Lögberg - 23.01.1930, Síða 4
Bls. 4.
LÖGRERG, FIMTUDAGINN 23. JANÚAR, 1930.
^ögberg
(JefiS út hvern fimtudag af The Col-
umhia Press, Ltd., Cor. Sargent Ave.
og Toronto St., Winnipeg, Man.
Talsímar: 86 327 og 86 328
Einar P. Jónsson, Editor
_____»_____________________________
Utanáskrift blaðsins:
The Columbia Press, Ltd., Box 3172
Winnipeg, Man.
Utanáskrift ritstjórans:
Editor Lögberg, Box 3172, Winnipeg, Man.
Verð $3.00 um árið. Borgist fyrirfram.
The “Lögberg" is printed and publlshed by
The Columbia Press, Limited, in the Columbla
Buildlng, 595 Sargent Ave., Winnlpeg, Manltoba.
Lundúnastefnan
SíðastliíSinn þriðjudag, gerðust þau afar-
merkilegu liðindi, .að sett var í Lundúnum
fimmveldastefna súr er kvatt var til að undir-
lagi þeirra Ramsay MacDonalds, stjórnarfor-
manns Breta, og forseta Bandaríkjanna, Mr.
Herberts Hoover. Tilgangur móts þessa er sá,
að ræða um takmarkanir vígvarna á sjó, og
hrinda þaraðlútandi ráðstöfunum í fram-
kvæmd, að svo miklu leyti sem auðið er. Að
mótinu standa Bretar, Bandaríkjamenn, Frakk-
ar, ítalir og Japanar.
' • . •* . . V ■ tf' . " *
Stefna þessi, sem vel má teljast einstök í
sinni röð, og sennilega hlýtúr að skoðast einn
al'lra merkasti viðburðurinn, frá því að friðar-
þinginu í Versölum sleit, hófst með velkomenda
minni, ér hans hátign Georg Breta konungur
flutti. Er þettá fyrsta opinbera athöfnin, er
konungurinn hefir tekið þátt í, frá því er hann
veiktist. Er hann nú sagður að hafa náð aftur
fullri heilsu.
Að lokinni ræðu konungs, er borin var á
vængjum víðvarpsins út um allan hinn ment-
aða heim, flutti Ramsay MaoDonald snjalt er-
indi, um leið og hann bauð fulltrúa þá, er mættir
voru frá hinum ýmsu 'þjóðum, velkomna í nafni
ráðuneytisins.
Til stefnu þessarar hinnar stór-þýðingar-
miklu, var boðað með næsta ólíkum hætti frá því,
er venjulegt var í liðinni tíð, þá er um milliríkja-
mót var að ræða. Að þessu sinni voru ekki
þræddar hinar gömlu launkofaleiðir, heldur var
opinberlega til mótsins kvatt, rétt á eftir að
samtalsfundi þeirra Ramsay MacDonalds og
Hoovers forseta lauk, svo ekki verður annað
sagt, en að nægur væri tími til undirbúnings.
Það verður heldur engu haldið levndu, er á
stefnunni fer ifram. Hún er alþjóðaeðlis, og
grípur samtímis inn í líf og framtíð allra þjóða,
eins og Mr. MacDonald komst að orði.
Engum getur blandast hugur um það, að til-
gangur þeirra mætu manna, er að stefnu þess-
ari standa, hafi verið fagur og tímabær. ÚJt-
gjaldabyrði hinna ýmsu þjóða, til vígvama á
sjó, var orðin slík, að þær fengu ekki Iengur
risið undir henni, og horfðu beinlínis fram á
gjaldþrot. Þó var andi sá, er samkepnin í víg-
búnaði jafnan hefir í för með sér, jafnvel enn
ægilegri.
Framleiðsla vopna og vígvirkja hefir ávalt
stríð í för með sér. Vopnaði friðurinn svo-
kallaði, er í raun og veru einn allra skæðasti
óvinur mannkynsins. Þessvegna hlaut að draga
að því, að forustumenn mannkynsins gengju í
eina og sömu breiðfylking með friðarfánann
undinn að hún, í þeim tilgangi, að færa alþjóð
manna heim sanninn um það, að takmarkanir
vígvama, og síðar algert afnám væri það eina,
er stefna bæri að. Vel sé hverjum þeim, er af
lífi og sál skipar sér undir slíkan fána!
