Lögberg - 16.03.1933, Page 7
/
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 16. MARZ, 1933
Bls. 7
ÆfiminnÍDg
Horfinn er burtu ‘
frá heims 1 j óei,
og í ljós betra
liÖinn frá iörSu
háaldraður
til hvíldar genginn,
stoÖ ættmanna,
stéttar prýöi.
Sigurður Tómasson eða Thomp-
son var fæddur á Eyvindarstöðum
á Álptanesi í Gullbringusýslu á ís-
landi 12. maí, 1854.
Faðir hans var Tómas Gíslason
Tómassonar, fæddur að Setbergi í
Gullbringusýslu, árið 1813 ; og móð-
ir hans var Elín Þorsteinsdóttir,
seinni kona föður hans. Þau eign-
uðust fimm börn; f jögur lifðu. Sig-
urður heitinn átti tvo hálfbræður,
eftir fyrri konu föður síns, Signýju
Eiríksdóttur að Holti undir Eyja-
f jöllum. Faðir Sigurðar andaðist á
Eyvindarstöðum 12. febrúar 1890
eftir að hafa búið þar í fjörutíu ár,
en móðir hans dó á Grímsstöðum í
Reykjavík hjá syni sínum Jóni.
Annar sonur hennar var Þorsteinn,
sem var járnsmiður, var í Reykja-
vík, en andaðist þar í ágúst 1921.
Þorsteinn var faðir Ólafs Þorsteins-
sonar, eyrna, augna og hálslæknis nú
í Reykjavík og tveggja systra hans.
Aðrir bræður og hálfbræður Sig-
urðar hétu Jóhann, Tómas, Gísli og
Eiríkur og ein systir Guðrún, gift
Hjörleifi Stefánssyni, þau áttu
heima vestur við haf, í Blaine,
Washington. Guðrún er ekkja nú.
Sigurður fór snemma að vinna og
sigldi sínum veiðibát frá Seyðisfirði.
Þar giftist hann Ólafíu Pálínu
Einarsdóttur Ófeigssonar 25. desem-
ber 1884 í Björgvin á Seyðisfirði.
Þau komu vestur um haf og settust
að í Grafton, Norður Dakota 4.
ágúst 1886 og þar bjuggu þau
gegnum blítt og strítt þangað til að
Pálína kona hans dó úr hjartabilun
3. nóv. 1929. Síðan voru tvær dæt-
ur hans hjá honum á víxl á gamla
heimilinu hans, alt til enda æfi hans.
Þau hjónin Sigurður og Pálína
áttu 4 dætur, Elinborgu Halifríði,
Magðalenu Margréti, Sigurlínu Júlí-
önu og Elorence Rosalind. Þær eru
giftar hérlendum mönnuin, og eiga
allar heima langt í burtu; tvær,
Júlíana og Florence búa í höfuðborg
Bandaríkjanna, Wjashington, D.C.
og Margrét býr vestur við haf, í
Tacoma, Wash., og Elinborg býr í
Enderlin í Norður Dakota.
Rétt fyrir þakklætishátíðina í
haustt, fékk Sigurður heitinn vonda
hálsveiki og þyngsli fyrir brjóstið, en
var orðinn betri aftur rétt fyrir jól-
in. Þann 27. desember fór hann í
rúmið og þjáðist af lungnabólgu,
hjartabilun og fleiri sjúkdómum.
Þó að honum batnaði lungnabólgan,
þá voru kraftar hans þrotnir og
hann andaðist 21. febrúar 1933 á
heimili sinu í Grafton. Hann var
jarðsunginn úr Norsku lútersku
kirkjuni þar, af H. A. Helsem,
norska prestinum. Hans er saknað
af dætrum, vinum og vandamönn-
um, því allir virtu hann mikils og
leituðu hans ráða.
Þér, sem með trega
Sigurði fylgið,
minnist hver hann var.
Margs er að sakna:
hógværð, hreinskilni
í hjarta bjó,
dáð og dugur
og drenglyndi,
guðrækni, geðprýði,
gætni, hyggindi,
staðfesta, styrkur,
og stöðuglyndi;
þetta altsaman
andaðan prýddi;
lifi þess minning
í margra hjörtum.
Alt eins og fögur sumarsól
svífur að gyltum bárum,
og standa blóm á bröttum hól
böðuð í daggartárum;
eins hefir þessi æfistund
endað með sætum dauðans blund,
að liðnum löngum árum.
Bliodravinafélag Islands
4. febrúar.
