Lögberg - 22.12.1932, Blaðsíða 7

Lögberg - 22.12.1932, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 22. DESEMBER 19S2. Bl.a 7 Lipur afgreiSsla og vörugæði einkenna verksmi'Öju vora. Stærsta brauÖgerðarhús í Canada. Vér sendum vöruna heim til yðar hvernig sem viÖrar, ioo umboðssalcir í þjónustu vorri Canada Bread Company Llmited PORTAGE AVE. and BURNELL ST Phone 39017—33 604 er verzlar með falleguátu Jólágjafirnar Vasaúr, demantar, silfurvörur, leirtau, leðurvörur glcrvörur og margt annað skrautmuna. Portage Avenue at Garry Street Ráðgist viÖ gleraugnafræðinginn áður en þér kaupiö gleraugu næst. Gleðileg Jól og farsælt 1 allra vorra morgu íslenzku viðskifta- vina Cítp JBaírp I.ímtteb íDurttp 3ce Cream ,l.tmtteb Bergkonan við Ásbyrgi Eftir séra Knút Arngrímsson “En er Jesús nú nálgaðist og kom þangaÖ, sem farið er ofan af Oliu- f jallinu, tók allur flokkur lærisveina hans að lofa GuÖ, fagnandi með hárri raustu, fyrir öll þau krafta- verk, er þeir höfðu séð, og mæltu: Blessaður sé konungurinn, sem kemur i nafni drottins. Friður á himni og dýrð í upphæðum! Og nokkurir af Faríseunum í mann- fjöldanum sögðu við hann: Meist- ari, hasta þú á lærisveina þína. En hann svaraði og sagði: Eg segi yð- ur, að ef þessir þegðu, mundu stein- arnir hrópa” (Lúk. 19, 37.—40.). Upp úr austara bergvegg Ásbyrgis gnæfir stakur, uppmjór klettur, sem mér varð starsýnt á, er eg kom þar síðastliðið sumar. Margir munu fara framhjá honum án þess að veita honum sérstaka eftirtekt, því að á þessum undurfagra stað ber ótal margt fyrir augu végfarandans, sem þau verða seinþreytt að skoða, og þenna klett er hægt að sjá á ýmsa vegu án þess nokkuð einkennilegt komi þar í ljós. En mér varð litið á hann, þar sem hann gnæfir upp, og duldist mér þá ekki, að þarna er greinilega mótuð i klett eftirtekta- verð mynd, og eg nam staðar og virti liana fyrir mér.—Það er kona, sem krýpur á bergstallinum. Hún horfir til himins gegnt suðri. Hún réttir hendur fram fyrir sig—legg- ur útbreidda lófana samán. Tignarleg, full aðdáunar starir þessi risavaxna bergkona þarna í anddyri eins hins fegursta musteris, sem íslenzk náttúra á—og stein- runnið látbragð hennar talar hin fornu orð til vegfarandans: “Drag skó þína af fótum þér, því að sá staður, sem þú stendur á, er heilög jörð.” Það snart mig tign þessa lista- verks, sem margskonar náttúruöfl hafa unnið sameiginlega við að mynda—hver veit hve langan tíma. Longu áður en mannverur litu ís- land augum, hefir hún kropið þarna. Hún hefir horft móti hækkandi morgunsól í tugi alda og staðið storma og él um þúsundir vetra. Samt fanst mér berast til mín hjart- sláttur frá þessari bergkonumynd, svo greinilega er mótaður ákveðinn mannlegur geðblær í svip hennar. Mér kom í hug eitt ákveðið orð, sem eg ann og ber lotningu fyrir. Það orð fanst mér ætti að rita á klettavegginn neðan við myndina. Það er orðið lofgjörð. Eg hvarf frá bergkonunni á Ás- byrgisvegg, glaður í huga yfir því að hafa fengið að sjá þennan fræga stað, en jafnhliða gleðinni var mér innanbrjósts friðsæl hrifning líkt og eftir hátíðlega guðsþjónustu. Það vöknuðu hjá mér hugrenningar tengdar við bergkonuna, sem sífelt koma í hug minn aftur, er eg minn- ist hennar. Þær hugrenningar snerta þann þátt trúarbragða, sem kallast lofgjörð—aðdáun mannssál- ar yfir guðdómleik tilverunnar, feginsóp frá mannlegu brjósti yfir þVí að komast í snerting við guð- legan mátt. Lofgjörð er trúarbrögðum sam- gróin frá alda öðli. í fegurstu skartklæðum máls hafa lofsöngvar streymt frá brjóstum skálda. Með eldmóði trúarhrifningar hafa lýðir landanna lofað Guð sinn fyrir gæzku hans. Hverri brennheitri bæn hefir lofgjörð veitt hita og kraft. Hverri þakkargjörð hafa Nýársóskir * frá heimkynni Heintzman Piano og heimsins fullkomnustu radios verzlun J.JL H.MfLEANfS 'Jhe Vðest's Oldest Jrfusic Housc 329 