Lögberg - 30.10.1930, Qupperneq 4
Bls. 4.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 30. OKTÓBER. 1930.
Xögíjerg
Gefið út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS, LTD.,
Cor. Sargent Ave. og Toronto St.
Winnipeg, Manitoba.
Talsímar: 86 327 og 86 328
Einar P. Jónsson, Editor
Utanáíkrift blaðsins:
The Columbia Press, Ltd., Box 3172
Winnipeg, Man.
Utanáskrift ritstjórans:
Editor Lögberg, Box 3172, Winnipeg, Man.
Verð $3.00 um árið. Borgist fyrirfram.
The “Lögbers” Is printed and published by
The Columbia Press, Limited,
695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba.
+-----------------------—----------------•+
Fœst af því svara vert
+•—---------------------------------—+
í síðasta blaði Heimskringlu birtist grein
með fyrirsögninni: “Öldungunum hnignar”;
kennir þar margra grasa, sem auðsjáanlega eru
sprottin í næsta varhugaverðum jarðvegi.
Um grein þessa í heild, er óþarft að f jölyrða;
enda er henni skilmerkilega svarað hér í blaðinu
af einum öldunganna, án þess að mikilla hnign-
unarmerkja sé vart. Þó hefir áminst grein eitt
atriði sérstaklega til brunns að bera, sem ekki er
alveg hægt að leiða hjá sér.
Því er haldið fram,—0g það beinlínis stað-
hæft, að sjálfboðanefndin hafi tekið við helm-
ingnum af því fé, sem Manitoba-stjórnin hafi
ætlað heimfararnefnd þjóðræknisfélagsins. 1
þessu tilfelli er sannleikurinn svo átakanlega
sniðgenginn, að eigi væri ástæðulaust að ætla, að
um ósjálfráða skrift væri að ræða.
Um áminstar staðhæfingar Heimskringlu er
óþarft að fara mörgum orðum; sem fullgilt svar
við þeim, birtum vér það ákveðna yfirlýsingu frá
þeim embættismanni fylkisstjórnarinnar, er yfir-
umsjón hefir með öllum útborgunum úr fjár-
hirzlu fylkisins, að ekki verður um vilst. Vér
birtum hér einnig orðrétt ummæli Heimskringlu
þessu viðvíkjandi, lesendum til hægðarauka.
Væntum vér þess, að ritstjórn blaðsins sýni það
drenglyndi, að afturkalla hinar villandi staðhæf-
ingar sínar ákveðið og vafningalaust, 0g verði
oss þakklát fyrir að hafa leitt í ljós hinar einu
sönnu heimildir viðvíkjandi þessu atriði.
Sú staðhæfing Heimskringlu, að Dr. Brand-
son hafi stungið á sig $2,000 frá sambands-
Stjórninni til þess að komast heim, er næsta
barnaleg, og í rauninni tæpast svaraverð. Því
er haldið fröm að sú upphæð sé næstum því eins
mikið fé og alt það, sem farið var fram á handa
öllum Islendingum; einkennileg reikningsfærsla.
Heimfararnefnd þjóðræknisfélagsins fór fram
á $3,000 frá Saskatchewaan fylki, 3,000 frá
Manitoba og auk þess $5,000 frá sambands-
stjórninni, eða $11,000 í alt.
Sannleikurinn er sá, að Dr. Brandson, Árni
Eggertson og Sigtryggur Jónasson, voru allir
útnefndir fulltrúar sambandsstjómarinnar og
hverjum þeirra um sig, greiddir $1,800 í ferða-
kostnað; þeir voru allir starfsmenn stjórnar-
innar þennan stutta tíma, og þar af leiðandi bar
þeim öllum ómakslaun úr fjárhirslu landsins,
sem öðrum fulltrúum- eða þjónum hins opinbera.
Að sjálfsögðu eru áminstar staðhæfingar
Heimskringlu þannig vaxnar, að margir geta
aldrei á þeim blekst; þó er tilgangurinn auðsær
en.gu að síður.