Blindravinafélag Islands var
stofnað 24. janúar 1932 og er því
rúmlega ársgamalt. Hélt það aðal-
fund sinn 29. f. m. og gaf formað-
ur félagsins, Sigurður P. Sivertsen,
skýrslu um það, sem gerst hafði á
árinu, og kemur hún hér í stuttum
útdrætti.
Fyrsta verkefnið var að fræða
menn um þörf blindravinafélags-
skapar og gera ráðstafanir til þess |
að fjölga félagsmönnum. Hélt for-
maður útvarpserindi um málið,
“Blindir menn og Blindravinafélag
Islands,” sem því næst var prentað
í þrjú þúsund og fimm hundruð
eintökum og meðal annars sent fé-
lagsmönnum og blindum mönnum
um land alt. Bréf voru einnig send
til fjölda manna, til þess að vekja
athygli á félaginu, iðn blindra sýnd
á Iðnsýningunni í Reykjavík og á-
skriftarlistar sendir út.—Bar þetta
þann árangur að félagar, sem eftir
stofnfundinn voru 53, á ársafmæli
félagsins, voru orðnir níu hundruð,
þar af 23 æfifélagar.
Annað verkefni félagsins var að
fá sem nákvæmastar upplýsingar um >
blindu mennina, sem starfsemi fé-
lagsins beinist að. til þess að unt
væri að gera sér grein fyrir, hvernig
högum þeirra væri hátað, og hvað
félaginu væri fært að gera fyrir þá.
I þessum tilgangi var leitast við
að ná sambandi við alla blinda menn
og voru þeim send bréf með ýmsum
fyrirspurnum, er vonast var til að
ættingjar þeirra og vinir myndu
fljótlega svara. Um einn f jórði hluti
þeirra, sem skrifað var, hafa svar-
að, en félagið væntir þess fastlega,
að hinir, sem enn hafa eigi sent svör
sín, geri það sem fyrst. Félagið hef-
ir komið sér upp spjaldskrá, þar sem
safnað er á upplýsingum urn hvern
einstakan blindan inann á öllu land-
inu, og er áríðandi, að sú skrá sé
nákvæm og af henni hægt að fá
vitneskju um alt það er lýtur að
kjörum blindra manna. Treystir fé-
lagið öllum vinum blindra til að
reynast vel í þessu og bregða fljótt
við og senda félagsstjórninni skýrsl-
ur um alt það, sem þetta mál varðar.
Þá var kenslukona ráðin til utan-
farar til þess að kynna sér alt, er að
kenslu blindra lýtur, bæði bóklega og
verklega. Dvelur hún nú í Dan-
mörku og hefir verið sýnd þar mikil
gestrisni, og félaginu því orðið nám
hennar þar afar ódýrt. En félagið
mun annars ekkert til þess spara, að
undirbúningsmentun blindrakennar-
ans megi verða sem fullkomnust.—
Er í ráði að kensla blindra geti byrj-
að að hausti næstkomandi.
Reikningar félagsins, sem lagðir
voru fram á aðalfundi, báru þess
vott, hve mörgum hefir verið ant um
að hlynna að félaginu f járhagslega.
Hafa félaginu borist stórar gjafir,
sú stærsta 1276 kr., nú í janúar frá
framkvæmdarstjóra þess, Þórsteini
Bjarnasyni.
Stjórn félagsins var endurkosin.
Haná skipa nú:
Sigurður P. Sivertsen, prófessor,
formaður; Margrét M. Th. Rasmus,
forstöðukona, gjaldkeri; Halldóra
Bjarnadóttir, kenslukona, ritari;
Sigurður Thorlacius skólastjóri, rit-
ari; Þórsteinn Bjarnason, iðnaðar-
maður, framkvæmdarstjóri.
Aðal/undi félagsins lauk með
fyrirlestri Kristjáns Sveinssonar
augnlæknis um blinda menn og
kenslu þeirra.
—Mbl.
Og börn og ættmenn, blómin þín,
við börur standa og þegja,
og hrygðartár á hvarmi skín,
harminn ei þarf að segja.—
Hljómar við hinsta .sólarroð
Herrans eilífa náðarboð:
að alt skal eitt sinn deyja.
Heill sé þér nú á hinstri stund,
við helgan klukkna niðinn!
Þig kær og aldinn geymir grund,
góðan, saknaðann, liðinn.—
Þig ætíð blessi Herrans hönd,
og hjálpi þér að lífsins strönd,
þar sem að færðu friðinn.
