Lögberg


Lögberg - 16.04.1931, Qupperneq 5

Lögberg - 16.04.1931, Qupperneq 5
LÖGBBRG, FIMTUDAGINN 16. APRIL 1931. Bls. 5 >• "v ' ttiiiriyiá \ ■ íi|u^|o m «w ' ^ r,r ,' oj : { \ . v...« " ',r %-■ ........... < • VV í / '/Ai i* ■<W*&æíÍÍtK'<••• ■ Peningar sendir heim • ÞÉR getið sent peninga heim, þægilega og áhættulaust, frá öllum deildum þessa banka, með> pósti, radio eða síma. Peningarn- ir verða borgaðir í Bandaríkjapeningum, eða peningum þess lands þar sem móttakandi er, ef óskað er, til viðtakanda, gegn um áreiðan- legan banka. The Royal Bank of Canada Fáein orð tileinkuð E. Kerulf Lögberg- 12. marz s.l. flytur t>ví sem næst þriggja dálka langa krein, til mín stílaða, frá kunn- 'ngja mínum E. Kerulf Þar getur hann þess, meðal annars, að hann hafi fundið í vísum Kormáks eina kina útvöldu dróttkveðnu vísu, er rugla skuli saman fyrri og síðari Parti um óstamstæð efni, í sam- ræmi við háttatalsvísuna, sem hon- Um fanst mest til, sakir þess kost- ar, er hann reyndi að tileinka 13. visunni í Gunnlaugssögu. Þessa v'su Kormáks tekur hann upp í Sreinina, og tekur svo meiri part öennar saman í óbundið mál, eins °g hann segir að dr. Finnur Jóns- ®°n hafi gert. Síðan spyr hann: “Hvað finst nú M., S. um Finn?” ^að get eg sa!gt honum, að mér finst það um Finn, að hann aldrei kafi tekið vísuna saman á þann ^átt, sem hér er sett fram í þess- ari grein E. Kerulfs. Það dylst engum, sem Iesið hefir þann sam- setning með nokkurri athygli, að fremur muni handbragð Kerulfs á honum, en dr. Finns. Þvl hér er slept í grein Kerulfs tveim Seinustu hendingum vísunnar, — l8em d\ Finnur Ihefði ekki gert. óftur er þessi. setning: “Sörva 'imur stöndumk fyr yndi”, sett n'ður alveg á rangan stað, í þenn- an samsetning, sem Kerulf hefir auðsæilega gert í einhverju ó- ráðsfáti — en ekki “viss' vit- andi.” Sýnir hann í þessu og fieiru, hvað hann er smellinn í Pví, að hafa upp eftir öðrum. essi tilfærða setning er innskot 1 fyrri part Vísunnar, og verður með engu móti smeygt inn í þann aíðari, nema að standa þar aft- í téðri grein, er á' löngum kafla mestmegnis útúrdúrar o!g rang- færslur. T. d. heldur hann því fram, að eg h.afi eignað Kormáki vísuna “Alin var rýguí* at rógi”; sem er tilhæfulaust. Fleira er líkt þessu, sem eg nenni ekki að tína hér upp úr þeim vaðli. Að síðustu telur hann mér heppilegast, að líta á kenninguna “lit-Eir”, með jafnaðargeði. En eg býst við eg líti á þá kenningu frá því sama sjónarmiði, sem eg leit á hana áður, — og með þvíj jafnaðarigeði, að hún aldrei hafi verið til, annars staðar en í Ker- ulfs eigin beilakeri. Að kenna konur við það verk, er þeim samir að vinna, getur far- ið vel, sé kenningin smekkleg, eða sett fram í listhæfan búning, eins og t. d. Kormákur nefnir konu: “rjóða ullar reiði Sif” (sem og Kerulf minnist á í sinni grein). En svo geta slíkar kenningar ver- ið á margan hátt svo ósmekklegar eða klaufalega settar fram, að ó- hafandi séu. Þessu, sem komið er, getur nú Kerulf velt