+■----------------------------------——»
Líknarsamlag Winnipeg-
borgar
4-----------------------------------------
Þann 3. nóvember næstkomandi, hefst hin
árlega fjársöfnun líknarsamlags Winnipeg-
borgar, og verður að þessu sinni farið fram á
nokkru meiri f járhæð, en venja hefir verið til,
eða í alt $450,000. Er þetta níunda árið„ sem
líknarsamlagið — Federated Budget, — hefir
starfað hér í borginni; um nytsemi þessarar
ðtofnunar, verður ekki efast; hvert einasta
cent, sem inn kemur, að frádregnum lægsta,
hugsanlegum starfrækslukostnaði, gengur til
þess að hlynna að sjúklingum, aldurhnignu
fólki, börnum, sem enga eiga að, og öðrum mun-
aðarleysingjum. Alls eru það tuttugu og fimm
mannúðarstofnanir, er góðs njóta af því fé, er
líknarsamlagið fær til umráða; allar stofnanir,
er bæjarfélagið eins og sakir standa, getur undir
engum kringumstæðum án verið. Þess vegna er
það bein siðferðisleg skylda, að veita þeim allan
þann stuðnihg, er framast má verða í té látinn.
Manitoba-veturinn er alla ja'fna langur og
venjulegast ærið harður í horn að taka. Þeir,
sem í hlýjum híbýlum búa, og vel hafa komið ár
sninni fyrir borð, bera sjaldnast kvíðboga fyr-
ir vetrinum í Manitoba; þeir þurfa þess ekki
heldur. Öðru máli er að gegna með þá, er í
skugga örbirgðarinnar skjálfa og fáa, eða enga
eiga að; þeim hrýs hugur við norðan næðingn-
um í hvert skifti og hann drepur á dvr. Það
er órjúfanleg skylda hinna, sem betur megandi
eru, að tryggja munaðarleysingjunum viðunan-
leg lífsþægindi og verja heimili þeirra gegn á-
gangi vetrarríkis og vonleysis. Að þessu tak-
marki stefnir starfsemi líknarsamlagsins, og
þar áf leiðandi á hún heimtingu á samúð al-
mennings.
Kornið fyllir mælirinn. Því aðeins má þess
vænta, að vel takist til um fjársöfnunina til
líknarsamlagsins í þetta sinn, sem og reyndar
endra'nær, að hluttakan verði sem allra almenn-
ust, því ekki hafa allir af miklu að taka.
i—-----------------------------------------
Bœttir þjóðvegir
4-----------------------------------------+
Bandaríkjamaður, er férðast hafði um Can-
ada að heita mátti frá strönd til strandar,
lýsti landinu, er heim kom, með svofeldum
orðum:
“Landið er dásamlegt, fólkið glaðlegt og
frjálsmannlegt, en þjóðvegirnir í slíkri fádæma
óreiðu, að manni liggur við að spyrja, hvort
landið sé ekki í raun og veru öldungis stjórn-
laust.”
Ekki er ólíklegt, að nokkuð sé til í því, að
canadiskir þjóðvegir standi þjóðvegum sunnan
landamæranna nokkuð að baki. En að þeir séu
í eins aumu ásigkomulagi og þessi ferðalang-
ur lýsir, nær vitanlega ekki nokkurri átt.
’ Að vísu verður því ekki neitað, að þjóðvegum
vorum er næsta ábótavant enn sem komið er;
þó eru framfarirnar á því sviði hreint ekkert
smáræði. Og þegar tekið er tillit til þess, hve
ung þjóðin er, borið saman við Bandaríkja-
þjóðina, verður ekki annað sagt, en henni hafi
skilað sæmilega áfram lagningu þjóðvega við-
víkjandi.
Fyrir atbeina hinna ýmsu sambandsstjóma,
var snemma tekið að leggja þjóðvegu hér í
landi; var það engin nýlunda, að sambands-
þing veitti stórar fjárhæðir í því augnamiði, er
varið skyldi til vegabóta innan takmarka hlut-
aðeigandi fylkja. Xú eru það fylkisstjórnirn-
ar, sem teljast mega einar um hituna í þessu
efni; hefir flestum þeirra orðið rnikið ágengt,
svo sem í Otntario og Quebec. Hér í vesturfylkj-
unum hefir vegabótamálum einnig skilað vel á-
fram síðustu árin, svo að þau fylki geta nií und-
ir engum kringumstæðum talist eftirbátar
hinna. Að vísu er enn mikið óunnið á þessu
sviði. Rómaborg var ekki bygð á einum degi,
og það verða heldur okki þjóðvegirnir í
Canada.
