Lögberg - 14.08.1930, Side 6

Lögberg - 14.08.1930, Side 6
EIs. 6 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 14. ÁGÚST 1930. Sonur Guðanna Eftir R E X B E A C II. “Aldrei, og eg skal segja þér hvers vegna. Það er vegna þess, að eg hefi ekki tækifæri til þess. Það þarf langan tíma og mikla peninga til að fullkomna sig í listinm. Eg fer aftur til Bartonville, eftir að liafa fengið ofurlítinn smekk af listinni, nógu mikinn til að hafa ógeð á öllu öðru. Eg verð að hreinsa húsið, elda, þvo og vera hjúkrunarkona. Eg svo sem sé, að þetta verður svona að vera, en eg vildi heldur deyja, heldur en þurfa að fara heim aftur.” “Við eigum orðatiltæki, sem hljóðar þ>ann- ig: “Því meiri örðugleikum, sem eg mæti, því meira legg eg á mig til að ná takmarkinu.” — Það er mikið vit í þessari hugsun, hún er bygð á langri reynslu. Oss, börnum Kína, eru kend- ar margar merkilegar þjóðsögur og lærdóms- ríkar, og margir af okkar kennurum hafa orðið að leggja afar hart að sér, áður en þeir hafa orðið færir um að ná kennarastöðu. Ein af þ'essum sögum, sem okkur eru sagðar, er af dreng, sem var svo fátækur, að hann átti eng- an lampa og enga peninga til að kaupa olíu. En þá fór hann og veiddi eldflugur og notaði þær svo hann gæti lesið bækurnar sínar á kveldin, þegar aðrir sváfu.” “Það er skrítið, að ykkar sögur eru allar um drengi.” “Það er of margt kvenfólk í Kfna.” “Það er of margt kvenfólk allstaðar, og eg er ein af þeim, sem er eins og afgangs- Eg sé engar eldflugur. Eg læt mig dreyma um París, um lífsgleðina, og svo verð eg að fara aftur til Bartonville, og það verður ekkert úr listinni.” Það var töluvert gremjuhþjóð í röddinni. Eftir þetta samtal, fór Sam að gefa Alice stærri gjafir en áður, þó hún maldaði í móinn og þættist ekki vilja taka við þeim. 1 dag hafði hann gefið henni vandaðan kjól og í kveld vakti hann máls á nokkru við hana, sem hann hafði lengi hugsað um. Hann byrjaði á því, að segja henni frá föður sínum. Hann hafði sjaldan minst á Lee Ying, en í kveld sagði hann henni, að þessi auðugi kaupmaður væri afar góðgerða- samur, og gerði mjög mikið til að hjálpa öðr- um án tillits til þjóðernis. Hann daufheyrðist aldrei, þegar hann væri beðinn um hjálp. Hann sagði henni, að það væru peningar föður síns, sem hann lánaði félögum sínum þarna við skól- ann, og það væri gert með hans samþykki. Gamli maðurinn hefði hvað eftir annað sagt syni sínum, að hann ætti að hjálpa þeim, sem væru ver staddir heldur en hann sjálfur og sagt lionum að slík hjálp gæti orðið þeim til ó- metanlegs gagns seinna í lífinu. Hann spurði hana blátt áfram, hvort hún mundi taka það illa upp, ef hann hjálpaði henni á sama hátt, eins og þeim Gorham og Wade. “Þér eigið við peninga?” “Já, auðvtiað. En þér skiljið, að það eru ekki mínir peningar, heldur peningar föður míns. Honum er það ávalt ánægjuefni, að hjálpa þeim, sem eru að brjótast áfram og upp- ávið á mentabrautinni.” “Neþ, það get eg ekki þegið,” sagði Alice fljótlega. “ÍMér finst eg níðast nógu mikið á góðsemi yðar og örlæti, eins og er, þó ekki sé lengra gengið. Eg held eg gæti ómögulega þol- að, að nokkur vissi um þetta- Fyrir alla muni, segið þér onum ekki neitt um mig. Eg vil ekki að hann eða nokkur atmar viti um þetta.” “Hafið þér sagt fólki yðar nokkuð