Lögberg - 14.04.1932, Síða 2

Lögberg - 14.04.1932, Síða 2
BJa. 2 LÖGBERG. FIMTUDAGINN 14. AIPRÍL 1932. Skógur í Lögbergi birtist nýlega grein eftir Sig. Júl. Jóhannesson með fyr- irsögninni “Skógur.” Grein þessi er skrifuð vegna þess að höfundin- um hafði borist rit allstórt frá ís- landi, sem heitir “Hallormsstaðir og Hallormsstaðaskógur,” eftir Gutt- orm Pálsson skógarvörö á Hall- ormsstað. Grein þessi ber það með sér að Dr. Jóhannesson er bæði hlyntur skógræktarmálinu og að hann hefir aflað sér mikillar þekkingar því viðvikjandi, þó að mál þetta sé reyndar ekki skvlt því starfi, sem hann hefir gert að sínu aðal við- fangsefni. Læknirinn sýnist skilja það glögt hversu mikið velferðarmál það er fyrir framtið íslands, að skógræktin komist þar í fram- kvæmd. Hann finnur einnig til þess hvað Vesturrfslendingar hafa gert lítið til þess að hrinda áfram þessu góða málefni og hvað þeir eru ein- kennilega þagmælskir þegar kemur til þess að ræða um verklegar fram- kvæmdir á ættjörðinni. Ekki sízt hvað viðvikur landbúnaði og gróðr- artilraunum. Margir fleiri hafa eflaust fundið til þess að það hefir ekki verið til- hlýðilegt að Björn Magnússon, sem hefir verið brautryðjandi í þessu máli skuli hafa þurft að skrifa hverja blaðagreinina á fætur ann- ari og standa svo að segja einn og hjálparlaus fyrir þessu áhugamáli sínu. Það er ekki laust við að það hafi kveðið svo rammt að þessu, að til minkunar væri fyrir Vestur-ís- lendinga. Margar ástæður eru líklega fyrir þessu, sem yrði of langt mál að rök- ræða hér. En mjög er það undar- legt, eins mikið eins og Vestur-ís- lendingar hafa ritað og rætt hvað þeir ,hafa gengið fram hjá þvi að rita urp það, sem við kemur land- búnaði á íslandi og ýmsum verkleg- um framkvæmdum heima. Og ekki lítur það sem allra bezt út fyrir vestur-íslenzka bændur að læknar og prestar skuli verða fyrstir til að koma þessu málefni til hjálþar. IBændurnir ættu að hafa hér meiri þekkingu og reynslu fyrir sér og ættu að vera að minsta kosti jafn fúsir öðrum stéttum, til að liðsinna velferðarmálum sem að tilheyra þeirra verkahring. Enn ekki er það von að allir þeir, sem málefninu eru hlyntir eða þeir, sem hafa mesta þekkingu og reynslu i skógræktar- málum hafi tíma og tækifæri til að skrifa um þau efni. Og það má færa bændum það til afsökunar að þeir hafa ef til vill allra manna sízt tíma eða tækifæri til að eiga við rit- störf. Eg er áðurnefndum greinarhöf- undi sammála í flestu, sem hann segir, svo hér er ekkert um neinn ágreining að ræða. Enn nú hefir mér einnig borist þessi ofangreinda bók í hendur, og finst mér hún svo merkileg að eg vil leyfa mér að gera frekari athugasemdir við innihald hennar. Þetta minningarrit er það lang- nákvæmasta og skilmerkilegasta, sem mér hefir borist frá íslandi, ekki einungis um viltan skóg eins og hann vex þar, heklur verða hin- ar greinilegu og ýtarlegu skýrslur og frásagnir höfundarins ósjálfrátt að hinum sterkustu sönnunargögn- um um trjáræktarmöguleika á fs- landi, og er þetta rit að því leyti mjög þýðingarmikið. Reyndar hafði mig ekki vantað trúna á trjá- ræktarmöguleikana né sannfæringu fyrir því að fsland væri að mörgu leyti miklu hentugra til trjáræktar heldur en margir hyggja, sem byggja skoðun sína á þvi hvað norð- arlega það liggur. En mínar hug- myndir voru auðvitað að mestu leyti bygðar á því sem að reynsla og afstaða hér vestanhafs hefir leitt í ljós i trjáræktinni á síðari tímum. Pað er meir en lítið