Stjómmálamenn þeir og sérfræðingar á hin-
um ýmsu sviðum, er í Lundúnastefnunni taka
þátt, komu þangað vitanlega engan veginn ó-
undirbúnir. Þeir hafa kvnt sér allar aðstæður
síðustu sex mánuðina, og viðað að sér upplýs-
ingum úr öllum hugsanlegum áttum. Það get-
ur því ekki hjá því farið, að starf þeirra beri
heillarikan árangur, jafnvel þótt ekki verði því
öllu í framkvæmd hrundið, er fram á kann að
verða fariðj—
Afstaða stjómar þeirrar til friðarmálanna,
er nú fer með völd á Bretlandi, er löngu þunn.
Mun næsta vafasamt, hvort nokkur önnur þjóð
eigi, á því sviði, jafnoka Mr. MacDonalds.
Nokkram dögum áður en stefna þessi hófst,
flutti núverandi flotamálaráðgjafi Breta ræðu,
þar sem hann lýsti vfir því afdráttarlaust, að
stjóm sú, er hann teldist til, væri eigi aðeins
viljug til, heldur og jafnframt áfram um að
fækka tölu brezkra beitiskipa um tuttugu og
fimm. Eða með öðrum orðum, láta fimmtíu
beiti.skip nægjá í stað sjötíu og fimm, er brí-
veldastefnan í Geneva kom sér saman um. Slíka
takmörkun kvað flotamálaráðgjafinn byggjast á
því þjóðaöryggi, er Kellogg sáttmálanum væri
samfara og þeim öðrum alþjóðasáttmálum, er
líkir væru að innihaldi. Vígbúnaður á sjó væri
orðið slíkt heljarfarg, að þjóðirnar fengju ekki
lengur undir því risið. Þessvegna gæti ekki
annað komið til mála, en að hef jast þegar handa
og hrinda öllum hugsanlegum takmörkunum á
'því sviði í framkvæmd.
Að Bretar og Bandaríkjamenn gangi í ein-
lægni til verks á þessu nýbyrjaða Lundúna móti,
verður ekki um vilst, og er þess að vænta, að
slíkt hið sama megi segja um fulltrúa þeirra
annara þjóða, er að málum standa. —
Ganga má þó vafalaust út ifpá því sem gefnu,
að um skoðanamun nokkum verði að ræða í
hinum og þessum atriðum. Er engan veginn
ólíklegt, að Frakkar kunni að verða nokkuð
þungir í skauti. Getur og svo farið, að hið
sama megi segja um ttali. Þó mun mega gera
sér nokkra von, að svo skýrist málin við um-
ræður og gögn þau, er fram í dagsljósið hljóta
að koma á mótinu, að þröngsýnar hagsmuna-
hvatir verði eigi alþjóðahagnum að fótakefli.
'Ekki verður sagt, að öTI brezku blöðin séu
sammála um Lundúnastefnuna, né afstöðu
stjóraarinnar til hennar. Blöðin Daily Tele-
graph og London 'Times, telja þjóðarömgginu
'stofnað í háska, nái tillögur stjórnarinnar fram
að ganga. Er einkum þó hið fvrnefnda blað
biturvrt og vondauft um viturlegan árangur.
Blöð þau, er verkamannaflokknum, eða
stjómarflokknum fylgja að málum, virðast
næsta vongóð um giftudrjúgan árangur, og má
hið sama segja um all-flest blöð frjálslynda
flokksins, svo sem Manchester Guardian, er
eigi aðeins telur takmörkun vígvama á sjó
tímabæra, heldur og beinlínis sjálifsagða.
