Lögberg - 05.11.1931, Blaðsíða 1
PHONE: 86 311
Seven Lines
C°T'
íot
a uipíf.
U vA VV
For
Service
and Satisfaction
íf Q.
44. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 5. NÓVEMBER 1931
NUMER 45
Póstflugið um Island
milli Ameríku og Norðurálfu.
Það verður byrjað á því áður
en varir, með tólf flugvélum og
tuttugu flugmönnum. Hver flug-
maður á að hafa sinn áfanga á
leiðinni,—iSegir Morgunblaðið í
Rvík, 4. okt.
ÍPeter Freuchen, Grænlandsfar-
inn nafnkunni, hefir um langt
skeið verið rfáðunautur þeirra
Bandaríkjamanna, isem ætla að
gangast fyrir því að koma á reglu-
bundnum póstflugferðum milli
Ameríku og Norðurálfu, með við-
komu á Grænlandi og íslandi.
Hefir fréttaritari norska blaðsins
“Aftenposten” nýlega haft tal af
honum um þetta efni, og segist
honum svo frá:
—Það er ætlunin að póstflugið
byrji í Detroit í Bandaríkjunum,
og verði flogið þaðan um Roberts
House og Great River á Labrador,
þaðan til Wakham Bay á norður-
strönd Labradors, yfir Hudsons-
sundið og Cumberland-(sundið o!g
og svo til Grænlands- Fyrst var
gert ráð fyrir því, að hafa þar
viðkomustað í Holsteinsborg á
vestrurströndinni, en til þess fæst
ekki leyfi Dana. Það má ekki
koma nærri Eskimóunum, eins og
þér vitið. Staðurinn er auk þess
ekki hinn heppilegasti, því að hann
er umluktur háum fjöllum. Þess
Þess vegna hefir nú verið kosinn
annar staður, Nepiset, þar sem
Hans Egede bygði vígi, hið eina,
sem til hefir verið á Grænlandi.
Þaðan verður flogið til Straum-
fjarðar, þar sem prófessor Hobbs
hafðist við í fyrra, og þaðan þvert
yfir landið til An'gmagsalik. —
Skamt þaðan er vatn, sem hægt et
að lenda á. Þegar Cramer flaug
til Angmagsalik, settist hann á
sjóinn, vegna þess að þar var ís-
laust þá í bili.
Frá Angmagsalik á að fljúga
til íslands og annað hvort norðan
eða ^unnan við landið, eftir því
hvernig veður er. Næsti lending-
arstaður verður í Færeyjum, ef
þokan neyðir þá ekki flugmanninn
til þess að halda til Hjaltlands í
einum áfanga. Þaðan verður flog-
ið til Stafanlgurs í Noregi, og svo
til Kaupmannahafnar, sem verður
önnur endastöðin. Alls verða tólf
flugstöðvar á 1 eiðinni, þar sem
flugvélarnar halda til. Tekur
hver við af annari og annast
flugið áákveðna áfanga. — Með
þessu móti kemur í mesta lagi sex
tíma flug á hvern flugmann á
dag.
— Hvað er orðið um þá Preston
og Collingnon?
— Þeir hafa flogið heim til De-
troit aftur til þess að láta setja
skíði á flugvélina, vegna þess
hvað nú er áliðið. En þeir halda
áreiðanlefea áfram fluginu milli
heimsálfanna. Þeir fara sér að
engu óðslega, því að þeir eiga að
rannsaka öll flugskilyrði sem
bezt. Þeir, sem hafa lagt fram fé
til fyrirtækisins, hafa lagt mikla
áherzlu á það, að engin óhöpp
komi fyrir á reynslufluginu, og
þess vegna var það enn sárgræti-
legra vernig fór um Cramer.
Edwin L. Pre&ton er maður um
þrítugt, <ýg hefir í þrjú ár verið
flugmaðu hjá Trans-American
Air Lines Corporation. Á þessum
árum hefir hann flogið alls 4400
klukkustundir, þar af 1200 stund-
ir um nætur. Félagi hans, Robert
H. Collingnon er 33 ára gamall og
hann er bæði leikinn flugmaður
og loftskeytamaður.
