Lögberg - 15.10.1931, Blaðsíða 6
Bls. 6
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 15. OKTÓBER 1931.
Af jörðu ert þú kominn
EPTIR
C LE V E S K I N K E A D.
Það stóð heima, að þegar Guinevere var bú-
in að segja vinstúlku sinni allar þessar góðu
fréttir, voru þær komnar að dyrunum á dans-
skálanum.
Ellen varð fyrir miklum vonbrigðum. Hús-
ið var miklu óásjálegra, heldur en hún hafði
gert sér hugmynd um. Einu sinni hafði bygg-
ingin verið notuð fyrir hjólskauta-leiki. Þetta
var þá öll dýrðin, sem hún hafði heyrt svo mik-
ið talað um! En strax þegar þær voru komnar
inn, byrjaði hljóðfærasveitin að leika á hljóð-
færin og fólkið stóð upp frá borðunum og byrj-
aði að dansa. Hljóðfæraslátturinn var veru-
lega góður og hann vakti svo mikla gleði hjá
Ellen, að hún gleymdi því strax, hve ber og
ömurlegur henni hafði við fyrsta álit sýnst
þessi staður, og hún gleymdi því, að hún hafði
stolist að heiman, gleymdi öllu öðru en því, að
hún var glöð og ánægð.
Hún var alveg ánægð með að standa upp við
vegginn og horfa á hitt fólkið. En eftir litla
stund greip Gfuinevere í handlegginn á henni.
“Við skulum koma inn í herbergið, þar sem
stúlkurnar geyma fötin sín,” sagði hún. “Eg
þarf að snotra mig dálítið til. Svo þarf eg að
finna gamla Render og kynna þig honum.
Hann vill helzt kynnast stúlkum, sem hingað
koma, á undan öllum öðrum. Hann er dálítið
sérvitur og gerir mikið úr smámunum, en. það
er gott að koma sér vel við hann. Líttu bara á
þessa náunga þama úti í hinu hominu, hvernig
þeir stara á okkur. Artie Coakley er heppinn,
ef hann missir ekki augun út úr höfðinu. ”
Ellen leit snöggvast þarna út í hornið. Þar
sátu einir sex ungir menn við borð og á því
vom margar flöskur og glös. Þeir störðu allir
á þær og hún vissi ekki hver var þessi merki-
legi Mr. Coakley. En henni var sama hver
hann var, henni mislíkaði við þá alla, og henni
fanst sér misboðið með glápi þeirra á þær. Ef
hún hefði verið ein af heldra fólkinu, jafningi
þeirra, þá hefðu þeir ekki gert þetta, það vissi
hún vel.
(ruinevere lét Jiana eina eftir í fataherberg-
inu, meðan hún var að leita að húsbóndanum.
Hljóðfæraslátturinn hafði hætt um stund. Og
þegar hún var nú ekki lengur undir áhrifum
liljómlistarinnar, þá iðraði hana sárlega, að
hafa komið. Ef mögulegt hefði verið að komast
út án þess að eftir því væri tekið, þá mundi
Guinevere ekki hafa fundið hana, þegar hún
kom aftur. Hún leit út um gluggann, en sýnd-
ist ekki árennilegt að fara út um hann. Yin-
stúlka hennar mundi heldur aldrei hafa fyrir-
gefið henni, ef hún hefði þannig laumast burtu.
En þessar hug3anir vöraðu ekki lengi, hljóð-
færaslátturinn 'byrjaði aftur.
Bender var alt öðra vísi, heldur en hún hafði
hugsað sér hann. Hún hafði alt af haldið, að
liann væri feitur maður og ljóshærður. En í
þess stað var hann dökkur eins og ítali, dökkur
á hár og hörundsíit, og hann var eins laus við
að vera feitur, eins og íþróttamaður. Hún gat
ekki varist því, að vera hálf hrædd við hann, þó
hann reyndi að vera eins vinsamlegur og kurt-
eis, eins og hann gat. Henni virtist hanna taka
svo nákvæmlega eftir sér, að það var engu lík-
ara, en hann væri að meta og virða alla hennar
kosti og vega þá á móti ókostunum. Höndin
var mjúk, og þegar hún tók í höndina á hon-
um, fann hún enn meira en áður til þess, hve
hennar vinnuhendur voru harðar.
