Lögberg - 10.03.1932, Blaðsíða 8
Bls. 8.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 10. MARZ 1932.
RobinllHood
FLÖUR
Af brauði úr þessu mjöli, er
ekkert skiiið eftir á borðinu
'Heklu” fundur í kvöld.
Mr. og Mr. Th. Indriðason frá
Kandahar, Sask., voru stödd í
borgfnni í síðustu viku.
Mrs. F. S. Frederickson frá
Glenbora, Man., kom til, borgar-
innar í vikunni sem leið.
Séra Haraldur Sigmar gjörir
ráð fyrir að messa á Mountain
sunnudginn 13. marz, kl. 2 e. h.
Mr. Helgi Vigfúsáon frá Tan-
tallon, Sask., kom til borðarinnar
í vikunni sem leið með nautlgripi
og svín, sem hann seldi hér.
Við geinina “Höfundur Robin-
son’s Crusbes” í síðasta blaði láð-
ist að geta þess, að hún er tekin
úr Iðunni.
Sunnudaginn, hinn 28. febrúar
s.l., lézt að heimili sínu að Gimli,
Einar Sveinsson gullsmiður, 77 ára
að aldr. Hann lætur eftir sig þrjá
sonu og þrjár dætur. Einar heit-
inn var ættaður úr Árnessýslu á
íslandi. Jaðarförin fór fram síð-
astliðinn laugardag. Séra Ragnar
E. Kvaran jarðsöng.
Séra Jóhann Bjarnason messar
væntanlega á þessum stöðum í
Gimli prestakalli næsta sunnudag,
þ. 13. marz, og á þeim tíma dags e^
hér segir: í gamalmennaheimilinu
Betel kl. 9.30 f. h., og í kirkju
Gimlisafnaðar kl. 7 að kvöldi.
Fólk er beðið að fjölmenna.
Þar sem sagt er frá kosningu
embættismanna íþróttafélagsins
“Fálkarnir”, gleymdist því miður
að geta þess, að W. J. Lindal K.C.,
er heiðursforseti félagsins.
Hannyrðafélagið heldur næsta
fund sinn að heimili Mrs. Gísli
Johnson, 906 Banning Str., á
fimtudaginn, hinn 10. þ.m. Áríð-
andi að meðlimir komi stundvís-
lega.
Breyta til.—Stúkurnar Hekla og
Skuld hafa ákveðið að breyta
fundarkvöldum sínum þannig, að
hér eftir hafa þær fundi sína á
fimtudagskvöldum, og skiftast á
um kvöldin og byrja nú í þessari
viku; hefir Hekla fund 10. marz
og Skuld hefir sinn fund 17. marz,
og áfram þanig á víxl. Þessi breyt-
ing stafar mikinn part af því, að
G. T. húsið hefir verið leigt út svo
mikið í seinni tíð; svo urðu stúk-
urnar einnig að hliðra til og láta
stúkuna “Liberty” hafa kvöld í
hverri viku fyrir sín fundahöld.
Til páskanna
Vorblóm, Daffodils, Tulips o. fl.
Rósir og Carnations.
PáskaMjur
Útfararblóm og blómvendir.
Sargent Florists
678 SABGENT AVE.
(Við Victor)
Sími 35 676
MOORE’S TAX! LTD.
28 333
Leigið bíla og keyriö sjálfir.
Flytjum pianos, húsgögn, farang-
ur og böggla.
Drögum biia og geymum. Allar
aðgerðir og ðkeypis hemilprófun.
Séra Haraldur Sigmar, sem hef-
ir verið hér í bor;ginni mánaðar-
tíma sér til lækninga, er. nú um
það bil að leggja af stað heim til
sín. Þær góðu fréttir getur Lög-
berg flutt lesendum sínum, að
séra Haraldur hefir fengið mikla
heilsubót og er nú aftur fær um
að gelgna sinu umfangsmikla em-
bætti.
Þriðjudaginn 23. febr. s.l. and-
aðist Miss Anna Johnson, 55 ára
að aldri; á heimili sínu, um tvær
mílur suður af Mountain, N. Dak.