— Hvernig eru annars horfurn-
ar með þetta?
— Þegar þess er gætt, að dag-
Ie!ga eru sendar 4% miljón bréfa
milli Ameríku og Norðurálfu, þá
er auðskilið hverja þýðingu þetta
póstflug hefir. En í hverri flug-
ferð, þarf að hafa 18 þús. bréfa
póst, svo að hún borgi sig. Það er
gert ráð fyrir því að flugið taki
alls 36 stundir. Næsta ár verður
alt efni sent til allra lendingar-
stöðvanna. Það verður byrjað með
tólf flugvélar og tuttugu flug-
menn.
E!g hefi góða trú á þessu fyrir-
tæki, og það kemst áreiðanlega í
framkvæmd. — Mgbl.
PAUL BARDAL
Samkvæmt áskorun frá Civic
Progress Association, leitar söngv-
arinn góðkunni, Mr. Paul Bardal,
kosningar til bæjarstjómar í 2.
kjördeild. Hér veitist Islending-
um í Winnipeg glæsilegt tækifæri
til þess að koma glæsilegum sam-
landa sínum í bæjarstjórn. Kosn-
irgar fara fram þann 27. þ.m.
Hærra verð á hveiti
Þó hveitið sé enn í litlu verði,
þá hefir verðið samt sem áður
hækkað töluvert nú í haust. Þykir'
það góðs viti og benda í þá átt að
betri tímar séu nú fyrir höndum,
en verið hafa tvö síðustu árin.
Hagstofan í Ottawa áætlar, að
verðhækkunin á hveiti frá 1. til
21. okt. þýði átta til tiu miljón
dala hagnað fyrir bændurna í
Vestur-Canada, en tuttugu og
fimm til þrjátíu miljón dala hagn-
að á því hveiti, sem til er í Can-
ada, eða var nú fyrir tveimur vik-
um. Síðan hefir hveitiverðið far-
ið smájtt og smátt hækkandi, svo
hagnaðurinn er nú töluvert meiri,
en hér er áætlað. Vitanlega Seldu
margir bændur, líklega flestir,
hveiti sitt í haust, meðan verðið
var mjög lágt, en sumir eiga það
óselt enn. Hvað sem verða kann,
munu nú flestir gera sér vonir
um, að hveitið verði hér eftir sclj-
anlegt og verðið ekki svo lágt, að
það !geti ekki einu sinni svarað
kostnaði að rækta það, eins og
verið hefir nú að undanförnu.
wmww'WWMmmmmwwMmmmwmwmmmmmm
Edison var auðugur maður
Samkvæmt erfðaskrá Thomas
Alva Edison, hefir hann eftirskil-
ið eignir, sem nema meir en
$14,000,000. Ganga þær allar til
fjölskyldu hans, að undanteknum
$28,000, sem hann gefur þremur
mönnum, sem allir hafa Iengi
með honum verið og unnið fyrir
hann. —
Samkomuhöll í Winnipeg
Winnipegbúar hafa lengi til þess
fundið, að hér skorti hæfilegt
samkomuhús, fyrir fjölmenna
fundi og annað þess konar. Nú
verður ráðin bót á því, og það
strax í vetur. Stendur nú til, að
byrjað verði á því, svo að segja
strax, að byggja þessa miklu
byggingu, isem á að kosta miljón
dollara fyrir utan lóðina og hús-
muni o!g annað því likt. Það legg-
ur bærinn til og þar að auki
$250,000 upp í byggingarkostnað-
inn. Manitobafylki leggur fram
aðra $250,000, en sambandsstjórn-
in $500,000. Byggingin verður
reist við Memorial Boulevard,
sunnan við Hudsons Bay búðina.