Notkun bíla fer árlegá mjög í vöxt, og þar-
afleiðandi er það afar^áríðandi að þjóðvegum
sé haldið í góðu ásigkomulagi og nýir vegir
lagðir, þar sem þörfin er mest.
Góðir og fullkomnir þjóðvegir mega teljast
með lífæðum nútíma kynslóðarinnar.
Illir vegir og ósléttir, hafa kostað margan
manninn lífið, og munu svo enn gera, sé ekki
ráð í tíma tekið.
Það er siðferðisskylda hlutaðeigandi stjóma,
að halda þjóðvegum öllum í eins góðu ásig-
komulagi og frekast má verða; vanræksla í
þeim efnum, er höfuðsynd, er ekki verður af-
sökuð.
+-----------------------------------------+
Bókmentir
i-------:---------------:------—----------*
Islendingar heima eiga mörg og merkileg
tímarit; flestir Vestur-lslendingar kannast við
sum þeirra, þótt þau séu hér öll of-lítið lesin;
má þar til nefna “Skírni”, “Óðinn,,, “Iðunni”
og “Eimreiðina”, sem öll eru hverju öðru merk-
ara rit, hvert í sinni röð.
En auk þess er eitt rit gefið út heima, sem
alveg er sérstakt í sinni röð; flytur sérstaka
tegund bókmenta; snýr að lesendum sínum sér-
stakri hlið sögunnar; veitir sérstaka fræðslu
og berst fyrir sérstakri stefnu.
Yfir höfuð hafa tímaritin, hvar sem þau em
gefin út, fremur litlitla stefnu í almennum mál-
um; það er að segja þeim málum, sem ágrein-
ingi valda 0g um er deilt.
Ritið, sem hér er um að ræða, er þar undan-
tekning; það heitir “Réttur”, og er í þeim á-
kveðna tilgangi gefið út, að flytja kröfur 0g
halda fram rétti alþýðunnar.
Ritstjórinn er Einar Olgeirsson, frábærlega
vel ritfær maður og lærður í víðtækum skiln-
ingi; auk lians skifa í ritið ýmsir hinna yngri
maima heima, sem mesta athygli hafa vakið
með einkennilegum rithætti, sterkum og tepm-
lausum stíl og hlífðarlausri árás á alt, sem
hindrar og heftir. Ma þar með telja Þorberg
Þórðarson, Halldor Kiljan Laxnes, séra Gunn-
ar Benediktsson og fleiri.
Vitanlega og eðlilega falla skoðanir og kenn-
ingar þessara manna ekki öllum í geð; þær eru
róttækar og byltingakendar í öllum efnum; en
svo er um allar nýjar kenningar. Jónas Hall-
grímsson, sem lengi hefir verið nokkuis konai
hálfguð Islendinga, var svo mjög hataður í lif-
anda lífi, að jafnvel hinir “gestrisnu bændur
fagra Fróns” úthýstu honum vegna kenninga
hans, og það þótti blettur á þeim, er í manna
tölu vi-ldu vera, að sjást með honúm á götu í
Reykjavík eða Kaupmannahöfn. Og ekki er
lengra en svo, að eg man eftir þegar fólk á ís-
landi áleit, að Dr. Jónassen landlæknir ætti að
vera á vitlausra spítala fyrir þær einkennilegu
$ kenjar og ofríki, að vilja banna mönnum að
láta hunda sleikja askana sína. Þetta er ekki
trúlegt, en það er satt.
Og þegar þannig er ástatt í ríki hugarfars-
ins, ef um byltingu er að ræða á einhverju einu,
þá er það eðlilegt, að þeir verði ægilegir í aug-
um kyrstöðumannanna, sem vilja gerbreyta
öllu þjóðfélags fyrirkomulaginu, en sú er stefna
jafnaðarmannanna, og þeirra málgagn er
‘ ‘ Réttur. ’ ’
Eg mintist stöku sinnum á þetta rit, þegar
eg var ritstjóri “Lögbergs” og “ Voraldar”, og
lét þá endurprenta úr því nokkrar ritgerðir.
Annars munu þeir vera tiltölulega fáir, sem
ritið lesa hér vestra, og er það illa farið.