fyrir sér. M. S. Otgerðin Tilfinnanleg kreppa er riú í útveginum hér, mikill fiskur fyr- irliggjandi, en verðið lágt á er- lendum markaði og salan treg. Ýms útgerðarfélögin standa höll- um fæti, en sum gjaldþrota eða þar um bil. Horfir til vandræða um atvinnu og efnahag, ef ekki rætist úr. Bankarnir gera nú, með atbeina atvinnumálaráðu- neytisins, ^ilraunir til þess að selja fisk á nýjum markaði, sem sé í Rússlandi, og hafa sent þangað sérstakan erindsreka (Morten Ottesen). iEitt útgerð- arfélalgið, Kveldúlfur, hefir einn- ig reynt, að senda frosinn fisk til Suðurlanda. Ársaflinn varð rúmlega 441 þúsund skippund, eða nokkru meiri en næstu þrjú ár á undan. Aflinn var lang- mestur í Reykjavík, rúmlega 157 þús. skippund, þar af 116% þús. und togarafli. Hafnarfjörður er önnur aflasælajsta útgerðar- stöðin, 52 þús. skp. Þar hefir eitt útgerðarfélagið einnig orðið gjaldþrota nýlega. Þar næst var aflinn í Vestmannaeyjum, 48% ast, semog á sér stað í skýring- unum við söguna; eins vel getur hún staðið þar fremst í óbundnu máli, þar eð hún er sérstæð að efni. En vísan er svo greinilega tekin saman í skýringunum við söguna, að ekki verður betur gert á annan hátt. En að þeirri gerð kemst hún ekki í þann flokk, sem h. t. vísan tilheyrir, — sem þó enn þá stendur einstæð í sín- um myndugleik á höndum Ker- ulfs. Má segja um þá smala- mensku, að seinlelga hafi gengið, er en!gu skuli hafa þokað áleiðis með þá söfnun, er hann hefir gengið með, nú í nærfelt ár. Ruglingslegt sýnist fleira verða í þessari grein, en það, sem vik- ið er að hér að framan. T. d. tel- ur hann það svar,,sem eg gaf hon- um við því, sem hann sting- ur að mér í sinni fyrstu svar- grein, — vera beint til Snorra, en ekki til sín, þó eg hafi ekki sett nafnið sitt þar við, Reynir hann hér að koma því svo fyrir, að það verði skilið þanni!g, með því að sleppa aðalrót þess máls, er svarið átti við. Skiljanlega veifar hann þessu fremur í nokk- urs konar nauðvörn, en að hon- um hafi fundist svo vera, því síð- ar í sömu grein kemst hann þannig að orði: “Hér við bæt- ist það, að M. S. kallar þetta, sem eg sting að honum, munnflugu (tannahvarfs hleypiskarf”). Hér skilur hann svarið rétt, að eg tek ekki við ‘hans tannahvarfs hleypi- skarfi, nefnilega þessu er hann stingur að mér, að heina illkvitni til Snorra. Það var betur, að Kerulf rankaði við sér og náði réttri átt í þessu atriði, — annars hefði hann verið talinn “ósvífinn eða heimskur”. Það sem hér fer næst á eftir SPARIÐ hjer um Með því að nota vort M $30 SÉRSTAKA Eldavéla og Vatnshitunar Ahalda Tilboð Ef þér setjið rafeldavél í hús yðar meðan þetta tilboð stendur, sparíð þér $18 til $20 á vírlagning- unni. % —ENN FREMUR— Með hverri rafeldavél, sem keypt er og fær raforku frá Hydro orkustöðvunum, fylgir SLAVE FALLS LOAD BUILDING SOUVENIR OERTIFICATE, sem heimilar yður ókeypis raforku, sem er $10 virði. ÞESSI SPARNAÐUR NEMUR ALLS HÉR UM BIL $30 Ef þér viljið heldur kaupa rafeldavél hjá