Hann fullvissaði hana um, að sér þætti afar
vænt um að kynnast henni, og hann vonaði, að
hún skemti sér svo vel, að hún kæmi aftur og
kæmi oft. Hann fór ekki dult með það, þegar
ungar og fallegar stúlkur bættust í hópinn.
Ungu monnunum þætti æfinlega vænt um fall-
egar stúlkur. En stúlkur, sem ekki væru fall-
egar, væra sjaldan í miklu afhaldi hjá piltun-
um, nema því aðeins að þær væru þá sérstak-
lega greindar og skemtilegar.
“Já, og hún syngur vel líka,” sagði Guine-
vera. “Eg á skilið að fá verðlaun fyrir að
koma með hana. Eg hefi verið að ganga eftir
henni í alt sumar. Yið skulum koma, Ella. Ef
við verðum hér í alt kveld, hefir þú ekkert tæki-
færi að dansa. ” En um leið og þær fóra, sneri
hún sér aftur að Bender.
Heyrið þér, Bender, það er verið að selja
falleg silkipils í Longs fatabúðinni. Þér lofuð-
uð að gefa mér eitthvað fallegt, ef eg kæmi með
hana. ’ ’
“Eg hefi líklega gert það. Látið þér senda
það hingað, eg skal borga þegar það kemur.”
“Það er ágætt,” sagði Guinevere hlæjandi
og sendi honum koss á fingprgómunum. Svo
tók hún undir handlegginn á Ellen og leiddi
hana inn að borðinu, þar sem vinir hennar biðu
þeirra með mikilli óþreyju.
Þegar Guinevere var búin að gera vinstúlku
sína kunnuga þessum ungu mönnum, sem hún
gerði samkvæmt gömlum og góðum kurteisis-
reglum, settist hún niður og sagði, að þær væra
báðar að deyja úr þorsta. Það féll í hlut Coak-
leys að bæta úr því. Báðar stúlkumar báðu um
óáfenga svaladrykki, þó Guinevere væri nú að
vísu vön að drekka bjór. Alt þetta fólk sýndist
vera beztu vinir og samkomulagið hið ákjósan-
legasta. Gamanyrðin voru látin fjúka óspart,
en Ellen skildi ekki helminginn af þeim. Henni
fanst sjálfri, hún vera eins og úti á þekju. í
annað sinn óskaði hún þess með sjálfri sér, að
hún hefði ekki komið þarna. En svo byrjaði
hljóðfæraslátturinn aftur og þá gleymdi hún
öllu öðru. Þessi liljóðfærasveit var sú lang-
bezta, sem hún hafði nokkurn tíma heyrt. Henni
virtust piltarnir, sem með Coakley voru, gefa
sér litlar gætur fyrst í stað, svo hún hafði tæki-
færi til að virða þá töluvert vel fyrir sér, svona
án þess að eftir því væri tekið. Hún gat alls
ekki munað, hvað þeir hétu, nema einn eða tveir
þeirra. Hún kannaðist auðvitað við Artie
Coakley, því Guinevere hafði svo oft talað um
Iiann, og hún hafði lýst honum býsna rétt.
Ellen fanst strax, að sér mundi aldrei falla
hann eins vel eins og vinstúlku hennar. Jafnvel
þótt hún hefði heyrt um hann sagt, að hann væri
opinskár og hreinskilinn, þá fanst henni, að
maðurinn mundi veikgeðja og henni fanst eitt-
hvað gransamlegt í svip lians. Hún óskaði að
Hitchoock og hans félagar kæmu. Eftir þeirri
litlu kynningu að dæma, sem hún hafði af þeim,
fanst hehni meira til þeirra koma, lieldur en
þessara pilta, sem Gfiinevere hafði aðallega
kynst og vora hennar vinir.
Allir vora þeir samt vingjarnlegir, það
vantaði svo sem ekki. Þeir vildu endilega kalla
hana “Peach” og þóttust ekki geta munað hvað
hún héti. Þjónninn var beðinn að koma með
meira að drekka. 1 þetta sinn bað Guinevere
um bjór. Ellen vildi ekki meira, enda var liún
ekki hálf-búin úr sínu glasi. Coakley þóttist
endilega þurfa að tala eitthvað við Ellen, og
bað því þann, sem næstur henni sat, að hafa
sætaskifti við sig.
