Lögberg - 11.09.1930, Page 1

Lögberg - 11.09.1930, Page 1
43. ARGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAG4NN 11. SEPTEMBER 1930 NUMER 37 Reykjavík eftir J. Ragnar Johnson. í Reykjavík, höfuðstað íslands, eru um tuttugu og sex þúsund ibúar, eða sem næst fjórði hluti allra, sem landið byggja. Bær- inn er að vaxa og fólkið er fram- sækið o'g áhugasamt. Umferðin á götunum er afar-mikil, bæði af bílum og gangandi fólki, og allir sýnast hafa nóg að gera. Reykja- vík stendur við sjóinn, eins og allir aðrir bæir á íslandi, og höfn- in er ágæt, mikið mannvirki. hún hefir nýiega verið stækkuð o!g endurbætt, og til þess kostað afar miklu fé. Þegar eg var þar í sumar, var höfnin full af skip- um, víða að komnum. Fiskiveiðar eru aðal atvinnu- vegur þjóðarinnar. Er því ekki nema eðlilegt, að mest beri á þeirri atvinnugrein, einnig í Reykjavík, enda eru fiskiveiðar reknar þaðan í miklu stærri stíl, heldur en frá nokkrum öðrum bæ á íslandi. Annars er Reykjavík mikill verzlunarbær, og þar eru margar fallegar og myndarlegar búðir. Á Laugaveg, Bakarastig og Aðalstræti, geta menn keypt svo að segja hvað sem vera vill. í Reykjavík eru engir strætis- vagnar og engar járnbrautir á landinu. Til skamms tíma ferð- uðust allir á hestbaki, eða fót- gangandi, eða þá á bátum með- fram ströndum landsins. Gerfi- legir og smekklega klæddir lö!g- reglumenn hafa eftirlit með um- ferðinni í borginni. Þeir hafa sjálfsagt heldur ekki mikið ann- að að gera, því íslendingar fá jafnan orð fyrir að vera allra manna löghlýðnastir. Það er að minsta kosti sjaldgæft, að nokkur þeirra þurfi að mæta fyrir lö!g_ regludómara, og komi það fyrir, eru afbrotin oftast smávægileg. Það eru tvö kvikmyndahús í Reykjavík og sjónleikar eru þar leiknir á einum tveimur stöðum. Þar er líka íþróttavöllur, þar s^m margskonar íþróttir eru ikða^ar, svo sem knattspyrna og margt fleira, þar á meðal hin þjóðlega, Í3lenzka 'glíma. Fjögur gistihús eru í borginni, sem taka á móti ferðafólki, og er eitt þeirra alveg nýtt. Hótel Eorg vakti undrun margra útlend- inga, sem til íslands komu í sum- ar með þeirri ímyndun, að ísland væri Iangt á eftir öðrum löndum, hvað alla menningu o!g lífsþæg- indi snerti. Prófessor einn frá Bandaríkjunum sagði mér, að hann hefði aldrei komið inn í smekklegra og þægilegra gistihús í Chicago, og víðförull Englend- ingur sa!gðist ekkert gistihús þekkja á Bretlandi, sem tæki því fram að öðru en stærðinni. Á 'Hótel Borg eru dansar haldn- ir svo að segja á hverju kveldi, og þar er gott tækifæri til að kynnast unga fólkinu, en hinir eldri kjósa vanalega heldur að hvíla sín lúin bein, eftir erfiði dagsins, á 'hinu góðkunna kaffi- húsi í Hótel ísland. Á báðum þessum stöðum spilar hljóðfæra- sveit á hverju kveldi, allra nýj- ustu “jaz”-lög frá Vesturheimi., ■og syngur vanalega með, oftast á ensku. Það sem einkennir íslendinga kannske öllu öðru fremur, er mentalön!gun þeirra og fróðleiks- þrá. Enda er þarna í höfuðstaðn. vm ágætur háskóli, þar isem kend- ar eru þessar fjórar höfuðgrein- ar: heimspeki, guðfræði, læknis- fræði og lögfræði. Þar er líka al- mennur mentaskóli (College)t og auk þess fjöldi af allskonar öðr- Um skólum. Margir istúdentar auka við