þess. Fólk
hugsar sem svo: “Hann þarf ekki
að sýnast, hann er.” Hinum, sem
fátækari eru, finst þeir þar á
móti ekki geta. komist hjá því, að
berast heilmikið á, bæði í klæða-
burði og öðru. Mörgum finst það
jafnvel virðingu sinni og áliti ó-
samboðið, að ferðast með stræt-
isvögnunum vegna þess, að þar sé
svo margt af allskonar fólki, sem
þeir vilja ekki vera með. Þeir
vilja heldur ferðast í sínum bíl,
láni. Hinn ferðast með stræt-
isvögnunum, þegar honum er
það hentugt, og kærir sig ekk-
er það hentugt, og kærir sig ekk-
ert hverjir þar eru fyrir eða hvað
aðrir segja um það. Þeir eyða
ekki fé sínu að óþörfu, eða bara
til að fullnægja hégómaskapnum.
Gleðileg Jól, 1929
(Brot.)i
Þúsundföld þakkargjörð hljómi,
þíðustum barna með róml.
Blessi ykkur sólkerfa-sjólinn,
er sendi’ ykkur barnið um jólin.
Guðs náðargeislum skrýdd sólin,
gefi ykkur hlutdeild um jólin
í öllu, er lífið skal læra
og lifandi kærleik má færa.
Jafnt bláeygu fuglarnir blíðu
og barnslegu raddirnar þýðu.
Ó, leyfðu’ öllum, sólkerfa sjólinn,
sjálfs þín að njóta um jólin.
Er ljósanna lýsa’ ykkur ljósin,
svo lífsvona frjósi’ eklci rósin;
hver einasta marinshönd hér megi,
merki þitt bera’ á þeim degi.
Eg tilbið þig, kærleikans kraftur,
að koma til syndarans aftur,
er mist hafði merkið sitt góða
— meðbræðrum lið sitt að bjóða.
F. H. Revkjalín.
Hinn heilagi “draum-
kaktus,J
Frá þeim, sem ekkert á, mun
tekið, verða það, sem hann ekki
Það er eins og þetta hafi ræzt
á Indíánunum í Wyoming. Indí-
ánar þessir eru afkomendur af
stórum þjóðflokki, sem nefndist
Amerinda. í fornöld voru Indí-
ánar þessir stórir og sterkir,
hraustleikamenn á allan hátt,
metnaðargjarnir og hugrakkir.
En þegar Norðurálfumenn komu
til Ameríku, flæmdu þeir Indíána
frá löndum sínum, drápu þá eins
og hráviði og komu þeim á flæk-
ing. Nokkrir eirra settust að í
Wyoming, allslausir. Það var að-
eins eitt, sem hvítu mennirnir
höfðu ekki getað tekið frá þeim,
og iþað var hin einkennilega
peyote-jurt. — kaktus, er upp-
runa sinn á í Mexico. Indíánar
tyggja jurt þessa, og hún hefir
þau áhrif á þá, að þeir gleyma
öllum raunum sínum og þá dreym-
ir fagra vökudrauma, líkt og menn
sem neyta ópíums. í draumum
sínum mintust þeir fornar frægð-
ar og þess vegna hafa þeir geymt
og varðveitt sögu sína, með sama
áhuga og ýmsir þjóðflokkar varð-
veita trúarbrögð sín.
En það var örðugt að ná í kak-
tusinn. Hann vex aðeins upp til
háfjalla, þar sem varla er fært
yfir öðrum en fuglinum fljúg-
l andi. Og einmitt vegna þess, hve
örðugt er að ná í kaktusinn, og
hverja eiginleika hann hefir, hafa
Indíánar talið hann heilag^ jurt
og af guðdómlegum uppruna. Það
eru því aðeins útvaldir menn, sem
fá leyfi til að sækja kaktusinn
upp til fjalla, og áður en þeir geri
það, fer fram helgiathöfn og eru
þeir'vígðir hátíðlega til farar-
innar.
En nú hafa hinir vísu löggjaf-
ar í Wyoming bannað Indíánum
að eta þessa jurt. Þeir segja, að
hún sé áfeng, og það sé því
bannlagabrot að éta hana. Hvíti
þjóðflokkurinn, sem rænt hafði
Indíá’ana öllu, sem þeir áttu, fé og
frelsi, geta nú ekki unnað þeim
hinna fögru drauma. — í fjölda-
mörg ár hafa Indíánar lifað kyr-
látu og friðsömu lífi og ekkert
skift sér af því, hver lög voru sett
í landinu. En nú risu þeir upp og
mótmæltu. Og ýmsir merkir menn
tóku málstað þeirra, þar á með-
al einn merkur prestur. Þeir
halda því fram, að ekki sé hægt
að benda á neitt dæmi þess, að
notkun kaktussins hafi orðið til
tjóns, en að hún sefi hug og sé
til huggunar fyrir þessa þjóð, sem
er að deyja út. Enn fremur benda
þeir á, að notkun hennar standi í
sambandi við guðsdýrkun þeirra
og trúarbrögð. — Lesb.