Já, eg sagði að “Réttur” væri rit jafnaðar-
manna; það orð lét ægilega í eyrum fyrir fjórð-
ungi aldar; en eins og eyrun hafa smávanist
við nafnið, þannig hafa þjóðirnar nálgast stefn-
una meira og meira. Kenningin er ekkert voða-
leg fyrir þá, sem hana skilja; hitt er annað mál,
að hún hefir verið gerð að grýlu í augum og í-
mvndun þeirra, sem ekki hafa sjálfir kynt sér
hana
Hugsum okkur t. d. núna á þessum vand-
ræðatímum hér í Canada, að allar opinberar
stofnanir, allir bankar, öll ábyrgða- og auðfé-
lög, allar eignir og allur auður skifti á svip-
stundu um eigendur, einstaklingarnir létu alt
af hendi, en vnnu fyrir ríkið, fvrir þjóðina, fvr-
ir alla heildina og þar með fyrir sjálfa sig;
bóndinn og iðnaðarmaðurinn, kaupmaðurinn og
bankastjórinn, læknirinn og lögfræðigurinn,
kennarinn og presturinn — bókstaflega allir
gengju beinlínis í þjónustu þjóðar sinnar, þar
sem stofnað væri eitt allsherjar samlagsbú, og
allir hefðu sitt ákveðna kaup. Það er hugmynd
jafnaðannanna; þá ef þjóðin öll orðin að einu,
stóru heimili og um það séð, að öll börnin séu
látin vinna, sem vinnufær eru, 0g öll liafi við-
unanlegt viðurværi — því hér er nóg til af auði,
ekki er því um að kenna, þó illa láti í ári og bæði
skorti björg og klæðnað á vissum stöðum.
Þessar eru kenningar jafnaðarmanna; þessi
er stefna tímaritsins “Réttur” og munu fáir
geta neitað því með sanngirni, að hiin sé fögur.
Hitt rengja sumir, , að sú aðferð geti hepnast;
þeir trúa því ekki — eða þykjast ekki trúa, að
menn fengjust til þess að leggja eins fullkom-
lega fram krafta sína, ef þeir ynnu fyrir ríkið,
eins og þegar þeir vinna fyrir sjálfa sig, eða
einstök félög.
Þetta er þó fjarstæða; ekki er það vitanlegt
að kennarar, sem fyrir ríkisskólana vinna, séu
lélegri, eða leggi sig síður fraAi um það að gera
vel, en hinir, sem á einstakra manna stofnunum
vinna. Ekki trúi eg því að nokkur, sem þekkir,
efist um, að Glasco, sem stjórnar Winnipeg
“Hjrdro”, láti sér ekki eins ant um þá stofnun
eins og E. Anderson lætur sér um Winnipeg El-
ectric; enginn mun vera svo ósanngjam, að hann
viðurkenni ekki, að Sir Henry Thomton, sé
verki sínu eins vel vaxinn og Mr. Beatty, þótt
hinn fyrnefndi vinni fvrir þjóðina, en sá síðar-
taldi fyrir félag einstaklinga. — Nei, sú grýla
er í andarslitrunum, að menn vinni ekki eins
trúlega fyrir þjóðina og fyrir einstaklinga.
En svo ég snúi mér aftur að “Réttj”, skal
þess getið, að sérstakt hátíðarit var gefið rit af
honum í sumar. Þar er margt og mikið ritað
í sambandi við hátíðina 0g tilefni lxennar.
Má þar sérstaklega nefna grein eftir séra
Gunnar Benediktsson; heitir hún “Náttfari”,
og segir frá því með sögulegum staðfestingum,
að Ingólfur hafi ekki verið fyrsti landnáms-
maður á Islandi, heldu maður sem Náttfari hét
og hafði verið þræll. Hér er um þýðingarmik-
ið, sögulegt atriði að ræða, sem fáir munu hafa
tekið eftir áður.
Annars er þetta hátíðarit bæði svo vandað
og svo einkennilegt, að sem flestir ættu að lesa
það og kynnast því.
“Réttur” er til eölu hjá hr. A. B. Olson á
Gimli, og kostar einungis $1.50 árgangurinn.
Sirj. Júl. Jóhannesson.
To the Editor Lögberg
(Continued from Page 1)
political policy, but it cannot fairly
base its lack of suport on the other
ground which it professes.
