Lögberg - 12.01.1933, Side 8
Bls. S.
LÖGBERG, 'FIMTUDAGINN 12. JANÚAR, 1933
Úr bœnum og grendinni
Byrjið NYA ÁRIÐ
á heilsufræðilegan hátt
Au'ðfarnasti og skemsti vegurinn til heilsu,
er að drekka nóg af
MODERN
gerilsneyddri mjólk
Nægt af mjólk með máltíðum og milli þeirra,
tryggir lieilsu og hamingju.
MODERN DAIRIES LIMITED
Phone 201 101
“Þér getið þeytt rjóma vorn, en hvergi fengið betri mjólk’’
Fréttabréf
Skuklarfundur á hverju föstu-
dagskvöldi.
í kveld (fimtudag. 12. jan.) verð-
ur haldin álgæt hljómleika sam-
koma í Fyrstu lútersku kirkju.
Samkoman «r haldin af Miss Snjó-
laugu Sigurdson, sem nú þegar
hefir stigið svo falleg spor á
hljómlistarbrautinni, til arðs fyr-
ir Jóns Bjarnasonar skóla, þar
sem hún áður var nemandi. Miss
Evá Clare, kennari hennar, verður
þar einnig og aðstoðar. Ennfrem-
ur syngur frú Sigríður Olson, sem
allir Winnipeg íslendingar þekkja
fyrir listasöng hennar. Inngang-
ur er 35c. Samkoman verður óef-
að með því betra sem Winnipeig
íslendingar eiga kost á að njóta
innan sinna vébanda á þessum
vetri. Þessi unga og efnilega
listamær, ásamt þeim hljómsnill
ingum er aðstoða hana, á það skil-
ið að kirkjan verði full af fólki.
Mr. Finnur Stefánsson lagði af
stað til Vancouver, B.C. á mánu-
daginn. Gerði hann ráð fyrir að
verða þar um tíma hjá syni sínum
Stefáni, sem þar á heima.
Kvenfélag Fyrsta lúterska safn-
aðar heldur ársfund sinn í dag kl.
3 (fimtudag. 12. jan.) í fundarsal
kirkjunnar. Áríðandi að fundur-
inn sé vel sóttur af félágskonum.
Fyrir fáum dögum kom Miss
Inga Johnson, kjúkrunarkonan góð-
kunna, til borgarinnar frá Victoria,
B.C., þar sem hún hefir verið nokk-
ur undanfarin ár. Var hún hér í
Borginni nokkra daga hjá systrum
sínum, Mrs. Burns, og Miss John-
son, en fór á mánudaginn til Gimli,
þar sem hún hefir nú tekið við því
starfi, að vera fórstöðukona elli-
heimilisins, Betel. Er það mikið
gleðiefni öllum hinum mörgu vin-
um Betel, að jafn mikilhæf og ágæt
kona, sem Miss Johnson er, hefir
tekið að sér forstöðu heimilisins.
Má þess því fyllilega vænta, að
heimilið haldi öllum sínum fyrri
vinsældum, þó þær konur, sem frá
byrjun hafa veitt því forstöðu,
hafi nú lagt niður starf sitt til að
njóta rólegri ellidaga.
Mrs. Borghildur Guðbrandsdótt-
ir Frost andaðist að heimili sínu í
Minneota, Minn., hinn 29. desem-
ber, síðastl., 82 ára að aldri. Hún
kom til þessa lands frá íslandi 1873
og til Minneota 1878 og giftist það
ár, eftirlifandi manni sínum, Jó-
hannesi H. Frost. Munu þau hjón
hafa átt heima í Minneota jafnan
eftir það, að undanteknum fáum
árum, 1907-1911, sem þau voru í
Blaine, Wash.
Heklufundur í kveld (fimtud.)
Hinn 2. þ. m. voru gefin saman
i hjónaband, að heimili Mr. og Mrs.
O. K. Olafson, Gardar, N. Dak.,
yngsta dóttir þeirra, Aðalbjörg og
Kenneth Norman Hetland. Hjóna-
vígsluna framkvæmdi séra Harald-
ur Sigmar. Heimili ungu hjónanna
verður í Minneajxilis.