mentun sína með því að fara utan meðan á náminu stend- hr, en sumir fullkomna sig í ein- hverri námsgrein , að loknu námi heima, við einhvern háskóla á aieginlandi Evrópu, Bretlandi eða -Ameríku. I Reykjavík eru nokkur merki- le!g söfn, svo sem ríkisbókasafnið, ríkisskjalasafnið, forngripasafn. lí5 og náttúrugripasafnið, og eru Þau öll í sama húsinu, “Safnhús- inu.” í bókasafninu eru um 12,000 bækur ,og 8,000 handrit. Á fyrri árum voru mörg íslenzk handrit flutt fil Danmerkur, en flestum þeirra hefir nú verið skilað aftur. Forngripasafnið hefir að geyma meira en 12,000 forngripi o'g mjög mismunandi. í náttúrugripa safninu eru sýnis- horn af flestum íslenzkum dýr- um, plöntum og steinum o. ®. frv. Forstöðumaður þess, Dr. Bjarni Sæmundsson, hefir gert ýmsar merkilegar rannsóknir, sérstak- lega viðvíkjandi fiskum með fram ströndum landsins, og hefir hann skrifað mikið um íslenzka nátt- úrufræði á íslenzku, dönsku, þýzku og ensku. Þá er þar líka listasafn Einars Jónssonar, og er þar margt af hinum prýðilegu listaverkum þessa fræ!ga, sérkennilega, íslenzka lista- manns. Enn fremur er í Reykja- vík málverkasafn, isem ríkið á, og eru þar málverk eftir marga fræg- ustu málara. Stórkostlega hafa íslenzkir lista- menn bætt leiklistina á síðari ár- um, og þá ekki síður sönglistina. Á síðustu árum hafa verið samin .mörg ágæt íslenzk sönglög, þó þar kenni mjög útledra áhrifa. Sumar af hinum gömlu, þjóð- le!gu listum eru enn stundaðar, svo sem útsamur, vefnaður, tréskurð- ur og silfursmíði. Tilraun hefir Iíka verið gerð í þá átt, að taka aftur upp þjóðdansana gömlu, vikivakana, sem kallaðir eru. Einnig til að endurlífga þjóð- söngvana og taka aftur upp gömlu þjóðbúningana. Aðkomumaðurinn, hvaðan sem hann kemur, veitir því þegar eft- irtekt, hve líslendingar eru álit- legir menn og vel siðaðir. Þeir eru greindir í bezta lagi, hafa næman smekk fyrir því, sem fag- urt er og göfúgt og stefna hátt. Gestrisni er þar svo mikil, að slíka mun naumast annars staðar að finna. Jafnvel þótt Reykjavík sé fullkomlega nýtízku bær, þar sem iðnaður og verzlun er rekin með áhuga og dugnaði, þá gætir þar þó mentlífsins og skólalífsins engu að síður mjög mikils. Að- komumaðurinn finnur fljótt, að hér er fólk svo vel að sér, vel siðað, glaðlegt, kurteist og gest- risið, að slíkt er sjaldgæft. Því unir ferðamaðurinn sér ágæt- lega í Reykjavík, og kemst fljótt að þeirri niðurstöðu, að fólkið er bezt innstæðan sem ísland á, og endurminningin um það, varir lengst í huga hans. Flugferðir Samkvæmt því sem Þjóðbanda- laginu telst til, hafa flugvélar, sem fólk og farangur flytja á Bretlandi, Bandaríkjunum, Þýzka- landi, Frakklandi, ítalíu, Hollandi og Rússlandi, flogið 41,250,000 mílur og flutt 600,000 farþega ár- ið 1929. Ekki hefir enn hepnast að gera flugferðir arðberandi. Þær borga sig mjög óvíða, og þá því aðeins, að eitthvað sérstaklega standi á. Ein allra fjölfarnasta loftleiðin er milli London og Faris. Þá leið fara að jafnaðþ um þrjú hundruð manna á dag, en fargjöldin eru ekki einn fjórði hluti móti flutningskostnaðinum. Flest öll loftflutninlga félög eru styrkt af almennu fé. Með öðru móti geta þau ekki haldist við, enn sem komið er. Látið að kröfum