Lögberg - 08.06.1933, Blaðsíða 8
BIs. 8
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 8. JÚNÍ, 1933.
RobinllHood
FIiÖUR
Þetta mjöl er fljótast og þœgi-
legast að vinna úr, og er drýgra
Or bœnum og grendinni
BÓKBAND! BÓKBAND!
Bækur lialda sér aldrei til lengdar nema því aðeins, að
þær séu vandlega bundnar inn.—Við leysum af hendi
greiðlega, vandað bókband við sanngjörnu verði.
The Columbia Press Limited
695 SARGENT AVE., Winnipeg, Man.
UNGMENNI
fermd í Fyrstu lútersku kirkju á
hvítasunnudag 1933 af Dr. Birni B.
Jónssyni.
1. Alda Sædal
2. Anna Guðrún Einarson
3. Anna Thorunn Anderson
4. Carol Joy Feldsted
5. Dorothy Grace Thordarson
6. Elsie Feller
7. Ethel Mary Harju
8. Emily Halldorson
9. Francis Gillies
10. Gladys Steinunn Gillies
11. Guðrún Audrey Henrickson
12. Guðrún Johanna Bjerring
13. Helga Grace Johnston
14. Irene Muriel Johnson
15. Lillian Baldwin
16. Lára Rósa Bjarnason
17. Margaret May Howardson
18. Marjorie Johnson
19. Norma Ferguson
Í20. Olive Lindale Farmer
21. Olive Pottruff
22. Pearl Lily t'ymundson
23. Thelma Irene Hope
24. Thelma Guttormson
25. Ari Sigtryggur Dalman
26. Árni Jóhanneson
27. Arthur Paul Ingimar Anderson
28. Barney Stephen Benson
29. Bob August Sædal
30. Clarence Phipps
31. Frederick Carl Bernhard
Benjamínsson
32. Harold David Jonasson
33. Hannibal Barney Paulson
34. James Kenneth McFarlane
35. Jolin Timothy Stone
36. John Albert Gray
37. Leonard Oscar Johannson
38. Norman Guðmundur Joseph
Rosencrans.
39. Páll Vilsteinn Einarsson
40. Ronald Sigurður Hafliðason
41. Russell John Vernon Johnstone
42. Solberg Stefán Oddleifson
43. Stefán Douglas Pálmason
44. Thomas Isfjord
45. Thor Eyjólfur Stephenson.
Gefin voru saman í hjónaband í
Reykjavík, hinn 3. þ. m. Bjarni
Gunnlaugsson og Alla Johnson.
Hjónavígsluna framkvæmdi séra
Friðrik Hallgrímsson dómkirkju-
prestur. Alla Johnson er dóttir Mrs.
B. E. Johnson, Ste. 8 Nova Villa
Apts. hér í borginni. Er hún vel
þekt meðal Vestur-Islendinga. Hún
vann lengi við Winnipeg Free Press
og tók mikinn og góðan þátt í félags-
lífi íslendinga í Winnipeg. Fyrir
tveimur árum fór hún til Reykja-
víkur og hefir unnið þar við ríkis-
útvarpið.
Firth Bros.
Júní viðburðir
300 karlm. fatnaðir
$15
Kostuðu $25 til $40
Úrval af bláum og gráum föt-
um, er ekki voru sótt, þó pönt-
uð væru, C.O.D.’s o. s. frv.
Þetta er FIRTH ár frá
Halifax til Victoria.
Firth Bros. Ltd.
ROY TOBEY, Mamger.
417% PORTAGE AVE.
Sími 22 282
Heklufundur í kvöld, fimtudag.
G.T. Spil og Dans á hverjum
þriðjudegi í G.T. húsinu Sargent
Ave. Byrjar stundvíslega kl. 8.30 að
kvöldi. Jimmie Gowler’s Orchestra-
Þrenn verðlaun fyrir konur og
þrenn fyrir karla: $5; $2; $1.
Vinnendur: Mrs. Carr, Mrs. H.
Johnstone, Mrs. Ericks; Mr. B.
Burr, Mr. F. Shield, Mr. H. P.
Peterson.
Ungmenni fermd í Selkirk á hvíta-
sunnu af séra N. S. Thorláksson
Stúlkur—
Beatrice Stefania Stefánson
Ethel Ingibjörg Guðný Björnson
Florence Magnúson
Helga Guttormson
Stefania Eleanor Benson
Drengir—
Vernon Björn Benson
Árni Holberg Raymond Maxon
Helgi Jón Johnson
Wilfred Halldór Erickson
Guðni Friðrik Magnússon
Lárus Thorgrimur Indriðason
Magnús Stefánsson
Oscar Goodman
Oscar Jóhannesson
Röbert Jóhann Stevens
Sigurður Goodman
Stefán Árni Stefánsson
11. júni, Riverton kl. 8 siðd.
