Lögberg - 16.02.1933, Page 2
Bls. 2.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN16. FEBRÚAR, 1933.
Ferð um Strandir
(Framh.) --------
Það var á Bjarnarfjarðarhálsi,
að Svanur á Svanshóli vilti um
menn ósvífs forðum, þegar þeir
leituðu eftir Þjóstólfi fóstra Hall-
gerðar systurdóttur Svans.— “Lít-
ils mun við þurfa,” sagði Svanur,
gekk út og tók 'geitarskinn og veif-
aði þvi yfir höfði sér og tautaði:
“Verði þoka og verði skrípi og
undur öllum þeim, er eftir þér
sækja.” Þá brá sorta fyrir augu
manna ósvífs, og þeir sáu ekki, og
féllu af baki, týndu hestum og
gengu í fen ofan sjálfir, en sumir
í skóginn svo að þeim hélt við
meiðingar. Þannig tók Svanshóls-
bóndinn á móti þeim, er sóttu
hann heim forðum.
En enginn vilti um okkur Gunn-
laug á Bjarnarfjarðarhálsi í
þetta sinn, enda áttum við aðeins
friðsamleg erindi við bændur.
í Bjarnarfirði er töluvert und-
irlendi og nokkrir bæir. Næstum
víð hálsinn, þar sem við komum
niður, er Skarð. Þar komum við
og fengum hressingu, en héldum
síðan inn að Goðdal, sem er afdal-
ur inn af Bjarnarfirði. Heldur var
leiðin ógreið inn að Goðdal. Hann
er þröngur, og himingnæfandi
snarbrött fjöll til beggja hliða.
Inst inni i dalnum er bærinn og
mun það vera einasti staðurinn,
þar sem nokkurn veginn er óhult
fyrir snjóflóðum. Neðar í dalnum
sjást gamíar bæjarrústir á hól
litlum, en snjóflóð grandaði hon-
um þar. — Engan dal hefi eg séð
sem eins hefir mint mig á heim-
kynni útilegumannna, úr íslenzk-
um þjóðsögum, eins og Goðdal.
í þjóðsögum okkar er búskap-
ur útilegumanna oftast fyrir-
mynd. í flestum voru þeir meiri
fyrir sér en bygðarmenn. Hjá
þeim var grasið hærra, sauðirn-
ir feitari og mennirnir stærri
og sterkari. ; Margar útilegu-
mannasögurnar okkar eru draum-
ar þjakaðrar kynslóðar, um það
sem hún varð að vera án.
En hvernig var nú umhorfs á
þessum afskekta bæ? Stórar tún-
sléttur mæta fyrst auganu og helj-
ar miklir grjótgarðar, hlaðnir úr
því, sem upp úr flögunum kom,
þegar holtið var brotið til rækt-
unar. Framræzluskurðir blasa
við í mýrinni ofan við bæinn, því
nú er þeim Goðdælum orðið ljóst,
að þar er bezta túnstæðið. Og
heima við húsin stendur Herkúles
sláttuvél. Útvarpsloftnet er yfir
bænum, því viðtæki hafa þeir
þessir afdalamenn. Aligæsahóp-,
ur gengur heima á túni, við bæj-
arlækinn, sem rennur glóðvolgur
upp úr iðrum jarðar.
í Goðdal býr Kristmundur Jó-
hansson og hefir búið lengi. ÞaÖ er
hann og synir hans sem hafa rutt
grjótinu og sléttaS, ræst fram og
ræktað. Sonur bóndans í GoSdal,'
Jóhann, er búfræðingur'frá Hólum |
og hinn áhugasamasti maSur. í GoS-
dal hefir Kristmundur bóndi komið
upp stórum barnahóp.
Mikill jarðhiti er þarna innar í
dalnum, óhemjumikið af heitu vatni.
Það heitasta mun vera 53 °. Góö
garðstæði hafa þeir Goðdalsmenn
heima við bæinn og eru áhugasamir
um garðræktina eins og annað.