Foreldrar hennar voru Kristján
Johnson og Sesselja Sigurðardótt-
ir, úr Þingeyjarsýslu. Bjuggu þau
hjón lengi myndarbúi þar suður af
Mountain, en eru nú bæði fyrir
æði löngu látin. Hafa börn þeirra
þrjú, Jón, Sigurður og Anna, á-
valt síðan starfrækt bújörð þeirra
og búið þar áfram góðu búL Anna
sál. var ekki heilsusterk, en þó
bar dauða hennar ærið sviplega
að, því hún virtist vera við frem-
ur góða heilsu fram að þeim degi,
er dauða hennar bar að. Anna
sál var ágæt manneskja o'g mjög
vel metin, engu þó meir við-
brugðið í fari hennar en góð-
gjörðasemi og gjafmildi. Syrgir
hana auk ástvina fjolmennur hóp-
ur góðra vina. Og verður minn-
ing hennar áreiðanle'ga geymd í
þakklátum j hjörtum. Hún var
jarðsungin frá heimilinu og Ey-
fordkirkju föstudaginn 26. febr.,
af séra N. S. Thorlaksson í fjar-
veru sóknarprestsins, og var hún
lögð til hvíldar við hlið foreldra
sinna í Eyford grafreitnum. Mik-
ið fjölmenni fylgdi henni til graf-
ar.
Athygli er hér m«ð vakin á aug-
lýsingu á öðrum stað í blaðinu
um hljómleik, sem haldinn verður,
undir stjórn Mr. Stefáns Sölva-
sonar, í Fyrstu lútersku kirkju á
mánudagskveldið í næstu viku.
Það þarf naumast að taka það
fram, að hér er um ágæta skemtun
að ræða. Ágóðinn gengur til
Fyrsta lút. safnaðar.
GJAFIR TIL BETEL.
Stefán Ólafsson, Lundar .... $5.00
Kvenfél. Björk, Lundar, í minn-
ingu um húsfrú Guðríði Thor-
steinsson, eina af félagskon-
um....................... 5.00
Afmælisgjöf til Betel til minn-
ingar um Mrs. Nönnu Benson,
frá kunningjakonu hennar 3.00
Inilega þakkað,
J. Jóhannesson, féh.
675 McDermot Ave., Wpg.
Þessi börn voru sett í embætti
við síðustu ársfjórðungamót af
gæzlukonum ungtemplara, í barna-
stúkunni Æskan, nr. 4, I.O.G.T.:
F.Æ.T.: Fríða Gíslason.
Æ. T.: Guðrún Stephensen.
V. T.: Lára Bjarnason.
Kap.: Sigga Gíslason.
Rit.: Alda Sædal.
A. R.: Bína Anderson.
F. R.: Emil Gillis.
G. : Halldór Thorsteinsson.
D.: Matthildur Bjarnason.
A.D.: Jórunn Mýrdal.
V.: Lilja Goodman.
Ú. V. Unnur Sædal.
Gæzlukonur: Mrs. Benedictson,
Mrs. Jósepson.
MCfURDY CUPPLY fO. lfJI VsBuilders’ KJ Supplies v^and WEST END BRANCH 679 SARGENT AVENUE Phone Z4 600 Ff. TjlMMER, ÓMgr,- I TD. L Coal -Ties. 29 035
Dominion Coal • . • Per Ton $5.00
Western Gem • 11.50
Midland Lump • 11.50
Foothills Lump • 13.50
Koppers Coke • • • 14-50
Fords and Solway • 15.50
yln Honest TTon for jJn Honest Price
CORDWOOD and SLABS ALL No. ONE
Sigríður Stefánsson
Hún var dóttir Sigurgeirs Stef-
ánssonar, bónda í Akrabygð, N.-
Dak., og konu hans Sigurrósar Elí-
asdóttur. Hann er bróðir Skúla,
bónda þar í nágrenninu. Stefán
heit. Oliver, er um eitt skeið var
í Selkirk, var annar bróðir hans.