Kvöldmessa. Safnaðarfundur eftir
messu.
18. júni, Árborg, kl. 11 árdegis.
Sameiginleg guðsþjónusta sunnu-
dagaskóla og eldra Jólks.
18. júní, Víðir kl. 2 e. h. (altaris-
ganga). Safnaðarfundur eftir
messu.
Fólk vinsamlegast beðið að sækja
eins alment og unt er.
, S. Ó.
Heimilisiðnaðarfélagið heldur
fund á miðvikudagskvöldið 14. júni,
í fundarsal Fyrstu lútersku kirkju
á Victor St. Vegna þ.ess að þetta er
síðasti fundur félagsins fyrir Sum-
arfríið, verður það opinn fundur, og
meðlimum því velkomið að koma
með vini sína, sem áhuga kynnu að
hafa fyrir starfi deildarinnar.
Whist Drive and Dance hefir í-
þróttafélagið Fálkarnir í Good-
templarahúsinu á laugardagskveldið.
Er til þeirra skemtana vandað sem
bezt má vera. Betty Eyólfson hljóð-
færasveitin spilar fyrir dansinum.
Leikur Esther McLeod þar á fiðlu.
Dánarfregri
Fimtudaginn 2. febr. þ. á., andað-
ist hér á spítala ung íslenzk kona,
Mrs. Thora Jenny Frasier, eftir
langvinnan sjúkdóm.
Hún var ættuð úr Reykjavík,
Jónsdóttir og Arndísar Þorsteins-
dóttur;—faðir hennar löngu dáinn,
en móðir og systkini á lífi, búsett á
Islandi.
Kveðjuathöfn fór fram 7. febr.,
að viðstöddum talsvert fjölmehnum
hóp íslenzkra vina. Séra A. E.
Kristjánsson flutti afbragðs ræðu,
og Gunnar Matthíasson söng tvo
söngva.
Hin framliðna var fríð og við-
mótsglöð kona, mjög góðum gáfum
gædd og víða heima. Allir, sem
kyntust henni dáðust að hennar
framúrskarandi hugrekki í þjáning-
um, og þrekinu til að lesa og læra,
alt til síðustu stundar. Hún fylgdi
guðspekisstefnunni af hug og sál.
Jakobína Jolmson.
Seattle, Wash., 23. febr. 1933.
Andcrson — Christopherson
Heimilið Grund í iVrgylebygð í
öllu sínu vorskrúði bergmálaði gleði
og framtíðarvonir síðastliðinn
mánudag þann 29. maí, þegar gift-
ing ungfrú Láru Ingu Anderson og
John William Christopherson fór
fram að viðstöddum ættingjum og
vinum. Foreldrar brúðarinnar eru
Hannes Anderson og kona hans Mar
grét Egilson við Wynyard, Sask., en
brúðguminn, er sonur W. C. Christo-
pherson og Kristínar Jónsdóttur
konu hans, er um langt skeið haía
búið á ættaróöali Christophersons
ættarinnar. Að giftingunni lokinni
voru framreiddar veitingar að ís-
lenzkum stíl og rausn, en síðan tóku
ungu hjónin sér skemtiferð, en að
henni endaðri munu þau setjast að
á hinu fagra heimili Grund. Hug-
heilar hamingjuóskir allra er ungu
hjónin þekkja, fylgja þeim inn á
vonríka og fagra framtíðarbraut.
Messur í Gimli prestakalli næsta
sunnudag, þ. 11. júní, eru fyrirhug-
aðar þannig, að morgunmessa verð-
ur í gamalmennaheimilinu Betel kl.
9.30 f. h.; síðdegismessa kl. 2 í
kirkju Víðinesssafnaðar, og kvöld-
messa, kl. 7, í kirkju Gimli safn-
aðar. — Safnaðarfundur í Gimli-
söfnuði miðvikudagskvöldið þ. 14.
júní, til að kjósa fultrúa á kirkju-
þing og til þess að ræða inngöngu-
mál kirkjufélagsins í United Lutli-
eran Church. Byrjar kl. 8 e. h. Þess
er vænst að fólk fjölmenni bæði við
messurnar og á fundinum.—
Sömuleiðis er búist við að fundur
verði eftir messu í Víðinessöfnuði
á sunnudaginn, bæði til að kjósa
kirkjuþing fultrúa og til að ræða
inngöngumálið.—
Á sunnudaginn kemur, hinn 11.
júní, vígir varaforseti kirkjufélags-
ins, séra Haraldur Sigmar, nýja
kirkju, sem íslendingar hafa reist í
grend við Silver Bay pósthús við
Manitoba-vatn.