Þykir sá istaður vel valinn. Á bær-
inn nokkuð af lóðinni, en kaupir
sumt af John A. Forlong fyrir
$50,000. Sambandsstjórnin hefir
sett nokkur skilyrði fyrir því, að
hún legði fram helminginn af
byggingarkostnaðinum, og hefir
Manitobafylki og Winnipegbær
gengið að þeim, svo ekkert sýn-
ist nú því til fyrirstöðu, að byrj-
að verði á verkinu. Helztu skil-
yrðin eru þau, að vinnunni sé
skift milli þeirra, sem vinnulaus-
ir eru, þannig, að hver maður
vinni ekki nema þriðju hverja
viku, einnig að byrjað verði strax
á verkinu og því hagað þannig, að
hægt sé að halda áfram með það
í allan vetur, og á því að vera
lokið 1. maí 1932, eða þar um bil.
Vitanlega er þetta eitt af því,
sem gert er til að bæta úr at-
vinnuleysinu, og en&inn efi er á
því, að þarna fá margir menn
nokkra atvinnu í vetur, og er þetta
fyrirtæki að því leyti mikið gleði-
efni.
Kappreiðar og veðfé
|í sumar hefir fólkið í Canada
ekki veðjað alveg eins miklu fé á
veðreiðahestaana, eins og það
gerði í fyrra sumar, en samt þrjá-
tíu o!g þremur og hálfri miljón
dala, eða nálega það. Það er hér
um bil fimm miljónum minna
heldur en árið 1930. Veðreiða-
staðirnir voru 28 og veðreiðarnar
voru háðar í 326 daga, sem er hér
um bil eins og í fyrra. Veðreiða-
dagarnir voru þá 332. Langmestu
fé er veðjað í Ontario, eða um
tuttugu miljónum. En fólkið í
Manitoba hefir hefir líka haft
töluverð skildingaráð, þegar veð-
reiðarnar voru háðar, því til þeirra
hefir það varið meir en þrem
miljónum dala. Það er 13% minna
en í fyrra, en samt bendir þetta í
þá átt, að fólk hafi fyrst og
fremst töluverða peninga handa á
milli fram yfir það, sem þarf til
daglegra nauðsynja. Annars mundi
það líklega ekki le!ggja peninga
sína í jafn óvissan gróðaveg, eins
og veðreiðar.
Lœkkurinn
Þingkosningarnar á
Bretlandi
Þegar þetta er skrifað, eru
fréttir komnar af úrslitum kosn-
inganna í öllum kjördæmum nema
tveimur. Samvinnustjórnin hefir
unnið svo algerðan sigur, að ekki
eru dæmi til annars eins á Eng-
landi í heila öld eða lengur. Af
613 þingmönnum, sem kosnir eru
(þeir eru alls 615)v eru 552 stuðn-
ingsmenn stjórnarinnar, þar af
472 ihaldsmenn, 13 verkamanna-
flokknum tilheyrandi og 67 frjáls-
lynda flokknum. Andstæðingar
stjórnarinnar eru bára 55, þar af
fimm, sem fyl!gja Lloyd George, en
fimtíu verkamannaflokknum, með
Henderson að leiðtoga, þó hann
hafi að vísu ekki þingsæti sem
stendur. Sex þingmenn tilheyra
engum sérstökum flokk.
f SILFURBROÐKAUPI
MR. og MRS. JOHN GILLIES,
þann 23 .október 1931.
VINARKVEÐJA.
Virðulegu silfurbrúðhjón!
Maður er vanalega fátækastur
af orðum, þegar maður er ríkast-
ur af tilfinningum.
Þessi litli blómvöndur, sem við
systurnar gefum ykkur, er lítill;
en þakklætið, sem á bak við hann
er, dr miklu meira, fyrir alla ykk-
ar alúð og góðvild, frá fyrstu við-
kynningu til þessarar stundar.
Við óskum ykkur hjartanlega til
lufcku, að framtíð ykkar megi verða
unaðsrík o!g blómum stráð, og sól-
setrið milt og blítt.