Faðir þeirra var Stefán Jónsson
frá Miðvöllum í Skagafirði, en
móðir þeirra var Guðrún Ólafs-
dóttir frá Rauðalæk í Eyjafirði.
Komu þau hjón til Ameríku árið
1882 og numu land í Akrabygð.
nálægt þar sem Sigurgeir og Skúli
búa.
Sigurgeir og Sigurrós hafa átt
sjö börn. Af þeim eru fimm á lífi:
Elías, kvæntur, býr í Hensel og
ekur pósti þaðan til bænda; Ei-
ríkur, við vinnu í Detroit, Mich.;
Halldór, kennari; Skúli, sem hef-
ir bílstofu í Hensel, og Kristín,
námsmey við ríkis háskólann í
Grand Forks.
Sigríður heitin var á 31. ári, er
hún dó, þ. 10. f.m. Fyrir sex ár-
um bilaðj heilsan. Hún tók lungna-
tæring. Leitaði heilsubótar á hæli
í St. Boniface, Man. Virtist fá þar
nokkurn bata, en var undir lækn-
ishendi upp frá því. Hún fékk
blóðspýting síðastl. sumar. Ágerð-
ist veikin eftir það, unz hún
kvaddi.
Hún var ástrík dóttir og systir
og fyrirmynd í allri framkomu
unga fólksins í bygðinni. Hún
vildi ekki að eins alt gera fyrir
sína, sem henni var unt, heldur
einnig fyrir aðra; enda var lífs-
stefna hennar að hugsa meir um
aðra en sjálfa sig. Hafði hún gert
að sinni eign orðin þessi: Sæla
mannsins hér er ekkí fólgin í því,
að hugsa mest um sjálfan sig,
heldur um aðra. Frelsari vor, sem
gaf sig út fyrir oss mennina,
hafði snortið hjarta hennar með
fórnarkærleika sínum og mótað
hana. Hún var með góða náms-
hæfileika, en vegna fátæktar varð
hún, eins og svo margir, að fara á
mis við aðra en barnaskólament-
un. Henni var ant um, að yngri
systkinin gætu notið meiri ment-
unar.
Hún bjóst við dauða sínum og
vissi hvert hún var að fara. Hún
huggaði og hughreysti foreldra
sína og systkini. Sakna þau henn-
ar sárt og bygðin öll, er sýndi það
svo greinilega með fjölmenninu
við útförina. Hún var greftruð í
grafreit Vídalínssafnaðar. Jarð-
arförin fór fram frá heimili for-
eldranna og frá kirkjunni. — 1
fjarveru sóknarprestsins, séra
Haraldar Sigmar, sem veikur var
í Winnipeg, var séra N. S. Thor-
laksson fenginn til þess að hafa
útfarar-þjónustuna, sunnudaginn
þ. 14. f. m.
Guð blessi minning Sigríðar
heitinnar.
Á miðvikudagskveldið og fimtu-
dagskveldið í þessari viku fer
fram hockeysamkepni milli skauta-
manna frá Lundar, Glenboro, Sel-
kirk og Fálkanna í Winnipeg.
Leikið verður um verðlaunabikar,
sem Þjóðræknisfélagið hefir gef-
ið í því skyni. Samkepnin fer fram
seinni hluta fyrnefndra kvelda í
Olympic skautahringnum hér í
borginni. Margir íslendingar taka
þátt í þessum leik og sjálfsagt
hefðu margir landar gaman af að
sjá hann. Inngangur kostar ekk-
ert.
Á mivikudagskvöldið 2. marz
léku Selkirk á móti Gimli og var
sá leikur leikinn í Selkirk, og unnu
Selkirkmenn þar með 4 á móti 2,
svo þar af leiðandi eru Gimlibúar
úr þessari samÉepni; en það er ó-
hætt að segja, oð þeir gerðu, vel
með að halda Selkirk frá að skjóta
oftar í höfn þeirra, og er ekki
víst, að Selkirk hefði unnið þá, ef
þeir hefðu leikið á Gimli, og sýndu
þeir óhlutdrægni með því að sækja
Selkirk heim, og eiga heiður skil-
ið fyrir það, hvernig þeir komu
fram. P. S.