Áætlaðar mesur í norður hluta
Nýja Islands:
11. júní, Hnausa kl. 2 e. h. (ferm-
ing og altarisganga). Safnaðar-
fundur eftir messu.
Ungmenni fermd í Geysis-kirkju
sunnudaginn 28. maí af séra Sig-
urði Ólafssyni: Sigfús Björgvin
Svanbergsson, Páll Pálsson.
Islenzkir Goodtemplarar víðsveg-
ar, er oss sagt að séu að undirbúa
stórt “Picnic” sem á að haldast 16.
júlí, á Gimli og þar muni próf.
Richard Beck frá Grand Forks há-
skólanum flytja erindi.
I undirbúningi er samkoma til
minningar Jóns Sigurðssonar, sem
haldin verður líkt og í fyrra, og
stúkurnar Hekla og Skuld standa
fyrir.
Mr. og Mrs. H. Jónasson, 376
Tache Ave., leggja á stað- með
C.P.R. lestinni á fimtudaginn 8. þ.m.
austur til Toronto. Þau búast við að
verða í burtu um mánaðar tíma.
Athygli skal hér með leidd að
auglýsingu þeirri frá Firth Bros.
Ltd., er nú birtist í fyrsta sinn í
þessu blaði. Eigendur þessa klæð-
skurðar og fata verslunar, Firth
bræðurnir eru skozkir að ætt, fædd-
ir i Orkneyjum. Starfrækja þeir
1201 fatabúð í Canada og njóta hins
bezta trausts. Winnipeg búð þeirra
er að 417^/2 Portage Ave., þar sem
Scanlan and McComb áður versl-
uðu.
Giftinga leyfisbréf selur nú Carl
Thorláksson úrsmiður að 699 Sar-
gent Ave., Winnipeg.
Gjafir til Betel í maí
Miss Friða Johnson, Wpeg. .$1.00
Vinur (í minningu 16. maí) 2 Ferne
in Jardinieres.
S. F. Olafsson, Wpeg.........$10.00
Innilega þakkað.
/. Jóhanneson, féhirðir.
675 McDermot Ave.
Winnipeg.
Fréttir frá Betel
Heimsókn mjög ánægjuleg veitt-
ist Betel frá kvenfélaginu "Sigur-
von," í \ríðinesbygð, þ. 1. júní s.l.
Komu konur i bilum um kl. 2.30
e. h. Var fyrst slegið upp veizlu
með afbragðs veitingum, eins og ís-
lenskar konur kunna svo vel, ef til
vill allra kvenna bezt.—
Aö því búnu las séra Jóhann
Bjarnason biblíukafla og flutti
fram bænarorð, er endaði með því
að faðir vor var lesið sameiginlega
af öllum.
Þá flutti Mrs. Elin Thiðriksson,
er lengi var forseti félagsins, ávarp
til Betel, til forstöðukonu og heima-
fólks. Var ávarp það einkar ’nlýtt
og fallegt. Mrs. Thiðriksson er há-
öldruð kona, en er frábærlega ern.
Er hún ein af hinum stórmerkilegu
landnámskonum Nýja Islands.
Þá er Mrs. Thiðriksson hafði
lokið við ræðu sína, voru sugnir
sálmar og valdir íslenzkir söngvar.
Sálmarnir er konurnar völdu og létu
syngja voru: “Á hendur fel þú hon-
um,” og “Ó, hversu sæll er hópur
sá, sem herrann kannast við.” Var
organisti Víðinessafnaðar, Kristján
Sigurðsson við orgelið. Mun og
mest af söngflokk safnaðarins hafa
verið þarna viðstaddur. Söngurinn
mikill og góður. Hópur þarna af
góðum aðkomnum söngkonum.
Karlmannaraddir voru færri að-
komnar, aðallega þeir Kristján Sig-
urðson, organistir.n, og Tryggvi
Arason. Náðist jaínvægið þó ágæt-
lega með því, að dágóðir söngmenn
úr vistmannahóp, og aðrir, bættu
við sinum röddum. Var sungið af
áhuga og list. Þótti þetta hafa tek-
ist hið bezta.