“Eg vil endilega, að þér dansið fyrsta dans-
inn við mig,” hvíslaði hann að Ellen. “Eg hefi
spurt Guinevere hvort eg mætti það ekki, og
hún segir að sér sé sama; eg dansa mest við
hana, eins og þér vitið kaimske. Viljið þér lofa
mér þessu? Eg verð að fá annan drykk fyrst,
annars gæti eg naumast staðið uppi.”
Ellen hélt, að hann væri nú þegar búinn að
fá meir en nóg. En hana langaði til að dansa
og hún kinkaði kolli og brosti.
Rétt í þessu kom Tom Hitchcook inn í salinn,
og hans félagar, og þeir gengu beint að borð-
inu, þar sem stúlkurnar sátu. Coakley var rét-t
að því kominn að standa upp og byrja dansinn,
þegar Hitchcock kom. Hann fór að gera þau
kunnug.
“Blessaður vertu, Artie,” sagði Tom, “þú
þarft ekkert að hafa fyrir því að kynna okkur,
við Irene þekkjumst vel. Eg veit nú reyndar, að
hún heitir ekki Irene, en hiin vill að eg kalli sig
það. Er það eþki rétt, Peach? Peach og eg
erum beztu vinir.”
“Einmitt það!” sagði Guinevere og kastaði
höfðinu dálítið aftur á við. Henni þótti þegar
nóg um þetta og hún hélt að þess yrði ekki langt
að bíða, að þetta dálæti gengi Ellen svo til höf-
uðsins, að hún færi bara að líta niður á ^ig.
“Auðvitað erum við gamlir vinir,” hélt
Hitchcock áfram, “og til að sýna ykkur það,
ætla eg að biðja hana að dansa næsta dans við
mig, og hún ætlar að gera það.”
“Hún ætlar ekki að gera það,” sagði Coak-
ley. “Hún var rétt að að lofa mér þessum
dansi.” *
“Það þýðir ekkert. Eg skrifaði henni fyrir
nærri viku og bað hana um þennan dans. Seg-
ið þér honum það, Peach.”
“Hann skrifaði mér,” sagði Ellen og roðn-
aði upp í hársrætur.
Hann var svo hreinlegur og hraustlegur og
svipfallegur, þessi piltur. Það gat ómögulega
verið, að honum byggi nokkuð misjafnt í huga.
Hann koul þarna bara til að njóta saklausrar
skemtunar. í samanburði við hann, sýndust
hinir piltamir, sérstaklega Coakley, eitthmð
lítilmótlegir, eitthvað ógeðslegt við þá. Hann,
sem hún hafði lengi látið sig dreyma um, var
eitthvað líkur þessum pilti, hélt hún. Hana lang-
aði til að dansa við hann.
“Hann bauð mér fvrst, það er satt,’ sagði
hún, og lézt ekki taka eftir því að Coakley mis-
líkaði, og þegar Hitchcock kom til hennar, stóð
hún upp og þau byrjuðu að dansa.
Hún gleymdi aldrei þessum fyrsta dansi hjá
Bender Ellen dansaði sjálf vel, en hún hafði
aldrei dansað við nokkum pilt, sem dansáði
eins vel eins og Hitchcock. Meðan þau voru að
dansa, hafði hann alt af nóg að segja, en þó
hann væri kátur, talaði hann einstaklega ku.rt-
eislega og 'prúðmannlega. Hann sagði ekkert
við hana, sem hann hefði ekki vel getað sagt
við hverja stúlku, sem stóð honum jafnfætis í
félagslífinu. Áður en hann leiddi hana til sæt-
is, hafði hún lofað honum, að fara út með hon-
um í bílnum hans kveldið eftir. Þau ætluðu að
fara eitthvað út úr bænum, bara tvo ein. Þau
ætluðu að hittast hjá listigarðinum. Seinna um
kveldið æluðu þau að fara til Benders og dansa
meira. Kveldið eftir gat hann verið úti þangað
til seint, en hann hafði lofað að koma snemma
heim í kveld. Það vom gestir heima hjá hon-
um. Auðvitað vildi hann miklu heldur vera
kyr og dansa við hana.