einka- verzlun, þá viljum vér haga því þannig, að þér njótið sömu hagsmuna. Allir, sem verzla með rafáhöld, geta tekið þátt í þessu. Nú ER TÍMI TIL AÐ KAUPA RAFELDAVÉL OG SPARA HÉR UM BIL $30. er véHn sett í ngdrollectnc Sijstcm, ski]má,um ■ princess»st. Sími 848 133 55-59 hús yðar. m mmmmmjmmmmmmjmmmmmmmmmmmmmmm Bindindi Þann ástarsoninn—efni í mikinn mann— á Mímislindum þeim, er beztar fann, vildi hann næra anda drengsins unga, svo yrði hann fær að mæta lífsins þunga. í skóla lífsins lék sér ungur sveinn svo yndis-glaður, örufegur og hreinn. Hann lærði margt, er fróðleik jók og frama, en firðist það, er dró til böls og ama. Þá fyrirmynd sem ungum sveinum er in æðsta mentun, fann hann veitta sér. Og blómum skrýddur, bjartur lifsins vegur nú brosti við, svo skír og yndislegur. En þó var eitt, er skorti’ á skilning hans, er skyldi ávalt planta’ í sál hvers manns: Hann tók sér drykk—að fjörga sál og sinni, það sá hann gjört í föðurhúsum inni. Hann átti vini—beztu hnoss í heim— og hann var ungur—lífsins naut með þeim. Hann skildi ei þá, en skildi síðar betur, að skemtun lífs og nautn á sumar og vetur. Að fegurst rósin eitur-angan ber; í einu glasi sorg að leynir sér; að takmörk alls eru lög, er stöðug standa, en stjórnlaus nautn er tjóður frjálsum anda. Hvað æskan kýs, það ellin gráta má, því æfireynslan kennir að skilja og sjá. Mörgum er æfin langur sorgarleikur, ög lífsins strengur bláþráðóttur kveikur. 1 móðurfaðmi drengurinn særði svaf, þá sjálfur dauðinn hrygðar merki gaf. Og móðurtárin vonar-blómið vættu, sem vínsins eiturdropar sundur tættu. ‘ En þá kom hjálp—hið helga kraftaverk,— því hönd hins góða’ er bæði mjúk og sterk. Og læknishöndin lifið drap úr dróma, nú dafnar blóm, hvar lífsins raddir óma. Þú, faðir, sem í anda átt þér von til æðra lífs — og gæfuríkan son, ver nú það dæmi’, er kæfi öldur kífsins, og komdu þínum dreng á veg til lífsins. Því, hvers skal bíða góðu að leggja lið, er lífsins engill stendur þér við hlið? en naumur tími—stórt er verk að vinna, og von þín felst í samúð bræðra þinna. Svo stíg þú fram úr dauðans dimmu kverk með djörfung, þitt að rækja skylduverk. Þann konung hyll, sem heimi ræður yfir, — þá hel'gu vonarfró:—“Þinn sonur lifir.” S. B. Benedictsson. \ Fishermen’s Supplies Ltd. “TANGLEFIN” NETIN veioa meiri iisk Miklar birgðir af hörtvinna og baðmullarnetjum, þinirar, felliþráður, soppar og blýsökkur fyrirliggjandi í Winnipeg. Sérstakar pantanir sendar rakleitt frá verksmiðjunni. Skrifið eftir verðlista, eða finnið oss að máli. Fishermen’s Supplies Ltd. I 32 Princess St., Winnipeg PKone 28 07 I þús. skp. Þar er einn helzti út- gerðar- og fiskikaupfmaðurinn, GÍsli J. JohnSén, nýlega orðinn' gjaldþrota. Síldveiðin á árinu 1930 var mjög góð, saltaðar voru 127% þúsund tunnur, sérverkaðar 58 þús. tunnur, en seldar í bræðslu nærri '535 þús. hektolítrar, þar af tók ríkisbræðslan við rúml. 95 þús. hl. 17 íslenzk botnvörpu- skip stunduðu síldveiðar að sumrinu og 130—140 