um mig?” “Nei, eg hefði sagt ekki. Það er bara að bíða eftir tækifæri að láta mig koma heim.” Sam hugsaði sig um stundarkorn og varð mjög alvarlegur á svipinn. “Fyrst svona er,” sagði hann, “býst eg við, að við verðum að hætta þessum ökutúrum. Eg vildi ekki með nokkru móti verða til þess, að spilla á nokkurn hátt milli yðar og fólksins yðar. ” Alice tók mjúklega í handlegginn á honum og leit blíðlega framan í hann. “Kærið þér yður ekkert um að sjá mig nokkurn tíma oft- ar f ” Hann fullvissaði hana um, að hann vildi sjá hana, helzst sem allra oftast. Hann sagðist ekki geta sagt henni eins og það væri, hversu mikla ánægju hann hefði haft af að kvnnast henni. “Það er enginn maður meira einmana í öllum skólanum, heldur en eg er, og eg sé ekk- ert óheiðarlegt eða rangt við okkar kunnings- skap. En eg er ekki blindur eða skilningslaus. Eg skil vers vegna þér viljið helzt, að við mæt- umst, þar sem dimmast er á strætinu, og hvers vegna þér viljið ekki fara með mér inn á neina opin'bera staði, þar sem fólk mundi þekkja okk- ur. En þetta er óneitanlega nokkuð hart að göngu. ’ ’ Þau háldu áfram nokkra sftmd þegjandi. Eftir all-langa þögn sagði Alice: “Er þetta mín skuld, frekar en yðarf” “Nei, þetta er ekki okkar eigin skuld. Það, sem þessu veldur, eru Ideypidómar almennings, sem eg hata, af því eg skil þá ekki. Þar að auki er mér illa við alt, sem í laumi er gert. Við getum ekki haldið áfram svona.” “Því ekki?” “Fvrst er nú það, að eg finn töluvert mikið til míns eigin þjóðernis, og annað hitt, að eg hefi lært að virða föður minn og hlýðnast hon- um. Það er eng-u síður yðar skylda, að virða yðar foreldra og taka vilja þeirra til greina.” “Já, það er líklegast. Þér munið eftir sög- unni í kínverska æfintýrinu? Cin Ting, eða hét hún það ekki? Foreldrar hennar bönnuðu henni að sækja hátíðahöldin og sjá ljósadýrðina þar, en pilturinn hjálpaði henni til að sleppa út og komast þangað. Það var gert með leynd. Eg býst við að fólkið sé svipað hvar sem er, í Kína og Ameríku, og allsstaðar. Það er dálít- ið gaman að þessu, sem fram fer með leynd, það er dálítið æsandi.” Þessar síðustu setn- ingar sagði Alice einstaklega glaðlega og færði sig um leið alveg að honum í sætinu. Hann fann að hjartað fór að slá hraðara. “Við skul- um ekki fara að verða tepruleg, Sam. Við er- um orðin of kunnug til þess. Eg vil ekki hætta við kunningsskapinn. Ekki fyrir hégómaskap, heimsku og hleypidóma annara. Eg er alt of eigingjörn til að gera það.” “Annað hvort verður þá kunningsskapurinn að vera meiri en hann er, eða þá töluvert mikið minni.” “ Jæja þá, en eins og ástatt er, getum við ekki verið saman á almanna færi. Þér ættuð að losa yður við þetta kínverska þjóðardramb. Annað hvort okkar verður að gæta skynseminnar. Eg hefi lært að líta á hlutina eins og þeir eru, þó þér hafið ekki gert það. Eg var fyrst hrædd við yður. Flestir menn eru alt of frekir og nærgöngulir við stúlkurnar, þegar þær eru ein- samlar með þeim—” “Hvernig getum við fundist aftur og verið meira saman?” “Það er nú einmitt það, sem eg er að hugsa um. Hvernig er það með þennan þjón, sem þér hafið?” “May ?” “Getið þér treyst honum? Mundi hann segja nokkuð um það, þó eg kæmi heim til yðar? Ef þér getið ekki komið til mín, án þess slúðrað sé um