Rgeða hans hátignar, konungsins, við setn-
ing Lundúnarstefnunnar, hljóðar á þessa leið:
“Það fær mér óumræðílegrar ánægju, að
vera viðstaddur til þess að bjóða velkomna
fulltrúa þeirra fimm stórvelda, sem hér era
mættir í þeim tilgangi, að reyna að draga úr
þeirri háskalegu og eyðileggjandi samkepni,
sem þjóðiraar hafa átt í viðvíkjandi vígbúnaði
á sjó. Sérhver sú þjóð, sem að stefnu þessari
atendur, finnur til metnaðar yfir flota sínum
og afrekum hans í liðinni tíð. Hvorki hinum
sögulega metnaði, né heldur flotum voram yfir
höfuð, verður um kent, þótt samkepni í her-
skipasmíð, sökum ímyndaðrar náuðsynjar, hafi ;
leitt til vantrausts meðal þjóðanna, og jafnvel
stríðs.
Frá því er styrjöldinni miklu sleit, hafa allar
þjóðir skýlaust lýst yfir því, að ekkert mætti
ógert látið, til þess að fyrirbyggja að slík ógur-
leg harmsaga gæti endurtekið sig. t þeirri
friðarhöll, sem vér eram nú í þann veginn að
byggja, er mænirásinn í raun og veru gagn-
kvæmur skilningur þeirra þjóða, er mest eiga til
sjóflota að sækja, og sem komið hafa sér saman
um sérhverja þá takmörkun herskipa, er sam-
rýmanleg sé þjóðarörygginu. Ekki verður því
neitað, að það hafi reynst ærið öðragt viðfangs-
efni, að hrinda takmörkun sjóvarna í fram-
kvæmd, jafnvel þótt samkomulag hafi náðst um
megin grundvöllinn. Samt sem áður vanst
nokkuð á með Washington sáttmálanum frá
1922, er í sér fól vissa takmörkun á byggingu
bryndreka og takmarkaði jaifnframt smíði loft-
fara, er nota mætti í stríði. Samt verður ekki
annað sagt, en að þar fyrir utan, hafi allar slík-
ar tilraunir farið út um þúfur.
Eg trúi því, að þér, fulltrúar þeirra stjóma,
er lagt hafa yður á herðar að halda áfram því
verki, sem hafið var í Washington, séuð einhuga
um verksvið yðar, þar sem hvorki hagsmuna-
legar eða þröngar þjóðernishvatir komist að,
heldur stjómist allar yðar athafnir af innblás-
inni, göfugri þrá, til þess að velta þeim völum
úr vegi er hindrað hafa og hindra skipulags-
bundinn, menningarlegan þroska.
Allar þjóðir hafa sínar sérstöku þarfir, og
krefjast ef til vill þar af leiðandi sérstakra í-
vilnana. En sé sérhver þeirra fús til að fóma
einhverju fyrir velferð heildarinnar, getur ekki
hjá því farið að slíkt leiði til góðs fyrir þjóðir
þær, er þér farið með umboð fyrir, sem og mann-
kynið í heild.
Eg treysti því einlæglega, að árangur þessa
móts leiði til þess á næstunni, að létta til muna
af herðum almennings, þeim ógurlegu byrðum,
er frá vígbúnaði stafa, og flýti svo starfi þeirr-
af nefndar þjóðbandalagsins, er með höndum
hefir undirbúning allsherjar vopnatakmörk-
unarstefnu, að mál þetta verði í náinni fram-
tíð, tekið til meðferðar á jafnvel enn vfirgrips-
meiri hátt.
Með þessa von í sál, mun eg fylgjast með
starfsemi yðar, eins vandlega og frekast má
verða.”
Eftir núverandi viðhorfi að dæma, mun
vel mega gera sér góðar vonir um nyisamlegan
árangur Lundúnastefnunnar. Til hennar var
stofnað á langtum frjálsmannlegri hátt, en við
hefir gengist í liðinni tíð, þá er um stórvelda-
mót var að ræða og spáir slíkt. góðu um happa-
drjúg úrslit. I
Indlandsmálin
Eins og sakir standa, má svo að orði kveða,
að augu allra þjóða hvíli á Indlandi, eða þeim
þrjúhundruð og tuttugu miljónum, er landið
'byggja, og lúta brezkri stjórn.
