Lögberg - 07.09.1933, Page 8
/
r bís. ?
LOGBERG, FIMTUDAGINN 7. SEPTEMBER 1933.
I +-
7Í>ríf
f,;*; ■sf.UtO~ 8F
Ur bœnum og grendinni
G. T. spil og dans á hverjum
þriðju- og laugardegi í I.O.G.T.
húsinu, Sargent Ave. Byrjar stund-
víslega kl. 8.30 að kvöldinu. Góð
hljómsveit og ágæt verðlaun.
Síðastliðinn föstudag, J>ann 1.
þ. m., lézt að heimili sínu á Gimli,
húsfrú Jórunn Sigríður OEfsdóttir
Olson, kona Arnljóts B. Olson þar
í bænum, því nær 65 ára að aldri.
Jarðarförin fór fram frá heimilinu
og Sambandskirkjunni þar í bæn-
um, að viðstöddu miklu fjölmenni,
á mánudaginn þann 4. þ. m. Séra
Guðmundur Árnason jarðsöng.
. Kvenfélagið “Eining” að Lundar,
Man., stofnar til samkvæmis fyrir
aldrað fólk þar í bænum og úr
grendinni á sunnudaginn þann 17.
þ. m. Allir sextíu ára og eldri i því
bygðarlagi, boðnir og velkomnir.
Meðlimir stúkunnar “Skuld” eru
vinsamlegast ámintir um að fjöl-
menna á fundinn í kvöld. Mikils-
varðandi mál liggja fyrir fundn
Skuldar.-fundur i kvöld (fimtu-
dag)
Messur í Gimli prestakalli næsta
sunnudag, þ. 10. sept., eru fyrir-
hugaðar þannig, að morgunmessa,
kl. 9.30 f. h. verður í gamalmenna-
heimilinu Betel; síðdegismessa kl.
2 e. h., í kirkju Víðinessafnaðar, og
kvöldmessa kl. 7, í kirkju Gimli-
safnaðar. ' Til þess er mælst, að fólk
fjölmenni.
Guðsj>jónústur vib Tantallon og
Gerald,'sunnudaginn 17. september;
I Hólaskóla kl. 11 fyrir miðdag; í
Vallaskóla kl. 3 eftir miðdag.
Sunnudaginn 17. september mess-
ar séra Sigurður Ólafsson sem hér
segir: Riverton kl. 11 árdegis,
(sameiginleg guðsþjónusta unglinga
og eldra fólks). Geysir, kl. 2 sið-
degis.
Hr. Eiríkur Halldórsson, sem
dvalið hefir nokkur ár hér vestra,
lagði af stað alíarinn til Islands
siðastliðinn þriðjudag. Er hann
sonur Halldórs Júlíussonar, sýslu-
manns í Strandasýslu.
Junior Ladies Aid Fyrsta lúterska
safnaðar heldur fund í samkomusal
kirkjunnar á þriðjudaginn þann 12.
september, kl. 3 e. h.
Þeir prestaskólanemendurnir,
Theodore Sigurðsson og B. A.
Bjarnason, lögðu af stað suður til
Minneapolis, Minn., á þriðjudaginn.
Ljúka þeir prestaskólanámi á næsta
vori.
“pcgar sagt er að maður hafi tap-
að öllu, er hann máske að öðlast
hin mestu auöœfi."
Firth Bros.
Alfatnaðir meC tvennum buxum,
fyrir aðeins
$22.75
Sniðnir eftir máli
Pöntuð, ótekin föt, eftir máli,
Vanaverð
$25.00, $30.00, $35.00
Seld fyrir
$14.68
Firth Bros. Ltd.
ROY TOBEY, Manager ,
417 >4 PORTAGE AVE.
Síœi 22 282
Kvenfélag Fyrsta lúterska safn-
aðar heldur fund i samkomusal
kirkjunnar á fimtudagiún þann 14.
september, kl. 3 e. h. Fagna félags-'
konur þar Mrs. B. B. Jónsson, sem
nýlega er komin heim úr Islandsför.
