Lögberg - 07.07.1932, Side 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 7. JÚLI 1932.
Bls. 5.
Vort aðal viðfangsefni er vöndun
gæða í allri vorri framleiðslu.
“MODERN”
MJÓLK OG RJÓMI
er betra “en það bezta,” er annarsstaðar hefir
fengist, segja margar Winnipeg húsmæður.
Modern Dairies Limited
Sími 201 ioi
“Þér getið þeytt rjóma vorn, en hvergi fengið hetri mjólk”
Sögnin um Atlantis
Æfagömul er frásagan um
horfna heimsálfu í Atlantshafi,
sem á að hafa legið út af mynni
Miðjarðarhafsins, og þó að þau
drög, sem liggja til þessa, séu
mjög óljós að mörgu leyti, hafa
þau þó lifað fram á þenna dag
meðal margra þjóðflokka víða um
heim. Um langan aldur virðast
menn alment hafa skoðað frá-
sögnina um hið mikla land sem
þjóðsögn eða skáldlegan tilbún-
ing, sem myndast hefði í hugum
manna. En eftir því sem menn
kynna sér betur ýmislegt, sem
talið er að beri vott um líf, þró-
un og menningu fyrir mörgum
þúsundum ára áður en elztu rit
greina, hafa nútíma-vísindamenn
dregið þær ályktanir, að það væri
ekki einunfeis mögulegt, heldur
og allmáklar líkur fyrir því, að
bak við þessa frásögu liggi sann-
indi, og verður hér drepið á það
helzta.
Elzta frásögnin um þetta land,
er skrifuð af gríska heimspek-
ingnum Plato (f. 429 f. Kr.), er
hann mælir í viðræðu við Tima-
eus á þessa leið: “Hinn þekti
aþenski lögmaður og vitringur
Solon var eitt sinn í heimsókn í
Sais á Egyptalandi, til þess að fá
prestana þar til að segja sér frá
Igömlum sagnafróðleik, sem menn
vissu að þeir kunnu mikið af;
byrjaði hann að geta ýmássa
forn-sagna frá sínu eigin landi,
Hellas. Þá greip gamall prestur
fram í frásögnina og sagði:
“Solon, Solon! Þið Hellenar
eruð og verðið börn, og þið eigið
ekki gamlan mann til!” Og er
prestur var beðinn að !gera betri
grein fyrir, hvað hann meinti
með þessu, svaraði hann: “Þið
eruð allir ungir í anda, og höfuð
ykkar geyma engan arfgengan
fróðleik, og eigi þekkingu, sem er
gránuð af elli.”
Og eftir tilmælum Solons hóf
hann frásögn um viðburði, sem
voru skráðir í egypskum fornrit-
um; og er hann hafði getið ríkis,
sem stóð í blóma 9000 árum áður
en Grikkir komu til sögunnar í
því landi, sem Aþena stendur nú,
hélt hann þannig áfram: “Rit
okkar skýra frá voldugu herliði,
sem ríki ykkar sigraði, en herlið
þetta æddi yfir Evrópu og Asíu
frá Atlantshafi. Á þeim tíma var
fyrir utan mynni Miðjarðarhafs,
er þið nefnið Herkúles-súlur, ey,
sem var stærri en Asía og Afríka
báðar. Þaðan mátti sigla til
annara eyja, og svo frá þeim til
meginlands, sem liggur beint und-
an hinum megin við hafið. Alt,
sem er fyrir innan mynni þetta,
er að eins flói, og er innsigling
þröng, en annað er í raun og veru
haf, og landið, sem bárur hafsins
skella á, má með réttu nefna meg-
inland.”
Á ey þessari, Atlantis, var vold-
ugt ríki, sem náði yfir alla eyna,
aðrar eyjar og að nokkru leyti meg-
inlandið. Því næst er sagt frá
því, hvernig voldugt herlið frá
þessu ríki ruddist inn í Evrópu,
en var eyðilalgt af Aþeningum, og
með því frelsaðist austurhluti
heimsins frá áþján. Svo heldur
hann enn áfram: “Síðar kom þar
feikna jarðskjálfti og vatnsflóð.
og eftir hræðilegan dag og ægi-
lega nótt, sökk alt það herveldi í
djúpið, og samtímis hvarf eyjan
Atlantis í hafið. Og er það á-
stæðan til þess, að enn í dag eiga
menn erfitt að sigla um þetta
svæði, vegna Igrynninga þar sem
eyjan eyðilagðist, og orsakar ó-
sigrandi tálmanir fyrir sjófar-
endur.”