Með hjartans þakklæti til minna
mörgu vina hér í borginni, fyrir
ástúðlegar viðtökur.
Virðingarfylzt,
Mrs. S. B. Gunnlaugson,
Baldur, Man.
TIL ATHUGUNAR.
Til athugunar og leiðbeningar
fyrir alla, er hafa haft og kynnu
að hafa bréfaskifti, bóka og blaða-
skifti við mig framvegis, gef eg
nú til kynna, að pósthús mitt er
ekki lengur Merid, Sask., heldur:
Wynyard, Sask. Þetta er nauðsyn-
legt að hafa hugfast fyrir þá, er
það varðar.
Með kærri kveðju til allra kunn-
ingjanna,
M. Ingimarson.
Þann 31. október síðastliðinn,
voru gefin saman í hjónaband
þau hr. Guðlaugur Jakobson, frá
Gimli, og ungfrú Hermína Magn-
ússon frá Hnausa, Man. Séra Björn
B, Jónsson, D.D., framkvæmdi
hjónavígsluna á heimili sínu, 774
Victor Street. Framtíðartheimili
ungu hjónanna verður að Gimli.
GÖÐAR GLÆÐUR.
Tileinkað Guðmundi Bjamason og
Halldóru, í silfurbrúðkaupi þeirra,
20. okt. 1931.
Helga ást ef hugir teyga,
himinradda klið það bærir;
samstilt gildi guðaveiga
gervalt lífið endurnærir.
Æskan sér þá enga skugfea,
alt er skrýddur blóma salur,
i ljósmóðunni lindir rugga,
Lífið sjálft er mey og halur.
Leggur yl frá sólar sölum,
sameind ástar hjörtun kenna;
leikur æskan létt á bölum,
lætur hvergi undan renna.
En um nónbil inn þó læðist
alvaran, af reynslu þrungin,
í hverju spori kjarkur fæðist,
kvæðin verða betur sun'gin
Þá starfar hvergi hugur hálfur,
hamingjan er með í verki;
að geta skilið skyldur sjálfur
skjaldar er það göfugt merki.
Aldar fjórðungs ótal kvöðum
allir skyldu glaðir sinna,
lífs í heild á ljósastöðum
lifa í gleði — saman vinna.
Sitjið heil, við goða glæður,
gegn um aldarfjórðung næsta,
í fullri sátt við systur, bræður,
sigra mun þá vonin hæsta.
Skugga hnoðrum ský ef þeytir,
skín í heiði sólin aftur,
í sálar auð og yndi breytir
alt sem skapar lifsins kraftur.
Yndo.
Leika börn við læki,
— ljómar gullin skör.
Sólskin og sunnanvindar,
svanir í heiða-för.
Lækurinn veit og lækurinn skilur,
því lækurinn streymdi æ.
— Lækurinn þekkir allra alda
æsku á sínum bæ.
Lækurinn sér að brjóstin bylgjast
—r að blessað vorið er ákaft og heitt.
— Lækurinn veit og lækurinn skilur
og lækurinn segir ekki neitt.
Lækurinn veit og lækurinn seiðir,
og lækurinn þekkir hinn falda eld.,
— því lækurinn hlustaði á elskandi eiða
aldanna liðnu sumarkveld.
»
Lækurinn veit og l^ekurinn skilur
og lækurinn man þá alla stund,
er árla morguns of aftan síðla
um aldaraðir sóttu hans fund.
Lækurinn fagnaði leikandi börnum
og lækurinn döggvaði móðun-ör
og lækurinn svalaði líðandi manni
og lækurinn þó hann — við síðustu för.
Lækurinn veit, hann er lífið á bænum,
og lækurinn kyssir hinn þyrsta munn
og lækurinn hoppar og lækurinn freyðir
og lækurinn fellur í bláa unn.
Frá Islandi
Vestan af strönd
Stefán frá Hvítadcd.
—Perlur.