gleðiefni fyrir mig að fá hér í þessu riti ó- rækar sannanir fyrir því að sú trú sem eg hefi haft á möguleikum til trjáræktar á íslandi, er í algjörlega fullu samræmi við þá reynslu og þær tilraunir, sem gerðar hafa ver- ið á Hallormsstað og sem svo nákvæmlega er skýrt frá í þessari 25 ára skýrslu skógvarðarins. Það er auðheyrt að Guttormur Pálsson er ekki maður, sem hefir haldið stöðu sinni bara til að draga kaup, heldur hefir verkið verið leyst af hendi með hinni mestu samvizku- semi og trúmensku. Enda leynir sér ekki að honum bæði þykir vænt um skóginn og hann ber velferðar- mál íslands fyrir brjósti. Maður sem vinnur verk sitt í þessum anda á hinar mestu þakkir skildar. Reyndar mé eg kannske hrein- skilnislega kannast við það að mér þykir mjög fyrir því hvað þessar skógarleifar eru litlar og hvað þær hafa verið komnar nærri því að tor- týmast þegar farið var að sýna þeim sóma. En á hinn bóginn er það auð- sætt að þessar litlu leyfar eru hinn mesti mynjagripur, ef þær eru skoðaðar sem eftirstöðvar af frum- skógum landsins. Það er ærið merkilegt ef þessar litlu leifar geta orðið til þess að sýna það og sanna, að með réttum aðferðum séu gróðr- arskilyrðin ekki siðri hér en tíðkast í sumum löndum, sem mikið sunn- ar liggja, og ef þær geta lika orðið til þess að skýla þeim plöntum, sem vaxa f gróðrarreitum, sem ræktaðir eru á þessu svæði. Þá er ekki hægt að segja að þessi skógur, þó að lítill og úrkynja sé orðinn, eftir margra ára áníðslu, hafi haldið velli til einskis/ Aðal skilvrðið í skógræktarmáli íslands er það að nýr skógur sé plantaður og ræktaður á sem allra flestuni stöðum á íslandi. Einkum liggur það í augum uppi að það er æskilegt að sem víðast vakni áhugi fyrir því að planta skjólbelti við bæi i nógu stórum stíl til þess að verða að notum, eins og tíðkast til dæmis hér í Rauðárdalnum. Það er engin ástæða til þess að slík skjólbelti megi ekk! rækta við hvern bæ á íslandi þar sem jarðvegur og landslag leyfa. Mikilli gremju hefir það valdið oss sumum Vestur-íslendingum er því hefir verið haldið fram af sum- um Austur-íslendingum að ísland væri óhæft til trjáræktar. En eðli- lega verður útfallið það að vér tök- um vanalegast lastið með þögn og þolinmæði. Það er naumast eðli- legt að Vestur-íslendingar geti haldið hlífðarskildi fyrir íslandi i svona löguðum kringumstæðum. 1 inngangi þessa umgetna rits farast höfundinum meðal annars þannig orð: “Kver þetta á einnig að vera eins konar minningarrit eða afmælis- minning í tilefni af því að á s. 1. ári voru liðin 25 ár frá því að Hall- ormstaðaslágur var friðaður og sett var opinbert eftirlit með honum. Þá var einnig stofnað til tilrauna með uppeldi á trjáplöntum, bæði af inn- lendum og erlendum stofni.” “Eitt sinn var ísland skógivaxið og það svo mjög, að talið er að það hafi verið ‘Viði vaxið milli fjalls og f jöru.’ Þetta var þá er ísland lá ósnortið af manna höndum í faðmi náttúrunnar.” “Margt bendir til þess, að skóg- arnir hafi einnig verið stórvaxnari þá en á seinni öldum. Nokkrar heimildir í fornsögunum geta um stærri birkitré, en til eru nú hér á landi, og heilbrigð skynsemi álykt- ar einnig svo að jarðargróði, hver ,sem hann er, hljóti að ganga úr sér Jvið illa meðferð. En af því flestum Prentunar þá lítið inn eða skrifið til The Columbia Press Ltd. sem mun fullnægja þörfum yðar eru nú kunn afdrif skóga, sem hér voru á landnámstíð, þarf ekki að fara mörgum orðum um það.” “Það er kunnugra en frá