norsk skip og öfluðu c. 136 þús. tunna og seldu auk þess hérlendis c. 45 þús. hl. til bræðslu. í byrjun ársins voru fisk- birgðir c. 53 þús. skippund. Þá var verðið 120 kr. fyrir 1. flokks sólþurkaðan stórfisk, en 118 kr. fyrir húsþurkaðan fisk, en hann hækkaði upp í 122 kr. í febrúar og hélzt það verð út marzmán- uð. í ágúst var verðið komið niður í 95—114 kr. því framboð ið var einnig mikið á norskum fiski og óhagstæð veðrátta, eink- um óþurkar, hömluðu fiskverkun hér. Þegar kom fram á haust, dró mjög úr fisksölu, þó venju- lega sé hún mest um þær mundir og fór verðið sífallandi, og um áramót var það komið niður í 80 kr. og þó oft ilt og ókleift að selja fyrir það verð. í Reykjavík var þveginn og pressaður fiskur seldur á 25 aura fob, en var 45 aura í ársbyrjun. Síldarverð var einnig mun lægra en næstu árin á undan, saltsíldin að meðaltali 9—10 kr. á tunnu móts við kr. 13.60 árið 1929. ísfisksala tog- aranna var einnig til jafnaðar minni, en árið áður. Togararnir fóru 207 söluferðir til Englands og seldu fyrir rúmlega ‘ 190 þús. sterlingspund. í byrjun þessa árs voru fisk-' birgðir í landinu samtals,- sam-| I kvæmt talningu yfirfiskimats-j | manns, tæpl. 127 þús. skippund,! móts við tæplega 53 þús. skpd. í| fyrra. í Noregi voru fiskbirgð- irnar einnig miklar nú um ára- mótin, eða 108% þús. skippund, móts við 78 þús. í fyrra. í New- foundland er sagt, að birgðir séu einnig mun meiri en í fyrra. “Því er ekki að neita’, segir Ægir um þetta, “að útlitið er ekki glæsilegt, hvorki með sölu þess- ara birgða eða næsta árs fram- leiðslu.” Er búist við því, að útgerð minki víða mikið vegna kreppunnar. Ef til vill er kreppa sú, sem yfir stendur og í hönd fer, einhver sú harðasta og al- varlegasta, sem komið hefir yfir íslenzka atvinnuvegi á þessarii öld og ekki sízt tilfinnanleg fyr- ir útgerðina, og hefir enda nú þtegaír valdið henni miklum bú- sifjum. Jón ólafsson banka- stjóri komst nýlega svo að orði í ræðu, að um þriðjungur línu- veiðaskipanna í Rvík -væri eigin- lega gjaldiþrota. En vonandi rætist betur úr en á horfist. Ú.t- gerðin er orðin svo mikil og á- ríðandi þáttur í öllu þjóðlifinu, ber svo mikið af fjárhagslegum byrðum þess og veitir svo mörgu fólki atvinnu, að það mundi valda mjög mikilli truflun alls at- vinnulífs, ef .útgepðin lamaðist að mun. Sést það nokkuð á því, að síðastliðið ár voru gerð út 812 skip, þegar þau voru flest, og skipverjar á þeim voru hátt á sjöunda þúsund og þar við bætist svo allur sá fjöldi, sem að fisk- verkun og afgreiðslu vinnur í landi. Togarar voru gerðir út flestir 41 með 1,332 skipverjum, og 31 línuskip, með 544 skipverj- um, og 188 vélbátar stærri en 12 smálestir, með 1810 mönnum. En vélbátar minni en 12 smálestir c voru 280, opnir vélbátar 204, en róðrarbátar ekki nema 46, þeg- ar þeir voru flestir. Af þessu stutta yfirliti má sjá nokkuð á- stand og horfur útvegsmálanna. — Lögr. 4. feibr. BLÖHRUR OG BRUNASAR Ekkert meðal eins haldgott við slíkum