verka- manna Bæjarstjórnin í Winnipeg hefir alt til þessa ekki viljað leyfa verkamönnum sínum að tilheyra verkamannafélögum, öðrum en þeim, sem þeir hefðu sjálfir sín á milli. Einnig hafa þeir orðið að undirgangast, að taka ekki þátt í verkföllum annara verkamanna. Nú er þessu breytt þannig, að verkamönnum hæjarins, þar á meðal eldliðinu og lögregluliðinu, tr leyfilegt að tilheyra hvaða verkamannafélögum, sem þeir vilja, og er ekki bannað að hjálpa cðrum, ef til verkfalls kemur. Fellibylur í Santo Domingo Bærinn Santo Domingo er höf- uðborgin í Dominician lýðveld- inu, sem nær yfir nokkurn hluta eyjarinnar Hayti, sem er ein af Vestur-Indía eyjunum, og er tal- in elzta bygð hvítra manna í hin- um nýja heimi. Yfir borg þessa gekk á miðvikudaginn í vikunni sem leið, fellibylur mikill og vann svo mikið tjón, að slíks eru fá dæmi. Er talið, að þarna hafi farist hátt á þriðja þúsund manns og um fimtán þúsundir meiðst meira og minna. Er skað- inn, sem þetta ofsa veður gerði, áætlaður 30 miljónir dala. Sagt er að vindurinn hafi verið svo mikill, að hann hafi farið 150 míl- ur á klukkustund, eða jafnvel enn hraðara, og stóð þar að auki ó- vanalega lengi yfir. Síðan þetta kom fyrir, er ástandið í bænum óskaplegt, eins og nærri má geta, þrátt fyrir það, að mjög mikið hefir þegar verið gert til að hjálpa fólkinu, alt sem hægt er. Mest óttast menn skaðlega sjúk- dóma, og er þegar mikið farið að bera á þeim og hafa orðið mörg- um að bana. Mikið hveiti flutt út Frá 1. ágúst til 6. september hefir C.P.R. félagið flutt til mark- aðar 34,943,000 mæla hveitis og annara korntegunda af þessa árs uppskeru í Vestur-Canada. Aldrei fyr hefir félagið flutt nærri eins mikið hveiti frá Sléttuflkyjunum á þessu tímabili. Það komst næst 19i29, en var þó ekki nema átján milj. níutíu o!g níu þús. mælar þá. Mun það hér mestu valda, hvað tíð- in hefir verið einstaklega góð og hagstæð og þresking þess vegna egngið mjög fljótt og vel. Aukaþing sett Síðastliðinn mánudag kom sam- bandsþingið í Ottawa saman, til þess að gera, samkvæmt áðurgefn- um loforðum forsætisráðgjafa, ráðstafanir í þá átt að ráða bót á atvinuleysinu í landinu. — Til for- seta í neðri málstofunhi var kos- inn Capt. George Black, Þingmað- ur frá Yukon. Stjórnarby ltingin í Argentína Herinnihefir gert uppreisn gegn stjórnnni og á fáum dögum komið henni frá völdum og er þar nú nokkurs konar herstjórn. Stjórn- in sá sér þann kost vænstan, að leggja niður völdin, þegar hún fann, að hún hafði herinn sér andvígan. Stjórnarbylting þess- ari virðist tekið með mikilli gleði af þjóðinni yfirleitt. Sjötíu og níu tapa trygg- ingarfé sínu Eins og kunnugt er, verða þeir, sem sækja um þingmensku, að leggja fram $200.00, jafnframt o'g lögskipuð útnefning fer fram. Fá þeir þessa upphæð því aðeins endurborgaða, að þeir hljóti að minsta kosti helming atkvæða rcóti þeim umsækjanda, sem flest atkvæði fær, og kosinn er. Af öll- um þeim sæ!g, sem um þingmensku sóttu við kosningarnar 28. júlí, urðu þeir 79, er ekki hlutu nægi- legt atækvæðamagn til að fá end- urborgaða þessa tvö hundruð dali. Flestir eru þeir í Ontario, eða alls 23, en 20 í Quebec; í Manitoba og Saskatchewan voru þeir 13 í hvoru fylkinu; fjórir