Eftirgreindir nemendur Miss
Helgu Olafson í Riverton, luku
vorprófi við Toronto Conservatory
of Music:
Intermediate Piano—Agnes Sig-
urðsson—First Class Honors.
Introductory Piano—Alda Olaf-
son—First Class Honors.
Gefin saman í hjónaband á heim-
ili Mr. og Mrs. J. B. JóhannsSon í
Árborg, Man.: Halldór Reykjalín
Finnsson og Ingibjörg Helga Hib-
bert. Halldór er sonur Mr. og Mrs.
Siguröar Finnsson í Víðir, Man.,
en brúðurin er dóttir Mr. Arthur
Hibberts, bónda í Sylvan, Man., og
látinnar konu hans, Gróðu, fædd
Líndal. Giftingin fór fram 2. dag
septembermánaðar. Framtíðar-
heimili ungu hjónanna verður í Víð
ir. Séra Sigurður Ólafsson gifti.
Mr. Sigvaldi B. Gunnlaugsson frá
Baldur, Man., var staddur í borg-
inni seinni part vikunnar, sem leið,
ásamt tveimur dætrum sínum.
Hr. Sigurbjörn Sigurjónsson,
prentari, er áður bjó að 724 Bever-
ley street, er nú fluttur til 738
Banning street.
Pupils og Mr. Arni Sveinsson,
Baldur, Man. — Examination with
the Toronto Conservatory of Music:
Guðrún Peturson, 84 marks, First
Class Honors; David Goodman, 80
marks, First Class Honors; Bernice
Fines, 74 marks, Honors; Betty
Peturson, 75 marks, Honors.
Þeir feðgar Egill Egilsson og
Bjarni sonur hans frá Gimli, komu
til borgarinnar á fimtudaginn í vik-
unni sem leið.
Séra Jóhann Friðriksson messaði
og fermdi að Bay End, Man., síð-
asta sunnudag. Þessi börn voru
fermd: Ólafur Marino Finney,
Thordís Sigurlín Solveig Finney, og
Guðlaug Kristjana Mailman.
Séra Jóhann Friðriksson flytur
guðsþjónustu í Lúters söfn. næsta
sunnudag (þ. 10. sept.) kl. 2 e. h.
og á Lundar kl. 7.30 um kvöldið
sama dag.
TIL SÖLU
Wilton gólfteppi, 9x9 að stærð,
Toupe grunnur, með rósum og blá-
litri gerð. I ágætu ásigkomulagi.
Simið 30411—575 Sherburn Street.
THE GIRL
OJK WHO ,S
HAPPY
\
This girl who is really happy is the one who is useful, inde-
pendent, self-reliant, self-supporting—and the ability to be self-
supporting is the result of training—alwáys.
The mastery of stenography furnishes a sure means of self-
support—and the mastery may be quickly attained.
A few months in our shorthand department will qualify the
average young lady having a High School education, some native
ability, and the inclination to work, for a good position where pro-
motion will be certain.
Stenography will gtve her a respectable place among respect-
able people who appreciate worth and accomplishment.
You should write, call or telephone for free, valuable informa-
tion concerning our work.
á
TUITION RATES
✓
Day School (full day).§15.00 amonth
Day School (half day).§10.00 a month
Night School § 5.00 a month
Mr. Ferguson’s policy of providing “Better Teachers and Better
Employment Service” has attracted more than 40,000 students
to this College during the past twenty years. In fact, it is quite
impossible to secure better value in business education than ls
available at “The Success.”
ENROLL NOW
Phone 25 843
D. F. FERGUSON,
President and Principal
PORTAGE AVE.
at Edmonton St.