— Þú heimsækir ekkjuna á
hverju kvöldi — því giftist þú
henni eldci?
— Eg hefi stundum verið að
hugsa um það, en hvar ætti eg þá
að vera á kvöldin?
Frá Fálkum
Á mðvikudaginn þann 9. marz
byrja kappleikarnir um bikarinn,
sem Þjóðræknisfélagið gaf til ár-
legrar samkepni fyrir hockeyfélög
á milli íslendinga. Þeir, sem nú
keppa um hann, eru Fálkar, Sel-
kirk, Glenboro og Lundar, og verða
tveir leikir leiknir á miðvikudags-
kvöldð á Olympic skautahringnum
og byrjar fyrri leikurinn klukkan
10 að kveldinu þann 9. marz, og
eru landar beðnir um að koma og
sýna þar með, að þeir séu hlyntir
drengjunum. Það mega allir vera
vissir um að sjá þar fríðan flokk
af ungum hockey leikendum, sem
munu hvergi liggja á liði sínu,
því allir vilja vinna þennan fall-
ega bikar, og höfum við teflt fram
því bezta liði, sem við höfum, og
vonumst eftir að halda bikarnum
hér kyrrurn. Við gerum okkar
bezta, en hinir hafa hrausta
drengi líka, svo það má búast við
harðri sókn á báðar hliðar. Þeir
sem vinna á miðvikudagskvöldið,
leika úrslitaleikinn á fmtdúags-
kvöldið klukkan 9.45. Þeir sem
bera merki Fálkanna eru þessir:
F. Gillis hafnvörður, Albert John-
son, C. Munroe, C. Benson, H.
Gíslason, W. Sigmundson, W.
Bjarnason, Matt. Jóhannesson,
Ad. Jóhannesson^ Ingi Jóhannes-
son, O. Bjarnason, S. Patterson.
Komið og fjölmennið og sýnið
okkur að þið séuð með okkur.
P. Sigurdson.
Drengurinn sem slasaðiát
(Guðbjörn Jóhannesson)
SAMSKOT:
ÁðuVauglýst...................................$582.00
Mr. og Mrs. Einar Lúðvíkson, 626 Victor St........ 5.00
Mr. Emil Lúðvíkson, 626 Victor St................. 3.00
Miss Beatrice G. Lúðvíkson, Ericksdale, Man....... 2.00
Mrs. Ástdís Johnson, Ste. 9 Cornelius Apts........ 1.00
Rose Johnson, Ste. 9 Cornelrus Apts............... 1.00
Josephine Johnson, Ste. 9 Cornelius Apts.......... 1.00
Mr. and Mrs. M. J. Johnson, Edfield, Sask......... 2.00
Mr. Magnus Thompson, Edfield, Sask............. 1.00
Miss Elín Sigurdsson, 1098 Ingersoll St........... 1.00
The Icelandic Male Voice Choir of Winnipeg......... 34-oo
Katrín Pálsson, 668 Alverstone St................... 1.00
A Friend, Winnipeg, Man............................. 1.00
Miss Kristín Thorfinnson, Gardar, N. Dakota........ 1.00
Alls . v................$636.00
Kærar þakkir. The Columbia Press, Ltd.
Canadian Legion Concert Orchestra
AT FIRST LUTHERAN CHURCH, VICTOR ST.
MONDAY, MARCH 14, 1932
Conductor—STEFAN SOLVASON
PROGRAMME
1. (a) Washington Greys March Grafula
(b) Moonlight Sonata (lst movement) Beethoven
ORCHESTRA
2. Piano Solo—Selected.
CHRISTINE HANNESSON
3. (a) Clair de Lune ....................Thome
(b) Last Dream of the Virgin Massenet
ORCHESTRA
4. Solo—Selected.
HERBERT JAMES
5. Favorite Fantasia ...................fíalfe
ORCHESTRA
6. Violin Solo—Selected.
PEARL PALMASON
7. (a) March of the Toys ..............Herbert
(b) Two Guitars ...................Horlick
ORCHESTRA
8. Solo—Selected.
HERBERT JAMES
9. Symphony in B Minor .............. Schubert
ORCHESTRA
GOD SAVE THE KING
Starts at 8.30 p.m. Admission 25c.