I have never been a member of
“þjóðræknisfélag” and fail to see in
what respect I owed any special duty
to it. When I was asked to become a
member of “Heimfararnefnd” I was
glad to do so in the hope that I might
be of assistance and my association
with its members has been friendly as
far as I was concerned. Although I
liad been uraged to resign from the
Committee I declined to do so for the
reason that I did not consider it would
be fair to the Committee ‘and I knew
that if I did it would be the signal for
a fresh attack upon them. I have
throughout regretted the controversy
and done my utmost to reconcile the
two warring factions with a view to
promoting unity among our people on
the occasion of tliis great event in
their history. I see no object to be
gained by any one in reviving the con-
troversy and to the extent that the two
árticles I have referred to tend to such
revival I regret their publication
Personally I have never allowed the
coiitroversy to affect in any way my
personal friendship towards the per-
sons engaged in it, no matter on what
side they were engaged and I intend
to maintain that attitude of mind
whether the controversy revives or not.
I have refrained from enga’ging in the
controversy and I intend to continue
to refrain.
To state that I deserted “heimfarar-
nefnd” and went over to “sjálfboöa-
nefnd” or that I went behind the backs
of “heimfararnefnd” is an absurd
statement to make when the above facts
are known. As a mernber of Parlia-
ment I owed a greater duty to the
community as a whole than any duty
owing by me to any particular com-
mittee, even although I was a member
of such committee. As a public man
í owed the duty of being fair to both
factions and I tried to discharge that
duty fairly by recommending the ap-
pointment of Dr. Brandson, an out-
standing and distinguished Western
Icelander who had taken a prominent
part on one side of the controversy and
the appointment of Mr. Eggertson, an-
other outstanding Western Icelander,
who had been sent to Ottawa 'by “heim-
fararnefnd” itself as its delegate. What
could have been fairer treatment of the
two factions than that? If I had re-
commended appointments only from
among persons on the same side of the
controversy then, indeed, I couid have
been accused of breach of faith and
duty. I hope this will satisfy all fair
minded men who read this article.
Reference was made both in my
father’s article and in Heimskringla
to the honorary degree of Doctor of
Law which the University of Iceland
conferred upon me. Whether that
great honor was deserved or not is not
for me to say. All that I can say is
that I value it highly. I am also quite
certain that the controversy had noth-
ing whatever to do with the awarding
of the degree to me. To suggest that
the University of Iceland awarded any-
body a doctor’s degree because he took
a particular stand in the recent con-
troversy, whether for or against mon-
etary aid from the provincial govern-
ments to “Heimfararnefnd” is obvious-
ly absurd, particularly when it is re-
membered that both Dr. B. J. Brand-
son and Rev. Rognv. Petursson both
received honorary doctor’s degrees,
and it can hardly be considered that
these two gentlemen saw eye to eye
w ith one another in the recent con-
troversy. Fair minded men will agree
that both deserved their honors for
their scholarly attainments and for the
parts they have played in enriching the
life of the Icelandic people. Several
others were honored in a similar man-
nei who took no part in the contro-
versy as far as I have been able to
learn.
Nor do I intend to argue with
•Heimskringla as to whether I am
guilty of “óþjóörækni” or not. I know
of no act of mine that has ever brought
any discredit upon the Icelandic people
and I do know that I have done my
best to so conduct myself as to 'merit
the confidence which my friends and
supporters have from time to time re-
posed in me. It is not always those
who boast most loudly of their “þjóð-
rækni” who best serve the interests of
the race to which they belong. I hope
that I have done something towards
helping to place our people in Western
Canada in the present high place which
they occupy in the esteem of other
peoples who are associated with them
in building up this new country. If I
have done so, I feel amply repaid and
can affard to disregard the remarks of
Heimskringla. I liave not worn my
heart on my sleeve, but my heart, I
fcan assure my friends, is in the right
þlace in so far as the interests of our
people in this country are concerned.
I have only one other comment to
make with regard to the article in
Heimskringla and it relates to the gift
of Canada to Iceland in commemora-
tion of the celebration.
Heimskringla says “Frá gjöf Can-
ada var jafn hiröulevsislega gengið og
öllu öðru, er f*áfarandi stjórn í sam-
ráði við Thorson og sjálfboða lagði
hendur að.”