þurfi að segja, að skógarnir hér á landi eru nú viðast kjarr eitt, kræklótt og kyrkingslegt. Á örfáum stöðum eru skógar, sem með réttu geta heitið því nafni. I lok 19. aldar var svo komið, að skógarnir á landinu voru að eyðast eða ganga úr sér, og gátu varla talist nema kjarr. Hallorms- staðaskógur var þá víðast kræklótt- ur og lágvaxinn eins og greint verð- ur siðar. Hann var að visu þá tal- inn tilkomumestur af skógum lands- ins. Þó var það mjög lítill hluti af honum er gaf honum svip og veitti honum þann tignarsess, er hann hefir hlotið i munnmælum manna og vitund.” “Ef vér lesum ferðalýsingar nátt- úrufræðinga á seinni hluta siðustu aldar, að því er við kemur skógun- um, þá ber mest á tvennu: söknuði og gremju. Þessi tvö fíugtök eru þungamiðjan í lýsingunum. Oss þarf ekki að undra, sem betur þekkjum muninn á vel hirtum skógi og vanhirtu og bækluðu kjarri, að þetta var eðlilegt. Hvar, sem litið er yfir landið, eru vegsummerki augljós, er hljóta að vekja söknuð hjá hugsandi mönnum yfir þvi, að fegursti gróðurinn er horfinn af landinu. Víðast er kyrkingslegur gróður, lítt grasigróinn jarðvegur, eða þá eyðing og auðn. En þetta er mönnum að kenna Landið var vax- ið viði, áður en mennirnir komu til sögunnar. Gremjan er einnig á rök- um bygð. Þess hefði mátt vænta, að forfeður vorir hefðu látið stað- ar numið, er þeir sáu hvað að fór um eyðingu skóganna. Vér spyrjum sjálfa oss, hvort þeir muni ekki hafa saknað fegurðarinnar þegar hún hvarf þeim. Eða var fegurðar- mat þeirra annað en vort, er nú lif- um í landinu? Vera kann að fróðir menn geti skýrt þetta og hafi sögu- heimildir til stuðnings. Hvað um það, vér og niðjar vorir súpa seyðið af hermdarverkum þeirra, er rændu fegursta gróðrinum.” Höfundurinn gefur hér í skyn að hann skilji söknuð og gremju ferða- manna og útlendinga út af því að sjá og vita af landinu skóglausu og nöktu. Allir lýsa landinu sem fögru, en þeir, sem hafa vanist skógum í öðrum löndum skilja bezt hvað skógur mundi auka mikið feg- urð íslands. Það er ekki laust við að höfundurinn lýsi hér sinni eigin gremju yfir hermdarverkum for- feðranna er rændu fegursta gróðr- inum. Það má vel gæta þess að á- saka ekki um of forfeðurna, sem að ef til vill hafa eyðilagt skóginn, í hugsunarleysi stundum, en mikið oftar vegna þess að brýn nauðsyn krafði. Það er gleðilegt að hugsa til þess hvað ákaflega mikið gagn ís- lendingar hafa haft af skóginum á liðinni tíð, og mikið ömurlegri hefði saga íslendinga orðið ef að þeir hefðu ekki haft skóginn og getað notað hann þegar mest lá á. En það var ekki eðlilegt að forfeðurnir þektu eða brúkuðu trjáplöntunar- aðferðir, sem oss eru nú alkunnar. Fyrst og fremst áttu forfeðurnir oft við fátækt að búa, ásamt kúgun og ýmsum harðindum. Þar að auki vantaði þá eðlilega þær nýtízku að- ferðir, sem vér kunnum og þau ný- tízku verkfæri, sem vér brúkum, sem jafnvel hafa tekið mjög miklum framförum rétt á síðustu árum. Hitt er mikið fremur gremjulegt ef að núverandi kynslóð skilur ekki skyld- ur sínar og sér ekki köllun sína í þessu efni. Eg get séð fjölda af ástæðum til að afsaka forfeðurna, sem eygilögðu skógana á íslandi, en eg get ekki séð netna afsökun fyrir uppvaxandi kynslóð íslands ef að hún annað hvort í hugsunarleysi eða af ásettu ráði trassar að planta nýj- an og fegurri skóg. Auðvitað sakn- ar ekki þessi kynslóð fegurðarinnar, vegna þess að hún hefir aldrei séð landið nema bert. Fegurðartilfinn- ingin er aðeins