Séra H. Sigmar messar ‘sunnu-
daginn io. sept. í Péturskirkju að
Svold, kl. ii f. h. og í Eyfordkirkju
kl. 3 e. h., og í Mountainkirkju kl.
8 að kveldi. Messan á Mountain
fer fram á ensku og yngri klynslóð-
inni er sérstaklega boðið. Allir vel-
komnir!
I frétt þeirri, sem birtist í síðasta
blaði um samsæti Jóhannesar Jónas-
son, læknis, hafði fallið úr í handriti
nafn eins aðal ræðumannsins, hr.
Thomasar Halldórssonar.
VEITID ATHYGLI !
Báðir söngf lokkar Fyrsta lúterska
safnaðar byrja söngæfingar í þess-
ari viku. Yngri flokkurinn á
fimtudagskveldið, en sá eldri á
föstudagskveldið. Æfingar bæði
kveldin byrja klukkan 8. Mikils er
um vert, að meðlimir beggja flokka
komi allir á þessar fyrstu æfingar.
Þeir. J. J. Samson, Jónas Thor-
varðarson og Einar P. Jónsson fóru
suður til North Dakota síðastliðinn
föstudag, og komu heim aftur á
mánudagskvöldið.
Mrs. Rannveig Johnston, for-
stöðukona við Wevel Cafe, hér í
borginni, skrapp nýlega vestur til
Vancouver, ásamt Harriet dóttur
sinni; þær komu heim aftur á
sunnudagsmorguninn var.
Hr. Sigurður Jónasson, lögfræð-
ingur frá Reykjavík á fslandi, sá
er hingað kom í kynnísför til föður
síns og stjúpmóður, Mr. og Mrs.
Jónas Jónasson að 663 Pacific Ave.,
hér í borginni, fyrir skemstu, lagði
af stað suður til Chicago síðastlið-
inn föstudag. Frá Montreal siglir
Sigurður heim á !eið þann 15. þessa
mánaðar.
Séra Rúnólfur Marteinsson fer
vestur í Argyle-bygð í dag (fimtu-
dag), til þess að flytja þar fyrir-
lestur til arðs fyrir Jóns Bjarnason-
ar skóla. Fyrirlesturinn er um
Panamaskurðinn, og er fluttur að
tilmælum bygðarbúa.
Tvö bifreiðarslys urðu
hér í gœr
Annað sjysið var.ð á Hafnarfjarðar-
veginum, rétt sunnan við nýja
kirkjugarðinn.
Laust eftir hádegi í gær var vöru-
bifreiðin “RE 541,” bílstjóri Guð-
mundur Ragnar Jónatansson, til
heimilis á Grettisgötu 44, á leið frá
Reykjavík suður, Haf narf j arðarveg-
inn. Tveir menn voru í bílnum með
honum, Júlíus Gíslason á Hverfis-
götu 98, og sat hann fram í hjá
Guðmundi. Hinn maðurinn heitir
Ólafur Friðriksson og á heima inni
hjá Þvottalaugum. Sat hann á palli
bifreiðarinnar aftan við stýrishúsið.
Þegar þeir voru komnir rétt suður
fyrir nýja kirkjugarðinn í Fossvogi,
hvolfdi bifreiðinni og skrikaði hún'
alllanga leið eftir veginum, bratit af
sér alla yfirbyggingu og stýrishjól-
ið og er það dásanlleg guðsmildi að
allir mennirnir þrír, sem á henni
voru, skyldi sleppa svo að segja ó-
meiddir.
Bifreiði lá þarna á hvolfi á veg-
inum fram eftir deginum, en bif-
reiðarstjórinn gaf lögreglunni
skýrslu um slysið. Segir hann or-
sökina til þess hafa verið þá, að
kind hljóp upp á veginn rétt fyrir
framan bílinn, en eitthvert ólag hafi
verið á hemlunum, svo að ekki
dugðu nema þær, sem voru vinstra
megin. Við það lyftist bifreiðin
upp að aftan, kastaðist til vinstri og
hvolfdi. Vegurinn er þarna breið-
ur og góður.
