Lögberg - 21.05.1931, Side 4

Lögberg - 21.05.1931, Side 4
r.is. 4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. MAÍ 1931. Gefið út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS, LTD., Cor. Sargent Ave. og Toronto St. "VVinnipeg, Manitoba. Talsímar: 86 327 og 86 328 Einar P. Jónsson, Editor Utanáskrift blaðsins: The Columbia Press, Ltd., Box 3172 Winnipeg, Man. Utanáskrift ritstjórans: Editor Ldgberg, Box 3x72, Winnipeg, Man. Verð $3.00 um árið. Borgist fyrirfram. The '‘Liöprberg” is printed and published by The Columbia Press, Limited, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba. Eimreiðin Rétt áður en blaðið fór í pressuna, barst oss í hendur fyrsta hefti Eimreiðarinnar af xxxvii. árgangi; er innihaldið á þessa leið: Eysteinnjónsson: Reikningar íslenzka ríkisins (með mynd). Sveinn Sigurðsson: A mótum tveggja árþúsunda (með 34 myndum). » Þórður Jónsson: 1 eftirleit (með mynd). Kristinn E. Andrésson: Gerhart Hauptman (með mynd). Geir Jónasson: Mærin frá Orleans, Hilmar Stefánsson: Fyrsti Þorradagur. Nathaniel Hawthorne: Tilraun Dr. Heiðeggers (saga). Thomas Coulson: Rauða dansmærin (framh.). Enn fremur eru í ritinu eftirgreindar ritsmíðar: Áhyggj- ur og liamingjuleit — Utvarp umhverfis hnöttinn. Og loks: Ljóð, Ritstjá og Víðsjá. tJtsölu ritsins hefir með hendi hr. Magnús Peterson, 313 Horace Street, Norwoood, Man. Vikið mun verða nánar að verðmætum þessa Eimreiðar heftis, er hentugleikar leyfa. Þakkarávarp Hér með vottum við undirrit- uð, aðstandendur o!g skyldmenni séra Hjartar sál. Leó, og frúar hans, öllum þeim mörgu kærleiks- ríku vinirm og vandamönnum þeirra, fyrir alla þá frábæru sam- úð og hluttekning, sem allir hafa sýnt þeim, á einn og annan hátt, með peningagjöfum og allri ann- ari h jálp, í hinu langa og stranga dauðastríði hans, sem góðum guði þóknaðist að le!ggja á þau, sem hann hefir á svo ó- sýnilegan hátt séð þeim fyrir beztu. Eg er ekki fær um að lýsa tilfinningum mínum í orði, þó hjartað finni þær bezt, sem eg og við öll biðjum nú þann, sem ekki lét vatnsdrykk ólaunaðan, að blessa af fríkdómi náðar guðs alla þessa fórnfúsu menn og ko'nur, sem í svo bróður- og systurlegum anda hafa fylgt svo dásamle!ga fótsporum og kenn ingu hahs, sem offraði sjálfum sér af elskunni til vor mann- anna. Honum fel eg að endur- gjalda öllum þessum ofantöldu vinum og vandamönnum, þegar þeim mest liggur á. — Við, sem sárast syrgjum heimkominn ást- vin vorn, gleðjumst í guði að vita hann vera lausan við alt stríðið, hér megin, en kominn í sælustaðinn með honum, sem hann svo trúlega vann fyrir hérna megin, að bera krossinn með honum. Að síðustu biðjum við kærleiksríkan guð allra guða að taka að sér sorgumhlaðna ekkju þessa látna vinar, með sín- um elskaða syni, sem enn er ekki farinn að skilja tilveru lífsins. Vertu þeirra vernd og hlíf í öll- um mótgangi lífsins, góðl guð, huggaðu þau og berðu græðandi