Kartöflur eru þar og gulrófur og
blómkál sé eg þar einnig. Og i reit
skamt fyrir ofan bæinn, á heitum
stað, sá eg þroskað bygg. í fyrra
fengust þar 1000 pund af ágætum
kartöflum upp úr garði, sem var
140 fermetrar að flatarmáli. Viss
er eg um, að þarna eru góð skilyrði
til garðræktar og margs þurftu þeir
að spyrja um hana, Goðdalsmenn,
þegar ráðunauturinn var kominn
svona upp í hendurnar á þeim. Svo
höldum við heim að bæ-aftur. í
skemmunni sé eg allmarga úttroðna
poka og þar sem eg er maður for-
vitinn, þá gái eg í þá. Þeir voru
allir fullir af fjallagrösum. Máske
á grasatekjan eftir að komast til
vegs og virðingar aftur hjá okkur
íslendingum, og þá væri vel. Og
fjallagrös varð eg var við á fleiri
bæjum í Bjarnarfirði. Svo setjumst
við inn í baðstofu og dætur Krist-
mundar koma með kaffi. En ung-
frú Sigrún suður í Reykjavík, les
KAUPIÐ AVALT
LUMBER
hjá
THE EMPIRE SASH & DOOR CO LTD.
HENKY AVE. KAST - - WINNIPEG, MAN.
Tard Office: 6th Floor, Bank of Hamilton Chamben.
okkur í útvarpið, það litla sem í
fréttum var þann daginn.
Svo er kvaðst og haldið af stað.
Skuggsýnt er orðið og alt of
skamma stund gat eg staðið við í
Goðdal. Dimt var orðið þegar við
komum á Svanhól. Engu geitar-
skinni veifuðu húsráðendur móti
okkur, heldur tóku okkur hið alúð-
legasta og matur heið þar á borðum
og uppbúin rúm.
Næsta morgun notaði eg til að lit-
ast um kringum bæinn. Þar eru
einnig miklir jarðhitar, en heita
| vatnið víst ekki yfir 40°. Á Svans-
hóli sá eg ágætlega vel hirta kar-
töflugarða og fallegar kartöflur.
Þar sá eg 4 kartöfluafbrigði og var
hverju haldiS út af fyrir sig eins og
vera ber. Voru það “Up to date” og
“Eyvindur,” “Rósin” og “Blálands-
j keisari.” Öll voru þau sæmilega
vaxin, en þó sýndist okkur “Eyvind-
ur” þroskabeztur—og var eg ekkert
hissa á því, því eg þekki Eyva minn.
Á Svanshóli býr ekkja með börn-
um sínum, en bróðir hennar Ingi-
mundur er þar ráðsmaður. Synir
húsmóðurinnar tveir, báðir innan
við fermingu höfðu brotið sér land
í garð út af fyrir sig. Hann var
einnig ágætlega hirtur og er eg viss
um, að þeir drengirnir hafa fengið
, fleiri hundruð pund af kartöflum
| upp úr garði sínum í haust. Á
' Svanshóli þarf víða að flytja mold
að á jarðhitasvæðin, en þá geta
garðstæði orðið þar góð. Steinsnar
frá Svanshóli er annar bær sem heit-
ir Klúka. Þar eru einnig margar
heitar uppsprettur og sömu skilyrði
til garðræktar og á hinum bæjun-
um, eðaxmáske enn meiri, því jarð-
hiti er þar víst einna mestur. Viðar
eru laugar um Bjarnarfjörð, á
Bakka, í Ásmundarnesi og i Kald-
rananesi er laug niðúr við sjó.
Bóndinn á Klúku hefir nýlega flutt
bæinn úr stað til þess að geta hitað
hann upp með heita vatninu. —<
Skamt fyrir ofan bæinn á Klúku,
við túngarðinn er “Gvendarlaug,”
sem Guðmundur góði vígði á sinni
tíð. Er hún eiginlega hinn merkasti
forngripur, prýðilega upp hlaðin,
hleðslan auðsjáanlega ævaforn og
hefir haldið sér vel. Hún hefir auð-
sjáanlega verið notuð fyrir baðlaug,
. hitinn er 390. Laugin kemur upp úr
móhellu og er á að gizka 190 cm.