það, hvað er þá á móti því, að eg heim- sæki yður?” “Vilduð þér gera það?” “Eg veit ekki. Ættum við að láta það eyði- leggja okkar vinfengi, að fólkið er heimskt og vill ekki vera öðru vísi? Það sem það veit ekkert um, gerir því ekkert til. Sam! Mig langar til að sjá ljósadýrðina. ” Seinasta mánuðinn, áður eú skólanum var sagt upp, var Alice mörg kveld heima hjá Sam. Hún fann til þess, að hér væri kannske full langt gengið, en einmitt það gerði þessar heim- sóknir enn skemtilegri. En hún gleymdi því ekki, að vera varfærin og aðgætin, og hana grunaði stöðugt, að Sam væri kannske ekki all- ur þar sem hann væri séður. En þar sem hann sýndi henni aldrei annað en sömu. prúðmensk- una og kurteisina, eins og hann hafði gert, þeg- ar þau voru úti að keyra, þá eyddist þessi grun- ur og hún undi sér þarna ágætlega og fór smátt og smátt að verða þarna eins og heima hjá sér, og jafnvel eins og hálfgerð húsmóðir. Sam mundi hafa fallið hún að minsta kosti rétt eins vel, þó hún hefði látið minna til sín taka, því karlmenn eru vanalega varfæmari, en konur. En nú var hann kominn of langt, til að snúa aft- ur. Hann var eins og aðrir menn, vitaskuld, og þó það væri, eins og á stóð, nokkuð erfitt, að gæta allra smámuna gestrisninnar, þá hepnaðist honum það þó einhvern veginn, svo ekki bar út af- Hann tók á móti Alice, eins og hverjum öðrum góðum gesti, ágætis veitingar voru jafn an fram reiddar, og hann skemti henni eins og hann vissi, að bezt átti við hennar skap. Þarna voru alls konar austurlenzkir skrautmunir, » margir gerðir af mikilli list, og ef hann varð þess var, að hann langaði til að eiga eitthvað af þeim, þá gaf hann lienni það sem hún vildi eiga. Sá Austurlanda siður féll Alice einstak- lega vel í geð. Þegar hún var í góðu skapi, þá talaði hann við hana um það, sem hún vildi Iielzt tala um, og þegar hún var ekki í góðu skapi, þá hafði hann alt af lag á að koma henni í gott skap. Hann kunni svo margt, sem hún hafði aldrei haft neina hugmynd um áður, og hún kallaþi hann austurlenzkan töframann. Hún komst líka fljótt að því, að þó hann hefði ekki lagt 'fyrir sig söngfræði, þá spilaði hann vel á hljóðfæri og hann söng líka vel. Stundum klæddi hann sig eins og kínverskur höfðingi og söng kínverska söngva. Alice sagði honum oft, að ef hitt skólafólkið þekti hann eins vel eins og hún gerði, þá gæti hann ekki komist hjá því, að taka meiri þátt í félagslífinu en liann gerði. Þegar dró að skólalokum, sagði Alice honum, að sitt ráð væri mjög á reiki og hún væri eigin- lega í mestu vandræðum. Foreldrar hennar vildu, ,að hún kæmi heim, og hún vissi fullvel, að það væri sama og að hún hætti fyrir fult og alt við námið. Hins vegar gæti hún ómögu- lega verið þar austur frá, nema hún fengi at- vinnu, og það væri enginn hægðarleikur að fá nokkuð að gera. Henni virtist framtíðin dap- urleg. Sam bauð aftur að lána lienni peninga, en það gat hún ekki með nokkru móti þegið. Hún gat ekki hugsað til þess. Sjálfsvirðingunni hafði hún þó ekki enn tapað. Og hvaða gagn var í i aun og veru að því, þó hún gæti verið ári leng- ur á skólanum, ef hún ætti þess ekki kost, að fara til annara landa og fullkomna sig í list sinni? Hún vissi sjálf, að sér hefði ekki verið gefin nein framúrskarandi listagáfa í vöggu- gjöf- Hún var