Hitt bifreiðarslysið varð á vega-
mótum Grófarinnar og Vesturgótu.
Annað bifreiðarslys varð neðst á
Vesturgötunni rétt eftir hádegi í
gær.
Bifreiðin “ÁR 6,” bílstjóri Berg-
ur Vigfússon frá Geirlandi á Síðu
var að fara vestur í bæinn og ætlaði
að beygja niður í Grófina, rétt hjá
verslun V. B. K. Kveðst hann þá
hafa ekið með 15 km. hraða. Kom
þá unglingspiltur á móti honum
vestan Vesturgötuna og lenti á
vinstra aurbretti bifreiðarinnar og
framhjóli rétt á gatnabeygjunni.
Varð áreksturinn svo mikill að hjól-
ið mölbrotnaði, en pilturinn kastað-
ist af því langar leiðir og fótbrotn-
aði svo hastarlega, að beinbrotin
gengu út úr fætinum. Pilturinn,
\em heitir Haraldur Guðmundsson,
fóstursonur Gudbergs hjólhesta-
verksmiðjueiganda, og er aðeins 17
ára að aldri, var þegar fluttur inn í
bensínafgreiðslu Shell, sem er þar
rétt hjá. Var síðan náð í Óskar
Þórðarson lækni, og gerði hann að
beinbrotinu og sendi svo sjúklinginn
til Landakotsspítala.
Mbl. 6. ágúst.
Sigurjón Egilsson frá Laxamýri
fór utan í fyrra sumar, gekk á úr-
smiðaskólann í “Teknologisk In-
stitut” í Kaupmannahöfn og lauk
þar prófi í sumar með ágætisein-
kunn. Undirbúningsmentun sína
hafði Sigurjón fengið hjá Stefáni
úrsmið Thorárensen hér í bænum.
I lok námsins skilaði Sigurjón
“sveinsstykki” eins og venja er til
og var lokið á það miklu lofsorði.
Þó var heiður hans gerður mestur
með því að “Haandverkerforening-
en” danska sæmdi hann hinni stóru
silfurmedalíu sinni og fylgdi skraut-
prentað bréf með, undirritað af
stjórn félagsins. Var Sigurjóni boð-
ið á árshátíð félagsins og var krón-
prinsinn þar heiðursforseti og af-
henti hann Sigurjóni medalíuna og
bréfið.—Þetta er “Isl.” skrifað frá
Höfn og er ánægjulegt til þess að
vita, þegar íslendingar vinna sér
frama erlendis.
~¥-
Ferð í Hallormsstaða-
skóg
(Framh. frá bls. 5)
rökkurblæja legst yfir skóg og tún.
Hestarnir bíða aktýgjaðir, frísa og
stappa í jörðina af óþolinmæði eftir
að komast af stað. Hópar af ferða-
fólki sjást enn á reiki um skóginn,
og úr lundum og rjóðrum berast
glaðværir söngvar út í kvöldkyrðina.
Á flötinni i Atlavík hefir allmargt
fólk safnast saman til skilnaðar-
söngs. Fleiri bætast í hópinn.
Fólkið í brekkunum þagnar og
hlustar: “Þú, bláf jallageimur! með
heiðjökla hring, um hásumar flý eg
þér að hjarta.” Þessi óður til f jall-
anna er sunginn af hrifningu þarna
,««. V. ; M fc’
Jóns Bjarnasonar
Academy
652 HOME ST., WINNIPEG. TALSÍMI 38 309
Miðskólanám að
meðtöldum 1 2. bekk
Hið 21. átarfsár hefát
fimtudaginn 14. sept.