Athygli! Athygli!
Þegar hart er t ári, sitja þeir venjulegast fyrir atvinnu,
er mesta sérþekkingu hafa. Verzlunarskólamentun, er
ein sú hagkvœmasta mentun og notadrýgsta, sem ein-
staklingum þjóðfélagsins getur hlotnast.
Nú þegar fást á skrifstofu Columbia Press Ltd.,
Scholarships við tvo fullkomnustu verslunarskóla Vest-
urlandsins, með afar miklum afslœtli. Leitið upplýs-
inga bréflega eða munnlega. Fyrirspurnum svarað sam-
stundis.
‘íiccmc^l
CHICKS^
VertS vort á ekta Pure
Bred Chicks er lágt.
Hvlt Leghorns, 100—$8.00.
Barred Rocks, $10. AtSrar teg-
undir, $12. Skýrteini framleiíS-
anda með pöntun. PantitS 30
dögum á undan sending, pen-
ingar fylgi, eöa skrifiö eftir
36 bls. vertSskrá. 100%
ábyrgst lifandi til
vitStakanda.
HAMBLEY ELECTRICJATCHERIES
WINNIPFG,
CALGARY
LIMITED
^REGINA
, EDMONTON
SASKATOON
VANCOUVER
Our Neaieit Hatchery will serve you beit i
Brynjólíur Thorláksson
tekur að sér að stilla
PIANOS og ORGANS
Heimili 594 Alverstone St.
Simi 38 345
JOHN GRAW
Fyrsta ílokks klæðskeri
Afgreiösla fyrir öllu
Hér njðta peningar yðar sln að
fullu.
Phone 27 073
218 McDERMOT AVE.
Winnipeg, Man.
VEITIÐ ATHYGLI!
Eg undirrituð hefi nú opnað
BEAUTY PARL0R
í Mundy’s Barber Shop, Portage
Avenue, næst við Harman’s
Drug Store, Cor. Sherbrooke
og Portage Ave. Sími: 37 468.
Heimasími: 38 005
Mrs. S. C. THORSTEINSON
íslenska matsöluhúsið
par sem íslenðlngar í Winnipeg og
utanbæjarmenr. fá sér máltíðir og
kaffi. Pönnukökur, skyr, hangikjö*
og rúllupylsa á takteinum.
WEVEL CAFE
692 SARGENT AVE.
Slmi: 37 464
RANNVEIG JOHNSTON, eigandl.
CARL THORLAKSON
úrsmiður
627 Sargent Ave., Winnipeg
Sími: 27 117. Heima 24 141
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annast greiðlega um alt, sem a8
flutningum lýtur, smáum eða stór-
um. Hvergi sanngjarnara verð.
Heimili: 762 VICTOR STREET
Slmi: 24 500
Símið pantanir yðar
ROBERTS DRUG STORE’S
Ltd.
Ábyggilegir lyfsalar
Fyrsta flokks Afgreiðsla.
Níu búðir — Sargent and
Sherbrooke búð—Sími 27 057
FINGURBYLGJUÐ HAR-
KRULLUN oe- ALLSKONAR
ANDLITSFEGRUN
að 512 Victor St. Sími 31145
(Skamt frá F. lút. kirkju)
Ábyrgst afgreiðsla og sann-
gjamt verð.
Guðný og Ásta Einarsson
DR. G. L. FRIZELL
Tannlœknir
Phone 80 761
Evenings by Appointment
214-15 PHOENIX BLOCK
Winnipeg, Man.
DR. T. GREENBERG
Dentist
Hours 10 a.m. to 9 p.m.
PHONES: Office 36 196
Res. 51 455
Ste. 4 Norman Apts.
814 Sargent Ave., Winnipeg
Dr. L. A. Sigurdson
216-220 Medical Arts Bldg.
Phone 21 834.
Office tímar 2—4
Heimili: 104 Home St.
Phone: 72 409
/ V,