engu að síður sannfærð um, að hún gæti gert sæmilega vel með tímanum, ef hún gæti haldið áfram, því hún hafði allgóða hæfileika og heilmikið vinnuþrek', en þar með var líka alt búið. Þetta var meir en lítið óað- gengilegt, en verst af öllu var það, að nú mundi hún aldrei aftur sjá Sam. Engar meiri bíl- ferðir, ekkert meira skemtilegt samtal, engar fleiri lieimsóknir. Það var ekki hægt við að gera. Heimurinn er fullur af þessum meðal- mönnum, körlum og konum, hálfgerðum lista- mönnum, sem töpuðust og glötuðust úti á eyði- mörk mannlífsins. Hálfgerðum óláns mann- eskjum, sem lentu á rangri hillu, lentu þar sem þær áttu ekki heima og nytu sín svo aldrei f lífinu. Það var svo sem hægðarleikur að segja, að maður ætti að leggja hart að sér og leggja mikið í sölumar til þess að feta þá grýttu braut sem til sigurs lægi, en hvað hafði hún, sem hún gat í sölurnar lagt? Hverju gat hún offrað? • “Eldflugur!” Það þarf margar af þeim til að lýsa leiðina til París. Aumingja litla Chin Ting! Ósköp hlyti hana að hafa langað til að losna úr fangelsinu. “Þér getið fengið að sjá ljósadýrðina, ef þér viljið,” sagði Sam við hana alvarlega. “Hvernig þá?” “Með því að koma við í New York og vera þar svo sem vikutíma, og lofa mér að sýna yður sumt af því, sem þar er að sjá.” “Það er alt of dýrt að vera í New York fyr- ir listastúdent frá Bartonville.” “Ef þér vilduð vera þar minn gestur, þá væri mér það ánægjuefni.” Alice leit til hans spyrjandi augum- Hún afði einmitt verið að hugsa um, og hálfvegis . verið að vonast eftir einhverju tilboði þessu líku. En þegar það kom, var hún hálf hrædd við það, vegna afleiðinganna, sem það kynni að hafa- Með töluverðri óþolinmæði beið hún eftir því, að hann héldi áfram. “Þér getið verið á einu gistihúsinu, því bezta sem til er í borginni, og enginn þyrfti nokkurn tíma að vita, að þér væruð minn gest- ur. Eg gæti gert yður eitthvað til skemtunar, farið með yður á leikhúsin og í búðirnar—” “Væri það ekki elskulegt!” “Og þér hefðuð kannske ánægju af að kynn- ast föður mínum. Eg vil að hann kynnist yð- ur. Hann er lærður maður og heimspekingur, enginn hversdagsmaður. Það er ekki ólíklegt, að hann gæti útvegað yður eitthvað að gera yfir sumarið.” “Viljið þér virkilega gera þetta fyrir mig, Sam! Mig hefir alt af langað svo mikið til að hjá stóru búðimar í New York. Og að fá at- vinnu! Þér eruð töframaður, eða eins og prins- arnir í æfintýrunum. Ó-nei, þér erað bara elskulegur maður, Sam!” Hún neri saman höndunum af ánægju. “Ef þér gerið þetta fyr- ir mig, þá getur skeð að eg hafi enn tækifæri til • að komast eitthvað áfram á listabrautinni. Eg skal ekki láta mér mistakast. En látið þér mig ekki þurfa aftur að fara til Bartonville, og verða að engu á þeirri eyðimörk. Gerið þér það ekki!” Bíllinn, sem Sam Lee átti, vakti engu minni eftirtekt á Fifth Avenue, heldur en í háskóla- bænum. Hvar sem bíllinn stóð á götunni, safn- aðist fólk að honum til að skoða hann. Alice Hart fann töluvert til sín, þegar hún kom út úr einu glæsilegasta gistiúsi í New York og steig upp í þennan glæsilega bíl- Hún reyndi að líta út eins og mikil manneskja, eða auðug mann- eskja, sem var eitt og hið sama í hennar aug- um. Það var áreiðanlega nokkuð, sem var ein- hvers virði, að láta sjá sig þarna