Or bænum
Skemtisamkoma, undir umsjón
trúboðsfélagsins og einnar deild-
ar kvenfélagsins, verður haldin í
samkomusal Fyrstu lút. kirkju á
þriðjudagskveldið, hinn 24. þ.m.,
kl. 8. Gamall og góður íslenzkur
söngur og hljóðfærasláttur og
igóðar veitingar. Lítið eftir skemti-
skránni í næsta blaði.
Séra Haraldur iSigmar messar
næsta sunnudag í kirkju Vídalíns-
safnaðar kl. 11 f.h., o!g á Mountain
kl. 2 e. h.
Dorcasfélag Fyrsta lút. safnað-
ar, hefir um undanfarið langt
skeið, verið að æfa sjónleik, er
nefnist “Contents Unknown”, og
verður hann sýndur í Goodtempl-
arahúsinu á Sargent Ave.\, á
mánudags og þriðjudagskveld, þ.
9. og 10. þ. m. — Vandað hefir ver-
iö mjög til undirbúningsins að
leiknum, og þarf því ekki að efa,
að hann takist vel. öllum ágóða
af leiknum, verður varið til líkn-
arstarfs meðal íslendin'ga hér 1
borginni. 'Fyllið húsið bæði
kvöldin.
arskóla og organisti safnaðarins,
og féhirðir Mr. Finnur Bjama-
son, — alt valið fólk, sögðu þeir,
sem kunnugir eru. Hyggja menn
gott til þessa félagsskapar unga
fólksins, að hann geti gengist fyr-
ir ýmsu góðu og nytsömu þar á
eynni. Meðal annars talað um,
að hafa við og við guðræknissam-
komur í kirkjunni, með húslestr-
ar fyrirkomulagi, eða á annan hátt,
þar sem reglulegar eða venjuleg-
ar messur eru svo strjálar. Er ó-
útreiknanlegt hversu miklu slíkur
félagsskapur fær til vegar komið
í mentandi og bætandi átt, ef vel
er á haldið. — Almennur áhugi
virtist vera á bak við þessa í(é-
lagsmyndun, og Mikley á margt af
góðu fólki, er á ýmsa lund getur
stutt starfsemi þessa álitlega og
þarfa félagsskapar á komandi
tímum. — (Fréttarit. Lögb.)|.
JÖRÐ
Séra Jóhann Bjarnason messar
væntanlega á þessum stöðum í
Gimli prestakalli, næsta sunnu-
dag, þ. 8. nóv., og á þeim tíma
dags er hér segir: 1 gamalmenna-
heimilinu Betel, kl. 9.30 f.h. í
kirkju Víðinessafnaðar kl. 2 e. h.,
og í kirkju Gimlisafnaðar kl. 7 að
kvöldi. Mælst er til, að fólk fjöl-
menni við messurnar.
Þann 27. okt. s.l. urðu þau hjón-
in, Eiríkur Halldórsson og kona
hans Sigrún, í Dauphin, fyrir
þeirri sorg að missa litla stúlku á
þriðja ári. Hún var hið efnileg-
asta barn. Bar dauða hennar að
óvænt og var hinn mesti sorgar-
atburður foreldrunum og öðrum,
sem kunnugir voru.
Almenit. guðsþjónusta verður
haldin, sunnudaginn 8. nóvember,
kl.'2 e. h., á Oak Point. Ræðumað-
ur er P. Johnson. Fólk er vinsam-
legast beðið að fjölmenna. Allir
velkomnir.