Síðastliðin tíu til tólf ár, hafa kröfur Tnd-
verja um sjálfstæði og fullkomna þjóðarviður-
kenningu, jafnt og þétt verið að færast í fastara
og ákveðnara form. Forastumaður sjálfstæðis-
vakningarinnar, hefir á þessu tímabili verið
mannvinurinn að(Manlegi, Mahatma Gandhi.
Hafa fylgt honum að málum, og fylgja enn,
margir ágætustu og djúpmentuðustu menn hins.
indverska þjóðflokks. Á hinn bóginn hefir
stefna brezku stjómarinnar alla jafna verið sú,
að fara gætilega í sakimar, rýmka smátt og
smátt um réttindi hinnar indversku þjóðar, með
það fyrir augum að veita henni á sínum tíma,
svipað stjórnarskipulag og nú viðgengst í Can-
ada, og öðrum fullveðja samlendum Breta.
Skoðanirnar um mál þetta á Indlandi, hafa
samt sem áður verið næsta skiftar, og þess-
vegna hefir þar oltið á ýmsu í sambandi við
fullveldiskröfuraar. Eins og sakir standa,
verður ekki annað sagt, en að horfuraar á Ind-
landi séu næsta alvarlegs eðlis.
Fyrir tveimur ámm skipaði stjóm Breta,
undir forastu Mr. Baldwins, nefnd manna til
‘þess að kynna sér út í æsar strauma og stefnur
í indversku þjóðlífi fullveldiskröfunum viðvíkj-
andi. Var formaður þeirrar nefndar, Sir John
Simon, einn af áhrifamestu stjórnmálamönnum
frjálslynda flokksins. Skyldi nefndin, að loknu
starfi gefa fullnaðarskýrslu um það, er henni
h'efði orðið ágengt, og skýrslan síðar verða
lögð fyrir þjóðþingið brezka. Svo má heita, að
nú sé skýrsla þessi fullsamin og mun verða
lögð ifram { þinginu einhvem hinna næstu daga.
Skipun téðrar nefndar, varð ýmsum leiðtog-
um hinnar indversku sjálfstæðisvakningar, al-
varlegur þyrnir í auga. Mótmæltu þeir því
skýrt og ákveðið, að nefndin skyldi öll vera
skipuð innfæddum Bretum, en Indverjar ger-
samlega settir hjá. Töldu þeir það hina mestu
móðgun, að hin indverska þjóð skyldi engan í-
• hlutunarrétt fá að eiga í því, hveraig stjómar-
fari hennar skyldi háttað í framtíðinni.
..Leiðtogi hins indverska sjálfstæðisflokks,
'Möífeitma Gáíádhi, er vafalaust má teljast einn
af mestu afbragðsmönnum sinnar samtíðar,
hafði um all-langt áraskeið tjáð sig ánægðan
með það, ef Indverjar fengju hliðstæða þjóðar-
viðurkenningu við þá, er Canada nú nýtur. En
nú hefir Mr. Gandhi tekið af skarið og krefst
ótakmarkaðs fullveldis og aðskilnaðar frá Bret-
landi.
t desembermánuði síðastliðnum, háðu sjálf-
stæðismenn indverskir flokksþing eitt mikið, að
Lahore. Sóttu það fimtán þúsund fulltrúar
víðsvegar að. Veitti þing þetta, með fullu
samþykki Mr. Gandhis, miðstjóm flokksins
fult og ótakmarkað vald til þess að útbreiða
meðal lýðsins kenninguna um það, að hætta •
samstarfi við brezk stjómarvöld á sem allra
flestum sviðum, og jafnvel að óhlýðnast hinu
borgaralega, brezka valdi, ef svo byði við að
horfa. Smkvæmt þessari nýju stefnu, eða
stefnuskrá, skulu Indverjar takmarka innkaup
á brezkum vöram að svo miklu leyti sem auð-
ið er, neita að greiða skatta, hættá tafarlaust
allri þátttöku í sveita- og fylkismálefnum, og
veita brezkum yfirvöldum allan hugsanlegan
mótþróa, án þess samt að grípa til morðvopna.