í British Columbia og Alberta, hvoru um sig, en ekki nema einn í Nova Scotia og einn í New Brunswick, enginn í Prince Edward Island. Fiskiveiðar í Hudsons flóanum Það "er nú verið að rannsaka þau tækifæri, sem vera kunna til fiskiveiða í Hud'sons flóanum, og er búist við, að sambandsstjórnin gefi út skýrslu um það efni nú í haust. Ef svo reynrst, sem al- ment er gert ráð fyrir, að þar sé fiskiveiði góð, þá verður þess nð ekki langt að bíða, að það verði farið að stunda þar fiskiveiðar í stórum stíl, og þá væntanlega helzt þorskveiðar með togurum. Eru nokkur fiskifélög nú þegar um það leyti til þess búin, að hefja fiskiveiðar í Hudsons flóan- um. Við vesturströnd flóans er þess þó ekki að vænta, að mikinn fisk sé að finna, vegna þess að botninn er óhreinn, en við aust- urströndina er öðru máli að 'gegna. Kosinn án gagnsóknar Hon. R. N. Rhodes, hinn nýi fiskiveiða ráðherra, var hinn 2. þ.m. koisinn þingmaður í Rich- mond, West Cape Breton kjör- dæminu í Nova Scotia, gagnsókn. arlaust. Hafa þar með allir ráð- herrarnir nýju verið kosnir, og hefir enginn orðið til að sækja gegn neinum þeirra. Fjórir menn teknir af lífi Á laugardaginn voru fjórir menn teknir af lífi á ítalíu, sem sekir höfðu verið fundnir um, að sitja á einhverjum svikráðum við stjórnina og brugga Mussolini banaráð. Hreindýrin Það stendur til, að ein þrjú þús- und hreindýr verði flutt frá Al- aska til Barren Lands, ekki langt frá Churchill. Á báðum þessum stöðum er svipað loftslag og beitiland líkt, svo talið er víst, að hreindýrin muni þrífast vel á þessum nýju stöðvum. Verður þá væntanlega þess ekki langt að bíða, að mikið verði um hreindýr í Manitobafylki norðanverðu. — Hreindýrakjöt þykir ágætt, bragð- betra og hollara en nautgripakjöt o!g er því líklegt, að það seljist vel. Hreindýrahúðir eru líka gagnlegai t:! •■ýisv.ra hluta. En líklega bætir þetta ekki fyrir sölu á nautgripum í Manitoba. Ríkiserfingi fæddur Leopold og Astrid, tilvonandi konungur og drotning í Belgíu, eignuðust son hinn 8. þ.m. og hafa Belgíumenn þar með eignast reglu- legan erfðaprins. Hann var skírð- ur sama da!ginn sem hann fæddist og heitir Baudouin Albert Axel Marie Gustave. Vísindaleg sönnun fyrir tilveru manns og guðs. Sönnunin fyrir tilveru guðs er al- gjörlega sama eðlis og sönnunin fyrir tilveru mannsins, nema hvað hún er meiri og sterkari: I góðri og alþektri bók er þannig að orði komist: “Elski maðurinn ekki bróður sinn, sem hann hefir séð, hversu getur hann þá elskað guð, sem hann hefir aldrei séð?” En sannleikurinn er sá, að enginn maður hefir nokkru sinni séð hvorki meðbróður sinn né guð. Það er ekki likami mannsins, sem vér köllum mann. Líkami mannsins er samur fyrst eftir dauðan og hann var fyrir dauðan, en engum kemur til hugar að tala um líkið sem mann. Það eru að sönnu fáeinir efnis- hyggjumenn, sem hafa þá skoðun að maðurinn sé allur þar sem líkami hans sé, en hitt er hin almenna skoð- un, að maðurinn hafi ódauðlega sál, ýmist háða eða óháða mannlegum líkama og mannssálina hefir enginn séð eða þekt, nokkurn tíma, eða á nokkurn hátt. Þegar vér segjum i daglegu tali að vér höfum séð þennan og þennan manninn, þá eigum vér við með þvi, að við höfum séð hann