PORTAGE AVE. ekkert þessu máli við. Og sama máli gegnir með samband trúhneigðar og siðferðislegs þroska allstaðar og æfinlega, að þetta tvent er ekki eitt og hið sama. Og það sést oft i lífi manna, að sambandið milli guð- rækni og siðgæðis getur verið litið. Hér er miklu fremur um tvó svið að ræða. því að bæði eru til sið- ferðilega þroskaðir menn, sem eiga trúhneigð á lágu stigi, og siðferði- lega vanþroska menn, sem eiga aft- ur á móti trúhneigð á háu stigi. Og hversu æskilegt sem það væri, að þessir tveir þættir mannlegs þroska, trúhneigð og siðgæði, væru ætíð sem sterkastir og sem fastast ofnir saman, þá er það ekki svo að jafn- aði i reyndinni. Sem svipuð dæmi þessu mætti nefna þær staðreyndir, að ekki fer ætíð saman greind og góðvild, ekki heldur viljaþrek og hreysti, eða fegurð og mannkostir. Fjölbreytni' einstaklinganna virðast engin takmörk sett. Þegar trúhneigður maður flytur lofgjörð sina, gerir hann það af því, að hann á einhverja þörf eða þrá i sál sinni, sem krefst þess af hon- um, aö liann geri það. Hugmyndir hans cru harla lítilsigldar, ef hann gerir það eins og Kant kemst að orði, “til þess að þóknast Guði með því.” Og trúhneigð hans mun enn- fremur næsta haldlítið, ef hann ger- ir það til þess, að aðrir menn áliti hann eitthvað l'etri fyrir það. Og enn þá síður mun hann sjálfur telja sig siðferðilega fremri þeim, sem ekki taka þátt í lofgjörðinni með honum. Ekkert af þessu kemur lof- gjörð hans hið minsta við. Það er miklu fremur meðvitundin um eigin vanmátt, sem gerir þrá hans til guð- rækni ennþá heitari—það er þrá hans til þegnskapar í ríki heilag- leikans. Eina svarið, sem hann get- ur gefið, ef hann væri spurður um það, hversvegna hann flytji Guði lofgjörð, er þetta: “Eg lofa Guð, af því að eg elska hann. Eg lofa Guð, af því eg get ekki annað. Það er mér óviðkomandi, hvort eg hlýt nokkurn ávinning fyrir það. Það er mér óviðkomandi, hvort aðrir telja mér það til lofs eða lasts. Eg lofa Guð, af því eg elska hann.” Og þarf hann að gefa nokkra skiljan- legri greinargerð? Er yfirleitt hægt að elska nokkuð, án þess að þrá að lofa það ? Nei, ást og lofgjórð geta aldrei skilist að. í kirkjulegum efnum heyrist margt sagt á vorum dögum, sem minnir á beiðni Faríseanna: “Meist- ari, hasta þú á lærisveina þína.” Lofgjörð kristinna safnaða er í litlum metum hjá miklum fjölda manna. Þess eru úæsta mörg dæmi, að menn sýni kirkju sinni enga rækt, nema þar sé á boðstólum eitthvað, sem ekki er trúariegs eðlis. Prédik- anirnar í guðsþjónustum kirknanna, sem frá sjónarmiði trúhneigðra manna er aðeins ein grein guðs- þjónustunnar, hafa færst í þá átt að vera aðalatriði hennar í meðvitund margra. En af þvi hefir leitt, að þátttakan í lofgjörð og bæn kemur ekki til greina hjá miklum þorra kirkjufólks. Og jafnhliða hinni ó- eðlilegu áherzlu, sem lögð er á pré- dikanirnar, verður það ofan á, að sú prédikun er sumstaðar mest eft- irsótt, sem ekki er trúarlegs eölis— mest virði talin, ef hún seilist inn á önnur svið mannlífsins, svo sem vís- indi, skáldskap, félagsmál eða heim- speki. Að vísu eru kristin trúar- brögð svo víðfeðm, að þau láta sig varða alt þetta, en um leið og þau 'láta trúarlífið sjálft hverfa í skugg- ann og vanrækja að vekja það og endurnæra, hafa þau sagt af sér sem trúarbrögð. Um leið og kristnar guðsþjónustur eru hvorki lofgjörð- ar- né bænar-samkomur, heldur að- eins samkomur til fræðslu og skemt- unar, verður ekki séð, að kirkjan hafi neitt sér-hlutverk í lífi þjóðar- innar. Enda heyrist nú víðsvegar sú ályktun hugsuð til enda: “Hví ekki að leggja kirkjurnar niður?” “Meistari, hasta þú á lærisveina þína.” Segið prestunum að ‘þegja. Rífið kirkjurnar til grúnna, eða takið þær til “praktiskra” afnota. Texti minn hefir að flytja svar lofsöngvar lyft i hæðir. Ekkert er trúhneigðum mönnum jafn-eðlilegt og að lofa