Iöng, -50 á breidd og rúmlega meter
djúp.—Norðanvert við Bjarnar-
fjörð á Kaldbaksdal er Önundar-
haugur. Er sagt að þar sé Önundur
tréfótur heygður í skipi sínu. Sögöu
þeir mér, Strandamenn, að grjót
hryndi á hauginn að ofan, en sjór
væri að byrja aÖ brjóta hann að
neðan. Ef svo er, væri hin mesta
nauðsyn að rannsaka haug Önundar
áður en hann verður fyrir miklum
skemmdum.
Laust eftir hádegi kvöddum við
Gunnlaugur fólkið á Klúku og
Svanshóli og héldum heimleiðis og
þótti mér að ýmsu leyti merkilegt
að koma í Bjarnarfjörðinn. Þar
fara Strandaf jöllin að hækka og alt
verður hrikalegra en sunnar í sýsl-
unni. '1
Eg hefi altaf haldiö, að í hverri
sýslu á voru landi megi rækta nægi-
legt af kartöflum handa íbúunum;
þó ekki verði kartöflur ræktaðar á
hverjum bæ. Eg er sannfærður um
að hitasvæðin í Strandasýslu geti
orðið þýðingarmikil í þessu tilliti
fyrir Strandamenn. Áhugann fyrir
því hafa þeir, en “praktisk” þekking
þeirra á garðyrkju þarf að aukast
frá því sem nú er. En þó staðir séu
þar víða, þar sem miklum erfiðleik-
um er bundið að rækta kartöflur, þá
er til svo margt annað, sem hægt er
að rækta sér til heilsubætis á þeim
stöðum. Fús væri eg að fara í fyrir-
lestraferS til þeirra og lesa yfir þeim
um þessi efni.—Víðar eru jarðhitar
í Strandasýslu en í Bjarnarfirði,
bæði sunnar og norðan, en ókunnug-
ur er eg á þeim leiðum. Framh.
—Tíminn. Ragnar Ásgeirsson,
Fyrir hundrað árum
eins og nú
Alt það böl, sem komið hefir yfir
Evrópu eftir stríðið, mátti hún áður
þola að loknum Napóleonsstyrjöld-
unum, Eini munurinn á ástandinu
1930 og 1830 cr sá, að 1830 voru
það hinir sigruðu, en 1930 sigurveg-
ararnir, sern heimskreppan kom
harðast niður á. Kreppan lýsti sér
alveg eins fyrir 100 árum og nú:
stórkostleg aukning ríkisskulda, dýr-
tíð, gengishrun og verðfall. Og þá
spáðu menn því, eins og nú, að dagar
“auðvaldsins” vœru taldir. Þá ritaði
hinn frægi enski sagnfrœðingur og
stjórnmálafrœðingur Lord Thomas
Babington Macaulay eftirfarandi
grein í “Edinburgh Reviezv”:
Saga mannkynsins frá öllum öld-
um sýnir það og sannar, að þrátt
fyrir stríð, skatta, hungursneyð,
hættuleg innflutnings- og útflutn-
ingsbönn og önnur verri valdboð,
hefir framtak einstaklingsins altaf
sigrast á erfiðleikunum, þvi hefir
tekist að skapa ný verðmæti örar
heldur en stjórnirnar gátu eytt þeim
og bæta úr öllu því, sem skaðsemd-
armennirnir höfðu unnið. Maður
sér að þjóðarauðurinn vex og lífs-
kjörin batna þrátt fyrir spillingu og
óhóflega eyðslu valdhafanna.
Nú sem stendur eru hörmunga-
tímar. En hvaða neyð er þetta, bor-
ið saman við sögu seinustu 40 ára?
Nú eru hærri skattar heldur en hin-
ir þrautpíndu skattþegnar höfðu
nokkuru sinni trúað að gæti átt sér
stað; ríkisskuldir eru meiri en
nokkur dæmi eru til áður; tollar eru
lagðir á lífsnauðsynjar og gjaldmið-
illinn hefir hrapað í verði. En —
þrátt fyrir þetta—er þjóðin þá fá-
tækari heldur en hún var árið 1790!
Vér erurn sannfærðir um, að þrátt
fyrir allar yfirsjónir stjórnendanna,
hefir þjóðin auðgast ár frá ári. Það
hafa komið fyrir timabil, að hún
hefir staðið i stað, eða miðað aftur
á bak, en það hefir aðeins verið um
stundarstakir og yfirleitt er ekki
minsti efi á því, að velmegun fer
stöðugt vaxandi. Það getur komið
útsog sem allra snöggvast, en flóðið
heldur áfram fyrir því.