Hann fór strax eftir þennan eina dans og
afsakaði það við Guinevere, að hann gæti ekki
dansað við hana í þetta sinn. Báðar stúlkura-
ar dönsuðu hvern dans sem eftir var, en settust
altaf við sama borðið á milli, og altaf var nóg
að drekka. Ellen drakk ekki aimað en venju-
lega óáfenga drykki, en Guinevere drakk bjór
og einu sinni sá Ellen hana taka vænan teig. úr
glasi, sem stóð þar á borðinu, og hafði eitthvað
sterkara inni að halda, heldur en bjór. Ellen
tók eftir því, að þegar fór að líða á kveldið,
drakku næstum allir piltarnir sterka drykki.
Coakley bað hana ekki aftur að dansa við sig,
þangað til rétt áður en hætt var. Þegar hann
loksins gerði það, var hann orðinn svo drukk-
inn, að það var alt annað en skemtilegt að
dansa við hann. Þar að auki fór hann að jag-
ast við hana út af því, að hún hefði tekið Hitch-
cock fram yfir sig.
Á leiðinni heim var Guinevere í óvanalega
vondu skapi. Ellen reyndi að ímynda sér, að
það kæmi til af því, að hún væri þreytt. Sjálf
fann hún alls ekki til þreytu. Aldrei á æfi sinni
hafði hún skemt sér eins vel, eins og þetta
kveld. Og hún ætlaði að endurtaka það kveldið
eftir, og aka. þar að auki í bifreið með falleg-
um og skemtilegum manni.
IV. KAPITULI.
KAUPIÐ ÁVALT
LUMBER
hjá
THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD.
HKNRY AVE. EAST. - - WINNLPEG, MAN.
Yard Offioe: 6th Floor, Bank of HainUton Chambers.
þögn, jafnvel við borðið, þar sem Ellen sat.
En það varaði ekki nema augnablik, þá brut-
ust út fagnaðarlætin svo mikil, að Bender
liafði aldrei heyrt annað eins. Allir keptust um
að óska henni til hamingju og hæla henni fyrir
Vitanlega fór hún í danssalinn næsta kveld,
eftir að þau höfðu farið æði-langa leið í bíln-
um og haft mikla skemtun af. Slíka ferð hafði
hún stundum látið sig dreyma um, en aldrei fyr
farið. Faðir hennar hafði komið heim seinni
part dagsins, alveg yfirbugaður af hitanum.
Móðir hennar hafði verið svo önnum kafin að
sinna honum, að það liafði verið mesti hægðar-
leikur, að komast út.
Hitchcock hafði verið eins glaðlegur og
kurtéis og á allan liátt prúðmannlegur, eins og
kveldið áður. Hann hafði ekki sagt nokkurt ó-
kurteist orð. Eftir tvo eða þrjá daga ætlaði
hann burt úr bænum, sagði hann henni, og vera
burtu það sem eftir væri sumarsins. Og hann
sagði henni, eins og af tilviljun, að hann ætlaði
að sækj'á sama háskólann, eins og hann — pilt-
urinn, sem hún hafði svo oft hugsað um og
dáðst að. Skyldu þeir nokkurn tíma tala um
hana sín á milli, datt henni í hug.
Hann hafði sagt henni, að hún væri falleg-
asta stúlkan, sem hann þekti, og hann hafði
spurt hana, hvort hún mundi sakna sín, þegar
hann færi. Sakna hans! Jafnvel eftir þessa
psköp litlu viðkynningu fanst henni að hún
mundi finna til afar mikils tómleika, þegar hann
væri farinn. Hann var öðru vísi — öðru vísi
en t. d. Mat Staley! Ef hann hefði farið fram
á það, mundi hún hafa lofað honum því, að
koma aldrei í danssalinn, meðan hann yæri
í burtu.
Hún skemti sér jafnvel enn betur, en kveldið
áður. Var það bæði vegna þess, að nú var hún
ekki eins feimin, en séfstaklega vegna þess, að
allir voru svo góðir og vinsamlegir við hana,
en þó einkum Hitchcock. Guinevere var nú líka
eins og hún átti að sér. Þessi óánægja, sem
hafði gripið hana kveldið áður, sýndist nú með
öllu horfin. Ellen dansaði við alla, sem buðu
henni, — Artie Coakley var ekki einn af þeim
— en náttúrlega dansaði hún oftast við Tom.
Þau liöfðu einhvem veginn, án þess að tala
nokkuð um það, farið a ð kalla hvort annað
“Tom” og “Ellen”, og hafði Guinevere gaman
af að heyra það, þó hún léti ekki á því bera.