heitir nýtt tímarit með myndum,
sem séra Björn O. Björnsson er
farinn að gefa út . í ávarpi fyr-
ir fyrsta heftinu segir >svo: “Jörð
er stofnuð vegna trúar á fagnað-
arerindið um nálægð himnaríkis
framtíð jarðarinnar — og
ve'gna trúar á það, að íslenzku
þjóðinni sé ætlað að vera meðal
“friðflytjendanna”, nálægt farar-
broddi. — Jörð er stofnuð í trú' á
það, að í Jesú Kristi sé fylling
alls lífs að finna, frelsið, frjó-
semd allra gæða, lausn á öllum
hinum margþættu og djúpsettu
vandamálum nútímans. — Jörð er
stofnuð í trú á, að einlæg beiting
í hvívetna á meginreglum fagnað-
arerindisins, sé hinn eini, beini
vegur til giftusamlegrar úrlausn-
ar á hverju viðfangsefni, hvort
heldur er manna eða mannfé-
laga”. Af þessu geta menn mark-
að stefnu ritsinis, en annars ætl-
að það að ræða um uppeldismál,
skólamál, líkamsrækt, útilíf, heim-
ili, ástir, þjóðerni, þjóðlíf, nýja
tímann og trúmál (í þrengri merk-
ingu þess orðs). Þetta fyrsta hefti
er 88 síður í stóru 8 blaða broti.
- Mgbl.
Reykjavík, 2. okt.
Prófessor A. Jolivet hélt ann-
an fyrirlestur sinn í Alliance Fran-
caise síðastliðinn föstudag, um
skáldið Emile Zola. “Verk listar-
innar er þáttur úr náttúrunni, sem
eru iséð gegn um skapferli hvers
eins”. Fyrirlesarinn dvaldist við
hugarfar Zola og þann kafla úr
náttúrunni, sem Zola lýsti sér-
staklega í verkum sínum. Eftir
þessum tveim hugsjónum lýsti
hann aðaleiginleikum skáldskap-
ar Zola. Undirstaka hugarfars
Zola var kraftur. Alt líf hans var
barátta gegn mótstöðumönnum
hans í andlegum efnum og, síðari
hluta æfi hans, gegn stjórnmála-
andstæðingum. í þessari baráttu
virðist hann ávalt hafa verið inn-
blásinn miklum áhuga og bjartri
von um framtíð. Yrkisefni sitt
valdi hann úr hinum ýmsu stéttum
þjóðfélagsins. — Hann athugaði
þær mjög nákvæmlega hið ytra, en
honum yfirsást innri maður þeirra.
í staðinn fyrir sálrænar athugan-
ir, kemur hann með villandi kenn-
ingar um erfðalögmálið. Niður-
staðan af því verður, að aðalinni-
hald rita Zola eru lýsin’gar af
heiminum hið ytra, eins og hann
kemur fyrir sjónir hverjum ein-
stökum. En skap hans var svo
öflugt, að þessar lýsingar sam-
svöruðu ekki veruleikanum. —
Þær voru öfgafullar, séðar með
augum örgeðja ljóðskálds. En
aftur á móti tókst Zola vel upp
með Jýsingar á fjöldanum á
hraðri hreyfingu, t. d. verkföllum,
byltingum eða stríði. — Fyrirles-
aranum sagðist pr ðilega, og lýsti
sér glögt hinn skarpi skilningur
hans á andanum í verkum Zola.
Þriðja fyrirlestur sinn
prófessor Jolivet s.l. miðvikudag.
Fyrirlesarinn byrjaði á því, að
gefa yfirlit nútímaleikrita Frakka.
Nefndi -ýmsar lýsingar af lífi
ríkra manna og iðjuleysingja, og
af ýmissum istéttum þjóðfélags-
ins. Hann benti sérstaklega á
leikrit, er fært hafa nýja strauma
inn í bókmentir nútímans, t. d.
leikrit Lenormand, sem hefir not-
fært sér hugsjónir Freuds. Hann
talaði því næst um Jules Romains
og sýndi fram á áhrif hans á hið
andlega líf nú á dögum. Hann
gaf skýringar á leikriti J. R., sem
heitir “Knock ou la tromphe de la
médecine”, er fjallar um læknir,
sem vill láta alla íbúa sveitarinn-
ar leggjast í rúmið. Hann sýndi
hvernig leikrit þetta var skemti-
lega skrifað og í anda Moliéres.
Síðan á tímum Moliéres hefir það
verið venja, að “satyrisera” lækna,
náttúrlega án allrar beizkju, en
aðeins til iskemtunar.