smyrsl á hjartasárið djúpa; gefðu henni skært vonarljós um fram- tíð litla, en fallega nýgræðin'gs- ins, sem þú, drottinn, gafst þeim sameiginlega, og hann verði hennar elskulegt yndi og unun og líkist þeim fallna vini í öllu sem gott er, 0g hamingjusól hans skíni sem skærast, svo engin sorgarsský komist að. í Jesú nafni. Bjöm Jónsson, og fjölskylda hans. í meir en þriðjung aldar hafa Dodd’s Kidney Pills verið viður- kendar rétta meðalið við bakverk, gift, þvagteppu og mörgum fleiri sjúkdómum. Fást hjá öllum lyf* sölum, fyrir 50c. askjan, eða sex öskjur fyrir $2.50, eða beint frá The Dodds Médicine Co., Ltd., Toronto, ef boPgun fylgir. Til kaupenda Lögbergs Það er á almanna vitorði, hve útgáfa íslenzkra blaða hér í landi, hefir verið miklum erfiðleikum bunxlin, og hafa þeir erfiðleikar af eðlilegum ástæðum farið vaxandi; þeir menn, sem að Lögbergi standa, hafa orðið til þess knúðir í nbkkur' undanfarin ár, að stinga hendinni ofan í vasann, til þess að mæta beinu tapi, sem af útgáfu blaðsins hefir leitt. Árið 1929, nam tapið, samkvæmt vottorði yfirskoðunar- manna, Price, Waterhouse and Cq., $3,221.08, en yfir 1930 ber skýrsla yfirskoðunarmannanna, David Cooper and Oo., það með sér, að tapið hefir numið $4,670.99. Og eins og nú horfir við, er ekki annað fyrirsjáanlegt, en að beint tap á útgáfunni verði drjúg'um meira á ári því, sem nú er að líða. Það er því auðsætt, að við svo búið má ekki lengur standa, ef tilveru blaðsips á að verða borgið; en til þess að slíkt megi lánast, þurfa tekjur og útgjöld að mestu leyti að standast á. Breyting sú, sem á blaðinu hefir verið síðan 1. marz, er til orðin af knýjandi þörf, í þeim tilgang.i, að draga úr útgáfu- kostnaðinum; þar af leiðandi hefir útgáfunefndin það í hyggju, að gefa út hálft blað öðru hvoru fram til næstu áramóta; þó ekki oftar en aðrahvora viku. Fyrir næstu áramót tekur útgáfunefndin fastar ákvarð- anir um framtíðar stærð 0g verð blaðsins; mun hún taka þakk- samlega öllum sanngjörnum bendingum frá kaupendum þessu viðvíkjandi. — Tókstu ekki eftir því ég lét pípuna mína? — Nei, vinur minn. ■— En hvað kvenfólkið gleymið! hvar er Hudsonsflóabrautin Þó lagningu Hudsonsflóabrautarinnar sé nú að fullu lokið, og hafnaiwirkin við Fort Churchill vel á veg komin, þá eru þó ýmsir enn að naga sig í handarbökin yfir þeirri fjár- hæð, sem varið hafi verið til fyrirtækisins; gætir þessarar andúðar hreint ekki svo lítið í Montreal og víða annars staðar eystra, þar sem séð virðist ofsjóna yfir svo að segja hverjum þeim hlunnindum, smáum eða stónxm, er Vesturlandinu kunna að falla í skaut; l>að er gefið í skyn, að brautin muni aldrei bera sig, og það sé eins og að bera í bakkafullan lækinn, að veita til hennar meira fé. Það er á almanna vitund, að lagning téðrar brautar hefir kostað þjóðina tugi miljóna; það er enn fremur á almanna vitund, að slíkt var óhjákvæmilegt, og að ekki þarf nú nema