I am sure tliat Ileimskringla would
not have made that statement if it had
been aware of thí facts. I discussed
the question of Canada’s gift to Ice-
land with the Prime Minister on a
number of occasions. I also discussed
it with other members of the govern-
- jLÍ
DODDS 'Ó
kidney^
v7,. PILLS A
í meir en þriðjung aldar hafa
Dodd’s Kidney Pills verið viður-
kendar rétta meðalið við bakverk,
gifet, þvagteppu og mörgum fleiri
sjúkdómum. Fást hjá öllum lyf-
sölum, fyrir 50c. askajn, eða sex
öskjur fyrir $2.50, eða beint frá
The Dodds Medicine Co., Ltd.,
Toronto, ef borgun fylgir.
ment, and with other members. I asked
for suggestions as to the form the gift
shoukl take both from members of
“Heimfararnefnd” and from members
of “Sjálfboðanefnd.” The members of
“Heimfararnefnd” finally settled upon
a scholarship fund scheme and certain
members of the committee met the
Prime Minister himself and other
members of the Cabinet to discuss the
scheme with them. I was in favor of
the proposal and did my utmost to have
it adopted as members of “Heimfarar-
nefnd” know. The Prime Minister
was himself sympathetic towards the
idea and submitted it to council for
consideration. The Government after
giving it careful consideration decided
jthat it could not set up the precedent
of establishing scholarship schemes
j from other countries since if such a
scheme was established from one coun-
j try there would be requests made from
(other countries, and it would not be
þossible to draw any line between
jcountries. This difficulty had been
made known to me and while I still had
hopes of putting the proposal through
I wished to have some alternative pro-
posal ready to submit to the govern-
jment in case it could not see its way
j clear to accept the scholarship scheme.
j On numerous occasions I requested my
friends to make alternative suggestions
j for some gift which would fittingly
express Canada’s desire to honor the
Tcelandic nation in commemoration of
j the thousandth anniversary of the
• establishment of Parliament in Ice-
land. I never received any such alter-'
native suggestions from “Heimfarar-
I nefnd” although I asked for it many
. times. When the government decided
that it could not accept the scholarship
scheme for the reason tliat I have in-
j dicated, I wired to Mr. Bildfell as I
have indicated again asking for an
j alternative suggestion but none was
| forthcoming. It sometimes seemed to
me that the factions were toq busy
quarreling with one another to give
thought to the matter. The govern- >
mcnt finally decided tliat the delegates
should discuss the matter in Iceland
and confer with one another on their
return and then make suggestions to
the government as to the form of the
gift. The failure to agree upon the
form of the gift was certainly not my
fault. At my request the Prime Min-
ister made a statement on the floor of
the House of Commons which, I am
sure, will be of interest to all and I
quote it here. I am also happy to
quote the remarks of the present Priine
Minister, the Rt. Hon. R. B. Bennett.
These statements were made on the
last day of the session and appear on
pages 3098 and 3099 of Hansard as
follows:
“To provide for participation in the
celebration of the lOOOth anniversary
of the founding of the parliament of
Iceland, $6,000.
MR. BENNETT: Why the dif-
ference, $6,000 in this case as against
$2,000 in the other?
MR'. MACKENZIE KING: In re-
gard to the celebration of the one-
thousandth anniversary of the found-
ing of the parliament of Iceland, it has
been tliought desirable to have three
delegates attend from Canada. The
event is a very important one in the
history of parliamentary institutions,
6nd it will be an international event.
The Government had in mind the pre-
sentation to Iceland of something of a
permanent nature which would be a
worthy memorial of the occasion, and
I should like the house to know that
next year, if the present administra-
tion is in office, some proposal along
fhat line will be made. I hope and feel
quite sure that if some other admin-
istration should be in office, it will be
prepared to make a similar appropria-
tion.
SIR GEORGE PERLEY: When is
the celebration to take place?.
MR. MACKENZIE KING: In a
month or two; in June, I think.
MR. BENNETT: Last year I made
sorne observations in another place on
this historic event, and I think it high-
ly desirable that Canada should be re-
presented. Whether three delegates
should be sent in view of the presnt
únmployment condition I am not pre-
pared to say; but as to manifesting our
interest in án event of such historic
concern to all the world as the estab-
lishment of parliamentary institution a
thousand years ago, I certainly think
that perhaps'my hon. friend to my
right, if he were in the place the Prime
Minister suggests, would undoubtedly
take' cara of the matter in thé \úay of