B. G.
Frá Islandi
Akureyri 9. febr.
Bœjarstjórn A kureyrar
kaus á fundi sínum í fyrradag i
nefndir og til annara starfa fyrir
árið 1933 eins og hér segir:
Forseti: Ingimar Eýdal.
Varaforseti: Sigurður Hlíðar.
Fjárhagsnefnd: Brynleifur Tob-
iasson, Hallgrímur Davíðsson,
Tómas Björnson.
Bygginganefnd: Erlingur Frið-
jónsson, Gísli Magnússon, Eggert
Melsteð, Ólafur Ágústsson.
Fátækranefnd: Elísabet Eiríks-
dóttir, Gísli Magnússon, Hallgrím-
ur Davíðsson, Jón Guðlaugsson,
Sigurður Hlíðar.
Búf járræktarnef nd: Jón Guð-
laugsson, Ólafur Jónsson, Sigurður
Hlíðar.
Veganefnd: Ingimar Eydal, Ól-
afur Jónsson, Sigurður Hlíðar.
Vatnsveitunefnd: Jón Guðlaugs-
son, Sigurður Hliðar, Tómas
Björnsson.
Jarðeignanefnd: Ingimar Eydal,
Jón Guðlaugsson, Karl Magnússon,
Ólafur Jónsson, Sigurður Hlíðar.
Ellistyrktarsjóðsnefnd: Jón Guð-
laugsson, Hallgrimur Davíðssón,
Ólafur Jónsson.
Húseignanefnd: Brynleifur Tob-
iasson, Sigurður Hlíðar, Tómas
Björnsson.
Hafnarnefnd: Erlingur Friðjóns-
son, Hallgrímur Davíðsson, Jakob
Karlsson, Vilhjálmur Þór.
Rafveitunefnd: Erlingur Frið-
jónsson, Karl Magnússon, Ólafur
Jónsson, Sigurður Hlíðar, Tómas
Björnsson.
Sundnefnd: Brynleifur Tobias-
son, Ólafur Jónsson, Tómas Björns-
son.
Brunamálanefnd: Gisli Magnús-
son, Ingimar Eydal, Karl Magnús-
son, Ólafur Jónsson.
Atvinnubótanefnd: Jón Guðlaugs-
son, Karl Magnússon, Tómas
Björnsson.
Kjörskrárnefnd: Gísli Magnús-
son, Ingimar Bydal. Ólafur Jóns-
son.
Heilbrigðisnefnd: Ólafur Jónsson.
Sóttvarnarnefnd: Sigurður Hlíð-
ar.
Verðlagskránefnd: Hallgrímur
Davíðsson.
Skólanefnd Gagnfræðaskóla Ak-
ureyrar: Brynjólfur Sveinsson,
Axel Kristjánsson,, Tómas Björns-
son og Steinþór Guðmundsson, með
hlutkesti milli hans og Snorra Sig-
fússonar, Þorsteinn M. Jónsson er
stjórnkjörinn formaður nefndar-
innar.
Caroline Rest-nefnd: Axel Krist-
jánsson, Brynleifur Tobiasson,
Tómas Björnsson.
Endurskoðendur bæjarreikning-
anna: Karl Nikulásson, Lárus Rist.
Til vara: Einar Gunnarsson, Sig-
tryggur Þorsteinsson.
Vörubifreið kom hingað til bæj-
arins frá Höfðahverfi 2. þ. m., um
Dalsmynni og Fnjóskadal, og hafði
verið 3 daga á leiðinni, enda hrept
stórhríðarveður í tvo daga. Er veg-
ur þessa leið, sem er um 60 km.,
sagður slæmur yfirferðar að sumri,
hvað þá um hávetur. Þrír menn
komu með bílnum, og sögðu þeir
ferðina hafa verið hina háskaleg-
ustu. Bílstjórinn var Árni Bjarnar-
son.
Rikisstjórnin danska lagði til að
fella dönsku krónuna úr gullgildi
og láta hana fylgja sterlingspundinu.
Ríkisþingið^ samþykti þessa tillögu,
og er nú danskar krónur 22.05 tald-
ar í pundinu og samsvarar það hér
um bil gengi íslenzkrar krónu.
Klæðaverksmiðjan Gefjun hefir
keypt skrifstofubyggingu Síldar-
einkasölunnar hér í bæ, og verða
skrifstofur verksmiðjunnar þar
fyrst um sinn.
—Dagur.