Ef vér spáðum því nú í dag að
árið 1930 muni verða 50 miljónir
mánna í Bretlandi og lifa við miklu
betri kjör en vér lifum nú, betri
fæðu, betri föt og betri húsakynni;
að Sussex og Huntingdonshire verði
þá betur stæð heldur en frjósömustu
hlutar West Riding eru nú; að rækt-
að land, eins og garðar, nái upp á
brún á Ben Nevis og Helwellyn, að á
hverju heimili verði vélar, sem enn
hafa ekki verið f undnar upp; að þá
verði ekki vegir notaðir, heldur járn-
brautir og að menn ferðist eingöngu
á þeim farartækjum, sem knúin eru
áfram af gufu; að ríkisskuldir vor-
ar, hversu ógurlegar sem oss virðast
þær, verði í augum þátíðarmanna
hlægilega litlar og þeim veittist auð-
velt að greiða þær að fullu á 1—2
árum. Bf vér spáðum öllu þessu,
þá mundu menn telja oss vitskerta.
En án þess að spá neinu, skulum
vér taka þetta fram: Ef einhver
hefði spáð því í parlamentinu, sem
kom saman til neyðarráðstafana eft-
ir hrunið 1720, að árið 1830 mundi
velmegun i Englandi verða svo mik-
il að árstekjur ríkisins yrði meiri
heldur en allar skuldir þess voru þá,
og þóttu óbærilegar; að á móti
hverjum einum sem þá átti 10 þús-
und sterlingspund mundi 1930 verða
fimm, sem ætti 50 þús. stpd., að
manndauði yrði þá helmingi minni;
að pósttekjurnar einar yrði þá meiri
heldur en allir skattar og tollar á
dögum Karls II.; að menn gæti siglt
yfir höfin, án þess að skeyta nokkuð
um hvaðan vindur stæði og ekið á
landi, án þess að nota hesta; ef ein-
hver hefði spáð þessu mundu for-
feður vorir ekki hafa lagt meiri
trúnað á það, en sögu Gullivers. Og
þó mundu allir þessir spádómar
hafa ræst.
Enda þótt hver maður viðurkenni,
að stöðug framför hefir orðið á öll-
um sviðum fram að þessum tíma,
virðist enginn treysta á það, að
samskonar framfarir verði hjá
næstu kynslóðum. Vér getum að
vísu ekki sannað, að þeir, sem halda
því fram að mannkvnið hafi nú náð
fullnaðarþroska, hafi lifað sitt hið
fegursta, hafi rangt fyrir sér. En
hið sama sögðu íorfeður vorir, og
höfðu jafnmikið til síns máls. Árið
1640 sögðu menn: Einnar miljónar
útgjöld á ári nægja til þess að
steypa oss • i eymd og volæði. En
1660 var viðkvæðið: með 2 miljóna
útgjöld á ári fer ríkið á höfuðið.
“6 miljóna útgjöld á ári og 50 milj.
ríkisskuld ! Bandamenn vorir hafa
komið oss á kúpuna,” sagði 'Swift.
“140 miljóna skuld” hrópaði, Junius,
“það er meira en vér nokkru sinni
getum borgað.” 240 miljóna skuld!
hrópuðu allir stjórnmálamenn í kór
1783, “það væri ráðsnjall ráðherra
sem tækist að bjarga svo hörmalega
stæðu ríki!” Vér vitum nú; að ef
ríkisskuldirnar hefðu ekkert aukist
siðan 1783, skuldir þær, sem þeir
Pitt, Fox og Burke höfðu svo mikl-
ar áhyggjur út af, þá væri það nú
leikandi fyrir oss að borga þær með
sköttunum, enda þótt þeir væri
miklu lægri heldur en þeir nú eru.
Hvers vegna ættum vér þá, þegar
vér höfum ekki yfir annað að lita
en sífeldar framfarir og batnandi
hag, að búast við aftur för og hruni
í framtíðinni?