Bitrara vopni, en þessari stefnuskrá, verði
henni á annað borð hrandið í framkvæmd, mun
tæpast unt að beita.
Eigi verður réttilega við mál þetta skilist,
nema því aðeins, að það sé jafnframt tekið fram,
að á Indlandi eru voldug öfl að verki, jafnvel
meðal hins irmifædda þjóðflokks sjálfs, er undir
engum kringumstæðum vilja slíta sambandinu
við Breta. Gildir þetta samt aðallega um fé-
sýslumenn og iðjuhölda, er flestum fremur
finna til þarfarinnar á nauðsynlegri festu í
stjórnarfari. Þá ber og að geta þeirra sextíu
miljóna af Hindúum, sem skemst era menning-
arlega á veg komnir, 0g hafa í raun og veru
fekkert um það að segja, hvemig stjóraarfari
indversku þjóðarinnar skuli háttað.
Þá má heldur ekki gleyma ágreiningi þeim
hinum bitra og langvinna, er átt hefir sér stað,
og á sér enn, milli Moslem og Hindúa, er í raun-
inni gerir þjóðemisleg samtök óhugsanleg, eða
því sem næst. Svo hvernig sem málum skipast,
þá verður það aldrei nema tiltölulega örlítill
minni hluti hinnar indversku þjóðar, er úrslit-
um ræður. *
Ástandið á Indlandi, eins og því nú er far-
ið, reynir sannarlega á þolrif verkamanna-
stjómar þeirpar, er nú fer með völd á Bret-
landi. Er þar brýn þörtf á viturlegri háttlægni
og umburðarlyndi.
Er vér athugum sögu Suður-Afríku sam-
bandsins og frfríkisins írska, virðist gild ástæða
til að ætla að brezkum stjómarvöldum muni
auðnast að ráða svo fram úr Tndlandsmálun-
um, að báðir aðiljar megi vel við una, og þjóða-
tengslin fái haldist. — Country Guide.
Rödd úr norðri
Churchill, 15. júlí til 15. ág. ’29.
Til ritstjóra Lögbergs.
Kæri kunningi!
Til þess að enda loforð mitt til
þín, um að bæta upp fyrir hvað
lélegar voru stórhríðarfréttirnar.
Margt hefir á dagana drifið
síðan. Það fyrsta er að mínnast
á að heilbrigði manna hér hefir
verið hin bezta. Það mætti eins
vel leita að saumnál í heystakk,
eins og veikum manni hér.
Ekki leysti á-na fyr en 20. júní,
og alt af hafa verið hér jakar á
ferð inn og út ána við flóð og
fjöru. En ástæðan fyrir því er
sú, að aldrei hefir komið rok nú
í sex vikur. Alt af hefir verið
kuldi á nóttunni, og hefir maður
þurft að vera búinn eins og um
vetur.
Þegar ísinn ruddist til hafs,
komu fleiri hundruð selir og mar-
svín, sem að ferðast upp að fyrstu
strengjum, sem eru níu mílur frá
nlynni Churchill árinnar.
Eg hafði með mér net að heim-
an, er eg lagði nálægt ármynninu,
og mun eg hafa verið fyrsti ís-
lendingurinn í Manitoba, til að
veiða hvítfisk, silung og birting
þar. Einnig veiddi eg tvo seli.
og vigtaði annar 100 pund, en hinn
um 40. Þann stóra tók eg, og fló
skinnið af, en selshreifana sauð
ég og gæddi kunningjum mínum
á þeim. En litla selnum náði eg
lifandi, og fór með hann heim að
bryggjunum og sýndi verkamónn-
unum hann, og höfðu þeir ánægju
af að sjá hann og virða fyrir sér.
— Eg sárkendi í brjósti um aum-
ingjann fjötraðan í böndum; og þar
sem að hann leit á mig bænaraug-
um, sem að báðu um lausn, þá
leysti eg hann og slepti honum til
hinna ættingja sinna, sem að
hann átti í sjónum, og stakk liann
sér til djúps, kom upp aftur og
leit til baka, með svip af gle^' og
þakklæti í andliti sinu. Og síðan
hefi eg ekki séð þann sel oftar,
og vinnumennirnir vottuðu mér
þakkir fyrir að sleppa honum.