Nokkrar ungmeyjar í New York,
er sýna vildu atvtinnuleysingjum
hugulsemi stofnuðu nýlega happ-
drætti, þar sem vinningarnir voru
kossar. Fimm af þeim laglegustu
ungmeyjum tóku að sér að afhenda
hinum hamingjusömu vinnendum
verðlaunin. Stærsti vinningur 5
kossar.
Hreppapólitík Nr. II.
Herra ritstjóri Lögbergs:
Af því þér hafið áður léð rúm í
blaði yðar greinum um sveitamál,
svo sem “Hreppapólitík” og fleiru,
þá langar mig til að biðja um pláss
fyrir eftirfylgjandi greinarkorn. Eg
mun reyna að verða svo fáorður,
sem unt er, en mér finst að nokkur
greinargerð á málum Siglunes sveit-
ar sé tímabær einmitt nú og eflaust
margir innan þeirrar sveitar sem
Lögberg lesa.
Siglunessveit hefir nú verið starf-
rækt í þrettán ár, og skýrslur, sem
fyrir hendi eru, benda allar í þá átt
að kostnaðurinn hafi borið ágóðann
ofurliði og hreint ekki orðið fólkinu
til svo mikillar blessunar sem skyldi.
Hver, sem vill því horfast í augu
við raunveruleikann hlýtur að kom-
ast að eftirfylgjandi niðurstöðu:
I. Að yrkjun náttúruauðlegðar
Siglunessveitar sem og fleiri sveita
í milli vatnanna, sé ekki það á veg
komin að inntektir búenda þoli
sveitaskatt, og það stjórnarfyrir-
komulag getur því ekki borið sig hér.
Þessa staðhæfingu sannar (1) út-
flutningur fólks á tímabilinu 1919— j
32. (2)Fækkun þeirra, er skatta
greiða. (3) Minkun ræktaðs lands
(50%). (4)Fækkun skattbærra
landa (8.3% minna). (5) Sívax-
andi ógoldnir skattar (400 til
500%). (ó)ptstrykun stórrar upp-
hæðar, sem sveitinni bar að borga
til skólanna (um $34,000, 1930).
(7) Hin aukna skattsala á bújörð-
um. (8) Hin ákveðna stefna ein- i
staklinga og félaga að hætta að
borga skatta af löndum, sem lítið
eða ekkert gefa af sér.
II. Að hinar illu afleiðingar
sveitarfyrirkomulags á þessu svæði
yfirgnæfa þau hlunningi, sem því
kunna að fylgja. Eg vil benda á
nokkra punkta þessu til sönnunar.
(1) Engar sannanir eru fengnar
fyrir því að meiri umbætur hafi átt
sér stað fyrir myndun sveitar en
hefði orðið án hennar. (2) Engin
gögn finnast fyrir því að fylkis-
stjórn hafi lagt meira fé fram til
opinberra verka innan Siglunessveit-
ar, en hún hefir lagt til svipaðs hlið-
stæðs svæðis með líkum mannf jölda. '
Fyrirliggjandi skýrslur benda frekar
í gagnstæða átt.
(3) Tæplega verður það rökstutt
að þær umbætur, sem gjörðar hafa
verið hafi verulega aukið möguleika |
búenda til betri afkomu eða aukið |
ánægju þeirra með lífskjör sín. Ef
burtflutningur fólks meinar nokk-
uð þá virðist hið gagnstæða hafa
átt sér stað. (4) Hver sem lesa
vill getur fundið að starfræksla
sveitarinnar hefir kostað fólkið í 13
ár $67,000, eða yfir $5,000 árlega.
Fyrir þá upphæð finst ekkert það,
sem hefir komið gjaldendum þeirrar
upphæðar að verulegum notum. Hin-
ir óvistlegu kofar og ókláruðu íbúð-
arhús, hin ómerkilegu búpenings
hús, óræktuðu lönd, og yfirleitt
vöntun á einföldustu þægindum nú-
tíðar menningar eru þögulir vottar
þess að þeir sem þessa óþörfu byrði
eiga að bera geta það ekki—geta
ekki fleygt á glæ $5,000 árlega.
(Geta má þess hér að undantekning-
ar ery á hýbýlum þeim, er að ofan
er lýst, en í flestum tilfellum er það
fólk búið að búa hér 25 til 40 ár.