Guinevere hélt, að Ellen væri mesti vit-
leysingi, að taka þennan pilt svona ákveðið
fram yfir aðra, þar sem hann ætlaði burtu rétt
strax. En meðan hún lét Coakley afskiftalaus-
an, mátti hún hennar vegna gera hvað sem hún
vildi. Henni þótti vænt um það, að Hitchcock
liélt loforð sitt, og dansaði tvisvar við hana
þetta kveld.
Áður en hætt var að dansa, kom Bender inn
og heilsaði Guinevere mjög vingjarnlega og
sagði henni, að sér þtptti vænt um að sjá, að hún
hefði komið aftur. Hann var í bezta skapi og
veitti öllum það sem hver vildi drekka, en gretti
sig dálítið, þegar Ellen vildi ekkert.
Seii^t um kveldið fór hljóðfærasveitin að
leika lag við alkunnugt ljóð, sem þá var mikið
sung-ið, og margt af fólkinu fór að syngja. Þar
á meðal var stúlka, sem Guinevere féll sérstak-
lega illa við. Hún söng svona rétt í meðallagi,
en fólkið sýndist hafa góða skemtun af að hlusta
á hana. Þegar þessi stúlka hafði sungið fyrsta
erindið af kvæðinu, hugsaði Guinevere sér að
gera henni dálitla vanvirðu og láta hana og aðra
finna, að hún væri lítil söngkona. Hún sneri
sér að Ellen.
“Syngd þú næsta versið,” sagði hún. “Gerðu
það, og lofaðu þeim að heyra hvemig á að
syngja!”
“Það get eg ekki,” sagði Ellen. Hún hafði
aldrei sungið þar sem svona voru margir við-
staddir. 1 raun og veru langaði hana til að
syngja. Hún kunni lagið upp á sína tíu fingur
og þetta var einn af hennar uppáhaldssöngv-
um.
Tom hafði heyrt það, sem þær voru að
hvíslast á. Hann sat hinum megin við Ellen.
“Þú gerir það fýrir mig, það er eg viss um.
Hugsaðu um það, að þetta er eina tækifærið,
sem eg hefi til þess að heyra þig syngja í lang-
an tíma. Þú gerir það fyrir mig, Ellen, held-
urðu það ekki?” '
Ellen leit brosandi til hans. “Eg skal
reyna,” sagð hún blátt áfram, “ef þeir hætta
ekki, þegar þetta vers er búið.”
Tom stóð upp og fór þangað, sem hljóm-
sveitin sat. Hann talaði eitthvað við söngstjór-
ann, og fékk honum eitthvað af peningum. Svo
kom hann aftur og settist niður.
Ellen byrjaði að syngja. Fyrst var röddin
ekki eins hrein og sterk eins og æskilegt hefði
verið. Hún varð hrædd um, að þetta ætlaði að
mistakast. En hún setti1 sér, að taka á því
bezta, sem hún hafði til, bæði til þess að þókn-
ast Tom og líka til þess að fólkið fengi ekki
ranga hugmynd um sönghæfileika hennar. —
Rödd hennar náði líka fljótt styrkleika sínum
og hljómfegurð. Hún hafði mikla, mjúka og
hreina rödd og hún söng prýðisvel, þó röddin
væri vitanlega óæfð.
Þegar söngurinn hætti, varð alveg dauða-
songmn.
Allir, það er að segja, allir nema Tom. —
“Meira, meira!” heyrðist hrópað í hinum enda
salsins.
Ellen var mjög ánægð yfir því, hve öllum
geðjaðist vel að söng liennar, en henni þótti
undarlegt, að Tom sagði ekki neitt, en hrós frá
honum hefði henni þótt vænna um, heldur eri
frá öllum hinum. Hún leit því til hans með
hálfum huga, en brá meir en lítið við, þegar
hún sá að augu hans voru full af tárum.
“Þetta er óréttlátt,” sagði hann og hristi höf-
uðið, en tók um leið þétt um hendina á henni
undir borðinu, “að sama manneskjan skuli vera
svona falleg, eins og þú ert, og geta líka sung-
ið svona. vel. Það er of mikið handa einni
stúlku.”