Sjávar silungurinn, eða urrið-
inn sem kallaður er heima, e~ sá
bezti fiskur, sem eg hefi bragðað
í þessu landi, og bleikjan er stærri
fiskur, en er ágæt líka.
'Hvítfiskurinn er ekki eins feit-
ur og í Winnipegvatni, en er sæt-
ur á bragð og sniðfastur.
Birtingurinn er smár, og lítur
út fyrir, að vera mátulega atór
fyrir félögin, sem að reykja hann
í Bandaríkjunm.
Með flóði er áin morandi Saf
öllum sortum af fiski, en þegar
fjarar, hverfur hann út í dýpið í
ánni 0g til sjávar. Ekki þarf
maður nema fimm faðma netstúf,
sem maður getur lagt á spariskóm
áður en flóð kemur, og vitjað um
það þegar fjarar, og liggur þá
netið á þurru með nægum fiski í.
Við þetta fiskirí geta bæði börn
og gamalmenni gert sér stundim-
ar skemtilegar og einnig gagn-
legar.
Hér hafa verið tvær flugvélar,
síðan eg kom hingað, er hafa ver-
ið að fljúga með námumenn og
vistir til Baker Lake, og hafa þær
stundum flogið á annað þúsund
mílur á dag.
Þessar Baker Lake námur eru
álitnar að vera hinar auðugustu í
norðvestur Canada, og munu íæst-
ir hafa hugmynd um, hversu mik-
il auðæfi sá hluti landsins hefir
að geyma, ofan jarðar og neðan,
og í sjó og vötnum þess. Og veit
eg, að flestir, sem þann hluta
landsins ferðast yfir 0g kynnast,
eignast hlýjari hug til landsins,
sem við lifum f.
Fyrir 1. júlí var alt puntað upp
málað og hreinsað til, búinn til
stór leikflötur fyrir verkamenn-
ina, og var dagurinn haldinn há-
tíðlegur af stjómarinnar hendi.
Borgaði hún öllum verkalaun til
íþrótta, sem fram fóru þann dag.
Fórst það vel úr hendi, og allir
skemtu sér vel.
Eitt hefir mér fallið verst hér,
það, að hlusta á vestan og austan
verkamenn, sem að teknir voru í
vinnu hér, sem höfðu ekkert til
að lifa á I plássum þeim, er þeir
komu frá og enga vinnu, að þeir
skuli níða og svívirða plássið.
Því skyldi maður níða niður það
pláss, sem gefur manni ágæta at-
vinnu og góða borgun Eg hefi
orðið fyrir því, að taka ofan í við
slíka náunga, og gefa þeim vel af
minni meiningu. Eg álít, að
stjórnin ætti sízt að ráða slíka
menn í sína þjónustu. En því
verður naumast hjálpað, þar sem
það er misjafn sauður í mðrgu
fé..
Aðbúnaður manna og fæði hefir
verið upp á það bezta, eftir kring-
umstæðum. Þrifnaður og um-
gegngni hin bezta.
Vinnan við bryggjurnar og á
gröfturinn á höfninni, hefir geng-
ið ágætlega. Eru hér tvær hinar
sterkustu graftrarvéltr, sem til
eru í landinu. — Efni af öllu tagi
var flutt inn í vetur sem leið, og á
stóru skipi frá Vancouver í fyrra,
sem að kom með 4 miljón fet af
timbri hingað. Og útlit er fyrir
að þetta verði einhver bezta höfn
þessa lands.
En eitt er það, sem er lífsspurs-
mál okkar, sem búum í Manitoba,
og jafnvel Banaríkjamanna, en
það er að fá brautina frá Winni-
peg sem allra beinasta noröur á
Hudsons flóa brautina. Og sú
braut er Gypsumville brautin, til
mílu 137 fyrir norðan The Pas.