Þetta er það, sem kemur fram
í viðræðum við Timaeus, en
Plato segir á öðrum stað frá
samtali við Kritias, sem kemur
og inn á frásöguna um Atlantis,
eins og hann hafði heyrt afa sinn
segja hana eftir Solon sjálfum.
Kritias getur þess fyrst, hvern-
ig guðirnir á þeim tíma skiftu
jörðinni á milli sín og komu upp
hofum og blóthörgum hver í sínu
umdæmi. Eyjan Atlantis, sem
áður er getið, kom í hluta Posei-
dons, sem eignaðist tíu sonu með
mannlegri kvinnu, Kleito, og urðu
þeir ættfeður í landinu; hinn
elzti þeirra hét Atlas, og af því
var dregið nafn eyjarinnar.
Á eynni voru mlikil fjöll, sem
gengu víða sæbrött niður, en á
suðurlandinu var mikið slétt-
lendi, um 600 km. langt og 400
km. breitt. Á þessu sléttlendi, um
tíu km. frá ströndinni, var hæða-
ás og á honum var aðal borgin
bygð, kringum konungsslotið, er
stóð í miðri borginni. Að henni
lá 100 m. breiður skurður frá sjó,
og um hana luku þrír hringmyna-
aðir skurðir hver utan uip annan,
svo voru þeir aftur tengdir sín á
milli með yfirgerðum þverskurð-
um, svo að skip gætu alstaðar
rent að. Kringum alla sléttuna
var grafinn stór hrin!gmyndað-
ur skurður, 2000 km. langur, 200
m. breiður og 35 m. djúpur. Þessi
skurður tók á móti því vatni, sem
ár og lækir fluttu frá fjöllunum,
sem rann svo beggja megin borg-
arinnar til sjávar. Frá honum
voru enn skurðir, sem lágu beint
eftir sléttlendinu til borgarinnar.
Brýrnar yfir þessa skurði, svo
og konungsbrúin á instu eynni,
voru varðar steinhleðslu úi
svörtu grjóti, hvítu og rauðu
grjóti, sem tekið var úr
grjótnámu, er lá í miðri eynni.
Múrgirðingarnar voru þaktar
málmi, tini og “orikalki”. Borg-
in sjálf var þannig bygð, að í
miðið var musteri (hof), helgað
Poseidon og Kleito; gullmúr um>-
kringdi það, og þangað máttu
prestarnir einir koma. Það var
600 feta langt og 300 feta breitt
og þakið utan gulli og silfri.
Loftið að innan var gert úr fíla-
beini, prýtt með gulli, silfri og
orikalki. Þar var Poseidons líkn-
eksi á hervagni; var beitt fyrir
hann sex vængjahestum, og um-
kringdu þá 100 vatnadísir (Ner-
eider)i á höfrungum, svo og gull-
líkneski af hinum tíu konun'gum.
—Konungshöllin var skreytt á
líkan hátt; víða voru vatnsþrær
og gosbrunnar, og var vatni veitt
þar í úr tveimur laugum, heitri
og kaldri, sem lágu inni í land-
inu. Við ströndina voru þrjár
stórar hafnir, og var þar fjöldi
skipa (herskip og verzlunarskip),
en þar umþverfis voru þéttbygð
þorp.
Á útjöðrum sléttunnar og alt til
róta fjallanna, var graslendi,
engi o'g sveitaþorp í mesta blóma,
og '\þar þroskuðujst margar teg-
undir af ávöxtum, jurtum og
fjöldi trjátegunda. í fjöllunum
voru allskonar góðmálmar í rík-
um mæli, þar á meðal fyrnefnt
orikalk, og er þessa getið til
skýringar: “semi nú þekkist að-
eins nafnið á”. Álitið var, að
það væri næst gulli að verð-
mæti.