í þessu kom Bender og það var töluverður
asi á honum. Hann var sjáanlega mjög á-
nægður yfir þessum feng, sem svo óvænt hafði
borist honum. En áður en liann kom til Ellen,
vék hann sér að Guinevere og hvíslaði að
helrni: “Þetta. sem eg lofaði yður, er í skrif-
stofunni. . Þér getið fengið annað, ef þér
þurfið. ’ ’
“Þér eruð ágætur,” hvíslaði Guinevere bak
við blævænginn. “Þakka yður kærlega, en eg
vildi lieldur fá silkisokka næst, ef yður er
sama.”
“Mér er sama, en þér megið ekki biðja um
meira, en eg get borgað fyrir.”
Hann sagt^i nokkur hlýleg orð við Ellen og
veitti svo öillum við borðið ókeypis drykk.
Hann lyfti brúnum, þegar Ellen vildi ekkert
nema vatn og bar því við, að hún mætti ekki
drekka neitt annað, ef liún ætti að geta sungið
meira.
Fólkið bað ákaft um meiri söng, og Tom
talaði aftur nokkur orð \úð söngstjórann, og
sagði honum fyrir, hvað gera skyldi. Ellen
söng tvisvar enn. Áheyrendurnir létu í ljós
mikinn fögnuð yfir söng hennar. Tom fylgdi
stúlkunum langt á leið heim til þeirra, en ekki
vildu þær að hann færi alla leið heim að húsun-
um.
Þegar Ellen fór hljóðlega inn í húsið, fann
hún til sárrar iðmnar. Hún hafði verið svo
glöð og ánægð, að hún hafði alveg gleymt föður
sínum. Henni þótti vænt um að sjá, að það var
ekkert ljós í húsinu og foreldrar hennar voru
bæði sofandi. Hún hafði endilega ætlað að
koma snemma heim og hjálpa móður sinni. Hún
friðaði sam\úzkuna með því, að telja sér trú
um, að faðir sinn væri víst ekki mikið veikur.
En morguninn eftir var hann svo veikur, að
það var ekki til þess hugsandi að hann færi í
vinnu. Þetta hafði aldrei komið fyrir áður,
síðan Ellen mundi eftir sér. Læknirinn kom
og sagði honum, að hann yrði að vera í rúminu
í viku; að minsta kosti mætti hann ekki fara
út. Og hann sagði móður hennar einslega, 'að
hjarta sjúklingsins væri ekki eins sterkt eins
og það ætti að vera, og Mrs. Neal varð dauð-
hrædd.
Ellen gat rett skotist út, meðan móðir henn-
ar var að færa sjúklingnum eitthvað að borða
um kveldið, til að segja Guinevere að hún gæti
ómögulega komið með henni það kveldið.
Guinevere skildi hana vitanlega þannig, að hún
væri fvllilega ráðin í því að fara með henni til
Benders á hverju kveldi, þegar hún gæti með
nokkru móti komið því við.
Hún saknaði skemtananna ósköp mikið
næstu viku. Jerry Neal leið ekki yel, og hann
undi því mjög illa, að verða að vera heima og
geta ekki unnið, eins og hann hafði alt af gert.
Hann svaf töluvert fram eftir á morgnana, en
eftir að hann vaknaði, var ómögulegt að fá
hann til að vera í rúminu. Hann fékst heldur
ekki til að fara snemma að hátta, nema því að-
eins, að Ellen vildi sitja hjá honum og lesa
dagblaðið fyrir hann. Hún hafði lengi lesið
blaðið fyrir sjálfa sig á hverju kveldi, en hafði
altaf hlaupið yfir allar stjómmálagreinamar
og flestar fréttir líka frá fjarlægum stöðum.
En hún komst fljótt að því, að slíkur lestur átti
ekki við föður hennar.
TIL SÖLU
Námsskeið við tvo fullkomnustu verzlunar-
skóla í Vestur-Canada, fást til kaups nú þegar
á skrifstofu Lögbergs, með miklurn afslætti.
Nú er hentugasti timinn til þess að byrja nám
vfð Business College. Þegar hart er í ári, kem-
ur það bezt í Ijós, hversu mentunin er mikils
virði. Þeir, sem vel eru að sér, eiga venjulega
forgangsrétt að atvinnu.
Lítið irm á skrifstofu Lögbergs sem allra
fyrst, eða skrifið eftir frekari upplýsingum.