Iðunn og fleira
Rétt nýlega fékk eg Iðunni, 3.
hefti árgangsins 1932, og hefi sent
það til allra kaupenda. Síðasta
heftið kemur væntanlega fyrir lok
næsta mánaðar. Eru það nú enn
alvarleg tilmæ’i mín að fólk reyni
að standa í skilum með andvirði
þessara íslenzku rita er eg sel
hér vestra. Svo voru mér send
nokkur eintök af því sem hér er
greint:
1. Ljóðasafn Davíðs Stefáns-
sonar frá Fagraskógi, tvö bindi,
innbundin í tvenskonar band, hið
dýrara $6.50, hið ódýrara $5,50,
bæði bindin. Ljóð Bavíðs Stef-
ánssonar eru gimsteinar í islenzk-
um skáldskap, fyr og síðar, og út-
gáfan er vel vönduð að öllum frá-
gangi.
2. Ferðaminningar Sveinbjarn-
ar Egilssonar, 786 bls. í stóru
broti. Þetta er fyrirtaks skemti-
leg' og að mörgu leyti fróðleg bók.
Heildarverð $5.00. Sérstök hefti
80c.
3. “Dauðsmanns-sundið,” skraut-
prentað lag eftir Björgvin Guð-
mundsson. Ljóðin eftir Heine og
þýdd af Hannesi Hafstein. Verð-
ið á þessu prýðilega sönglagi, í
góðri kápu, aðeins 50 cent.
4. Fáein eintök af barnasögum:
“Svanhvít Karlsdóttir” og “Bakka-
bræður.” Verð 30c hvert kver.
Svo hefi eg enn fáein eintök af
Álfasögunum ágætu. Verð $2.00.
Magnus Peterson,
313 Horace St.,
INorwood, Man., Can.
Messur í Gimli prestakalli næsta
sunnudag, þ. 15, jan., eru fyrirhug-
aðar þannig, að messað verður í
gamalmennaheimilinu Betel kl. 9.30
f. h., í kirkju Víðinessafnaðar kl. 2
e. h., og í kirkju Gimli safnaðar kl.
7 að kvöldi. Mælst er til að fólk
fjölmenni.
SAMKOMA
Erindi: “Sem miklu skiftir fyrir
alla,” flytur Sigurður Sveinbjörns-
son (ef Guð lofar) í G.T. húsinu
(efri salnum) sunnudaginn 15. jan.
n.k. kl. 3 e.h. Allir velkomnir.
Æskilegt væri að sem flestir hefðu
íslenzkar sálmabækur með sér.
All is Quiet on the
Arborg Front
Nýkjörna sveitarráðið í Bifröst
hélt sinn fyrsta fund á þriðjudaginn
þann 3. þ. m., í Arborg, undir for-
ustu hins nýja oddvita, hr. B. J.
Lifmans. Blaðið Winnipeg Free
Press, flutti fregnir af fundi þess-
um þann 6. og lét þess getið, að
fundarstörf öll hefðu fram farið
næsta friðsamlega og samkvæmt
fastbundnu skipulagi.
Sendinefnd frá þeim félagsskap í
Bifröst sveit, er Unity Farmers’
League nefnist vitjaði á fund sveit-
arráðsins þenna áminsta dag, og
lagði fratn hinar og þessar kröfur;
nieðal annars krafðist hún þess, að
eigi skyldi beitt innheimtu skatta fyr
en að minsta kosti þá, er korn og
aðrar búnaðarafurðir yrði komnar í
viðunanlegt verð; krafist var þess
einnig að bújarðir yröu ekki seldar,
þó dregist hefði fyrir um skatt-
greiðslu fram yfir lögboðna skil-
daga ; ennfremur að kenslu í skólum
yrði haklið uppi ókeypis um full-
komið kenslutímabil; að annast yrði
um ókeypis læknishjálp og sjúkra-
hússvist félitlum búalýð til handa,
og samið yrði um greiðslufrest á
fasteignalánum og veðskuldabréf-
um. Krakist var þess og, að sakir
yrði látnar falla niður gegn þeim
tuttugu og þremur bændum, er tekn-
ir hefðu verið í hald i tilefni af upp-
þotinu þann 29. nóvember síðastlið-
inn.
I sambandi við kröfur þessa á-
nrinsta félagsskapar um ókeypis
skólakenslu, læknishjálp og ókeypis
sjúkrahússvist, svaraði oddviti því
td, að ósanngjarnt væri að ætlast til
slíks af nokkurri stjórn eins og f jár-
hagslegar sakir stæðu. Að því er
kröfuna up sakaruppgjöfina á-
hrærði, Iýsti addviti yfir því að slíkt
væri öldungis utan sín eigin vald-
sviðs, þó hann á hinn bóginn efaðist
ekki um, að gert yrði út um mál
hinna ákærðu manna á réttvísan og
drengilegan hátt.