Guð. Hver gleðistund, hvert happ, hvert hrifningarefni verður þeim tilefni lofgjörðar. Hvert geislaflóð morguns og hvert roðagull sólarlags verður þeim endurskin frá upphimins dásemd og dýrð. Lofgjörð og hrifning yfir þvi að lifa, fögnuður yfir því að vera til. \rér mintumst hér í byrjun eins dags, er lofgjörð var flutt. Hópur vegfarenda með Jesú að förunaut lofar Guð fagnandi með hárri raustu. Hið sérstaka lofgjörðar- efni þessara manna er Jesús, og þau verk, er þeir höfðu séð hann vinna. Þeir þakka Guði þá blessun, sem þeim er veitt—að mega njóta ná- vistar hans. Þeim finst Jesús hafa opnað augu þeirra fyrir himneskri dýrð. Þeim finst hann hafa leitt þá að uppsprettum ótæmandi fagnaðar. Lofgjörðin ómar: “Friður á himni og dýrð í upphæðum.” En þarna eru samferðamenn, sem skilja þetta ekki. Þeirn finst ekkert það hafa borið við, sem geti orðið tilefni slikra fagnaðarláta. Þeir á varpa Jesú: Meistari, hasta þú á lærisveina þina. Vanda um við þá. Seg þú þeim að hætta þessum til- efnislausa lofsöng. En Jes.ús svarar þeim og segir: “Ef þessir þegðu, mundu steinarnir hrópa.” Mun ekki líkt ástatt hjá samtíð vorri gagnvart lofgjörðinni og þarna á veginum niður Olíufjallið ? í kirkjum kristinna þjóða eru lof- söngvar sungnir. Trúhneigðir menn hvar sem er á hnettinum, svala þar þeirri þrá sinni, sem er þeim helg- ust og hjartfólgnust: að opna sálir sínar biðjandi og lofsyngjandi. Þeim er það lífsþörf^sem ekki má ósvarað. Trúhneigð þeirra — satn- vitundin við guðdómleik og heilag- leik tilverunnar, sem vér lifum i, krefst þess. Þeir finna hlýna og birta í hugskotum sínum við að lof- syngja sameiginlega þessu dular- fulla heilaga og háa, sem hvelfist eins og himinn óendanleikans yfir öllum vegum vorum. Þeir finna veika viðleitni sína til fegra lifs auk- ast að þrótti við að hugsa um það, sem þeir vita helgast og háleitast i heimi. Þeir finna áhyggjur, sorgir og synd greiðast burt úr hugum sín- urn á lofgjörðarstundum, líkt og næturþoku fyrir hækkandi morgun- sól, og heiðrikja hrein og unaðsleg verður þar ráðandi. Þeim er þetta andleg næring, þeim er þetta innri þörf.—En það líta ekki allir lof- gjörðina sömu augum. Þær raddir eru ekki fáheyrðar á vorum dögum, sem fara niðrandi orðum um lof- gjörð. Þeir menn eru ekki fáir, sem eru þeirrar skoðunar, að allar slíkar guðræknisiðkanir séu hégóminn tómur. Immanúel Kant sagði á sínum tíma: “Alt, sem maðurinn þykist geta gert fram yfir gott líferni til þess að þóknast Guði, er tómur trúarhégómi og falsdýrkun á Guði.” —Með orðunum “gott líferni” á hann við hina siðferðilegu viðleitni mannanna. Hún ein hefir að hans dómi, gildi. En trúarlegar athafnir, lofgjörð og bæn, eru í hans augum hégómi, sem mennirnir ættu að leggja niður. Margir hafa komið síðan frá austri og vestri og talað í sama tón. Einn segir á þessa Ieið : “Hvaða blessun hefir guðrækni trú- arbragðanna ílutt mannkyninu ? Hafa lofsöngvar og bænir flutt nokkurn mann á hærra siðferðis- stig? Grær ekki vanþekking og vanrækt siðgæði líkt og óreyttur arfi í sálum mannanna jafnt fyrir því, þótt þeir syngi Guði heilagleik- ans og fullkomnunarinnar lof af fylsta f jálgleik ?” Það er næsta náinn skyldleiki milli þessara radda og mannanna, sem sögðu við Jesú: “Meistari, hasta þú á lærisveina þína.” Þeir munu eflaust hafa getað bent á, að mennirnir, sem gengu fagnandi og lofsyngjandi veginn niður af Olíu- fjallinu, væru í engu öðrum fremri í siðferðilegri breytni. Þeir hafa sjálfsagt haft þann dóm á hrað- bergi, að þessi liópur, sem næst gekk Jesú, væri samsafn lítilsigldra smæl- ingja, sem i heimsins augum áttu, kJesú við beiðni hinna kaldgeðja þegðu, mundu stíeinarnir hrópa.” Hversu dýrðleg yfirlýsing! Hversu óbugandi bjartsýni á möguleikum mannanna til trúarlegs lifs! Eða megum vér ekki skilja svarið á þá leið, að svo djúpar séu rætur lof- gjörðar í