Þessi braut opnar mikið af
landi fyrir blandaðan búskap, og
þar með ótal vötn, sem er of erf-
itt að ná til nú; þar með vestur-
strönd Winnipeg vatns, frá Stur-
geon Bay til Limestone Bay. —
Afurðir bænda með þessari braut
mundu allar fá vissan markað með
því að sendast norður til Church-
ill, og um leið gæfist Bandaríkja-
mönnum þar sú styzta braut sem
fáanleg er þaðan norður.
Einnig mun Winnipegborg stór-
um blómgast við umferð að sunn-
an.
Nöfn vatna, sem opnast norðan
við Gypsumville, eru norðurendi
Lake Winnipegosis, Moose Lake,
Cedar Lake, iWiIliam Lake, Long
Lake, Cross Lake, Hill Lake, Kis-
kitto Lake, Kiskittogisu Lake, og
Playgreen Lake.
Þessi braut mundi taka inn
ÍWhite Mud fossana, sem aflstöð
fyrir pappírsverkstæði; og margt
getur fleira verið, sem að þessi
braut mun gera landinu til hags-
muna, sem að við ekki vitum nú.
öllum er kunnugt um það mikla
afl, sem að stóra Saskatchewan-
áin hefir í sér við Grand Rapids,
þeir sem að hafa séð hraða og
stærð hennar, og mundi þá naum-
ast þörf verða að gráta yfir Sjö-
systra fossunum.
Eitt er það, sem gleður mig að
vita, að fósturjörð mín muni hafa
gott af þessari Hudsonsflóabraut,
með því að sækja sitt korn til
Churchill, og setja upp sína hveiti-
mylnu heima, og einnig þar með
fá allan úrgang kornsins, sem er
ágætt skepnufóður.
Veðurblíða er sú allra bezta í
Hudsons Bay, einkum í júlí og
ágúst. Þá er óhætt að ferðast um
flóann á litlum mótorbát horn-
anna á milli.
Eins og ísland er nú statt með
flutningsskip, þá mun þeim naum-
ast verða það vandræði, að nálg-
ast og flytja yfir alt það korn,
sem landið þarfnast, á þeim hin-
um rétta tíma þaðan.
Sá sem að ritar þessar línur,
hefir sterka löngun til þess að
koma heim til fslands á þjóðhátíð
okkar 1930, svo framarlega sem
kringumstæður leyfa. Eg hefi alt
af borið virðingu og ást til minnar
fósturjarðar, og þó að nú sé meir
en hálf öld síðan eg fór frá ís-
landi, þá á níunda ári.
Eg er fæddur bg uppalinn í
HÖfðahverfinu í Eyjafjarðar-
sýslu.
Eg mun vera manna líklegastur
til að gefa löndum mínum heima
ýmsar upplýsingar viðvíkjandi
Hudsons flóanum, og ýmsu fleiru
úr þessari áttinni.
Eg held eg láti svo þetta duga í
bráðina, og bið lesendur þessara
lína að fyrirgefa þann drátt, sem
að orðið hefir á að senda þær í
blaðið. Síðarmeir mun eg senda
lýsingu af landi þessu, ám og
vötnum og innihaldi þeirra.
Heimskringla hefir leyfi til að
taka þessa grein,, ef hana vantar.
Virðingarfylst,
Ykkar einlægur,
Capt. Baldwin Anderson Arnason.
Ath.—Ofanskráð ritgerð er í
rauninni uppfylling gamals lof-
orðs, er góðkunningi vör Capt.
Anderson, gaf oss í fyrravetur.
En sökum annríkis fékk hann ekki
lokið við greinina fyr en um þetta
leyti. — Ritstj.
GARRICK LEIKHÚSIÐ.
“The Man and the Möment”
heitir kvikmyndin, sem nú er sýnd
á Garrick leikhúsinu, og eru aðal
liekendurnir Miss Billie Dove og
Rod La Roqjue. Eru þau bæði
fræg fyrir leiklist sína. Leikur-
inn er fallegur ástaleikur, eftir
Elinor Glyn, og fer því hér sam-
an fallegur leikur og ágætir leik-
arar.