Það er ekki fyrir framkvæmdir
hinnar alvöldu og alvitru rikisstjórn-
ar að þjóðin hefir tekið vaxandi
framförum, heldur vegna hyggjuvits
og dugnaðar einstaklinganna. Og
vér treystum óhræddir á það
hyggjuvit og þann dugnað í fram-
tíðinni. Hið besta, sem ráðandi
stjórnmálamenn vorir geta gert, er
það, að hugsa eingöngu um sitt
starf, lofa fjármagninu hindrunar-
laust að leita uppi bestu auðsupp-
spretturnar, láta framboð og eftir-
spurn skapa réttlátt verð á nauð'-
synjavörum, lofa iðni og hyggjuviti
að fá sin verðskulduðu laun, en leti
og heimsku verðskuldaða refsingu.
Þeir eiga aðeins að kappkosta að
vernda friðinn og eignarréttinn,
draga úr réttarfarskostnaði og gæta
hinnar ströngustu sparsemi i með-
ferð fjár hins opinbera. Ef þeir
gera það, þá er engin hætta á öðru
en að þjóðin sjálf sái um alt annað.
—Lesb. Mbl.
Samband kirkjnfélag-
sins við önnur
kirkjufélög
Það var minst á þetta mál í Sam-
einingunni fyrir stuttu, á þá leið,
að fyllilega mætti vænta þess, að til
sameiningar dragi. Vafalaust eru
ýmsir að hugsa um það mál.
I því sambandi virðist ekkert á
móti því að minnast á þann hugsun-
arhátt, sem er óðum að ryðja sér
til rúms meðal lúterskra kirkjufé-
laga í Ameríku.
Lúterska kirkjan hérlendis skift-
ist í marga mis-stóra flokka: The
United Lutheran Church in Ameri-
ca (U.L.C.A.) er talin stærsta
deildin, og telur á aðra miljón
fermda meðlimi. Næst að stærð
kemur Artierican Lutheran Con-
ference, og þar næst Synodica Con-
ference, og ótal smærri flokkar og
kirkjufélög.
Áður fyr var skiftingin janvel á-
kveðnari en hún er nú. Þjóðernis-
leg landamerki voru skilrúm, sem
ekki var komist yfir. Nú er hugs-
unarhátturinn að breytast meir og
méir með hverju ári. Sérkenni
frumbýlinganna, sem orsökuðu
þessi skilrúm, eru að mestu horfin
með þeim sjálfum, og skilrúmin að
hverfa. Sameiginlegt tungumál,
margvísleg viðskifti, greiðari sam-
göngur og margt fleira, kemur
mönnum til að skilja hvern annan.
Því meir sem menn kynnast, þess
ljósara verður það, sem er sameig-
inlegt með þeim. Menn eru farnir
að láta sér skiljast, að þeir eiga sam-
eiginlega köllun, sem ekki verður
rækt nema með samtökum. Því há-
leitari sem köllunin er, þess meiri
er ástæða til samtaka um fram-
kvæmdir.
Meðlimum lútersku kirkjunnar í
Ameríku er það ljóst, að Guð ætlar
I henni háleitt og ákveðið hlutverk.
| Verður það unnið aðeins með því
móti, að menn standi saman, ein-
dregnir og óskiftir. Mun þessi
skilningur vera að verða ríkjandi
meðal flestra, ef ekki allra kirkju-
deilda kirkju vorrar; því tímabært
að íhuga þetta mál fyrir alla, hvaða
afstöðu, sem þeir annars kunna að
taka í því.
Málið er búið að vera all-lengi á
dagskrá hjá kirkjufélaginu, en
naumast hefir það verið tímabært
fyr en nú. En nú er áreiðanlega
kominn tími til þess að skoða málið
frá öllum hliðum. Það verður að
athuga það frá hlið eigin hagsmuna
og frá hlið annara kirkjufélaga.
Kirkjufélag vort er með smæstu
deildum kirkjunnar. Presta sína
flesta hefir það orðið að fá að, eða
fá þá mentaða í skólum annara
kirkjufélaga lúterskra, og með f jár-
munalegum styrk þeirra.
Skóla hefir verið haldið uppi í
nafni kirkjufélagsins. En til þess
hefir þurft að fá gjafafé svo þús-
undum skifti frá sterkari félögum.