í höfuðborg- inni með þessum glæsilega unga manni, Sam Lee. Hér sýndist enginn taka hann — fyrir út- lending. Það var eitt af þessu merkilega og undarlega við stórborgirnar, eins og New York, að þar vissi fólk ekkert hvað um annað, og virt- ist ekkert kæra sig um að vita það. Hér liafði hver og einn nóg með að hugsa um sjálfan sig. Hér voru peningarnir það eina, sem nokkru verulegu varðaði. Þeir eru það nú raunar all- staðar. Sam kom fáeinum mínútum seinna, en til stóð, fyrsta morguninn, er hún var í New York. Fólkið í gistiúsinu hafði umgengist hana eins og hefðarkonu — ríkiskonu. Síðan þau fóru af stað, hafði hún hvað eftir annað veitt því eftirtekt, hvað það þýðir að aka um götur stórborgarinnar í fimtán þúsund dala bíl, og það einmitt í þessu heimkynni Mammons dýrk- unarinnar. Aldrei fyr hafði hún skilið greini- lega, hvað það er að “sigla undir fölskn flaggi.” En hún gat ekki varist því, að hálf- brosa, þegar hún veitti því eftirtekt, að marg- ir sýndu henni meiri virðingarmerki og voru enn stimamýkri við hana heldur en konur og dætur mestu auðmannanna í New York — henni, Alice Hart frá Bartonville. Hún tók líka eftir því, að Sam var veitt meiri eftirtekt heldur en flestum öðrum og eins og meira haft við hann heldur en aðra. Sveitastúlkunni frá Bartonville var þetta ekki skiljanlegt- Þau höfðu farið víða urn morgina og séð marga búðarglugga, því Alice hafði langað til þess. Svo hafði Sam sýnt henni nokkrar búð ir, þar sem margskonar skrautgripir voru seld- ir, sérstaklega úr ýmsum málmi og fílabeini. Það voru slíkir munir, sem Sam hafði meira gaman af að skdða, lieldur en nokkra aðra verzlunarvöru. En diún naut fyrst ánægjunn- ar fullkomlega, eftir að hún kom í þær búðim- ar, þar sem kvenfatnaður var seldur. Þar var fögnuður hennar mikill. Þau borðuðu saman um hádegisbilið, og þau drukku te seinna um daginn í veitingasal, sem Alice hafði lengi langað til að sjá. Þar dvöldu þau nokkuð lengi. Þar var flest, sem hugann mátti gleðja. Agætur hljóðfærasláttur fyrst og fremst og margskona skraut og öll möguleg þægindi, sem veitingasalur getur haft að bjóða. Hún varð næstum drukkin af öllum þessum un- aði. En hún gleymdi því ekki samt, að þessa KAUPIÐ AVALT LUMBER hjá THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD. HENRYAVE. EAST. - - WINNIPEG, MAN. Yard Offlce: 6tti Floor, Bank of HamHton Ohambers unaðar átti hún ekki ko.st að njóta til lang- frama. Þessi staður var fyrir þá eina, sem nóga höfðu peninga. Hér var nokkuð, sem ekki tilheyrði henni. Sam Lee líktist ekki Kínverja. Hann var meira líkur Spánverjum, eða Itölum, eða þá Rúmeníumönnum, Grikkjum, Rússum,, eða reyndar hvaða þjóðar mönnum, sem vera vildi. Alice fanst allir útlendingar hver öðr- um líkir. Dæmalaust væri ánægjulegt, ef—. Hann var í raun og veru elslculegasti maður- inn, sem hún hafði nokkurn tíma kynst, og hið allra bezta var það, hvað hann var prúður og siðsamur. Hann hafði aldrei nokkurn tíma einu sinni réynt að kyssa hana. Kínverjar voru kannske ekki gefnir fyrir þessa kossa, sem betur fór. Hún var að hugsa um það, hvorl þeir hefðu ekki sömu tilfmningar og ástríður eins og hvítir menn. Dæmalaust var það annars ánægjulegt, að geta verið á svona stað, og helzt af ölln að mega koma þar oft. Væri liún