Með samstiltu fiðluspili skemtu
þær ungfrúrnar Björg Guttormsson
og Þorsteina Sveinsson. Spila þær
báðar ágætlega. Hafa báðar lært
hjá Óla Þorsteinssyni, listamannin-
um alkunna hér, sem búinn er að
kenna fjölda fólks að spila á fiðlu
og önnur hljóðfæri.—'
Þá tilbreytni við svona heim-
sóknir hefir forstöðukonan nýja,
Miss Inga Johnson, innleitt, að Iáta
einhvern úr vistmannahóp heimilis-
ins bera fram þakkir fyrir heim-
sóknina, i staðinn fyrir að það hefir
vanalega orðið hlutskifti forstöðu-
konú. éða prests, ef hann hefir ver-
ið viðstaddur. Sýnist þetta vera
mjög vel til fallið, því heimilið er til
vegna vistfóflksins og annara ekki.
Við næstu heimsókn á undan þess-
ari tilnefndi Miss Johnson, blindan,
greindan, hagorðan mann, Lárus
Árnason, til að bera fram þakkar-
orðin. Tókst honum það hið bezta.
1 þetta sinn valdi forstöðukonan
Mrs. Guðrúnu Goodman, sem eins
er ástatt með og Lárus að þvi leyti,
að hún er blind, ágætlega greind og
hagorð. Flutti Mrs. Goodman
snjalla tölu, í kristilegum anda, enda
er hún trúuð kona, með bjargfasta
sannfæring fyrir fagnaðarerindi
Drottins. Tókst þakklætisræðan
mæta vel.—
Endaði fagnaðarmót þetta með
þvi að allir sungu “Eldgamla ísa-
fold” og “God Save the King.”—
Hinum mörgu vinum Jakobs
Briem verður fréttaritari yðar að
flytja þær miður velkomnu fréttir,
að hann liggur rúmfastur. Er tals-
vert þjáður með köflum. Mun gall-
ið vera eitthvað í ólagi. Þó talin góð
von að úr þessu rætist bráðlega.
Vigerð og endurnýjun eldri parts
byggingarinnar heldur stöðugt á-
fram, eins og um var getið í næsta
fréttabréfi á undan þessu.
Altarsáhöld, mjög vönduð, með
smábikurum, hefir forstöðukonan
nýja gefið heimilinu. Voru þau not-
uð í fyrsta sinn við altarisgöngu, í
stofnaninni, við messuna á livíta-
sunnudag.—
Fyrir hönd íþróttafélagsins Fálk-
arnir, hafa þessir vel þektu íþrótta-
menn, Óli Björnson, Ben. Baldwin
og Björgvin Guðmundson tekið að
sér að æfa úti íþróttir i Sargent
Park á miðvikudagskveldin kl. 7
Byrjar 14. júní. Þeir, sem taka vilja
þátt í þessu mæti þar.
Jón Bjarnason Academy
Gjafir
Mrs. Helga Sumarliðason,
Seattle, Wash..............$ 5.00
íslenzka kvenfélagið,
Baldur, Man................ 10.00
Samskot við ársloka samkomu
skólans ................... 22.69
Arður af samkomu er haldin
var í Selkirk, Man. þ. 5. maí,
(Irene Erlendson, treas.).. 12.90
ísleifur Helgason, Árnes, Man. 2.00
Mrs. Oddný Magnússon,
Lundar, Man................ 2.00
M. M. Jonasson, Árborg .... 5.00
E. Johannson, Árborg ......... 5.00
Kvenfélag Frelsissafnaðar,
Glenboro, Man.............. 5.00
P. V. Peterson, Ivanhoe, Minn.
(í minningu um tengdason
hans, Nels J. Hanson, sem
-dó í vor)..........*..... 5.00
B. Thorbergson, Church-
bridg, Sask................ 5.00
Mrs. C. P. Paulson, Gimli .. 5.00
Jón og Guðrún Halldórson,
Langruth...................10.00
St. Gilbertson, Minneota, .. . 10.90
Með vinsamlegu þakklæti,
S. IV. Melsted,
gjaldkeri skólans.
Dánarfregnir
Mrs. Stefanía Rannveig Oddson,
Lundar, Man., andaðist þ. 18. mai
eftir langvarandi sjúkdóm, 64 ára
gömul
Stefanía heitin misti eiginmann
sinn, Helga Valdimar Oddson árið
1924. Þau hjónin áttu fjórtán
börn. Átta af þeim lifa foreldra
sína, flest búsett á Lundar.
Stefanía heitin hafði brennandi
áhuga fyrir öllu kristilegu starfi.