Samvinna innan vébanda sveitar-
ráðsins er sögð að vera hin ákjósan-
Iegasta, og þess því að vænta að svo
vel ráðist til um úrlausn þeirra
mörgu vandamála er Bifröst sveit
um þessar mundir á að glíma við,
að sjálfstjórn hennar verði borgið.
ið. E. P. J:
TVENNAR LEIÐRÉTTINGAR
Síðastliðinn 1. nóvember er sagt
að hafi látist á Grace sjúkrahúsinu í
Winnipeg roskinn kvenmaður María
að nafni; þar er hún kölluð Sigurð-
ardóttir, en hún var Bjarnadóttir,
frá Daðastöðum á Reykjaströnd í
Skagafirði og þar ólst hún upp. Eg
var vel kunnug Maríu þessari; hún
talaði oft um Margrétu konu Bjarna
og kallaði hana jafnan stjúpu sína.
Mér fanst sem að Margrét myndi
hafa verið hennar bezti eða jafnvel
eini vinur.
Eg hefi rekist á enn eina missögn
í minningum Friðriks Guðmunds-
sonar, sem eg ekki get leitt hjá mér.
A meðal ógleymanlegra nefnir hann
Þórdísi nokkra Einarsdóttur, að
ætlun manna fjölkunnuga. Hann
kveður hana hafa verið systur As-
geirs Einarssonar frá Kollafjarðar-
nesi og þeirra bræðra. Það er ekki
rétt. Þeir áttu bara eina systur;
hún hét Ragnheiður og var móðir
Torfa í Ólafsdal, eg vísa til tíma-
ritsins Blöndu, þar er þáttur Torfa
á Kleyfum. Vera má að Þórdís
þessi hafi verið Einarsdóttir frá
Fagranesi i Þingeyjarsýslu. Þetta
áminsta hefti Blöndu er frá árinu
1923.
R. J. Daviðsson.
Mrs. Oddný Anderson, 71 árs
gömul, kona Mr. Alexanders Árna-
sonar Anderson, bónda í grend við
Winnipég Beach, andaðist að heim-
ili þeirra hjóna þ. 3. jan. s.l. Jarð-
arförin, er var fjölmenn, fór fram
þann 6. jan. Séra Jóhann Bjarna-
son jarðsöng. Sömuleiðis talaði þar
Mr. Jón Kjernested, vinur og ná-
búi þeirra Andersons hjóna. Flutti
hann fallegt og hlýft ávarp, bygt á
margra ára þekking og vináttu. Börn
þeirra Anderson hióna, flest eða öll
uppkomið fólk og gift. Mrs.
Anderson var merk kona og vinsæl.
Mun hennar verða minst frekar í
íslenzkum blöðum.—
Hvaða peningar?
Calgary bær i Alberta hefir
skuldað nrikið fé í Bandaríkjunum,
sem féll í gjalddaga nú um ára-
mótin. Vitanlega hefði bærinn ekk-
ert á móti því, að borga skuld sína,
en hann vildi borga hana í pening-
um síns eigin lands, án þess gð
þurfa að sæta afföllum þeim, sem
nú eru á Canada peningum í Banda-
ríkjunum. Það s’em hér er um
nrikið fé að ræða, þá myndi Cal-
gary þurfa að greiða $300,000
meira ef borga bæri í Bandaríkja-
peningum. Því veldur gengismun-
ur. Þennan gengismun hefir bæj-
arstjórnin i Calgary neitað að
greiða, en skuldheimtamennirnir í
Bandaríkjunum krefjast hans þar á
móti afdráttarlaust. Ef Calgary
búar ættu nóg gull til að borga með
skuld sína, væri ekkert um að tala,
en því er ekki að heilsa. Væntan-
lega verða málaferli út af þessu
og er ekki ófróðlegt að sjá hvernig
þeim lyktar.
Nýr söngflokkur
Þau tíðindi hafa nýjust gerst í
hljómheimum fslendinga í Winni-
j>eg, að stofnaður hefir verið söng-
flokkur (kvennakór) undir forystu
hr. Brynjólfs Thorlákssonar. Með-
limir þessa söngflokks eru konur úr
gamla söngflokknum, Icelandic
Choral Society. Flokkur þessi hafði
sína fyrstu æfingu í Jón Bjarnason
Academy síðastliðið mánudagskvöld
og fór vel úr garði. Ber stofnun
þessa nýja söngflokks óneitanlega
vott um glæddan metnað vor á með-
al, söngmenning viðvíkjandi, og spá-
ir góðu um framtíðina.