(5) Heimili og eignir margra
hafa verið seld fyrir skatta og bú-
endur þannig sviftir sjálfstæðis-
möguleikum, en þrátt fyrir það og
þó að skattar hafi verið gjörðir eins
lágir og mögulegt var, þá samt hafa
ekki innkallast nema 68.7 % af skött-
um að jafnaði þessi Í13 ár.
(6) Auðsætt er það sem margir
þó álíta að sé að sveitarstjórn mein-
ar ekki sjálfsvald á sínum eigin
fjármálum, því að aðeins lítill hluti
af sveitarútgjöldum eru í rauninni
í höndum sveitarstjórnar.
(7) I byrjun var okkur sagt að
fylkið borgaði helming allra út-
gjalda til opinberra verka. Eftir-
fylgjandi skýrsla sýnir dálítið ann-
að.
Samlagður beinn kostn-
aður til opinberra verka $98,573.92
Frádregið fylkistillag . .$14,795.31
—15%
Beinn sv. kostn. opinb.
verka .................$83,778.61
.85%
Ef bætt er við starfrækslu kostn-
aði á þessu tímabili verða tölurnar
sem fylgir:
Kostn. opinb. verka $98,573.92
Starfrækslu kostn. $67,328.16
Saml. kostn.......$165,902.08
Frádr. stjórnartill. $14,795.31 9%
Saml. sveitargj.. $151,106.77 91%
Þessar tölur, sem teknar eru úr
skýrslum yfirskoðunarmanns sýna
betur en nokkuð annað hvaða skerf
umbóta skattgreiðendur bera í þess-
ari sveit, sem sagt 91 %.
Þegar sveitin var mynduð vissu
menn ekkert um skatt þann, er ber
að greiða sveitarumboðsmanni.
Skattur sá skapar mikið af óþörfu
skrifstofustarfi, bæði fyrir fylki og
sveit, og er aðeins til að gjöra leik
með fólksins fé. Þegar maður tek-
ur svo líka til yfirvegunar starf-
rækslukostnaðinn þá er það degin-
um ljósara að sveitarfélag er lítið
annað en kostnaðarbær skrípaleik-
ur eða “humbug”. Og þegar allar
afleiðingar eru teknar til greina er
það sorglegur skripaleikur, því að
það hjálpar til að þrykkja mönnum
dýpra í örbyrgð, með auknum kostn-
aði fyrir þá, sem reyna að borga
skatta. Það gjörir þá sem ekki
borga eða geta ekki borgað, kæru-
lausa fyrir opinberum skyldum, og
í mörgum tilfellum sviftir menn
möguleikum til sjálfstæðis.. Það
gefur óprúttnum mönnum, sem bet-
ur mega sín til að græða á óförum
náungans, þegar þeir ná eignarrétti
á löndum fyrir ógoldna skatta, í
sumum tilfellum fyrir óheyrilega
lágt verð. Á þann hátt er haldið á
lofti hnefaréttinum. I stuttu máli,
skattar, sem ekki borgast eftir nú-
gildandi lögum, kippa undirstöðunni
undan þeirri stofnan, sem viðurkend
er að sé nauðsynlegust hverri þjóð
—nefnilega heimilisstofn^jiinni.
Eftirfarandi skýrsla sýnir saman-
burð af ógreiddum sköttum, sem
jafnist niður á hvert mannsbarn
sumra sveita þeirra, er liggja á milli
vatnanna Lake Manitoba og Lake
Winnipeg og Manitobafylkis:
Ógreiddir skattar 1931—
Siglunes ..................$37-21
Woodlea ................... 28.42
Eriksdale ................. 14.61
Coldwell ................. 4!-3o
Manitobafylki (allar sveitir) 20.29
Um þessa skýrslu þarf ekki að
fjölyrða, hún sýnir hvernig við
stöndum og hvernig okkar “sjálf-
stjórn”, sem ýmsir gjöra mikið úr,
þar á meðal höfundur “Hreppa-
pólitík.” Á mistökin er auðvelt að
benda, en hvernig má úr bæta ? Mitt
svar er óhikað, með upplausn sveit-
ar. Það er ekki minsti vafi á þvi
að öll nauðsynleg opinber verk má
gjöra með umsjá skólaráðsmanna
og yfirumsjá stjórnarverkfræðings.
Öll sú vinna skyldi gjörast af skatt-
gjaldendum í stað þess peninga-
skatts, er þeir nú borga. I skóla-
lögum fylkisins er gjört ráð fyrir
að brautavinnu megi þannig gjöra
(Sec. 232). Ef þau lög nægja ekki
þá höfum við fylkisstjórn, hverrar
starf er að semja eða fella úr gildi
lög eftir þörfum fólksins og nú sem
stendur er hennar aðal starf að
minka útgjöld og lækka skatta. Til
þess hefir hún vald, og eitt það bezta
við lög vors lands er, að þeim má
breyta.