líkamlega, og hinar líkamlegu tilvísanir lífsins. Vér höfum séð augnaráð hans, fundið hita í höndum hans, vér höf- um heyrt hljóminn af rödd hans. Og einnig má vera að vér höfum séð hann sýna krafta sína, andlega og líkamlega, séð hughræringarmerki— en ekkert af þessu kemur neitt nærri að vera það sama og sjá, heyra og snerta manninn sjálfan. Hið eina, sem vér höfum til að sanna með tilveru andlega mannsins eru hans líkamlegu tilburðir og hrær- ingar. Og vér höfum hina sömu á- stæðu til að sanna með tilveru ó- sýnilegs guðs, því það sem mann- legur likami er sálinni — að öllu sýnilegu, að minsta kosti — það er alheimurinn guði, og þessvegna er sú skoðun tilorðin að guð sé sál al- heimsins. Hér endar samlíkingin, enda þótt krafturinn, reglan, umbyltingarnar, visdómurinn sé að sínu leyti svo mikið umfangsmeira og augljósara, sem alheimurinn er stærri manns- líkamanum. Merkin um að alt hafi fyrirhugaðan tilgang eru svo augljós að sjálfir vísindamennirnir geta ekki lýst neinu í náttúruríkinu öðruvísi en að segja: Þetta er ákvarðað.” En ekkert af þessu nægir fyrir suma til að sanna tilveru Guðs eða manna, því raunvísindi Cant’s neita tilveru alls nema þess, sem sézt og heimspekilegir efnissinnar halda að samspil efniseindanna framleiði hugsun og tilfinningu. Þýtt úr ensku af Jakobínu J. Stefánsson, Hecla, Man. Til “landsins hilji í norðri Eftir Richard Beck. II. YFIR HAFIÐ. Eg hvarf þar frá, er sjóferð okk- ar var byrjuð. Hefir sumum ef- laust fundist mikið til um það að vera komnir á haf út fyrsta sinni, en þó sérstaklega síðar á ferð- inni, er þeir sáu Ægi í hrikadýrð sinni, ö'grandi bæði og laðandi. Hins vegar vara særinn fopn- kunningi ýmsra okkar; og ekki all-fáum, er á fjarðarströnd voru í heiminn bornir, hafði hann sungið vögguljóðin. Hugðum við gott til, að endurnýja kunnings- skapinn við þennan æskuvin, en seiðmagn hans er máttufet mjög. Enda er alkunnugt, að gamlir sæ- farar una illa hag sínum á þurru landi. Ferðin yfir hafið heimleiðis gekk vel, nema hvað við töfðumst nckkrar klukkustundir í þoku úti fyrir ströndum Nýfundnalands. Veður mátti gott kallast meiri hluta leiðarinnar. Þó var sær æði úfinn miðvikudaginn þ. 11. júní og kendu þá ýmsir til sjóveiki, jafnvel gamlir sjómenn, svo sem sá, er þetta ritar. Se!gir hann ekki kinnroðalaust frá þeim atburði; þó er sannleikurinn sagna beztur. En Ægir fer eigi að mannvirð- ingum. Prestar, læknar, prófess- orar, listamenn og vísinda, verka- menn og bændur, eru allir jafnir fyrir lögum hans. Ekki gengst hann heldur fyrir fríðleik kvenna; töfrar þeirrah rína ekki á hon- um. Sáust alls þessa 'glögg merki á skipi okkar greindan dag. ís sáum við lítinn á okkar slóð- um, aðeins strjála jaka. Á þá varð mörgum starsýnt. Ekki verð- ur heldur neitað, að þeir eru tignarlegir, er þeir líða áfram — líkir turnborgum úr hvítum mar- mara — í hægum þey, hvítir á bláum grunni. En fals býr und- ir fegurð þeirra. Undir íslandsstrendur komum við síðdegis föstudaginn þ. 13. júní. Var Eldey, gróðurlaus og særokin, hið fyrsta, sem við eygð- um af íslandi. Þó var hún sem útrétt vinarhönd, er bauð okkur velkomin til ættlandsins. Mjög höfðum við þráð að sjá ísland rísta úr sæ í fjarska. En svo átti