Áhrif hennar utan og innan heim-
ilis, voru blessunarrík. Guð blessi
minningu hennar.
Jarðarförin fór fram á Lundar,
Man. þ. 20 maí. Séra Jóhann Frið-
riksson jarðsöng, að miklu fjöl-
menni viðstöddu.
Páll Jakobsson, sonur Péturs Jak-
obssonar, Langruth, Man. andaðist
þ. 20. maí. Hans verður getið nán-
ar síðar. Jarðarförin fór fram frá
kirkjunni i Langruth þ. 22 maí.
100,000 verndargripir.
Buddhatrúarmunkur í Shanghai
hefir sent kinversku hermönnunum,
sem berjast gegn Tapönum, 100,000
litla silkipoka, sem eiga að vera
verndargripir. Segir munkurinn að
hermennirnir eigi að sauma þessa
poka innan í skyrtur sínar, svo að
þeir hylji hjartastað. Og hverjum
hermanni, sem þannig sé útbúinn,
sé óhætt að vaða í gegn um hið ægi-
legasta kúlnaregn—hann muni ekki
saka.
—Mbl.
ROYAL YORK CAFE
629 SARGENT, AVE.
Beztu_máltíðir sem hugsast get-
ur, við ðviðjafnanlega sanngjörnu
verðl.
FISH and CHIPS, bezta tegund
til þess að taka með sér heim,
fyrir 15c og þar yfir.
BED PLANTS
ROSES, CARNATIONS,
TULIPS, ETC.
VARIOUS POT PLANTS
Verð lægra en niðri í bæ
Sargent Florists
678 SARGENT (at Victor)
Phone 35 676
Róstur á Akureyri
Akureyri 8. maí.
Kommúnistar gerðu tilraun til
þess í morgun að stöðva uppskipun
á fiski við fiskverkunarstöð Einars
Malmquist á Oddeyrartanga, en til-
raunin misheppnaðist og urðu kom-
múnistar frá að hverfa. Á fiskverk-
unarstöðinni er unnið samkvæmt
kauptaxta Verkalýðsfélags Akur-
eyrar, sem er hærri en gildandi taxti
í fyrrasumar, en nokkru lægri en
kauptaxti Verkakvennafélagsins
Eining, er samþyktur var eftir að
hinn var kominn fram. Ráða kom-
múnistar F.iningunni.
Nokkrar skærur urðu í morgun
og gekk einn foringi kommúnista úr
þeirri viðureign með brákað nef og
blóði drifinn.
—Mbl.
Vor
Röðulsins geislar örmum foldu
falda,
fegurðin endurris úr vetrar böndum,
aftur er jörð í helgra goða höndum,
Herjan og Freyr, um tíma, sköpum
valda.
1 Baldursheimi töfra-ómar titra.
Nú talast alt á þroskans máttar-
tungu.
Nú fagna vori blóniin endurungu—
í unaðssælu ljóssins perlur glitra.
Nú myrka hjúpinn röðull rofið
hefur,
það rísa geislar hátt á tindum f jalla,
og jötnar láta sverð að síðum falla,
er sólarveldið öllu lífskraft gefur.
Ó, Fagrahvel! Eg fagna komu þinni,
því fegurð mína lífsþrá endurvekur,
og kviðann burt úr huga mínum
lirekur,
og harmsins þunga léttir á sálu
minni.
Sem upprisunnar undrakraft eg
finni,
og unaðsfanginn bergi á lífsins veig-
um,
og dásemd þess eg drekk í stórum
teigum,
sú dýrð sig speglar inst í sálu minni.
S. B. Benedictsson.
TILKYNNING
Nýja verzlunin
PIE QUICK SHOP
702 SARGENT AVE.
(gegnt Columbia Press, Ltd.
er nýtekin til starfa. Allar teg-
undir af pies, tertum, brauðum,
mjólk, rjóma, og kaffibrauði.
K. L. HANNESSON
Eigandi.
íslenska matsöluhúsið
Par sem lslendlngar I Winnipeg o*
utanbæjarmenr, fá sér máltlðlr og:
kaffi.
WEVEL CAFE
692 SARGENT AVE.
Slmi: 37 464
RANNVEIG JOHNSTON, elgandl.
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annaat greiðlega um alt, sem að •
ílutningum lýtur, smáum eða atór-
um. Hvergi sanngjarnara verð.
HelmiU: 762 VICTOR STREET
Slml: 24 500
CARL THORLAKSON
úrsmiður
699 Sargent Ave., Winnipeg
Heimasimi 24 141