lítill partur þess máls, sem hér er um að ræða. Aðal atriðið er að vér erum skyldugir til þess að bæta fyrir gerðir feðranna. íslendingar eru í þeirri skuld við Fjallkonuna, sem er hreint og beint samvizku spursmál að borga. Það leynir sér ekki hvernig Fjallkonan KAUPIÐ ÁVALT LUMBER hjá THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD. UENHY AVE. EAST. - - WINNIPEG, MAN. Vard Office: 6th Floor, Bank of Hajnllton Chambers. hefir verið afklædd til að skýla þjóðinni þegar mest lá á. En nú, þegar íslendingum fer að vaxa fiskur um hrygg, má ekki minna vera en þeir fari að kasta til baka spjörunum, svona smátt og smátt. Eftir að skógrækt er á annaS borð komin svolítið á laggirnar þá tekur tiltölulega stuttan tima til þess að, framleiða fagran og gagn- legan skóg með nýtisku aðferðum og nýtísku verkfærum. Fyrsta skil- yrðið er að koma upp gróðrarreit- um, þar sem hægt er að framleiða í landinu sjálfu nýgræðinga af þeim trjátegundum, sem að hentugastar eru fyrir ísland. í þessu sambandi má taka það fram, að eg álít að heillavænlegast mundi verða að rækta að miklu leyti að minsta kosti fyrst, helst þær trjá- tegundir, sem að vaxa upp af af- sneiðingum (cuttings). Bæði er það ódýrasta aðferðin og einnig fljót- legust. Sá kostur er á afsniðning- unum, að það má fá mesta fjölda af þeim af einu tré. Þeir eru líka svo hentugir til flutninga að það er hægt að senda svo um muni jafnvel með pósti. Aftur hafa þeir þann ókost að það er ekki til neins að planta þeim nema í vel yrktan akur, og þeir þurfa rækilega hirðingu fyrsta árið. Reyndar þurfa allar plöhtur það ef vel á að fara. Það hefir reynst hér vel að planta afsneiðingunum þar sem trén eiga að standa og þarf þá aldrei að færa plönturnar úr stað. Tré þau, sem hafa hér verið hentugust til slíkrar plöntunar eru Golden Russian Wil- low og Laurel Leaf Willow, sem að tilheyra víðis-tegundinni. Einnig sumar sortir af poplar, svo sem Norway Poplar, Cottonwoods, o. s. frv. Þetta eru tegundir af ösp. Afsneiðingarnir eru teknir að vorinu, nokkru áður en tréð byrjar að springa út. Aðeins sá partur greinarinnar, sem hefir vaxið árinu áður er brúkaður. Þetta lim er skorið niður i svo sem átta 8 þuml- unga langa búta. Þegar þessum sprotum eða bútum er plantað, þá eru sjö þumlungar látnir vera niðri í jörð, en aðeins einn þumlungur upp úr. Bezt er að láta afsneiðing- inn hallast, því þá er hægra að þjappa að honum moldinni með fæt- inum, og er þá mátulegt ef maður stígur á moldina með öðrum fæti af öllum þunga. Ef geyma skal þessa afsneiðinga frá því þeir eru skornir, skal binda þá i smá-bindi og grafa í jörð, svo sem eitt eða tvö fet djúpt, þangað til þeim er plantað, svo þeir ekki þorni. En hafi afsneiðingarnir verið sendir langt og þornað, ná þeir sér aftur með því að leggja þá í vatn svo sem einn dag. Afsneiðingum skyldi aldrei planta nema í gamlan vel unnin akur, sem tækilegur v^þi til dæmis fyrir kartöflur. Þessi trjáplöntunar aðferð er sú ódýrasta, sem til er, og nýgræðing- arnir, með góðri hirðingu, geta orðið fjögra feta háir fyrsta árið hér, ef að tíð er hentug. Þessi að- ferð væri mikið meira notuð, ef að almenningur hefði ekki þá hugmynd að það sé nauðsynlegt að vera sér- fræðingur í trjárækt, til þess að geta ræktað trjáplöntur á þennan hátt. Auðvitað vaxa ekki nema sumar trjátegundir upp af afsneiðingum, en aðrar upp frá fræi. Þegar að búið er að rækta tré á íslandi, sem að eru hentug til af- sneiðinga græðslu, þá