E. P. J.
ATHYGLI — Tombóla og dans
verður haldin mánudag. 13. febr.
n.k., til arðs fyrir 50 ára minning-
arsjóð St. Stúkunnar hér í Mani-
toba. Nánar auglýst síðar.
GEFID AD BETÉL
Dr. B. J. Brandson—130 pd. kal-
kúnar.
J. T. Goodman, Winnipeg— 50 pd.
hangikjöt.
H. Anderson, Gimli—60 pd. hangi-
kjöt.
Th. Thordarson, Gimli — 5 sekkir
hveitis, No. x.
Ijyngdal and Bjarnason — 100 pd.
sykur.
Soffanias Thorkelsson, Wfnnipeg,
næturgreiði, $10.00.
Mr. og Mrs. Guðm. Jónsson, Vogar,
$10.00.
S. Olafson, Lundar, Man. $3.00.
Fallið úr desember lista; Mrs.
Sigríður Hallgrimsson, 1880 Grand
Ave., St. Paul, Minn. $5.00.
Innilega þakkað,
/. Johannesson, féhirðir.
675 McDermot Ave.
JOHN GRAW
Fyrsta ílokks klæðskeri
Afgreiösla fyrir öllu
Hér njóta penlngar yðar sln að
fullu.
Phone 27 073
218 McDBRMOT AVE.
Winnipeg, Man.
Jakob F, Bjarnason
TRANSFER
Annast greiðlega um alt, aem að
flutningum lýtur, smáum eða atór-
um. Hvergi sanngjarnara verð.
Heimili: 762 VICTOR STREET
Slmi: 24 500
DR. T. GREENBERG
Dentist
Hours 10 a.m. to 9 p.in.
PHONES: Office 36 196
Res. 51 455
Ste. 4 Nofman Apts.
814 Sargent Ave., Winnipeg
íslenska matsöluhúsíð
)>ar sem íslendlngar I Winnipeg og
utanbæjarmenr, fft sér m&itiðlr og
kaffi. Pönnukökur, skyr, hanglkjð*
og róllupylsa ft takteinum.
WEVEL CAFE
692 SARQENT AVE.
Slml: 37 464
RANNVEIG JOHNSTON, elgandl
Bantry, N.D., 3. janúar, 1933
Nú síðastliðin tvö ár hafa ver-
ið erfið á allan hátt, hvað fram-
Ieiðslu snertir, þó maður fáist
ekki um viðskiftakreppuna, þvf
þar fá allir jafnt á að kenna. En
hér hefir verið alger brestur á
allri framleiðslu jarðar afurða.
Ekki eitt corn-hár fengist úr jörðu
nú í tvö sumur, þar af leiðandi
ekki þurft að taka út bindara, og
sama sem ekkert gras heldur
vegna ofþurka og engispretta, sem
hjálpaði til að eyðileggja alt. Til
skepnufóðurs urðu menn að reita
þystils rusl af ökrum og var það
bæði ónóg o'g lélegt. í fyrra vetur
urðu flestir að taka lán hjá
stjórninni til að kaupa fóður. Svo
urðu flestir að taka útsæðislán
síðastliðið vor upp á uppskeruna
í haust, en hún brást algerlega.
Sama útkoma varð nú í haust með
fóðurskort og útlitið því ekki gott
nú hvað fóður snertir, því langur
er gjafatíminn, því hann byrj-
aði mánuð fyr en vant er—kom al-
gerlega alt á gjöf um miðjan
október. Nú hafa menn ekkert
korn-hár að setja í jörðu næsta vor
og engir peningar til að kaupa
nokkuð fyrir og útlitið því ekki líf-
legt fyrir neinum hér á allstóru
svæði.
Fáir viðburðir hafa gerst eða
orðið á þessu síðasta ári. Einn
gamall og örvasa maður um nírætt
dó síðastliðið sumar, Lárus Björn-
son Freeman, ættaður frá Sauða-
felli í Dalasýslu, bjó síðast á
Harastöðum í Miðdölum, var
búinn að vera blindur í nokkur ár.
Þrenn hjónefni voru gift á árinu:
Helgi G. Goodman og Salvör S.
Johnson, Valtýr G. Freeman og
Hólmfriður J. Ásmundson, og
Franklin A. Goodman—hans kona
norsk—alt myndar fólk. Ástar-
lífið heldur sinn vana gang þó
tímarnir séu harðir. Ef ekki
væri svo þá hefðu engvir af nein-
um, erfiðum né góðum, tímum að
segja, og þar með hefði eg sjálfur
ekki verið til að hripa þessar lín-
ur, það vita allir. Byltingar í
andlegum framförum fer hér h\
hægu brokki—engir skeiðsprettir
né stökk, svo hver býr að sínu—
lifir við þau lífskjör sem honum
hefir hlotnast á þessum erfiðu árs-
tímum og viðskiftakreppu.