R. MARTEINSSON,
skólastjóri
í nánd þeirra sjálfra. Svo kemur
síðasta lagið. Það er þjóðsöngur-
inn. Menn taka ofan, sumir snögt
og ákveðið, aðrir hikandi og óá-
kveðið, einstaka með hálfgerðri ó-
lund^og tveir láta hattana sitja og
setja upp þráasvip. Það er gamla
íslenzka samtakaleysið, sem hér
gægist fram í smækkaðri mynd. En
þjóðsöngurinn okkar vermir. Hann
leysir úr læðingi. Þráasvipurinn
hverfur af tvímenningunum, og
þeir taka báðir laumulega ofan, þótt
seint sé. Fólkið stendur álengdar
kyrlátt—og hrifið. Skógurinn og
hlíðarnar taka undir, og langt út í
næturkyrðina berst lofgjörðin um
“guð vors lands” á vængjum söngs-
ins.
I nótt má sjá mannaferðir miklar
um Hérað. Hóparnir hverfa í ýms-
ar áttir: upp til Fljótsdals, út á
Völlu, inn til Skriðdals og í allar
áttir aðrar. Vér, sem lengra erum
að, höldum áfram ferðinni—og nú
er ekki farin Fjarðarheiði heldur
Vestdalsheiði. Dalurinn Héraðsmeg-
in á leiðinni frá Eiðum er langur, en
heiðin þeim mun styttri. Á austur-
hrún heiðarinnar er hvílt alllengi.
Seyðisfjörður liggur eins og tröll-
aukin gjá við fætur vora, sjórinn er
spegilsléttur og fagurtær til að sjá
ofan úr hæðunum. En að baki ligg-
ur Fljótsdalshérað í sólmóðu morg-
unsins.
Sv. S.
—Eimreiðin.
Pianokensla
Mrs. Ragnar Gíslason (áður Elma
Árnason, er nú byrjuð á piano-
kenslu að heimili sínu, 753 Mc-
Gee Street hér I borg—og æskir
íslenzkra viðskifta.
Sími 22 780
CARL THORLAKSON
úrsmiður
699 Sargent Ave., Winnipeg
Heimasimi 24 141
Gunnar Erlendson
Teacher of Piano
594 ALVERSTONE STREET
Phone 38, 345
Steini Vigfússon
STE. 14 ALLOWAY COURT
Annast um alt, er að aðgerðum
á Radios lltur. Airials komið upp
fyrir $2.50. Vandað verk. Sann-
gjant verð. Simi 39 526.
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annairt grelðlega um alt, lem að
flutningum lýtur, smáum eða atðr-
um. Hvergi sanngjamara verð.
Heimlli: 762 VICTOR STREET
Slml: 24 500
Distinguished Citizens
Judges, Former Mayors, Noted Educationists, Editors, Leading
La~,cyers, Doctors, and many Prominent Menrof Affairs—send their
Sons and Daughters to the
DOMINION
BUSINESS COLLEGE
When men and women of keen discernment and sound judgement,
after full and painstaking enquiry and investigation, select the
Dominion Business College as the school in which their own sons
and daughters are to reeeive their training for a business career,
it can be taken for granted that they considered the many ad-
vantages offered by the Dominion were too important to be over-
looked.
The DOMINION BUSINESS COULEGE
today offers you the best business courses money can buy, and that
at a cost that brings it easily within your reach.
An ordinary business course no longer fills one’s requirements. It
is the extra measure of skill and knowledge conferred by a Do-
minion Training that singles one out for promotion in any modern
business office. •
It has always been a good investment to secure a Dominion Train-
ing—but today, more than ever, it is important that you secure
the best obtainable in order to compete worthily in the years to
come.
Our Schools are Located
1. ON THE MALL. 3.
2. ST. JAMES—Oomer 4.
College andi Portage.
ST. JOHNS—1308 Main St.
ELMWOOD—Comer
Kelvin and Mclntosh.
JOIN NOW
Day and Evening Glasses
You May Enroll at Any One of Our Four Schools With Perfect
Confidence.