regluleg lista kona, þá gæti hún það sjálfsagt. Þetta var líf, sem vert var um að tala. Svo hafði Sam tvo aðgöngumiða að bezta leikhúsinu fyrir kveldið. Þessi dagur hafði verið með afbrigðum á- nægjulegur, en ánægjulegast af öllu var þó að koma heim í gistihúsið, þar sem hún hélt til. A rúminu voru margir bögglar, og þegar hún opnaði þá, fann hún að þeir höfðu inni að halda flest af því, se mliún hafði um daginn séð í búð- unum og dáðst að. Þarna var heilmikið af kvenfatnaði, sem hana liafði lengi langað til að eiga, en aldrei haft efni á að kaupa. Svona falleg föt hafði hun aldrei átt á æfi sinni fyr. Hún var afar glöð, yfir öllum þessum gjöfum, og hún dáðist mikið að þeim. Þetta var líkt Sam. Alt, sem hann gerði, gerði hann vel og s myndarlega, og það var einmitt það, sem átti við liana, þó hún gæti aldrei sjálf farið eftir því, sem hún vildi- Eyðslusemi! Vitaskuld, en nú var hún rík! Hver fatnaður af þessu, hafði kostað meira en alt, sem liún átti áður. Hún fór úr ódýra kjólnum, sem hún var í, og í fallegasta kjólinn, sem Sam hafði sent henni. Það mátti ekki minna vera, hans vegna, en að hún liti eins vel út og kostur var á það kveldið, og sjálf mátti hún gjarnan njóta ánægjunnar af því, að horfa á sjálfa sig í þessum prýðilega kjól. Hún hafði ætlað að borða ein í herbergi sínu, því Sam borðaði með| föður sínum. Nú fanst henni að rétt væri að borða með öðrum gestum í borðsalnum. París sýndist ekki eins langt í burtu eins og áður. ... “ Vitlausir eftir hvítum stúlkum.” Hvar hafði hún heyrt þetta? Jú, hún mundi það. New York var ekki háskólabær. Hér gat hún verið með Sam hvar sem var. Hún gat orðið listakona,, ef hún bara hefði tækifæri til þess, og fyrir það vildi hún gefa næstum hvað sem vera skyldi. Mundu ekki allar stúlkur gera það? '-------Ef karl- mennirnir væru bara ánægðir með kossa — en þeir voru svo’ herfilega eigingjamar skepnur. því var nú ver. Nú var Alice alt í einu farið að langa til að sýna sig og sjá aðra, og þess vegna fóru þau saman inn í danssal, þegar þau komu úr leik- húsinu- Salurinn var afar skrautlegur, hljóð- færaslátturinn ágætur og allir voru prúðbúnir. Dansinn var ákaflega líflegur. Hún hafði aldrei fyr verið á dansleik líkum þessum. Hún var eins og hálf drukkin af allri þessari gleði. Hvað eftir ann'að hvíslaði hann í eyra henni, að hún væri fallegasta og elskulegasta stúlkan, sem þarna væri, og hún trúði því. Þau döns- uðu þangað til þau voru orðin dauðþreytt. Sam kysti hana ekki á leiðinni heim til gistihússins, og bjóst hún þó fullkomlega við, að hann myndi gera það. HASUMAR-^ Sumardýrð og sólaryndi. Sveigist björk í liægum vindi. Skepnur allar leika í lyndi. Lífsins hjarta af gleði slær. Lindir brosa. Blómin anga. Bjartar nætur, daga langa geislum vefjast vÖtn og sær. Loftið fyllist lækjarniði, léttum söng og fuglakliði. Þýtur blær í vöxnum viði vegu langa um dal og fjöll. Eftir hita og hreyfing dagsins hlæja töfrar sólarlagsins. Bráðum sefur sveitin öll. Drúpir blóm og döggum grætur. Döknar laut við fjallsins rætur. Sefur fold í faðmi nætur fögur, víð og gróðurleg. Ofar rísa liimnar háir, heiðir, djúpir, fagurbláir, — eilífð rasta á allan veg. —Les. Böðvar frá Hnífsdal. ••••••••••••••••••< r

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.