Trúboðssyæði vort er að ganga
saman, og söfnuðir að veslast upp.
Vegna fjárskorts ekki hægt að lið-
sinna þeim eftir þörfum.
Það er einróma vitnisburður ver-
aldarsögunnar, að smá flokkar, geta
ekki haldið sér út úr til lengdar;
þeir hverfa að endingu, sem dropi í
sjóinn. Saga Nbrðmanna, sem eitt
sinn settust að á Frakklandi, Skot-
landi, Rússlandi o. v., sýnir þess
dæmi.
Ótaldir eru þeir, sem kirkja vor
hefir mist hér, af þessari ástæðu.
Málshátturinn segir: “Aðskildir
föllum vér, sameinaðir stöndum
vér.”
Það virðist því liggja fyrir kirkju-
félaginu, annaðhvort að gera sam-
band við stærri og sterkari deildir
innan kirkju vorrar, og sameina
okkar smáu krafta með þeirra til
þess að framkvæma hlutverk það,
sem okkur er ætlað að vinna; að
öðrum kosti að dreifast meðal ann-
ara kirkjudeilda, eða eiga á hættu að
verða að engu trúarlega.
Dr. Boe, yfirmaður Ólafs helga
skólans í Minnesota, lét svo um
mælt fyrir nokkru:
“Lúterska kirkjan í Ameríku
skiftist í þrjá aðal flokka, svipaða
að vöxtum. Fáein kirkjufélög, sem
standa utan þeirra eru fámenn, og
mun annaðhvort, að þau nálgast
hinar stærri deildir og sameinast
þeim, eða þau tapast kirkju vorri.”
Og enn fremur:
“Til þess að boðskapur lútersku
kirkjunnar fái notið sín til fulls,
þarf að komast á vinsamlegt sam-
band, og eindregin samvinna meðal
meðlima hennar.”
Athugi maður þetta mál frá hlið
annara félaga, getur margt komið
til greina. Ekki má kirkjufélagið
vera í neinhi ávissu um það efni.
Ekkert er heldur unnið við það, að
gera sér upp ímyndaðar hættur við-
víkjandi sambandi við önnur félög.
Það mætti virðast hugsanlegt, ef
kirkjufélag vort gengi í félag með
stærri félögum, að einstaklings rétti
þess væri hætta búin. Mér skilst að
afstaðan í þessu tilfelli sé svipuð
þvi, eins og þegar menn ganga í
söfnuð, eða þegar söfnuðir samein-
ast félagsböndum. Einstaklingarnir
missa ekki réttar síns á neinn hátt;
miklu fremur mun þeim verða meira
úr kröftum sínum, og starfið verður
öllum léttara og meira kemst í verk.
Mér er ekki kunnugt um yfirlýs-
ingu annara kirkjufélaga þessu við-
víkjandi, en yfirlýsing United Luth-
eran Church er á þessa leið. “U.L.
C.A. leggur áherzlu á að hvert
kirkjufélag út af fyrir sig hafi sem
fullkomnasta félagslega skipun, og
að starfræksla og framkvæmdir all-
ar gangi reglulega. Vill heildin sem
allra minst grípa inn i sérmál þeirra.
Kirkjufélögin hljóta sjálf að vera
kunnugust einkamálum sínum, og
1 vita hvað bezt á við í öllum tilfell-
um.
í lögum U.L.C.A. stendur (VIII.
4-):
“Hvert einstakt kirkjufélag hefir
Nuöa-Tone
Keglulegt heilsulyf, sem styrkir líf
færin. Ef þú ert bara hálfur maður,
eða hálf kona, þá reyndu NUGA-TONE.
Ef þú ert ekki ánægður með verkanir
þess, þá verður dollarnum, sem þú hef-
ir borgað fyrir það skilað aftur.
NUGA-TONE tekur á sig alla áhættuna.
Bíðið ekki degi lengur og eyðið ekki
annari andvökunðtt. Fáið yður flösku
nú STRAX—þér munuð borða betur og
sofa betur og verða eins og yður er
eðlilegt að vera.
alla framkvæmd, fullan rétt og endi-
legan úrskurð í öllum sínum-sérmál-
um, sem það ekki felur heildinni til
framkvæmda fríviljuglega.”