Landinu var stjórnað af tíu
konungum, sem allir voru af-
komendur Poseidons, og hafði
hver þeirra yfir ákveðnu fylki að
ráða. Þeir höfðu einveldis-yfir-
ráð yfir lífi og velferð þegnanna,
en voru að eins háðir lögum Pos-
eidons, sem voru rituð á súlu úr
orikalki, er stóð í miðju muster-
inu. Þar mættust konungarnir
til skiftis fimta og sjötta hvert
ár, til þess að ráða og ræða
vandamál sín og rannsaka, hvort
enginn þeirra hefði brotið lögin,
og ef svo reyndist, að hegna hin-
umj seka. Áður en skyldi segja
upp dóm, blótuðu þeir nauti í fé-
lagi og sóru við blóð þess að
hlýða lögunum og hegna þeim,
sem bryti þau. Því næst mötuð-
ust þeir, og er nótt var á og fórn-
areldurinn kulnaður, fóru þeir
allir í dimmbláar kápur, mjög
fagrar á að líta, og lögðust kring
um eldsglæðurnar. Þá var allur
eldur slöktur, og í myrkri kváðu
þeir upp dóma og fullnægðu þeim.
Þegar dagaði, skrifuðu þeir dóm-
ana á gulltöflur og hengdu þær
og kápur sínar á veggi í muster-
inu.
Allmargar reglur giltu innbyrð-
is fyrir konungana, og var ein sú,
að enginn mátti bera vopn á ann-
an, ef það kæmi fyrir, voru hin-
ir skyldir að hjálpa þeim, sem á
var ráðist. Þeim bar o!g að bera
ráð sín saman, ef um stríð eða
Iþnnur m^lefni var að ræða, og
sá skyldi hafa á hendi yfirstjórn,
sem var niðji Atlass.
Enn fremur skrifar Plato:
Gegnum margar ættkvíslir, svo
lengi sem hinn guðlegi uppruni
í þeim réð breytni þeirra, hlýddu
þeir lögunum og heiðruðu það
guðdómlega almætti, sem þeir
voru komnir frá. Þeir voru heið-
arlegir og ve'glyndir gagnvart ör-
laga ráðstöfunum. I umgengni
Italska flugvélin kom
hinga í gær
Londonderry, 16 júní. 1932.
ítalski flugbáturinn lagði af
stað frá Londonderry kl. 10 í
morgun. Flugbáturinn verður 12
daga í athugunarferðum á norð-
urleiðum. — Flugbáturinn fór
nokkru síðar af stað en til var
ætlast, vegna viðgerðar, sem fram
þurfti að fara. — Flugbáturinn
fer heimleiðis um Londonderry.
Frá Islandi
Fyrir nakkru fregnaðist það
hér, að von væri á ítölskum
stjórnarflugvélum hingað, Stein-
alíufélagið fékk 20—30 tn. af
bensíni handa þessum flugvél-
um eða flugvél, sem búast mætti
við, en allar nánari upplýsingar
vantaði. Fréttastofna símaði þá
til United Press og bað um upp-
lýsingar. Var þetta fyrir nokkr-
um dögum. United Press aflaði
sér upplýsinga í Rómaborlg um
það, að ítalskar flugvélar færu um
Amsterdam og Londonderry til
íslands, til þess að athuga flug-
skilyrði o. s. frv. Það er því alls-
endis trangt, sem sagt hefir ver-
ið, að engar frekari upplýsingar
hafi fengist frá erlendum frétta-
stofum. Auk þess kom síðar
skeyti frá U. P. þess efnis, að
undirbúningsflug þetta stæði í
sambandi við hið fyrirhugaða
stórflu'g Balbo’s, flugmálaráð-
herra ítalíu, til Ameríku næsta
vor. Fregnina um þá fyrirætlun
fékk umheimurinn sennilega vitn-
eskju um, þegar U. P. fór að afla
sér frekari upplýsinga, vegna fyr-
irspurnar FB. Það er því síður
en svo, að ekkert hafi vitnast um
flug þetta, áður en flugmenn-
irnir komu. Framannefnd skeyti
bera það og með sér, sem og hin
fyrri skeyti U. P. um! þetta flug,
að lögð hefir verið mikil áherzla
á það, að afla upplýsinga um flug-
. . , ið, vafalaust með mikilli fyrir-
sinni hver við annan sýndu þeir , ... , _ . , » _
, ^ i hofn, þar eð reynt mun hafa ver-
Ullarútflutningurinn nam að eins
140 kg. í maí s.l., verð 190 kr. en á
tímabilinu jan.—maí 83,880 kg.,
verð 87,050 kr. Á sama tíma í fyrra
395,256 kg., verð kr. 502,540.