þó eigi að fara. All-hvast var og ri!gning, “þrútið loft og þungur sjór”, er við nálguðumst landið. En er kom inn fyrir Gróttu stytti upp og greiddi til í lofti, svo nokkuð sá til • fjalla, en þokan beltaði sig um miðjar hlíðar. Fanst erlendum förunautum okkv ar landið mikilúðlegt á svip, þó fremur væri yfir því haustblær en sumars. Eigi verður heldur neitað, að eitthvað var það í dökk- brýndri ásýnd dala, fjalla og fjarða, sem laðaði og heillaði. Var sem þar opnuðust hulduhallir. Brátt sást Reykjavík o'g bar þar hæst við ský Landakotskirkj- una nýju, sem er bæði mikið hús og fagurt. Var auðsætt, að mörg- um útlendingum fanst höfuðstað- ur íslands drjúgum stærri og á- sjálegri, en þeir höfðu 'gert sér í hugarlund. Hörmuðum við sárt þeirra vegna, og allra, að bjartar var eigi yfir, því innsiglingin til Reykjavíkur er hin fegursta á heiðum sumardegi, fjallasýnin Minni Canada (Að Hnausum 1930.) Hér, Canada, við komum öll í dag; við kyssum þig og bjóðum góðan daginn, er skógaúgyðjan leikur vöggulag á laufga hörpu, stilt við sumarblæinn. Við komum saman eins og íslenzk börn, sem aldrei skulu bregðast móður sinni; og þó við stundum séum gleymskugjörn, við gleymum ekki fósturvöggu þinni. En þó skal ekki hræsnað—'satt skal sagt— þú sást í skiftum Igóðan leik í tafli: iþað bezta var á borð með okkur lagt, sem búi þínu reyndist drjúgur afli. Við komum til Iþín tóment—það er satt— en treystum bæði kröftum, heilsu og viti, og hétum því að greiða skylduskatt, að skerast hvorki’ úr leik né svíkja liti. Og það var ekki’ um hlupnindi né hlífð, en heilan rétt, sem Landinn kröfur gerði, og ekki betluð björg úr hnefa stífð, en brauð, sem væri goldið fullu verði. Með þér o!g okkur þetta samið var, af þér og okkur skráð á beggja hjörtum; þau einkamál, sem enn þá lifa þar, um eilífð skulu virt af báðum pörtum. Hér, Canada, við komum öll í dag, við kyssum þig og bjóðum góðan daginn, er skógargyðjan leikur vöggulag á laufga hörpu, stilt við sumarblæinn. Sig. Júl. Jóhannesson. blátt áfram hrífandi. Enda komst víðförull, sænskur merkismaður svo að orði fyrir eigi löngu, að ytri höfnin í Reykjavík væri hin l’egursta slíkra, þeirra er hann þekti til í Norðurálfu. Var nú akkerum varpað og för okkar yfir hafið lokið. Ekki leið heldur langt áður sendimenn landstjórnarinnar og borgarstjóri Reykjavíkur, kæmu um borð til að fagna okkur löndum sínum vestan að og bjóða okkur velkom- in. En áður en komu þeirra og fagnaðarkveðjum skal lýst, vil eg minnast stuttlega á lífið um borð í skipi okkar á heimleiðinni. Óhætt mun mega segja að fá- um, eða engum, hafi leiðst ferða- lagið yfir hafið, enda gerðu yfir- menn skipsins og aðrir skipverjar alt, sem í þeirra valdi stóð, til þess að förin yrði sem ánægjulegust. Við munum líka len'gi minnast með þakklæti greiðvikni þeirra og prúðmensku. Veðrið var okk- ur líka fremur hliðholt., sem fyr var greint. Margt var til skemtunar: söng- samkomur, dansar og ýmiskonar leikir á þiljum uppi. Til þess að- al’ega að draga saman hugi ís- lenzkra farþega, er dreifðir voru um öll þrjú farrýmin, og einnig til þess að fræða erlenda farþega um ísland og íslenzka menningu, var komið á samkomum, þar sem fluttar voru ræður á ensku