í dag, föstudag, heldur próf.
Jolivet fyrirlestur um “Le Parle-
ment et les partis hpolitiques en
France”. Verður þettk síðasti
fyrirlestur prófessorsins, fyrir
Alliance francaise, en í okt. mun
hann halda fjóra fyrirlestra við
Háskóla íslands. Sömuleiðis halda
kensluæfingar hans áfram fram
yfir miðjan okt. á sama stað og
tíma. Fyrirlestrarnir 'voru prýði-
lega sóttir, hvert sæti skipað í
salnum. — Mgbl.
Ungmennafélag í Mikley.
Eftir messu, er séra Jóhann
Bjarnason hafði í kirkju Mikleyj-
arsafnaðar, þ. 25. okt. is.l., var
stofnað þar ungmennafélag, með
rúmlega þrjátíu manns. Formað-
ur var kosinn Mr. Sigurður Sig-
urðsson, skrifari Miss Emma Sig-
urgeirason, kennari við Mikleyj-
FRA ÍSLANDI.
Árið 1925 voru fluttar inn 428
akilvindur, 556 árið 1926, 380 ár
ið 1927, 620 árið 1928, en 651 árið
1929, og er það meiri innflutning-
ur en nokkru sinni áður. Hæstur
hefir þessi innflutningur áður orð-
ið 630 skilvindur árið 1916.
Mgbl.
Comox, B.C., 27. okt. 1931.
Mr. Einar P. Jónson,
Ritstjóri Lögbergs,
Kæri herra,—
Viltu gera svo vel, að taka eft-
irfarandi minningarorð í blaðið?
Þann 16. okt. síðastl., andaðist
á sjúkrahúsinu í Comox, British
Columbia, ólöf Dórótea Guð-
mundsdóttir, kona Páls Guðmunds-
sonar frá Firði í Seyðisfirði, Norð-
ur-Múlasýslu á íslandi. Hún var
fædd á Lindarseli í Jökuldals-
heiði í Norður-Múlasýslu 3. ágúst
1862. Faðir hennar var Guðmund-
ui Hallgrimsson, norðlenzkur að
ætt, en móðirin var Lovísa Ker-
úlf, systir Andrésar Kerúlfs á
Melum í Fljótsdal í NorðurlMúla-
sýslu; þau voru því systkina börn,
hún og Þorvarður læknir Kerúlf á
Ormastöðum í Fellum. sem var
einn af þeim mætustu mönnum,
sem Austurland átti á meðan hans
naut við, en hann dó á bezta aldri.
Hún misti móður sina þegar hún
var á fyrsta ári; þá tók móður-
amma hennar hana að sér, og hjá
henni var hún í 9 ár; þá dó amma
hennar. Eftir það var hún hjá
móðurfólki sínu í Fljótsdalnum
til fullorðinsára. Þaðan fór hún
ofan á Seyðisfjörð, og þar giftist
hún eftirlifandi manni sínum.
Vestur um haf fluttu þau hjón
1888 og lentu í Winnipeg, Mani-
toba; þar voru þau um 20 ár; það-
an fluttu þau til Saskatchewao-
fylkis; þar voru þau í 13 ár; það-
an fluttu þau sig til San Diego í
Californíu, og svo hingað norður
fyrir liðlega tveimur árum. —
Þau eignuðust fimm börn; tvö dóu
í æsku, en þrír drengir lifa, allir
fulltíða menn og giftir: Guð-
mundur, bóndi í Saskatchewan-
fylki, giftur íslenzkrúkonu og á
sex börn; Björgvin Kjerúlf, gift-
hélt I ur íslenzkri konu og á fimm börn;
Humphrey Leonard, giftur enskri
konu, og á tvö börn; þessir tveir
búa í San Diego, Calif.