Tvö hross voru flutt út í mai-
mánuði, verð 1,000 kr., og er þá tal-
inn allur hrossaútflutningurinn, sem
af er þessu ári. Á tímabilinu jan.—
maí í fyrra voru flutt út 47 hross,
verð kr. 11,630.
Otflutningur á freðkjóti nam í
marsmánuði síðastl. 6,642 kg., verð
kr. 5,310, en á tímabilinu jan.—mai
628,073 ver® kr. 311,160. Á
saina t,m ai fyrra 382,282 kg., verð
311.030. kr.
Útflutningur á saltkjöti nam 168
tn. í maímánuði s.L, verð kr. 5,870,
en á tímabilinu jan.—maí 4,368 tn.,
verð kr. 191,900. Á sama tíma í
fyrra 1,092 tn., verð kr. 102,900.
Aflinn nam þ. 1. júní, samkvæmt
skýrslu Fiskifélags íslands 45,625
þurrum smálestum, en í fyrra á
sama tíma í fyrra 382,282 kg., verð
1929 46,913 þurrum smálestum.
hófsemi og prúðmensku. Þeir
fyrirlitu alt, sem ekki gat skoðast
dygð, og álitu 'gull og eignir að-
eins til trafala. Auður þeirra
vakti ekki hjá þeim fégirnd, og
þeir mistu ekki sjón.r á sjálfum. LoftskeytastMin ha(ði
ser; þe". sau a« þetta cat alt ban<| viJ flugvéilna, f,á þvl um
ið að halda áformum þessum
leyndum.— Þetta þykir ástæða til
að taka fram, til þess að koma í
ve'g fyrir misskilning.
sam-
orðið þeim til gagns, ef þeir
ynnu saman af einlægni, og að
löngun eftir þessa heims gæðum
eliðir til falls og eyðile'ggingar.
(Framh.)
Annar landsþing kvenna
hófst hér í Reykjavík mánudag-
inn þann 6. þ.m. Fulltrúar mættu
frá þessum félögum: Bandalagi
kvenna í Reykjavík, samböndum
norðlnezkra, austfirzkra, sunn-
lenzkra og vestfirzkra kvenna;
samböndum kvenna í Borgar-
fjarðar og Mýrasýslu, í Gull-
bringu- og Kjósarsýslu og sam>-
bandi breiðfirzkra kvenna. Alls
mættu 15 fulltrúar á þinginu.
Landsþing þetta hefir haft
mörg merkileg mál á dagskrá
sinni, sem stjórn kvenfélagasam-
bands íslands, fulltrúar samband-
anna barnaverndarnefnd þjóð-
kirkjunnar hafa borið fram.
Þinginu var slitið í gær, síðasti
þingfundur var settur kl. 10 árd.
í gær. Að loknum þeim fundi
fóru fulltrúarnir austur fyrir
Fjall. — Á fundinum í gær voru
meðal annars samþyktar álykt-
anir um mótmæli gegn þingsálykt-
un Alþinlgis um undirbúning und-
ir að fækka prestum. Áskorun til
fulltrúanna um að þeir beiti sér
fyrir því, að hæfir menn fáist til
að efla kristindómsfræðslu og
kristilegt uppeldi í héruðum
landsins. Jafnframt samþykti
þingið áskorun til barnakennara,
þeirra, sem ekki vilja aðhyllast
kristindómsfræsðlu, að láta af
barnakenslu og uppfræðslu starf-
semi. Samþykt voru tilmæli til
Búnaðarfélags Islands, um að láta
af hendi til Kvenfélaga sam-
bandshús það, sem félagið á í
gróðrarstöðinni hér í Reykjavík,
svo og land gróðrarstöðvarinnar,
sem félagið ætlar nú að hætta að
nota. — Mgbl. 10. júní.