herzlumun til þess að flytja megi út canadiskt fveiti frá Fort Churchill. Gæti það þá komið til nokkurra mála, að draga á lahginn síðustu fjárveitinguna, sem til þess þarf að fullgera fyrirtækið, eða ljúka við hin nauðsyrriegustu hafnarvirki? Nei! Sérhverja tilraun, er í þá átt gengi, hlyti þjóðin miskunn- arlaust að kveða niður. Að jafna Hudsonsflóabrautinni við hitt og þetta algengt riðskiftafyrirtækí, nær vitanlega ekki nokkurri átt; gildi hennar fyrir verzlun og viðskifti Vesturlandsins, hlýtur í eðli sínu að verða víðtækara en svo, að slíkt yrði réttlætanlegt. Canadiska þjóðin hefir varið tugum miljóna til skipa- skurða, án þess þó að slík samgöngutæki hafi fram að þessu gefið af sér beinan arð. En þrátt fyrir það, yrði slíkt með öllu óverjandi, að reikna skipskurðina þjóðinni til taps, eða koma í veg fyrir, að nýir skurðir yrði grafnir1, þeir eru þegar óaðskiljanlegur hluti af þróunarsögu þjóðarinnar á sviði samgöngumálanna, engu síður en járnbrautimar, auk þess sem óbeini hagnaðurinn af starfrækslu þeirra verður tæpast metinn til peninga. Norðurhémðin í þessu víðáttumikla landi, era enn að miklu leyti sem lokuð bók; aðeins tiltölulega fá ár eru liðin, frá því er farið var til þess Tyrir alvöru, að rannsaka á vís- indalegan hátt, hve margbrotin og mikilfengleg auðlegð þar kynni að vera falin í jörðu; þær rannsóknir, þó enn séu í viss- um skilningi á tilraunastigi, hafa samt sem áður leitt það skýrt og ákveðið í ljós, að þessi norðlægu svæði eru auðug af verðmætum málmum, auk þess sem þar er um að ræða marg- vísleg önnur náttúrufríðindi; borið saman við öll þau auðæfi, verður kostnaðurinn við lagningu Hudsonsflóabrautarinnar hverfandi, eða eins og dropi í hafinu. Holt væri það þeim, er stuggur stendur af nýjungum og nývirkjum, að kynnast ítarlega sögu hinnar canadisku þjóðar; og þó sú saga sé enn ekki löng, þá er hún engu að síður við- burðarík; stórvirki þau, sem þessi tiltölulega fámenna þjóð hefir hrandið í framkvæmd, hafa reynst giftudrjúg og orðið henni til sæmdar; og vér efumst ekki uhi, að þá er stundir líða, verði dómur sögunnar sá, að með lagningu Hudsonsflóabraut- arinnar, hafi þjóðin stigið eitt af sínum glæsilegustu fram- farasporum. Þegar um jafn-mikilvægt mál er að 'ræða, sem lagningu téðrar járnbrautar norður að Hudsonsflóa, mætti ætla, að smámunasemi og hreppapólitík kæmist þar ekki að; þó hefir reyndin engu að síður orðið sú, að þröngsýnir og gamaldags dollaramiðlarar eystra, hafa amast við framgangi fyrirtæk- isins, annað hvort af fákænsku, öfund, eða þá hvorttveggju. TÆKIFÆRI FYRIR ÞA SEM EIGA BRÁÐUM ÚTRUNNIN CANADIAN GOVERNMENT BONDS TIL AÐ FRAMLENGJA ÞAU GEGN ÁBYGGILEGUSTU TRYGGINGU 1 CANADA LANDSTJÓRNARINNAR I DOMINION OF CANADA FRAMLENGINGARLÁN 1931 Fjámálaráðherra Canada gefur hér með þeim, er þau Dominion skuldabréf eiga, sem hér verða talin, tækifæri til að skifta þeim fyrir önnur, sem síðar falla