Þau Dórótea' og Páll. voru búin
að lifa saman í farsælu hjónabandi
í 46% ár. Það kemur ákaflega hart
niður á eiginmanni hennar miss-
irinn nú, því hann var búinn að
vera veikur í fimm mánnuði og
var nýkominn heim undan upp-
skurði og var ekki búinn að ná
sér þegar hún lagðist; en hann
bar sig eins og hetja, og stundaði
hana mest sjálfur í legunni, sem
varaði í fimm vikur. Það var reynt
að hjálpa henni alt sem hægt var,
en ekkert dugði; hún dó úr inn-
vortis krabba.
Dórótea var myndarle!g og góð
kona og góð móðir, sem öllum
vildi gott gera, og bjargföst trú-
kona Hún sagði mér, skömmu áð-
ur en hún dó, að hún væri tilbúin
að fara yfir um. — Hún var graf-
in þann 19. sama mánaðar í Comox
grafreitnum; enskur prestur
stýrði athöfninni, sem var lát-
lams, en fögur. Og þar kveðjum
við þig, kæra vina, og sendum þér
hinztu kveðju yfir á landið ó-
kunna.
K. Eiríksson.
P.S.—Austfirzku blöðin eru vin-
samlegast beðin að taka þessa
dánarfre!gn. — K.E.
Tuttugu og fimm ára starfsemi
un!gmennafélagsskaparins í Rv.ík
var hátíðlega minst með samsæti
að Hótel Borg í gærkvöldi, og sátu
það á annað hundrað manns. For-
maður U. M. F. Velvakandi, Guð-
björn Guðmundsson, bau gesti vel-
komna og mælti fyrir minni istofn-
enda U. M. F. Reykjavíkur, sem
voru heiðursgestir þarna. Guð-
brandur Magnússon forstjóri
mintist U. M. F. Reykjavíkur, en
frú Ragnhildur Pétursdóttir U. M.
F. Iðunnar. Auk þessara töluðu
ráðherrarnir Tryggvi Þórhallsson
og Ás'geir Ásgeirsson, Ársæll
Árnason, Þorkell Clemenz, Sigur-
jón Pétursson og Jón Sivertsen, en
af konum frú Sigurbjörg Ásbjarn-
ardóttir og Svanfríður Hjartar-
dóttir. Nokkur heillaskeyti bár-
ust frá fjarverandi stofnendum
1. S. í. Eftir að staðið var upp frá
borðum, voru sýndar nokkrar
skuggamyndir frá starfi félag-
anna á fyrri árum og síðan stig
inn dans af miklu fjöri til kl. 3.
Fór samkoma þessi hið bezta fram
og öllum til mikillar ánægju.
Robin Hood tilkynnir
ný verðlaun frá Wedgwood, Co.
Það hlýtur að vekja bæði undr-
un og aðdáun, hjá kvenþjóðinni,
hve fullkomin þessi nýju “China-
ware” verðlaun eru, sem pakki af
Rapid Oats hefir að geyma.
Engin einasta manneskja mundi
fyrir skemstu hafa látið sér það
til hugar koma, að pakki af press-
uðum höfrum hefði til brunns að
bera slík auka verðmæti.
Þið sjáið nú varvetna í búðun-
um hina nýju pakka, auðkenda
með “Red Spot” miðum. Vörugæð-
in í þessum pökkum eru hin sömu
og áður, en verðlaunin eru nú
margfalt fullkomnari. Þarna er
um að ræða bolla, undirbolla,
diska og skálar af fegurstu gerð.
Hver munur ber á sér vörumerki
hinnar frægu borðbúnaðarverk-
smiðju, Wedgwood and Co. Þess-
ir nýju o!g skrautlegu munir auka
mjög á yndi og ánægju við borð-
haldið, og auðga heimilisfegurð-
ina.
Sérhver kona, er kaupir einn
eða fleiri af þessum nýju Robin
Hood Rapid Oats pökkum, með
hinum nýju ‘^Chinaware” verð-
launum, á r'eglullegt undrunar-
efni í vændum; henni hlýtur að
bregða i brún, er hún lítur með
eigin augum þessa vönduðu og
fögru verðlaunamuni.