Næst mætti spyrja: Hver er af-
staða U.L.C.A. gagnvart tungumála
spurningunni ?
Um það f jallar reglugjörð U.L.C.
á þessa leið:
“U.L.C.A. hefir þá skoðun, að
guðsorð sé flutt og útlistað á bless-
unarríkastan hátt, að það sé flutt á
því tungumáli, sem sé ljósast til
skilnings þeim, sem á í hlut, og játar
fullan rétt hvers safnaðar kirkjufé-
lags og stofnunar að nota það tungu-
mál, sem bezt á við kröfur þeirra,
sem njóta starfsins. Og telur sér
skylt að hafa á boðstólum bækur á
mismunandi tungumálum, til þess
að boðskapurinn meigi verða til sem
mestrar blessunar.
Lúterskir menn koma frá ýmsum
löndum og mæla á ýmsum tungumál-
um, verða því að ástunda að læra að
þekkja hvorn annan sem bræður í
Drotni, og leitast við að þekkja
hvorn annan, að þeir geri sér grein
fyrir því, að þeir eiga sameiginlega
fjársjóðu í trúarbrögðunum, þótt
tungumál skilji.”
Kunnugt er það, að þjó^flokkar
þeir, sem hafa gengið inn í stærri
deildir, er engu ósárar um tungumál
sin en okkur íslendingum. Mundu
alls ekki sætta sig við það að sleppa
tungu feðranna fyrir tíð fram.
Hvað viðvíkur fjármála fyrir-
komulagi U.L.C.A. þá hefir það
nokkurskonar niðurjöfnunar skipu-
lag. Eftir því er hverju kirkjufélagi
ætlaður viss hluti hlutfallslega til
f jársöfnunar árlega. Fara hlutföllin
eftir fólksf jölda. Ekki er mér kunn-
ugt hvort hin þrjátíu og þrjú kirkju-
félög í U.L.C., hafa ætíð getað mætt
hinum ákvarðaða fjársöfnunarhlut,
eða á hvern hátt það er bætt upp, ef
þau ekki geta það.
Þess væri óskandi, að þeir rituðu
um það mál, sem kunnugir eru.
Sambandið milli kirkjufélaganna
í hinum stærri deildum, er algerlega
frjálst samband, og eiga þann rétt
óskertan að segja sig úr sambandinu
ef þeim sýnist.'
Ekki ætti það að vera liætta fyrir
eitt kirkjufélag að ganga í samband
við stærri kirkjufélög, ef stjórnar-
skráin gerir ráð fyrir þvi, að réttur
hvers félags haldist óbreyttur frá
því sem hann var áður en féiagið
gekk inn.
Minna mætti á dæmi Nova Scotia
og Prince Edward Jslands, sem settu
sig á móti fylkjasambandinu 1867.
Þessi litlu fylki óttuðust að missa
einstaklingsréttar síns, við það að
ganga í samband með hinum stærri
fylkjum. Sú hræðsla hefir reynst
ástæðulaus með öllu.
Enda hygg eg það sjaldgæft, þeg-
ar félög og félagsheildir eru mynd-
aðar, að máls aðiljar séu allir jafn
öflugir. Miklu- fremur mun það al-
gengt, að bindast samtökum bæði
smáir og stórir.
Ef stórir og smáir einstaklingar
geta staðið lilið við lilið og farnast
vel í veraldlegum félagsskap, virðist
meiga ætla að það sama væri mögu-
legt í andlegum félagsskap, þar sem
allur félagskapurinn í heild sinni
hefir það takmark, að útbreiða
kenningu drottins vors og frelsara
Jesú Krists.
Eg tek það fram enn, þótt eg hafi
minst á U.L.C. í sambandi við þetta
mál, er það einungis vegna þess, að
eg þekki meira til þess félags en
annara. Um aðrar félagsheildir
kirkju vorrar læt eg ódæmt.
Eg vildi aðeins vekja athygli á
þessu þýðingarmikla máli, gæti það
orðið einhverjum að hvöt til að
hugsa um það, tel eg betur farið en
heima sotið.
5. 5. C.