GJÖF OG ÁVARP
Hinn 23. les. síðastl. gaf heim-
ilisfólkið að Betel Mrs. Ásdísi
Hinriksson vandaða stundaklukku
i jólagjöf og afhenti Miss Margrét
Árnason gjöfina. Jafnframt flutti
Mr. Thorbjörn Magnússon henni
eftirfylgjandi ávarp:
Hjartkæra Mrs. Hinriksson!
Blessuð jólin eru enn á ný kom-
in. Við þau eru tengdar ótelj-
andi endurminningar frá mörgum
liðnum árum, bæði á íslandi og
eins hér í álfu, í Canada eða
Bandaríkjunum. Þú, Mrs. Hin-
riksson, átt ekki minstan þáttinn
í þeim endurminningum. Því
hvort sem við höfum verið hér á
Betel mörg ár eða fá hefir þú
gefið okkur mikla jólagleði. Þú
hefir verið okkur öllum til bless-
unar allan ársins hring. Þú hefir
verið okkur styrkur í erfiðleikum
og huggun í sorgum. Þú hefir
hjálpað til að leysa vandamál okk-
ar. Þú hefir auðsýnt okkur ná-
kvæmni og þolinmæði. Þú hefir
verið sönn og göfug heimilismóð-
ir. Við erum þér þakklátari en
við kunnum að lýsa. Hvernig
getum við þakkað þér? Við biðj-
um Guð að launa miklu betur en
við getum þakkað alla þína dásam-
legu umönnun á öllum liðnum
stundum, sem við höfum notið
þín. Ekki sízt þökkum við öll
góðu jólin, sem þú hefir hjálpað
til að gefa okkur. Þessi fáu þakk-
arorð eru samróma með þakklæti
sem túlkað er með lítilli gjöf, sem
við biðjum þig að þiggja af okk-
ur, heimilisfólkinu á Betel. Guð
gefi þér gleðileg jól, og breiði
b’essun sína yfir alla þína fram-
tíð.
Þakkaði Mrs. Hinriksson fyrir
þessa indælu gjöf og þessi vinar-
orð með fáum hlýjum orðum.
CARL THORLAKSON
úrsmiður
627 Sargent Ave., Winnipeg
Sími: 27 117. Heima 24 141
1.
Miss Snjólaug Sigurðsson
heldur
PIANO RECITAL
í Fyrstu lútersku kirkju á fimtudagskveldið þann 12. þ. m.,
kl. 8.30, með aðstoð Miss Eva Clare, er leikur á 2nd piano.
MRS. B. H. OLSON
syngur einsöngva, með aðstoð Mrs. Hovey.
INNGANGUR 35c.
Arðurinn af samkomunni gengur til Jón Bjarnason Academy
B
0
B
0
Ti
0
B
0
B
0
B
Bura Coal and Save Money
Per Ton
$ 5.50
6.25
10.50
11.50
11.50 Q
13.00
BEINFAIT LUMP
DOMINION LUMP
REGALLUMP
ATLAS WLDFIRE LUMP
WESTERN GEM LUMP
FOOTHLLS LUMP
SAUNDERS CREEK “Big Horn” Lump 14.00
WINNIPEG ELEC. KOPPERSCOKE 13.50
FORD OR SOLVAY COKE 14.50
CANMORE BRIQUETTES 14.50
POCAHONTAS LUMP 15.50
MCfURDY CUPPLY f0. I TD.
V/ Builders’ |3 Supplies Vsand JLi Coal
Office and Yard—136 PORTAGE AVENUE EAST
94 300 ■ phones - 94 309
B
B
0
0
0
s
0
s
0
s
10
E. J. Breiðf jörð,
Announcing the New and Better
MONOGRAM
LUMP . $5.50 Ton
COBBIÆ . $5.50 Ton
STOVE . ..... $4.75 Ton
Saskatchewan’s Best
MINEHEAD
LUMP . $11.50 Ton
EGG .. $11.50 Ton
PREMIER ROCKY MOUNTAIN
DOMESTIC COAL
Wood’s Coal Company Limited
590 PEMBINA HIGHWAY
45262 PH0NE 49192
WEST END BRANCH OFFICE (W. Morris)
679 Sargent Ave.—Phone 29 277