Lögreglan lét liúsrannsókn fram
fara nýlega í kjallara á Öldugötu 17
og fann þar 3 flöskur áf spiritus og
mikið af hálfbrugguðu áfengi. Tveir
menn, sem bjuggu þarna, hafa játað
á sig bruggunina. Háfa þeir verið
dæmdir í 800 kr. sekt og 10 daga
fangelsi hvor, en maður nokkur,
sem selt hafði áfengið fyrir þá, var
dæmdur í 500 króna sekt.
kl. 3, og bjuggust flugmennirnir
þá við, að lenda hér kl. 6—7, en
hún lenti hér kl. 4.50 e. h. í gær.
Fjöldi manna fór þegar niður
að höfn, og var krökt á hafnar-
bakkanum, er flugvélin rendi sér
niður á ytri höfnina. Var henni
lagt við dufl, vestarlega á innri
höfninni.
Tiðindamaður Vísis átti tal
við einn flugmannanna í gær-
kveldi. Lét hann vel af ferðinni.
Flugvélin var 7 klst. og 40 mín. á
leiðinni frá Londonderry til
Reykjavíkur. Þoka var allmikinn
hluta leiðarinnar, en alt gekk
eins og í sögu.
Flugmennirnir búast við að
verða hér 7—10 daga, til þess að
athuga flugskilyrðin hér, en á-
forma ekkert Grænlandsflug héð-
an.
Flug þetta er, sem fyr segir.
liður í þeim undirbúningi, sem
fram fer undir flug Balbo’s flug-
málaráðherra, næsta vor. Var
sa!gt frá þeirri ráðagerð í skeyti
frá United Press fyrir skömmu,
og verður því ekki frekar um það
rætt hér. — Vísir.
GOETHE UM TÓBAKSNAUTN
Það er alkunnugt, að Goethe hat-
aði tóbak og það eru til margar sög-
ur um það. Þannig er mælt, að
Goethe hafi einu sinni sagt: “Sá,
sem reykir, lyktar eins og svín, sá,
sem tekur í nefið lítur út eins og
svín, sá sem tekur upp í sig er svín.”
Tóbaksnautnin gerir mennina
heimska og gerir oss ómögulegt að
hugsa rétt eða yrkja, sagði hann
enn fremur eitt sinn. Tóbakið er
bara fyrir iðjuleysingja, er bara
handa fólki, sem leiðist, fólki, sem
sefur burtu þriðja hlutann af lífinu,
eyðir þriðja hlutanum í mat og
drykk og veit ekki hvernið það á að
fara að eyða síðasta þriðja hlutan-
um. Slíku fólki er tóbakið, pípan og
sjálfur reykurinn sá andlegi sjón-
deildarhringur sem það heldur að sé
nokkurs virði. Tóbakinu fylgir bjór-
þantb, þvi menn sem reykja þurfa
mikið að drekka. Bjórinn fitar
menn, gerir menn Ijóta, og eitrunin
eykst við alkóholið. Taugarnar
veiklast og fólkið verður heimskara.
Ef þessu heldur áfram, þá skulum
við sjá hvað verður um Þýskaland
eftir svo sem tvo, þrjá mannsaldra.
Fálkinn.
SPURNING: Við hvern á
eg að ráðfæra mig viðvíkj-
andi augunum?
SVAR: Pér skuluð leita ráða
hjá reglulegum augnlækni. Strax
þegar J>ér finnið eitthvað að aug-
unurt, og þér ættuð einnig að láta
augnlæknir skoða augu yðar
reglulega, með hæfilegu millibili,
hvort sem þér finnið að nokkuð
gangi að þeim eða ekki.
Gætið þess, að veikindi i aug-
unum er ekkert hégómamál, þvi
jafnvel smáveiklun, ef hún er
vanrækt, getur orðið þrálát og
hættuleg. Augnlæknirinn er fær
um að finna það, sem að er og
fara með það eins og við á. Hann,
sem getur sagt hvaða meðul skal
nota, ef þeirra þarf við, er líka
áreiðanlega færastur um að velja
yður gleraugu, sem skýra sjón-
ina og gera áreynsluna minni.