og íslenzku um íslenzk efni, sungn- ir íslenzkir söngvar, lesið upp, einsöngvar sungnir og íslenzk lög spiluð. Voru samkomur þessar haldnar dag hvern frá kl. 3—4 í borðsal fyrsta farrýmis, nema miðvikudaginn, er verst var í sjó. Forsæti skipaði Richard Beck, en í nefnd með honum'við að und- irbúa samkomur þessar, voru þau Mrs. Finnur Johnson og Mr. J. J. Samson frá Winnipeg. Á samkomunum fluttu þessir menn ræður: dr. B. J. Brandson, prólfessor Sveinbjörn** Johnson, Sir W. A. Craigie, prófessor Hall- dór Hermannsson og J. Ragnar Johnson lðgfræðin'gur. Var góð- ur rómur gerður að ræðum þess- um, ekki sízt að ræðu Sir Wil- liams. Flutti hann yfrlitserindi um íslenzkar bókmentir, auðugt að innihaldi og prýðilegt að flutningi. Með söng skemtu þau Mrs. S. K. Hall, Mr. Alex Johnson, Miss Violet Code og Mr. Guðmundur Kristjánsson óperusöngvari. Með hljóðfæraslætti skemtu Miss Nina Paulson Kapff, Mr. F. Dalman og Mr. Tryggvi Björnson; léku þau margt íslenzkra tónsmíða. Sat að segja hefðu samkomur þessar ærið einhliða orðið og tómlegar, ef eigi hefði notið við aðstoðar fyrgreinds söngfólks og hljómsveitarinnar íslenzku. Þess má einnig geta, að á einni samkomunni flutti Hon. W. J. Major, fulltrúi Manitoba á Alþing- ishátíðinni, kveðju frá fylki sínu. Fór hann einkar hlýjum orðum um íslendinga og skerf þeirra til canadiskrar menningar. Þá má má og nefna, að á annari samkomu las dr. Stefán Einarsson, kennari við John Hopkins háskólann í Baltimore, upp kafla úr Heljar- slóðarorustu, er mikinn hlátur vakti meðal íslenzkra áheyrenda. Er bert að kímni Gröndals tapar sér ekki með aldrinum. Hún er sí-gild, lifandi list — hressandi eins og heiðaskúr í moldveðri. Samkomur þessar voru fjölsótt- ar, bæði af íslenzkum farþegum og erlendum og var mælt, að þær hefðu mjög fært menn nær hverj- um öðrum og farið vel fram. Kváðust útlendir menn mikið hafa fræðst um lsland bæði af ræðun- um og söngvunum, að ógleymdum íslenzkum tónsmíðum, er leiknar voru. Var því miklu betur af stað farið í þessu efni, heldur en heima setið. Þá tóku íslenzkir farþegar mikinn þátt í öðrum samkomum og skemtunum, er haldnar voru á skipinu. Þó þeir væru eigi nema rúmur þriðjungur farþega, bar mest á þeim hvarvetna, enda var þetta pílagrímsför þeirra á helga staði ættlands síns. Tveim dögum áður en við kom- um til Reykjavíkur, hafði okkur borist loftskeyti um það, að okkur Islendingunum vestan að yrði fagnað bæði af fulltrúum land- stjórnarinnar og Reykjavíkur- borgar. Vöktu þessar fregnir mikla ánægju um borð í skipi okk- ar, sem vonlegt var. Þær báru vott um svo mikið vinarþel í garð okkar, og allra Vestur-íslendinga. Ekki leið heldur langt frá því, er “Antonia” hafði varpað akkerum á Reykjavíkurhöfn, að hafnarbát- urinn “Ma'gni” legði frá landi. En með honum komu borgarstjóri, forsetar bæjarstjórnar, alþingis- forsetar og söngflokkur K.F.U.M. Er “Magni” nálgaðist skip okkar, lustu farþegar upp fagnaðarópi, en söngmenn svðruðu með húrra- hrópi. Þá er sendimenn landstjórn- ar o'g borgarstjórnar voru stignir á skipsfjöl, söfnuðust allir saman í borðsal fyrsta farrýmis; var þar hvert sæti skipað. (Framh. í næsta bl.)

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.