meinum, sem ZAM-BUK Olntment 50c Medicinal Soap 25c Frá íslandi Úr ÁJftaneshreppi er skrifað 18. marz — Tiðin hefir nú batn- að og má heita auð jörð hér. Hef- ir verið blíðuveður undanfarna daga. Útlitið var allskuggalegt um tíma og sjálfsagt hefðu marg- skekta sveitabæi, þar sem menn ekkert höfðu reynt af slíku, og þar sem menn aldrei fengu frétt- ir fyr en mánaðargamlar og þar um bil i blöðum, að ógleymdum veðurfregnunum, sem menn hafa áður farið á mis við, en eg tel mest virði. Munu þær hafa mikla fjárhaglslega þýðingu, ekki sízt um sláttinn. — í sumar á að leggja síma um neðri hluta Hraunhrepps og Áfltaneshrepps; er búið að flytja stuarana í Álfta- neshreppinn. Verður þetta mikil bót frá því, sem verið hefir. — Inflúeitsa á einum bæ hér í sveit- inni (Álftanesi). Annars verj- ast henni allir eftir getu.—Vísir Þrjú sönglög, eftir Magnús Á. Árnason, eru nýlega komin út. Lögin eru við kvæði Stephans G. Stephanssonar, “Bæjargöng- ir orðið illa staddir með fóður, ef j in”, kvæði Jónasar Guðlaugsson- harðindin hefðu haldist fram áj ar, “Eg elska þig” og þriðja lag- vor. — Mikil umskifti þykir ið er við gamla alþýðuvísu. Að- mönnum hafa orðið við að fá út- varpið, mikil og góð, fyrir af- al útsala sönglaganna er í bóka- verzlun Ársæls Árnsonar.—Vísir. Góð tíðindi og mikil Þeir sem koma inn í búð R. J. McLean’s, kon.ast fljótt að því, að þar er auðvelt að fá sér góð föt og 'ganga vel til fara, án þess að ofþyngja gjaldþolinu. ÚRVAL AF KARLMANNA HÖTTUM, er yngja og fegra menn í útliti. Verð $2.95 TOP COATS TIL VORSINS—margar tegundir um að velja, úr efni, sem jafnast á við það, sem oft fæst í dýrari fötum. Verð $12.50 til $20.00 Það mun vekja hjá yður óblandinn fögnuð, að skoða vorar nýju birgðir af VOR-ALFATNAÐI með tvennum buxum fyrir $20.00, $25.00 til $35.00 R. J. McLEAN LTD. « • MARKET and MAIN Winnipeg, Manitoba BRIGHTEN YOUR HOME WITH CONQOLEUM RUGS NEW DESIGNS CHEERFUL COLORS FULLY GUARANTEED We have just received a large shipment of these Beautiful Modern Rugs and Floor Coverings in patterns suitable for every room. THIS SPECIAL SALE IS YOUR OPPORTUNITY Wlth Each Rng Sold Thts Week, we will give, AB- SOIATTEliV FHEE. a Congoleum Rug size 18x36 Special Terms Deposit Delivers any Rug Arrange to pay for it at the rate of one dol- lar per week. A SIZE FOR EVERY ROOM Size 6x9 Price ..... Size 7% Price ...... Size 9x9 I*riee .... x 9 Size 9 x 10.6 Price ......... Size 9 x 12 Erice ......... 13.6 Size 9 lh-ice ....... Size 9 x 15 Prioe ........ $6.25 $7.75 $9.25 $10.75 $12.25 $13.75 $15.75 CONGOLEUM By ihe Yard (iolci Seal Congoleum, exaotly the same quality a,s rugs, is available in sizes where rugs are not suitahle. TWO WIDTHS 2 yards wide 7 Op per square yard I U L 3 yards wide 7Cp por square yard I Uv — The Reliable Home Furnishers” 492 MAIN ST. Phone 86 667 GET OUR PRICES ON UPHOT.STKRING RI.FINISHING, RKPAIRING. ÁND FIRKPROOF STORAGE.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.