öllu, sem skapað hefir ver- ið, að sjálf lífvana náttúran eigi þar sina þátttöku. Þótt mannsraustin þagni, heyrist lofgjörðin óma í náttúrunni hvar sem augað eygir. Fjallið háa, fjólan smáa, fold og mar með lífsins safn, svalir jöklar, svartir rindar, sólukrýndir regintindar, lofa drottins dýrðarnafn.” Jafnvel steinarnir við veginn nið- ur Olíufjallið hafa sína lofgerð að flytja. — Þannig horfir þetta við fyrir hugskotssjónum Jesú. Þar sem mannssálin hefir náð mestri trúarlegri hæð og dýpt, heyrir hún kaldan steininn—sjálft táknið þagn- arinnar—hrópa lofgjörð til skapara sins.—Og ættu svo mennirnir að þegja? Ættu þá mannssálirnar, sem gæddar eru guðdómlegum ódauð- leik og eiga í sér fólgin frækorn heilagleikans, að sitja hjá og þegja? Hljótum vér ekki að óska, að þær muni aldrei gera það ? Verður ekki líf vort sýnu fátækara og snauðara, ef lofgjörðin hverfur þaðan alveg? Þráir ekki sérhvert af oss inst inni —hvað sem lífsskoðunum vorum liður, hvað sem breytni vorri líður, hvað sem menningarstigi voru líður —að taka þátt í hinni miklu lof- gjörð, sem jafnvel kaldir steinarnir hrópa ? Eg mintist hér að framan á berg- konuna við Ásbyrgi. Hún vakti hjá mér þessar hugleiðingar um lof- gjörðina. Hún stendur mér fyrir hugskotssjónum sem einn af þeim steinum, sem hrópa. Aður en menn stigu fæti á þetta land, hefir hún kropið þarna og horft móti himni með lofgjörðar- svip. Mér finst hún tala til vegfar- andans, sem fram hjá fer, á þessa leið: “Þótt sú tíð kæmi, að þjóð þessa lands hætti að lofsyngja Guði sín- um, og allir helgidómar, sem af mönnum eru reistir, yrðu rifnir til grunna, mun eg krjúpa hér og flytja lofgjörð Guði máttarins, gæzkunnar og dýrðarinnar—honum, sem var og er og verður. Eg mun krjúþá hér, unz mér tekst að kenna ókomnum knyslóðum að flytja lofgjörð af nýju og syngja Guði nýja söngva. Eg mun horfa í himinátt, þar til mér tekst að lyfta hugum þeirra í átt til Guðs. Eg mun rétta fram útbreidda lófa, þar til bæn og þakkargjörð verður Guði flutt frá sérhverri sál. Eg mun vaka, unz allir, sem fram- hjá fara, hafa skilið mál mitt og fest það í huga og hjarta.” —Prestafélagsritið. margir hverjir flekkaða fortíð. Þeir hafa eflaust getað sagt margt og margt í þá átt. En það kom bara Farísea, sem ömuðust við lofgjörð lærisveina hans. Hann svaraði og sagði: “Eg segi yður, að ef þessir1 ^ NOW IS THE TIME to start your training for a business career WRITE FOR COMPLETE PARTICULARS DAY AND NIGHT COURSES A Message. TRERE are, in the City of Winnipeg, as this advertisement goes to press, four Dominion Business Colleges, each thoroughly equipped and staffed by highly skilled teachers, capable of giving the most efficient training and instruc- tion in the various business courses listed. IF fewer schools could do the work, there would not be four. When four cannot do the work in accordance with the Dominion standard of training there will be more as needed. That is how the Dominion policy works. LET us make it clear that we are here to serve you, not to dictate to you. You will receive just the same attention in any one of our schools if you want one subject as if you wanted one dozen. ON the other hand, we believe that, where it is at all possible, the measure of special training should fit the previous general education. Many a student has found to his sorrow that a mad desire to get as little training as would serve, in as short a time as possible, has been rewarded with the cheapest of blind-alley jobs in the business office. And so we say: Capitalize your years of previous school training in the very best business courses that you can possibly take. You are going to get this training but once. Get the best. And get an adequate course at one of the DOMINION BUSINESS COLLEGE WINNIPEG r

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.