Að endingu vil eg segja, “látum
oss vakna til meðvitundar um að
við fólkið, erum okkar eigin lukku-
smiðir í sveitarmálum sem öðru.
Okkur er ef til vill of stjórnað.
Aukin þekking á opinberum málum
er fyrsta skilyrðið fyrir betri stjórn,
því þegar við vitum hvað við vilj-
um þá breyta þjónar okkar, erind-
rekarnir í hvaða stjórn sem er, eftir
því.
Einn af gjaldendum.
Skák
Það var í nóvember síðastliðnum,
sem hinn heimsfrægi skák-kappi Dr.
A. Alekhin kom til Winnipeg og
tefldi yfir fjörutíu samtímis skákir
á Fort Garry hótelinu, við úrvals
skákmenn fylkisins. I þeim kapp-
leik tóku þátt fimm íslendingar, þeir
A. R. Magnússon, kennari við Jóns
Bjarnasonar skóla og skákmeistari
Manitobafylkis; Dr. L. A. Sigurðs-
son, Winnipeg; Dr. Sveinn Björns-
son frá Árborg; Hannes S. Lindal,
Winnipeg og Tom Finning frá Ár-
nesi í Nýja íslandi.
Eins og áður er kunnugt þá vann
Dr. A. Alekhin yfir þrjátíu skákir,
tapaði sjö og gjörði tvær jafntefli.
Eftir langa og hreystilega vörn lukk-
aðist A. R. Magnússon að gjöra
jafntefli við skákkonunginn, og
verður afstaða skákarinnar við
leikslok, sýnd hér í blaðinu.
Dr. Alekhin biður að heilsa
Sama daginn, sem samtíma skák-
in fór fram í Fort Garry hótelinu,
sátu sjö skák-kappar að miðdegis-
verði með Dr. A. Alekhin, og voru
þrír af þeim íslendingar, þeir A. R.
Magnússon, Dr. L- A. Sigurðson og
E. Baldvinsson. Yíir borðum sagði
Dr. Alekhin frá ferðum sinum heim
til íslands og leyndi það sér ekki á
frásögn hans að hann geymdi í huga
sér hlýjar endurminningar frá þeim
tíma. Hann fór fögrum orðum um
þær hlýju og góðu viðtökur, sem
honum voru auðsýndar hvar sem
hann kom á meðal þeirra. Hann
ræddi mikið um sögu íslands og
sögustaði, íþróttir þeirra og list-
fengi á mörgum sviðum. Skákmenn
góðir, sagði hann að margir Islend-
ingar væru heima og stæðu sumir
þeirra talsvert framarlega í þeirri
list. Að síðustu bað hann R. A.
Magnússon og þá félaga að bera
kæra kveðju sína til íslendinga
heima, með þökk fyrir góðar við-
tökur og margar ánægjustundir.
Skákmiðstöð
Skákmiðstöð fyrir Winnipeg er
nú opnuð í Scott Block að 272 -Main
Street. Það er heimili Winnipeg
taflfélagsins, sem þar er aftur tek-
ið til starfa samhliða hinu nýmynd-
aða Manhattan skákfélagi.
Meðlimagjald að skákmiðstöð
Winnipeg kostar 50C á mánuði og
gefa aðgang að báðum félögunum.
Clarence Scott, ritstjóri “Sport-
ing News” er yfirmaður á skákmið-
stöð Wíinnipeg.
Siðastliðið miðvikudagskvöld
tefldi A. R. Magnúson tólf samtíma
skákir á skákmiðstöð Winnipeg.
Vann tíu en tapaði tveim og vann
Tom Finning aðra þeirra.
Davíð Björnsson.
ENROLL NOW!
Take advantage of the low
tuition rates now prevailing
Day School $12 per month
Nlght School $4 per month
SUBJECTS
SHORTHAND BOOKKEEPING
TYPEWRITING PENMANSHIP
RAPID CALCULATION ARITHMETIC
SPELLING CORRESPONDENCE
SECRETARIAL PRACTICE, ETC.
Call or write for descriptive folder.
Empire Business College
Portage and Hargrave
TELKPHONE
23 252 Winnipeg
212 Enderton Building
(Next to Eaton’s)