getur trjá- ræktin ekki einungis orðið almenn, heldur kosta þá trjáplönturnar svo að segja ekki neitt. Aðal skilyrðið er að áhugi almennings vakni fyr- ir þessu máli. Auðvitað er æskileg- ast að sérfræðingar í trjárækt ann- ist um svona framkvæmdir, því að það hefir mjög slæm áhrif á við- vaninga, þegar þeir verða fyrir mis- fellum og plönturnar deyja hjá þeim. Það getur orðið til þess að áhuginn dofni, og sú huginynd kom- ist inn að ekki sé til neins að reyna aftur. Einn eftirtektarverðasti kafli þessa rits er með fyrirsögninni “Út- dráttur úr annálum skógarins.” Hér segir höfundurinn meðal annars: “Ársvöxtur eða gróðrarmagn hef- ir verið athugað, einkum seinustu 10 árin 1920-1929. Er þá talinn mesti hæðarvöxtur á árinu. Vöxturinn er mestur á ungum skógi, 15-30 ára. Mestur hæðarvöxtur á þessu tíma- bili var 1925, 75 cm. (29 þml.) Minstur árið 1922, 28 cm. (18 þml.). Mér hefir talist til, að hann hafi verið á þessu tímabili: Árið'— cm. þml. 1920 .... 52 20 1921 .... 55 22 1922 .... 28 10 1923 .... 48 18 1924 .... 40 15 1925 .... 75 29 1926 .... 70 27 1927 .... 52 20 1928 .... 48 18 1929 .... 52 20 Meðaltal þessara ára verður þá 52 cm. (20 þml.). Sumarið 1922 var eitthvert jafn- kaldasta sumar, sem komið hefir 20 árin seinustu, og kom það einnig niður á skóginum. Sumarið 1925 er hinsvegar mesta hitasumar á sama tímabili. Ársvöxtur skóganna fer ekki eftir meðalhita sumarsins, held- ur veldur mestu um að hitakafli komi fyrra hluta sumars frá 15. júní til 15. ágúst. Munurinn á trjágróðr- inum langt frá sjó inn til dala og nálægt ströndinni orsakast af mun- inum á heitustu dögunum um há- sumarið. Það sést meðal annars á skógargróðrinum ofarlega og utar- lega á Fljótsdalshéraði. Enn meiri munur er þó á Upphéraði og Fjörð- unum að þessu leyti. Laufgunartími skógarins er ærið misjafn. Síðustu sjö árin hefi eg athugað hvenær skógurinn er orð- inn algrænn, og hefir það munað meir en mánuði. Árið 1923 var laufgunartíminn 3. júní; 1924, 27. júní; 1925, 9. júní; 1926, 7. júní; 1928, 21. mai; 1929, 29. maí. Vorið 1924 voru óvenju kuldar í maí og júní-mánuði, en vorið 1928 voru hlýindi mi'kil í maí. Síðastliðið ár (1929) var skógurinn kominn að þvi að grænka í Apríl, en það varð ekki, og þoldi hann því betur hinn mikla kuldakafla, sem kom seinast í April og hélst langt fram í maí.”— —“Nýgræðingur úr skóginum: Mér' telst svo til, að 7930 plöntur hafi verið fluttar úr skóginum á ár- unum 1909 til 1930, til gróðursetn- ingar í görðum og nálægt bæjum. Mest hefir farið út um Fljótsdals- hérað, en einnig nokkuð lengra, einkum til Reykjavíkur.” “Flestar þessar plöntur hafa ver- ið teknar með jarðhnaus. Slíkar plöntur eru miklum mun öruggari en rótarkvistir, en þær eru dýrar í flutningi: Hívergi á landinu munu fáanlegar eins góðar birkiplöntur og héðan úr skóginum. Sá tími er þó nálægur að erfitt verður að fá þær hér i skóginum. Rjóðrin fyllast og þar koma stór tré, er áður voru smáplöntur. Að þessu er vikið síð- ar, þar sem talað er um trjárækt hér í nágrenninu.” Þessar skýrslur skógarvarðarins um ársvöxt skógarins eru ef til vill töluvert merkilegri en að kynni að virðast í fljótu bragði. Tuttugu þumlunga meðal vöxtur á ári er mjög góður, þegar tekið er tillit til þess að hér er ekki einungis um vilt- an skóg að ræða, heldur einnig trjá- tegundir, sem að eru mjög sein- vaxnar, í samanburði við mörg önn- ur tré. Framh.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.