Sem gleraugnasalar er fara eft-
ir forskriftum lækna, förum vér
nákvæmlega eftir fyrirsögn lækn-
is yðar og efnið og verkið er hið
bezta og verðið mjög sanngjarnt.
Ritið “Your Eyes and Your
Health” gefið hverjum sem æsklr.
Robert S. Ramsay
Prescription Optician
333 DONALD STREET
WINNIPEG
Alþjóðaveðurathuganir
í sambandi við “pólárið”.
Það er 1. ágúst í sumar, sem hin-
ar víðtæku alþjóðarannsóknir
byrja, er eiga að gefa yfirlit yfir
veðráttuna um öll norðurhöf.
Eins og kunnugt er, hefir ráð-
gert verið, að tveir athugana-
flokkar störfuðu hér á landi, ann-
ar á veðurathuganastöð á Snæ-
fellsnesi, en hin hér í Reykjavík.
Fyrst var um talað, að við ís-
lendin'gar starfræktum stöðina á
Snæfellsnesi. En seinna kom aft-
urkippur í það. Treysti land-
stjórnin sér ekki til að standa
straum af þeim kostnaði. Þá var
talað um að Svisslendingar og
Danir tækju að sér þann starf-
rækslukostnað. En ekki er full-
ráðið um það enn. Talið er víst,
að athuganastöðin komist upp,
hvort sem þátttaka íslendinga
verður meiri eða minni.
Óvissar eru enn athuganirnar
hér í Reykjavík. En eins og menn
muna, komú Hollendingar hingað
í fyrra sumar til að athuga það
mál. Ráðgerðu þeir að hafa hér
flugvél, og fljúga hér upp í mörg
þúsund metra hæð á hverjum
degi, til veðurathugana. Áreið-
anlegar fregnir eru ekki enn
komnar hingað um það, hvort úr
þessu verður.
Þá hefir og komið til orða, að
gerðar yrðu hér í Reykjavík
reglubundnar segulmagnsmæling-
ar meðan á þessum alþjóða pól-
rannsóknum stendur. — Mgbl.
Prestskosning í Hafnarfirfði.
Talning atkvæða fór fram á
biskups skrifstofunni í gær. Á
kjörskrá voru 1726 manns, en
1303 neyttu kosningarréttar síns.
Kosning varð lögmæt. Atkvæði
féllu þannig: Garðar Þorsteins-
son cand. theol. hlaut 680 atkv.;
séra Jón Auðuns 351; séra Jakob
Jónsson 43 og séra Sigurður Stef-
insson 34 atkvæði.—Vísir 17. júní.
Rvík 16. júní.
Embættispróf í lögfræði hafa
lokiÖ: Alfred Gíslason, II. einkunn
betri, 113 2/3 st.. Freymóður Þor-
steinsson, I. eink., 126 1/3 st., Krist-
ján GuÖlaugsson, I. eink., 117 2/3
st., Ólafur Sveinbjörnsson, I. eink.,
131 1/3 stig.
EATON'S
MIÐ-SUMAR SALA
Annar merhisatburður, er léttir undir með
þeim, sem kmtpa vörwr í Winnipeg
AÖ þessari sölu hefir verið mikill undirbún-
ingur. Salan snertir alla búðina. Öll búðin er
ljómuð af ánægju vegna atburðarins. Hér eru
nvjar vörur, fagrar vörur, nytsamar vörur,
sem eiga við hveni kaupanda. 1 sumum til-
fellum er verðið lægra, en komið hefir fyrir í
tólf ár.
Þetta er einn vitnisburðurinn um “quality
values,” sem er að gera búðina sögufræga,—
verð svo lágt, að þér trúið tæpast yðar eigin
augiim. Þetta er enn einn vitniöburðurinn um
það hve gott er að verzla hjá Eaton’s, og færir
yður heim sanninn um það, hvar bezt eru
Ikaup á þessum alvörutímum.
T. EATON C°
LIMITED