í , gjalddaga, með þeim ákvæðum Qg skilyrðum, er hér segir : 1 % Þetta tilboð veitir skuldabréfa eigendum hentugt tæki- færi að skifta, sömu vextir og undanþágan frá skatti eins og núgildandi skuldabréf, þar til þau falla í gjald- daga, og tækfæri til að framlengja lánið með 4%% vöxtum á ári. \* ^ WAR LOAN 5% SKULDABRÉF, BORG- ANLEG 1. OKTÓBER, 1931 — Þeir, sem. þessi skuldabréf eiga, hafa tækifæri til að skifta þeim fyrir skuldabréf, sem falla í gjalddaga 1. nóvember 1956 0g bera vexti frá 1. apríl 1931. Fyrsti arðmiðinn verð- ur fyrir sex mánuði, undanþeginn skatti, 5%árlegir vextir, borgðanlegir 1. október 1931. Annar arðmiði verðuF fyrir sjö mán- uði, 4y2%. árlegir vextir, borganlegir 1. maí 1932. Þar á eftir verða vextir borg- aðir á hverjum sex mánuðum, 4ð/2%. á ári. RENEWAL LOAN 5i/2%. SKULDABRÉF BORGANLEG 1. NÓVEMBER, 1932. — Þeir, sem þessi skuldabréf eiga, hafa tæki- færi til að skifta þeim fyrir skuldabréf, sem falla í gjalddaga 1. nóvember 1957 og gefa 41/2% vexti, borganlega hálfsárslega frá 1. maí 1931. Þessum skuldabréfum fylgja þrír auka-arðmiðar, borganlegir 1. nóvem- ber 1931 og 1. maí 0g nóvember 1932, sem gefa 1%! auka-vexti á ári. VICTORY LOAN 5%% SKULDABRÉF, BORGANLEG 1. NÓVEMBER 1933. — Þeir, sem þessi skuldabréf eiga, hafa tæki- færi til að skifta þeim fyrir skuldabréf, sem falla í gjalddaga 1. nóvember 1958, með 4)/2% vöxtum, sem borgast lxálfs- árslega frá 1. maí 1931. Fyrstu fimm arð- miðarnir, til 1. nóvember 1933, að þeim degþ meðtöldum, verða undanþegnir skatti. Þessum skuldabréfum fylgja fimm auka- arðmiðar, undanþegnir skatt, borganlegir L nóvember 1931 og 1. maí og nóvember ^1932 og 1933 með auka 1%, vöxtum á ári. VICTORY LOAN 5i/2%, SKULDABRÉF BORGANLEG 1. NÓVEMBER 1934. — Þeir, sem þessi skuldabréf eiga, hafa tæki- færi til aðl skifta þeim fyrir skuldabréf, sem falla í gjalddaga 1. nóvember 1959, 4i/>% vextir, borganlegir hálfs-árslega frá 1. maí 1931. Þessum skuldabréfum fylgja líka sjö auka-arðmiðar, borganlegir 1. nóvember 1931 0g 1. maí og nóvember 1932, 1933 0g 1934 með atika 1% vöxtum á ári. Upphæð þeirra skuldabrefa, sem eigendum eru boðin skifti á, hér að framan, eru sam- tals $250,000,000. Fjármálaráðherrann áskilur sér samt sem áður rétt til að auka eða minka þessa upphæð eftir vild. Tekið verður á móti fjárframlögum og kvittað fyrir þau, hjá öllum útibúum allra lög- giltra banka í Canada og hjá viðurkendum Canadian Bond Dealers og Stock Brokers. Hjá þeim fást líka umsóknar-eyðublöð og eintök boðsbrefa stjórnarinnar, sem skýra fidlkomlega alt láninu viðvikjandi. Umsóknir verða ekki teknar til greina nema á eyðublóðum prentuðum hjá King’s Printer. Umsóknum um ofannefnd skuldabréf verður fyrst veitt móttaka 11. mai 1931 og lokað 23. maí 1931, eða fyr eftir því sem fjármálaráðherra ákveður. Fjármáladeildin, Ottawa, 11. maí 1931.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.